Hva'r'a'ske mar?
Dr. Gunni rövlar um sjálfan
sig
29.12.02
Þegar maður hefur étið á
sig gat er gott að fara í göngutúr. Spakmæli
dagsins voru í boði Nivea krems.
23.12.02
Ham vann Popppunkt og lítið við
því að gera nema óska þeim til Hamingju.
Það verður líklega önnur 16-liða keppni eftir
ár, haustið 2003. Við erum annars að komast í
jólastuð og hér er jólalag handa þér:
Lalli
og Lufsan - Jólalag
Ég ætla að gera ekki neitt í
nokkra daga og er það alveg stórfengilegt. Gleðileg
jól! 19:40
20.12.02
Hef skrifað síðasta þátt
PP oní Ham og Rokksveit Rúnars Júl. Ég held
að þetta verði ógeðslega spennandi og það
er næstum því að líða yfir mig af tilhlökkun,
spennu og stressi því þátturinn verður sýndur
í beinni útsendingu. Allt pláss orðið uppurið
í beinu útsendingunni annað kvöld, en það
verður svaka gilli á SPORTKAFFI
þar
sem úrslitaleikurinn í Popppunkti verður sýndur
í beinni. Ekki spillir eflaust fyrir að á Sportkaffi
verður ALLT VAÐANDI
Í FRÍU BÚSI
svo ég mæli stranglega með því að fólk
horfi á leikinn á Sportkaffi
og bragði á veigum. Eftir leikinn trítlar svo stóðið
úr sjónvarpssal niðrá Sportkaffi
og þar verður lokahóf Popppunkts framá nótt.
Allt fullt af poppurum, poppnördum og fríbúsi og þú
lætur þig ekki vanta.
---
Gubbi gamli alltaf góður, nú
með nýja grein.
---
Þeir eru almennilegir þarna hjá
Skjá einum. Gefa mér bók að eigin vali og hamborgarahrygg
á litlu jólunum í dag. Í Landsbankanum fékk
maður í mesta lagi minnisbók í plastkápu
af ódýrustu gerð. Minnir að ég hafi fengið
eitthvað almennilegt þegar ég var í Japis en held
ég hafi ekki fengið neitt á Fókus.
---
Djöfull nenni ég ekki að pæla
mikið í þessu með hana Ingibjörgu. Sem kjósandi
ERRlistans er mér nákvæmlega sama þó hún
bjóði sig fram og vonandi kemst hún á þing
en gamla skítafýlan hún Halldór Ásgrímsson
detti út. Ég held ég kjósi þetta gamla
kommagengi í Samfokk með kellinguna um borð því
hún er frekjuhundur og það er hefð fyrir frekjuhundum
í Forsætisráðuneytinu. Hún er allavega aðeins
skárri frekjuhundur en frekjuhundurinn sem er búinn að
frekjast um landið sl. 11 ár eða hvað það
er.
---
SPORTKAFFI Á MORGUN
KL. 20:30 FRÍTT BÚS!10:05
19.12.02
Baggalútur
hefur verið hakkaður. Ég er viss um að þetta er
tilkomið vegna þess að ég skrifaði að nýja
jólalagið þeirra væri "rusl" og því
hafa þeir verið veikir fyrir í sálinni þegar
Haffi tölvuþrjótur réðist á þá
með hakkavél sinni. Jólalag Haffa er hins vegar enn meira
rusl og því æpi ég í örvæntingu
og ríf í nefhár mín og vona að besta
síða landsins komi aftur. Koma svo! Haffi sökks Baggi
rúls!
---
Það er einstök og æðisleg
Alæta á Rás 2 í kvöld kl. 22:10 - 00:00.
Eingöngu verður spiluð íslensk tónlist útgefin
á þessu ári. Óskalagagesturinn er Árni
í The Worm is Green.
---
Best að einhenda sér í að
halda áfram að skrifa hinn ógurlega úrslitaPPPP.
08:43
16.12.02
Maður hefur engan tíma í blogg
ha? Jólarugl eitthvað. Það eru Ham og Rokksv Rúnars
Júl sem keppa um Popppunktsbikarinn 2002 á laugardaginn.
Fólk getur skrifað til
að tryggja sér sæti í beinu útsendingunni
og á geimið á eftir. Já það verður
Popppunktsgeim á eftir úrslitaleiknum.
---
Mikael
Torfason kynnti mig fyrir miklum finnskum meistara, málaranum
Kalervo Palsa. Hér eru 2 myndir sem ég stal af finnska
listasafninu. Endilega tékkið á Palsa. Hann fraus
í hel.
Ég fór á tónleika
með Sigur Rós og varð svona líka hrifinn. Lofrulluna
má lesa hér.
Keypti
voða fínan disk með Mugison,
sem er einhver íslenskur strákur sem býr að ég
held í London. 15:50
13.12.02
Gerðum tvo PP í gær, Rúnar/Fræbbbla
& "Nördaþáttinn". Ég veit hver mætir
Ham laugardaginn 21. en þið fáið að vita það
á laugardaginn. Svaka leikur en alltaf jafn leiðinlegt að
bæði liðin geti ekki unnið. Nördarnir af götunni
fóru á kostum og voru sannkallaðir nördar. Rifust
innbyrðis og fóru með ýmsan gagnslausan fróðleik.
Þeir mættu atvinnumönnum af fjölmiðlum en þið
fáið ekki að vita hver vann fyrr en laugardaginn 11. janúar.
Þá er bara eftir að taka upp einn þátt, úrslitaþáttinn
sjálfan, sem mér skilst að eigi að vera í
beinni. Ef þið viljið horfa á þáttinn
í sjónvarpssal skuluði senda mail á popppunktur@s1.is
12.12.02
ALÆTAN í kvöld á Rás
2. Ég ætla að leika og syngja við hvurn minn fingur
og spila svaka stuðlög (eða þannig). Óskalagagesturinn
er Kristinn Árnason, en hann er að gefa út tímamótaplötu
undir nafninu Call Him Mr. Kid. ALÆTAN er að vanda á milli
22:10 og 00:00. Svo er maður að taka upp PPPP. Mæting fyrir
áhorfendur kl. 16:30, en það er nú líklega
allt orðið troðfullt og ég ætti ekkert að
vera að tala um þetta hér.
---
Mountain Dew loks fáanlegur á Íslandi.
Sykraðri drykkur er vandfundinn. Þegar hljómsveitin Bless
fór í Spinal Tapíska ferð sína um Bandaríkin
1990 komust sumir okkar á bragðið og supum Mountain Dew
út í eitt til að haldast vakandi á hinum ægilöngu
keyrslum. Komumst náttúrlega á rosalegt sykurkikk
og gátum hangið vakandi í mini-vaninum léttilega
á milli Green River, Wyoming og Des Moines, Iowa. Ég held
reyndar að drykknum hafi verið breytt nýlega þannig
að það er ekki lengur hægt að nota hann sem vökudrykk,
nú er þetta bara ofursykrað 7-upp. Fyrst Mountain Dew
er komið þá hlýtur að vera stutt í að
einhver hafi siðferisþrek til að flytja inn rótarbjór
og því yrði ég fyrstur til að fagna.
---
Að flestu leyti heiladauður eftir poppspurningagerð
síðustu daga svo ég nenni ekki að hanga hérna
núna og þykjast hafa eitthvað að segja. 10:20
11.12.02
Jakob Bjarnar er með samsæriskenningu
í Fréttablaðinu í dag. "Kópavogssamsærið"
er að sjálfssögðu bara rugl en nokkuð ljóst
að Kátir piltar þurfa að vera með í næstu
syrpu af PPPP til að Jakob verði góður. Sit annars sveittur
yfir að semja spurningar í "nördaþáttinn",
en ég er búinn að velja þessa líka svakalegu
poppspekinga af götunni. Fyrst ber að nefna póstmanninn
ógurlega, Stein Skaptason, sem ber út tuldrandi fyrir munni
sér mannaskipanir í hinum og þessum hljómsveitum.
Þess má geta að Steinn þessi (eða SSSka eins
og hans listamannsnafn er) er einmitt fyrirsætan hér að
ofan í "ertu venjulegur"-bannernum. Keppandi götunnar nr. 2
er Kristinn Pálsson, eþs "Tjöddi", en stálminni
hans og poppvitneskja er yfirnáttúruleg. Hann er hálfgert
lukkutröll í poppgetraunum Sigurjóns & kó,
minnir að mörgu leiti á póstmanninn í Staupasteini
og er mikill snillingur. Þriðji "götunnar maður" er
Ölvir nokkur Gíslason, 26 ára starfsmaður Stöðvar
2. Hann er gangandi poppalfræðiorðabók og gífurlega
rokkvitur. Svakaleg örtröð var af poppheilum til að fá
að keppa og þurftu því miður margir frá
að hverfa. Vonandi verður hægt að veita öllum þessum
frábæru kandidötum tækifæri seinna.
---
Hið ógurlega götulið mætir
velsmurðum kanónum fjölmiðla: Óla Palla rokkheila
Rásar 2, Arnari Eggerti af Mogga, en viska hans er yfirnáttúrleg
og Andreu Jóns, en hún hefur lifað og hrærst í
popppottum heimins síðan Davíð Oddson var grínisti,
ef ekki lengur. Barátta þessara tveggja ofurliða verður
tekin upp á morgun, en ekki sýnd fyrr en 12. janúar,
en það verður síðasti þátturinn af
PPPP í bili. Þann 5. janúar er víst ætlunin
að sýna einskonar "best of PPPP".
---
Á morgun verður líka tekinn
upp seinni leikurinn í undanúrslitum (sýndur næsta
laugardag). Annað hvort Rúnar Júl og kó eða
Fræbbblarnir munu vinna og því mæta Ham í
sjálfum úrslitaleiknum sem verður sýndur í
næstum því beinni laugardaginn 21. desember. Jæja
áfram með smjörið. 13:10
10.12.02
Jæja er'ekki í stöði? Giggið
var fínt. Næsta verður líklega í febrúar
aftur á Grand rokk, en þá ættum við að
vera búnir að taka upp Flatusinn. Grand rokk er ágætis
pleis, menn höfðu það á orði að það
væri flassbakk í Duus-hús að koma þarna,
að það vantaði bara 16 eyrnahlífabúðir
og Yesminis Pestis á prógrammið.
---
Guðni Ágútsson eins og garðyrkjumaðurinn
í Being There, segir öryrkjakóngurinn Garðar. Fyndið.
Hann var snælduvitlaus yfir því sem HH sagði um
skjólstæðinga sína, bar á hann að vera
eins og nasisti að búa til blóraböggla úr
öryrkjum. Einhver misskilningur hér, er þaggi? Æ
nei, ég var búinn að lofa sjálfum mér að
eyða ekki þessari fátæklegu heilaorku minni í
eitthvað
pólitískt froðusnakk. 10:30
07.12.02
Giggið er í kvöld. Á GRAND
ROKK. Innvortis byrja stundvíslega kl. 23:59 en við teljum í
um kl. 01:00 í nótt. Svakalegt stuð. 500 kall inn og
öl í því, að mér skilst. Þú
þar.
---
Smettið á mér um allan bæ
í Helgarblaði DV. Get ekki farið í sjoppu án
þess að blasa við frekar óviðkunnanlegt. Eitthvað
kjaftæði svona í þessu viðtali, voða gaman.
---
Popppunktur sýndur í kvöld.
Ham á móti Í svörtum fötum hvorki meira
né minna. Ég get vottað um rosamikla spennu. Þá
er bara eftir að taka upp 3 þætti. Næsta fimmtudag
tökum við upp 2 þætti. Fyrst Fræbbblana-Rúnar
Júl og svo Poppspekilið götunnar á móti Poppspekiliði
atvinnumanna. Upptaka á fyrri þættinum byrjar kl. 17,
en kl. 19 á þeim seinni. Ef þú hagar þér
vel skal ég bjóða þér. Þú mætir
svona kl. 16:30 upp á Skjá 1 (Skipholti) og glápir
á upptökur. Á milli leikja koma pítzur og svo
er öl og gos og eitthvað í boði. Ég lofa engu
um að það verði pláss fyrir þig en hingað
til hefur verið hægt að troða ansi mörgum í
settið. Borgar sig semsé að mæta tímanlega.
