02.02.08
Alltof margir pissa á sig af æsingi yfir Staksteinapistlum
Moggans eins og það röfl skipti einhverju máli. Fólk
segir jafnvel upp blaðinu í æsingnum. Hvað með
það þó einhver gamall pungur sé að röfla
út í horni? Stórgóða paródíu
á gamla pungfýluröflið má nálgast
hjá Ztyrmi.
---
Það var viðtal við mig á Vísi v/ mótmælalaganna,
hér.
---
Og krakkar mínir komiði sæl: Þá erða
að kjósa eins og mömmuserðandi andskoti því
Dr. Spock og HVAR ERTU NÚ? er í sjónvarpinu í
kvöld. 900-2003 er gullmiðinn í aðalkeppnina
23. feb. Ég mun þurfa að koma fram og þykjast spila
á bassa en syngja bakraddir í alvöru og velti nú
vöngum yfir því hvaða havaískyrta lítur
minnst út eins og tjald á mér hafandi ekki keypt mér
nýja havaískyrtu eftir alla brennsluna. Held samt að
hinn sérhannaði höfuðbúnaður muni draga
alla athygli frá skyrtunni.
01.02.08
Get ekki gert að því að roðna örlítið
eins og kerling þegar ég heyri auglýsinguna um "ókeypis
innsetningu" í útvarpinu. Og voðalega auglýsir
S Helgason mikið þessa legsteinaútsölu sína.
Er fólk eitthvað að skoða og kaupa svoleiðis fram
í tímann?
---
Úrelding. Það er ekki nóg með að allir
séu hættir að tala um að kolefnisjafna, enginn talar
heldur um að heiðra sinn lingam eða yoni. Kannski kominn tími
til að kolefnisheiðra á sér lingaminn?
---
Ein frétt er svona: Akureyringur hreppti fyrsta Lottó-vinninginn
í fjórföldum potti um síðustu helgi, nærri
tuttugu og tvær milljónir króna. Önnur er
svona: Bjarni Ármannsson fékk 100 miljónir króna
í starfslokasamning þegar hann hætti sem forstjóri
Glitnis á síðasta ári. Arftaki hans, Lárus
Welding, fékk 300 milljónir króna fyrir það
eitt að ráða sig til bankans. Ergo: Gáfulegra er
að fara í viðskiptafræði (eða hvar sem það
er sem maður lærir að verða svona æðislegur)
en að kaupa lottómiða eins og einhver vesalingur með
hor. Það er nú bara pínöts.
31.01.08
(a la E.H.)
Ég þoli ekki...
Snúningshurðina í Kringlunni og Smáralind.
Líður alltaf eins og verið sé að moka mér
inn sem lambi á leið til slátrunar (á altari Mammons,
ef þú vilt).
Þoli ekki heldur sjálfvirkar hurðir sem opnast þegar
maður kemur í geisla. Þetta er alltaf bilandi og ég
hef marg oft verið klemmdur á milli. Ég er fullur tortryggni
á svona hurðir.
Ég þoli ekki fólk sem segir "heyrðu" á
undan öllu sem það segir. "Heyrðu, ég er nú
bara hræddur um að ég hafi keyrt á köttinn
þinn". Þoli samt síst að ég segi stundum
"heyrðu" sjálfur á undan því sem ég
segi, sérstaklega ef ég er eitthvað stressaður.
Þoli ekki íþróttafréttamenn með
grátstafinn í kverkunum. Ég fylgist svo sem lítið
sem ekkert með kappleikjaútsendingum en stundum rekst maður
á svona. "Sjáiði þetta, sjáiði þetta...."
væla þessir gaurar alveg að fara að grenja út
af einhverju voða flottu sem einhver hálaunapungurinn var að
gera við tuðruna.
Meira þoli ég ekki í bili.
---
Hvað er þessi Moddys alltaf að rífa kjaft? Bað
hann einhver um það? Láttu okkur vera þarna Moodys
bjáni. Það er og verður alltaf allt frábært
á Íslandi.
---
Hajime
Chitose - Birthday
Prógressífu fífukollarnir í Mars Volta
hafa tekið Ammæli Sykurmolanna. Útgáfan liggur
hér
frammi á Amazon. Furðulega líkt Björk þessi
söngur, er þetta samplað eða eitthvað fiff? Aðrir
hafa húrrað sér á Ammæli í gegnum
tíðina, t.d. japanska söngkonan Hajime Chitose, sem þar
að auki notast við klippingu Bjarkar á meðfylgjandi
mynd. Veit ekkert um þessa stelpu en útgáfan er eitthvað
leidbakk hippanýaldarsoftpopp og nokkuð spaugileg.
30.01.08
Horfði á Kompás um guðsmanninn Guðmund í
Byrginu. Djöfull reyndi sá að ljúga sig í
gegnum flækjuna og skemmtilegt var að láta rifja upp fyrir
sér hvernig annálaðir bloggarar sleiktu þvæluna
upp og skömmuðu Kompás fyrir ónærgætnina
ætlar enginn að hugsa um börnin? Iron master væri
eflaust enn á fullu með Biblíuna í einni og klemmurnar
í hinni ef Kompás hefði bara haldið kjafti "af því
þetta er svo lítið land". Fátt nýtt kom
fram í þessum upprifjunarþætti nema algjört
áhugaleysi stjórnvalda á langt leiddum dópistum.
Væri þetta gert við hjartaveikt fólk? spurði
ein mamman. Þá spurði Lufsan: Væri þetta gert
við fólk sem stingur sig sjálft ítrekað í
hjartað? Þá sagði ég: Uss svona svona, dópistar
eru sjúklingar. Aumingja fólkið ræður ekkert
við sig. Innst inni var ég þó sammála Lufsunni
enda ekkert uppfullur af samúð í garð fólks
haldið róna og dópistaveiki, leiðinlegasta sjúkdómi
í heimi. Ef ég væri í stjórnmálum
hefði ég eflaust bara glaðst eins og aðrir yfir því
að losna við þetta allt saman til hans Guðmundar í
Byrginu, þess elskulega manns og strangtrúaða eldhuga.
---
Svo er bara að sjá hvað langt líður þar
til Byrgið II opnar með hjálp Ríkisins, enda eiga
"allir að fá annan séns" a.m.k. á Íslandi.
---
Ég lýsi hér með yfir opinberum stuðningi
við Barack Obama.
---
Óli Sindri hefur snúið aftur í mjög góðu
formi ásamt bræðrum sínum á Maurildi.
Gaman að sjá að Óli þarf enga Mengellu grímu
lengur til að skrifa jafn eiturmergjaða pistla og Nýju fötin
Kalífans.
29.01.08
Íslenski málefnaþæfingurinn lætur ekki
að sér hæða. Einni viku eftir bíræfið
valdarán er umræðan farin að snúast um það
hvort Spaugstofan sé fyndin eða ekki. Þæfa þæfa
þæf þæf.
---
Spáð er 17 stiga frosti á föstudaginn. Ég
man ekki eftir öðru eins. Nú er gott að eiga norsk
ullarnærföt. Já og Spock á laugardaginn. Ef við
drepumst ekki úr kulda.
27.01.08
EP-platan AÐ GEFNU TILEFNI 4 mótmælalög er
nú fáanleg. Lögin má sækja frítt
eða fá þau á CD-diski heim að dyrum. Nánari
upplýsingar: AÐ
GEFNU TILEFNI
26.01.08
Nú er ég kominn í hóp helstu kverúlanta
landsins, manna eins og Gríms
konungs Bolvíkinga og Björvins
Vals sem átti ágæta lýsingu á GGVilla
nýlega: "talandi hárkollustatíf". Ég er sem
sé kominn á Eyjubloggið. Ég neita því
ekki að ég fer oft á Eyjuna
til að leita mér frétta og lesa blogg svo þetta
er bara fínt. Vegsemdinni fylgir ný mynd eftir snillinginn
Halldór Baldursson (Pétursson þessarar aldar). Einhver
var að biðja um fyrir-eftir-myndir af mér vegna 30 kílóanna
sem nú eru bráðnuð oní gólfið á
World class og því kemur þetta hér:
---
Heyrði ég rétt? Eru Björk, Sjón, Árni
Matt og Kjartan í Sigur Rós í nefnd "Kraums", sem
eru 50 millur frá Ólafi í Samskipum sem honum langar
svona sjúklega að styrkja einhvern gegt töff tónlistarmann
með? Hvar sækir maður um? Mér hefur alltaf þótt
þessi Ólafur ógeðslega töff náungi.
Hann sýndi guðdómlega frábæran smekk þegar
hann fékk Elton í ammælið og er gegt næs
þegar hann flýgur á þyrlunni yfir kotbóndann
nágranna sinn á Snæfellsnesi. Ég hef verið
að vinna að sólóplötunni Vettlingur á
gaddavír, ljóð Gyrðis í nýju ljósi,
og veitti ekkert af svona 5 millum til að hafa tíma í
þetta. Hvassegiði? Ereddekki díll?
---
Einnig í vinnslu er EP platan AÐ GEFNU TILEFNI - 4 mótmælalög.
Ætti að koma "út" um helgina.
25.01.08
Látíð alla helgina á Sirkus. Það
er ekkert skrítið að fólki sé heitt í
hamsi enda á að rífa Sirkus og Hljómalindarhúsið
og öll helstu krúttathvörf miðbæjarins. Koma
með steindauð ilmvatnsgallerí í staðinn. Giggið
hefst kl. 17 í dag og á morgun en kl. 19 á sunnudag.
Stendur yfir til miðnættis. Frítt inn. Allir í
heimi spila. Líka ég meira að segja. Ég veit samt
ekki hvenær. Hef samið sérstakt baráttuprógramm
í tilefni að funheitum ólgutímum.
---
Mér sýnist aðallega blóðlaust fólk
með uppþornuð kynfæri kalla lætin í Ráðhúsinu
"skrílslæti". Þó það nú væri
að það gengi eitthvað á þegar svona rugl
er borið á borð fyrir mann. Körlunum í spinning
gat þó ekki verið meira sama og töluðu um fótbolta
eins og alla aðra daga. Ég held að þó kjarnorkusveppur
birtist yfir Keili myndu þeir samt halda áfram að tala
um hvernig Liverpool og Arsenal gekk í gær.
24.01.08
Það eru stórtíðindi daglega. Stjórnmálamenn
sitja á svikráðum. Um það hef ég tjáð
mig í Bakþanka-greininni Handrukkarar
lýðræðisins. Ég er reiður, enda er
öll þjóðin reið (nema glerhörðustu sjallar
og aðdáendur Ólafs Eff, allir þrír). Meira
að segja íhaldsmanneskjan hún Lufsan mín segist
frekar myndi kjósa Dag en GGVilla. Svakalega er sá gaur orðinn
þreyttur með sitt tuð um mistökin og 16 ár í
bransanum, eða hvað það er. Ekki eru minni tíðindi
að Satan sjálfur hefur pakkað saman og yfirgefið bygginguna.
Lúxor hópurinn er allur. Já og Björn Ingi er
hættur líka. Hvað næst eiginlega? Það
hryktir í stoðum skynseminnar!
23.01.08
Sko Dag!
Dag sem borgarstjóra aftur í síðasta lagi 2010,
ekki spurning. Hann kemur út er þessu rugli öllu sem
algjör vinner.
22.01.08
Hvað nú? Lokar Kolaportið? Verður aftur farið
að tala um að hugsa "út fyrir rammann" í leikskólamálum.
Hér
er undirskriftalisti hinna óánægðu.
21.01.08
Andskotans djöfulsins kjaftæði er þetta. Er ekki
bara hægt að efna til nýrra kosninga? Þarf ekki
að taka fram fyrir hendurnar á þessum framapoturum?
19.01.08
Ég sé oft ofsjónir á forsíðum
blaðanna þegar ég fer svefndrukkinn og stíreygður
að sækja þau. Um 30 þúsund eru ekki með
heimilistæki, sagði Fbl t.d. í morgun og ég
sá fyrir mér að heilu þorpin á hálendinu
hefðu uppgötvast þar sem fólk væri í
Gísla á Uppsölum fílingi. En nei nei, þá
var bara verið að tala um heimilislækni.
---
Bobby Fischer er allur. Skákeinvígið man ég
nánast eingöngu út frá myndum Halldórs
Péturssonar og áhuga pabba míns á því.
Þetta var stórkostlegur stórviðburður á
þeim tíma, þegar fásinnið var jafnvel meira
hér. Pabbi fór á einn leikinn og fylgdist grannt með
keppninni. Við héldum auðvitað með Spasskí
enda Fischer bæði klikk og Kani. Ég var mikill aðdáandi
Halldórs Pé og alltaf að stæla myndirnar. Eitthvað
þvældist þetta samt fyrir kennurunum sem kölluðu
mig "Litli Sigmund". Halldór, ekki Sigmund, apakettir! Síðar
fannst mér davíðslega sætt þegar hann dreif
íðí að gera karlgarminn íslenskann og einu
sinni sá ég Bobby og japönsku kerlinguna að væflast
á umferðareyju í miðbænum. Skák gerir
fólk geðveikt. Ég er ömurlega lélegur í
skák og hef engan áhuga á að verða betri.
Mér er eiginlega illa við skák eftir að ég
fór á eitthvað skákmót í gagnfræðaskóla
og skíttapaði fyrir öllum. Fokk skák!
---
Sonic
Chicken 4 - Do it alright
Sonic Chicken 4 er hressandi gamlaskólarokkband frá Perpignan
í Frans. Fyrsta fullvaxna platan er komin út hjá In
the Red í USA og er svona líka væld. Platan er gefin
út á skemmtilegan máta, á vinýl en með
fylgir cd ef fólk vill koma þessu í tölvuna sína.
Sniðugt. CDið er náttúrlega dautt og LP vonandi að
koma sterkt inn aftur!
16.01.08
Góða fólkið sem má ekkert illt sjá,
þ.á.m. svívirðilega árásir á
múslíma sem Jótlandsosturinn ældi yfir heiminn
um árið, fer mikinn í kommentakerfi
Egils Helgasonar. Skemmtilegasta kommentið er auðvitað
þessi mynd hér:
Þetta er auðvitað miklu fyndnara skrípó
en þetta Sigmundslega danska stöff, sem Osturinn var samt auðvitað
í öllum rétti að birta um árið. Hvað
með það þótt öfgatrúað lið
móðgist yfir slöppu gríni? Það má
og á að gera grín að öllu, sérstaklega
ímynduðum ofurverum. Heilagar beljur eru til að sparka í.
Og svo nenni ég ekki að ræða þetta frekar.
---
Ég segi það sem almenningur í landinu að
það eru embættisfærslur Árna Mathiesen sem
hafa veikt tiltrú mína á dómstólum,
ekki nöldrið í Pétri Kr. Hafstein. Skandall! Út
af með þetta lið! Það held ég nú
að Ingibjörg og Össur myndu gjamma eins og froðufellandi
smáhundar ef þau væru hinu megin borðsins. Djöfulsins
prinsipplausa oní kjötkatlaslefandi skítapakk. Er mest
töff að ganga í Framsóknarflokkinn núna?
Nei þetta er allt sama hyskið. Það vita allir.
---
Og afhverju talar enginn við Þorstein Davíðsson?
