12.10.07
Nú er gaman hjá fréttamönnum sem öllum
finnst íslensk pólitík vera það merkilegasta
síðan klósettpappírinn var tekinn í notkun.
Þeir fá úronum í löngum bunum yfir þessu
leiðindarkrappi í borginni. En enginn spyr: Jæja krakkar
sem nú eruð allt í einu orðin aðal af því
blóðsugan er svo hress, hvað ætliði að gera
varðandi leikskólamálin? Bara endalaust rugl og bull
um þessa orkuveituReiblablabla sem fáir skilja bofs í.
Og ef ég heyri aðra setningu þar sem nafn Dags Bé
er notað á "hnyttinn" hátt þá æli
ég.
11.10.07
Gamli góði Villi bara gamall og grafinn en Blóðsugan
fær að vera með John F Kenn, ég meina Degi Bé,
dóttir hans Svavars o.s.frv. Ég hef bara eitt að segja
þessum nýja borgarstjórnarmeirihluta: Drullisti til
að koma leikskólamálunum í lag! Líklega
meiri séns að eitthvað gerist í þessum málum
núna, allavega hættir Heimdellingaljóskan að mæta
í viðtöl og tala um að það þurfi að
hugsa "út fyrir rammann".
---
Gærdagurinn var alveg magnaður. Ekki nóg með að
Lufsan gerði ljúffenga hráfæðisköku og
börnin voru stillt og góð heldur fór ég í
skrokkadekur og prófaði besta Sushi stað á landinu.
Ég tók Heiðu með til Boga sem býr út
á annanesinu Hlið og
er með heimaveitingastaðinn Gullnahliðið og hið nýopnaða
spa Alsæla. Einu sinni át ég þarna sem var dúndur.
Þetta er gífurlega vinsælt eðlilega, ljúffengur
tælenskur matur, og bókað fram á næsta sumar.
Nú bauð Bogi mér
sumsé í spaið í sárabætur fyrir boðsleysið
út í Viðey, enda eðalmenni úr Kópavoginum.
Eftir þriggja tíma pott, þarabað, jurtagufubað
og tælenskt nudd sem fílsterk starfskona framkvæmdi
við undirleik Friðrik Karlssonar (geri ég ráð
fyrir) var maður eins og endurfæddur; táhreinn, últraslakur
og glorsoltinn. Mæli með þessu fyrir hvern sem er sem vill
lyfta sér á kreik andlega og líkamlega. Við brunuðum
í Mai Thai búðina á Hlemmi til að kaupa tælenskt
kaffi og engifer te sem okkur hafði verið boðið upp á
og þótt svona líka geðveikt. Þaðan á
Sushibarinn, Laugarvegi 2 (Gott í gogginn var þarna o.fl staðir),
sem er toppurinn á sushiinu í dag. Ekki gefið svo sem,
best fyrir 1 á 1500 kall, en svona líka ferskt og ljúffengt.
Alger snilld. Alltaf fullt náttúrlega svo best er líklega
að mæta kl. 11:30 eða eftir kl. 14:00.
10.10.07
Friðarsúla Lennon er 75.000 wött. Til samaburðar
má geta þess að spilavítisljóssúlan
í Luxor í Las Vegas (mesta ljóskeila í heimi)
er 273.000 wött. Ágætt miðað við höfðatölu,
sem sé. Gott að gamli góði Villi er ekki sleipari
í ensku en þetta. Gaf þessu alíslenskan blæ.
Gaman að sjá Hönnu Birnu og Björn Inga í sjónvarpinu
með Yoko og Sean. Einmitt fólkið sem maður hugsar fyrst
til í þessu sambandi. En ágætlega flott bara.
Ég er jákvæður. Meira í Bakþanka á
morgun.
09.10.07
Hér eru handhægar
upplýsingar ef þig langar til að fá drullu.
---
Nei ég fékk ekki boðskort á súludans
Yókóar. Fer til Boga
í staðinn. Gamli góði Villi og blóðsugan
verða vonandi ekki þar.
---
Ekkert lát er á okrinu.
Verð í Capone kl. 08:45 á morgun að plögga.
07.10.07
Ekkert topp 5 þessa viku heldur mixfællinn Iceland
Airwaves 2007 Fitubrennsla. Mixið er rúmlega klukkutími
og inniheldur eftirtalin lög í svitaaukandi uppröðun:
Bonde de role - Office boy
!!! - Myth takes
Deerhoof - Scream team
Of Montreal - Suffer for fashion
Snake & Jet's Amazing Bullit Band - X-Ray Spirit
Jakóbínarína - (I've got a date with) my television
The Bronx - Heart attack American
The Teenagers - Starlett Johansson
The Duke spirit - Lion rip
Bloodgroup - Tiger
UMTS - Story of a star
Loney, dear - The city, the airport (CSS remix)
Grizzly bear - Knife (Girl talk remix)
Who knew - Wallabe
FM Belfast - Lotus
Johnny Sexual - Feel good hit of the summer
Chromeo - Tenderoni
Lali Puna - Micronomic
Best Fwends - M.Y.S.E.L.F. (Feat. Teena Ba$$)
Radio LXMBRG - Score on the floor
Seabear - Teenage kicks
Þetta er vitanlega bara brot af því stöffi sem
verður á hátíðinni. Slefaukandi lænöppið
er komið. Nóg að gera!
---
Syðsta súla, hæsta fjall Botnsúlna, er minn
Moby Dick. Ég reyndi að klöngrast þarna upp í
fyrra en gafst upp ömurlega nálægt toppnum vegna lofthræðslu
og almenns aumingjaskapar. Þá fór ég frekar
erfiða leið og bjóst því við að ég
kæmist upp á topp í gær þegar önnur
auðveldari leið var farin. Ég fór í fyrsta
skipti á ævinni með skipulagðri ferð á
vegum Toppfara, sem er lítill
en ört vaxandi fjallgönguklúbbur sem mikið hugsjónafólk
drífur áfram. Það gladdi mig mikið að í
hópnum var Stebbi í Saktmóðigi, enda alltaf skemmtilegra
að vera með einhverjum sem maður kannast við. Jæja,
þetta gekk ágætlega framan af. Ég þaut
upp hlíðarnar á móti hvínandi stormi. Leiðsögumenn
með í för og allt, 26 manna hópur. Þegar nokkur
skref (kannski 40 metrar) voru eftir á toppinn, missti ég
móðinn, enda búinn að renna eitthvað smá
niður og átti í miklu basli með að fóta
mig. Það var hált þarna í móbergsklöppum
og ég er með sjúklega svellfóbíu. Ef ég
er ekki með öruggt land undir fótum breytast lappirnar
á mér í gúmmíslöngur. Ég
varð því eftir á meðan hópurinn tíndist
á toppinn – 67 ára kona fór síðustu fram
hjá mér og karlmennska mín mun aldrei bíða
þess bætur. Svo fór ég á rassinum niður
aftur. Helvítis aumingi sem maður er! En þessum Moby verður
slátrað, bíðiði bara. Allt er þegar þrennt
er og ég fer á toppinn í þurru næsta sumar
só help mí Stefán Grímsson!
---
Þess má geta að annað fjall þarf ég
líka að hefna mín á. Snemma á þessu
fjallabröltferli gafst ég upp í hlíðum Baulu
og snéri sneypulegur til baka á meðan félagar
mínir í Blómeyju fóru upp. Ætli maður
þurfi ekki að klára Baulahelvítið líka
þótt óárennileg sé.
---
Ég mun vera 42 ára í dag. Deili afmælisdegi
með Röggu Gísla (51) og Skapta Ólafs (meistarinn
er áttræður í dag! Til hamingju!) Ég horfði
með athygli á Laugardagslögin, en þarna verð
ég eftir viku. Settið náttúrlega eins og frá
1987 (Egill klikkar ekki!) og ágætt stöff bara. Tvíhöfði
og Óttarr Proppé og hvað vill maður meira?
06.10.07
Lee Hazlewood gigg Ununar (eða mín, Heiðu og Elvars)
var ekkert slor og svo kom hver kanóna af annarri og heiðraði
líkið. Allt fór vel fram enda meðalaldur gesta sérlega
þroskaður.
---
Ekkert boðskort hefur enn borist frá menningarnefnd Rvk
en ég hef hlekkjað mig við póstkassann og vona það
besta. Eftir að friðarsúlublogg mitt rataði í
Moggann í gær og síðan á Mbl
punktur is hafa ýmsir gárungar "bloggað um fréttina"
og ekki ómerkari menn en Ómar Ragnarsson tjáð
sig (ekki fengið boðskort heldur, sem er auðvitað miklu
meiri skandall). Þar að auki hefur Bogi kenndur við Bogarúllur
boðið mér í lúxus spaið sitt út
á Álftanesi, Alsæla
spa, sem er hrikalega spennandi og bætir súluruslið
margfallt upp.
----
Okur flóaða mjólkin á Borginni er "of gott"
okurdæmi til að vera satt. Dæmið kom þó
frá "mjög góðum vini" Lecca. Ég fékk
nefnilega skeyti:
Þetta með Nicola Lecca og mjólkurglas dauðans
er ekki rétt, og það veit ég
þar sem ég starfaði fyrir bókmenntahátíð
í Rvk. og sá m.a. um Nicola Lecca
á meðan henni stóð.
Lecca keypti flóuðu mjólkina í fyrsta lagi
á Holtinu, en ekki Borginni,
enda gistu allir höfundar á því hóteli.
Hótel Borg verður því að teljast
laus allra mála.
Á Holtinu var þó um veruleg mistök að
ræða, og hann borgaði engar 800
krónur fyrir mjólk. Ástæðan var sú
að nýr starfsmaður í móttökunni var
ekki með verðskrána á hreinu. Einu sannindin
í þessari færslu er sú að
Lecca er vissulega að koma með bók að nafni Hótel
Borg í haust sem kemur
út hjá Bjarti.
Húrra fyrir Hótel Borg! Húrra fyrir Holtinu! (Ég
er viss um að þeir hafi látið hann hafa glasið
frítt) Húrra fyrir Lecca og mjólkinni hans!
05.10.07
Minni á Lee Hazlewood giggið í kvöld. Týri
Elvis 2 segir sögu af sigurgöngu
minni í Tyrklandi með laginu Klossar munu þramma. Ég
var nú eiginlega búinn að gleyma að ég hefði
sungið þetta frægasta lag þeirra Lee og Nancy, en
þarf að finna út hvar þetta er og skella því
hingað inn. Hér koma tvö lög í tilefni dagsins:
S.H.Draumur
- Lightning's girl (í bílskúr 21.10.87)
The
Boys next door - These boots are made for walkin' (það
fyrsta sem Nick Cave söng inn á plötu með Birthday
Party sem hét The Boys next door á þessum tíma.
Kom út á smáskífu 1978.)
---
Íslendingar virðast vera að komast á rótarbjórsbragðið.
Síðustu ár hafa verið til dósir frá
annað hvort Super chill eða Shasta einu sinni á ári,
á amerískum dögum í Hagkaupum, og hefur þetta
verið til í búðunum vikum ef ekki mánuðum
saman. Í ár seldust byrðirnar upp á þremur
dögum. Ég fór skjálfandi í Hagkaup í
Kringlunni og Skeifunni daginn eftir að þessir dagar hófust
en á báðum stöðum var allur rótarbjór
uppseldur. Þá blótaði ég sjálfum
mér að hafa ekki mætt daginn áður. Endaði
í mínu hverfis Hagkaup út á Nesi og gat hamstrað
nokkrum dósum í sekk. Ég var viss um að það
hlyti að hafa verið miklu minna pantað inn en vanalega af rótarbjórnum
en karl í búðinni í gær sagði mér
að nei, það hefði verið pantað meira en vanalega.
Íslendingar eru sem sé komnir í rótarbjórsgír
og hömstruðu góssið á nótæm. Margar
áskoranir eru komnar til innkaupastjóra Hagkaupa um að
rótarbjór verði föst vara í hillunum og ku
það mál víst í skoðun. Það
væri nú ekki amalegt.
---
Rótarbjór er annars til á Íslandi, en bara
á Akureyri, í Heilsuhorninu
á Glerártorgi. Þar er til Virgils rótarbjór
sem er svona heilsudæmi, alveg ok, fær XX af XXXX á
Gossíðunni.
Hann er í gleri og fellur því í glerflöskudeildina,
en í útlöndum má einnig fá rótarbjór
í dósum og plasti. Vilji fólk eðal fær það
sér rótarbjór í glerflösku. Dósa
og plast er dagleg meðalmennska. Fjögurra stjörnu rótarbjórar
sem ég smakkað eru eftirfarandi:
Americana root beer
Tommyknocker 1859 Original Root Beer
Bulldog Root beer
Boylan Bottleworks root beer
Fitz's Root beer
Cool mountain root beer
Sparky's fresh draft root beer
Capt'n Eli's root beer
Þessa og fleiri má kaupa á ýmsum stöðum
í USA. Ég mæli með tveimur netbúðum,
Soda
pop stop og Pop the Soda shop.
Í báðum búðum má blanda flöskum
í kassa og prufa allskonar drasl. Ekki borgar sig að kaupa minna
en 24 flöskur í einu. Ég hef látið Shop Usa
flytja þetta inn fyrir mig og þegar upp er staðið hefur
flaskan kostað 350 kall komin til mín. Jafnmikið og lítil
kók í gleri hjá Naustinu! En ég mæli
allavega með að rótarbjórsáhugafólk
reyni að fá sér alvöru gos í gleri því
að það er mun betra en þetta Hagkaupsdósagos
þótt ágætt sé. Toppurinn í þessu
á svo að vera rótarbjórinn sem ýmsar hamborgarabúllur
og veitingastaðir í USA búa til sjálfir og selja
af krana á stöðunum. Ég hef enn ekki orðið
svo frægur að smakka það. Ps. Aldrei kaupa diet-rótarbjór!
Það er rusl.
04.10.07
Okurverðlaun vikunnar fær Hótel Borg fyrir eftirfarandi:
#123 Nicola Lecca, ítalskur rithöfundur,
var nýlega á bókmenntahátíð og bjó
á Hótel Borg. Lecca var lasinn, bað um flóaða
mjólk fyrir svefninn og fékk eitt glas af flóaðri
mjólk upp á herbergi. Haldið ykkur fast: mjólkurglasið
kostaði 800 kall! Þegar útúrgáttaður
Ítalinn vildi fá skýringu á þessu fáránlega
verði var sagt að þetta væri "með þjónustugjaldi!"
Það fyndnasta er svo að Lecca hefur skrifað bók
sem gerist á Íslandi og heitir Hótel Borg. Hún
kom út á íslensku
nýlega.
Okrin eru orðin 130 á Okursíðunni.
Ég var í viðtali í gær á Rás
1 í Vítt
og breytt. Og okur er þemað í Bakþanka
dagsins.