15:39
06.12.02
Mæli með bloggi
Tóta Leifs. Hann línkar á þessa mótmælagöngu
mótmælagangnanna, sem er eitthvað svona artí
ísetning eða eitthvað grín sem auglýsingastofurnar
skilja. Allavega dúndur síða hjá þeim og
smá Helga
Hós Gallerí, sem er löngu tímabær snilld.
Ég skil reyndar ekki þessa þráhyggju í
Helga kallinum en hann um það. Hann þarf væntanlega
að láta jarða sig í kirkju þegar þar
að kemur, ef ég skil jarðarfararreglurnar rétt. Þá
datt mér í hug að vinir hans ættu að koma fyrir
gormabúnaði ellegar sjálfssleppibúnaði, þannig
að í miðri ræðu prestins myndi Helgi rísa
eldsnöggt úr kistunni með eitt af sínum mögnuðu
skiltum og af segulbandi yrði leikin brennisteinsræða um
Krosslaf og Ríó tríó og þetta dót
sem kallgarmurinn er búinn að vera með á heilanum
síðan amma var ung. Þetta er nú varla flókinn
grínbúnaður og það mætti etv efna til
keppni meðal háskólanörda um hvernig best væri
að hanna svona "kit". Úff jæja, þarf að láta
Gunna berja mig í leikfimi svo ámátahér. 07:06
05.12.02
Það er svo mikil gúrka þrátt
fyrir vertíðir ýmiskonar að þeir á DV
eru að spá í að skella mér á forsíðu
helgarblaðsins. Ekki amalegt plögg á skrallið á
Grand Rokk segi ég nú bara. Ekki er þó ósennilegt
að feitari gúrkubiti lendi inná borði blaðsins
og þá verð ég látinn fjúka. Nennti
ekki að horfa á fréttir í kvöld en sá
Mikael að niðurlotinn kominn og að bresta í grát
innan um öll gáfu- og gamalmennin á þessu bókmenntaverðlaunagiggi.
Hann og Thor og Pétur Gunn og Ingibörg og Andri Snær,
sem er eðaldrengur en kemur alltaf fyrir eins og góði ömmustrákurinn
og virðist höfða mjög til ammanna. Þarf að
lesa Lovestar, en held ég sleppi hinum útnefndu bókunum.
Frekar myndi ég lesa símaskránna afturábak
en að hætta mér í Thor og Pétur er orðinn
eitthvað svo gáfaður og löngu hættur að vera
popp eins og í Andrabókunum. Annars þarf maður
að tékka á Betunni, Stefáni Mána kannski,
þessi Áhyggjudúkkustrákur gæti verið
ókei, samt alltaf ókostur að menn séu fyrrverandi
ljóðskáld, ekki ósvipað og að segja að
einhver þjáist af grátsýki, svo langar mig að
lesa "Áform" eftir hann þarna Húllumbqcue. Það
er um að gera að velja gaumgæfilega enda tekur það
mig hálft ár að klára bók. Nei ég
lýg því. Svona 2 mánuði ef þetta er
þykkyldi. Hef engan tíma í lestur nema fyrir svefninn
og er alltaf ofurliði borinn af svefnsýki eftir 1 kafla eða
svo. Nú er ég með tvær í takinu; English
Passengers e. Matthew Kneale, sem er mjög skemmtileg þó
efnið sé kannski ekki að allra skapi: flutningur Breta til
Tasmaníu á 19. öld og dráp þeirra á
fólkinu sem var fyrir, og svo erða Songs in the key of Z
e. Irwin Chusid um naive og utangarðspoppara í gegnum tíðina.
Irwin þessi er með frábæra
síðu um þetta málefni, gomma af stórgóðu
stöffi í línkunum hans og sérstaklega mæli
ég með myndbandi
sem er gert af einhverjum flippara við lag sem umferðarráð
Japans lét að öllum líkindum gera. Algjörlega
frábært. Jæja, best að drífa sig í
slagviðrinu upp á Rás 2 og alætast. 21:10
---
Mörg hundruð manns hafa notfært
sér prófið
og vita nú allt um það hvort það er venjulegt
eða ekki. Það fór eins og mig grunaði að það
eru nánast eintóm frík sem leggja leið sína
hingað og sumt er meira að segja svo fríkað að það
fer að röfla yfir niðurstöðum þessa "vísindalega"
prófs mótmælir því að það
sé einhver frík og svona. Virkilega gaman að því.
---
Svaka lofrulla um PP í Frjettabl. í
dag og svo vill Helgar DéVaff fá viðtal þetta
hættir aldrei og það er gott. Fleiri tugir keppenda (allt
kallar - sörpræs sörpræs) eru komnir á blað
sem huxanlegir keppir í PP-spesíalið sem gengur undir
nafninu "nördaþátturinn". Ég veit hreinlega ekki
hvað ég á að gera í þessu, allir virðast
vera algjörir heilar sem munu rústa aumingja fjölmiðlalandsliðinu.
Ætli maður endi ekki bara með því að kasta
upp á hvaða götunördar komist að?
---
Sá mynd
í gær á nýja DVDtækinu. Keyptum Philips
á afslætti hjá B.Blöndal bassaleikara Ham, en
hann vinnur sem kunnugt er hjá Heimilistækjum. Hafði illar
bifur (bifur?) á þeim stað, en hef endurskoðað
þá afstöðu. Mér er sagt að forðast
Expert, BT og Elko eins og heitan eldinn og ætli maður sé
ekki búinn að heyra nógu margar hryllingssögur til
að trúa því.
---
Úti gaula vindkviður eins og draugar
frá helvíti. Hugurinn reikar óneitanlega til Hawaii.
Spáð er enn meira ofsaveðri í kvöld og því
Herbert glapræði að gera eitthvað annað en að
hlusta á Alætuna á Rás 2, helst undir sæng
í vönduðum ullarsokkum með heitt kakó á
brúsa. Að vanda hefst dagskráin kl. 22:10 og stendur
til miðnættis. Það sem boðið er upp á
er helst:
! Óskalagagestur: Helgi Valur í
hljómsveitinni Moonstyx!
! Lög af bestu erlendu plötum ársins
skv. smekk þáttarstjórnanda!
! Lög af flúnkunýjum íslenskum
plötum!
! Kynning á tónleikum Dr. Gunna
og Innvortis á Grand rokk á laugardaginn nk.!
! Pólskt post-pönk!
! Margfaldlega margt meira!
Vonum bara að ég fjúki ekki
upp í Esju á leiðinni upp í útvarp og leikin
verði eintóm Santana-lög í staðinn.
---
Samt alltaf gaman í óveðri.
Það er notalegt að vera heima og heyra í tilkynningum
í útvarpinu að hitt og þetta sé að falla
niður. Enginn skóli og þetta eða hitt dottið upp
fyrir vegna veðurs. Veðrið ýtir á pause-takkann
og þetta er svona næstum eins og jólin. Best auðvitað
ef rafmagnið fer af. Þá hlunkumst við aftur um öld,
kveikjum á kerti og lesum. Best að tékka á batteríunum.
10:30
04.12.02
Hallgrímur Helgason skrifaði grein
um daginn sem ég er þegar búinn að segja að
mér fannst góð. Hjörvar sjónskerti skrifaði
í dag og segir Hallgrím ekkert tala fyrir venjulega fólkið
og að fatlaðir öryrkjar séu engin slefandi frík
heldur alveg jafn mikið venjulegt fólk og Helgi. Menn greinir
sem sé á um hvað sé "venjulegt fólk", en
allir stjórnmálaflokkar landsins munu keppast um það
á næstu mánuðum að höfða til "venjulega
fólksins" því sá hópur er talinn sá
fjölmennasti. Sjálfur er ég mjög óvenjulegur
enda höfðar ekkert af þessu drasli til mín. Já
ég þori alveg að segjast vera frík og er ekki að
þykjast vera einhver venjulegur maður, ég er þó
ekki að þykjast vera eitthvað "betri" en aðrir því
öll munum við vera rotnandi ormadrulla innan tíðar
og því öll jafn "venjuleg" í sorglega hallærislegum
dauða okkar. Til að hjálpa gestum við að finna út
hvort þeir séu venjulegir eða frík hef ég
komið upp miskunnarlausri
könnun sem mun úrskurða um þessa risastóru
spurningu; ERTU VENJULEG(UR)? og þá hversu venuleg(ur) eða
óvenjuleg(ur) ertu? Venjulegasta fólkið fær vegleg
verðlaun: Fær að vera venjulegt.
---
Vorum að æfa í gær og
erum svona líka rosalega þéttir. Á laugardaginn
byrja Innvortis á miðnætti en við tökum við
um kl 01:00. Þetta verður í síðasta skipti
(og í það þriðja) sem við leikum opinberlega
á þessu ári. Er að spá í að henda
í plötuupptökur strax í jan eða feb og taka
FLATUS LIFIR! upp á skömmum tíma og inn á teip,
ekkert djöfulsins Protoolskjaftæði. Við erum með
lagið "Mikilvægasti maður í heimi" á nýju
safnplötunni frá Smekkleysu, ALLTAF SAMA SVÍNIÐ,
sem er dúndur fín tvöföld plata. Það
lag verður ekki á Flatusi, en þar verða hinsvegar
um 16 lög, hvort öðru betra, bara fokk og rokk og ekkert
helvítis væl. 10:59
03.12.02
Ef ég væri manik-dípress
væri ég í þunglyndiskasti núna. Ég
er latur og sef til kl. 8 sem er náttúrlega alveg svakalegt.
Sprett altso ekki upp kl. 05 fullur af fjöri eins og þegar ég
er í maníu. Svo er hausinn nær tómur og ekkert
í gangi þar. Stend bara út á tröppum og
reyki og það eina sem mér dettur í hug að hugsa
um er trommutakturinn í laginu Nonni stubbur. Bööö.
Maður þarf að hrista þetta slen af sér. En maður
bloggar ekki mikið á meðan maður hefur ekkert betra
að segja en bööö. Bööö. 09:30
01.12.02
Jólamánuðurinn byrjaður,
vei! Þar sem aðeins 4-lið eru eftir í PPPP hef ég
komið upp nýrri skoðanakönnun: Hvaða
band vinnur Popppunkt? Svo hef ég sett hér upp massífa
auglýsingu fyrir Grand Rokks giggið eftir viku, en þar
kem ég fram ásamt hljómsveitinni og Innvortis frá
Húsavík (Flosi Þorgeirsson er komin í bandið)
spila líka.
---
Dabbi segir: "skaustu þig nokkuð fimlega
í görnina með því að japla á því
hversu mikið sama þér um hvort hinn eða þessi
sé hommi og hverjum einhver riðlast á og rekur svo rúsínu
í hommaendann með því að dreifa slúðri
um kakóhræringar hjá hverjir-voru-hvar-pakkinu! Greinilegt
að það leynist lítill Séð-og-heyrt-perri
í Gunna litla fyrst að slúðrið var nógu
merkilegt fyrir annars skemmtilegt blogg". Takk fyrir að benda á
það augljósa.
---
Gestir vilja fá fjölmiðlunga
á móti liðinu sem vinnur en það er nú
of seint í rasshárin gripið því spekilið
götunnar á móti fjölmiðlapoppspekúlöntum
hefur nú þegar verið auglýst og við búnir
að fá einar 20 tillögur um fólk í götuliðið.
Ekki þó örvænta því það
eru uppi allskyns áform um PPPP-framtíðarinnar og nokkuð
ljóst held ég að þetta "konsept" er bara rétt
að byrja...
---
Ónefndur spyr um verðlaun fyrir sigurliðið
og mun það vera utanlandsferð með Terra Nova Sól
eða eitthvað til Portúgal + hótel auðvitað.
Þar munu Fræbbblar, Í svörtum fötum, Ham eða
Rúnar og synir fá að liggja í góðum
fíling eftir jól í a.m.k. viku. Og svo erða auðvitað
heiðurinn: Poppspakasta hljómsveit Íslands 2002. 10:40
30.11.02
Þá skilst mér að búið
sé að loka Sölu varnarliðseigna á Grensásvegi.