Hefur einhver heyrt hann tala? Kann hann að tala? Stóðu
ekki öll spjót að Auðunni Georgssyni í svipuðu
skandalmáli fyrir nokkru? Þurfti hann ekki að stama sig
út í horn? Hvað segir Þorsteinn? Þorir enginn
fjölmiðill að yrða á hann? Kemur þetta honum
kannski ekkert við? Það eru varla einu sinni til ljósmyndir
af honum. Og hvað segir Ragnheiður Clausen um þetta allt
saman? (Öppdeit: Vísir hefur brugðist við og birt
nærmynd
af ÞD. Reyndar er ekkert talað við hann enda veitir hann
víst ekki viðtöl. Hins vegar lætur R. Clausen ýmislegt
fjúka. Skv. þessu flutti ÞD að heimann 36 ára
sem er helvíti vel af sér vikið. Ég flutti af
hóteli Mapa 23 ára og þótti það all
seint á þeim tíma (1988). Svona breytast viðhorfin
í þessu.)
---
Það er góðæri, Range Rover kaupandi sælutíð.
Svo þegar liðið sem er með 130 á mánuði
ætlar að biðja um 150 á mánuði er auðvitað
allt á leið til helvítis og engin leið að breyta
neinu. Alltaf sama sagan. Má ekki ógna stöðugleikanum.
Hvaða stöðugleika? Að sumir séu alltaf með
horin í nefinu á botninum sama hvað þeir púla
mikið? Ég skil ekki afhverju Vilhjálmur Egilsson og þetta
lið segir bara ekki það sem það meinar: Sumir eiga
að vera ógeðslega ríkir en hinir ógeðslega
blankir og fokkiði ykkur svo aumingjarnir ykkar. Lítið pönk
í verkalýðshreyfingunni, helst pabbi Bjarkar sem er harður
og þá aðallega í hlutverki reiða eineltispabbans
í fjölmiðlum.
13.01.08
Það var ljómandi að komast áfram með
Dr. Spock. Næsta þolraun er 2. feb á móti eintómum
vinnerum. Ég þakka þeim sem hringdu!
---
Hlaupið hefur á snærið í gosdrykkju. Keypti
tvær tylftir frá Bevmo.com af alls kyns stöffi og mun
drekka þegar þyngdartap bíður upp á. Heiða
fór til Berlínar og kom með 2 flöskur fyrir mig
af lókal stöffi. Því miður ekki gott! Einhver
maður kom færandi hendi frá Brasilíu með tvær
dósir af vinsælasta gosinu þaðan. Þannig vildi
hann þakka fyrir að hafa fengið að dánlóda
Goð um árið. Þetta kallar maður servis! (sjá
nánar á Gos).
---
Var á ættarmóti á Skógum. Gekk aðeins
upp með Skógaá, svona 1/12 af leiðinni til Bása.
Komst í fíling. Annars er maður eitthvað klessulegur
og andlaus. Bara gaman að því... þaggi!
---
Ég bendi á Chocoreve.
Hér eru heilu plöturnar til niðurhals. Áhugasvið
deilanda er gamalt sixtíspönk og liggja hér hinar ýmsustu
obskjúr safnplötur á glámbekk. Einnig fullt af
frönsku sixtísdóti, þ.á.m. fullt af Gainsbourg.
Gullnáma, myndi ég segja.
10.01.08
Ellý Ármanns klikkar ekki í plögginu og birtir
nú sjónvarpsviðtal við Óttarr Proppé
á heimasíðu
sinni. Eins og komið hefur fram verður Hvar ertu nú?
flutt á laugardaginn og ég treysti á að þú
hringir eins og brjálæðingur og tryggir Spockinu sæti
í 12 laga úrslitum. Annað væri hneyksli.
---
Tannlæknirinn juðaðist á kjaftinum á mér
í morgun. Ég sat með kjaftinn í slipp og gat ekki
stunið upp öðru en mmm, mmm. Samt malaði læknirinn
allan tímann (klukkutíma) um allt milli himins og jarðar.
Flengingar á börnum, blóðflokkamataræði
og verðbréf í Oz, svo eitthvað sé nefnt. Mjög
gott gigg.
---
Ég var dofinn fram undir hádegi og hefði getað
étið á mér kinnina innan frá hefði
ég viljað. Sem ég vildi náttúrlega ekki.
Hvað væri það? Sjálfsát?
---
Síðasti
Bakþanki er finnskt raunsæisþunglyndi. Þess
má geta að þetta með fasteignaauglýsingarnar
á Vanuatu er lýgi, en restin nokkur vegin sönn.
09.01.08
Fastagestur í spinning sagðist hafa farið í Grand
spa en fallist allur ketill í eld þegar hann sá "gamla
biskupinn" Hr. Sigurbjörn Einarsson á næsta bretti. Mér
fannst þetta stórfrétt enda Sigurbjörn 96 ára.
Því miður varð ekki úr því að
þetta færi í Fréttablaðið því
ég hringdi í biskupinn og hann sagist aldrei hafa komið
í líkamsræktarstöð. Hló bara að
þessari fyrru. Ég var nokkuð fúll yfir að skúbbið
væri della því ég var búinn að sjá
fyrir mér fyrirsögnina: Biskup á bretti. Ég var
líka að spá í samsettri mynd af biskup með
svitaband. Jafnvel kross í staðinn fyrir pumuna.
---
Hef mætt aðeins í WC út á Seltjarnarnesi.
Virðist vera ágætt en er dálítið fokhelt
eins og er. Enginn vatnsbrunnur, engin svitahandklæði, engin
vigt í búningsherberginu. Laugar er enn langbest.
---
Hér
er góð grein í Guardian fyrir blankt fólk sem
vill tónlist engu að síður.
06.01.08
Uppáhaldsauglýsingin mín þessa dagana er
fyrir Geymslur. Það er svo gott lag í henni (eftir Valgeir
Guðjónsson). Taktu eftir því næst.
---
Þrautarganga mín í forvali Eurovision, aka Laugardagslögunum,
hefur verið framlengd því Dr. Spock með Hvar ertu
nú? keppir á móti Fabúlu og Hafdísi
Huld næsta laugardag í sérstökum aukaþætti.
Aðeins eitt af þessum þremur lögum fer áfram
og bætist í haug laganna sem þá verða orðin
12. Það er því bráðnauðsynlegt að
hringja og hringja, enda fátt meira upplagt en að eyða hundrað
köllunum sínum í svona. (Hér
má hlusta á snilldina og hér
má sjá hana.)
---
Ég eignaðist tvo fyrstu diskana af Fóstbræðrum.
Á endanum mun ég að öllum líkindum eiga þá
alla fimm. Það var þarfaþing að koma þessu
út en betur hefði mátt standa að útgáfunni.
Þetta lúkkar alveg eins og videóútgáfan,
það er ekkert aukaefni og engin komment eða neitt. Best hefði
auðvitað verið að bjóða upp á alla seríurnar
fimm í vandaðri öskju. Enda skilst mér að ekki
ríkji mikil ánægja með endurútgáfuna
hjá Fóstbræðrunum sjálfum. En altso, skárra
en ekkert.
---
Talandi um framtíðarkaup á dvd þá myndi
ég segja að þessi
8-diska pakki með myndum Luis Bunuels komi fyrr eða síðar
í hús. Um Bunuel er lítið rætt þessi
dægrin og kannski finnst manni myndirnar hans algjört krapp
ef maður sér þær núna. Ég man þó
að mér fannst stöff eins og CET OBSCUR OBJET DU DESIRE,
DISCREET CHARM OF THE BOURGEOISIE og PHANTOM OF LIBERTY gargandi snilld
og bara bestu myndir í heimi. Mér fannst kaldhæðinn
súrrealisminn hans Bunuels alltaf langbestur af þessu evrópska
arthouse dóti, sem maður sá á ófáum
kvikmyndahátíðum og víðar á 9. og jafnvel
10. áratugnum. Ég fílaði takmarkað þessa
þýsku gaura alla, hvað þá hinn ofurþunglynda
Tarkovsky, sem margir voru gapandi yfir slefbólgnir í kringum
1980. En Bunuel... Það var snilld, og nú er kominn tími
á kombakk.
---
Og talandi á dót sem ég þarf að fá
mér þá hef ég komist að því
að mig langar að eignast Ford Mustang. Mér hefur alltaf
þótt þetta æðislegir bílar og er ég
þó ekki bílakarl, samanber það að ég
lærði ekki á bíl fyrr en 38 ára (reyndar
mikil mistök að hafa ekki lært fyrr). Ford Mustang eru glæsilegir
bílar, táknmynd töffaramennskunnar (og gráa fiðringsins).
Þeir halda eðalstílnum og nýjustu týpurnar
eru síst minna glæsileikar en eldri bílar. Ég
tek heilshugar undir þennan boðskap á heimasíðu
Brimborgar:
Komdu í Brimborg skoðaðu Mustang, finndu
Mustang, kauptu Mustang og þú ert miðpunktur alheimsins,
öll kvöld, alla daga í mörg mörg mörg ár.
Veldu Ford. Kynntu þér örugga þjónustu Brimborgar.
Vertu í hópi þeirra bestu, í dag og um alla
framtíð. Vertu á Mustang.
Einn daginn ek ég einum svona, kannski fæ ég hann
í fimmtugsgjöf 2015. Og þá geng ég náttúrlega
í Mustang klúbbinn
(og verð "miðpunktur alheimsins"). Og hvað annað núna,
en:
Serge
Gainsbourg - Ford Mustang
---
Og hér er Geirfinns mál íslenska rokksins, hljómsveitin
Vér
eðlum oss (nema hún heiti eitthvað annað?) Maggi
Strump er að verða gráhærður því
hann veit ekki hvað þetta er eða hvaða menn eru þarna
á ferð. Veit það einhver? Plís!
Hér
má hlusta á tónbrotið dularfulla.
05.01.08
Blóðugur maður ógnar fólki með hnífi.
Britney fær ekki að sjá syni sína. Dabbi Grensás
ræðst á enn einn fótboltamanninn. Hvað er þetta
mað Dabba og fótboltamenn? Er hann anti-sportisti dauðans?
Týndir unglingar. Sem sé ekkert nema fólk í
rugli í fréttunum.
---
Hápunktur gærdagsins var að hitta þá
Hemma Gunn og Óttarr Proppé fyrir utan útvarpssvið
365. Ég var svei mér þá búinn að
gleyma að Hemmi Gunn væri til. Það má helst
ekki gerast aftur. Báðir voru dúndurhressir. Hemmi í
rauðri peysu, Óttarr í glæsilegum veiðijakka.
Umræðuefni okkar þriggja var svo leyndardómsfullt
að ekki má segja frá því á svona
opinberum stað.
---
Síðar talaði ég við tónlistarmanninn
BMV sem er heimsfrægur í Grikklandi. Hann var einnig mjög
leyndardómsfullur.
---
Sé fólk að leita að funheitri músik mæli
ég með samantekt
Pitchfork á 100 bestu lögum 2007. Fullt af tóndæmum
þar. Þá hefur hljómsveitin The Harvey girls búið
til fínt 19 laga mix sem má nálgast hér.
Erlendi annállinn minn sem var á Rás 2 er áhlustanlegur
hér
og íslenski annáll Ásgeirs Tómassonar er hér.
Sjálfur undirbý ég nú útvarpsþáttaröð
um snælduútgáfu á Íslandi. Ég
er dálítið lost í sumu, enda verður þetta
varla meira undergránd en þetta. Meðlimir eftirtalinna
hljómsveita, eða þeir sem vita eitthvað um þessi
bönd og snældur þeirra, mega endilega hafa
samband við mig:
Guði gleymdir
Tennurnar hans afa
Pétur (Hljómsveitin Pétur)
Glimmer
Mug
03.01.08
Árið! Hér er ég, dáldið þreyttur
svona enda kominn í fúlltæmdjobb á Fbl. Það
tekur smá tíma að komast í þann gír.
Svo eru krakkarnir manns á þannig aldri að næturnar
geta verið ófriðlegar. Ég keypti mér einmitt
eyrnatappa áðan, níu pör. Og Íbúfen...
Og svo er hrikalegt myrkur og slen eitthvað yfir öllu, en það
lagast, já já, halelúja. Samt kannski ekki nema von
að fyrsti Bakþanki
ársins
sé þunglyndur. Gefðu blóð!
---
Starfsfólki 365 er boðið á Stórsveitar-sparigigg
Bubba (2 miðar á mann) og skv þessu
sendi Vodafone 500 miða ókeypis. Samt nenni ég nú
ekki að sjá Bubba og Ragga Bjarna syngja My way og fleiri stuðlög.
Ég er ekkert að dissa Bubba, ég hef ekkert nema ást
til hans í hjarta mér, en ég nenni samt ekki á
þetta dæmi. Ekki spenntur. Bjöggi, með sín
3 uppseldu jólagigg, hlýtur að glotta.
---
Morðingjarnir
spila á Ellefunni annað kvöld með Slugs,
nýju bandi sem meistari Sindri Eldon syngur í. Varla er lag
þeirra "Motherfucker" byggt á eigin reynslu? Ný Morðingjaplata
er væntanleg 20. febrúar. Þar flytja þeir lag
eftir mig og félaga mína í pönkbandinu F/8 sem
gerði allt vitlaust 1980-81 en gaf ekkert út. Lagið Bölvun
fylgi þeim má fá hér, en útgáfa
Morðingjanna, sem ég hef heyrt, er dúndurgóð.
---
Hefi stofnað nýtt menningarafurðahorn
með einu viðbæti, bók um 2 ára dvöl í
eyríkinu Kiribati. Hér er fáni Kiribatis fyrir áhugasama:
---
Og Skaupið já. Jú jú, alveg þokkalegt
svo sem, en undir meðallagi. Ekkert fyndir þessir vafrandi útlendingar
og Samúelsgrínið full teygt. Og Árni Johnsen enn
einu sinni? Er það nú ekki frekar 2006ís eitthvað?
31.12.07
Erlendur dægurtónlistarannáll
á Rás 2 kl. 16.05
á morgun (Nýársdag).
Ég spila tónlist frá
árinu 2007 og ræði við nokkra spekinga um það
sem hæst bar. Hvað gerðist? Hvað var best? Duttu Britney
Spears og Amy Winehouse íða?
---
Horfði á Pressu. Þarna var stemmingin á ritstjórninni
komin nokkurn veginn. Allt gerist út á svölum í
reykpásunni. Fínt touch fannst mér að sjá
kókflösku í vasa eins blaðamannsins. Þar var
Helgi Seljan mættur. Maður missir ekki af þessu.
---
Lítið hefur farið fyrir flottræfilsauglýsingum
í sjónvarpinu í ár frá fyrirtækjum
sem vilja sýna hvað þau eru æðisleg. Helst erða
eitthvað sem heitir Atorka (er það einhver lyftaraleiga?)
sem sýnir okkur að það hefur tímt að fljúga
Gísa Erni hingað og þangað, nema þetta sé
blúskrín? Svo erða misheppnaða Baugsauglýsingin:
Við ætlum ekkert að gera flottræfilsauglýsingu
í ár heldur gefa sama pening til góðgerðamála.
