Atli Harðarson
Ég fæddist í Biskupstungum í Árnessýslu árið 1960 og ólst að mestu upp í Laugarási í þeirri sveit. Foreldrar mínir, Hörður Sigurðsson og Ingibjörg Bjarnadóttir, reistu þar garðyrkjubýlið Lyngás árið 1964 og bjuggu þar þangað til í desember árið 2002 þegar þau fluttu í Hveragerði. Ég á tvö systkini, Bjarna sem býr á Selfossi og Kristínu Þóru í Reykjavík.
Ég lauk námi í barnaskóla Biskupstungna árið 1974 og landsprófi frá Skálholtsskóla vorið 1975. Stúdentspróf tók ég úr eðlisfræðideild Menntaskólans að Laugarvatni vorið 1979 og lauk BA prófi í heimspeki og bókmenntum frá Háskóla Íslands 1982. Árið 1984 útskrifaðist ég með MA próf í heimspeki frá Brown University á Rhode Island í Bandaríkjum Norður Ameríku. Nokkrum árum síðar lauk ég svo námi í uppeldis- og kennslufræðum til kennsluréttinda frá Háskóla Íslands.
Síðan ég lauk námi hef ég lengst af starfað við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi ef frá eru talin skólaárin 1996-7 og 1997-8 þegar ég kenndi við Menntaskólann að Laugarvatni.
Frá 1. ágúst 2001 til 31. júlí 2011 var ég aðstoðarskólameistari við Fjölbrautaskóla Vesturlands. Ég er skipaður skólameistari við sama skóla frá og með 1. ágúst 2011.
Ásamt kennslunni hef ég fengist við heimspeki, ritstörf, félagsmál kennara og gerð námsefnis í tölvufræði. Auk þess sinni ég áhugamálum sem eru breytileg frá ári til árs (nú eru þau aðallega ljósmyndun og gríska.)
Ég var á tímabili í stjórn og skólamálanefnd Hins íslenska kennarafélags. Einnig hef ég setið í stjórn 3F - Félags um upplýsingatækni og menntun og í Samstarfsnefnd um endurmenntun framhaldsskólakennara. Frá júní 2002 til júní 2005 var ég stjórnarmaður í Félagi íslenskra framhaldsskóla (FÍF) og frá október 2003 til júní 2005 var ég í stjórn Félags stjórnenda í framhaldsskólum (FS) en áður var ég formaður skólamálanefndar þess félags sem er eitt af aðildarfélögum Kennarasambands Íslands. Milli 2005 og 2008 var ég í stjórn Símenntunarmiðstöðvarinnar á Vesturlandi.
Frá upphafi árs 2008 til ársloka 2009 var ég formaður stjórnar Launasjóðs fræðiritahöfunda. Frá upphafi árs 2009 til miðs árs 2011 var ég fulltrúi Félags framhaldsskólakennara og Félags stjórnenda í framhaldsskólum í Siðaráði Kennarasambands Íslands og gegndi embætti formanns í ráðinu.*
Eiginkona mín er Harpa Hreinsdóttir móðurmálskennari. Við eigum tvo syni, Mána (fd. 1985) sem lauk meistaraprófi í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík vorið 2011 og starfar hjá lögfræðistofunni Logos í Reykjavík og Vífil (fd. 1991) sem lauk stúdentsprófi vorið 2011 nemur íslensku við Háskóla Íslands. Fjölskyldan býr að Vallholti 19 á Akranesi.
Ég hef verið félagi í Rótarýklúbbi Akraness síðan í maí 2004.*
Ég hef birt greinar og ritgerðir um heimspekileg efni í bókum og tímaritum og ritað fjórar heilar bækur um heimspekileg efni. Þær heita Afarkostir (1995), Vafamál (1998), Af jarðlegum skilningi (2001) og Í sátt við óvissuna (2009).
Atli í maí 2003