Harmafregn. Fátt er skemmtilegra en að gramsa á ruslahaugum,
sérstaklega ef ruslahaugurinn er útlendur, og nú hefur
sú gleði verið tekin af manni. Get þó ekki
sagt að ég hafi keypt mikið þarna. Eitthvað nammi
þó, sem reyndist allt útrunnuð og fúið
á bragðið. Ég keypti KISS plötu þarna
einu sinni, leit seventís, þá hafði ég aldrei
heyrt í Kiss og var að athuga hvort ég fílaði
bandið. Ég hafði enn ekki heyrt pönk eða nýbylgju,
var Bítlaaðdáandi og hélt kannski að ég
fílaði Kiss. Mér fannst platan leiðinleg. Ég
reyndi að hlusta á hljómsveitina Rainbow en fannst hún
ennþá leiðinlegri. Mér fannst ELO aftur á
móti fínir og keypti Jazz með Queen og fannst hún
góð. Ég þorði aldrei að láta pabba
sjá mig með Kiss-plötuna því hann hefði
orðið brjálaður að heyra að ég væri
að kaupa rusl af Kananum. Sala varnarliðseigna búin, bú
hú. Hvað fer nú Alfreð Þorsteinsson að
gera? Já einmitt, hann hefur nóg að gera. Framsóknarrusl.
---
Þá á maður bara Kolaportið
og Góða hirðinn eftir til að róta í rusli
og ekki er það nú svo sem amalegt.
---
Hallgrímur Helgason með fínan
pistil í Fréttablaðinu um hvað maður nennir innilega
ekki að kjósa í vor. Það er ekkert nema gamalt
rusl í boði svona svipað og Sala varnaliðseigna. Af
hverju er Alþingi ekki bara lokað líka? Og þetta
"unga" lið sem er að "stimpla sig" inn, djísús! Eins
og gamall kúkur úr rasshárunum á gömlu
rassgötunum. Helgi Hjörvar og Guðlaugur Þór
báðir komnir á Alþingi innan árs og geta
farið í gamla sandkassaleikinn hjá Agli til eilífðarnóns.
Ætli þeir verði enn í sandkassaslagnum þegar
maður verður sextugur? Ótrúlega ömurlegt. Hin
íslenska mannfæð sést hvergi betur en í
slöppu úrvali í kosningum.
---
Erpur og Eyjólfur voru hressir í
Alætunni. Töluðu svo mikið að við komum bara
tveim óskalögum að.
---
Jóhann Helgason var verulega slísígóður
hjá Jóni í gær. Þeir fengu það
á sig, hann og Magnús Þór, að vera hommar.
Hvað er þetta með tónlistarmenn, afhverju eru allir
svona uppteknir í að spá í hverju þeir ríða?
Ýktast er dæmið með rokkarann Sigga Johnny, en um
hann gekk sú kjaftasaga að hann væri ríðandi
rollum hægri vinstri. Þetta var ægilegur töffari
en svo byrjuðu kjaftasögurnar með að hann væri alltaf
í einhverju fjárhúsi að stinga í ær.
"Mheee mheee," jarmaði fólk á eftir honum út á
götu. Strákgreyið brotnaði saman út af þessu
og varð alki.
---
Nú er fólk slefandi yfir Jónsa
í Svörtum fötum og telur sig fullvisst um að hann
sé hommi. Og hvað með það þó hann
væri hommi, hvaða máli skipti það? Hann á
reyndar konu og barn, en það átti Anna kynskiptingur líka.
Hvað er málið? Má hann ekki vera hommi í leynum
í friði, eða bara streit gaur með hommalega takta? Alveg
er mér sama og tek ekki þátt í svona smáborgaralegu
baknagi. Erpur sagði mér reyndar að Jónsi og Sævar
Örn tískulögga væru alltaf á kojufylliríi
saman, en það er nú örugglega bara af því
að þeim finnst gaman að tala um allt álagið sem
fylgir frægðinni, nýjustu hárlökkin og eitthvað
svona. Þeir eru örugglega ekki að þvælast í
görnunum á hvor öðrum og ef þeir eru að
því er mér líka alveg sama. Þeir mættu
búa
í görninni á hvor öðrum án þess
að það kæmi mér við eða ég nennti
að jappla á því með öllum sem ég
hitti.
---
Ekki er ég nú svo bjartsýnn
á að Conan átakið virki. En Gummi
Jóh sendi mér frábæra ábendingu,
heimasíðuna Conan
for Europe þar sem maður getur sótt Conan síðustu
viku á ram-fælum.
---
Síðasti leikurinn í 8-liða
keppni Popppungs er í kveld. Fræbbblarnir mæta Pops
og þetta er svakalegur þáttur, enda miklir meistarar
og fræðingar í liðunum. Ekki missa af því.
Arnar Eggert, Óli Palli og Andrea Jóns munu skipa "Poppspekilið
Fjölmiðla", sem keppir við "Poppspekilið Götunnar"
í leik sem verður tekinn upp 12. des en líklega ekki
sýndur fyrr en 5. janúar. Ert þú poppspakur
og átt heima í götuliðinu, eða veistu um algjöran
poppspeking sem veit alltaf allt í Popppunkti? Sendu
strax línu því við erum að skipa í
liðið. Svo verður sjálfur úrslitaleikurinn sýndur
í beinni 21. desember..., en við erum auðvitað strax
byrjaðir að tala um "spin-off" og "part II". 12:00
28.11.02
Svaka Alæta í kvöld á
Rás 2. Rappbræðurnir Sesar A og Blazroca mæta og
láta vaða og spila rappið sem ól þá
upp í óskalögum. Þar að auki verður þrusumúsikk
að vanda.
---
Hef látið bloggið sitja á
hakanum enda verið að semja tvo Popppunkta sem verða teknir
upp í dag. Hef verið fullur af taugaveiklun og þráhyggju
yfir að vera nú ekki að gera einhverja helvítis vitleysu.
Það væri spænall að klikka á hvílíkri
ögurstund og nú er runnin upp. Fyrst erða þátturinn
Fræbbblarnir-Pops í 8-liða úrslitum. Liðið
sem vinnur mætir Rokksveit Rúnars Júl í 4-liða.
Þessi þáttur Fræbbbl-Pops verður sýndur
á laugardaginn. Þar á eftir verður tekinn upp fyrri
leikurinn í 4-liða: Í svörtum fötum-Ham. Liðið
sem vinnur þann leik er komið í sjálfan úrslitaleikinn.
Maður svitnar nú bara við tilhugsunina.
---
Spielberg bara búinn að næla
sér í kvikmyndaréttinn á Tinnabókunum.
Hmmm... Maður vonar það besta. Ætli það verði
ein mynd á ári til ársins 2025? Hefur einhver séð
myndina Tinni og bláu appelsínurnar? Ekki ég. Enn
einu sinni fyrir mörgum árum vorum við Sigurjón
Kjartansson eitthvað að flækjast í Kringlunni
og þar var dularfullur náungi að selja Tinnateiknimyndir
á spólum. Þetta var svaka safn og rándýrt
en við Sigurjón keyptum sitthvorn pakkann á svaka raðgreiðslum.
Þetta var auðvitað hálfgert rusl og miklu verra en
teiknimyndir sem síðar komu í Sjónvarpið.
Þar talaði Felix fyrir Tinna og ég var alltaf að röfla
við hann um þetta blindfullur á 22. Með einhverja
Tinnabrandara og svona. Gaman að því. Ég las það
í ævisögu Hergé að hann hafi verið að
mála abstraktmálverk í frístundum. Hefur einhver
séð þessi verk? Ef einhver veit um slóðina
má hann endilega senda mér hana.
---
Frí mússikk á netinu. Paul
Lydon, aka Blek/ink er með þrjú lög hér.
Hush Records hefur gert Bjarkar-tribjút sem er eingöngu niðurhlaðanlegt.
Allskonar bönd að spila Bjarkarlög. Hér
er það. 10:30
27.11.02
"Stóra" sænálin kom loksins
í fréttunum í kvöld. Ef vel var gáð
mátti sjá mig, D.Hefton, SSSka og S.Varúlf á
myndunum. Allir með hraði til Sandgerði!
---
Var að koma af þessari bullmynd Harry
Potter II. Hef ritað dóm.
23:50
24.11.02
Sáuði fréttir á Rúv?
Allt í skralli hjá tæknideildinni og ég hélt
að Hirst færi að grenja yfir öllu ruglinu. Hvað
er með þessa textavél hjá sjónvarpinu? Hún
hefur verið meira og minna bilandi síðan ég man eftir
mér. Er þetta kannski textavél af tegundinni United?
Hvernig væri nú að reka Randver og kaupa nýja textavél
fyrir það sem sparast? Og svo kom ekkert um sænálina
í Sandgerði. Þetta er náttla hneyksli! 20:10
---
Þá veit ég bókstaflega
allt um akureyskt djönkfúdd þökk sé gestum
í
píkubókinni.
Mongó pízzur, ég get ekki gert að því
að finnast það fyndið. Hvað næst? Spassa borgarar?
Annars er góð tíð í vændum fyrir djönkfúddista
í aðhaldi í Vesturbænum: Subway er að opna
í JL-húsinu. Já! Hvað ætli eigi samt að
koma í gamla Popeyes-pleisið í Smáranum? Tónleikastaður
kannski? Popp-Ice? 18:00
---
Á Akureyri var einu sinni pulsuvagn inn
í miðjum bæ sem á stóð "Pulsa '96" og
var mikið gaman að því. Á Akureyri var/er líka
asíski staðurinn Ping Pong. Nú hafa Akureyringar toppað
sjálfan sig í fáránlegum nöfnum á
skyndibitastaði því á Mýrarvegi er kominn
nýr pízzastaður: Mongó pízzur.
---
Ekkert um Sænálina í fréttum.
Hlýtur að koma í kvöld. Gísli Marteinn með
fínt prógramm með KK og EK, þarf að redda mér
þessari bók þeirra. Slökkti á Rúv
til að fá ekki þunglyndiskast yfir "Spaug"stofunni, en
Raymond var fínn. Horfði á PP til að athuga hvort
það væri ekki í lagi. Svörtfötungar náttla
með mikið burst, enda með gott lið. Svo horfðum við
á mynd.
08:01
23.11.02
Velheppnuð menningar og fræðsluferð
um Suðurnes. Vogar = Bær í nokkrum blóma. Mikið
af húsum til sölu samt. Bryggja. Röndótt búð.
Sjoppa og bensínstöð. Keflavík = Rokksýningin
í bókasafninu er vel til þess fallin að létta
lund og svala poppfísn. Burnsbassi Rúnars. Grænar stultur
Maríu. Gunni Þórðar á bakvið trommusett
og Gvendur "þribbi" kynlegur kvistur og heimsmeistari í
harmóníkuleik. Maður sem ég vissi ekki að
væri til. Duus-húsi hefur verið bætt í veitingargagnrýni.
Garður = staður í nokkrum blóma. Bryggja. Röndótt
búð. Sjoppa og bensínstöð.
---
Sandgerði með sitt sædýrasafn.
Kjörin leið til uppfræðslu. Ég hafði frétt
af miklu furðudýri, "sænál", sem hefði náðst
lifandi og væri nú til sýnis. Var búinn að
sjá fyrir mér hvæsandi þriggja metra skrímsli
í stálbúri. Spennandi. Sænálin reyndist
samt agnarsmá, eins og fljótandi barnaskóreim. Af
ætt sæhesta. Fyrsta kvikyndið af þessari tegund sem
næst á lífi í 50 ár eða eitthvað.
Hress forstöðumaðurinn þó furðu léttur
í umgengni við þetta fágæti. Potaði í
nálina með priki til að fá hana á hreyfingu.