En sko, þetta er samt auglýsing til að segja ykkur frá
því hvað við erum góðir. En jæja,
meinar fyrirtækið ekki vel? Kannski ekki. Sá nefnilega
Wall Street í gær og Gordon Gekko hugsaði ekki um neitt
nema gróðann. Er allt þetta lið jafn gráðugt
og skítsama um samfélagið sem það býr
í?
---
Heyrði í Gunnlaugi stjörnuspekingi
í viðtali hjá Felixi á Rás 2. Hann var
mjög skeleggur og sá fram á skemmtilegri tíð
þar sem listir og pólitík kæmu sterk inn og fréttir
af því að Bjarni Ármannsson hefði keypt eitthvað
á hálfan milljarð færu hverfandi. Sem sé,
þetta drepleiðinlega góðæri er að verða
búið, bílasölurnar eru að fyllast af Range Rover
og menn að fara að snúa sér að pönkinu.
Til hamingju og gleðilegt ár!
30.12.07
Flugeldatíð er stuðtíð. Ég var sérstaklega
spenntur fyrir sprengjettum (eins og Db kallar þetta) þegar
ég var aðeins yngri en er nú að reyna að troða
áhuganum upp á soninn. Absúlútt á maður
að versla við björgunarsveitirnar. Ekki koma einhverjir sveittir
flugeldaheildsalar og sækja mann fótbrotinn á Fimmvörðuháls,
er það? Hvaða skítapakk fer annars í samkeppni
við skátana og sveitirnar? Í minningunni var til öðruvísi
dót í gamla daga. Til dæmis hálfgerðir eldormar
sem skriðu út úr kassa. Mann rámar í það.
Þarna litlu kínversku raketturnar og ýlurnar hafa verið
til í áratugi. Gaman að sjá að þetta
lítur alltaf eins út. Það er ömurleg spá
svo ég keypti bara einn Tralla og eitthvað smádrasl.
---
GLH
- Gamlárskvöld, flugeldarnir, gamlárskvöld:
Ein af tíu últra lágtækni sólóspólum
mínum (gefnum út í einu eintaki af hinum ýmsu
útgáfufyrirtækjum) frá fyrri hluta 9. áratugarins
heitir Gamlárskvöld, flugeldarnir, gamlárskvöld
og þetta er titillagið, eða verkið öllu heldur,
margkafla sándeffektað stórvirki. Ég hafði
hvorki heyrt Smile með Beach Boys né Who´s next með
The Who þegar þetta var tekið upp, en auðvitað
helstu lófí verk The Swell maps. Á þessum spólum
notaði ég listamannsnafnið GLH. Það er Örn
Yngvar sem leikur á munnhörpu og raddar. GLHELDAR gaf út
1983. Verkið er óður til flugeldanna og þeirrar barnslegu
gleði sem þeir veita.
---
Helstu atburðir og uppgötvanir ársins:
Dóttir ársins: Elísabet Lára kom
sterk inn 30.05.
Ganga ársins: Fimmvörðuháls með Kattahryggjunum.
Ferðamannagöngutúr ársins: Rokktúrinn
með Rockjunket í New York.
Heimsborg ársins: New York.
Mannvirki ársins: Heimili Hrafns Gunnlaugssonar.
Sundlaug ársins: Seltjarneslaug (rennibrautin).
Sturta ársins: Í World Class, Laugum.
Vonbrigði ársins: Ómar komst ekki á
þing.
Sumar ársins: Sumarið í sumar unaðslegt
var að geta synt í sjónum á einkaströndinni:
Fár ársins: Megasarfárið (2 góðar
plötur og meistarinn á Cherrios pakka!).
Poppstefna ársins: Grínbönd utan af landi.
Leiðinlegasta popptrend ársins: Að fá
Gospelkórinn.
List ársins: Risessan.
Menningarslys ársins: Safnarabúðin lokar.
Afstýrt menningarslys ársins: Kolaportið (??!).
Aldarafmæli ársins: Hergé.
Hálfrar aldar afmæli ársins: Sid Vicious.
Tónleikar ársins: Stranglers, Laibach, Air, Of
Montreal (man ekki meira).
Bíómyndin sem ekki varð ársins: Fyrsta
íslenska klámmyndin frá klam.is.
Leiksýning ársins: Abbababb!
Bók ársins: Abbababb!
Plata ársins: Abbababb!
Verðlaun ársins: Gríman fyrir Abbababb!
Neytendaframtak ársins: Okursíðan
(koma svo, halda vöku sinni...).
Niðurlæging ársins: Ítrekað tap
fyrir verri lögum í Eurovision. Ekki er þó öll
von úti enn og Hvar ertu nú
gæti komist í wildcardþáttinn.
Ávöxtur ársins: Avókadó. Eftir
að ég sá Álfrúnu Örnólfsdóttur
skera avókadó oná hrökkbrauð hef ég
skorið ófáa avókadó oná hrökkbrauð
sjálfur.
Mjólkurvara ársins: Lífrænt ræktað
kókos-jógúrt frá Bíóbú
er mjólkurvörusnilld ársins. Gríðarlega vel
heppnað jógúrt. Það eru fleiri en ég
sem finnst þetta því jógúrtin var ófáanleg
í 2 vikur í byrjun desember.
Kjöt ársins: Húskarlahangikjöt til að
hengja upp í eldhúsinu.
Bíómynd ársins: Þýska dramað
Líf annarra. Ekkert toppar þá snilld.
Leynimanneskja ársins: Mengella.
Helstu hitamál ársins: Beygðir karlar úr
sadískum uppeldisheimilum beyja af í sjónvarpi, Sadó/masó
hvítt hyski úr Byrginu með gott grín, hundkvikindi
kertafleytingar og upprisa (og ha ha, voða gaman), klámráðstefnufarsi,
millar millifæra og/eða fara á hausinn, Rei, friðarsúla,
einkaþotur, eignasöfn, yfirtaka, dauði Framsóknarflokksins,
rassgat.
Ár ársins: 2008 verður jafnvel enn betra
en 2007!
29.12.07
Eins og ég lofaði er komið að kveðjustund. Síðasti
Topp Fimm í heimi kemur hér. Ég nenni hreinlega ekki
að halda þessu fyrirkomulagi áfram, það er alltof
knýjandi að þurfa að vera ferskur á laugardags
eða sunnudagsmorgni með fimm hressandi lög. Hér á
síðunni verður því í staðinn blandað
inn brakandi ferskum tóndæmum á mp3 þegar ég
nenni og sé tilefni til. Maður er að fara að vinna fúlltæm
á Fréttablaðinu (þar til annað kemur í
ljós) og ég nenni ekki að standa í þessari
sjálfsskipaðri toppfimmkvöð. En nóg af afsökunum,
hér kemur einn ilvolgur í morgunsárið:
TZMP
- Santabot is coming tonight: TZMP eða The Zuckakis Mondeyano
Project er ævaforn og viðloðandi alíslenskur dúett.
Tékkið á mæspeisinu
til að vita meira. Hér er gullfallegt jólalag sem kom
í pósti.
Pnau
- Come together: Ástralskur dansidansidúett sem var
að gefa út plötu #3 (PNAU), fullri af svona gæða
tónlist sem sver sig í dansidansiættir. Elton John
ku vera aðdáandi og sækir það nú fast
að afla bandinu samnings í Bretlandi. En ekki láta þá
vitneskju á þig fá.
M.I.A.
- Paper planes: MÍAN og platan KALA kikkaði seint inn
hjá mér og þá helst vegna þessa alfrábæra
lags. Restin af plötunni er því miður ekki svona
poppuð, en mjög svo góðmelt engu að síður.
Len
- Man of the year: Ég var sérlega hrifinn af semí-smellinum
Steal my sunshine með þessu kanadíska bandi frá
1998, svo hrifinn að ég fékk mér samhliða
plötuna You Can't Stop the Bum Rush. Þar er lítið
af fullu viti nema þetta lag sem mér finnst dúndur
hressandi. Len eru víst ennþá í fullu fjöri
og spurning hvort maður leggi sig eftir öðrum plötum
með þeim. Steal my sunshine var náttúrlega svo
mikil snilld (og samplið frá ekki síðra lagi, More
more more með Andreu True Connection) að það er aldrei
að vita nema þau hafi dottið niður á aðra
eins snilld sem nú liggur meðvitundarlaus hjá smellaveggnum.
Þrjú
á Palli og Sólskinskórinn - Sól sól
skín á mig: Og í tilefni af upprisu sólarinnar,
eitt gamalt og gott til að minna okkur á sumarið og hið
eilífa stuð (ferðabæklingur Útiveru er kominn
í hús, nú bíður maður eftir bæklingi
FI). Þetta lagast... Hér má sjá Hönnu Valdísi
hressa í fremstu röð en lagið var fljótlega
sungið svona eftir því sem vinsældir Hönnu
jukust:
Sól sól skín á mig
Hanna Valdís rekur við
lyktin er alveg að drepa mig
Sól sól skín á mig
---
Ég sendi innlegg í grínfréttakeppni
Bagglendinga en fékk ekki náð fyrir augum dómara.
Ég uppsker aldrei neitt í svona keppnum. Mér finnst
þetta samt mjög fyndin frétt þótt hún
sé tekin orðrétt upp úr Mogganum:
Biskup fær rússneskan biskupsstaf að gjöf
Timur Zolotutskyi, prestur rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar
á Íslandi, færði Karli Sigurbjörnssyni, biskup
Íslands, að gjöf biskupsstaf við sameiginlega helgistund
í Dómkirkjunni í gær.
Ef maður lifir í þeirri sjálfsblekkingu að
maður sé fulltrúi Guðs á jörðinni
þá má maður ganga um í svona gullskykkju
og þiggja staf frá öðrum álíka klikkuðum
í ekki jafn sniðugri múnderingu. Sjáiði kallana!
Sprenghlægilegt! En uss, aðgát skal höfð í
nærveru ruglaðrar sálar og biskupinn verður alltaf
svo fúll og vígreifur þegar verið er að rugla
í honum svo við skulum bara ekkert vera að því.
Áfram Guð!
28.12.07
Ég er vitanlega búinn að liggja í áti
og veislum, drengurinn búinn að fá hauga af dóti,
stúlkan fullt af fötum og dóti en við hjónin
fengum minna. Þó ýmislegt smálegt, rjómasprautu,
bókahaldara, eðalkaffi og bolla. Ég fékk ÞÞ
í Fátæktarlandi en þori varla að lesa hana
því ég las ömurlegan dóm hjá þessum
(aðrir hafa þó verið hrifnari, t.d. þessi
og Grímur Atlason)
Maður þarf auðvitað að taka sjálfsstæða
ákvörðun en líklega væri gáfulegast
að lesa bara eitthvað af bókunum hans ÞÞ aftur.
Það er samt of seint, búinn að rífa plastið
af.
---
Ég heyrði tónleikaupptöku áðan á
Rás 2 með Silvíu Nótt frá því
í febrúar. Þá rifjaðist upp fyrir mér
að SN gerði 30 milljón kr. samning við Jakob Magnússon
(versti díll ársins?) og gaf út plötu sem hvarf
svo algjörlega að hún ekki einu sinni í Plötutíðindum
2007. Horfnast plata ársins? Svona er þetta bara. Fá
fyrirbæri hafa farið jafn mikið öfgana á milli
í vinsældum og fyrirbærið SN. Hvað gerir Ágústa
Eva nú? Varla nennir hún endalaust að hjakka í
þessu fyrir örfáa sænska homma eða hvað
þetta var.
---
Í gær fór ég og lét taka mig upp
sem álitsgjafa í áramótaþátt Egils
Helgasonar. Best, verst og eitthvað. Það var ótrúlegt
persónugallerí í sminkinu. Ég og Andri Freyr,
Sóley Tómasdóttir (sem var hin alúðlegasta
og ég styð þær Femínstakonur í öllu
sem þær gera (þetta segi ég auðvitað bara
svo aðgerðahópur femínista komi ekki heim til mín
í skjóli nætur og geldi mig (þetta segi ég
eingöngu svo frelsisherjir rúnkista (aka Ómar Valdimarsson
og félagar) haldi ekki að ég sé kerling))) og
Björgúlfur Thor, ríkasti Íslendingur í
heimi. Hann var reyndar ekki álitsgjafi hjá EH heldur í
Kastljósinu í gær. Maður fann hvernig allir spenntust
upp þegar hann gekk inn í herbergið. Djísús
kræst, hér er maður sem græðir örugglega
jafn mikið bara núna á meðan hann lætur sminka
sig og ég er með í árslaun, hugsuðu allir.
Á leiðinni út bankaði Bjöggi (eins og ég
kýs að kalla hann) létt á öxlina á
mér og sagði eitthvað sem ég heyrði ekki hvað
var. Ég sagði "Já blessaður" á móti
eins og eitthvað fífl. Þegar hann var farinn spurði
ég Andra Frey, sem sagði mér að Bjöggi hefði
sagt "Árið". Andri var drullufúll að ríki
gaurinn hefði ekkert yrt á sig. Djöfuls, nú heldur
Bjöggi að ég sé þroskaheftur, eða svona
ótrúlega hrokafullur, fyrir að segja Já blessaður
þegar hann sagði Árið, hugsaði ég. Mér
datt í hug að hlaupa á eftir honum út á
götu til að leiðrétta þennan misskilning en gerði
ekki því þá hefði hann náttúrlega
verið alveg viss um að ég væri fáviti.
---
Úr þessum massífa félagsskap lá leiðin
í ekki verri félagsskap, að hitta þá Sigurjón
Kjartansson og Mikael Torfason og taka við þá viðtal
sem birtist á morgun í Fbl. Sigurjón er maðurinn
á bakvið Pressu, 6-þátta seríu á
Stöð 2, sem hefst á sunnudagskvöld. Mikael (sem ritstjóri
DV) er svo fyrirmyndin að Nökkva, sem er ritstjóri Póstsins,
blaðsins sem er sögusvið Pressu. Mér fannst upplagt
að leiða þá saman og viðtalið verður fínt.
Maður fylgist svo spenntur með Pressu.
24.12.07
Kæru vinir, til sjávar og
sveita, fjalla og geita,
sendi mínar hugheilustu hátíðarkveðjur
GLEÐILEG
JÓL!
23.12.07
Ég las í Fbl að 3ju jólin í röð
væri búið að segja Andra Frey upp í útvarpinu
og að á leiðinni væri að leggja niður Rvk
FM. Það stoppar þó ekki Stjána Stuð sem
verður í stuði í allan dag á FM101.5 og fær
m.a. mig og Heiðu í viðtal kl. 15:10. Pró maður,
hann Stjáni.
---
Sá tvær ömurlegar myndir í gær. Fyrst
dottaði ég yfir Alvin & The Chipmunks þar til Dagbjartur
heimtaði að bíóið yrði yfirgefið (fljótlega
eftir að nammið kláraðist). Sannarlega ömurleg
mynd. Um kvöldið leigði ég The Bourne Ultimatum sem
fjallar um Matt Damon að flýja undan einhverju liði á
meðan annað lið fylgist með af sjónvarpsskjám.
Sannarlega glatað drasl sem enginn ætti að þurfa að
horfa á.
---
Hér er búið að kaupa allt inn og allt bara reddí
fyrir jólastuð. Ég ætti samt kannski að taka
til í herberginu mínu.
