31.01.03
Kominn á lappir fyrir sex í fyrsta
sinn á árinu. Það var mikið að ég
náði mér af jólasleninu.
---
Jú, Flosi, Sindridirindri
er
Kjartansson jr. Þrjár ágætis tillögur eru
komnar frá gestum
um
hvað "MMÚH" stendur fyrir. Menn
með úfið hár, Með
munn úr hálmi og Meik
með útlenskri hljómsveit.
Því miður er ekkert af þessu rétt heiti á
fyrirhugaðri skáldsögu, en menn eru þó nokkuð
heitir, allir fá þeir eitt stig fyrir "með".
---
Það er alltaf jafn gaman að horfa
á þetta handboltarusl og halda með hinu liðinu. Gaman
að pirra sig á því hvað þjóðremban
ríkur upp úr öllu (fullt af liði byrjað að
pæla í að skella sér til Portúgal, he he)
og sérstaklega "gaman" að láta Samúel Örn
fara í taugarnar á sér, en hann lýsir leikjum
þannig að hann fær það af hrifningu ef eitthvað
gerist á vellinum og skiptir þá litlu hvað það
er. Hann gæti öskrað yfir heilan leik af blindrabolta, hvílíkur
snillingur (fáviti) sem hann er. En "við" skíttöpuðum
þessu auðvitað enda geta þessir bjánar ekkert
og ættu að skammast sín. Áfram Spánn!
---
Jú jú, auðvitað veit ég
það að Laugarásvideó ríður feitum
hesti, en hvað ætli maður nenni þangað í
hvert skipti sem manni dettur í hug að slaka á og glápa
á mynd. 06:27
30.01.03
Hamaðist í allan dag við að skrifa analíska
ferilsskrá.
Einnig á útlensku
enda meikdraumar hvergi nærri slökknaðir.
---
Fékk óvænt email frá Heikonen, einum af
þrem eigendum Bad Vugum, míns gamla finnska útgáfufyrirtæki.
Hann virðist hafa náð réttinum á fyrirtækinu
frá vinum sínum fyrrverandi (löng útskýring
í Leiðarljós-stíl er á nýju síðunni)
en hefur líka stofnað hliðarfélag, BV2 og gefur þar
út mússekk og einnig teiknimyndasögur sem hann hefur
sjálfur þýtt á finnsku. Hann byrjar með
stíl, gefur út meistaraverk D. Clowes, Ghost World og band
sem heitir Cleaning Woman. Það ku vera tríó, hvers
meðlimir spila á heimatilbúin hljóðfæri
og koma fram í kjólum. Og það sem meira er, Cleaning
Woman mun spila á Íslandi bráðlega! Á einhverju
sem heitir "Vetrarljósahátíðin". Vú hú!
Hér er nýja lén
BAD VUGUM, fullt af spennandi stöffi. 21:05
---
Alætan datt niður fyrir viku vegna verðlauna, en í
kvöld verður ljómandi skemmtileg Alæta á Rás
2 kl.22.10. Gesturinn er sjálfur Mugison
sem mætir með óskalögin kl. 23. Á undan og
á eftir verður skaðræðis stuði haldið
á lofti með því nýjasta og bestasta í
mússikinni. Létt áhersla verður á skandinavíska
tóna (mjög létt), en þar að auki verður
leikin mússikk með Knifehandchop, Max Tundra, Dj Brokenwindow,
Happyland, Los Angeles Negros, The Robot ate me og Hoppy Kamayama, svo
fátt eitt sé nefnt. Alls ekki missa af þessu! 09:40
29.01.03
Enterinn
í stuði í dag. Þeir mega líka eiga það
hjá PoppTíví að South Park er ágætt.
22:50
---
Jæja hvað segirðu? Mér segist
sá hugur að ég haldi áfram að vera fremur
latur hér í blogginu enda að komast á blússandi
skriftarfart með skáldsöguna mína M.M.Ú.H.