Á staðnum var myndatökumaður frá Sjónvarpinu
að mynda ósköpin. Forstöðumaðurinn tók
nálina upp úr búrinu og setti í flatt plastbúr
til að betri mynd næðist. En þegar meistarinn sá
að áhugi sjónvarpsmannsins fór minnkandi með
nálina stakk hann upp á að gefa kolkrabbanum til að
fá "aksjón". Sótti stærðarinnar krabba og
lét í búr kolkrabbans. Kolkrabbinn var stærðar
flykki og réðst með hraði á krabbann. Henti sér
á hann eins og það skrýmsli sem hann er. Byrjaði
svo og soga úr honum lífið. Krabbinn reyndi að verjast
en kolkrabbinn hafði vitanlega betur enda búinn sogskálum.
Gífulega spennandi atriði sem við, maðurinn frá
Rúv og skólaheimsókn frá hernum horfði
gapandi á. Kolkrabbinn skipti litum á meðan drápið
fór fram. Undursamlegt. Í sama búr og aksjónið
var hafði forstöðumaðurinn sett einmana og sturluðan
lax. Hann hafði búið í sama búri og kolkrabbinn
í 3 ár og var orðinn afskræmdur vegna stöðugra
bardaga. Margir laxar höfðu verið í búrinu í
gegnum tíðina og margir kolkrabbar, en nú voru þeir
bara tveir eftir, kolkrabbinn og laxinn afskræmdi allt hitt liðið
hafði verið étið af hvort öðru eða þessum
tveim. Ég beið bara eftir að forstöðumaðurinn
kampakáti henti sánælinni þarna út í
líka, eða kannski eins og einum marhnút, til að fá
enn meira "aksjón". Við sluppum við að borga því
Sjónvarpsmaðurinn bað okkur um að taka spóluna
með upp á Rúv. Sænálin og kolkrabbinn verða
því væntanlega í fréttum í kvöld
eða á morgun og fyrir alla muni ekki missa af því.
Stórfengleg heimsókn!
---
Við sáum hvergi Lencie glenna sig
út í glugga sama hvað við rúntuðum um
Sandgerði svo það var brunað til Hafna = mesta eymdarbælið
á Suðurnesjum (fyrir utan Þorklákshöfn), absúlútt
ekkert í gangi þar. Reykjanesviti = glæsileg náttúru
og útsýni að Eldey unaðslegt og loks Grindavík
= Bær í uppsveiflu. Bryggja. Röndótt búð.
Sjoppa og bensínstöð. Og matsölustaður. Trausti
hafði á orði að í öllum þessum stöðum
væri alltaf einn sportbíll fullur af glottandi hnökkum
sem reykspólaði hring eftir hring um plássið, stoppaði
fyrir utan sjoppuna þar sem kastað væri kveðju á
gelgjukássuna sem þar héngi, og svona mánuð
eftir mánuð. Nokkuð til í því.
---
Það er frétt í Mbl í
dag um menn sem hafa gert útgáfuskrá yfir útgefna
tónlist á Íslandi. Þetta er stórkostlegt
framtak og ég naut mjög góðs að uppkasti að
þessari skrá þegar ég skrifaði "Eru ekki
allir í stuði?" Einn af höfundum skráarinnar tekur
þó sérstaklega fram í þessu viðtali
að þeir hafi ekki haft með einhverjar kasettur sem ég
á að hafa gefið út, stundum ekki meira en í
einu eintaki, af því þær fóru ekki "í
almenna sölu". Þetta er nú bara rugl því
allar útgáfur Erðanúmúsik hafa verið
í minnsta lagi 100 stk og alltaf verið seldar í búðum
eins og Gramminu, Geisla og Hljómalind. En það er kannski
ekki almenn sala? Það hefði verið mjög auðvelt
fyrir þá félaga að kópía og peista
útgáfulista
Erðanúmúsik í þessa fínu skrá
sína, en ég er samt ekkert fúll.
---
Ég kannast samt alveg við það
sem hann segir að ég hafi gert í einu eintaki, en ég
efast um að hann sé að meina það, enda vita fáir
af því bauki. Það eru kasettur sem ég gerði
með því að taka endalaust upp á milli tveggja
kasettutækja og spila með og bæta smá við svo
að hljómgæðin versnuðu við hverja töku.
Við þetta dundaði ég mér á tímabilinu
1981 - 1984 og kallaði mig "GLH". Spólurnar eru eftirfarandi:
Véfréttin talar
Heilagt heilaæxli
3ja
Ugasta
Kysstu mig áður en ég dey
Maðurinn sem býr til hjörtu
Gamlárskvöld Flugeldarnir
Gamlárskvöld
Fjóshaugur
Djúpsjávarfiskarnir
Endalausir mánudagar
Það "besta" af þessum spólum
kom út á vegum Erðanúmúsik á spólunni
"Nunnurusl" (150 eintök). Í tilefni af því að
Nick Cave er að koma er hér útgáfa mín
á Birthday Party-laginu "Sonny's
Burning" (af spólunni "Fjóshaugur"). 18:30
---
Jibbí jei. Gönguklúbburinn
Blómey hefur vaknað til lífsins en er reyndar bara ferðaklúbbur.
Í stað Bigga hefur Stefán
Varúlfur gengið í liðið. Er ætlunin að
ferðast um Suðurnes í dag og kíkja í Rokkmynjasafnið.
Ferðasagan kemur ef ég nenni.
---
Mynni á Popppunkt í kvöld
á Skjánum. Rokkslæðan mætir Í svörtum
fötum, en sigurvegari kvöldsins fer á móti Ham
í 4-liða úrslitunum. Tryllingsleg barátta framundan.
Svo fer að styttast í auka-popppunktinn sem verður á
milli poppspekinga fjölmiðla og poppspekinga götunnar. Við
erum að velja þrjá spekinga í götuliðið
og það er um að gera að þú skrifir okkur
með kontakt upplýsingum og spaklegum vísunum ef þú
vilt vera í þessu liði. Líka ef þú
veist um einhverja spekinga og vilt benda á þá. Þessi
þáttur verður sýndur rétt fyrir jól
og verður örugglega geggjaðslega skemmtilegur. Skrifaðu
okkur á Popppunkt.
---
Úrslitaviðureignin verður svo
28. des og í beinni útsendingu frá einhverjum stórum
stað með nóg af plássi vilji fólk horfa á
þetta. Við stefnum á svaka sjóbiz en ég
skvíla um það síðar. Annars komum við ágætlega
út úr þessari Gallup-könnun, vorum með 16.5%
áhorf af aldrinum 10-50 ára. Ég bjóst samt
auðvitað við miklu meiru enda svo bjartsýnn alltaf,
hélt við Felix yrðum á sérstakri auglýsingu
með eitthvað "Takk fyrir okkur" dæmi, hafandi slegið
nýtt met í sjónvarpssögunni eða eitthvað.
Ég veit samt að áhorfið er orðið miklu meira
núna en það var þegar þessi könnun var
gerð.
---
Og Spaugstofan með 65%. Hvaða geðveiki
er það!? Maður missir alla trú á mannkynið
þegar maður fær svona tusku í smettið. 09:51
22.11.02
Ég var að hella mér yfir blaðið
Ský um daginn, aðallega af því það er
svo mikið glansblað en hafði samt aldrei haft viðtal við
mig. Haldiði svo ekki að blaðið hafi haft samband og tekið
viðtal við mig í fyrradag. Páll Stefánsson
og allt að taka mynd. Þetta kallar maður viðbrögð
í lagi. Ský, rosalega gott blað, mar.
---
Sagði Árna Þór frá
Conan átakinu en hann vissi auðvitað af því.
860 manns er nú kannski ekki alveg málið samt. Árni
gantaðist eitthvað með það að hann skildi byrja
að spá í þessu þegar 1% þjóðarinnar
hefðu skrifað sig (þá þurfa bara 2000 í
viðbót að skrá sig), en ég veit hann er Conan
aðdáandi sjálfur svo allt getur gerst. Maður "krossar
puttana". Ég vil þó þakka öllum sem "lagt
hafa málinu lið" og um að gera að skrá sig áfram.
Þetta átak er alls ekki meiri spænall en öll þessi
"safna fyrir nýjum sendi"-átök hjá Ómega
og fyrir það ber að þakka. Vonandi kemur Conan einhvern
tímann. Sei sei já mikil ósköp.
---
Bloggið situr á hakanum en maður
hefur taugar til þess og lætur það ekki drabbast
niður. Það er bara svo andsk mikið að gera alltaf.
Og nú er ég farinn að hlaupa eins og tilraunarotta á
rafmagnsbretti. Bless á meðan. 07:58
20.11.02
Svaka aksjón. Ég og Mikael Torfason
súperstjarna verðum hjá Kjartanssyni í fyrramálið
og tönglumst á ýmsu spaklegu. Svo erða náttla
ALÆTAN annað kveld en óskalagagesturinn er enginn annar
en Biggi Veira í GusGus. Annað flúnkustöff í
þættinum er frumspilun á XXXR-lagi, slatti af glænýju
íslensku stöffi, súrrealískt popp frá
örlí eitís, hvað varð um heilann á Baader
Mainhof-liðinu og kakó-giggið
á Grand Rokk verður kynnt í þaula.
---
Fyrsta vetrargigg Dr. Gunna fer fram á
Grand Rokk laugardagskv. 7 des. Farðu að safna. Nýtt og
gamalt á stuðprógramminu. 20:30
19.11.02
Er nú karlgarmurinn hann Mikael Jackson
endanlega búinn að tapa glórunni? Var í fréttum
áðan eitthvað að hrista smábarn út á
svölum. Mikið hlakkar mig til að lesa opinskáu ævisögunni
hans, hvenær svo sem hún kemur út. Hér
er
hægt að skoða hvernig Mikael hefur breyst í gegnum
tíðina. Viðurstyggilegt.
---
Sjitt vesen mar, gangurinn fullur af prófkjörsrugli
frá Sjallanum. Þetta er þannig að Lufsan er skráður
Sjalli þó hún hafi barist fyrir því í
mörg ár að sleppa. Þegar hún var sextán
ára kom hraðlest Sjálfsstæðisflokksins við
á Ísafirði og bauð krökkunum á Tottmobiletónleika.
Allir ísfirskir unglingar mættu í góðum
fíling til að heyra og sjá Pöddulagið og önnur
meistaraverk. Búsið flæddi um allt á þessu
balli og í ölvímunni var krökkunum smalað inn
í Flokkinn. Þaðan kemst maður aldrei. Lufsulufs hefur
margoft hringt og beðið um að vera tekin af skrá og
henni er svarað með því að það sé
nú minnsta málið. Síðan gerist auðvitað
ekkert og nú er gangurinn fullur af myndum af velsnyrtum smjörkúkum
sem æpa "Lægri skatta!" og "Enga tolla!" hver í kapp
við annan eins og þraut þjálfaðir sirkusapar.
Engin furða að þetta svarthol dauðans sé stærsti
stjórnmálaflokkur landsins.
---
Eftir velgrundaða íhugun hef ég
ákveðið að ég sé fyrir ofan pólitík
hafin. Alveg sama þó einhver grey fari nú að grenja
um að "allt sé pólitík". Ég mun því
ekki leggja leið mína niðrí Ráðhús
í vor. Ég ætla ekki að taka þátt í
þessu. Ég met tíma minn meir en svo að ég
leggist svo lágt að fara að "nota atkvæði mitt".
Þetta er allt sama draslið og enginn af hinum svokölluðu
stjórnmálamönnum er mér og mínu undursamlega
sjálfi samboðinn. Ég mun ekki horfa á einn einasta
Silfur Egils í viðbót og loka augum og eyrum og halda
fyrir nefið þegar þetta illalyktandi raus fer að skvettast
yfir allt úr hlandkoppum leiðindanna. Ef einhver vill kaupa
atkvæði mitt er ég þó eftirgefanlegur fyrir
"rétt verð" (5000 kall minnst).
---
Keypti góðan disk áðan,
"Þið eruð ekki að taka mig nógu bókstaflega"
með \7oa frá Ísafirði. Fæst í neðanjarðarbúðum
við Laugarveg á skitinn 500 kall.
---
Fór til Hvammstanga að heimsækja
tengdó. Á Hvammstanga er ekkert. Við fórum þó
á "fatamarkað" en á þessum markaði voru færri
föt en í fataskápnum mínum og á ég
þó ekki mikið af fötum.