---
Dómógiggið í gær var fínt. Ekki
svo geðveikislega fjölmennt en óneitanlega góðmennt
með ekki verra fólki en t.d. Sverri Stormsker, Óskari
Pétri, Þorsteini Eggertssyni, Dodda, Kristjáni, Villa
naglbít og Andreu Gylfa í salnum. Og svo kom ég í
sjónvarpinu
og allt. Við komum beint á eftir faglegri umfjöllun um
líkbrennslu svo það var kannski ekki mikið mál
að toppa það í hressleika. Biggi tók giggið
upp á "pödduna" sína og ég skelli mp3 af gigginu
hérna inn ef þetta sándar vel.
---
Horfði á Kistuna í fyrsta skipti, nei ég meina
Kjarval, nei ég meina Kiljuna.
Bara fínt enda Egill alltaf hress og eðlilegur. Gaman að
sjá Braga og Ljóðavalda tala um Jónas Svafár
og skrýtið að sjá Megasar-bróðirinn Einar
Má. Þeir eru svo líkir en samt ekki. Lufsan sagði
að Einar væri eins og hreinsuð útgáfa af Megasi.
Ég verð þó að viðurkenna að ég
skildi ekki helminginn af þessu menntatuði. Strúktúralismi?
Er það eitthvað oná brauð?
---
Hér
má forhlusta á Sprengjuhallarplötuna. Mér heyrist
þetta vera gott og hressandi popp, íslenskt Belle & Seb
kannski, án þess að vera einhver kópía.
Ég spái öryggri gullplötu.
03.10.07
Hitti Egil Helgason á göngum Rúv. Hann dró
upp gullslegið boðskort á Yoko Ono móttökugilli
í Listasafninu þarna þann níunda, áður
en ljósið verður tendrað. Nokkuð rogginn bara. Þarna
mun liðið fá að éta á kostnað útsvarsgreiðanda
og svo verður því trillað út í Viðey.
Hvar er boðskortið mitt?! Gísli? Kjartan? Svanhildur?!!
Á ég bara að þurfa að hanga heima og rotna
yfir Innlit/útlit eins og mölétið nóboddí
á meðan gæðingar slafra í sig og flissa yfir
friðarkerti bítlaekkjunnar? Þetta er vitaskuld reginhneyksli!
Ég sem hékk fyrir utan Dakotabygginguna í nokkrar
mínútur og allt.
---
Fjöldi okurábendinga í dag: 22. Þetta fer
nú bara að verða full vinna ef fram fer sem horfir. Ég
ætti kannski að biðja KB banka um styrk?
---
Það mun kosta 500 kall inn í kvöld og ýmsir
snillingar ætla að stíga á stokkinn auk mín,
t.d. Biggi í Maus (eða eigum við að segja Biggi í
Mónitor?),
Siggi Ármann og Valgeir Guðjónsson! + óvæntir
meistarar.
---
Jæja góðir hálsar. Þá erða
Dómó í kvöld kl. 21. Dómó er þarna
í Þingholtsstræti 5 þar sem Sportbarinn var áður.
Þetta er söngskáldakvöld FTT og ég ku vera
heiðursgestur. Því tók ég mig til, hóaði
í Bigga og við höfum æft upp smá prógramm.
Kannski verður þetta svo mikið stuð að við búum
til plötu í þessum stíl og förum hringferð
í kringum landið og og... Þessi stíll er svona
Beach Boys platan Party eða "Eldhúspartí FM". Nei ég
segi svona. Þetta er allavega fyrsta giggið síðan
á Innipúkanum í fyrra, ef undan er skilin spilamennskan
í Abbababb! Og svo á föstudag erða Unun-kombakk
á Lee Hazlewood tribjútinu, en meira um það síðar.
---
Ég get glatt lesendur með því að Rafskinna
hefur þegar svarað kallinu og verður stuttmyndin Oxzmá
plánetan með valmöguleikanum kommentaríspjalli Kela
og Skara meðal efnis í öðru tbl. sem kemur út
um miðjan nóv. Sjón skrifar einnig smá bita um
Oxzmá hópinn. Þá er bara að koma Sjúgðu
mig Nínu út á dvd líka og málið
er dautt...
02.10.07
Það styttist í að okur #100 velti inn á
Okursíðuna,
enda tóku okurdæmin að streyma inn eftir Kastljósinnslagið
í gær.
01.10.07
Ef Hr. Ólafur Ragnar ákveður að hætta (sem
hann ætti auðvitað að gera) legg ég til að
Ómar Ragnarson verði næsti forseti íslenska lýðveldisins.
Herra forseti Ómar Ragnarsson. Hann á flugvél og þarf
ekki að liggja á auðmönnum og getur keyrt á
milli á litla bílnum sínum. Ég er ekki að
grínast.
30.09.07
Maður dagsins er Aki Kaurismäki sem var í stuttu en
góðu viðtali í Fbl. Þar sagðist hann m.a.
ætla að sýna konunni sinni Geysi en þar sem konan
væri gáfuð þýddi ekkert að ljúga
því að henni að sturtan á hótelinu væri
Geysir. Út í Helsinki kom ég á pöbb sem
þeir Kárismaki bræður eiga en var svo sem ekkert
merkilegri en aðrir. Svo fékk Aki einhver verðlaun hjá
Hr. Ólafi og sló á létta strengi að því
tilefni. Ólafur sló einnig á létta strengi.
Þetta var sýnt í fréttum Rúv en fréttaþulurinn
röflaði yfir alla léttu strengina svo maður fékk
ekki að heyra neina brandara. Ömurleg vinnubrögð. Kannski
er bannað með lögum að segja brandara í fréttum?
Í mesta lagi eru svona "góðar fréttir" um stelpur
sem finna kríunga og ala upp í pappakassa í lagi.
---
Heiða kom frá USA og gaf mér svona Trúðu
á Guð-munnsprey:
Þetta kemur frá gríndótaframleiðandanum
Blue
Q sem framleiðir allskonar gríndrasl, til dæmis þetta:
---
Keli í Oxzmá var í Evu Maríu. Gott stöff.
Oxzmá var æðisleg hljómsveit og myndirnar Oxzmá-plánetan
og Sjúðu mig Nína helber snilld. Hvað með dvd?!
Sýnt var verkið Circulator, allsber Keli að pissa upp í
sig í svona 2 mínútur á præm tæm.
Þjóðin er algjörlega orðin vönuð fyrir
vandlætingu ef a.m.k. 10 hringja ekki í Sjónvarpið
til að væla. Það er af sem áður var þegar
allt varð vitlaust ef Hrafn Gunnlaugsson slapp í gegn með
einhvern pervertaskap og allar línur glóðu 2. janúar
eftir að hið dúndur listklámfengna sjónvarpsleikrit
(oftar en ekki með Guðrúnu Gísladóttur nakinni
og geðsturlaðri í aðalhlutverki) hafði verið
blastað á Hagkaupssloppakynslóðina.
---
Hjálparsveit Skáta kynnir með þjóðarstolti
safnplötuna Hin heilögu Grunngildi
íslenskrar alþýðu, eþs Topp fimm:
Space
- Avenging angels: Í útvarpinu (Rás 2) heyrði
ég lag. Það var þetta lag. Ég vissi ekki
hver skrattinn þetta væri þó það hljómaði
kunnuglega. Pet shop boys? Nei, of bítlatímabilslegt til
þess. Svo heim með leitarorðið "Kick ass angels" og þá
kom í ljós að þetta var hljómsveitin Space,
enskt poppband og ég átti m.a.s. þessa plötu (Tin
planet, 1998) einhvern tímann. Svo heyrði ég annað
lag í útvarpinu (Reykjavík fm) en hef ekki fundað
út ennþá hvað það er. Í textanum
er m.a. sungið "Too much information og Sleeping with the fishes".
Þetta er svona gott rokklag bara. Veit einhver hvað þetta
er? Hjálp!
Jakóbínarína
- Spit me in the eye: Fyrsta plata sprelligosanna úr Hafnarfirði,
The First Crusade, er að koma út. Hún er eins og við
var að búast full af hoppandi rokkgelgju og finna upp hjólið
ákefð. Fínt stöff. Tólf lög og ekkert
rugl.
múm
- Guilty rocks: Nýja múm-platan Farðu farðu
smurðu eitruðu bergfléttunni er fín, þetta
er greinilega múm ennþá, varfærnislega fiktsándið
og titrandi tónarnir, en einnig er tekið fastar og ákveðnar
á því, eins og t.d. í þessu góða
lagi, sem gæti náttúrlega verið sándtrakk
í s/h ítalskri mynd um par í leit að sjálfu
sér bla bla. Svo eru pirrandi smábarnaraddirnar sem eyðilögðu
síðustu plötu ekki lengur með sem er óneitanlega
plús.
Boys
Noize - Wu-Tang battery: Boys Noize er þjóðverjinn
Alexander Ridha og spilar fínt stöff fyrir brettið. Þetta
býr í sömu blokk og Justice, Digitalism og auðvitað
afarnir Daft Punk. Hvað eru menn að kalla þetta, new rave?
Oi oi oi er fyrsta breiðskífan og álíka góð
og nýjar plötur áðurnefndra Justice og Digitalism.
Spurning hvort þetta eldist eitthvað.
Nino
Ferrer - Oh hé hein bon: Hressandi franskt-ítalskt
é é frá 1966, einskonar söngleikja svíng
bítl. Nino var frægur og dáður, en mislyndur og
á niðurleið 1998 þegar hann skaut sig í hjartað
á miðju kornengi, tveimur dögum fyrir 64 ára afmælið
sitt.
28.09.07
Okursíðan
er búin að meikaða biggtæm, vinsælast vikunnar
á b2,
DV og Viðskiptablaðið
búin að taka viðtöl, Síðdegisútvarpið
líka og Egill klappar á bakið. Ég bíð
bara eftir að karlinn hjá Neytendasamtökunum hringi og
bjóði mér vinnu. Auðvitað ættu þau
samtök að vera með svona síðu, ekki ég,
einhver jólasveinn út í bæ. Það vantar
meira pönk í Neytendasamtökin og náttúrlega
bein í nefið á Íslendingum. Ef fólk lætur
ekki okra á sér verður ekki okrað á því,
þetta er svona einfalt. Lesendur eru allir að vilja gerðir
og senda dæmi
í hrönnum. Margt er ónothæft og sumt af því
finnst mér alls ekkert okur (eins og að kleina sé á
120 kall, það er nú bara frekar sanngjarnt, miðað
við allt og allt, þó framleiðslukostnaðurinn sé
kannski bara 2 kr.). Ég er kominn með alveg nóg af 10/11
dæmum. Við vitum öll að það er okurbúlla
og endaþarmsblóðgandi að stíga þangað
inn (nema eftir skyrbarnum!) Sum bréfin sem ég fæ set
ég í gestabókina.
Þau eru þess eðlis, ekki okurdæmi heldur bara einhverjar
pælingar eða spælingar.
---
Fór með Dagbjarti á Ratatouille sem er rosalega góð
mynd. Ég fór næstum að grenja og allt. Dagbjarti
fannst þetta hins vegar hundleiðinleg mynd og var suðandi
um að fara allt eftir hlé. Það voru 8 manns í
bíó en samt var gert 10 mínútna hlé.
Fáránlegt. Og hver bað þessa bíókarla
um að smyrja 50 kalli á hverja mynd ef hún er sýnd
á digitaltjaldi? Úlala, okrið maður, okrið...
---
Það væri ágætt að fá boðsmiða
út í Viðey þann 9. okt þegar ljóssúlan
hennar Yokoar verður frumtendruð. Ég get ekki betur
séð en að ég eigi að vera þarna alveg eins
og einhverjir borgarfulltrúar. Gaman að vera með Yoko á
eyju og svona. Svo koma eflaust ægileg frægðarmenni með,
kannski Julian og Sean og Paul McCartney og Ringo Starr líka? Hvað
veit maður? Þetta er allavega bítlatengdasti atburður
á Íslandi síðan Paul kom með staurfótinn
og sem sé, ef meðlimir í menningarmálanefnd Reykjavíkur
eru að lesa þetta: Einn miða takk.
---
Fór á Control í Tjarnarbíói sem
var skrautleg bíósýning og öll í rugli.
Fyrst var líklega sýndur filmubútur númer 3,
þá bútur númer 2 og svo aftur bútur númer
3. Þegar hann var hálfnaður aftur föttuðu starfsmenn
að allt var í rugli og kveiktu ljósin. Þá
var myndin sýnd á dvd og spólað yfir mest af filmubútum
2 og 3. Maður sá þessa mynd semsé aldrei frá
byrjun til enda og suma búta þrisvar sinnum. Bót í
máli að maður fékk frímiða á aðra
mynd á Riffinu og þar er nógu
úr að moða (t.d. Screamers
um SOAD og þjáningar Armena). Þó ég hafi
ekki séð Control í réttri röð get ég
ekki betur séð en að þetta sé fín mynd.
Hún fjallar um Ian Curtis í Joy Division sem kálaði
sér 23 ára, að því virðist í
einhverskonar stuttu brjálæðiskasti og þunglyndi
yfir kvennaveseni og bla bla. Virtist ekkert vera búinn að ganga
með þetta í maganum lengi. Flott mynd, flott músik,
klassík! Á leiðinni heim heyrði ég Interpol
í útvarpinu, sem var eitthvað svo þunnt í
ljósi orginalana. Afhverju hljómar öll músik
í dag eins og útvatnað gamalt dót? Hverjir eru
að gera eitthvað nýtt og frumlegt? Eitthvað sem verður
hægt að gera svona mynd um eftir 30 ár. Enginn? Æ
æ og ó ó.
---
Mannstu eftir kolefnisjöfnunarauglýsingaflóðinu?
Og nú talar enginn um kolefnisjöfnun. Minnir á vélindarbakflæðisherferðina
um árið.
27.09.07
Fólk má ekki senda eitthvað rugl á okursíðuna.
Það þarf að vera alveg viss svo ég fái
ekki allt í hausinn. Fólk má ekki fara offari á
okurvaktinni. Þannig hefur okursíðunni
borist leiðrétting frá veitingasölunni á
Leifsstöð v/ okurs #31: Okkur þykur leitt að sjá
hátt verðlag en það þarf nú samt ekki
að vera hærri en það er. Hjá okkur í
Veitingadeild IGS í Leifsstöð er 1/2 l af kók á
235kr og flatkökur m/hangikjeti á 210kr en ekki 350 kr hvort
stykkið eins og þú getur til um. Þá er
það komið á hreint!
---
Hinn mikli nýdáni meistari Lee Hazlewood verður heiðraður
eftir rúmlega viku eins og sjá má hér á
ofan. Hljómsveitin Unun ætlar að kombakka og taka tvö
lög. Á miðvikudaginn á ég sjálfur
svo að vera aðalnúmerið á tónskáldakvöldi
FTT á Dómó. Tvö gigg sem sé í næstu
viku. Það er naumast.
26.09.07
Át sushi með Erpi Eyvindarsyni á Ósushi, en
hann er einn af spyrlunum í Laugardagslögunum. Hann át
slöngu og kakkalakka á ferðum sínum um Austurlönd
en konan bannaði honum að borða hund. Hann fræddi mig
um japanskt klám (bukkake í sjónvarpinu á prime
time með blörruðum skaufum). Sagðist líka vera
langt kominn með sólóplötu. Svo fór ég
í okurspjall með Ólafi Darra hjá ASÍ í
hinu afar góða síðdegisútvarpi
á
Rás 2. ASÍ standa fyrir verðkönnunumaf
og til, en samt erða ekki nógu oft og ekki nógu öflugt.