(hafa gestir hugmynd um hvað það stendur fyrir?). Sýnist
líka að blogg sé að drepast úr leiðindum
á ýmsum öðrum vígstöðum. Mæli
þó með Sindradirindra,
sem án efa er ferskasti blöggarinn í dag.
---
Ég ruglast alltaf hvort það
er Írak eða Íran sem Búss geðsjúkingur
ætlar að fara að lemja á. Rugl hjá þessu
liði að geta ekki haft þessi lönd með ólíkari
nöfnum svona hlið við hlið. Búss er náttúrlega
æpandi fáviti eins og sést með því
einu að skoða mynd af honum. Hvað þá að heyra
fíflið tala. Hvílíkur skítaheimur sem maður
býr í fyrst svona fáviti telst vera mikilvægasti
maður í heimi.
---
Ég er ekkert smá duglegur í
Planet Pöls og fer 5 sinnum í viku. Er bara farinn að fýl'etta.
Tek syrpu eins og ofvirkur hamstur á göngufæribandinu
og svo í svona asnalegu tæki sem maður hálfpartinn
hjólar í lausu lofti í og heldur sér í
stangir. Veit ekki hvað það heitir. Fyrir framan mig eru
sjónvarpsskjáir og ég neyðist því
stundum til að horfa á poppfávita-Tíví
eða poppmyndböndin á s1-um. Það er alltaf sami
rúnturinn á þessu drasli. PTV sýnir bara það
nýjasta frá Norðurljósum, yfirleitt negrakellingar
með stóra rassa, sem verður fljótt þreytt þótt
ótrúlegt megi virðast. Ég skil ekki hverskonar
örvitar horfa á þetta ótilneyddir. Sá annars
nýjasta myndbandið frá Nick Cave (við lagið "Bring
it on"), það fylgdi með á sínglunni (glætan
að PTV myndi sýna það) og þar eru þeir
gömlu heróínsjúkingar, Nick, Blixa og strákarnir
umvafnir negrakellingum sem hrista hvílíkt rassgötin
að maður er hræddur um að þau detti hreinlega af.
Svona á að gera þetta! Mesti viðbjóður
sem um getur er nýja myndbandið frá súkkulaðiviðbjóðnum
Robbie Williams. Ég hreinlega ærist af illsku þegar
ég sé þessa viðurstyggð birtast, svona er ég
nú óþroskaður og mikið fífl. Í
huga mér á Robbie í mikilli baráttu við
þá ömurlegu Gallagher-bræður um titilinn "mesta
ógeð poppsögunnar", en ég held að Robbie vinni,
þó Liam drulla fylgi fast í kjölfarið. Svona
hugsa ég ljótt um blásaklausa poppara og hamast á
brettinu þar til það rýkur úr draslinu.
---
Skemmtilegasta myndbandið í dag er
íslenskt og er með einhverjum ungrapppíum. Ég
styð það heilshugar að þær séu allar
með bumbur sem standa út úr bolunum.
---
Við tiltekt rakst ég á frábært
flugvélagrín sem ég hef sett upp þér
til ánægju og yndisauka. Ég myndi tékkáðí.
16:45
28.01.03
Þetta er nú bara ömurleg kenning
að fólk utan af landi sé eitthvað hallærislegt
í tauinu, a.m.k. ekki ef það er frá Akureyri, þeim
mikla menningarbæ. Skil ekki hvað ég var að hugsa.
---
Músíktilraunir Tónabæjar
og Hins Hússins verða haldnar í 20 skipti í mars.
Þar hafa fjölmargar hljómsveitir hlotið brautargengi
og nægir þar að nefna hljómsveitir eins og Jójó,
Nabbblastrengi, Gypsy, Stæner og Soðin fiðla + hinar sem
eru frægari. Skráning er í Tónabæ og Hinu
Húsinu og hefst 27. janúar og lýkur 28. febrúar.
Frekari upplýsingar er að finna á
www.tonabaer.is og www.hitthusid.is, en þess má geta að
ekki er ætlast til að keppendur séu eldri en 25 ára.
---
Ég fer að hallast að því
að það hafi verið glapræði að kaupa DVD-spilarann.