22.12.07
Gott er að þiggja. Enn betra að gefa. Best því
líklega að gefa sjálfum sér eitthvað. Ég
gaf mér því nýjustu bók Hugleiks, Kaupið
okkur. Hún er fín, en samt finnst manni að honum sé
eitthvað farið að leiðast þetta form. Sumt er dáldið
þvingað, sumt bara ógeðslegt (og ekki fyndið
nema ég sé orðinn svona mikil tepra?) og einn djókur
stolinn úr Little Britain. Aldrei hefur Hglkr stolið áður
svo vitað sé. Bókin er samt þykkari en vanalega
(sýnist mér) og feykinóg í henni til að
réttlæti að hún sé til á hverju menningarheimili
(eins og mínu). Þrjár stjörnur! Hér eru
tveir góðir:
---
Keypti líka tvíreykt hangikjötslæri, svokallað
Húskarlakjöt, og gaf mér og mínum. Mér
hefur langað að fá mér svona síðan kallinn
í Jólagarðinum á Akureyri skar bita fyrir mig
af sínu læri haustið 2006. Maður étur þetta
bara beint af lærinu og allir í fjölskyldunni eru sólgnir
í þetta. Svona læri er síður en svo ókeypis
og slagar upp í Kobe (sérstaklega þegar tekið er
inn í myndina að slatti af þessu er bein, fita og tægjur).
Keypti lítið læri á 4500 kall (kílóið
á 3000) í Fjarðarkaupum, en þangað förum
við árlega til að gera jólainnkaupin. Kerran kostaði
25.000, ég var búin að búa mig andlega undir 30.000
kall. Það eina sem skilur mig frá röðinni í
Mæðrastyrksnefnd er vísakortið mitt. Nú hangir
lærið upp á vegg inn í eldhúsi blóðrautt
með tægjum og fitukleprum. Dáldill svona fjöldamorðingjafílíngur
að hafa svona inni hjá sér. Ilminn leggur um allt hús.
Ah, jólalykt...
---
Ég er yfirleitt lítið spenntur fyrir gismóum
og drasli, er t.d. alveg laus við áhuga á að fá
mér gps þótt ég sé eitthvað á
fjöllum og svona (og framan á nýjasta Útiveru,
sem er meðal hápunkta ársins!). Í gær í
samkvæmi handlék ég þó græjuna Iphone
og var klossbit yfir frábærleika tækisins. Allir aðrir
símar eru jafn úreltir og 2ja kílóa farsíminn
sem Ómar Ragnarsson átti við hliðina á þessari
græju. Skjárinn á þessu er algjört tækniundur
og með puttunum stækkar maður og minnkar myndir og netsíður
og ég veit ekki hvað. Mér fannst framtíðin
komin með þetta í höndunum. Ég kaupi mér
ekki annan farsíma fyrr en ég hef efni og möguleika
á að kaupa svona. Þetta var krakkað eintak, kostaði
25kall í USA. Ég veit ekki hvenær þetta kemur
á Evrópumarkað en Apple-umboðið verður varla
með þetta undir 100kalli ef maður þekkir þá
rétt. Prúv mí rong.
---
Stafrænn Hákon hefur í samvinnu við Unstatuesque
sett tvö gullfalleg jólalög á netið. Farið
í enn meiri jólafíling og niðurhlaðið
hér.
Við Heiða erum annars að spá í að gera saman
jólaplötu fyrir jólin 2008. Þessari hugmynd laust
niður þegar við vorum að fara að plöggspila
Abbababbbókina í Kringlunni og vorum að væflast
á yfirfullu bílaplaninu. Ég er m.a.s. kominn með
nafnið á plötuna, Eitthvað fallegt. Þú
last það fyrst hér.
---
Samantekt Fbl á plötum ársins kemst að sömu
niðurstöðu og þessi síða. Mugison og Arcade
Fire þykja líka best þar.
21.12.07
Tímabært þykir mér nú að birta
persónulegar niðurstöður yfir bestu plötur ársins:
Íslenskar plötur ársins
1 Sprengjuhöllin Tímarnir okkar
2 Megas Frágangur / Hold er mold
3 Hellvar Bat out of hellvar
4 Seabear The ghost that carried us away
5 Hjaltalín Sleepdrunk seasons
6 Jakóbínarína - The first crusade
7 Skátar Ghost of the bollocks to come
8 Ólöf Arnalds Við og við
9 Bloodgroup Sticky situation
10 Eliza Empire fall
Útlenskar plötur ársins
1 Of Montreal Hissing Fauna, are you the destroyer?
2 Caribou Andorra
3 Digitalism Idealism
4 Akron-Family Love is simple
5 Battles Mirrored
6 LCD Soundsystem Sound of silver
7 Goose Bring it on
8 Arcade Fire Neon bible
9 Midnight Juggernauts Into the galaxy
10 M.I.A. - Kala
Hér má
svo kjósa plötur og myndir ársins hjá 24st.
---
Kok er gott nafn á bílaleigu. Ég sá það
á bíl í dag. KOK. Magnað. Úfur væri
líklega gott nafn á hraðhreinsun. Kriki gott nafn á
skóvinnustofu.
---
Í grein um klám
fyrir blinda gleymdist að hafa með línk á herlegheitin.
Þetta
mun vera það sem verið var að tala um.
19.12.07
Jólamix
Dr.Gunna
Innihaldslýsing:
1. El Vez - Feliz navidad
Byrjun með blasti. El Vez, hinn mexíkóski, blandar
saman Ég fæ jólagjöf og Public Image Ltd. Hverjum
hefur dottið það í hug? Þetta er hress gaur
sem hékk svolítið með Sykurmolunum í gamla
daga.
2. The Go-Bang's - Rock n roll santa claus
The Go-Bang's var japanskt kvennatríó sem spilaði
poppað tyggjórokk með örlitlu pönkbragði.
Þær nutu vinsælda í kringum 1990 og einhverra
hluta vegna á ég allar plöturnar með þeim.
Hér er hressandi jólalag frá þessu frábæra,
en algjörlega óþekkta, bandi.
3. Hybrid Kids - Deck the halls
Hybrid Kids var leyninafn fyrir Morgan Fisher. Hann er líklega
þekktastur fyrir að hafa verið hljómborðsleikarinn
í Mott the Hopple. Í kringum 1980 var hann að taka allskonar
lög og gera svona sniðugar ábreiður af þeim.
Hann gerði m.a. plötuna Claws sem eru bara jólalög.
Hún er alveg ljómandi fín.
4. The Frogs - Here comes Santa's pussy
Þegar sungið er um pussuna á Jóla hringja allar
viðvörunarbjöllur í Jólaþorpinu. The
Frogs er fyndið, dónalegt og eldgamalt amerískt band
sem ég sá einu sinni á CBGB's. Ég man að
einn var með vængi á bakinu og þetta var flippað
og skemmtilegt.
5. Big Star - Jesus Christ
Alex Chilton og félagar voru hljómsveitin Big Star, band
sem gerði tvær magnaðar plötur sem allir verða að
heyra (#1 Record 1972 og Radio City 1974). Þetta lag er af þriðju
plötunni, Third/Sister Lovers, sem kom 1978. Lagið er um gaurinn
sem allur gauragangurinn er víst tileinkaður.
6. Alli Rúts - Grýlupopp
Alli Rúts var bílasali sem tróð upp með
skemmtiatriði í kringum 1970. Hann gerði 4-laga barna- og
jólaplötu 1972 og af henni kemur þessi sungna-útgáfa
af laginu sem margir þekkja, Popcorn. Umslag þessarar plötu
er einstaklega vel heppnað (og notað hér að ofan aðeins
breytt).
7. Bit shifter - Let it snow
Á netsíðunni http://8bitpeoples.com/koma
saman listamenn sem gera tónlist á fornar tölvur. Þetta
er fyndið og skemmtilegt og öll tónlistin býðst
ókeypis í niðurhali. Þetta lag með Bit shifter
(Bandaríkjamaðurinn Joshua Davis) er tekið af átta
laga jólaplötunni The 8bits of christmas.
8. The Three Wise Men - Thanks for christmas
Hljómsveitin XTC frá Swindon, Englandi, hefur lengi verið
í miklu uppáhaldi hjá mér. Þeir hafa
stundum gert músik undir ýmsum dulnefnum og gerðu þetta
jólalag og annað til á smáskífu undir nafninu
The Three Wise Men árið 1983. Ágætis jólalag
hjá strákunum.
9. The Fall - (We wish you) A protein christ
Líklega er fátt ójólalegra en amfetamínbryðjandi
skáldjöfurinn Mark E Smith og taumlaus og endalaus snilldar
ferill hans. Hann gerði nú samt 4-laga jólaplötu
árið 2003. Af henni heyrum við titillagið. Hin lögin
eru jafnvel enn ójólalegri en þetta.
10. Paska - Merry christmas
Paska er finnskur sköllóttur pönkari sem hefur öskrað
inn á þónokkuð margar plötur. Ég hitti
hann einu sinni þegar hann var með pönk-karókí
í Turku. Einu sinni öskraði hann inn á símsvarann
minn en því miður er sú spóla týnd.
Paska endar við mixteipið í sönnum jólaanda.
Gleðileg jól!
(áður birt í Mónitor)
18.12.07
Two Little Dogs kynna með stolti fyrstu jólatónleika
sína sem fara fram á Organ þann 20. desember kl
22.00 stundvíslega. Þar kemur fram tónlistarmaðurinn
Tim Ten Yen frá Lundúnum.
Tim Ten Yen er nýstirni á hraðri uppleið í
breska tónlistaheiminum. Þessi ungi og snyrtilegi maður
hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda þar í
landi fyrir einstaka hæfileika til að búa til grípandi
popplög. Tim kemur fram á tónleiknum vopnaður
einungis hljómborði og reykvél og leikur af þvílíkri
einlægni að unun er að horfa á og hann hrífur
áhorfendur
með sér inn í töfraheim þar sem gleðin
ræður ríkjum. Fyrir utan hljómborðið og
reykvélina þá fylgir honum hvert fótmál
"Kaldrifjaði kötturinn" (The Sinister Cat) sem er einskonar tuskubrúða
sem slær taktinn með skottinu. Ýmsilegt bendir til þess
að það sé í raun kötturinn sem er við
stjórn og Tim sé bara hjálparkokkur hans.
Og af því að jólin nálgast nú
óðfluga þá verður "eggnog" í boði
handa þeim gestum sem mæta fyrstir á staðinn á
meðan byrgðir endast, en ekki lengur en til 22.00.
Hljómsveitirnar Hellvar og Sexy Jazz hita upp, en sú síðarnefnda
samanstendur m.a. af meðlimum Bertel! og Sometime.
Aðgangseyrir barasta 1000 kall.
MP3 hljóðdæmi:
The
Bear and The Fox + Move
with the Wildpalms + When
the song applies to you
og Myndband.
17.12.07
Bensínstöðin sem Raggi Bjarna auglýsir fyrir
er nú með slagorðið "Við höldum með þér".
Ég veit það ekki... minnir þetta ekki dálítið
á Michael Jackson. Þegar hann var sýknaður lagði
hann sig fram við að láta sjá sig með fullt af
smábörnum, eins og Jesús eða eitthvað. "Við
höldum með þér", einmitt...
---
Ég spilaði á jólaballi í gær.
Lögin eru mörg mjög löng og mikið drón í
gangi og svo er þetta fullt af föðurlandsást og (úr)kynjuðum
staðalímyndun. Nú skal segja, nú skal segja,
hvernig gamlar konur gera: Prjóna sokka, prjóna sokka -og
svo snúa þær sér í hring... Það
þarf vitanlega að taka þessa texta til gagngerar endurskoðunar,
a.m.k. áður en Femínistafélagið heldur jólaball.
---
Sá þátt um strákaelskandann Michael Jackson
á Stöð 2 í gær. Nokkuð athyglisvert, en
full mikil sensasjón kannski. Forboðnar "ástir", auðævi
og sturlun. Maður sat nokkuð límdur.
---
Halldór --> Hannes --> Óttar --> Brissó.
Nú er spurning hver tekur við flippkyndlinum og skrifar ævisögu
Brissó M. Johannsson. Helst einhver sem heitir þremur nöfnum
takk.
16.12.07
Hér kemur næst síðasti Topp 5imm í heimi,
hugsanlega, því ég held ég nenni ekki að
halda þessu úti á nýja árinu. Mp3blogga
þá bara í staðinn þegar andinn blæs
mér svo í brjóst, það er einum of mikil
kvöð að vera með fimm fasta á viku. Maður er
mismikið að heyra áhugaverða tónlist eftir vikum.
Oft ekkert að spá í þetta. En hér er sem
sé enn einn Tomm Fipp:
Hjaltalín
- The boy next door: Sleepdrunk seasons er ein af betri plötum
ársins, ég er amk alveg að fíla þetta. Keypti
hana á dánlódi frá Grapewire,
sem er tvímælalaust framtíð plötukaupa. Verðið
dettur líka oní viðunandi (990 kall í staðin
fyrir 1990 - hver þarf disk og umslag lengur? Ekki ég allavega).
Þar með var það önnur platan sem ég kaupi
í heild yfir netið, sú fyrsta var meistaraverkið
Eniga Meniga sem jólasveinninn gaf Dagbjarti í morgun í
brenndu formi. En Hjaltalín semsé, gott band og flott plata
og hér er eitt af mörgum góðum lögum á
henni.
Mr.
Silla & Mongoose - Wanna million: Af Foxbite, nútíma
kassagítarblús með mikilli elektrósjálfsást.
Mikið grútt og inn í sig. Ekkert sem þú
ferð að syngja með í bráð, en svona slípast
inn. Þarf þó að hlusta betur áður en
ég er almennilega dómbær.
Polyphonic
Size - Mother's little helper: Franska njúveifbossanóvakóverbandið
Nouvelle Vague spilaði hér í fyrra. Ég nennti
auðvitað ekki. Nú er komin út tvöföld safnplata
á þeirra vegum sem safnar saman ævagömlum nýbylgjuböndum
að spila kóverlög. Mestur fengur er í frönsku
böndunum og belgísku. Þetta er t.d. band Belgans Roger-Marc
Vande Voorde og vélmennaútgáfa af Stóns. Mig
minnir að útgáfa Nylon á þessu lagi hafi
einhvern tímann verið fyrirhuguð. Hvað varð eiginlega
um það? Voðalega frægir menn áttu að taka
upp og jalla jalla. Tja, það var náttúrlega ein
af þessum fréttum um eitthvað sem á að gerast
en gerist svo ekki. Ísland er svo lítið að allt kemst
í blöðin, jafnvel það sem er á frumstigi,
menn voru að röfla um á fylliríi í gærkvöldi
eða jafnvel bara eitthvað sem einhver var að hugsa um í
morgun. Til dæmis er frétt í Fbl í dag um að
Cat Stevens ætli að setja upp söngleik í höllinni
sem Helgi Björns rekur í Berlín...
Cat
Stevens - Granny: ...Kannski verður aldrei af þessu,
en hugmyndin er allavega góð. Kannski Paris Hilton mæti.