Í þessu spjalli rifjaðist upp fyrir mér þessir
örfáu dagar þegar verðstríð ríkti
milli matvörubúða og menn lækkuðu vörur
til skiptis, aðallega mjólk, sem endaði með því
að líterinn var kominn í 1 krónu eða eitthvað.
Fáránlegt rugl. Það væri náttúrlega
mun betra ef það væri viðvarandi verðsamkeppni,
en ekki verðstríð sem stóð í 2
daga eða hvað sem það var.
---
Okursíðan hefur
vakið það mikla athygli að karlinn í fiskbúðinni
lét mig hafa soðninguna á 1000 kall en ekki 1100 kall
af því hann vildi ekki lenda á síðunni.
Svona er strax byrjað að múta mér!
---
Okurdæmin streyma inn en fólk er mikið að senda
inn almenn sannindi, eins og að bensín sé ógeðslega
dýrt og að allt í Apple búðinni sé
ógeðslega dýrt miðað við í Ameríku
o.s.frv. Dæmin þurfa að vera sértæk, kids.
25.09.07
Sri Chimnoy er fáránlegt krapp. Um það sannfærðist
ég í Háskólabíói um árið
þegar hann sat á sviðinu eins og heilög lumma og
sargaði á hin ýmsu hljóðfæri sem gufulegar
lummudísir í hvítum kuflum færðu honum.
Karlinn kunni ekki á neitt af þessum hljóðfærum
og sargaði bara eitthvað en hinum trúuðu fannst þetta
alger snilld. Reyndar var gott að fá ótakmarkað hláturskast
yfir þessari dellu. Friðarverðlaun Nóbels? Held ekki.
Reyndar fór ég tvisvar á Sri. Í fyrra skiptið
var ógeðslega gaman enda svo mikið rugl. Í seinni
skiptið var ekki eins gaman. Þá skrifaði ég
þetta.
Nú hafa vondu mennirnir á Vantrú skrifað
um Sri, en þessi vantrúar-illmenni eru eins og kunnugt alltaf
skiptandi sér af og eira aldrei vitleysingum í vitleysu sinni.
---
Raftæki hafa lækkað mikið á Íslandi
síðustu árin, t.d. gítarmagnarar og slíkt.
Ég hélt að við værum orðin samkeppnishæf.
Svo er ekki. Okursíðan
fékk 2 dæmi, samanburð á verði á flatskjám
hér og í Danmörku. Munurinn er endaþarmssvíðandi
og það margborgar sig að fljúga út og taka
tækið með í gegnum tollinn. Lesandi sendi dæmi:
Sony Bravia 40” LCD sjónvarp sem heitir KDL-40W2000 kostar
329.000 í Sony Center, Kringlunni. Sama tæki er á 14000
DKR í Bilka. Það myndi semsagt borga sig að skreppa
út til Köben (ca. 25000), borga yfirvikt (ca. 15.000) og toll
og vsk hérna. Reyndar myndi það borga sig um 100.000 kr.
sem er ágætis tímakaup, ik’?
---
Hellvar sparkar USA-túrnum sínum af stað með
útvarpsviðtali og giggi í dag kl. 15:23 að íslenskum
tíma. Hægt er að hlusta í beinni á heimasíðu
WAMC
northeast public radio. Þau hafa skrifað upp á samning
um að blóta ekki í útvarpinu, hvorki á
íslensku né ensku.
---
Nýja múm-platan fær slappa
dóma í gáfupopparabiblíunni, Pitchforkmedia.
Svo sem kannski ekki 100% að marka það. Hér
má hlusta.
---
Hér er tloggað
um bónlist, m.a. mixteip af Airwaves sem er hornið við
handan.
24.09.07
Okursíðan er hvílíkt
að meikaða. Komin 20 dæmi af ýmsu tagi, frá
100 kalli (að fá kokteilsósu á pylsuna sína
í Staðarskála) til 77.100.000 kr. (3 herbergja íbúð
á Seltjarnarfokkingsnesi). Ég vil þakka öllum
sem sendu ábendingar, ég fékk m.a.s. myndrænt
sönnunargagn af geðveiku ópal okri. Um að gera að
halda áfram okurábendingunum, gaman ef dæmin verða
orðin 100 fyrir helgi! Verum
á varðbergi, látum vita um okur! Okursíðan
gegn okri!
---
Það verður ekki tekið af þeim hjá 10-11
að þetta er okursjoppa frá helvíti. Manni logsvíður
í rassgatið ef maður neyðist til að versla þarna
(til dæmis þegar búið er að loka allsstaðar
annars staðar og maður er bleyjulaus og endar með að borga
1000 kalli of mikið miðað við Bónus). Þeir
mega þó eiga það í 10-11 í verslunarmiðstöðinni
í Hafnarfirði að þar er frábær skyrbar
og frekar ódýr meira að segja, innan við 300 kall
bakkinn sem er fínn hádegisverður.
---
Café Conditori er okurbakarí frá helvíti.
Allt er alltof dýrt þar. Jói Fel og sérstaklega
Mosfellsbakarí eru í sama klassa en mun ódýrari.
Þeir mega þó eiga það hjá Café
Conditori að þar er selt valhnetubrauð sem er líklega
besta brauð landsins (og kostar rétt innan við 400 kall
stk). Svo það er margt í mörgu greinilega...
---
Látum ekki gust reiðinnar slökkva ljós skynseminnar*
og fáum okkur Topp 5:
Akron/Family
- I've got some friends: Skeggband úr sveit sem flutti til
New York til að meikaða. Er í hippafíling en þó
skínandi nútímalegt í bland. Gefa út
hjá Young God Records, en þar ræður ríkjum
Michael Gira, fyrrum söngvari hávaðabandsins The Swans
sem tæmdi MH um árið. Þetta frábæra
lag er af nýjustu plötu Akron/family, Love is simple, og tekur
á flug á kafla sem minnir mig rosalega á XTC, en gutlar
svo yfir í Pere Ubu, Frank Zappa, The Band og skuð má
vita hvað. Platan er reyndar nokkuð þétt í
gegn.
John
Vanderslice - White dove: Amerískur útdælari,
sem samkvæmt wiki er sérlegur aðdáandi Davids Lynch
og gerir músik sem nær á milli Neutral Milk Hotel og
Public Enemy. Hér er sérlega gerðarlegt lag af nýjustu
plötunni hans, Emerald City, hans sjötta frá árinu
2000.
The
Wombats - Backfire at the disco: Tríó frá
Liverpool sem hefur vakið nokkra athygli með stuðlaginu Let's
Dance To Joy Division. Enn á ný er boðið upp á
gott stuð. Platan A Guide To Love, Loss And Desperation er handan við
hornið.
Regurgitator
- I like your old stuff better than your new stuff: Hinir áströlsku
Regurgitator (Ælari) eru hressir blandípokarakallar með
hauga af plötum á bakinu, sú nýjasta nýkomin
út. Þetta lag opnar aðra plötu bandsins, Unit frá
1997. Þess má geta að fyrsta lagið á fyrstu
plötu bandsins, Tu Plang frá 1996, heitir I sucked a lot of
cock to get where I am.
The
Clash - Police on my back: Í hinni lala grínmynd
Knocked up sem ég er hálfnaður með má finna
ýmis fín lög. t.d. þetta af Sandinista Klassara.
Klassa stuðlag eins og maður segir.
* Eins og ég las einu sinni á miða á
mælaborði sendibílstjóra.
21.09.07
Át á Great wall í hádeginu. Allt í
lagi kínastöff. Maður blánaði þó
þegar reikningurinn kom og lítil kók í gleri
reyndist vera á 350 kall stykkið. Bæjarstjórinn
á Bolungarvík saup hveljur enda hafði hann fengið
sér tvær og þurfti nú að borga 700 kall fyrir
tvær skitnar kók. Svo mjög fékk þetta skefjarlausa
og svívirðilega okur á mig að ég ákvað
að stofna sérstaka okur-síðu
sem myndi lista upp dæmi um skefjalaust og svívirðilegt
okur. Og hér vil ég auðvitað fá hjálp
lesanda. Ef lesendur hafa dæmi af viðurstyggilegu okri skal
umsvifarlaust senda mér línu til að okrið fái
pláss á nýju okursíðunni.
Vér Íslendingar erum náttúrlega vön okri
á flestum sviðum svo ég er bara að leita eftir frámunalegum
okurdæmum, eins og þessu með litla kók á
350 kall. Skill jú? Vonast eftir góðri þátttöku.
Látum ekki endalaust okra á okkur! Okursíðan
gegn okri! Allir saman nú!
---
Versta við miðbæinn að það eru svona 50/50
líkur á að vera böggaður af ógæfumanni
ef maður hættir sér þangað á virkum degi.
Einn draugfullur plastpokamaður elti mig inn í bíl í
gær og hvæsti á mig þegar ég var að
festa Dagbjart í barnastólinn: Átt þú
þetta? Átt þú þetta? Þetta var
semsé Dagbjartur. Ég umlaði eitthvað og reyndi að
reikna út gott skot í punginn á garminum ef til átaka
kæmi. Ekki kom til þess og ræfillinn reikaði í
burtu til að böggast á næsta manni. Það
er alltaf sama gallerí ógæfuliðs sem maður
mætir í bænum, svona sirka 10 manns í allt. Oftast
er liðið ljúft og mesta lagi sníkjandi pening og
þá þykir voða sætt, kristilegt og mannlegt
að víkja að þeim aur. En svo vill fjúka í
liðið og þá er verra að lenda í því.
Ég skil ekki að það þurfi að vera lögverndaður
réttur ógæfufólks að fá að hanga
lon og don í miðbænum böggandi mann og annan. Út
af fimm manns sem hanga allan daginn fyrir framan ríkið í
Austurstræti var komin upp sú fáránlega hugmynd
að fjarlægja einhvern kæli. Væri ekki sniðugra
að fjarlægja liðið og flytja það til dæmis
nauðungaflutninga í gám einhvers staðar á
hálendinu þar sem það getur drukkið sig í
hel? Nei uss, hamingjan hjálpi mér, svona má ekki
segja. Rónarnir þykja víst lífga upp á
mannlífið og illþefjandi böggið er bara einn
áhættuþáttur þess að fara í
miðbæinn. Og svo eru þetta náttúrlega sjúklingar.
En er eitthvað vit í því að sjúklingar
veltist um útúrheiminum fyrir hunda og manna fótum?
Greinilega.
---
Fáskrúðsfjörður er aldeilis að meikaða
í dag og menn bara að fá úronum á fréttadeildunum
að fá loksins eitthvað fútt íetta. Teknir
slær Blaðið upp og Vísir talar um Stóra
spíttsnekkjumálið. Það er náttúrlega
frekar leiðinlegt fyrir graða fréttamenn þessi gúrka
hérna. Ég man enn eftir gleðinni sem ríkti hjá
tveimur blaðamönnum sem ég vann einu sinni með þegar
maður var drepinn í miðbænum. Þeir geisluðu
af gleði og stemmingu þegar þeir breyttu blaði morgundagsins,
tóku einhverja gúrkufrétt af forsíðunni
og skelltu morðinu á í staðinn. Þá var
sko fútt íessu.
---
Bannað er að gera grín af special olympics. Einu sinni
þegar Íslendingar voru að meikaða biggtæm á
þessum leikum ætlaði einn blaðamaður sem ég
vann með að skrifa grein með fyrirsögninni Fljótustu
fávitar í heimi. Samstarfsfólk hans fékk
hann til að hætta við.
20.09.07
Charles Manson er hálfviti en er hann dauður? Ég
hreinlega man það ekki, held samt ekki. Er hann kannski með
netsíðu í fangelsinu? Gúggla.
Sko, wiki er
náttúrlega alltaf best. Svo er náttúrlega youtube
vaðandi upp fyrir haus í drasli um gamla manninn, hérna
er t.d. eitt voða fallegt viðtal
sem leiður í ljós að Manson er ekkert. Já
já við erum öll ekkert, gamli sauður. Svo eru
hvorki Birgitta Bardot né Elísabet Taylor dauðar heldur
þó manni finnist það einhvern veginn. Ekki Soffía
Loren heldur.
---
Vert er að vekja athygli á kvikmyndasýningum Kvikmyndasafns
Íslands í Bæjarbíói Hafnarfirði.
Alveg vintage bíóstemming þar. Engar slor myndir, bara
alvöru frábærlega hundleiðinlegt artí stuð
með táknmyndum og gömlu drasli sem enginn gerir
lengur. Og svo Journey to the center of the earth í byrjun des.
Hún var í sjónvarpinu þegar ég var 12
ára. Væri gaman að rifja upp kynnin. Ég man að
á leiðinni til Snæfellsjökuls voru kaktusar. Hvað
hét nú aftur gæsin? Geirþrúður?
---
Í Blaðinu er ágætis grein um Kolaportið.
Það er glatað að því eigi að fórna
fyrir bílastæði. Þetta er svona týpískt
eitthvað, skítugur almenningur á móti gljáfægðum
lúxusbílum. Ég sé að Ingvar í soulhorninu
segir að fleiri komi í Portið en í öll gallerí
borgarinnar til samans, sem er auðvitað alveg rétt. En það
má svo sem bregða sér í gallerí líka.
Til dæmis er á fimmtudögum ókeypis í Listasafn
Reykjavíkur, Hafnarhúsinu. Gjörningaklúbburinn
sýnir nú þar sitt stuð sem leit lokkandi út
þegar ég fór með Dagbjarti um daginn. Ég
komst ekki langt í að skoða því Dagbjartur
er með króníska fóbíu fyrir listagalleríum
eftir að ég fór með hann á hryllingsdraslið
hennar Gabríelu. Þarf að skreppa aftur. Í Ljósmyndasafni
Reykjavíkur er nú þrælskemmtileg sýning
úr safni DV. Þar má bæði sjá myndir
af Auðunni blaðasala og Óla blaðasala, en því
miður er engin mynd af Gunnsa Gunn blaðasala. Svo er alla daga
ókeypis í Listasafn Íslands,
Glaumbæ, þökk sé Bjögga pönk.
19.09.07
Hef verið að taka upp fyrsta framlag mitt til þáttarins
Laugardagslögin með hinum nýsteggjaða Vigni í
Írafári. Eins og komið hefur fram er ég í
9 manna forgangshópi sem fékk að semja 3 lög á
kjaft til að spila í þessum laugardagsþætti
á Rúv í vetur. Fyrsti þátturinn er 6.
okt en fyrsta framlag mitt, ÍSINN, verður líklega frumflutt
viku síðar. Hin ekki svo mjög dularfulla Mangella samdi
textann. Heiða syngur enda óþarfi að ná í
vatnið yfir lækinn, a.m.k. fyrst um sinn. Margar skondnar og
sniðugur hugmyndir og tengingar munu þó líta dagsins
ljós í þessum þáttum en ég er bundinn
þagnareyði sem má sækja fyrir héraðsdómi
svo ég held kj. Það er fínt að fá tækifæri
til að framleiða þrjú popplög en ekki eins fínt
að standa í þeirri þvælu að keppa við
aðra lagahöfuna eins og hver annar bjáni í raunveruleikaþætti.
