Augabliksferðir

Ásta Arnardóttir leiðsögukona, yogakennari og skipuleggjandi Augnabliksferða var tilnefnd til Náttúru og umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2009
Ásta Arnardóttir hefur allt frá árinu 2002 stofnað til leiðangra um hálendisvíðernin og vakið athygli á fáséðum djásnum miðhálendisins. Ásta leggur áherslu á öræfaferðir þar sem fléttað er inn grunnstefum yogavísindanna um lögmál náttúrunnar. Markmið ferðanna er að efla meðvitund um náttúruvernd og mikilvægi þess að vernda lífríki jarðar. Sumarið 2010 hefst með Jónsmessuferð í Þjórsárdal en þar leynast víða fáséðar náttúruperlur og tækifæri gefst til að tína jurtir og grös og fræðast um lækningamátt þeirra. Í júlí verður gengið um náttúruparadís við rætur Vatnajökuls og Hofsjökuls. Hin ástsæla ferð "Fegurðin við Langasjó" verður farin um miðjan júlí, en náttúruvættið Lakagígar, Eldhraun og móbergshryggir frá Grænafjallgarði og norðaustur beggja vegna Langasjávar hafa einstakt fræðslu- og vísindagildi og er talið að landsvæðið gæti komist á Heimsminjaskrá Menningarstofnunar Sameinuðuþjóðanna (UNESCO). Vakin verður athygli á Vatnajökulsþjóðgarði og mikilvægi þess að náttúruparadís við jökulrætur verði innan þjóðgarðsmarka. Merkar landslagsheildir bíða þess að verða teknar með í þjóðgarðinn þar á meðal; Langisjór, austurbakki Jökulsár á Fjöllum, Kverká, Kreppa, Kverkárnes, Kverkfjöll, Kverkfjallarani, Hrúthálsar, Flatadyngja, Kollóttadyngja, Ketildyngja. Við munum sækja heim eldfjallaþjóðgarðinn kringum Öskju og leiðangur verður gerður í hin blómlegu Þjórsárver en öll Þjórsárver, Kerlingafjöll og sandarnir í kring ættu í raun að tilheyra stórum Hofsjökulsþjóðgarði og kemur það svæði, skv. Jack D. Ives, vel til greina á heimsminjaskrá UNESCO.
Gengið verður um þessar merku náttúruminjar, landið lesið skref fyrir skref og helgað hugsjón náttúruverndar. Yoga kvölds og morgna.