Geislaplötur með Insol:
Plöturnar fást hjá Smekkleysu, Havarí eða
hjá listamanninum sjálfum. INSOL á FACEBOOK.
1. Insol
Útgáfudagur 3. desember 1998. Útgefandi Framtíð.
Hljóðritað í Fellahelli með Adam Wright.
Á fyrstu sólóplötu sinni flytur Insol ellefu
lög eftir goðið sitt, Bob Dylan, og eitt Bítlalag að
auki, She loves you. Alls tólf lög.
2. Hið mikla samband
Útgáfudagur 22. desember 1999. Útgefandi Framtíð.
Hljóðritað í September með Hafþóri
Guðmundssyni.
Strax á annarri sólóplötu sinni demdi Insol
frumsömdum lögum yfir grunlausa hlustendur. Á þessari
plötu er Insol í miklum Nýals-gír og undir sterkum
áhrifum frá Dr. Helga Pjeturss. Fyrsta lagið á
plötunni er poppsmellurinn Hvenær mun hér á Íslandi
rísa stjörnusambandsstöð? Alls tíu lög.
3. Blóm, friður og ást
Útgáfudagur 8. desember 2000. Útgefandi Framtíð.
Hljóðritað í Stelpu.
Insol í náttúruverndarlegum fílingi. Hann
leikur á kassagítar og munnhörpu auk þess að
syngja. Meðal laga eru Visthrun, Haltu áfram að trúa
á tæknina og hið magnaða titillag. Alls tíu
lög.
4a. Jafnréttið er eina svarið
Útgáfudagur 3. desember 2001. Útgefandi Framtíð.
Tekið upp í Stelpu.
4b. Jafnréttið er eina svarið
Útgáfudagur 3. desember 2001. Útgefandi Framtíð.
Tekið upp í Stelpu.
Tvær útgáfur eru til af þessari fjórðu
plötu Insols. Á þeirri fyrstu eru lögin leikin á
gítar, en á þeirri seinni er hljómborð komið
til skjalanna. Hér er mikið sungið um konur og hvernig eigi
að elska þær. Einnig er sungið um jafnrétti.
Alls fimmtán lög.
5. Fyrri byggðir
Útgáfudagur 15. október 2002. Útgefandi
Framtíð. Tekið upp í Stelpu.
Platan hefst á poppsmellinum Er ég ekki of gamall fyrir
þig? og inniheldur að auki fleiri stutta smelli. Einnig er hér
lengsta lag Insols á plötu (og á hann þó
mörg gríðarlega löng lög), Endurminningin lifir
að eilífu (37:15). Alls tíu lög.
6. Við viljum jafnrétti
Útgáfudagur 22. október 2002. Útgefandi
Framtíð. Tekið upp í Stelpu.
Aðeins viku á eftir plötu nr. 5 kemur plata nr. 6.
Hér er kassagítarnum lagt á hilluna í bili
og forláta skemmtari brúkaður í staðinn. Alls
tíu lög og eru taktarnir gefnir upp í sviga fyrir aftan
nafn lags (swing, jazzrock, o.s.frv.)
7. Jafnréttið er framtíðin
Útgáfudagur 3. nóvember 2003. Útgefandi
Framtíð.
Diskur sem styðst við óútgefið efni, teknu
upp á árunum 1998 - 2001, einskonar „bland í pok.
Hér eru bæði lög leikin á hljómborð
og kassagítar, en einnig eru tvö lög tekin upp með
meðlimum í Blóðtakti (Steinn Skaptason - trommur,
Brjánn Birgisson - bassi) árið 1998.
8. Við eigum að samstillast öll
Útgáfudagur 10. nóvember 2003. Útgefandi
Framtíð.
Lög tekin upp á tímabilinu 1998 - 2003. Hér
eru lög úr unnin upp úr fræðum Nýalssinna.
Insol leikur á kassagítar og munnhörpu auk þess
að syngja.
9. Það og það
Útgáfudagur 18. nóvember 2009. Útgefandi
Framtíð.
Eftir langt útgáfuhlé snýr Insol blessunarlega
aftur með plötu og ekki eina heldur tvær. Þessi er
tekin upp í Stelpu frá 21. apríl til 12. nóvember
2008. Insol leikur á gítar, munnhörpu og hljómborð
auk þess að syngja. Sum lögin voru samin 1997, en önnur
2008 undir áhrifum frá bankahruninu, til að mynda Bankafylliríið
er búið og Borgaðu fyrir burgeisana. Áleitið
verk.
10. Ísland skal aría griðarland
Útgáfudagur 25. nóvember 2009. Útgefandi
Framtíð.
Söngur, gítar og munnharpa: Insol. Hljóðritað
í Stelpu frá apríl til október 2009. Insol
endurskoðar arfleið Þriðja ríkisins og bendir
á nauðsyn þjóðernisstefnunnar. Hér má
finna meðal annars lögin Adolf Hitler og Það er Baldur,
Baldur, Baldur.

A1 Insol - Hátindar
Útgáfudagur: Des. 2009. Útgefandi Brak (#10).
Helstu lög meistarans (að mínu mati). 18 laga masterpís af öllum 10
plötum Insols til þessa. Ljómandi góður staður til að byrja á. Fæst á GOGOYOKO og það er fjallað um hana á heimasíðu Braks.

11. Ég er laus undan losta og synd
Útgáfudagur 5. desember 2010. Útgefandi Framtíð.
Söngur, gítar, munnharpa: Insol. Hljóðritað í Stelpu frá janúar til
martz 1999. Hér er Insol á trúarlegum nótum og ber efnið þannig á borð
að hlustandinn veit aldrei hvort hann sé að játa trú sína eða að gera
grín á henni. Inniheldur 14 lög, þ.á.m. lagið Veitztu hverjir eru
eigendur
þessa mannkyns? sem er 37:48 mínútur.

12. Ein hjúskaparlög fyrir alla
Útgáfudagur 8. desember 2010. Útgefandi Framtíð.
Söngur, gítar, hljómborð: Insol. Hljóðritað í Stelpu frá 9. janúar 2008
til 21. júlí 2008. Enn ein "skemmtaraplata" frá Insol. Að þessu sinni
veltir hann fyrir sér jafnrétti kynjanna (sem hann hefur nú svo sem
gert áður). 14 lög.

13. Kristur kemur
Útgáfudagur 12. des 2010. Útefandi Framtíð.
Söngur, gítar, munnharpa: Insol. Hljóðritað í Stelpu júlí 2001.
Trúarsöngvar a la Insol. Líkist plötunni Ég er laus undan losta og
synd, nema hér er mikið sungið um "Grillarann", sem var áður
víðsfjærri. Einnig koma húðflúr við sögu. 14 lög.

14. Ísland fyrir útlendinga
Útgáfudagur 15. des 2010. Útefandi Framtíð.
Söngur, hljómborð: Insol. Hljóðritað í Stelpu í janúar júlíloka 2010.
Nýjasta efni Insol til þessa er á þessari hressilegu plötu. Meistarinn
svissar á milli stíla og tekur fram í sviga um hvað er að ræða í hverju
lagi (vókalpopp, reif, þungarokk o.s.frv.). Kynþáttamál eru
umfjöllunarefn textana og ljóst hvert Insol vill stefna í lögum eins og
Ísland verði alveg svart og titillaginu. 12 lög, þ.á.m. lengsta lag
Insols á plötu til þessa, Mennirnir urðu allir svartir (38:23).
|