Kötturinn er vitanlega eðalstöff. Fyrsta platan hans, Matthew
& Son, frá 1967 er mögnuð poppsnilld og í engu
lík því afslappa gærustöffi sem hann er
þekktastur fyrir. Hann fékk nebblega berkla og lá í
rúminu í ár eftir þessa og næstu plötu
og spratt svo fram glænýr í gærunni. En allavega,
megi söngleikurinn fara á svið, þá skreppur
maður nú til Berlínar, það er ljóst.
Og hér er lag af fyrstu plötunni, Cat leitar huggunar hjá
ömmu sinni.
Tralli
- Gilsbakkaþula (Naumhyggjutechnomix): Þetta fékk
ég í pósti. Teknójólalag með Tralla
sem er til alls líklegur og heldur sig hér.
Fullt af gæðaefni þarna. Svo hljóta að fara
að detta inn fleiri jólalög hérna.
---
Nú skellur á með áramótauppgjörum.
Hjá Frank er til dæmis
eitt í gangi. Rocklist er
svo ágætis uppspretta til að sjá uppgjör aftur
í tímann og alls konar aðra lista að auki.
---
Gamla gufan, Rás 1, er stofnun. Hvílík snilld
að hún skuli halda sér svona vel en samt þróast
smávegis. Gamla góða Ísland er þarna í
öllum sínum dýrðarljóma, fjöll og dalir,
myrkur og birta. Mér er samt spurn: Eftir eina öld, ætli
Gufan hljómi þá eins og FM hljómar í
dag? Og ætli FM verði þá bara vanvitar að stynja
og rymja allan daginn í bland við það nýjasta
með æsandi þrívíddarklámvélmenninu
uxnCC-7?
14.12.07
Útgáfufyrirtækið Frostrós hefur gefið
út nýjustu bók Gulla sendils (Gunnlaugur Ingi Ingimarsson
f. 1965), Reykjavíkurbókin. Hún fæst hjá
12 tónum (900 kr). Gulli er afkastamikill rithöfundur og hefur
gefið út eftirtaldar bækur:
Ævisaga
Dýrfirðingabókin
Ísafjarðarbókin
Gulli segir frá
Frásagnir
Fyrirtækjabókin
Reykjavíkurbókin
Að auki hefur tímaritið Gunnlaugstíðindi komið
út árlega síðastliðin ár. Hér
er sýnishorn úr nýju bókinni:
13.12.07
Hinn mikilsvirti meistari Atli Heimir Sveinsson skrifaði dóm
um Rolling Stones plötu 1997. Margir urðu fúlir fyrir hönd
Rolling Stones og voru skrifuð nokkur eitruð lesendabréf.
Mér fannst þetta þó nokkuð sniðugt og
vildi sjá meira í þessum stíl. Stakk upp á
við Moggann að þeir ættu að senda Bjarna móhikana
heitinn á Sinfóníutónleika og láta hann
svo skrifa dóm. Þannig yrði jafnræðis gætt
og svona. Ég held að það væri skemmtilegra og
jafnvel gáfulegra að "eitthvað lið út í
bæ" væri fengið til að dæma plötur. Það
yrði bara happa og glappa. Hjörtur Magni fengi Sesar A og Vigdís
Grímsdóttir Gumma Jóns. Niðurstaðan yrði
varla vitlausari en sú sem fæst út úr færibandagagnrýninni
þar sem gaggarar fá hauga af músik til að gramsa
í í bullandi tímastressi og yfirvofandi deddlæni.
En allavega: Hér er dómur Atla Heimis í öllu
sínu veldi:
Sjarminn horfinn
ATLI Heimir Sveinsson tónskáld fjallar um "Bridges
to Babylon" með Rolling Stones sem kemur út í dag.
"HAPPY new ears," sagði John Cage. Ég hlustaði á
nýja Rolling Stones-diskinn. Ekki er mögulegt að nota hugtök
fagurtónlistar, eða beita aðferðum listrýni á
poppið. Í poppinu gilda önnur lögmál. Poppið
er hvorki verra né betra er fagurtónlistin, það
er bara öðruvísi.
Rolling Stones búa ekki til neins konar list heldur vöru,
"product" á amerísku. Listrænn mælikvarði
á ekki við um söluvöru. Afurðin sker sig ekki
úr þeim 99% síbyljunnar sem úðað er
um borgarumhverfi velferðarbeltisins. Og textarnir lúta ekki
lögmálum ljóðagerðar og bókmennta. Þeir
standa nær auglýsingagerð. Karl Marx segir einhvers staðar
að kapítalistar búi ekki til "die wahre Kunst sondern
die Ware Kunst" ekki hina sönnu list heldur vöruna list.
Engar grípandi laglínur er að finna, útsetningar
staðlaðar, sándið hið sama og alltaf, flutningur
grófur og blæbrigðalaus. Og ekki er hægt að
segja að þeir spili vel, hafa sennilega aldrei reynt það.
Þeir eru ekki virtúósar. Lögunum er raðað
niður á diskinn eftir pottþéttum formúlum
lyftutónlistar.
Ekki er hægt að fá fullkomna mynd af Rollingunum,
því ljósasjóið vantar, og sviðstilburðina.
Þetta tvennt er óaðskiljanlegur hluti poppsins. Diskurinn
er aðeins hluti af stærri heild. Hann auglýsir konsertana
og konsertarnir auglýsa hann. Og allt auglýsir stjörnurnar
í fjölmiðladansinum.
Ég veit ekki hvort grúppan hefur breyst frá
því í gamla daga. Kannski hafði hún þá
þetta "eitthvað", sem er óskilgreinanlegt og ósegjanlegt.
Það var frumstætt, dýrslegt og sexý. Svo
var töluvert um vímuefnaauglýsingar. Ég hef á
tilfinningunni að hin frekjulega áreitni og plebbalegi ruddaskapur,
sem þó var sauðmeinlaus, sé horfinn. Og þar
með fór sjarminn. Markhópurinn hefur líka breyst
og spekst. Gervihipparnir eru orðnir skallapopparar og pempíulegir
millistéttarborgarar í garðabæjum alheimsþorpsins,
rétt eins og bítlavinafélögin hér og sextíu-og-átta-
gengið.
En þetta er ekki aðalatriðið. Rolling Stones eru
bara Rolling Stones, öflugt bisnessveldi með yfirþyrmandi
auðlýsingaapparat á bak við sig. Og á bak
við fjórmenningana er mikill skari aðstoðarmanna: tón-
og textahöfundar, útsetjarar, hljóðmenn, ljósamenn,
hreyfingameistarar, búningahönnuðir, tískutæknar,
rótarar, auglýsingastjórar, sálfræðingar,
lögmenn, grúpís og svo framvegis. Mick Jagger, Keith
Richards og hinir eru hvorki góðir né vondir listamenn,
þeir eru bara stjörnur, afsprengi markvissrar, fagmannlegrar
sölumennsku. Og það er hægt að selja þá
meðan þeir hafa þetta "eitthvað". Poppið sem vantar
þetta "eitthvað" selst ekki, og þá er það
ekkert popp.
Rolling Stones eru eins og kókið. Það er hvorki
gott né vont, hollt né óhollt. "Coca cola is the real
thing" og "you can't beat the feeling". Hvort þú vilt kók
fremur en pepsí hefur ekkert með vitsmunalega ákvörðun
að gera. Það fer eftir því hvort þú
fílar fremur rauða eða bláa litinn.
Og þannig er það líka með Rolling Stones,
þú fílar þá eða fílar þá
ekki. Þeir eru hvorki góðir né slæmir, skemmtilegir
né leiðinlegir. Þeir eru bara Rolling Stones. Umræða
er ónauðsynleg. Í hennar stað kemur síendurtekið
slagorð auglýsing- arinnar.
Sagt er að takmark kóksins sé að verða
vinsælla en vatn. Það mætti líka segja að
takmark síbyljunnar sé að útrýma þögninni.
Það finnst mér slæmt.
Ég fíla ekki disk Rolling Stones. Kannski hafði
ég græjurnar ekki í botni, og ekki var ég fullur
eða dópaður. En þegar poppið fer inn í
merg og bein, þá kemur kannski einhver fílingur. Ég
þarf ekki að rökstyðja neitt, ég bara fíla
diskinn ekki.
Þar með er ekki sagt að ég sé á
móti poppinu. Ég fíla í botn það
sem Björk er nýbúin að gera og ég er mjög
hrifinn af nýja disknum hans Kjartans Ólafssonar sem heitir
Þrír heimar í einum. Kjartan er tónskáld,
segist vera poppari, og hann poppar í framúrstefnu, tölvum,
raftónlist með penum og vel menntuðum popptónlistamönnum.
Almennilegt stöff þetta!
12.12.07
Nokkur umræða hefur skapast um gagnrýni í Gestabókinni.
Er ég réttilega sagður pissa í skó með
"vælinu" hér að neðan. Verður ekki gagnrýni
alltaf mat eins manns út í bæ, og jafnvel hvernig skapi
hann er í? Verður maður ekki bara að treysta á
sjálfan sig? Mun ekki sagan og tíminn dæma dótið
að lokum? Annars hefur tónlistargagnrýni engin áhrif
á mig, eða lítil, skulum við segja. Alveg er mér
sama þótt enn ein Radiohead platan fái 9 komma eitthvað
hjá Pitchfork. Maður er vaxinn upp úr því
að láta segja sér hvað er gott. Safnhaugur jákvæðra
dóma getur hins vegar beint manni á dót, t.d. þetta
Burial og The Field sem sprengja skala hjá Metacritic en er svo
bara óspennandi drasl. Meira vit virðist vera í bíómyndagagnrýni.
Þar virðist misjafn smekkur ekki alveg jafn ráðandi
og meira að almenn sannindi séu höfð til grundvallar,
ef það er þá eitthvað til sem heitir almenn
sannindi. Maður skoðar oft hvað myndir fá hjá
IMDB. Ef þær fá 6 og undir þá kannski veigrar
maður sér við að taka þær. Manni hefur lærst
að það er yfirleitt að marka þetta.
---
Og það er líka satt sem Brynjar segir um að Bob
Dylan fái alltof góða dóma. Steininn tók
út þegar nýjasta platan hans var kosin besta plata
ársins (í fyrra?) hjá Mojo(?). Hundslummulegt blúsrúnk
sem enginn annar hefði vakið athygli fyrir. Megas fær hins
vegar sjaldan of góða dóma. Allavega ekki á meðan
hann gerir jafn góðar plötur og þessar tvær
nýjustu.
11.12.07
Neikvæðir dómar vekja alltaf hjá mér
meiri athygli en jákvæðir. Þannig er það
bara. Það er óneitanlega skemmtilegra að lesa slátrun
en lofrollu, en það á samt ekki við ef verið er
að slátra vinum manns. Ég tók eftir því
að Öll trixin í bókinni fékk frekar slæma
dóma í Mogganum. Það kom á óvart,
maður hefði haldið að Arnar Eggert ætti góðan
dóm vísan þar, verandi innanbúðarmaður
og svona. Nýjasta Mónitor kemur líka á óvart
með nokkra helvíti neikvæða dóma. Hin ágæta
plata Hellvars er púuð
niður og Heiða er fláð og hengd upp til þerris:
"Hún
ætti að halda sig við Dr. Gunna og syngja í Evróvision.
Þar hefur hún allavega snefil af sjarma. Svona innst inni
veit maður samt að hún á aldrei eftir að vinna."
Uss, er þetta nú ekki einum of persónulegt skítkast?
Plata Mr Silla og Mongoose fær einnig slummuna
framan í sig og Hjaltalín fær volgan
hráka á skóna sína. Ég hef ekki
heyrt Sillgoose en Hjaltalín finnst mér helvíti góð
og mun betri en þessi 52% gefa til kynna. Á meðan fær
Birgittan fína dóma og m.a.s. Lúxorlampinn líka.
Það er svo sem ágætt að Mónitor hafi
komist að þeirra póstmódernísku en úreltri
í fyrra skoðun að allt sé jafnt og öll tónlist
sé ágæt við réttar aðstæður.
Lúxor fær t.d. 50% af því þessi tónlist
væri fín ef maður þyrfti að dæna með
jakkafatakörlum í Perlunni. Uh, ókei, vottever, eins
og kerlingin sagði.
10.12.07
Lokið er kosningu lesenda um bestu plötur ársins. Úrslit
eru eftirfarandi (lúðrablástur):
Bestu innlendu plötur ársins:
1. Mugison - Mugiboogie (190 atkvæði)
2-3. Sprengjuhöllin - Tímarnir okkar (153)
2-3. Megas - Frágangur og Hold er mold (153)
4. Ólöf Arnalds Við og við (82)
5. Björk Volta (81)
6. Hjaltalín Sleepdrunk seasons (80)
7. Sigur Rós Hvarf/heim (67)
8. Jakóbínarína The first crusade (65)
9. Seabear The ghost that carried us away (56)
10. Skátar Ghost of the bollocks to come (51)
Bestu erlendu plötur ársins:
1. Arcade Fire - Neon Bible (153 atkvæði)
2. Radiohead - In Rainbows (127)
3. Of Montreal - Hissing Fauna, are you the destroyer?
(74)
4. LCD Soundsystem - Sound of Silver (73)
5. Deerhoof - Friend Opportunity (46)
6. Jens Lekman - Night Falls Over Kortdala (44)
7. Beirut - The Flying Cub Cup (43)
8-9. Grinderman Grinderman (39)
8-9. Okkervil River - The Stage Names (39)
10. Animal Collective - Strawberry Jam (37)
Sigur Mugiboogie og Neon biblíu er afgerandi og góður.
Sprengjuhöllin og Megas hafa hangið hönd í hönd
í rassinum á Mugison síðan fyrstu tölur fóru
að berast í hús og enduðu hnífjafnir. Efstu
plöturnar þrjár á Íslandi eru gersamlega
afgerandi á meðan aðeins Radiohead blanda sér í
"toppslaginn" og hanga í Arcade Fire. Gaman þó að
sjá Of Montreal enda með brons. Eru þessar niðurstöður
það sem koma skal á Íslensku tónlistarverðlaununum
og í áramótauppgjörunum? Kemur í ljós
og takk fyrir að taka þátt!
09.12.07
Hallærisleg eru viðbrögð fréttadeildar Stöðvar
2 við hrekknum. Fréttastjórinn lítur það
alvarlegum augum og fréttamaðurinn
hótar
að segja af sér. Sprenghlægilegt! Skást í
stöðunni held ég að halda bara kjafti. En eins og höfundur
Mengella bendir á eru hrekkjalómarnir efnilegir. Frekari
umræðu um málið má finna hjá bróðir
hrekkjalómsins.
---
Geir Ólafs er ekki hress með Erps-viðtalið sem hefur
nú verið fjarlægt af jútjúb. Ég sá
hluta af því í gær. Engin tíðindi
svo sem, Geir bara að bera af sér unggæðingsháttinn
(fyrir 3 árum), enda virðulegar listamaður í dag.
Að hamast á gúmmídúkku í sjónvarpi
getur greinilega komið aftan að manni. Ég er samt ekki frá
því að þessi gúmmídúkkusessjón
með Geir sé alveg á topp 10 yfir eftirminnilegustu sjónvarpsmóment
Íslandssögunnar. Svona ásamt Gísla á Uppsölum.
Verst að það eru hvorki til myndskeið af Gísla
og gúmmídúkku né Geir Ólafs á
Uppsölum.