En fokk itt.
---
Horfði á æsingarþáttinn Kompás.
Þeir gleymdu alveg að segja frá því að
hinn meinti gerandi samdi alla textana á einu plötu Svanfríðar,
What's hidden there. Þar má m.a. finna góða hippalínur
eins og "Life is too short, wasting it in Mammons court."
17.09.07
Movie Mistakes er síða
sem segir frá mistökum í bíómyndum. Ég
reyndi að tékka á Inland Empire en hún er ekki
á skrá... skrítið!
---
Næturvaktin stóðst væntingar og væntingarnar
voru þó nokkrar. Gaman að sjá Faulty Towers, besta
grínþátt sögunnar, lifna við á íslenskri
bensínstöð með svíasósíalískum
Mr. Faulty og hnakkrænum Manuel. Ég mun glápa á
rest.
---
Það er í lagi að löggan reyni að koma
í veg fyrir að vitfyrrtir sterahnakkar og aðrir ofbeldismenn
misþyrmi fólki í miðbænum en eftir því
sem ég heyri er löggan dáldið að fara yfir strikið.
Fullur Pólverji sem var bara eitthvað að detta af stól
og slumpast um Organ án þess að þó að
vera með einhver læti fékk víkingasveitina í
flasið sem tók hefí pakka á hann, hnéð
í bakið og handjárn fyrir aftan bak og eitthvað svona
rugl. Grunlausir gestir stóðu í röð fyrir utan
Sirkus, sumir með glundur í bjórflösku eins og gengur.
Kemur þá sérsveitin grá fyrir járnum
og handtekur alla með flöskur og babú niðrá
stöð. Mér sýnist þetta því annað
hvort vera í ökkla eða eyru. Kannski leitar þetta
jafnvægis.
---
Sjálfur hef ég migið víðsvegar um bæinn
í annarlegu ástandi (oftast þó reynt að
fara í sund eða port) og margsinnis drukkið úr flösku
á almannafæri. Nokkuð mörg ár síðan
reyndar, en allt þetta lið sem er stanslaust að hneykslast
á "miðbæjarvandanum" var náttúrlega stór
hluti af honum fyrir nokkrum áratugum. Hætti svo sullinu og
eignaðist fjölskyldu og eitthvað eins og gengur og þá
má gratt og fullt fólk allt í einu ekki gera það
sama. Ég fékk mér reyndar 3 bjóra á
laugardaginn í brúðkaupsveislu sem var held ég
í fyrsta skipti sem ég finn smávegis á mér
síðan bítlafyllirríið mikla í Liverpool
í okt í fyrra. Maður er voða mikið hættur
að nenna þessu enda vímuástand frekar aumingjalegt
fyrirbæri eitthvað. Pálmi hitti naglann á höfuðið.
15.09.07
Alexander Pichushkin stefndi
á eitt morð fyrir hvern skákreit. Hann var búinn
að kála 62 og vantaði bara 2 upp á. "Skákmorðinginn"
– ný viðbjóðleg mynd á leiðinni. Ætli
þessi fáviti verði fyrirmynd annarra geðsjúklinga?
Eru lúdómorðinginn og yatzídráparinn á
leiðinni?
---
En jæja, Mæðrastyrksnefnd, stóra táin
á Finni Ingólfssyni og Seljum orku, græðum ógeðslega
mikið á sameignum landsmanna ehf kynna safnplötuna Steiktir
naflastrengir 2, eþs Topp 5:
Leadbelly
- Gallis pole: Var í bílnum og stillti á Rás
1. Þar var Jónatan Garðarsson með þátt
sinn Brot úr eilífðinni,
fyrsta þátt af fjórum um blúsarann Hudy William
Ledbetter, kallaðan Lead Belly eða Leadbelly. Þetta var síðasta
lagið í þættinum og mér fannst það
alveg magnað og æðislegt, sérstaklega þar sem
þarna er bara einn maður á ferðinni og þetta
var tekið upp 1933 í fangelsi í Louisiana. Nú
er bara að fylgjast vel með þáttum Jónatans,
hlusta á þá á netinu ef ekki vill betur. Blúsinn
er í hálfgerðri þoku hjá manni. Ætli
maður sé ekki enn í losti yfir nokkrum drepleiðinlegum
blúskvöldum sem maður villtist inn á sirka 1988.
Ég hef alltaf fundið fyrir leiða í garð nútímablúss,
fátt er minna spennandi einhvern veginn en hvítir karlar
með kúrekahatta að gera endalaus sóló og þykjast
eitthvað, en þetta eldgamla dót er sannarlega dúndur,
einhvern veginn alvöru og svo auðvitað afi rokksins. Spurning
um að taka hefí syrpu á þetta dót, kaupa
sér Lomax-kassa og bækur... eða hafa þetta einfalt
og hlusta bara á Jónatan. Tja eða fara milliveg. Þess
má geta að Led Zep riðluðust á þessu lagi
á III.
Fræbbblarnir
- Ó, Fræbbblar vors lands: Önnur breiðskífa
Fræbbblanna fannst manni misheppnuð á sínum tíma.
Maður hafði verið í dúndurstuði fyrir Viltu
nammi væna og Bjór 7" og lögunum á Northern Lights
Playhouse safnplötunni og Okkar á milli sándtrakkinu.
Svo kom önnur stóra platan sem hét hvorki meira né
minna en fjórum nöfnum: Fræbbblarnir (samkvæmt
framhlið), Pottþéttar melódíur í
rokkréttu samhengi (samkvæmt bakhlið), Í kjölfar
komandi kynslóða (samkvæmt kili) og Fræbbblarnir
munu landið erfa (samkvæmt plötumiða). Það
var eitthvað sem klikkaði, fannst manni. Kannski of mikið af
dótalegu sintaspili eða kannski var þetta nógu
alvarlegt og í anda þess sem maður var þarna dottinn
í, Joy Division, The Fall og allt það. En allavega, platan
stóð stutt við í safninu en tíminn vinnur
alltaf og nú finnst mér þetta fín 15 laga popppönk
plata. Lögin örstutt og sprellmelódísk og dótasintinn
finnst manni bara krútt í ljósi sögunnar. Semsé
fín plata og enn ekkert á leiðinni á cd. (Bónus:
Fræbbblarnir
- Anna (frænka hans Steina) - annað af sömu plötu)
Hellvar
- Kjaftæði: Heiða og Elvar og vinir þeirra
eru Hellvar eins og kunnugt er. Tilbúin er fyrsta platan og bíður
útgefanda. Ljómandi gott trommuheila tilraunapopp með
glefsandi sprettum. Þau leggja í ferð upp Hudsondalinn
í þarnæstu viku og spila á Paddys í kvöld
á Rockvillefestivalinu mikla. Á mæspeis.
Þeyr
- En...: Fáar hljómsveitir hafa tekið eins miklum
breytingum og Þeyr. Á meðan sveitin tók sér
sumarfrí við að taka upp fyrstu plötuna sína,
hina réttnefndu Þagað í hel, breyttist bandið
úr Ljósin-í-bænum, eða næstum-því-Upplyfting
legu léttfönksveitaballabandi í það iðandi
töffdrungarokk band sem við þekkjum og elskum. Þagað
í hel (sem SG gaf út 1980) er því gjörsamlega
tvítóla. Opnunarlag plötunnar, En..., er t.d. töffdrungarokk
á meðan bónuslagið Vítisdans er míní
diskófriskó. Gefum sjálfum mér orðið
úr Eru ekki allir í stuði: Fyrir jólin 1979
höfðu Þeysarar æft upp slatta af frumsömdu efni
og fóru til Svavars Gests með tvö ofursæt lög
í anda Upplyfingar. Svavari leyst ágætlega á
og eftir að Þeysarar höfðu "kjaftað karlinn til"
byrjaði hljómsveitin að vinna LP-plötu í Tóntækni.
Upptökum miðaði hægt því Þeyr var
vandvirk hljómsveit og varð að auki oft að víkja
fyrir borgandi kúnnum. Um sumarið var gerð afdrifarík
sumarpása því í sumarfríinu snarbreyttist
hljómsveitin. Strákarnir hlustuðu þá á
allskyns nýja og ferska tónlist sem Guðni Rúnar
og fleiri dældu í þá en "fríkuðu gjörsamlega
út" þegar þeir heyrðu Ruth Magnússon syngja
"Pétur tunglsjúka" eftir Schönberg á Listahátíð
'80. Þá fór sú hugmynd að gerjast að
Þeyr ætti að spila blöndu af nútímatónlist
og rokki -- einskonar nútímarokk.
"Sigurður Árnason stúdíómaður
var alveg gáttaður á okkur þegar við komum
aftur inní stúdíóið, hann hélt að
við værum alveg brjálaðir, við vorum svo breyttir,"
sagði Hilmar Örn Agnarsson í Helgarpóstinum í
nóvember 1980. Sigurður hafði þó gaman af þessu
fyrir rest, eins og t.d. þegar Magnús var látinn syngja
í gegnum gjallarhorn Fylkingarinnar eða þegar hann var
sendur heim og látinn hringja í stúdíóið
og syngja lag í gegnum símann. Þegar platan var loks
tilbúin var hún algjörlega tvískipt. Eldri lögin
hljóma eins og úr myrki fortíðinni, þau
nýju gáfu sterklega til kynna hvert Þeyr stefndi.
Hljómsveitin hafði passað vandlega upp á að
Svavar Gests kæmi aldrei í hljóðverið. Hann
varð þó sífellt meira efins eftir því
sem stúdíótímunum fjölgaði og fór
að kalla plötuna "long long play plötuna". Þegar hann
heyrði loksins útkomuna varð hann sjóðandi vitlaus,
en sprakk fyrst þegar hann sá umslagið. Hann ætlaði
að hætta við allt saman því hann vildi ekki
að SG-lógóið færi á svona forljótt
umslag, en konan hans, söngkonan Ellý Vilhjálms, fílaði
plötuna í botn og það var í raun henni að
þakka að hún kom út.
Platan hét Þagað í hel, sem varð réttnefni.
Platan kom út í örfáum eintökum í
desember 1980 og upplagið var meira og minna gallað. (Bónus:
Þeyr
- Vítisdans)
Stjörnukisi
- Reykeitrun: Úlfur Chaka er látinn. Hér er
smá minningarbrot með honum og Stjörnukisa af Spírum
frá 1997.
14.09.07
Ég held að Ísland
í dag rúlli ekki upp næstu blaðamannaverðlaunum.
Í gær fóru kynnar yfir um á flissinu og sýndar
voru fullar grænlenskar kerlingar í slag. Hvað átti
það innslag að sýna okkur? Eymdina á Grænlandi?
Eða var þetta svona flipp í anda Jackass? Nær væri
að fara með vél oní miðbæ og mynda fulla
íslenska hálfvita míga á veggi og berja hvorn
annan. Ekki svo mikill munur á Íslandi og Grænlandi
í drykkjumenningunni. Og talandi um Ísland í dag,
hvað er málið með þetta endalausa "þáttarstjórnandi
mátar föt", "þáttarstjórnandi fer í
boot camp"? Ef þátturinn telur sig vera í einhverskonar
stríði við Kastljós er ljóst að það
stríð er fyrir löngu skíttapað.
---
Ungverska gúllassúpan heppnaðist vel og verður
bara betri í dag. Næsta súputengda verkefni er að
gera Borsch-súpu en sú súpa hefur mér verið
hugleikin síðan ég fékk svoleiðis fyrst í
Finnlandi 1992. Mér var bent á annan uppskriftavef sem er
Hvað
er í matinn? Lítur vel út þó ég
nenni seint að gera stundatöflu yfir matinn minn mánuð
í senn eins og þarna er boðið upp á.
---
Veðramót og Astrópía. Er maður ekki á
leiðinni á þær? Ég held það.
13.09.07
Húrra fyrir kónginum! Nú gleðst mitt pínkulitla
hjarta, og enn glaðari er ameríski bragðlaukurinn, því
í Hagkaup (þar sem Íslendingum finnst skemmtilegast
að versla) standa ný yfir amerískir dagar. Allskonar
frauðmeti má fá og svo auðvitað rótarbjór.
Skv. bæklingi Hagkaupa er rótarbjórinn eitt það
vinsælasta á amerísku dögunum svo kannski rennur
sú staðreynd stoðum undir Dr. Gunna rótarbjórsframleiðsluna.
Í ár er boðið upp á Shasta rótarbjór
eins og stundum áður. Shasta er betri en Super Chill, sem sum
árin er boðið upp á á blessuðum dögunum.
Semsé gott rótarbjórsár í ár.
Ég er á auðvitað á leiðinni til að
tryggja mér kassa eða þrjá.
---
Aldrei aftur Randver með hárkollu að þykjast vera
kelling. Maður er hér hreinlega í sárum.
---
Matseld.is er fín síða.
Ég er að reyna að þroska eldamennskukunnáttu
mína og í dag ræðst ég í það
stórvirki að búa til ungverska
gúllassúpu.
---
Leikskólastjóri hefur sent skeiti til að þakka
fyrir bakþanka dagsins.
Þá er markmiðinu náð.
12.09.07
Ég þoli ekki rapparann 50 cent. Hann fer verulega í
taugarnar á mér þegar hann birtist á skjánum
kjánalegur með skögultennurnar og uppblásinn eins
svartur Michelínkall. Ekki minnkaði andúð mín
á honum þegar ég las þennan
dóm um plötuna hans. 50 Cent er fyrir hálfvita.
Hann er víst í einhverju rappstríði við Kanye
West, sem hann skíttapar vonandi. Kanye er viðkunnalegur gaur
sem býr til fína músik og fékk mörg stig
í kladdann fyrir gott megadiss á vanvitann Bush í
kjölfar Katrínuhamfarana.
---
Það er nauðsynlegt að þaullesa innkaupastrimlana
í Bónus eins og argasti smámunaseggur. Starfsfólkið
er stundum úti á þekju. Um daginn var ég kominn
heim með einn bleyjupakka en skv. strimlinum borgaði ég
fyrir tvo. Bleyjupakki kostar 1300 kall svo ég fór auðvitað
til baka. Áðan var ég með vaðið fyrir neðan
mig og sá strax að eitthvað var að. Enda var ég
látinn borga fyrir 15 l af G-mjólk þegar ég
var bara að kaupa einn.
---
Djöfulsins mannekla er þetta alls staðar, eða allavega
í láglaunastörfum. Nú er pósturinn stórkostlega
undirmannaður. Ég fékk sent áríðandi
umslag frá Japan sem aumingja Japaninn borgaði stórfé
undir. EMS-forgangspóstur og hvað eina. Þetta skaust til
Íslands á ógnarhraða en stoppaði svo hjá
póstinum vegna góðærisvandans. Lá þar
dögum saman vegna manneklu, enginn mannskapur til að keyra umslagið
út . Þetta kemur í dag! lofaði pósturinn
á mánudaginn en á þriðjudaginn gafst ég
upp og sótti þetta sjálfur upp á Höfða.
