Á þessari síðu er að finna afrakstur fíflaláta minna í tónlistarforritum.
Mest eru þetta lög sem eiga að vera spaugileg, en þó laumast eitt og eitt alvarlegt á milli.
Einnig á ég það til að taka mér það til dundurs að ímynda mér eitthvern stað eða aðstæður og reyna svo að lýsa því með lagi (án söngs eða orða, auðvitað).


Tónlistarstefnurnar eru ýmsar, en allt er þetta þó raftónlist. Framan af hef ég nánast eingöngu gert frekar hröð lög, en undanfarið hafa verið að skjóta upp kollinum rólegri lög og virðist það bara vera gott og blessað. :)


Hér á hægri hönd (nema skjárinn þinn sé speglaður eitthverra hluta vegna) eru ártöl. Smelltu á eitt þeirra til þess að fá lista yfir þau lög sem ég hef samið á því árinu.