---
Okrin eru nú
komin yfir 300. Bendi á athyglisverða umræðu um verð
á tónleikamiðum. Grímur Atlason er enginn okrari,
ég get alveg staðfest það. Fyrirtækið hans
heitir jú ddr.
08.12.07
Samkvæmt Metacritic
er Untrue með Burial best heppnaðasta plata ársins. Ég
kem ekki auga á snilldina, sannast sagna drepleiðinlegt væl.
We Go Sublime með The Field á svo að vera 3ja best. Drepleiðinlegt
líka, óspennandi. Það er sem sé ekkert að
marka gagnrýni. Eða þannig. Eyrun á fólki
eru misjöfn.
---
Topp 5imm:
Mugison
- Jesus Is A Good Name to Moan: Mugiboogie, nýja platan
með Erni Elíasi og félögum, er hreinlega að
taka aðrar í nefið í bindandi kosningunni hér
að ofan. Á plötunni, sem mér finnst fín,
syngur Mugi að vanda á ensku og rokkar og slappar af til skiptis.
Meira "af kúnni" sánd en vanalega og minna um fíngerð
smáatriði og sándstæla, og það er virðingavert
að höfundurinn hefur tekið öll mál í sínar
hendur og leggur allt í sölurnar. Kaupið eintak á
Mugison.com.
A
Place To Bury Strangers - Missing you: Hávært og skerandi
pedalapönk frá Brooklyn, Psychocandy augljós fyrirmynd.
Aðaldúddinn er Oliver Ackermann og hann smíðar sína
eigin pedala og nær því þessu sérstaka
sándi. Pedalana frá honum má kaupa frá bækistöðvum
fyrirtækisins, Death by audio.
Af þeim plötum sem lesendur bentu á í gestabók
var þessi tvímælalaust bitastæðust.
King
Khan & The Shrines - Welfare Bread: King Khan er af indverskum
ættum (döh), ólst upp í Kanada en býr nú
í Berlín þar sem hann hefur safnað í kringum
sig band. What is? er önnur platan hans og þetta er snoturt
lag og ekkert líkt Screaming Jay Hawkins þótt myndin
gæti gefið það í skyn.
Circle
- Saturnus Reality: Hinir finnsku Circle hafa gefið út
fleiri plötur en elstu menn muna. Katapult er sú nýjasta,
eiginlega hundleiðinleg og tuðkennd. Þetta, fyrsta lagið
á henni, er þó ókei.
Paul
Spencer - Bettie Page: Vert er að vekja athygli sjóferanda
á að Stöð 2 sýnir The
Notorious Bettie Page, sjónvarpsmynd frá HBO um ævi
Bettie Page, kl. 22 á sunnudagskvöldið. Hin lokkandi gyðja
Bettie var blautur draumur hvers fiftís Kana og í dag þykir
nokkuð hipp og kúl að renna til hennar hýru auga.
Myndin, sem ku ágæt, er leikstýrt af Mary Hannon, sem
leikstýrði hinum ágætu I shot Warhol og American
Psycho. Paul Spencer sá sem syngur hér um Bettie er frá
Connecticut og lagið er af The Whole shebang sem kom út 2005.
07.12.07
Nóg að gera í dag: Hellvar með strætógiggið
kl. 18. Þá leggur leið Hellvar upp frá Lækjartorgi
og fer rúnt og spilar lög af plötunni Bat out of Hellvar.
Í kvöld er svo megagigg á Organ, Akron/Family, Hjaltalín
og hinn angurværi Phosphorescent. Þetta á að byrja
um kl. 21 og hér eru tóndæmi:
Phosphorescent
- A Picture Of Our Torn Up Praise (af Pride 2007)
Akron/Family
- Dont Be Afraid (You're already dead) (af Love is simple 2007)
---
Karlar sem
líta út eins og gamlar lesbíur er skondin síða.
Vel væri hægt að taka íslenskan vínkil á
þetta en ég þori það ekki. Það er
ljótt að stríða. Verð þó að
segja að einu sinni var Guðni Elísson í sjónvarpinu
og þá heyrðist í mömmu vinkonu minnar: Þessi
er nú pottþétt lesbía!
---
Á Ísafirði eru menn iðulega nefndir eftir mömmu
sinni. Jói Jóu, Tommi Önnu, Rúnar Siggu o.s.frv.
Ýktasta dæmið er einhver sem heitir Jón Gíslason
en er aldrei kallaður annað en Freysi. Mamma hans heitir nefnilega
Freyja.
---
Tengdamóðir mín spyr að vanda hvaða bók
hún eigi að gefa mér í jólagjöf. Ekkert
er augljóst í þeim efnum, það er ekkert sem
mig langar hryllilega mikið í. Maður les yfir bókatíðindi
og yppir öxlum. Ég nenni ekki að eiga sakamálabækur.
Það er nóg að fá það á bókasafni
og svo hef ég engan sérstakan áhuga á slíku.
Finnst það vera tímaeyðsla. Ég væri til
í að lesa Endurfundi
e. Kárason. Það má eflaust glotta af því.
Ég skil ekki rithöfunda sem skrifa á íslensku
en söguhetjurnar eru erlendar. Ég nenni ekki Hníf Abrahams
og ekki Val Gunnarsson sem skrifar Konungur
norðursins um finnskan lúser. Mun athyglisverðara ef
þetta væri íslenskur lúser, jafnvel þótt
hann inni við skúringar í Finnlandi. En samt, kannski
maður taki hana á bókasafninu einn daginn. Ég
nenni ekki ljóðrænum bókum. Hef aldrei lesið
Gyrði og mun aldrei nenna því. Skáldsögur
eru líka einhvern veginn á útleið hjá mér.
Ég er eiginlega hrifnari af bókum sem byggja á raunveruleikanum,
ekki einhverju sem eitthvað skáld út í bæ
er að ímynda sér. Held ég láti því
tengdó gefa mér úr flokknum Ævisögur og
endurminningar í ár. Elías
Mar, Nýr penni í nýju lýðveldi e. Hjálmar
Sveinsson lítur vel út og er eflaust gaman að lesa
upp á að smjörþefa af fílingi frá síðustu
öld, en ég hef reyndar engan áhuga á skáldverkum
Elíasar.
Hólmstein
fær maður sér auðvitað. Jólagjöfin
frá tengdó í ár verður þó
líklega á endanum ÞÞ
- Í fátæktarlandinu, Þroskasaga Þórbergs
Þórðarsonar e. Pétur Gunnarsson. Held þar
klikki ekkert.
---
Blogggáttin er sniðugt
dæmi vilji maður fylgjast með skástu bloggunum. Nú
er bloggsíða mín komin þar inn svo þá
held ég að þessum rss-málum sé loks komið
á hreint.
06.12.07
Meirimáttarkenndin.
Fjallað er um kynjarusl.
05.12.07
Svo það sé samhengi í hlutunum þá
eru nú komnar upp hér að ofan tvær kannanir, ein
fyrir bestu íslensku plötur ársins og önnur fyrir
bestu erlendu plöturnar. Hægt verður að kjósa
til mánudagsins 17. desember og niðurstöðurnar eru
bindandi. Mjög bindandi!!!
---
Hagkaup Miklagarði var ágæt. Það er þó
bara til sama dótið þarna og annars staðar. Slagaði
alveg upp í góðar búðir í útlöndum,
en allt vitanlega helmingi dýrara. Bara t.d. á Kanaríeyjum
má finna flottari matvörubúðir en hér. Miklu
betra úrval, girnilegra kjöt og fiskiborð, að ógleymdu
verðlaginu. Ég leitaði sérstaklega að "karlageymsluherberginu"
vegna bakþankaskrifa. Hélt að þetta herbergi væri
nú mun flottara. Þetta var bara sirka 6 fm blettur afmarkaður
með hóruhúsagardínum og í honum fjórir
þröngir leðurstólar og eitt 42 tommu sjónvarp.
Miðað við umfjöllunina bjóst ég við
mun meiru. Svona svipað sér maður í hvaða raftækjabúð
sem er.
---
Tannlæknirinn reif úr mér endajaxl. Það
voru hræðileg óhljóð í þessu og
ég sá fyrir mér kjálkann á mér
eins og sviðakjamma. Tannsi vildi endilega senda mig heim með jaxlinn
í plastmáli. Dagbjartur er dauðhræddur við
hann. Nú er ég á fljótandi sem er fínt
í smá tíma. Kostaði 10.000 kall eins og um var
samið (samkvæmt dæmum á okursíðu er það
vel sloppið).
---
Skiptist á bókum við Arnar Eggert. Það
varð auðvitað fjölmiðlamál og má lesa
um í Mogganum í dag. Líst ágætlega á
bókina um Bárðarson nema hún hefði mátt
lúkka flottar, myndir eru grámóskulegar og lítið
glam í leiátinu. Þetta gæti verið bók
um aldraðan skipstjóra, lúkklega séð. Sama
vandamál var reyndar upp á teningnum varðandi rokkbókina
mína. Það virðist hverfandi metnaður til að
búa til flottlúkkandi kaffiborðsbækur hérna
en kannski var það bara manni sjálfum að kenna og
tímaleysinu.
---
Enn verður niðurlæging manns sem aldraðs verðbótaþolanda
augljósari nú þegar 29 ára smábarn hefur
verið gert að forstjóra FL. Aumingja Hannes fékk
bara 60 millur í starfslokasamning en var nýbúinn
að kaupa sér bíl á 65. Er þetta mál
bara byrjunin á hruninu? Verður "útrásin" bráðlega
jafn fyndin í spéspegli tímans og uppgangur Skjás
eins? Ekkert byggt á engu? Eða eins og Ragnar Bragason spyr
í Fbl í dag: "Eru ekki allir komnir með nett ógeð
á þessum fjármálageira?"
---
Fréttatilkynning:
Hljómsveitin Hellvar bryddar nú upp á
nýstárlegri leið til að fagna útgáfu
fyrstu plötu sinnar sem heitir Bat out of Hellvar. Föstudaginn
7. desember klukkan 18.00 mun strætisvagn leggja af stað
frá Lækjartorgi og innbyrgðis er Hellvar, ásamt
öllum sem vilja vera viðstaddir. Strætóinn keyrir
hring og á meðan mun Hellvar leika lög af nýju plötunni.
Mun þetta vera í fyrsta skipti sem útgáfutónleikar
eru haldnir í strætisvagni á Íslandi og verður
mjög spennandi að vita hvernig tekst til. Að sjálfsögðu
er frítt inn.
Auk þess að vera nýjungagjarnir með eindæmum
eru meðlimir Hellvar mjög hlynntir umhverfisvernd og finnst því
frábært að geta nýtt útgáfutónleika
sína til að lokka fólk inn í strætisvagn.
"Við vonumst að sjálfsögðu til að það
verði vagnfyllir", segir Heiða, "en hljómurinn í
Strætó á enn eftir að koma í ljós.
Það kemur þó ekki að sök þótt
hann verði ekki fullkominn því það er
upplifunin sem skiptir máli. Það að ferðast um
götur Reykjavíkur í almenningsvagni og horfa út
um gluggann á lífið í borginni á meðan
hlýtt er á skemmtilega tónlist hlýtur að
vera eitthvað sem verður gert mun meira af í framtíðinni,
ef vel tekst til hjá okkur."
Fyrir þá sem komast ekki er bent á að Hellvar
spilar einnig á Gauki á Stöng laugardagskvöldið
8. desember, á útgáfuhátíð plötuútgáfunnar
Kimi Records, sem gefur út plötu þeirra.
04.12.07
Það er ekkert sem heitir að Dr. Spock verður að
komast áfram úr símakosningunni. Að hringja í
900 2201
gerir gæfumuninn. Hér
má svo hlusta á snilldina og hér
má sjá hana. Við treystum á stuðning yðar.
---
Sonur minn er orðinn fyrirsæta og mér líður
eins og pabba stráksins í Home Alone. Nú hefur Satan
Glitnir keypt soninn í sniðuga auglýsingaherferð
með krökkum, bæði á dagatali og í sjónvarpi.
Allur ágóði rennur óskiptur til kaupa á
Transformersköllum.
---
Heyrði lag í útvarpi. Hugsaði: Hvaða hálfvitar
eru nú að syngja þetta lag sem jólalag? Var smá
stund að fatta að þetta voru auðvitað bara þessir
meistarar.
---
Blaðamaður 24st hringdi og spurði hvað ég hefði
verið að gera þegar Thriller með Michael Jackson kom
út fyrir 25 árum (1982). Að hlusta á Purrk Pillnikk
var ekki nógu gott svar svo hann vitnaði bara í Gulla
Helga. Það tók mörg ár þar til Michael
Jackson þótti nógu góður til að fá
að vera með í Kópavogi.
---
Hjá Krotborg má
finna gullfallega mynd af Stefáni Grímssyni. Gjössovel:
---
Það stendur mikið til í dag. Fara pílagrímsferð
í nýju Hagkaup. Láta tannlækninn draga út
mér endajaxl (hún lofar að það kosti undir
10 þús kall). Heimsækja Arnar Eggert og skiptast á
bókum (Gluggaði aðeins í bókina hans um Einar
Bárðar og sá að Nælon flutti Lög unga
fólksins til að "róa Smekkleysuliðið sem var
alveg að ganga af göflunum yfir stofnun stúlknasveitarinnar".
Ég held nú að Einar hafi aðeins ofmetið "Smekkleysuliðið"
og látið það fara aðeins of mikið fyrir brjóstið
á sér hvað það var að spá. Minnir
á viðbrögð við tuðinu í ritstjóra
Morgunblaðsins, en hann má ekki pípa eitthvað zzz
úr sínum Staksteinapung án þess að smáfuglarnir
rjúki upp á símalínurnar galandi æ æ
ó ó.)
03.12.07
KL. 06:40. Að hugsa sér það: Britney Spears, Amy
Winehouse, Pete Doherty og Paris Hilton eru líklega bara öll
sofandi núna. Sennilegast þó öll búin að
kúka í sig.
---
Er annars hlustandi á Back to Black með Amy akkúrat
núna. Það verður ekki af henni skafið að þetta
er ágætis stöff og ekki er verra að svona gamaldags
60s sánd fái uppreisn æru í nútímanum
og ekki er síður verra að heysátuhárgreiðslan
komi sterk inn líka.
---
Hverjar er bestu erlendu plötur ársins? Ég sé
um áramótauppgjörsþátt á Rás
2 á Nýársdag og það væri gaman að
fá tilnefningar í Gestabókina.
Bestu erlendu plötur ársins eins margar og fólk vill.
Og svo tek ég kannski tíu mest nefndu plöturnar og bý
til vísindalega könnun. Koma svo, erða nýja platan
með Britney? Radiohead? Hvað segiði?
02.12.07
Össs... ekki var bolurinn til í dobble doktor og því
fór sem fór. Við vorum þó #2 og munaði
örfáum atkvæðum. Maður er þá alveg
búinn að taka svekkja-sig-á-euro-pakkann og getur nú
blessunarlega snúið sér að öðru. Áfram
Barði!