Þar var biðröð út á götu eins og
við pylsuvagn með sértilboð. Getur ekki farið að
koma kreppa eða eitthvað svo ástandið lagist? Djöfulsins
rugl. En jæja, strákurinn er þó allavega með
leikskólapláss.
11.09.07
Ellefti september, ellefti september. Ellefti september getur étið
skít...
---
Maður leitar að frábærri hugmynd. Að finna
eitthvað upp, að fylla í gat, fatta upp á einhverju,
búa til markað, marka sér línu, slá í
gegn, græða fullt af pening og lifa hamingjusamur til æviloka
og þurfa ekki að gera handtak aftur. Maður er með hausinn
í bleyti. Maður ætti kannski að fara í frumkvöðlafræði
í HÍ? Hvað þarf nú heimurinn í dag?
Eða segjum bara Ísland, hvað þarf nú Ísland
í dag? Hvaða gat get ég fyllt? Til dæmis tölvan.
Maður komst alveg án hennar árið 1990 en í
dag er maður eins og dáið dádýr þegar
tölvan er biluð. Kannski full stórt vísindaafrek
fyrir mig að finna upp á einhverju í anda tölvunnar.
Ég er meira svona að spá í dóti eins og
súperboltanum
(eþs skoppuboltinn). Eina hugmyndin sem ég hef fengið
só far eru t-bolir með áletrun sem sést ekki fyrr
en sá sem er í bolnum er orðinn sveittur í gegn.
Svitabolir hf. Allir væru í svona bolum í ræktinni
eftir ár. Eða ekki. Á þeim væru áletranir
eins og ÉG PUMPAÐI eða SVEITTUR EINS OG GRÍS. Hmm..?
Söluvænlegt? Þá mætti athuga hvort Egils
sé til í að byrja framleiðslu rótarbjórs.
Dr. Gunna rótarbjórinn loksins kominn. Nei, glötuð
hugmynd. 90% Íslendinga finnst rótarbjór viðbjóður.
---
Svona spáir maður. Það eina sem þarf er
ein góð hugmynd og þá rúlla aurarnir í
kassann. Viltu vera ljón eða viltu vera mús? Hvað
til dæmis með þessa konu á Ísafirði sem
á að vera orðin múltímilli á dúkkulísuheimasíðu?
Ég trúi því nú reyndar ekki, en er ekki
heimasíða málið? Heimasíða sem maður
græðir ógeðslega mikið á? Lúdó
online? Eh, Hvað er klukkan online? Bíddu. bíddu... þetta
er að koma...
10.09.07
Dreymdi að ég hitti Jónas
Kristjánsson á Súfistanum. Sagðonum að
ég læsi alltaf síðuna hans. Hann sagðist vera
á leiðinni að fá sér tattú. Áður
en ég fékk á hreint hvers konar tattú þetta
væri hafði draumurinn breyst í eitthvað annað
sem ég man ekki hvað er.
---
Hitti líka Björgvin Halldórsson í Nóatúni
í Hafnarfirði. Þá var mig ekki að dreyma. Fátt
er töff við að kaupa í matinn, rogast með poka
í einni og klósettpappírsbúnt í hinni,
en Bjöggi var engu að síður þræl töff
þar sem hann tróð pokum í bílinn sinn. Hvað
ert þú að gera í Memphis?, spurði hann
mig þegar ég gekk hjá með eldspýtnabúnt
sem ég var að kaupa fyrir sýningu Abbababb! sem byrjaði
aftur í gær fyrir stuðluðum sal. Næsta sýning
16. sept!
---
Ég er áhugasamur um sturturnar í World Class.
Þar ríkir stéttskipting eins og ég benti á
í
bakþanka.
Svo kölluð frægðarmenni sem nota plebbasturtunar eins
og ég hækka sjálfkrafa í áliti hjá
mér. Meðal meistara sem láta sér plebbasturturnar
nægja eru Svali útvarpsmaður á FM957, Páll
Óskar, Geir H. Haarde, forsætisráðherra og Einar
K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra. Því
miður hef ég aldrei séð Hr. Ólaf Ragnar í
sturtunni (bara á Seltjarnarnesi á sínum tíma
og í Sundhöllinni). Ætli hann færi í plebba-
eða lúxussturtu?
09.09.07
Ég hef lengi verið með fetish fyrir Eyjaálfa.
Einu sinni fókuseraði ég á Ástralíu.
Ég las mér til og góflaði menningunni í
mig. Þetta var fyrir tíma internetsins svo það var
aðeins erfiðara. Ástríðan var svo slæm
að ég keypti mér ævisögu Pauls Hogan (einnig
þekktur sem Krókódíla Dundee) og las hana meira
að segja. Þá fór ég einn í bíóið
í Breiðholti til að horfa á myndina Young Einstein
með gerpinu Yahoo Serious. Ekki leið á löngu áður
er ég útvíkkaði áhugann til Nýja
Sjálands og þaðan til Kyrrahafseyja. Ef guðstaðan
á bankareikningnum leyfir mun ég einhvern tímann fara
þarna niðreftir, til Ástralíu, Nýja Sjálands
og valinna Kyrrahafseyja. Í tilefni af því að fyrsta
Ný Sjálenska hljómsveitin sem spilar á Íslandi
hefur boðað komu sína á Airwaves er Topp 5 nýsjálenskur
í dag:
Cut
off your hands! - Tell me about: Þetta er bandið sem
ætlar að rolla á Erveifs. Ég póstaði
þessu bandi í fyrra og kallaði það Shaky hands
fyrir einhvern aulahátt, hið rétta er að bandið
heitir Cut off your hands! (með ! eins og Reykjavík!, Abbababb!
og Panic! at the disco), en fyrsta ep-ið þeirra heitir Shaky
hands. Þetta er ágætis ákefðarrokk, kannski
ekkert verið að finna upp hjólið (eða þríhyrninginn,
þannig), en mörg lög á þessu fyrsta ep-i (sem
þetta lag kemur af) eru velsmurð og ótottuð. Annars
er ég sirka viss um að COYH! sé fyrsta nýsjálenska
bandið til að spila hér en gestum er velkomið að
leiðrétta mig. Einnig hafa áströlsk bönd verið
fremur fátíð á klakanum, Nick Cave, Crime and
the city solution og Architecture in Helskinki, en ég man ekki eftir
fleirum. Er ég að gleyma einhverju? (Bónus: Cut
off your hands - You and I, endurpóstun á smelli.)
Nýja Sjáland er nokkurn veginn Ísland, hinu meginn
á hnettinum. Allt fullt af kindum og kiwi, goshverir og stundum
snjór. Landið skiptist í tvær eyjar, Norður
og Suður ey, sem hvor um sig er ríflega stærri en Ísland.
Þarna búa 4.2 milljón manns, þar af 1.3 í
stærstu borginni Auckland á Norður ey. Landslagið
er víða svipað og hér eins og mátti sjá
í Lord of the rings, en leikstjórinn Peter Jackson er klárlega
frægasti Ný Sjálendingurinn (þeirra Björk).
Nýsjálensk rokksaga er svipuð íslenskri. Þetta
byrjaði af einhverju viti í kjölfar Bítlanna og
Split Enz (síðar Crowded House) eru þeirra Sykurmolar/Mezzoforte.
Útgáfumerkið Flying nun er hálfgerð Smekkleysa.
Maður hefur þó líka á tilfinningunni að
Nýja Sjáland sé einskonar Færeyjar og Ástralía
sé þá Ísland – þ.e. nýsjálensk
bönd fara til Ástralíu til að stækka sig á
sama hátt og Eivör, Jagvan og þetta færeyska lið
kemur hingað til að stækka hringinn. En allavega, meiri músik:
The
Bluestars - Social end product: Dæmi um hrátt nýsjálenskt
bítlapönk frá því á 7. áratugnum.
Safnplöturnar Wild Things vol. 1 og 2 eru ágætar til
að kynna sér svipað stöff. Þær má
m.a. fá frítt á þessari
sjóræningjasíðu. Þetta lag The Bluestars
hefur einnig komið út á Nuggets-safnplötu. (Bónus:
The
Gremlins - Never you mind - Meira frumstætt bítlapönk
frá Nýja Sjálandi.)
Split
enz - I got you: Hljómsveit bræðranna Tim og Neil
Finn byrjaði 1971 og spilaði progg en sló í gegn
um 1980 með leikrænu og bítlamelódíulegu
nýbylgjurokki. Hér
er tíunduð saga sveitarinnar. Þetta lag er langmesti smellur
Split enz, fór á toppinn í Ástralíu,
Nýja Sjálandi og Kanada, í 11. sæti í
Bretlandi og 53. sæti í USA. Það má finna
á plötunni True Colours frá 1980. (Bónus: Split
Enz - Six months in a leaky boat. Lag sem hljómar eins og ELO
að djamma með Grandaddy af plötunni Time and Tide frá
1982.)
The
Verlaines - Pyromaniac: Flying nun plötumerkið
er eldgamalt og enn starfandi (stofnað 1981 í Christchurch á
Suður ey) og mikið akkeri og gróðrarstía í
nýsjálenska indíinu. Margt af því sem
Fljúgandi nunnan hefur gefið út hljómar svipað
og því var talað um "nýsjálenska sándið"
þegar þessi músik gerði vart við sig í
kreðsum Vesturlanda á 9. áratugnum. Hljómsveitin
The Chills (sem er í bónus) varð líklega stærst
Flying nun banda, en mér fannast The Verlaines alltaf skemmtilegast.
Þar var klassískum töktum blandað í háskólarokkið
á órúnkaðan hátt. Sumt sem ég hef
sjálfur samið minnir (mig að minnsta kosti) á Verlaines.
Hér er lag af Juvenilia, safnplötu með Verlaines frá
1987 sem safnaði saman eldri ep-um og smáskífum. (Bónus:
The
Chills - Kaleidoscope World)
The
Black seeds - Hey son: Nú eru allir og amma þeirra
að velta sér upp úr mikilfengleika nýsjálenska
gríndúettsins Flight
of the Conchords. Þessir sjónvarpsþættir hófu
göngu fyrr á þessu ári og þykja það
ferskasta í gríni í dag. Áður en annar
meðlimurinn, Bred, byrjaði í þessu spilaði hann
í hljómsveitinni The Black Seeds sem er vinsæl döbb,
raggí, fönk-grúppa í heimalandinu. Hann lék
að auki álfinn Figwit í Lord of the rings (ekki að
það hringi einhverjum bjöllum hjá mér). Hér
er lag af fyrstu plötu Black seeds, Keep on pushing (2001), en samtals
hefur bandið gert 4 albúm til þessa. Ný Sjálendingar
eru mikið á þessari línu, þ.e. þarna
er mikill fílingur fyrir raggí, döbbi, hipphoppi og
fönki. Frumbyggjarnir maóríar virðast t.d. mikið
fyrir þessa músik. (Bónus: Scribe
- Stand up - New zealand hip hop stand up, segir Scribe, einn vinsælasti
hipphopp-gaurinn þarna af breikþrú plötunni The
Crusader frá 2003.)
---
Að lokum, nokkrir nýsjálenskir hlekkir:
95bFM - útvarpsstöð
í Auckland
Amplifier - NZ music online
NZ music - skýrir
sig sjálft
NZ músik frá
7. 8. og 9. áratungum
NZ músik
á wiki
NZ menning
á wiki
NZ á wiki
---
Hafði orku til að glápa á heila bíómynd
í gær, School for Scoundrels á voddinu. Alveg fín.
Nokkur spenna er að myndast á mínu heimili fyrir Næturvaktinni,
nýjum þáttum með Jón Gnarr og Pétri
Jóhanni sem hefst eftir nákvæmlega viku. Það
sem maður hefur séð lofar góðu og mágkona
mín ætlar að koma í heimsókn á hverju
sunnudagskvöldi til að horfa. Gerð hefur verið 16 mínútna
mockumentary um Næturvaktina sem má sjá hérna.
08.09.07
Þá hefur Skemmtiþáttur Dr. Gunna runnið
sitt skeið á enda í sumar. Væntanlegt kombakk næsta
sumar. Í dag áttu Jón Ólafsson og Páll
Óskar að keppa í sólópunkti. Þeir,
sem og ég, eyddu 2 tímum af ævi sinni í að
taka upp þáttinn á fimmtudaginn. Sem betur fer tók
árvökull tæknimaður eftir því að
fyrir mistök var ekkert á upptökunni, bara þögn.
Ég hafði gleymt að ýta á hinn mikilvæga
takka PMG-1. Á síðustu stundu fékk ég því
Frey Eyjólfsson og Kristinn Pálsson til að fylla í
skarð Jóns og Palla. Þeir eru með þætti
á Rás 2 og hafa einmitt báðir lent í því
að gleyma að ýta á PMG-1. Maður gerir það
bara einu sinni. Leikar voru hreinlega hrikalega spennandi en Kristinn
vann í bráðabana á Everything but the girl spurningu.
---
Ég drekk Morgundögg frá Kaffitári á
hverjum degi. Ætli ég fari ekki með pakka á viku.
Í Bónus kostar pakkinn 456 kr (síðast þegar
ég vissi), en 660 í Hagkaup. Ég spara því
um 10.000 kall á ári með að versla við Bónus,
bara á kaffinu. Ef ég gerði þetta í 6000
ár hefði ég loksins efni á svona sportbíl
eins og Jón Ásgeir var að fá sér.
07.09.07
Pöbbakviss á Paddys var stuð. Liðið Einglyrnið
vann. Í því voru Heiða og Halla Valli í
Ælu, menningarmálaráðunautur Paddys. Dálítið
vandræðaleg, en engu að síður óumdeilanleg
niðurstaða.
---
Áður en ég mætti hafði ég tíma
að drepa og ákvað að rúnta aðeins um gamla
varnarsvæðið. Það var enginn í hliðinu
svo lítið mál var að komast inn. Mér skilst
þó að von sé á vöktun svo unglingar
fari ekki að mæta þarna í haugum til að fá
sér einn stuttann og annan feitann í auðum húsum.
Ég keyrði um hinn yfirgefna bæ og það var ekki
laust við að það væri spúkí í
þokunni. Slangur af bílum sá ég bara fyrir framan
tvö fjölbýlishús. Ég bjó alveg eins
við að afskræmt zombí hoppaði fyrir bílinn
til að éta á mér heilann eða að yfirgefinn
og snargeðveikur hermaður birtist úr þokunni til að
drepa mig. Ekkert bjó þó þarna í þokunni
frekar en í öðrum þokum. Þarna eru eflaust
mikil sóknartækifæri. Enda ekki yfirgefinn 5000 manna
bær á hverju strái. Með líkamsræktaraðstöðu
og poolborði í hverju fjölbýli. Mér skilst
að þegar allt sé komið á fúllsvíng
eigi að opna Andrewsbíó aftur og Subways og þetta
dót sem var þarna fyrir Kanana. Það var þó
óneitanlega meiri exótískur sjarmi yfir þessu
gróðurvana holti á meðan það var USA.