---
Ég veit að ég hef verið
latur og upptekinn en það er nú bara af því
ég er búinn að vera svo latur og upptekinn. 17:10
15.11.02
Jæja, þá er "maðurinn
sem opnaði blogg-umræðuna" kominn með sína eigin
bloggsíðu. Það var mikið! Ég er auðvitað
að tala um Sigurjón
Kjartansson og þarna bloggar hann villt og galið um sjálfan
sig og þáttinn.
---
Það var neyðarástand á
Djúpu laugarfólkinu í gær upp á S1. Það
er víst meira en að segja það að fá lið
í þáttinn. Þau höfðu bókað
einhverjar þrjár Bond-stelpur (þær hafa víst
verið saman á einni blaðsíðu í Séð
og heyrt) og Hálfdán (skemmtilegt nafn alltaf) fór
ásamt rándýru tökukrjúi til að hitta
þær á kaffihúsi. Svo leið og beið og
engar Bond-stúlkur komu. Þegar Hálfdáni var
farið að leiðast þófið hringdi hann í
eina Bondstelpuna sem tilkynnti honum þá að þær
væru hættar við. Og ástæðan: "Við
viljum ekkert að þið séuð að nota okkar frægð
í Djúpu lauginni". HAHAHAHAHA! Örvæntið þó
ekki því það verða einhverjir Herra Ísland
hnakkar í staðinn.
---
Hér
er
heimasíða þess sem ber ábyrgð á veggjakroti
um Guð á Kaffibrennslunni. Ég hef einmitt séð
þetta krot. Veggjakrot er hverfandi listgrein á Íslandi
og er aðallega um að kenna uppgangi spreybrúsakrafsins sem
er bara eitthvað óskiljanlegt "tag" og kjaftæði. Það
getur vitanlega verið nokkuð flott eins og t.d. það sem
er á veggjum olíutankageymslunnar út í Örfyrisey.
Það eina sem ég man eftir af hefðbundnara kroti er
"Hvað er raunveruleikinn?" sem er á vegg á Túngötu
og á klósettinu á Kaffivagninum á Granda er
"Iron Maiden" og "Móri". Hafa gestir rekið augun í gott
veggjakrot?
---
Ef manni finnst eitthvað leiðinlegt á
maður þá bara að halda kjafti af því
"aðgát skal höfð í nærbuxum sálar"?
Ef mér finnst eitthvað leiðinlegt í sjónvarpinu
á ég þá bara að skipta um rás? Tja.
NEI! Seinfeld er til dæmis frekar slappur, skárri en margt
þó. Helvítis Cosby viðbjóður er þó
það versta. Þetta var í sjónvarpinu á
laugardagskvöldum öll mín unglingsár og hvílík
helvítis leiðindi. Maður var að krepera (?) yfir þessu
drasli og svo var þessu þröngvað inn á mig
í Greyhound rútu í fyrra og ég hélt
ég myndi biðja um að fá að fara út og
æla, eða hreinlega labba. Æ æ æ. Ef eitthvað
ætti að endursýna væri það vitanlega Löður,
eða Soap, sem voru fínir þættir og langt síðan
maður hefur séð þá. Kannski helvítis
ógeðin í Moral Majority (sem fengu það í
gegn að þættirnir voru bannaðir í USA það
eina sem sá afdankaði fastistahópur "afrekaði") hafi
brennt allar spólurnar?
---
Í gær var tveim massaþáttum
af PP rúllað upp. Millarnir og Rúnar Júl og synir
tókust á í blóðugri keppni og svo tókust
á Rokkslæðan og Í svörtum fötum og þar
slettist popparablóð um veggi í æðisgenginni
baráttu. Tveir dúndur þættir komnir í
hús (á spólu) og þið sjáið þetta
á morgun og eftir viku. Alætan rokkaði svo spikfeitast
og Móri kom með Pétri vini sínum. Dáldið
í freðnari kantinum félagarnir, en diskurinn hans Móra
er nú samt frekar góður. Hann er eini rapparinn sem maður
skilur hvað er að segja og vildi hann meina að allir hinir
séu svona þvöglumæltir vegna drykkju.
---
Svo ætti ég að komast yfir eintak
af nýju XXXR bráðlega og get líklega byrjað
að "tísa" á hana í næstu Alætu. Nú
tek ég upp ósjálfráða skrift (eins og sannur
súrrealisti) og læt Erp tala í gegnum mig: "Seinasta
plata var snilld en þessi er mun betri. Mikið um læf hljóðfæri;
trompet, trommur, bassar, kór, gítar, selló o.s.frv.
Við erum að fara að trukka fólk í rassgatið
eins og á seinustu plötu en í þetta skiptið
er það ósmurt. Allt þetta ritskoðunarkjaftæði
er tekið fyrir, handrukkarasjittið allt, svartigaldur á
latínu, geðveiki, sjálfsmorð, allt yfirskilvitlegt,
illir andar, internet bullið, eftirmál 11. september, alkóhólismi,
Árni Johnsen fær alvarlega á baukinn og svo er fokkin
jólalag á plötunni... sem heitir Jólarassmök,
frekar óhefðbundið jólalag reyndar. Platan heitir
Þú
skuldar, Gotti hannar koverið (sem hannar Sigur Rós) Meðal
gesta: Dóri Lax, Omar úr Quarashi og Barði í Bang
Gang sem gestalagasmiður."
Þetta er lagalistinn:
1. PRELUDIO
2. DREKK ALLA UNDIR BORÐIÐ
(25 LÍTRAR) ásamt B.S.Q.D. kór RVK-Vest
3. ÞÚ SKULDAR ásamt
U-Manden
4. VAKNAÐU
5. RABIS CANIS ásamt Dj Paranoia
6. BLOGGA BLOGGA
7. BREKKUSÖNGUR? ásamt
Dj Deluxe
8. JIHAD ásamt Dóra
Lax
9. EINS OG SKEPNAN DEYR
10. G2 ásamt Dj Gummo
11. BLAUTT MALBIK Í REYKJAVÍK
12. TAKTU ÞITT EIGIÐ ásamt
Ómari
Þá veistu það.
---
Púla mig í svonefnt form á
líkamsræktarstöðinni með harðstjóranum
Gunna sem hefur aldrei séð jafn stirðan mann og mig. Dómsmálaráðherrann
Sólveig er alltaf þarna líka, liggjandi við hliðina
á mér kófsveitt í latexi og emjandi þegar
Raúl hinn taglaði tekur á henni. Gaman að þessu.
Ég kemst vonandi í fermingarjakkafötin í febrúar
því annars kæri ég. Heyrirðu það
Gunni! Nei nei. 10:10
14.11.02
Rafmagnið fer af hverfinu kl. 9 og kemur
ekki aftur fyrr en kl. 12. Einhver viðgerð í gangi. Djöfuls
bögg. Hvað á maður að gera, lesa við kertaljós?
Jú auðvitað áttu að gefa mér bók,
Beta. Og auðvitað eiga allir að gefa mér bækurnar
sínar og diskana sem þeir eru að gera. Strákar
í Örkumli gáfu mér 4-laga disk í gær.
Þeir eru að spila á miðvikudaginn á Vítalín
með Arnari Eggert og Heiðu. Kostar 700 kall inn og nýi diskurinn
fylgir með. Dáldið sniðugt kerfi. Svo komu hér
strákar í hljómsveitinni Moonstyx og gáfu mér
diskinn sinn. Voða vandað stöff.
---
Það er svona törn hjá mér
í dag. Tökum upp 2 þætti af Popppunkti en það
eru víst komnir svo margir áhorfendur að ég á
ekkert að vera að biðja ykkur um að mæta. Mig hlakkar
nú frekar til að sjá niðurstöður úr
áhorfskönnun Gallup sem ku eiga að birtast á mánudaginn.
Trúi ekki öðru en svona 3% sé að glápa
á þáttinn. Já og svo erða ALÆTAN í
kvöld. Dúndurdagskrá þar. Glæparapparinn
Móri kemur og velur óskalög (best að fela veskið
sitt) og svo sullast gæðamússikk frá öllum
áttum saman í ilmandi hressar 110 mínútur frá
kl. 22:10 til 00:00.
---
Ferðamannaiðnaðurinn á Hawaii
rær að því öllum árum að sannfæra
ferðamenn um að þeir verði að fara á "Luau"
því annars sé Hawaii-ferðin ekki fullkomnuð.
Ég of Lufsan fórum því eðlilega á
Luau. Þrjú Luau eru í boði á Oahu og við
fórum á það sem við héldum fínast,
Paradise Cove. Þetta er í stuttu máli einskonar Grísaveisla.
Rútur sópuðu túristum upp af gagnstéttum
hótela á Waikiki og svo var keyrt út í sveit.
Í hverri rútu var feitur heimamaður með ukulele og
lék glöð lög, sagði brandara og hvatti gesti til
að drekka sig fulla og skemmta sér vel. Svo fór maður
í biðröð og komst loks inn á svæðið.
Þar voru langborð framan við svið og allskonar sýingar
á "lífinu á Hawaii" í boði. Villimaður
í hagfræðinámi klifraði upp í tré
og náði í kókóshnetu, strápilsagellur
sýndu húla, gaurar köstuðu neti, hægt var
að fá sér henna tattó og kaupa minjagripi allt
semsagt eftir bókinni. Svo var heilsteikta svínið sótt
í jarðarofninn með miklum látum og auðvitað
gert sjó úr því. Svo var étið af
hlaðborði (bæði eitthvað sem átti að vera
hawaii-ískt og svo bara pasta og eitthvað) og horft á
eggjandi dansatriði. Exótískir drykkir með. Allt
algjört plast auðvitað.
---
Hawaii eru búnir að koma sér
upp rútínu og þar er komin mynd á það
sem sýna skal ferðamönnum sem "authentic hawaiian". Hér
vantar alveg svona heildarhugsun í túrsimann. Hvað eiga
ferðamenn hér að éta vilji þeir eitthvað
íslenskt? Pulsu með öllu, kók og prins auðvitað,
en þetta er kannski ekki það sem við viljum halda á
lofti. Hér hafa verið tilraunir, Light Nights sjóið
og Fjörukráin, en ég er með pottþétt
dæmi fyrir framtakssama experience the authentic Icelandic Thorrablot
It's a Cultural Experience! Það mætti auðveldlega
koma því inn að heimsókn í Thorrablot væri
eitthvað sem allir ættu að reyna að íslandsferðin
væri ekki fullkomnuð án þess. Túrista Thorrablotið
mynda fara þannig fram að rútur myndu sækja ferðamenn
á hótelin í Reykjavík. Í hverri rútu
væri hress tónlistarmaður með langspil, kassagítar
eða blokkflautu sem myndi halda uppi stuðinu, syngja "Krummi svaf
í klettagjá" og eitthvað með Sigur Rós og
hvetja fólk til drykkju. Þarna gætu menn eins og Gísli
blindi, Árni Johnsen, strákarnir í Buff og fleiri
hressir fengið fast djobb. Rúturnar myndu keyra austur fyrir
fjall og enda í Eden, sem héti nú auðvitað
Valhalla en það mætti halda innréttingunum. Gestir
myndu fá ískalt brennivín í plaststaupi við
innganginn. Svo væru básar þar sem túristar fengju
innsýn í líf okkar. Leikarar gætu farið
með túlkun sína á velvöldum atriðum úr
þjóðararfinum, íslenskur hundur væri til
sýnis og íslenskir hestar myndu ferja smábörn
milli enda gamla gróðurhússins. Næst yrði kallað
til hlaðborðs. Í boði væri öll helstu sýnishornin
af íslenskum þorramat plús pasta og hamborgarar svo
eymingja túristarnir fengju nú eitthvað í magann.
Undir borðhaldinu myndi Guðni Ágústsson í
víkingabúningi tönglast á einhverju úr
Völuspá sem enginn skildi en öllum þætti rosalega
"authentic" Næst kæmu nýútskrifaðir leikarar
með skilmingar- og áflogsatriði, en í lokin kæmi
einhver þessara aragrúa söngkvenna sem eru til á
Íslandi og myndi syngja Bjarkar-lög í Bjarkar-múnderingu.