---
Í gær skrapp ég í styðstu ferð lífs
míns til Akureyrar. Þar voru jólin komin, snjór
og fegursti fjörður heims, Eyjafjörður, skartaði
sínu fegursta. Við höfðum 3 tíma, Rokkararnir,
Heiða og Jói, til að skemmta í Landsbankanum, rölta
í hina frábæru fornbúð Frúin í
Hamborg (með sínu magnaða vinýlplötu herbergi)
og slafra í okkur Brynjuís. Ég tók líter
með til baka sem þoldi flugið, enda sér innpakkaður.
Eftir hinn niðurlægjandi ósigur var það því
ekki Ben og Jerry dolla sem var dælt í sig heldur Brynjuís
í massavís, en ég tannburstaði mig reyndar áður
en ég lagðist útgrátinn til hvílu. Ég
lýsi yfir sárum vonbrigðum mínum með þá
sem studdu ekki Dr. Spock til sigurs, en það er víst enn
von í wild kard kjaftæðinu. Símakosning á
Rás 2 og allt það.
01.12.07
Það er til mikils að vinna...
(af Sviðsljósi
Ellýar).
30.11.07
Það er ljóst að fleiri en ég meina bisness
í Laugardagslögum á morgun. Allir meina bisness og Dr.
Spock fá þungavinnuvélalega samkeppni. Ekki nóg
með að Magnús Þór dragi Ragnheiði Gröndal
á flot, en þau unnu einmitt saman eina af ástsælustu
ballöðum síðustu ára, Ást, heldur tekur
Hafdís Huld allan pakkann og ríflega það og fær
Magna og Birgittu Haukdal til að syngja sitt lag saman. Magni OG Birgitta?!
Maður toppar það nú varla nema maður hringi í
Megas og Björk og fái þau í dúett. Semsé,
heví samkeppni og full ástæða til að liggja
í símanum.
---
En nú: Löngu tímabær Topp 5imm, gjössovel:
Hellvar
- Ice cream drum machine: Bat out of Hellvar er komin út,
fyrsta plata Hellvars. Ég sagði Heiðu að umslagið
væri alveg eins og eitthvað með Enyu og henni fannst það
alls ekkert sniðugt. Það var reyndar það eina sem
ég gat sagt neikvætt um þessa plötu því
hún er alveg þrusugóð (og auðvitað ekkert
í anda Enyu). Ellefu lög mynda sterka og skemmtilega heild,
dáldið súrsaða á köflum og hnausþykka,
og það er alveg gráupplagt að láta þetta
liggja lengi í bleyti í ipoddinum eða winampinum. Ein
albesta ísl-enska plata ársins! Allir út í
búð!
Það er nýstofnað útgáfufélag
hugsjónamannsins Baldvins
Esra frá Akureyri, Kimi
records, sem gefur út. Það lítur út
fyrir að Kimi hafi hönd í bagga með öðrum
spennandi plötum sem ég á enn eftir að tékka
á: Hjaltalín-plötunni Sleepdrunk sessions, Ein í
leyni með Benna Hemm Hemm og Mr. Silla og Mongoose plötunni Foxbite.
Yelle
- A cause des garçons: Sprellihressar franskar popppíur
hafa löngum kætt mig. Nægir að nefna Lio, píuna
í Les Rita Mitsouko og þá hressustu af öllu hressu,
France Gall. Nú er komin ein nútímahress, sprellifríska
Yelle (Julia Budet) sem á ættir að rekja til Bretoníuskaga.
Á frumalbúmi sínu, Pop-up, spriklar hún hægri
vinstri þrumuskuð í litríkum njúveif lopahosum
og hólkvíðum neonlitum axlasýnandi peysum. Slagveðurslinandi.
Bearsuit
- Mission Io must not fail: Bjarnarbúningurinn kemur frá
Norwich á Englandi og spilar eitthvað mitt á milli Dýrðarinnar
og Deerhoof. John Peel var mjög hrifinn af þeim og á
þriðju plötunni sinni, oh:io, er tekið vel áðí.
Hér er aftur á móti fremur hægt lag, en engu
að síður ómþýtt. Og meðan ég
man: Ef einhverjum vantar gott nafn á hljómsveit: Vasabilljard.
Partyshank
- Penis vs. Vagina (Shanks killer mix): Njúreif (e. New
Rave) vilja menn flokka það sem þessir ensku drengir og
fjölmargir aðrir bjóða upp, sem sé nútíma
danstónlist sem ungmenni í skræpóttum peysum
dæla nú út um víðan völl. Kannski væri
"skræpótta bylgjan" heppilegra heiti á íslensku.
Fólk skammast sín ekkert fyrir að vilja skemmta og vera
í partístuði. Þetta er lauflétt samsulluð
en langt í frá einsleit tónlist. Þó á
hún það sameiginlegt að vísa aldrei til eldri
tónlistar en frá sirka 1980 þegar eitís nýbylgjan
var að fæðast. Gítarar og sixtís og seventís-áhrif
eru sem sé hverfandi. Fulltrúar eru fjölmargir og víðsvega,
allt frá brasilískum stuðboltum eins og Bonde do Role
og CSS, yfir í íslenska fulltrúa eins og Fm Belfast,
Bloodgroup og Steed Lord. Þó vill eflaust enginn láta
troða sér í skræpótta bylgju básinn
en það er nú bara eins og það er. Helst blómstrar
bylgjan á bloggum, áhugasamir geta t.d. gert margt vitlausara
en að athuga eina bestu uppsprettuna, Big
Stereo.
Jukebox
The Ghost - Good Day (Andrew Maury Remix): Tríó frá
Washington, DC, með traustvekjandi lýsingu á ferilsskránni:
Blanda
af popnæmi Elvis Costello, íburði Queen, andríki
They Might Be Giants og skapandi rokki The Flaming Lips. Hljómsveitin
er nýútskrifuð úr George Washington University
og hefur gefið út sjálftitlaða EP-plötu.
---
Áhugafólk um tónlist andfætlinga okkar í
Ástralíu og Nýja Sjálandi ætti að
flýta sér hingað,
þar sem gefur að líta topp 25 yfir bestu andfætluböndin
samkvæmt fjölmörgum andfætlu mp3bloggurum. Fjölmörg
tóndæmi!
---
Og svo áríðandi tilkynning frá Grími
Atlasyni:
Rufus Wainwright til Íslands
Tónleikar í Háskólabíó 13.
apríl kl. 20:00.
Miðasala hefst á midi.is, verslunum Skífunnar og
BT fimmtudaginn 6. desember kl. 10.
Hinn magnaði kanadíski listamaður Rufus Wainwright
mun koma fram á tónleikum í
Háskólabíói þann 13. apríl
nk. Það verður að teljast gríðarlegur fengur
að
þessi mikli listamaður leggi leið sína til
Íslands enda eru aðdáendur hans hér
á landi fjölmargir.
Allt frá því að Rufus kom fyrst fram aðeins
barn að aldri hefur hann vakið
verðskuldaði athygli. Hann spilaði í hljómsveit
með móður sinni og systur Mörtu
Wainwright en hún er auðvitað þekkt söngkona
í dag. Rufus var rétt 16 ára þegar
hann var tilnefndur til Genie verðlaunanna fyrir lagið Im
A-Runnin, sem kom
fram í myndinni Tommy Tricker and the Stamp Traveller. Frá
því hefur leið hans
legið upp á við og frá fyrstu sólóplötunni
Rufus Wainwirght sem kom út árið
1998 má segja að aðdáendahópurinn hafi
aðeins stækkað. Rolling Stones taldi
plötuna vera eina þá bestu það ár
tímaritið valdi Rufus sem besta nýja
listamanninn það ár.
Með útkomu Release the Stars í ár má
segja að Rufus Wainwright hafi náð
almennri hylli. Platan hefur m.a. komið honum hærra á
stjörnuhimininn í
Bandaríkjunum en hann hafði áður komist. Platan
fór hæst í annað sætið í
Bretlandi og náði strax 23. sætinu í Bandaríkjunum.
Lagið Going to a town náði
talsverðri hylli á Íslandi. Gagnrýnendur
hafa lofað tónlist Rufusar og er hann
talinn vera einn af athyglisverðustu tónlistarmönnunum
sem starfa um þessar
mundir.
Rufus hefur samið talsvert af tónlist fyrir bíómyndir
og meðal mynda sem heyra
má tónlist hans í eru: Brokeback Mountain,
I am Sam, Moulin Rouge!m Shrek, Meet
the Robinsons og Leonard Cohen: Im Your Man. Hann hefur komið
fram með
fjölmörgum listamönnum t.a.m.: Antony and The Johnsons,
Erasure og Pet Shop
Boys.
Rufus hefur einnig tekið lög eftir aðra og gert það
einstaklega vel. Meðal laga
sem hann hefur tekið er Leonard Cohen lagið Hallelujah
sem heyra mátti í Shrek
2 og Bítlalaginu Across the Universe báðar
útgáfur þykja tær snilld.
Hann er einstakur á tónleikum og nær upp mikilli
nánd og stemmingu hvar sem
hann kemur fram.
Gott að fá Rufus! Hér er hann og gott lag af plötunni
Poses (2001): Greek
Song.
29.11.07
Ég leiði saman "hesta" mína með Dr. Spock í
euroþættinum á laugardaginn. Lagið heitir Hvar
ertu nú? og er sjómannarokk af bestu gerð. Annað
slagið drulluheví eins og stormur og stórviðri, en
þess á milli fellur allt í ljúfa löð
eins og sólbjart og spegilslétt haf eftir fárviðri.
Lagið smíðuðum við doktorarnir saman eftir þaulsetur
í sánaböðum. Þess má geta að allir
sem koma nálægt laginu er með pung en enginn þeirra
er rakaður. Ég vildi að ég gæti sett það
hérna inn til að þú fengir að heyra snilldina
en það er stranglega bannað. Refsingin er tíu sinnum
fleiri vandarhögg en að kalla bangsa Múhammed (andskotans
fáráður eru þetta). Semsé: Hvar ertu
nú? á laugardaginn! Reiðum gúmmíhanska
á loft!
---
Ég horfði loksins á Westway to the world, fína
heimildarmynd um The Clash. Kannski aldrei uppáhaldsband, en ég
sá þá í Höllinni 1980 og fannst alveg geðsjúkt.
Ég man að ég hugsaði eftir það gigg að
maður "þyrfti ekki að vera fullur til að fara á
rokktónleika" og það gekk eftir því ég
var aldrei fullur þegar ég sá stöff eins og Echo
& the Bunnymen, Human League og Crass í Höllinni næstu
ár, að ógleymdum hinum mögnuðu safntónleikum
"Annað hljóð í strokkinn". Þar man ég
einna helst eftir því hvað Englaryk voru helluð, þegar
löggan stoppaði Bruna BB af með vélsagirnar og Fan
Houtens kókó tóku "Hún er svo sæt".
---
Eitthvað er skrýtið við þessa nýju
sjónvarpsstöð sem Erpur Eyvindarson á að fara
fyrir - "3". Þeir segja að þetta sé á stöð
12 á digitalinu. Ég kíkti á þetta kl.
18:30 í gær og þá var Erpur að skoða
veiðihnífa með Birni Jörundi. Jú jú,
alveg svaka áhugavert, en samt ekki jafn áhugavert og fréttirnar.
Svo kíkti ég tvisvar seinna um kvöldið og sá
ekkert nema skjámynd frá Sýn eða eitthvað.
Það mætti því kannski segja manni hvenær
dýrðin er send út?
28.11.07
Átti svakalegar draumfarir. Fór alla leið til Japan
til þess eins að vera fastur á flugvallahóteli.
Þar á undan hafði Ragnar Kjartansson framið á
mér "Tekinn"-hrekk sem var dulbúinn sem listgjörningur.
Ég var svo reiður við Rassa að ég handleggsbraut
hann. Algjör sósa náttúrlega, enda er maður
nú sofandi upp í 10 tíma á nótt í
staðin fyrir þetta 6-7 tíma vanalega. Það gerir
skammdegið. Meiri svefn framkallar sósaðri drauma.
---
Bubbi kominn á gulljeppa.
Og það er enginn draumur.
27.11.07
Ég vil bara taka það fram að mér finnst
Rannveig Rist ekkert daðra við að vera þroskaheft, ekki
einu sinni á myndinni sem fylgir þessari
frétt.
---
Ég hef bara einu sinni komið í Silfur Egils og þá
kom ég til að ræða um rokk. Það er til háborinnar
skammar að mér sé bara boðið til að ræða
um rokk. Þess vegna ætla ég að segja nei næst
þegar Egill kemur skríðandi til að fá mig í
þáttinn. Það er breiðfylking sem ætlar
að segja Agli að hoppa upp í rassgatið á sér
þegar hann kemur skríðandi næst, ég veit
um a.m.k. þrjá aðra, þá Arnar Eggert, Óla
Palla og Kristinn Pálsson. Við rokkfræðingar látum
ekki koma svona fram við okkur. Egill getur bara étið það
sem úti frýs.
---
Stórtíðinda er nú að vænta í
eurovisionþætti allra landsmanna, Laugardagslögunum. Næsta
laugardag skellur á fyrsta lagið í sögu þessarar
keppni sem er loðið á bakinu og með hár og pungnum.
---
Hættu svo þessu væli. Þú býrð
í besta landi í heimi.
26.11.07
Ég veit ekki hvað það þýðir að
tauta og raula um íslensku / ensku í dægurlagatextum
endalaust. Það er náttúrlega lítið hægt
að gera í því þegar ágætis íslensk
bönd ákveða að syngja á ensku (hver svo sem
ástæðan er). Það eru ekki neinar takmarkanir
sem fylgja. Rás 2 hefur ekki enn ákveðið að neita
að spila íslensk lög með enskum textum og það
væri vissulega kaldrifjuð aðferð. Arnar Eggert er með
ýmsar athyglisverðar pælingar í Gestabók.
Hér eru nokkrar mótpælingar:
Getur verið að það sé bundið í
eðli dægurtónlistarinnar að textinn sé raunverulega
bara skraut? Alla jafna?
Jú jú, það er ósanngjarnt að leggja
þá kvöð á poppara að þeir þurfi
líka að vera skáld og hafa eitthvað að segja.
Langflestir láta "músikina tala", en eins og ég hef
áður minnst á finnst mér bætast við
ný vídd í heildarpakkanum þegar popparar eru
með góða texta á íslensku þegar maður
finnur smjörþef af samtímanum og raunveruleikanum í
gegnum músikina. Þegar poppið er ekki bara snotur eftirlíking
af því sem hæst ber erlendis heldur einhverskonar spegill
á samtímann. En þetta er sjaldgæft og fáránlegt
að ætlast til þess.
Tökum Bítlana sem dæmi. Ekki voru þetta nú
sérstakir textar hjá þeim, hvorki á fyrri hluta
ferilsins né á þeim síðari. Það
virðist samt öllum sama um það. Allir eru á því
að þetta sé stórkostlegasta hljómsveit dægurtónlistarsögunnar.
Ergo: textarnir skipta ekki nema brotabrotsmáli í heildarsamhenginu.
Ágætis dæmi. Sumt þeirra textadót er
náttúrlega þrælslappt. Tek alveg undir þetta
ergó, textar eru yfirleitt minnipokamenn í heildarpakkanum.
Þær eru ekki margar sveitirnar sem eru mér kærar
vegna texta (Smiths, American Music Club eru tvær sem ég man
eftir í svipinn).