---
Alltaf er fínt að koma til Kef. Ólsen klikkaði
ekki og ég sá nokkra aflitaða erkibrúnkuhnakka
glotta við sportbíl. Í útvarpinu heyrði ég
einhverja kerlingu segja frá könnun sem hún lét
gera á smekk kvenna til karla og kemur þar fram að konur
vilja stælta karlmannlega menn en enga plokkaða metróræfla
með smábarnapung. Andlitsfegurð skiptir engu en gott er
að viðkomandi sé með stóran böll. Þetta
þóttu mér allt saman jákvæðar upplýsingar.
06.09.07
Muna svo eftir stuðningstónleikunum fyrir Úlf Chaka
í kvöld. Þeir sem komast ekki ættu að leggja
inn á 0101-26-014144 kt. 440304-2570.
---
Þess má geta að það eru bara örfáar
sýningar eftir af Abbababb! nú í haust svo ef fólk
ætlar á annað borð á þetta stórfenglega
Grímuverðlaunaleikrit þá er tíminn núna!
---
Meira megaplögg: Verð með popp-pöbb-kviss á
Paddys,
Keflavík í kvöld kl. 21:30! Spilaðar verða 3
umferðir og eru verðlaunin spikfeit. Kvissið er undanfari hinnar
árlegu
Rockville-hátíðará
Paddys sem fer fram 13-16 sept. Staðfest bönd nú þegar
eru ÆLA - BACON - DARK NOTE - DR. SPOCK - HELLVAR - HOFFMAN - I ADAPT
- JAN MAYEN - KLAUS - KOJA - LADA SPORT - LOKBRÁ - REYKJAVÍK!
- ROHNDDA AND THE RUNESTONES - TOMMYGUN - VICKY POLLARD.
---
Þótt Mæspeis sé sniðugt konsept verður
að segjast að síðan er fjandanum hægvirkari. Maður
er drullulengi að fletta á milli síða og það
tekur 1-2 mínútur að fá lög í gang.
Óskiljanlegar eru vinsældir Mæspeis miðað við
þetta.
---
Felix skilur eftir sig slóð eyðileggingar og Felix banaði
minnst níu segja fyrirsagnir. Aumingja Felix hefur margt á
samviskunni.
---
Í gær horfði ég á endursýndan
Stelpuþátt. Alveg ágætt, manni stökk nokkrum
sinnum bros. Í samhengi við annað verður þó
að segjast að Fóstbræður er geðveikt fyndið
stöff og við erum ekki að tala um bros þar heldur pissíbuxurnar.
Á meðan beðið er eftir auglýstu delúxboxsetti
er margt vitlausara en að ylja sér við Fóstbræður
á jútjúb. Bobby
Breiðholt hefur t.d. tekið saman best of á síðunni
sinni undir 22. ágúst. Besta íslenska sjónvarpsgrín
í heimi ever! Það verður líka að segjast
eins og er að Stöð 2 er að gera mjög góða
hluti með Stelpunum og Næturvaktinni (sem byrjar 16. sept) og
Pressunni (sem byrjar ekki fyrr en 25. des). Rúvið verður
með Spaugstofuna með einhverjum nýjum leikurum sem ég
veit ekki hverjir eru og róa væntanlega á mjög
lignan sjó. Tvíhöfði sprellar svo í megaeuromambóþættinum
á laugardagskvöldum (sem byrjar 29. sept). Skjár einn
virðist alveg heillum horfinn í íslenskri dagskrárgerð
og er ekki með neitt spennandi, bara einhvern óspennandi spurningaþátt
(hvar er Popppunktur eiginlega?) og enn eina seríu um kellingar
að taka til heima hjá skítapakki. Reyndar hefur maður
eitthvað heyrt af Conan-Leno-legum kvöldþætti sem
meistari Þorsteinn Guðmundsson ku eiga að sjá um,
svo þar gæti sóknarfæri S1s á lendur kúlsins
legið. Talandi um kvöldþætti þá er Latebyte
hollensk síða sem bíður upp á niðurhal
á nokkrum eðalþáttum. Feitasti bitinn er væntanlega
Conan sem engin íslensk stöð hefur vit á að
vera með. Reyndar segja sérfræðingar að Conan
sé farinn að dala en ég tek þeirri alhæfingu
með fyrirvara.
04.09.07
Í dag eru fimm ár frá því þetta
gerðist:
Fimm ár er víst trébrúðkaupsafmæli
en okkur langaði ekki í neitt timburdrasl – hvorki ámálaðan
rekavið né flís úr krossi Krists – svo appelsínugul
Kitchen Aid varða heillin.
---
Jón Gnarr er byrjaður að vinna á auglýsingastofunni
Nonni og Manni, við hlið Sigurjóns Kjartanssonar. Þetta
þýðir bara eitt: Fyndnari auglýsingar. Og ekki
veitir af. Fyrst verið er að troða einhverju upp á mann
er best að það sé fyndið. Mér finnst auglýsingarnar
með Aukakrónunum alls ekkert fyndnar en í Glitnis-auglýsingum
er Dani að röfla í tveim Íslendingum um hve allt
sé dýrt hérna. Það er nokkuð fyndið.
Skyldu Tvíhöfði hafa fundið upp á henni? Síðasta
kvöldmáltíðarauglýsingin fyrir Símann
er ágæt, helst fyrir það að alltaf er gaman
að sjá Jón. Eitthvað virðist þetta hafa
farið öfugt
oní biskupinn sem er með væl. Hverjum er nú annars
ekki sama um hvað honum finnst? Það er nú ekki eins
og feðgarnir á efri hæðinni hafi hringt í hann
og beðið hann um að væla.
---
Útvarpsþátturinn Frank er með svaka
mp3blogg og er færslan frá 28. ágúst sílspikuð.
Bestu lög ársins só far. Ég ætla annars
að vera með eitthvað svipað í næsta Skemmtiþætti
sem einmitt er síðasti skemmiþátturinn í
bili. Ég sný væntanlega aftur næsta sumar. Í
Sólópunkti keppa hvorki meira né minna en sjálfir
Páll Óskar og Jón Ólafsson.
---
Þess má svo geta að ég sé um sérstakt
tónlistar-quiz á pöbba quizzi á Paddys bar í
Keflavík á fimmtudagskvöldið kl. 21. Það
verður heldur ekkert slor.
03.09.07
Við þetta er að bæta að Baggalútur
er kominn úr sumarfríi, nú með sjónverpli,
Quataska boltanum og fleiru smálegu.
---
Stórfrétt: trommarinn í Þey, Sigtryggur
Baldursson, mun taka við af gítarleikaranum úr Ham, Sigurjóni
Kjartanssyni, sem Hr. Rokk í Abbababb! Sigtryggur treður í
fyrsta sinn upp sem Hr. Rokk þann 23. sept., en þangað
til mun söngvarinn úr Greifunum, Felix Bergsson, leika sjoppueigandann
síkáta. Einnig hafa orðið þær breytingar
í leikaraliðinu að Tinna Hrafnsdóttir er Halla í
staðin fyrir Álfrúnu Örnólfs (sem er ólétt
og því ekki trúverðug sem átta ára
(nema í Nígaragúa)) og Jóhannes Haukur Jóhannesson
leikur Steindór í 2 mánuði á meðan
Atli Þór er að jafna sig eftir hnéuppskurð.
Fyrsta sýning á haustönn er 9. sept. Miði
reddar miðunum.
---
Í bókinni hans Chucks Klosterman, Sex,
Drugs, and Cocoa Puffs: A Low Culture Manifesto, er einn smákafli
sem er 23 spurningar sem Chuck segist spyrja fólk (konur) til að
ákvarða hvort hann geti í raun elskað þær.
Þetta eru mjög skemmtilegar spurningar og auðvelt að
snúa þeim í djúpar pælingar (eða ekki
svo djúpar). Ein spurningin er svona: Segjum að fullvaxinn og
fullfrískur Clydesdale
hestur sé skorðaður á hófunum við
jörðina og hausnum á honum haldið föstum með
þykkum kaðli. Hann er með fullri meðvitund en getur ekki
hreyft sig. Segjum svo að öllum pólitískum föngum
á jörðinni (samkvæmt lista Amnesty international)
verði gefið frelsi ef þú getur sparkað þennan
hest til dauða á innan við 20 mínútum. Þú
mátt vera í stáltá. Myndirðu reyna þetta?
---
Í gær fór ég á æðislegasta
stað í Reykjavík, heima hjá Hrafni Gunnlaugssyni
á Laugarnesi. Dagbjartur var með svo ég ætlaði
að afsaka mig með því að hann hefði bara hlaupið
af stað inn í garðinn ef Hrafn birtist með haglabyssu.
En meistarinn var ekkert á svæðinu heldur bara glaðlegur
blökkumaður sem var ekkert að böggast í feðgum.
Þetta er geðveikt flott ævintýraland sem þarna
er risið. Þriggja metra hvannir út um allt, ófrýnilegar
trégrímur á víð og dreif, fiskar í
tjörnum, gengt oní fjöru, myndir og plaggöt hengd
á veggi, skúlptúrar og algjör snilld. Hluti af
sjarmanum er að gróðri hefur verið leyft að vaxa
að vild og þá sér maður muninn á sannri
náttúru og þeirri ofursnyrtu vestrænu steinsteypunáttúru
sem við hrærumst í. Ég velti fyrir mér hversu
æðisleg Viðey gæti orðið eftir 10 ár
ef þar yrði sankað saman allskyns exótískum
munum og drasli, hvönn sáð og öllu leyft að hafa
sinn gang. Þetta var eiginlega eins og í Apocalypse Now og
ég bjóst við að rekast á Hrafn í einhverjum
helli þarna nuddandi hauskúpu. Þessi ævintýraheimur
Hrafns er síst verri en dótið hans Samúels
Jónssonar í Selárdal og ég ætla rétt
að vona að þetta verði friðað og varðveitt
þegar þar að kemur. Uppgötvun sumarsins!
---
Vinir Úlfs í Stjörnukisa ætla að halda
styrktartónleika fyrir hann á fimmtudaginn (6. sept) í
Iðnó. Hér er fréttatilkynning sem ég fékk
senda:
Úlfur C Karlsson tón- og myndlistamaður hefur strítt
við hvítblæði seinustu ár. Eins og gengur hefur
hann gengist undir ótal læknismeðferðir og verið
inn og út af sjúkrastofnunum í gegn um þennan
tíma. Hann er fjölskyldufaðir og hefur konu og barn fyrir
að sjá en hefur sökum veikinda sinna lent illilega úti
fjárhagslega og nú er svo komið að þessi litla
fjölskylda er að þrotum komin. Ég er í forsvari
fyrir nokkra vini og félaga Úlfs sem komum saman og viljum
sýna í verki samhug og stuðning með Úlfi í
þessum þrautum sem hann og fjölskylda hans ganga í
gegnum. Grunnhugmyndin er sú að erfiðleikarnir sem fylgja
slíkum veikindum hljóti að vera hverjum manni nóg
raun, fjárhagslegar áhyggjur í ofanálag er
eitthvað sem við getum ekki horft upp á aðgerðalaus.
Af þessum orsökum söfnuðumst við saman til
að halda þess tónleika, til þess að safna í
sjóð til þess að Úlfur og kona hans þurfi
ekki að hafa eins miklar fjárhagslegar áhyggjur í
ofanálag við allt það erfiði sem fylgir því
að stríða við jafn erfiðann sjúkdóm.
Allir sem koma fram gefa vinnu sína og eru allir tengdir Úlfi
í gegn um vin- eða kunningskap.
---
Hér er annað lag með Náttúru, en svo set
ég ekki fleiri inn því þá verður Shady
brjáluð: Náttúra
- Could it be found.
02.09.07
Þetta er ekki mynd af Múhammed spámanni:
Ekki þetta heldur:
Og þetta er alls ekki mynd af Múhammed spámanni:
Ég endurtek: Þetta eru ekki myndir af Múhammed
spámanni.
---
Ljósanótt var nú meira giggið. Svoleiðis
rok og rigning að maður bjóst við að tjaldið
með öllum græjum fyki út á haf. Það
var klukkutíma frestun vegna veðurofsans og vegna þess
að Jón Skuggi hljóðmaður fékk sviðsmyndina
í hausinn og þurfti að láta sauma sig upp á
slysó. Í gámi á bakvið biðu Skoppa
og Skrýpla og Kalli á þakinu og grísinir þrír
sem reyktu eins og strompar. Disneyland á sýru. En svo var
voða gaman þegar þetta byrjaði loksins og Kalli á
þakinu stökk upp á svið og fretaði með. Maður
stóð í pollum og átti von á steikingu á
hverri stundu en það slapp.
01.09.07
Og enn halda menn áfram að deyja eins og ekkert sé
sjálfsagðara. Nú erða Hilly Kristal eigandi CBGB's
sem er fallinn í valinn (meira hér
með tóndæmum eða hér).
Mæli annars með Skemmtiþættinum í dag, Bóas
úr Rvk! og Birkir Fjalar í I adapt í dúndur
stuði og svo erða gigg á Ljósanótt í
Kef kl. 14 í dag - Abbababb!
---
En nú kynna Straumur-Burðarás og Mæðrastyrksnefnd
safnplötuna Ég drekk blóð þitt, ég
ét hold þitt, fátæklingur! eþs T5!:
BC
Camplight - Lord, I've been on fire: Kani sem hljómar stundum
eins og Ben Fold og Ron Sexsmith og lítur stundum út eins
og Gunnar Jónsson fóstbróðir og spilar poppmúsik
sem hljómar eins og hann hafi dáldið hlustað á
Beach Boys, Burt Bacharah, Xtc og Soft boys. Hefur gert tvö albúm,
Hide, run away, sem vakti nokkra lukku 2005 og svo eina glænýja
sem þetta lag kemur af, Blink of a nihilist. Það er auðvitað
allt of margir sem langar til að vera hinn nýji Brian Wilson
og restin af þessari plötu er ekkert að gera stórkostlega
hluti fyrir kjöttætlurnar á efri hæðinni, en
þetta lag er engu að síður glimrandi glúrið
og gott.
Soko
- I'll kill her: Franskt dúó, þau kalla sig
Soko boy og Soko girl. Hér er ljómandi skemmtilegt lag sungið
út frá heimsýn geðveikrar stúlkukindar
í hefndarhug. Ég held bandið sé ekki á
samningi og hvað þá búið að gefa út
plötu en kannski kveikir einhver á perunni og þau verða
víðfræg eftir að þetta lag heyrist í
sjónvarpsþætti og auglýsingu.
Shout
out louds - Tonight I have to leave it: Sænsk 80ís
hetjunýbylgja í 00ís-gæru. Eins og Echo &
The Bunnymen með Robert Smith. Af nýrri plötu, Our ill
wills.
