Úr ferð á ráðstefnu
samtaka evrópskra skólastjórnenda (ESHA)
|
|
![]() Gamli bærinn er skemmtilegur. Þar skoðaði ég meðal annars þetta verkstæði sem var rétt hjá túristabúðum, stórri mosku og frægum minjum. |
![]() Meðal þess skoðunarverðasta í miðbæ Lemesos er kastali frá miðöldum sem minnir á tíma krossferða og riddaramennsku. Kastala þennan skoða menn á eigin ábyrgð eftir því sem skiltið segir. |
![]() Inngangurinn í kastalann. |
![]() Ég gekk fram á kröfugöngu nemenda. Á skiltinu stendur (umritað á latínuletur): Maþima me axioprepeia nea ktiria tora. Þetta þýðir: Kennslu í mannsæmandi nýjum byggingum strax. |
![]() Á föstudeginum fóru ráðstefnugestir í heimsóknir í skóla og kynnisferð um Kýpur. Ég valdi að heimsækja menntaskóla í útjaðri Lemesos og þessi mynd var tekin í þeirri ferð. Þau fimm sem standa fremst á myndinu eru íslenskir ferðafélagar en allstór hópur Íslendinga sótti ráðstefnuna. |
![]() Nokkrir nemendur í menntaskólanum stilltu sér upp til að ég gæti tekið mynd af þeim. |
![]() Horft á dagskrá sem nemendur menntaskólans settu á svið fyrir okkur. |
![]() Móttökur í skólaheimsókninni voru mjög höfðinglegar. Boðið var upp á úrval kýpverskra þjóðarrétta, flutt tónlist og sýndir þjóðdansar. Maðurinn sem er klæddur í jakkaföt fyrir miðri mynd er skólameistarinn. |
|
![]() Þjóðdansasýning undirbúin. |
![]() Nemendur á sviði í skólagarðinum. |
![]() Þjóðdansasýning. |
![]() Þjóðdansasýning. |
![]() Úr skólaheimsókninni var ekið með hópinn í rútum til Pafos á vesturströnd Kýpur og komið við hjá Grikkjakletti (Petra tou Romiou) þar sem ástargyðjan Afródída varð til úr sælöðrinu í árdaga. Nafn klettsins er tengt sögu af vöskum Grikkja sem Digenis Akritas hét og var rammur að afli. Þegar arabískt innrásarlið kom siglandi einhvern tíma fyrir rúmum þúsund árum varði hann land sitt með því að varpa stórgrýti að skipunum, þar á meðal þessum kletti sem virðist allmiklu þyngri en bæði Fullsterkur og Húsafellshellan. Á þessum tíma og lengi síðan var orðið Romios (sem er í eignarfalli Romiou) notað um grískumælandi menn, enda ekkert annað eftir af Rómaveldi en austurhluti hins forna heimsveldis þar sem menn mæltu á grísku. |
![]() Guðlaugur Pálmi og ég (Atli) hjá Grikkjakletti. |
![]() Borgin Pafos er á heimsmynjaskrá Unesco. Þar eru miklar fornminjar. Þarna er verið að skoða mósaíkgólf frá 2. til 5. öld e. Kr. Gólfið var í húsi sem kallað er Hús Orfeusar og hefur væntanlega verið heimili auðugrar fjölskyldu. Veggir þess og þak eru farin veg allrar veraldar en gófin eru að mestu heil. |
![]() Hluti af mósaíkgólfinu. |
![]() Nokkrir Íslendingar á kaffihúsi í Pafos. |
![]() Höfnin í Pafos. |
Atli, 8..nóvember 2010 |