Hér má vel bæta við Belle & Sebastian, Pulp,
Art Brut...
Strokessveit sem syngur á íslensku. Er það
ekki bara hallærislegt - og það að vera hallærislegur
er dauðasynd rokksins.
Er ekki nógu hallærislegt að stofna Strokessveit fyrir
það fyrsta? Svo er náttúrlega fátt meira
kúl en að vera hallærislegur. Þ.e.a.s. ef maður
veit sjálfur að maður er hallærislegur.
---
Ég tek nú ekki mark á þessu krepputali fyrr
en ég heyri af fyrsta trillanum sem neyddist til að selja einkaþotuna
sína. Þá veit ég að "útrásin"
er búin.
24.11.07
Þið getið hætt þessu rss-væli. Ég
er með í Mikka
vef, hvernig svo sem það virkar.
---
Það er orðin hefð að ég sofna yfir lögreglumanni
í ensku smáþorpi að leysa morðmál á
föstudagskvöldum. Svo er mér svo sama um þetta að
ég gleymi að spyrja Lufsuna hver drap alla.
---
Á sama tíma og ég sit tárvotur upp í
sófa yfir heimildamynd um langveik börn eru hommar í
sleik út um alla Öskjuhlíð. Þetta og margt
fleira segir 123 töff.
23.11.07
Steinþór Helgi skrifar pistil í tilefni af bakþönkum
mínum í gær um íslensku og popp. Nú nenni
ég ekki að standa í rifrildi um þetta mál,
fólk má hafa þá skoðun sem það
vill, heldur var ég bara að benda á að fyrir mér
bæta (góðir) íslenskir textar við aukavídd
í heildarpakkann, gera poppið annað og meira. Steinþór
deilir skoðun með Fabúlu sem sagði eitthvað svipað
í Laugardagslögunum á dögunum: "Enskan er einfaldlega
alþjóðlegt tungumál tónlistar (kjaftæði)
og
ég held að það sé tónlistarfólki
eðlislægt að semja texta á ensku (það
heitir leti og metnaðarleysi - eða hugsar þetta lið kannski
á ensku líka?), alveg eins og erindi-viðlag-erindi-viðlag-brú-viðlag
er venjan í uppbyggingu á popplagi (sem sé, klisja).
(ath: Frekari umræða um málið í Gestir
hafa orðið).
---
Ef snyrti- og góðmennin Björgúlfsfeðgar
eru með Fáfnismenn í vinnu við að hrekja burtu
fólk í íbúðum sem þeir vilja kaupa
(eins og lesa má um hér
og hér)
þá hljómar það eins og bíómynd
með Chuck Norris. Hver pant vera Chuck og hjálpa góða
fólkinu? Enginn?
---
"Mest lesið" sýnir okkur það sem skiptir mestu
máli í lífinu. Til dæmis núna:
1. Bachelorinn sendi báðar brúðirnar heim
2. Nærbuxnalaus Christina Aguilera
3. Vill síður vera borinn berrassaður út úr
Kringlunni
4. Luxor sjá í rassinn á Páli Óskari
5. Britney með "takeaway" kærasta
6. Allir hættir að tala við Magna
Í fullkomnum heimi væri "mest lesið" eitthvað svona:
1. Endurútgáfa á verkum Fan Houtens kókó
fyrirhuguð
2. Guðbergur með góðan pistil í DV
3. Þýðing á "nýju" Tinna bókinni
heppnast vel
4. Megas segist ánægður með árið
5. Internetið litlausara eftir fráfall Mengellu
6. Næturvaktin bráðum á dvd
---
Mikið væri skemmtilegra ef þetta
hefðu verið þátttakendurnir í Herra Ísland...
---
Það er annað hvort grenjandi rigning eða helkalt.
Ef manni langar aðeins í burtu, þó ekki sé
það nema í huganum, er margt vitlausara en að skoða
ferðablogg. Eitt gott er Ferðablogg
Sonju og Jóa sem nú ferðast með myndavél,
Megas og Morrissey um Norður-Indland, Bútan og Nepal. Annað
sniðugt er að taka smá rispu á snilldarforritinu
Goggle
earth.
---
Skatturinn sendi mér frekar fúllynda ítrekun um
að ég ætti eftir að skrá mig í eitthvað
nýtt kerfi, ÍSAT2008. Ég hafði aldrei verið
beðinn um það áður. Það var lítið
mál og þegar ég var búinn að breyta birtist
þetta:
ÍSAT 95 vörpun fyrir Lögaðila
ÍSAT 95 -> ÍSAT 2008 vörpun
Vörpun? Hvað er það? Fer skatturinn nú að
skatta mig eins og ég sé varphænsn?
---
Hænsn. Flott orð. Prófaðu að segja það
upphátt. Næstum því eins flott og tengsl. Tengsl.
Prófaðu að segja það upphátt.
22.11.07
Dagarnir líða. Það er skítkalt eða
rigning til skiptis. Myrkur og doði. Samt reynir maður að hressa
sig við, hugsa til heitu landanna.
---
Við kláruðum Abbababb! fyrir tveim blindfullum húsum
á sunnudaginn. Svo var étið saman. Þetta var mjög
góð sýning þótt ég segi sjálfur
frá og frábært samstarf sem skilaði þessu.
Það er frekar líklegt að sýningin birtist á
fjölum aftur fyrr en seinna, ja eða eftir nokkur ár.
---
Ég sá Ladda í World Class. Hann var nú
bara í plebbaklefanum þótt hann sé tvímælalaust
maður ársins vinsældarlega séð. Laddi er maðurinn.
---
Ég hitti loks textahöfund minn Mengellu, Ólaf Sindra,
og tók við hann viðtal fyrir Fbl (birtist um helgina). Við
hittumst á Hótel Holti sem er besta kaffihús bæjarins,
það hljóðlátasta og mest passandi. Best þykir
mér að hitta fólk þar eða á BSÍ.
Á Holtinu fær maður einskonar bonzai kaffi og bonzai bakkelsi
með. 400 kall skammturinn sem er gjafverð þegar haft er í
huga leðursætin og málverkin. Alvöru stöff,
gamall peningur, ekkert smekklaust nýríki. Enginn helvítis
50 cent úr hátölurunum.
---
Ég á sæmilegan Bakþankaí
dag um Íslenskulögguna. Enn ein tilraunin til að segja
það sama, að fólk eigi að syngja á íslensku
í poppinu sínu.
---
Plötutíðindi kom inn um lúguna í morgun.
Alltaf gaman að fá þann pésa. Ég vorkenni
þó útburðarfólkinu sem þarf að
rogast með sirka kíló á hverja lúgu þessa
dagana.
---
Ég fór með ritstjóra Útiveru
upp á Úlfarsfell til myndatöku. Ég er í
viðtali í blaðinu næst. Þyki víst ágætur
til að vekja athygli á útivist. Ekki eins og ég
sé einhver útivistargúrú en ég sýni
þó allavega lit og hef tekið mig á. Ritstjórinn
er annar eigandi Fjölva svo nú á ég von á
Tinna í Sovétríkjunum sem Fjölvi er nýbúinn
að koma út.
---
Gaman er að horfa á Kistuna. Spennan á milli Kolbrúnar
og Páls Baldvins í byrjun þáttarins er sjaldséð
í sjónvarpi. Kolbrún titrar en Páll heldur
í stálgrímuna. Áhugaleysi Kolbrúnar
um Tinna er þó skammarlegt. Einu sinni var ég aðdáandi
Jóhamars.
Gaman að sjá hann er að koma inn aftur og maður ætti
að fá sér bókina hans. Mig langar alltaf jafn
mikið í fornbókabúðina þegar ég
sé Braga.
---
Menn eru að skipta glugga í svefniherberginu. Það
kostar nú skildinginn.
---
Ég fór á Eastern Promises (sjá menning).
---
Tengdapabbi kemur frá Skotlandi í dag. Ég þarf
í búð að kaupa standard vörur að því
tilefni, súrmjólk, síld og harðfisk.
19.11.07
Boys on wheels síðasta hljómsveit í heimi?
Sjáðu
bara.
---
Það er aldeilis að hundarnir flaðra upp um eiganda
sinn í dag. Voff voff! Slef slef!
17.11.07
Sá Zodiac í gær. Morðingi er þefaður
uppi í alltof langri og ekkert svo sérlega skemmtilegri mynd.
Hefði auðveldlega getað verið hálftíma styttri.
Manísk leitin af morðingjanum minnti mig eitthvað smá
á manísku leitina að dularfulla leynibloggaranum, sem
tók fólk "af lífi" á íslensku.
---
Eitt pirrandi eru útvarpsmenn sem kynna lög með því
að segja að þetta sé "glænýtt lag" frá
hinum og þessum, þegar hið rétta er að þetta
er það lag sem nýlega var gefið út á
smáskífu, en er búið að vera til á
albúminu í hálft ár eða eitthvað. Hvernig
getur hálfs árs gamalt lag verið "glænýtt"
eða "það nýjasta frá..."? En allavega, fáum
enn annan alíslenskan Topp 5imm. Þetta er glænýtt
og það nýjasta frá...
Guðmundur
Jónsson - Eyjólfur: Óperumeistarinn Guðmundur
Jónsson er fallinn frá. Ekki þarf að fjölyrða
um snilli hans á óperusviðinu en ekki má heldur
gleyma poppplötunni hans, Lax Lax Lax, sem SG gaf út 1969.
Í snobbaða batík og fondúgeiranum þótti
Guðmundur hafa tekið all rösklega niður fyrir sig með
svona "auðvirðulegu popskrani". Aðrir nutu alvöru óperupopps
(þetta er auðvitað löngu áður en Satan stofnaði
Luxor hópinn) og platan er full af hitturum; Jón tröll,
Það er eins og gerst hafi í gær, þetta lag
og titillagið. Útsetningar, kór og hljómsveitarstjórn
var í höndum Magnúsar Ingimarssonar og þetta er
frábær snilldarplata.
Sprengjuhöllin
- Nú er tíminn: Unga fólkið liggur afvelta
yfir þessu, skilst mér. Lufsan hefur líka haft orð
á því hve Vertu í sambandi sé flott lag
og það hefur ekki gerst síðan hún mærði
Story of a star með UMTS (og Sail away með David Grey þar
á undan). Tímarnir okkar er kannski ekki alveg Sumar á
Sýrlandi klámkynslóðarinnar, eins og einhverjir
vilja meina í hástemmdri fagnaðarvímu yfir því
að loksins skuli einhver syngja á íslensku um eitthvað
sem er ekki kjaftæði, en þetta er alveg Tívolí.
Fullt af góðum lögum, nokkur slappari reyndar líka,
rosalega gaman auðvitað að loksins skuli einhverjir syngja
á íslensku um eitthvað sem ekki er kjaftæði
og svona. Ég valdi þetta lag af því það
er gott og af því orgelbyrjunin á því
minnir mig á Barry Andrews á meðan hann spilaði með
Xtc. Nú er að sjá hvort Sprengjuhöllin fylgir þessu
eftir með Sumri á Sýrlandi eða Gráa fiðringnum
ég held það verði Sýrland. (Bónus:
Til að einhver skilji nú hvað ég meina með þessu
orgeltali og Barry Andrews er bónuslag: Xtc
- All along the watchtower. Einkar snyrtileg Dylan sæng.)
Megas
& Senuþjófarnir - Upprisubúðir: Af
Holdi er mold, sem við fyrstu heyrn er fjölbreytt og uppsöfnunarlegt
flykki sem tekur tíma að kjammsa á og melta. Sem er náttúrlega
ekki verra. Frágangur var miklu auðveldari.
Sigur
Rós - Hljómalind: Your eyes on my phone er það
textinn? Fjallar þetta lag um Kidda í Hlómalind sem
var alltaf að glápa á símann hans Jónsa?
Textinn eða textaleysið skiptir kannski ekki öllu því
þetta er ægigott og guðdómlega poppað og kemur
af plötutvennunni Hvarf/Heim.
Páll
Óskar - Komdu til mín: Lag eftir Svölu Björgvins
af Allt fyrir ástina, bestu diskóplötu Palla til þessa.
Viðtal við Pál í dag er endurkoma mín í
viðtaladeild Fbl. Svo heldur hann útgáfutónleika
í
kvöld á Nasa frá kl. 23, en er með krakkaball um
daginn.
16.11.07
Þrjár tvennur í tilefni af degi
íslenskrar tungu:
Til sölu #1:
Ég lét Trausta kaupa fyrir mig peysu í New York
en fattaði ekki að hún er 80% ull (og 20% nælon).
Ég meika það ekki hún stingur einum of. Því
vil ég selja hana. Hér er mynd:
Brown
Sound Bronski Full Zip Sweater er í stærðinni Large.
Kostaði 89$ en mitt verð er 5000 kall. Myndi eflaust kosta 12-15
kall ef hún væri til hér. Ónotuð auðvitað.
Kaupa.
(SELD)
Til sölu #2:
Smábarnarólan Fisher Price Rainforest Cradle swing. Hér
er mynd:
Lítið notuð, batterí-knúin og eitur svöl.
Þú veist ekki af barninu tímunum saman. Sambærilegt
græja fæst í Baby Sam á 20+. Mitt verð 12.000
kall. Kaupa.
(SELD)
Hneyksli #1
Gallabuxur fást varla lengur með rennilási bara
með tölum. Og ég sem þoli ekki tölur á
buxum. Til hvers að hneppa ef hægt er að renna. Ég
sem hélt að rennilásinn hefði verið fundinn upp
til að spara tíma. Hvað er nú að rennilásum?,
öskraði ég á buxnadrenginn í búðinni.
Hann stóð álkulegur og sagði að það
væru ekki til neinar buxur með rennilási í sinni
búð. Ég til dæmis gleymi alltaf að renna upp
þegar ég er í buxum með rennilási, sagði
drengurinn. Ég var auðvitað of vankaður til að spyrja
af hverju hann myndi þá frekar eftir að hneppa en renna.
Heil Kringla full af buxum og engin með rennilási. Ég
missi vitið.
Hneyksli #2
Hvernig væri að einhver einhvers staðar tæki upp
á því að sýna eitthvað af þessum
bíómyndum klukkan 5, 7 og 9 í staðinn fyrir 6,
8 og 10. Ég kemst aldrei í 8 bíó, alltaf að
svæfa, en er orðinn einum of syfjaður kl. 10, hvað þá
12 þegar myndinni líkur. Níubíó væri
því upplagt fyrir mig og eflaust fleiri í svipuðum
sporum. Svo myndi líka gera poppstrauminn í sjoppunni jafnari
að hafa þetta svona allskonar.
Opinberun #1
Óli Sindri er Mengella.
Kannski ekki þruma úr heiðskýru lofti, en fyrst
Gellan þrætti svona fyrir þetta hélt maður
kannski að þetta væri einhver vinur hans Óla, eða
ættingi. Þegar ég myndgerði Mennu í huga
mér poppaði Anna Kristjáns alltaf upp. Það
er gríðarlegur missir af Mengellu en ég bind miklar vonir
við Óla, enda strákurinn greinilega snillingur. Og ekki
nema 24 ára.
Opinberun #2
Ég er Gunnar Lárus Hjálmarsson og ég er
ekki milljónamæringur.
|