Náttúra
- Tiger: Útúrhassað og dáleiðandi
hipparokk frá 1972. Miklir meistarar á ferð, Shady í
stuði, Karl í stuði á orgelinu, Björgvin í
stuði á gítarnum o.s.frv. Af einu plötu Náttúru,
Magic Key, sem enn hefur ekki verið yfirfærð og gefin út
á cd. Er því meðal fárra platna á
topp100 listanum sem fylgdi Eru ekki allir í stuði? sem enn
hefur ekki fengið cd-meðferðina (var #80). Aðrar plötur
sem liggja ó-cd-aðar eru Þeyr - Mjötviður mær
(#25 - kom reyndar mest á safndisknum Mjötviður til fóta),
Kamarorghestarnir - Bísar í banastuði (#75), Tappi tíkarrass
- Miranda (#82, Björk ku ekki kæra sig um cd-un), Bara flokkurinn
- Gas (#88, er reyndar að mestu á safndisknum Zaphir), Drýsill
- Welcome to the show (#90), Íkarus - Rás 5-20 (#96) og Frakkarnir
- 1984 (#100).
Húbert
Nói & Howie B - Into landing: Húbert Nói
er frægastur fyrir myndlist en hefur tekið spretti í tónlist,
spilað með HÖH og Psychic TV og sá um umhverfishljóð
í frægri sýningu Oxzmá-hópsins, Oxtor
í svartholi, sem ég er enn að naga mig í handarbökin
að hafa ekki séð. Út er komið tónverkið
Music
for astronauts and cosmonauts, sem Húbert gerði með
Howie B., eftirsóttasta pródúser heims fyrir nokkrum
árum. Hugmyndin kveiknaði þegar Húbert heyrði
Bjarna Tryggvason lýsa hvernig tíminn líður í
geimferð, en það tekur víst 90 mínútur
að fara hring umhverfis jörðin í geimflaug. Lögin
á verkinu (2 cds) eru Countdown, Take off, Morning, Day, Evening,
Night, og þetta hér sem er síðasta lag verksins,
lendingarlagið, sem Húbert segir að sé fengikall
til Young marble giants. Vilji fólk geimferð í stofunni
er fátt betra en þessi plata.
---
Ég var spurður að því um daginn hvort ég
teldi að einhverjar plötur sem hafa komið út á
þessari öld væru nógu góðar til að
bætast í hóp platnanna 100 á áðurnefndum
100 Bestu plötur síðustu aldar-listanum. Ég veit
kannski ekki hvort einhver plata komist í topp 10 hópinn,
en jú jú, mikil ósköp, það hafa komið
út fullt af ágætis plötum. Án þess
að ég nenni að raða þeim þá eru hér
10 góðar plötur frá þessari öld: XXX
Rottweiler hundar - XXX Rottweiler hundar, Mínus - Halldór
Laxness, Mugison - Mugimama, Is This Mugimusic?, Sigur Rós - Takk,
Emilíana Torrini - Fisherman's Woman, Trabant - Emotional, Eberg
- Voff voff, Apparat Organ Quartet - Apparat Organ Quartet, Ólöf
Arnalds - Við og Við og Reykjavík! - Glacial landscapes,
Religion, Opression & Alcohol. Gestir mega taka trylling um þetta
mál í gestabók ef þeir kæra sig um.
31.08.07
Góður Bakþanki
í dag eftir Kristínu Svövu. Nú er bara spurning
hvaða banki fattar fyrstur að gera eitthvað í þeirri
neikvæðu ímynd sem landsmenn hafa á honum. Hvaða
banki hættir fyrstur böggi, bruðli og okri og kemur með
eitthvað annað en flísteppi til að slá í
gegn, t.d.
Já, við afnemum debetfærslugjöldin.
Nú getur þú eytt eins miklu af þínum
eigin peningum án þess að við rukkum þig
fyrir það því frá og með deginum í
dag erum við hætt að taka 13 kall á hverja einustu
debetfærslu. Þú heyrðir rétt: Þú
getur eytt á debet og það kostar ekki neitt alveg eins
og þegar þú eyðir á vísa. XXbanki:
Við erum ekki skítugar lýs á landsmönnum,
við erum góð og viljum bara græða smá á
þér, ekki ógeðslega mikið. Nei í alvöru.
Plís, ekki finnast við ógeðsleg.
---
Lög sem Wee Willie Shantz gerði og komu út á
litlum plötum á hinu obskjúr plötumerki Mark Twain
á 6. áratugnum eru stundum kölluð furðulegustu
lög sem hafa komið út. Það að þetta
kom út sirka 1955, löngu áður en Frank Zappa, Residents
og margir margir fleiri tóku flippið upp á arma sína,
gerir það auðvitað að verki að þetta er
þrælmerkilegt og líka það að lítið
sem ekkert er vitað um Wee Willie. Á föstudegi er margt
vitlausara en smá flippgrúsk í boði Cheezeball
sem hafa verið svo elskulegir að pósta öllum lögum
Wee Willies á mp3 hér.
---
Ef ég væri barnlaus piparsveinn færi ég í
kvöld á Gaukinn, drykki mig fullan og dansaði eins og hnakki
á ketamíni við það sem innstu koppar í
búri Kitsune Maison samsteypunnar
ætla að dæla yfir mannskapinn. Kitsune gefa nebblega út
hressandi tölvudanspopp sem er gaman að skokka við og eru
franskir og kúl.
---
Má ekki reyna við karla á almenningssalernum í
USA? Ég skil ekki alveg þessar
fréttir. Og hanga löggur allan daginn með buxurnar
á hælunum inn á þessum klósettum og bíða
eftir því að einhver bjóðist til að ríða
þeim? Alltaf sama hommahallærið á þessum teprulegu
Könum.
30.08.07
Næst síðasti Skemmtiþáttur Dr. Gunna
í bili er á laugardaginn. Óskalög úr Kolaportinu
(sem á að loka um áramót ef ekki kemur til stórtækra
mótmæla og hlekkingja við harðfiskbása) og
rokkfrændurnir Birkir Fjalar úr I
adapt
og Bóas úr Reykjavík!
ætla að berjast á banaspjóti í sólópunkti.
Jibbí jei.
---
Ég hef velt því fyrir mér að undanförnu
hvort sé skárra að vera blindur eða lamaður fyrir
neðan mitti. Ég hef ekki komist að neinni niðurstöðu.
Það fer reyndar mest eftir því, held ég,
hvort hrókurinn sé í lamasessi eða ekki. Stundum
finnst mér blindan skárri, stundum lömunin. Lömun
fyrir neðan mitti er kannski skárri en blinda, en lömun
fyrir neðan háls er líklega verra en blinda. Æi,
líklega full dapurlegar pælingar.
---
Það er allt að hækka. Bleiurnar og þvottaefnið
var
miklu dýrara í Bónus í dag en fyrir 3 mánuðum.
Verst að maður á engar nótur til að bakka sig
upp í þessari tilfinningu. Lækkun virðisaukaskatts
rassgatið mitt. Kona á besta aldri hrósaði mér
f/ Bakþanka en skammaði f/ að kalla Lufsuna Lufsu. Ég
sagði að Lufsunni fyndist þetta bara krútt en konan
hélt fast við sinni keip og skipaði mér að hætta
strax. Þá hljóp ég grenjandi í burtu.
---
Einhver Dabbi Grensás skammast sín oní tær
fyrir hálfvitaganginn í viðtali
á Stöð 2. Púlizerstöff, ekki spurning.
29.08.07
Ég fór ekki á eina mynd hjá Grænu
ljósabíóhátíðinni. Það
er ekkert hlaupið að því að komast úr húsi
þessa dagana. Þess í stað dánlódaði
ég tveimur myndum, Sicko og For your consideration. Ég er
með dáldið samviskubit að hafa ekki styrkt Ísa
og hátíðina. Sicko er eins og ég bjóst
við, grenjandi fólk og Michael Moore að hugga. Já
já ég veit: Amerískt heilbrigðiskerfi tottar en
ég nenni ekki að glápa á það. Hef horft
35 mín af myndinni og veit ekki hvort ég nenni að klára.
Jú annars, ég geri það örugglega. Það
er eitthvað í þessu sem heldur. Hina sá ég
í gær:
For your consideration --> dl
XXX
Spinal Tap mockument liðið
enn á ferð. Þetta er þó ekki mockument heldur
bíómynd. Lúserar halda að þeir séu
að fá óskarsverðlaunatilnefningu. Þokkalega
fyndið alveg en ekki meðal þeirra bestu mynda.
---
Ég gleypti í mig íslenskar skáldsögur
á 9. áratugnum. Las allt eftir Einarana, bækur Ólafs
Gunnarssonar (Ljóstollur!) og Péturs Gunnarssonar og Guðberg
Bergsson komplett. Lagði á mig talsvert erfiði við að
grafa upp fyrstu verk meistarans sem á þessum tíma
voru ófáanleg. Músin sem læðist er dálítið
gufuleg en strax í Leikföngum leiðans (1964) er kominn
hinn frábærasti galsi í kallinn eins og t.d. í
sögunni um nýja kennarann sem syndir út á sjó
og týnir sundskýlunni. Magnað. Tómas Jónsson
metsölubók og Ástir samlyndra hjóna æðislegt
stöff. Ég þýddi meira að segja einn kafla
úr Ástunum yfir á ensku til að birta í
einhverju erlendu fanzíni. Sendi Guðbergi þýðinguna
til að fá samþykki hans. Hann gerði það
en hefur örugglega ekki nennt að lesa þetta yfir því
ég sé það núna að þetta er ömurleg
þýðing. Margt fleiri fór undir augun. Tvö
dónaleg atriði man ég enn úr bókum líttþekktari
höfunda. Í fyrsta lagi endir á frekar slappri bók
eftir Hafliða Vilhelmsson. Bókin endar á að söguhetjan
lætur ríða sér í rassgatið út
í Amsterdam og mælir eitthvað á borð við:
Mér
fannst þetta gott enda hafði ég alla mína tíð
látið ríða mér í rassgatið hvort
eð er. Annað atriði er líklega út bók
eftir Anton Helga Jónsson, sem ég veit ekki heldur hvað
heitir né hvað er um. Enn erða hráslagalegt klámið
sem heilinn man því þarna er talað um samfarir,
eitthvað á borð við Skítakleprarnir í
rasshárum hennar minntu mig á litlar jólakúlur
þegar ég dúndraði henni aftan frá. Kling
klang, ég hringdi jólin inn á meðan ég
hamraði taktfast og utangátta. Kannski ég reyni að
sækja þetta í safnið og hafa orðrétt.
---
Einu sinni var bara einn rúllustigi á Íslandi.
Pældu í því! Hann var við Laugarveg, í
einhverri búð sem nú er GK. Eitthvað hefur mér
fundist fyrirbærið merkilegt því fyrsta spólan
sem ég (Erðanúmúsik)
gaf út heitir Rúllustiginn. Þetta var safnspóla
með 10 hljómsveitum, hvor annarri betri. Kannski maður ætti
að fara að mp3-væða þetta gamla Erðanúmúsikspóludót?
27.08.07
Í 60 mínútum í gær var Símon
þarna leiðinlegi gaurinn í Idol (jútjúb).
Hann var ekkert að þykjast vera annað en hann er og líkti
sjálfum sér við McDonalds og almennilega tónlist
(geri ég ráð fyrir) við 3 stjörnu Michelin kokk.
Bara hressandi þegar menn vita hvað þeir eru. Líka
hressandi þegar menn rífa smá kjaft eins og rokkstjarnan
Magni í mbl. Málefnin loga af umræðum
um þetta mál (gríðarlega gáfulegum auðvitað,
ekki annað hægt þegar þessir andans jöfrar þarna
tjá sig) en ég get alveg tekið undir með Magna (og
Agli): Tom Waits er drepleiðinlegur.
---
Hér er kafli úr óútgefnu, ókláruðu
og svo ekki sé talað um óprófarkarlesnu skáldsögunni
MMÚH:
Ég borða sárasjaldan í bankamötuneytinu,
bæði er maturinn frekar ókræsilegur (alltof oft
soðin ýsa eða kjötfas soðið með káli
= viðbjóður) og mér finnst frískandi að
sleppa úr kvennaheiminum. Ég segi stundum í gríni
að á mig myndi vaxa snípur ég kæmist ekki
í burtu í matar og kaffitímum.
Ég hef hringt í Lilla og Hamarinn og mælt mér
mót við þá á Mokka kaffi. Ég er auðvitað
ennþá hálf slappur eftir afmælisdrykkjuna og
sé í hyllingum þegar ég mun slafra í
mig ristaðri samloku með skinku, osti og grænum aspas; vöflu
með útafvellandi rjóma og sultu og tveim ef ekki þrem
bollum af súkkulaði með rjóma.
Ég er mættur fyrir hálf tólf, enda fær
maður sjaldan almennilegt borð eftir þann tíma á
Mokka í hádeginu. Vinir mínir mæta skömmu
síðar, Hamarinn frekar rislár en Lilli í sínum
eðlilega gír. Hann er alltaf eins. Nú er hann með
nýjustu plötu Tom Waits með sér, sú var að
koma í búðina fyrr um morguninn. Ég renni yfir
lagalistann og Lilli segir að þetta sé ágætis
plata. Hamarinn byrjar ekki að vinna í Þjóðleikhúsinu
fyrr en eftir hádegi. Þar er verið að setja upp eitthvað
íslenskt stykki úr verðlaunasamkeppni. Eitthvað um
kreppu nútímamannsins og hraðann í þjóðfélaginu.
Hamarinn ber því ekki vel söguna.
Við félagarnir höfum ekki farið yfir fylliríið
af neinu viti og Hamarinn vindur sér að máli málanna.
“Jæja, hvernig gekk svo á galeiðunni,” spyr hann mig.
“Fórstu upp á eitthvað?”
Ég neita glottandi og reyni að láta eins og ég
hafi bara ekki nennt á bak. Við erum karldýr í
karlaumhverfi. Það mun engin blanda sér í umræðuna
og setja út á að við tölum um konur eins og
skinlausar skepnur. Við erum eins og veiðimenn sem gortum okkur
af veiðinni. Þó við séum vissulega frekar vonlausir
berum við okkur mannalega. Við vitum upp á hár hversu
mörgum konum við höfum riðið. Stundum berum við
saman bækur okkar. Ég hef fulla trú á að
allir karlmenn láti svona. Að jafnvel Bjarni Ármannsson
bankastjóri og æðsti yfirmaður minn tali eitthvað
svipað við vini sína. Ég hef líka trú
á að margar konur hagi sér svona. Þetta er sammannleg
reynsla. Við gleymum alltof oft að við erum bara dýr.
Jamm.
Nú færist íbyggið glott yfir andlit Hamarsins
og ég fatta hvað hann vill að ég segi.
“Þú ætlar þó ekki að segja mér
að þú hafir komist á kellingu,” segi ég.
“Einar sagðist hafa séð þig dauðan fram á
borði.”
“Dauður og ekki dauður,” segir Hamarinn og dregur augað
í pung. “Eins og þú veist þá eru margar
konur með Flórens Nætengeil sindrómið.”
“Ég skil. Var Magga þarna og dró þig heim?”
“Jááááh vinur minn, það var svo
mikið svoleiðis.”
Hamarinn hermir ekki eftir Dengsa nema mikið liggi við eða
að hann sé í sérstaklega góðu skapi.
“Og hvað?”