Ég veit af fenginni reynslu að útlendingunum myndi finnast
söngkonan alveg eins og Björk. Það gerir hreimurinn.
Er þetta ekki málið? 08:45
11.11.02
Ekki nennti ég að horfa á Edduna
í gær, enda vissi ég alveg hver myndi vinna og var
búinn að spá því öllu réttu
í Fókusi. Leigði bara skítsæmilega mynd.
Veit einhver hvar maður getur sótt nýlega Simpsons-þætti
annarsstaðar en í gegnum Winmx eða álíka forrit?
Ég er nebblega alltaf að sækja Friends fyrir konuna á
þessum stað hér
og það væri gaman ef einhver vissi af álíka
námu fyrir Simpsons (besti sjónvarpsþáttur allra
tíma). Sendu línu ef
þú veist um slíkt. 19:40
---
Mér finnst nú frekar leiðinlegt
ef fólk heldur að PPPP sé bara eitthvað svindl (eins
og kona sem hringdi í mig 1 mínútu eftir þáttinn
á laugardaginn hélt fram frekar pirruð) eða þá
að ég haldi með einhverjum liðum (eins og B-kall vill
meina í gestabók).
Ég tel mig alveg hlutlausan aðila enda væri annað
frekar hallærislegt. Mér fannst lagið bara miklu skemmtilegra
hjá Ham, en að vísu fóru að renna á
mig tvær grímur þegar á þáttinn
leið og svo runnu á mig enn fleiri grímur þegar
ég sá þáttinn heima í sjónvarpinu.
Ég get alveg játað að liðin hefðu líklega
átt að fá jafnt. Ef bæði liðin hefðu
fengið jafnt fyrir þennan lið hefði þátturinn
spilast allt öðruvísi en hann gerði. Liðin hefðu
valið þyngri spurningar í Valflokkum o.s.frv. Ég
var kominn með efasemdir varðandi stigagjöf mína og
þess vegna leyfði ég Ný dönsk að halda
stigi sem ég hefði auðveldlega getað tekið af þeim.
Það var ekkert eðlilegt hvað Stefán Hjörleifsson
svaraði videóspurningunni um Vini vors og blóma fljótt,
enda kom nafn hljómsveitarinnar óvart inn á skerminn
í borðunum hjá okkur þó það hafi
ekki sést í útsendingunni. Ég held að bara
ég og Stefán höfum tekið eftir þessu. Ég
hefði því getað sagt: Augnablik, nafnið á
flytjandanum kom á skerminn og ég dæmi þetta
stig af Ný dönsk, en ég gerði það ekki
af því mér var farið að líða eins
og ég skuldaði ND stig fyrir mitt hlutlæga mat fyrr í
þættinum. Ég vona að þessi opinberun "lægi
öldurnar" varðandi þetta mál. En þegar öllu
er á botninn hvolft er gaman að sjá hvað margir láta
þetta koma sér við og eru með skoðanir á
þættinum.
---
"Bara" 757 komnir í Conan-stuðninginn.
Áfram krakkar - sendið nú meil á ættingja
og vini og látið þá skrifa sig á plaggið
svo við náum 1000 og ég geti farið að böggast
í Skjánum. 17:55
09.11.02
Ég er nú bara svei mér þá
farinn að halda að þetta Mikael vs Úlfhildur dæmi
hafi verið útpæld auglýsingabrella frá upphafi.
Aðra eins ókeypis auglýsingu er nú varla hægt
að fá og Mogginn í dag er löðrandi af fréttum
af málinu og ég veit ekki hvað og hvað. Glæsilegt!
Hvað sem öðru líður ættu nú flestir
að tékka á bókinni Samúel
sem liggur til grundvallar þessari "deilu". Helvíti góð
bók hjá Mikka djöfli
og svona stykki sem lætur mann líða frekar illa að
lestri loknum en þó fullum af eðlilegum spurningum um
eðli heimsins, spurningum sem maður nennir dags daglega ekki að
velta sér upp úr (því þetta eru óþægilegar
spurningar sem við getum hvort eð er ekkert gert í), svona
svipaðar siðferðisspurningar og Þjóðverjar
nenntu lítið að spá í þegar Adolf var
og hét. Þriðji heimurinn er náttúrlega ekkert
annað en Gyðingar okkar tíma í gasklefum eymdar og
volæðis. Þá er nú þægilegra að
hlusta bara á gott rokk eða tékka á góðri
mynd er þaggi?
---
Samkvæmt könnun
telja þátttakendur Ný dönsk og Ham sigurstranglegustu
liðin í Popppunkti. Fast á hæla þeirra koma
Milljónamæringarnir. Öðrum liðum er spáð
lakara gengi. Þessi könnun verður opin áfram enda
ljóst að spádómarnir munu aðlagast þeirra
nöpru staðreynd að nú fara liðin eðlilega að
detta út í 8-liða úrslitunum. Leikurinn í
kvöld virðist vera sá mest spennandi, sé tekið
mið af spám, því þá mætast tvö
sigurstranglegustu liðin; Ný dönsk og Ham. Þar sem
leikurinn hefur nú þegar verið tekinn upp get ég
staðfest að þessi leikur er alveg hreint hryllilega spennandi
og helst magnþrúngin spenna fram á síðustu
sekúndu. Ég hélt ég myndi líða út
af við púltið og var farinn að skjálfa eins og
bytta eftir mánaðarlanga drykkjutörn. Ef ég væri
þú myndi ég því ekki undir neinum kringustæðum
missa af þessum leik og helst vera búin(n) að éta
staðgóða máltíð áður en ósköpin
skella á. Annað eins taugastríð hefur ekki sést
hérlendis síðan í landhelgisstríðinu.
Á Skjá 1 kl. 21:00 í kvöld.
---
Horfði á ruglaðan Gnarrenburg
í gær. Hljóðið heyrist. Sýndist þetta
vera ókei prógramm, engin gargandi snilld kannski en betra
en margt. Finnst allur þessi ha ha þykjustuleikur í
kringum "kraftaverkamanninn Snorra" þó frekar leiðinlegur.
Eitthvað svona, hí hí gáum hvort einhverjar kellingar
falli ekki fyrir þessu-dæmi. Annars fínt hjá
Snorra að grínast með þetta konsept, skopast að
þessu Gunnar í Krosinnum/Gulli Stjarna liði, og snúa
upp á gömlu frasana. Ásmundur var góður í
að taka viðtal við Fatleiðindi Slimm og Barði traustur
að vanda. Ég held þetta sé svona þáttur
sem verði betri í hvert skipti og ég ætla sko að
glápa á ruglaðann skerminn eftir viku.
---
Blessuð Tilvera
setti línk á Conaninn
og það var ekki að sökum að spyrja: Undirskriftirnar
fóru að hrúgast inn. Takk fyrir það. Mér
sýnist við ná 1000 í næstu viku og þá
get ég byrjað að böggast í sjónvarpsstjóranum.
---
Ég var næstum búinn að
skrá mig í Samfylkinguna til að kjósa Jakob í
framboð. Já ég veit, ha ha, en maður veit aldrei
hvenær maður getur átt hönk upp í bakið
á honum og hann er allavega sá eini sem hefur talað um
vægi "nýgildrar" tónlistar. Veit svo sem ekki hvort
einhverjir aðrir en Stuðmenn kæmust á spenann og svo
er ég líka ekkert svo viss um að ríkisstyrkir
myndu gera eitthvað fyrir nýgildingsdótið. Mér
finnst það í eina röndina lummó að menn
séu að væla út pening fyrir utanlandsferðum
og meikdraumum, en í hina röndina veit ég að ég
er ennþá að borga af skuldabréfinu síðan
ég var sjálfur í meikinu. Já, ég veit:
Það var enginn að biðja mig um að standa í
þessu og ég kaupi það alveg. Afskiptaleysi Ríkisins
hefur líka gert popparana hérna harðari og meira töff
en lið í Danmörku eða Hollandi, en þar fá
menn að mér skilst úthlutun um leið og þeir
kaupa sér kjuða. Á meðan Ríkið getur varla
hlúð að sjúklingum og sinnt eðlilegu öryggisneti
þá má púkk undir rassgatið á poppurum
alveg sitja á hakanum mín vegna. En það er reyndar
smá misræmi í þessu því á
meðan hin nýgilda fær ekkert fær hin sígilda
tónlist einhvern helling, þó menn í þeirri
deild vilji örugglega fá miklu meira. Æi leiðindi.
En ég allavega nennti ekki að standa í þessu bulli,
að skrá mig í stjórnmálaflokk sem höfðar
ekkert sérstaklega til mín til að kjósa kall sem
hugsanlega gæti greitt götu mína síðar meir.
Eitthvað loðið við það. Síðast þegar
ég tók þátt í svona tækifærisleik
varða fyrir tilstilli Þórs Eldon sem vildi ólmur
að Unun spilaði á styrktartónleikum fyrir mann sem
hafði verið forstjóri Eurocard og átti einkaþotu
og allt sem við gætum örugglega fengið að nota þegar
mikið lægi við síðar, eða svo hélt
Þór allavega. Við lékum því á
laugardegi fyrir hálftómu húsi í Háskólabíói
og hlustuðum á snarpa ræðu Ástþórs
Magnússonar sem þá var að stíga sín
fyrstu spor til bjargar alheiminum. 06:37
08.11.02
Hvað er Súrrealismi? Þetta
var brennandi spurning sem ég velti fyrir mér í 2.
bekk í menntaskóla. Ég keypti listaverkabækur
og rýndi í verkin án þess að komast til
botns í málinu, enda var ég raunsætt ungmenni
sem hafði nokkrum árum fyrr gert veðurfræðitilraunir
út í garði. Hvað er súrrealismi? Hvert eru
mennirnir að fara?
---
Ég var með Kristjáni Franklín
Magnússyni leikara í einhverri íhlaupavinnu um sumarið.
Í gegnum eitthvað batterí hjá Stúdentaráði
vorum við tveir ráðnir til að grafa fyrir rotþró
hjá sumarbústað einhverrar ríkrar kerlingar á
Þingvöllum. Hún keyrði okkur uppeftir og nuddaði
sig bakvið gluggatjöldin á meðan við Kristján
hömuðumst berir að ofan með skóflur og haka. Kristján
var með síðar krullur á þessum tíma
og ekki byrjaður í leiklistinni. Ég var brúnn
vöðvamassi með ægifagran rauðan makka. Nei nú
lýg ég, Kristján var líklega byrjaður í
leiklist í menntaskólanum eða eitthvað. Ríka
kerlingin gaf okkur heimatilbúið túnfisksalat oná
brauð í pásum þar sem við hvíldum okkur
við sveitta hakana. Hún gjóaði augunum æst
á bera líkama okkar á meðan við rifum í
okkur brauðið. Á þessum tíma (1981) hafði
ég aldrei smakkað túnfisk eða túnfiskssalat
áður og fannst þetta mikið lostæti. Æ
síðan hefur túnfiskur átt fastan sett í
mínu lífi. Við Kristján töluðum um listir
á meðan við hámuðum í okkur kost kerlingar.
Hann var í Leonard Cohen eða eitthvað álíka
og í huganum hugsaði ég, "helvítis hippi er þetta"
en sökum almennrar kurteisi sagðist ég hafa "gaman af sumu
sem Cohen hefur gert". Kristján kom alveg af fjöllum þegar
ég spurði hvort hann þekkti ekki Medúsa hópinn,
en ég var áhangandi Medúsu-hópsins á
þessum tíma, enda þeir hinir ægilegustu súrrealistar
þó í seinni tíð hafi sannleikurinn runnið
upp fyrir mér að þetta voru bara hressir menntaskólastrákar.
Nei Kristján vissi ekkert um Medúsu og þar með
var hinn andlegi dauðadómur undirritaður í huga mér.
---
Þess má svo geta að leikar æstust
í sumarbústaðnum þegar við höfðum
étið túnfiskinn í viku og kerlingin gat ekki hamið
sig lengur. Frá því öllu verður sagt í
safaríkum smáatriðum í bókinni "1981
Annee Erotique" (e. Þránd í Gati, útg. Krossgátublaðið
2007).
