Um próf í HSP123
á vorönn 2009
Aðalsíða - Kennsluáætlun - Verkefni - Próf
Á prófi sem haldið verður 5. maí verða þrjú af eftirtöldum sjö verkefnum og þar af skal hver nemandi leysa tvö. Hvert verkefni vegur 35% af einkunn fyrir prófið. Stutt óundirbúin verkefni (s.s. krossa- og tengispurningar, eyðufyllingaverkefni eða spurningar sem svara skal með einni málsgrein) vega 30%.
- Hvaða ástæður hefur Sókrates til að álíta að það sé slæmt fyrir mann sjálfan að brjóta af sér?
- Skoðanir Kallíklesar.
- Hvað er líkt og hvað ólíkt í boðskap Sókratesar (eins og hann birtist í Gorgíasi) og Jesú (eins og hann birtist í Fjallræðunni)?
- Menningarleg afstæðishyggja.
- Hvernig rökstuddi Mill að sumar gerðir ánægju séu dýrmætari en aðrar og hvers vegna þurfti hann að rökstyðja það?
- Er hamingja það eina sem menn sækjast eftir?
- Tókst Mill að sýna fram á að nytjareglan sé í samræmi við réttlætiskennd fólks?
Lausn á hverju verkefni skal vera stutt ritgerð (1 til 3 handskrifaðar blaðsíður). Þegar einkunn er gefin er tekið mið af eftirtöldu:
- Skilningur og þekking á efninu (að fram komi að nemandi viti um hvað málið snýst og hafi skilið textana sem átti að lesa).
- Frumleg hugsun (m.a. að nemandi setji fram sínar eigin hugmyndir um efnið og noti eigið orðalag til að útskýra þær).
- Skipuleg og rökrétt framsetning.
Þegar lokaeinkunn er gefin fyrir áfangann vegur prófið 50% og verkefni sem unnin voru á önninni 50%.
Aðalsíða - Kennsluáætlun - Verkefni - Próf