“Nú við vöknuðum saman og nutumst frameftir degi,”
segir Hamarinn tilgerðarlega. “Ég er að fara að hitta
hana í kvöld. Vorum að spá í að tékka
á nýju Woody Allen myndinni.”
Ég verð nú að segja að þessi Magga
er frekar vafasamur karakter. Einum of æst eitthvað fyrir minn
smekk. Fer stundum að rífast upp úr þurru um ekki
neitt. Verður alltaf að hafa rétt fyrir sér. Hún
og Hamarinn hafa svona verið að dandalast eitthvað síðustu
vikur en ég var satt að segja að vona að það
væri dottið upp fyrir. Hjalti á skilið skárri
konu en þetta. Æ það er annars ekki mitt vandamál.
Leifur litli þykist djúpt sokkinn í Moggann og er alveg
utanveltu í þessu samtali. Það er eins og hann og
Hamarinn hafi ákveðið að þeir séu í
liði á móti mér; Gaurar með kærustur
á móti lúða með enga kærustu. Mér
lýst ekkert á þetta.
“Og… Hvað ertu að spá?,” spyr ég Hjalta Hamar.
“Ekkert. Bara sjá til. Láta þetta þróast
eitthvað. Það er allavega geðveikt að sofa hjá
henni.”
A-ha. Hjalti notar “Sofa hjá” en ekki “ríða” eða
eitthvað í þá áttina. Sönnunargögnin
hrannast upp.
“Jæja vinur,” segi ég, óvart alltof særður
í röddinni. Ég stend upp til að panta annan súkkulaðibolla.
Þeir eru komnir á flug í spjall um þennan helvítis
Tom Waits þegar ég sný til baka. Djöfulsins rauðvínsgutlandi
rámi ræfill sem enginn hefur gaman að nema trefilvafðir
tussulegir háskólanemar í hettuúlpum. Tom Waits
og Charles Bukowski, sami pakkinn, eitthvað mömmulið notar
verk þessara alkóhólista til að ná sambandi
við eitthvað sem það heldur að sé meira “ekta”
en litli öruggi sósíalheimurinn sem það hefur
velkst í frá blautu barnsbeini. Æ, ég má
ekki vera alltaf svona neikvæður. Lilli segir nýju plötuna
afturhvarf til fyrri verka og bla bla bla. Ég sökkvi mér
í Moggann og byrja aftast. Ég skil mest það sem
stendur þar. Ég skil út á hvað sjónvarpsdagskráin,
fréttir og viðtöl við poppara og leikara og bíóauglýsingarnar
ganga út á. Ég skil meira að segja það
sem Velvakandi er að rausa um og oftast líka liðið sem
skrifar lesendabréfin. Ég myndi skilja hvað íþróttasíðurnar
ganga út á ef ég hefði snefil af áhuga
á íþróttum. Eins og mér sé ekki
sama hvað einhverjir gaurar geti lyft miklu eða hlaupið hratt.
Allt íþróttafólk er eitthvað svo kjánalegt
og vitlaust. Aldrei hef ég heyrt íþróttamann
segja eitthvað af viti. Og fótboltinn maður. Ef það
væri ekki fótbolti myndu hvítir karlar kannski nenna
að gera uppreisnir aðeins oftar en þeir gera. Heiladeyðandi
rugl.
Eftir sportið verður Mogginn sífellt flóknari
sé hann skoðaður svona öfugt. Ég nenni aldrei
að spá í dauða fólkinu. Hverjum er ekki sama
um það? Ísland er pínulítið land en
samt deyr eiginlega aldrei neinn sem ég þekki. Hvaða fólk
er þetta eiginlega? Svo taka við aðsendar greinar sem ég
skil sem betur fer ekkert í. Eitthvað lið að skrifa
um það sem því virðist búa í brjósti.
Aumingja fólkið. Voðalega hlýtur því
að líða illa og eiga lítið líf fyrst það
nennir að pæla í öllum þessum leiðindum.
Hér er t.d. einn að skrifa um skattvísitölu og hagvöxt.
Hvað þýðir það? Ég fæ höfuðverk.
Fréttir eru yfirleitt óskiljanlegar líka, a.m.k. finn
ég mig ekki knúinn til að kafa ofan í þær.
Hver höndin upp á móti annarri og allt í steik.
Er nú ekki nóg að fylgjast með þessu dottandi
fyrir framan sjónvarpið?
Ég veit það ekki. Þeirri úldnu tusku
var nuddað framan í mig um helgina að ég væri
orðinn fertugur og það taldist nokkuð hár aldur
fyrir ekki svo löngu. Fyrir nokkrum öldum voru fertugir karlar
komnir á efri ár með bullandi beinkröm og orðnir
tannlausir og sjóndaprir. Búnir að koma upp nokkrum krökkum
og þannig séð tilbúnir fyrir gröfina, búnir
að “uppfylla skyldur sínar við lífið sjálft”
eins og sagt er. Pabbi er á vissan hátt af þessari
kynslóð. Kannski eru foreldrar mínir á síðustu
kynslóð fortíðarinnar, og ég þá
væntanlega af fyrstu kynslóð framtíðarinnar.
Samkvæmt einni auglýsingunni sem nú er í gangi
uppfyllir maður skyldur sínar við lífið sjálft
með því að kaupa sér ákveðna tegund
af jeppa.
En ég fíla mig ekki eins og ég sé fullorðinn.
Reyndar ekki sem ungling heldur og þaðan af síður
eins og barn. Ég hef í grunninn ennþá sömu
áhugamál og þegar ég var tvítugur. Þetta
yrðu seint talin dygðug gildi: Að reyna að komast yfir
sem mest af músik og bíómyndum, og ég bíst
við að ég geti bætt við líka að reyna
að komast yfir sem mest af konum. Ég bý reyndar ekki
í foreldrahúsum, en það er líka eini munurinn
á mér síðan ég var tvítugur. Til
að teljast fullorðinn ætti ég eflaust að hafa
áhuga á því sem er í Mogganum framan
við skrítlublaðsíðuna. Ég vona samt innilega
að ég fái aldrei þann áhuga. Já takk,
ætli ég sé ekki bara ánægður með
að vera eins og ég er, tvítugur, fertugur; skiptir ekki
máli. Aldur er afstæður, svo ég vitni í
frasana.
“Jæja, ætli það sé ekki best maður
drífi sig,” segi ég, pakksaddur. Ég hef ekki hugmynd
um hvað Hjalti og Leifur voru eiginlega að röfla.
“Jeps,” segir Lilli og grípur helvítis Tom Waits diskinn
af borðinu.
“Við sjáumst,” segja þeir og ganga upp Skólavörðustíginn.
Kannski Hamarinn ætli að fylgja Lilla í Skífuna,
en það hefði nú verið eðlilegra að hann
yrði samferða mér.
“Gerum það,” segi ég. Á leiðinni niður
í banka átta ég mig á því að
hvorugur þeirra spurði mig út í gervipíkuna.
---
Kannski klárar maður þetta einhvern tímann.
En það kemur amk ein bók eftir mig fyrir jól og
dáldið öðruvísi en hin ókláraða
MMÚH, nebblega barnabókin Abbababb! með myndum e. Fanneyju
Sizemore.
---
Ægilegt hringl
er alltaf á þessum blaðamarkaði. Nú á
RT að taka við af SME á DV (eða starfa við hliðina
á honum) og áður hafa þeir RT og SME verið
á sirka 70 blöðum og tímaritum síðustu
2 árin, rifið þau eitthvað smá upp en svo skipt
um vinnustað jafnharðan. Ég held að rekstri DV sé
aðallega haldið úti til að hægt verði að
halda upp á aldarafmælið árið 2010. Ég
get ekki séð aðra ástæðu. Ég meina,
það er ekki eins og einhver sé að græða
á blaðinu og ekki er það neitt sérstaklega
skemmtilegt þessa dagana. Mallar frekar svona af gömlum vana.
Kannski RT eigi að peppa þetta upp? Og kannski tekst honum það.
Ísafold og Mannlíf hafa amk verið frekar frískleg
en verða það varla lengur fyrst RT er farinn.
---
Er þetta
kannski "guð"?
26.08.07
Alcan, Hydro, KBbanki og Lífeyrissjóður Pol Pots
kynna safnplötuna Lágmarkslaun 150 þúsund strax!,
eþs Topp 5!
The
Gossip - Standing in the way of control (Soulwax nite mix): Hún
er feit, kjaftfor og (almáttugur hjálpi mér) loðin
undir höndunum. Þess vegna er Beth Ditto, söngkona The
Gossip svona spes og áhugaverð. Bandið er svo sem ekkert
geðveikt æðislegt nema lagið Standing in the way of control,
sem er nútíma pönksál um líðan samkynhneggjaðra
og hugsað sem andsvar við leiðindunum í Bússstjórninni
(deyjið! deyjið!). Hér er enn eitt mixið, eftir Belgina
hressu. Allir á gólfið svo!
The
Magnetics - Hörku flykki: Bolurinn þoldi ekki vélræna
Stuðmenn og vildi bara gamla góða hjakkið. Því
miður sá ég ekki giggið enda nennti ég hvorugum
þessum bankatónleikum en hefði viljað sjá Stuðmenn
tölvast. Þar eru þeir nebblega á hornskökkum
heimavelli og alltaf er gaman að hornskekkju. Jakob hefur löngum
verið spenntur fyrir tölvutólum og er þessi spennandi
hugmynd örugglega frá honum kominn. Sirka 1981 var hann með
einhverjum Alan Howarth í tölvupoppbandinu The Magnetics og
saman gerðu þeir A historical glimpse of the future. Þar
innan um vokóderpopp og léttbræddar lágstemmur
(Jakob hafði jú dælt út los angelískum bæðingi
árin á undan) voru stuðlögin Súkkulaðisjúkur
og Hörku flykki sem komu út á 7" á svipuðum
tíma. Hörku flykkið er eftir Jakob og Valgeir Guðjónsson
og er að öllum líkindum eldgamalt Stuðmannagrín.
Textinn er góður og Chuck Berry vill fá Stefgjöldin.
Sé fólk í Jakob in ðe 80s-stuði má
benda á að Zúri
blöggaði nýlega Bone Symphony smellinum It's a jungle out
there og Bobby Breiðholt
bætti um betur og gróf upp jútjúbið af sama
lagi (aðalhlutverk Ragga Gísla og Stefán Jónsson).
Því má segja að eitísJakob sé það
heitasta á íslenska mp3blögginu í dag.
Pink
- Leave me alone (I'm lonely): Ég er alveg maður til
að viðurkenna fíling fyrir velskornu fm-rokki. Hér
er Pínkurinn með ofurgrípandi rokkfroðu eftir sjálfa
sig og einhvern Butch Walker. Pínk, sem lítur alltaf meira
og meira út eins og Billy Idol, er að gera góða hluti.
Ég myndi jafnvel fara á hana í Höllinni ef hún
kæmi aftur.
The
Germs - Lexicon devil: Maður var aldrei í fíling
fyrir amerískt pönk í gamla daga. Eða jú,
Ramones fílaði maður og Dead Kennedys, en svo voru stórir
auðir blettir hjá manni fyrir allri LA pönk senunni og
bönd eins og Black Flag, The Weirdos, The Dils, The Screamers, The
Dickies, The Plugz, The Zeros, The Bags og The Germs fóru að
mestu framhjá manni. Það var mikil anti-ameríkanisering
í gangi sem endurspeglaðist sterkast í því
að manni fannst hljómsveitin Surf Punks það bjánalegasta
í heimi. Miklu betra fannst manni breskt dót. En það
má alltaf endurmennta sig í pönki eins og öðru.
Ég get kannski ekki sagt að ég hafi misst af miklu en
platan (GI) með The Germs, sem löngum er talin klassískt,
er ágæt. Gítarleikarinn Pat Smear er enn að hjakkast
með þetta band en hann spilaði sem kunnugt er síðar
með Nirvana og Foo Fighters. Söngvarinn Darby Crash, sem var manna
fyrstur til að vera með hanakamb í Bandaríkunum (þ.e.
eftir indjánana) sprautaði sig viljandi yfir móðuna
miklu daginn áður en John Lennon var skotinn 1980. Hér
er eitt þekktasta lag Sýklanna.
Super furry
animals - Suckers: Þegar þessir komu til Íslands
1995 drakk ég mig fullan og hékk baksviðs og var með
kjaft. Einhver breskur blaðamaður frá mm eða nme eyddi
síðar heilmiklu púðri í að lýsa
fullum feitum fávita í grein um íslandsheimsókn
sveitarinnar. Ég var dáldið sár um tíma.
Síðar varð söngvarinn Gruff sannur íslandsvinur
og fór að hanga með Mugison á Vestfjörðum.
Nú er 8unda plata SFA að koma út, Hey Venus! Þetta
er rólegri plata en oft áður og ekkert rosalega fljóttekin
en mér sýnist þetta lag ná fyrst í gegn.
Enda gott lag.
---
Ég lét blekkjast af auglýsingunni "Nú geturðu
tekið gleði þína aftur því Rólósjeikinn
er kominn aftur." Ég vildi taka gleði mína aftur og dró
fjölskyldana með á Mcfukk til að fá sér
rólósjeik. Þetta var svo vont að ef ég væri
ekki ofæta þá hefði þurft að henda helmingnum.
---
Í Mosfellsbæ var allt vitlaust á Mosfellsdögum
og hvergi bílastæði að fá í Álafosskvosinni.
Samt voru líka Sandgerðisdagur, Viðeyjardagur og eitthvað
meira, en samt var allt troðið og líka troðið í
Kringlunni. Við nenntum ekki að troðast og rúntuðum
bara um hin úthverfalegu úthverfi. Við erum mikið
að spá í að flytja í Mosfellsbæinn.
Stutt í móanna. Og svo er þetta náttúrlega
orginal höfn fjölskyldu minnar. Þau voru reyndar flutt
í Kópavoginn 4 árum áður en ég fæddist,
en samt. Og svo hefur maður bara almennt góðan fíling
til Mosfellsbæjar. Þarna er t.d. besta bakarí á
landinu og Sigur Rós og Gildran. Og komin einhver geðveik sundlaug
sem maður þarf að prófa. Þannig að nú
vantar bara rétta húsið.
---
Jónas bendir á að
það standi til að loka Kolaportinu í 1 og 1/2 ár
og að þegar það opni aftur verði það
minna og lélegra. Þetta eru glötuð tíðindi.
Er nú ekki hægt að finna þessu pleisi almennilegan
stað til frambúðar? Þó lyktin sé slík
að algengur hrekkur sé að fara með rúmföt
fólks þarna inn er alltaf stuð að koma þarna.
Og ekki er vanþörf á stuði í Rvk. Það
sést að fólk vill stuð -- sbr. vinsældir Mosfellsdaga.
Það má sem kunnugt er ekki gefa pylsu og blöðru
án þess að 10.000 mæti á svæðið.
Hönnunarhnakkinn Arnar Gauti lýsti þessi vel á
sínum tíma og talaði um "rútufólk" því
allt fylltist á "rútudaga" í BSÍ. Meira stuð!
Rútustuð!
--- |