---
En það var þetta með Súrrealistana.
Árið 1981 gaf poppdeild Medúsu, hljómsveitin Fan
Houtens Kókó, út tvær spólur sem við
vinirnir hlustuðum hugfangnir á. Ég reyndi að fá
botn í lög eins og "Það er handfang á innvolsinu"
og "Grænfingraðir morgunhanar" en lítið gekk. Meðlimir
Medúsu-hópsins voru sem guðir. Þeir komu sér
upp pínkulítilli sýningaraðstöðu, Gallerý
Skruggubúð, í skúr sem nú hefur verið
rifinn en var við hliðina á pleisinu sem löggan böstaði
fjárhættuspilavítið í um daginn. Þangað
mætti maður á hverjum laugardegi og sá torræða
myndlist eftir snillinga á borð við Jóhamar, Alfreð
Flóka og Ólaf Engilbertsson. Einu sinni á tónleikum
með Þey í Nefs komu þeir Þór Eldon
og Sjón og gáfu sig á tal við mig. Lýstu
yfir hrifningu á fyrstu ljóðabók minni, "Tíu
göt á hausinn eða blóðbolla", sem þá
var nýkomin út. Sú bók var þó
ekki súrrealísk heldur meira í stíl við
Einar Má, en bók hans "Er einhver í Kórónafötum
hér inni" hafði líka mikil mótunaráhrif.
Ég var auðvitað í hrifningarvímu yfir að
þessir andans menn, Sjón og Þór, hefðu yrt
á mig að ég hafði mig upp í að heilsa
þeim á götu eftir þetta.
---
Í listasögu í MK skrifaði
ég ritgerð um "Súrrealisma" ritgerð sem nú
er sem betur fer týnd. Þetta var örugglega einhver alger
steypa en ég lagði leið mína á Bárugötuna
þar sem Sjón bjó ásamt móður sinni
og lét hann fá ritgerðina til að yfirlestrar. Hann
sagði mér að koma nokkrum dögum síðar og
ég var farinn að sjá fyrir mér kaffiboð þar
sem hann myndi ausa yfir mig úr viskubrunni sínum um súrrealisma
og andleg málefni. Þegar ég mætti kom fyrst enginn
til dyra en svo kom hann á nærbuxunum drulluþunnur og
örugglega með einhverja svaka gellu upp í rúmi því
þessir helvítis súrrealistar óðu í
beibum. Mér var auðvitað ekki boðið inn heldur bara
látinn fá ritgerðina án mikilla skilaboða
að handan.
---
Ég er því engu nær
um svarið við spurningunni Hvað er Súrrealismi? nema
ef svarið sé: "Það þegar regnhlíf og
ryksuga elskast á skurðarborði" eða "Bull í mönnum
sem geta ekki betur".
---
Ég og Steini gítarleikari gerðum
allavega súrrealíska ljóðabók þegar
við biðum eftir að Haukur trommari kæmi á æfingu.
Bókin var gefin út í 5 eintökum og heitir eðlilega
"Beðið eftir Hauk". Hér er eitt ljóð, líklega
það skásta:
LIST Í DÓSUM
Andvaka,
fáðu þér eintak eða
tvö
þrír apar
því umbúðirnar eru komnar
úr prentun
kræktu glóð í frosinn
lim mávsins
og iljaðu þér á kuldanum
---
Svo til að nudda salti í sárin
var ég aldrei tekinn inn í Medúsaklíkuna heldur
einhverjir tveir strákar sem mér fannst ekkert geta. Annar
hét Bessi og ég veit ekkert hvar hann er í dag, hinn
gengur nú undir nafninu Kiddi Kanína. Hann var á þessum
tíma oft í miklu stuði á Gauki á Stöng
og fór með súrrealískar klámvísur
með risastóran svartan nornahatt á hausnum.
---
Those were the days my friend.
---
Undursamleg er hin nýja veröld internetsins.
Nú er meistari Stefán
Einar búinn að tengja á mig en ég ætla
samt að vona að hlekkjunin á milli okkar sé ekki
eins og "tvíkóngdur brúnn gúmmískaufi
á milli endagarna SE og GLH", eins og Dr. Schnitzel kemst svo skemmtilega
að orði í gestabók.
Þar eru gestir alveg gapandi hressir yfir Stefáni, sem bæ
ðe vei hefur aldrei heyrt minnst á orðið "smjörkúkur".
Hann útskýrir það þó sjálfur
nokkuð vel sem: "Það er einhverskonar samheiti yfir unga
karlmenn sem styðja Sjálfstæðiflokkinn af heilum hug
og þeir verða víst "últra" við það
að ganga með slaufu". Nú ætla ég rétt
að vona að orðið "smjörkúkur" sé komið
inn í tungutak ykkar lesendur góðir og að þið
notið það í tíma jafnt sem í hinn svokallaða
"ótíma", hvað svo sem það er. Kannski ótími
sé eitthvað súrrealískt, ha? 10:30
---
07.11.02
Sumir virðast halda að ég hafi verið einhver fábjáni
þegar ég var í S.H.Draumi og ekki einu sinni vitað
hver Nick Cave var. Annað eins bull hef ég nú bara ekki
heyrt! Aðrir halda að ég hafi einhvern tímann verið
með tagl sem er annað eins djöfulsins kjaftæði!
Það er þó aldrei að vita nema ég safni
kraganum í tagl svona um sextugt, að því gefnu
að Lufsan leifi (eða leyfi kannski? Helvítis yppsilon
leiðindi). Ég get þó sagt ykkur "sanna" rokksögu
af hljómsveitinni Ný dönsk. Þeir voru nýbyrjaðir
að æfa og á labbinu niðrí bæ. Þá
sáu þeir handskrifað auglýsingaskilti í
glugga matsölustaðarins Kabarett. Á því stóð
"Heitur matur í hádeginu". Vá, flott nafn á
hljómsveit mar!, sagði Bjössi við Danna sem samsinnti.
Í nokkrar mínútur hét því þessi
nýstofnaða hljómsveit "Heitur matur í hádeginu".
Þegar þeir gengu fyrir hornið á Lækjargötu
sáu þeir annað skilti í glugga bókabúðarinnar
sem var þar. Á því skilti stóð vitanlega
"Ný dönsk" og framtíðin var ráðin. 19:03
---
Húrra!
Stefán Einar, 19 ára, er framtíðarhetja "frjálslyndra"
Sjálfsstæðismanna. Hann er með ilmandi
hressa heimasíðu og aðdáendamynd af Bjössa
Bjarna og allt. Á mínu kommúníska æskuheimili
voru svona gaurar kallaðir "smjörkúkar" og mikið gaman
hent að slíkum. Í þá daga fylgdu hornspangargleraugu
lúkkinu. Það er frábært að þessi
dýrategund er ekki útdauð, því ég
hélt að eina eftirlifandi skepnan af tegundunni væri Birgir
Ármannsson (held ég að hann heitir), annar slaufu-smjörkúkur
sem er í einhverjum banka eða eitthvað. Lögfræðingur
kannski. Kannski geta hann og Stefán fjölgað sér
svo Smjörkúkarnir deyi ekki út? Ung-sjallar hafa meira
verið að færa sig yfir í "töff"-lúkkið,
sbr. Ingvi Hrafn, sem skrifaði
undir
Conan-plaggið
og segist ætla að vinna að því að fá
Conan á Rúv. Greinilega töff náungi þessi
Ingvi, nema einhver hafi verið að feika undirskriftina hans. 11:59
---
Alætan á Rás 2 kl. 22:10
í kvöld. Sprengifullur stuðþáttur. Guðmundur
Steingrímsson í Ske mætir
með óskalögin og ég ætla að leika lög
af plötum með ekki verri flytjendum en Deerhoof, Danielson Famile,
Pönkhljómsveitinni
Svarthöfði, Junior Senior og Thoranide
svo
eitthvað sé nefnt.
---
Ég er ekki alveg að nenna þessu
endalausa Leoncie dæmi hjá Sigurjóni og Kó.
Kolvitlaus kerlingabeygla (en ég er náttúrlega bara
rasisti) sem Sigurjón gæti þessvegna mjólkað
misáhugavert efni út úr fram á vorið 2006.
En til hvers? Hvaða nýju fletir munu koma upp? Kellingin ætti
að vera á sterkum geðlyfjum og manni verður hálf
óglatt að hlusta á þetta óða hatursfruss
sem rennur upp úr henni. Skil ekki hvernig Sigurjón nennir
þessu.
---
Jú Kjáni er stórkostlegur
djúpsjávarfiskur og bara sá þriðji sem dreginn
er á land.
---
Vil taka það fram að ég
hef ekkert á móti strákunum í 70 mínútum
þeir eru snöggtum skárri en alveg hellingur. Til dæmis
ágætis viðtal við Gnarr í gær. Húrra
fyrir öllum sem finnst gaman að þeim! Og húrra fyrir
þeim! 08:15
---
06.11.02
Nick Cave að koma, ha? Svaka frétt
í gær. Ég missti af kallinum 1986 en þekki þá
sem brutust inn í bát eftir sjóveikistöflum fyrir
hann. Þetta var á námsárum mínum erlendis
og ég var mikið fan. Minnir að daginn eftir að ég
kom út hafi ég fengið þær fréttir
að Nick Cave væri að koma og að Reagan og Gorbashev ættu
að hittast í Höddi hás. Ég auðvitað
sár og svekktur út af Cave þá aðallega.
En ég sá svo sem ágætt stöff þarna
í Lyon. Residents og Suicide og eitthvað svona dót. En
ég var svo mikið Cave fan að þegar platan Your Funeral
My Trial kom út notaði ég síðustu aurana í
að kaupa eintak og lifði á túnfiskdósum einni
á dag í viku. Ætli maður verði ekki að
sjá karlhelvítið fyrst hann er að koma þó
ég sé reyndar ekkert fan lengur og finnst þetta allt
eins hjá honum á síðustu tíu plötum
eða svo. Maður er að vinna upp glataðan tíma með
því að mæta.
---
Djöfull er hann góður þessi
fræðslumyndaflokkur um hafið frá BBC. Á mánudaginn
var uppáhaldið mitt á dagskrá: Djúpsjávarfiskar.
Það er aðeins búið að skoða um 1% af hafsbotni
en samt eru til stórfenglegar myndar af allskyns furðufiskum.
"Gapandi" (minnir mig að hann hafi heitið) er t.d. einn risastór
kjaftur með skott og svo voru líka einhver fáránlegar
marglyttur sem voru með flugvallarljós blikkandi utan á
sér og allskonar kjaftstórir martraðarfiskar að auki.
Meira hvað heimurinn er stórkostlegur. Þó þýðandi
og þulur færi á algjörum kostum í dramatískum
tilburðum tókst mér samt að sofna yfir þessari
veislu og vaknaði ekki fyrr en í blálokin þegar
hárugar strompar sem fundust ekki fyrr en 1979 voru teknir fyrir.
Ömurlegt hvað ég er alltaf sofandi á kvöldin,
en ég er víst þessi "A" týpa sem nú er
mikið í umræðunni. Það er eftir öllu
að ég sofni nú yfir eðalefni því þegar
ég var svefnleysisgeðveikur reyndi ég oft að horfa
á leiðinlega sjónvarpsdagskrá til þess að
sjá hvort ég myndi ekki lognast út af. Allt kom fyrir
ekki. Ég var m.a.s. glaðvakandi og blótandi í
sand og ösku yfir 70 mínútum, sem ætti með
réttu að heita 70 sekúndur miðað við þolanlegt
efnisinnihald. Þetta eru eflaust ágætis piltar hinn
svokallaði Sveppi ber það m.a.s. með sér að
geta orðið góður í betri leikstjórn
en það væri örugglega mun skemmtilegra að hlusta
á gamla sviðasultu þorna á ofni en að heyra
þessa þöngulhausa ræða málin. Sérstaklega
ber þessi rauðhærði sem þykist vera aðal
og situr við skrifborð meðan hinir hanga á kollum það
með sér að vera ótækur í sjónvarp.
