Um próf í HSP203
á vorönn 2009


Aðalsíða - Kennsluáætlun - Verkefni - Próf

Á  prófi sem haldið verður í 8. maí verða 4 af eftirtöldum 12 verkefnum. Hvert verkefni vegur 20% af einkunn fyrir prófið. 20% af prófinu verða stutt óundirbúin verkefni (s.s. krossa- og tengispurningar, eyðufyllingaverkefni eða spurningar sem svara skal með einni málsgrein).

  1. Um hvað fjallaði grísk heimspeki fyrir daga Sókratesar?
  2. Helstu heimspekistefnur eftir daga Aristótelesar og til loka fornaldar.
  3. Ágústínus frá Hippó.
  4. Hvað er líkt og hvað ólíkt í heimspeki Descartes og Spinoza?
  5. Stjórnmálaheimspeki Locke og Rousseau.
  6. Efahyggja Davids Hume.
  7. Hvernig notaði Kant greinarmuninn á hlutunum eins og þeir birtast okkur og hlutunum eins og þeir eru í sjálfum sér til að varpa ljósi á vandamálið um frelsi viljans.
  8. Siðfræði- og stjórnmálakenningar J. S. Mill.
  9. Hugmyndir Georgs Hegel og Karls Marx um þróun samfélagsins.
  10. Nietzsche og andóf hans gegn kristinni trú og kristnu siðferði.
  11. Kenningar Karls Popper um vísindi og vísindalega þekkingu.
  12. Á fyrri hluta 20. aldar tóku ensk og frönsk heimspeki ólíka stefnu. Hvað var einkum ólíkt?

Lausn á hverju verkefni skal vera stutt ritgerð (hálf til ein og hálf handskrifuð blaðsíða). Þegar einkunn er gefin er tekið mið af eftirtöldu:

Þegar lokaeinkunn er reiknuð vega verkefni þriðjung, ritgerð þriðjung og lokapróf þriðjung.


Aðalsíða - Kennsluáætlun - Verkefni - Próf