Kennari: Atli Harðarson (atli@fva.is) Fjölbrautaskóli Vesturlands
Aðalsíða - Kennsluáætlun - Verkefni - Próf
Lesefni áfangans
Saga heimspekinnar eftir Brian Magee (ísl. þýð. Robert Jack), Mál og menning 2002.
KjörbókHelstu markmið
Nemendur kynnist sögu vestrænnar heimspeki og tengslum hennar við vísindi, fræði, samfélagsþróun og trúarbrögð.Stutt verkefni
Á hverjum mánudegi frá 12. janúar til 6. apríl birtist nýtt verkefni á vefnum. Alls verða þessi verkefni þrettán talsins og þar af skal hver nemandi leysa a.m.k. tíu. Nemendur skulu skila lausn á hverju verkefni í síðasta lagi á föstudegi í vikunni eftir að það birtist á vefnum. Þeir hafa því tólf daga til að leysa hvert verkefni. (Þetta gildir þó ekki um síðasta verkefnið sem birtist í byrjun páskaleyfis. Því má skila í á föstudegi í þarnæstu viku.) Nemendur geta spurt kennara ráða eða beðið um skýringar á verkefnum. Hægt er að hafa samband við kennara í gegnum Plútó. Einnig er hægt að hitta kennara eða nota síma eða tölvupóst.Kennari sendir svar eða athugasemdir við verkefni í síðasta lagi á mánudegi eftir að skilafrestur rennur út. Nemandi ber ábyrgð á að verkefni komist til skila. Bilun í tölvum eða tæknibúnaði eru ekki gild afsökun. Telji nemandi sig hafa skilað verkefni og hafi hann ekki fengið svar áður en næsti mánudagur er liðinn ber honum að hafa samband við kennara (til dæmis í síma) og kanna hvort verkefnið hafi ekki borist. Að öðrum kosti telst hann hafa sleppt því að skila verkefninu og gildir þá einu þótt hann hafa reynt að senda það.
Ritgerð
Hver nemandi velur eina bók og skrifar um hana ritgerð. Velja skal ritgerðarefni fyrir 15. febrúar og skila uppkasti að ritgerð fyrir 15. mars og fullfrágenginni ritgerð fyrir 30. apríl. Ritgerðin skal fjalla um hugmyndir, kenningar eða rökfærslur sem koma fyrir í bókinni. Meðal bóka sem til greina kemur að fjalla um eru:
- Ágústínus: Játningar.
- Epiktetos: Hver er sinnar gæfu smiður: Handbók Epiktets.
- Aldous Huxley: Veröld ný og góð. (Skáldsaga.)
- John Stuart Mill: Frelsið.
- Marx og Engels: Kommúnistaávarpið.
- Nietzsche: Svo mælti Zaraþústra.
- Platon: Ríkið (eða hluti af Ríkinu, t.d. fyrsta bókin).
- Platon: Samdrykkjan.
- Voltaire: Birtíngur.
Þegar einkunn er gefin fyrir ritgerð er tekið tillit til eftirfarandi:
- Hvort ritgerðarefni, uppkasti og fullbúinni ritgerð er skilað á réttum tíma (vegur 10%).
- Vandvirkni, málfar, stíll og frágangur (vegur 10%).
- Skipuleg og skýr framsetning (vegur 20%).
- Skilningur á textanum sem fjallað er um (vegur 30%).
- Frumleg og sjálfstæð hugsun (vegur 30%).
Skil á verkefnum og ritgerð
Öllum verkefnum og ritgerð skal skilað til kennara í gegnum Plútó. Best er að senda þau sem viðhengi á formi Microsoft Word f. Windows. Vanda skal uppsetningu á texta, réttritun og frágang.Námsmat
Þegar lokaeinkunn er reiknuð vega verkefni þriðjung, ritgerð þriðjung og lokapróf þriðjung.Skili nemandi fleiri verkefnum en 10 gilda 10 bestu þegar lokaeinkunn er reiknuð. Þau hafa öll sama vægi.
Ef nemandi skilar ekki ritgerð og a.m.k. tíu verkefnum á önninni fellur hann í áfanganum og er þá alveg sama hvaða einkunn hann fær á prófinu. Einnig þarf að standast lokapróf (þ.e. fá a.m.k. 5 á prófinu).
Lokaprófið verður úr öllu lesefni áfangans og úr verkefnum sem lögð verða fyrir á önninni. Fyrir lok mars birtast 12 spurningar á vef áfangans, 5 þeirra koma á prófinu og vega samtals 75% af einkunn. 25% af prófinu verða stutt óundirbúin verkefni (s.s. krossa- og tengispurningar, eyðufyllingaverkefni eða spurningar sem svara skal með einni málsgrein).
Aðalsíða - Kennsluáætlun - Verkefni - Próf