En auðvitað eru þetta bara strákgrey á skítakaupi
sem eru píndir áfram eins og austantjaldshórur og
enginn gæti líklega gert eitthvað almennilegt innan þess
tímaramma sem þeim er úthlutað. Þá
væri nú betra að sleppa þessu held ég, nema
það sé einhver svo illa settur í lífinu
að finnast það fyndið að sjá tíu mínútna
skot af aulum í borðtennis eða tíu mínútur
af aulum að drekka Pepsi blue og tala um að Jennifer Lopes sé
búin að fjarlægja bólu af rassgatinu. Það
eina skemmtilega sem ég kom auga á meðan ég reyndi
árangurslaust að berja í mig svefni með leiðindunum
var þegar þeir töluðu yfir fólk á förnum
vegi.
---
En aulagrínið virðist blíva
því ekki er nú þetta Íbíza-prógramm
betra á Popptíví. Eitthvað breskt hvíttrusl
með afskræmdar tennur að ríða og láta ríða
sér á Íbíza. Stórfengleg dagskrárgerð
- NOT! Ég skil ekki hver nennir eiginlega að horfa á
þetta. Nei það ætti að senda Gapanda á
þetta lið.
---
Mér finnst Vanillukók ágætt
hvað sem fólk tautar og raular í Innanpíkunni.
Enda er Captain í kók minn sjúskaði bardrykkur.
Jarðaberjakókómjólkin er hins vegar svo viðbjóðsleg
að halda mætti að einhverfur sonur viðhalds forstjóra
MS hafi fundið ógeðið upp (hann heitir Gísli
og finnst gaman að blanda saman drykkjum) og mamman sannfært
forstjórann um að hleypa þessu fáránlega
gutli á markaðinn með villidýrslegu sogdjobbi á
jógúrtfæribandinu.
"Nei, í alvöru gefð'essu séns
mmmb slurp slurp, mmm hann Gísli minn verður svo glaður
mmmm slurp slmm hann Gísli minn verður svo glaður ef
jarðaberjakókómjólkin kemst á markað
mmm slurp slurp mmmmm"
"Oh oh OHHHHH oooooooooo, ókei þá....."
---
Ég held það skipti nú
engu máli hvar ég set þennan Conan banner. Það
er auðvitað ykkar að koma addressunni út á meðal
fólks. Ég er búinn að reyna að láta
Tilveru birta línkinn tvisvar en þar eru greinilega engir
Conan aðdáendur og þykjast ekki sjá neyðarkall
mitt. Það eru samt næstum 300 búnir að skrifa
undir en betur má ef duga skal. Áfram! Áfram! 6:03
04.11.02
Maður er hér eins og undin tuska e.
harðræðið á Planet Rvk og lítið við
því að gera nema sleikja sárin. Í gestabók
er fólk í stuði að vanda. Nýtt skáld,
Pizzaface, fer þar mikinn en fáir virðast skilja atómskáldsskapinn.
"Álpappírs" þulan hans meikar engan sens, en Topp 10
listi Bylgjunnar og fíklatal samhliða því gerir
það hins vegar. Diskurinn með Squeel er eitthvað svona
flipp úr smiðju Land og sona held ég, eða einhverra
stráka tengdum þeim. Þetta eru rótarar og ýmsir
stuðpiltar að syngja Eye of the Tiger o.fl. Hef ekki lagt í
að hlusta á þetta ennþá. Simon kemur með
mjög athyglisverða spádóma v/PPPP og spáir
Millum og Pops í úrslit. Ég er utan þjónustusvæðis
þegar kemur að vangaveltum um huxanleg úrslit. Hef þó
stofnað sérstaka könnun HVAÐA
BAND VINNUR POPPPUNKT? þar sem menn geta spáð í
þetta knýjandi mál. Engin verðlaun eru þó
í boði fyrir rétt svar. Auðvitað ættu nú
allir vinnustaðir að fyllast af bjórkassaveðbönkum
og ef þið fréttið af svoleiðis væri gaman
að heyra af því. Það eru a.m.k. fjórir
massaleikir framundan í PP og allt getur skeð! Segjum það
í bili. 16:40
03.11.02
Sá
Hafið í gær. Ætlaði líka að sjá
Ítalska fyrir byrjendur á viddeó en gafst upp því
hún var svo leiðinleg og helvítis United videótækið
er að geyspa golunni eftir minna en 1 ár. Nei, nú kaupi
ég bara það dýrasta hér eftir.
---
Undirskriftasöfnunin Við
viljum Conan! gengur sæmilega og við erum að nálgast
100 sem viljum rauðhausinn. Hvernig væri nú að þú
sendir slóðina á vini og vandamenn eða settir borða
á síðuna þína? Það gengur ekki
að þetta sé bara hér. Við þurfum að
ná flugi á þetta og helst meira en 1000 manns svo þetta
sé eitthvað annað en eitthvað nöldur í nördum
út í bæ.
---
Að vanda eru eintómir geðsjúklingar
í reiðikasti sem skrifa í hina glæsilegu gestabók.
Alltaf jafn gaman að því. Ferma er með eintóm
leiðindi í garð okkar sem fíla snillinginn Conan
og þarf endilega að koma því til skila. Stórskostlegt!
Jú, Hulli, síðast þegar ég vissi fékkst
Dr. Pepper í Gripið og greitt. Nú er reyndar komið
Vanilla kók sem er nokkuð sæmilegt í rótarbjórshallærinu,
en þetta Bláa Pepsi er nú bara viðbjóður
sem ég mun aldrei kaupa aftur nema ef ég þarf einhvern
tímann að leysa upp lík. Allt þetta sítrónudrasl
er ojbjakk svo Vanilla kókið er það sæmilegasta
af þessum nýjustu brögðum. Hrollur er með greindarlegar
athugasemdir og ég mun taka þær til mín. Mér
fannst nákvæmlega það sama þegar ég
horfði á síðasta þátt. Gneisti Kvín
bendir réttilega á að Freddí hafi heitið Farok,
en hann hét nú reyndar Farrokh sé tekið
mið af allmusic.com. Þegar ég samdi spurninguna fletti
ég þessu upp í Q Encyclopedia of Rock Stars (útg.
Dorley Kindersley 1996) og þar heitir blessaður maðurinn
Frederick (greinilega handónýt bók). Get ekki séð
að þetta skipti svona svakalegu máli (spurningin var ekki
einu sinni lesin upp) nema maður sé einhver yfirnáttúrulegur
Kvín aðdáandi sem ég hef aldrei verið (þó
ég hafi keypt "Jazz" fyrir fermingarpeningana). Esja finnst alltof
mikið af spurningum fjalla um gamladaga en keppnin er um síðustu
50 ár eða svo og því ljóst að hún
verði að fjalla um gamladaga. Mætti kannski vera meira af
nútímaspurningum, ég segi það ekki. Ég
nenni nú ekki að svara þessum sem er að væla
yfir Séð og niðurlægt en bendi á blögg
mitt fyrir nokkrum dögum þar sem ég tók þetta
mál fyrir. Þakka ykkur annars fyrir að vera ekki að
minnast neitt á þetta S&H dæmi, ekki beint eitthvað
sem maður er "stoltur" af þótt þetta fylgi nú
bara djobbinu. Já já. 08:08
1.11.02
Jæja krakkar. Nú fyrst þurfið
þið að standa á rétti ykkar. Skítt með
það þó Íslandi sé stjórnað
af geðsjúklingum og heimurinn sé að farast og smábörn
drepast í hrönnum daglega. Nei, þetta eru smáatriði.
Það sem skiptir öllu máli er hvað er í
sjónvarpinu. Og við viljum öll Conan! Besti spjallþátturinn
með frábærasta gæjanum. Það er mannréttindabrot
að geta ekki gengið að þessum þætti vísum.
Ég hef komið upp undirskriftasöfnun
stílaða á Árna á Skjá einum. Þegar
a.m.k. þúsund hafa skráð nafn sitt á listann
er hægt að fara að bögga Árna með þessu.
Þá getur hann séð svart á hvítu að
við viljum Conan! Um að gera að senda slóðina á
vini og kunningja og búa til svaka stuð í kringum þetta.
1000 nöfn er takmarkið og helst miklu meira. Áfram með
smjörið. Förum að berjast fyrir rétti okkar sem
sjónvarpssjúklingar og manneskjur með sjálfsvirðingu!
VIÐ
VILJUM CONAN! 14:20
---
Hef sett inn slatta af myndum. Fyrst ber að
nefna að ég hef komið til móts við þá
fjölmörgu af báðum kynjum sem hafa kvartað undan
nektarmyndarleysi hér á síðunni minni. Nú
gleð ég þennan fjölmenna þrýstihóp
og sýni mig beran!
Í annan stað er það myndasyrpa frá giftingu
og ferðlagi okkar konunnar/Lufsunnar í borg geðveikinnar,
Las
Vegas. Í þriðja lagi eru það svo Hawaii
myndir, en Hawaii er yndislegur staður, sem ég þarf
að segja ykkur frá seinna. Njótið! 11:11
---
Ahhh, kominn hér í smá pásu
eftir törnina í gær. Gerðum tvo magnaða þætti
af Popppunkti. Stórkostleg tilfinningaþrungin spenna fram
á síðustu sekúndu og ég skjálfandi
af taugaveiklun við púltið. Síðasti leikurinn
í 16-liða úrslitum verður sýndur á
laugardaginn: Fulltrúi kvenþjóðarinnar; Rokkslæðan,
keppir við Land og syni stórkostleg keppni. Í lok þáttarins
koma góðir gestir og draga saman átta lið í
næstu fjóra leiki, 8-liða úrslitin svokölluðu.
Ég segi ekki meira, ekki nema það að ég myndi
ekki vilja missa af næsta þætti, eða öllum næstu
þáttum því þetta er orðið svívirðilega
spennandi og mikið tilfinningastríð í gangi.
---
Ég hef ekki séð eina einustu
bíómynd í meira en mánuð, hvorki myndband
eða í bíó. Reyndi um daginn að horfa á
Amores Perros, en hún er bara svo löng að ég lognaðist
út af eftir 100 mínútur eða svo. Ágætis
mynd sýndist mér, ógeðslegir þessir dauðu
hundar endalaust. Þarf að gera eitthvað í þessu
um helgina, sjá eins og 2-3 myndir. Já já.
---
Mikki
Emminemm er svo mikið pönk að hann getur ekki einu sinni
tekið viðtal við sjálfan sig án þess að
allt fari í háaloft. HAHAHAHA! Þetta Kistulið er
blátt í framan enda að kafna langt uppi í rassgatinu
á sjálfu sér. Úlfhildur greyið svo þunnskrápuð
að hún fer yfir um og rýkur út þegar litli
pönkarinn gjammar eitthvað. Kommon, hvar er kúlið?
Svo er bara búið að henda viðtalinu af Kistunni og eitthvað
druslulegt "afsökunarbréf" komið í staðinn.
Það er nú ekki hægt annað en að glotta að
þessu öllu saman. Þetta væri kannski eitthvað
til að æsa sig yfir ef maður þekkti einhvern
sem hefur einhvern tímann lesið eitthvað í þessari
djöfullega óáhugaverðu og þurrkuntulegu líkkistu
íslenskrar menningarumræðu. Meira að segja Lesbókin
er orðin miklu betri!
---
Vil þó taka það fram að
mér finnst Úlfhildur fín. Hún tók einu
sinni viðtal við mig á 9. áratugnum fyrir MS-blaðið
og ég var svo uppveðraður yfir því að stelpa
vildi tala við mig að ég bauð henni út að
borða, Lækjarbrekka minnir mig. Hafði bara efni á
að bjóðenni rækjukokteil, en á þeim tíma
var rækjukokteill (afþýddar rækjur í majonesi
ofan í rauðvínsglasi) það fínasta. Þegar
ég ætlaði að fara að færa mig upp á
hið alræmda skaft keyrði hún mig með snatri heim
í Kópavog og ég fékk ekki svo mikið sem
blautan koss. Og ég sem hafði splæst í rækjukokteil!
En Úlla er fín og má alveg vera brjáluð
út í Mikka ef henni finnst það þess virði.
Skál! 09:50
VAR
EITTHVAÐ AÐ GERAST í október 2002?