Það er ekkert til á dvd á leigunum og bara einhver
blokkböst sem koma út í þessu formi. Fór
hins vegar á bíó í gær og sá franska
mynd um foreldra sem gera allt sem í þeirra valdi stendur
til að losna við son sinn að heimann. Þokkalegt. 09:38
25.01.03
Það er athyglisvert að fara út
á Reykjavíkurflugvöll og virða fyrir sér
mannlífið. Einstaklega skrýtið fólk sem er
að koma í bæinn frá landsbyggðinni. Allir einhvernveginn
berskjaldaðir en í sínu fínasta pússi.
Fólkið er vant að gusast bara ógirt og með krumpugallann
á hælunum á milli húsa í hvínandi
snjófjúki gefandi lítið fyrir tískuna.
Sem er gott. Á nálum með allt á hælunum,
en tekur sig til og fer í fínt púss er í menningarlega
bæjarferð er komið.
---
Aldrei voru myndir af stelpur að kyssast
eða stelpum að sýna á sér brjóstin
þegar ég var foli á djammi. Já það
var heldur ekkert internet. Missti ég af einhverju?
---
Sá Daníel Ágúst og
Gabríelu á förnum vegi, ógnvænlæg
í útliti. Söngvarinn pínkulítill í
einhverri loðkápu svo ekkert sást nema galdrakerlinganefið
– ekki ósvipaður honum Orlok greifa úr Nosferatu, hann
Daníel. Listakonan hins vegar klædd að hætti vinnumanna
frá 18. öld, í vaðmáli með lopahúfu.
Þau svifu löturhægt í andlegum erindargjörðum
og mér var svo mikið um við þessa sýn að
ég hopaði skíthræddur, snérist á
hæli og gekk helmingi lengri leið heim til þess að
þurfa ekki að mæta ósköpunum. Þau hefðu
eflaust lagt á mig álög ef ég hefði gengið
í flasið á þeim.
---
Sá hundleiðinlega kellingamynd í
gær á videó. Svona gloprar maður lífi sínu
frá sér. Nei nei. Þessa grísku giftingamynd
þarna. Drasl.
---
Gummi Jóh
er með nýja kenningu um Gollumið sem er svona:
Mér sýnist nú sem eitthvað sé búið
að fikta í Felixi. Skamm! 16:25
24.01.03
Kárahnjúkamálið = LOTR.
Lesandi stakk upp á því að Gollum væri krúttilingurinn
Kjartan hjá D-flokki, sem er kannski eitthvað í áttina,
en annar lesandi, Hallgr.Thorsteinsson, bendir á að Gollum sé
að sjálfssögðu enginn annar en álfurinn fyrir
austan, Smári Geirs. Hér er sönnunargagnið, hér
sjáum við tvíbura:
Hringurinn? Hallgrímur dregum upp þá
skýringu að þar sé etv vill á ferðinni
hringurinn framan á nýju Sigur Rósar-plötunni,
sem var að vísu bara hálfur...? 20:00
---
Ég er svo illa gerður að ég
æsist upp og verð reiður þegar ég sé
sýnt úr bíómyndum sem misbjóða gáfum
mínum. Það eru til dæmis tvær myndir í
gangi núna sem ég myndi frekar láta einhvern ganga
örna sinna upp í mig frekar en að sjá. Þetta
eru sjálfssögðu "kynjamyndirnar" Juwanna Man og The Hot
Chick, með hinum gjörsamlega ömurlega Roy Schneider eða
hvað sem hann heitir þetta fífl. Ég er búinn
að sjá nokkrum sinnum úr þessum ruslmyndum og verð
alltaf jafn fúll – er það eðlilegt?
---
Handboltafábjánar mörðu
sigur á einhverju þriðja heims liði í gær
aðallega af því það var einhver útlendingur
í markinu hjá okkur. Skil ekki hvað er alltaf verið
að setja þennan bollurass Guðmund í markið sem
spriklar eitthvað eins og jólasveinn en ver aldrei neitt heldur
er sídettandi á rassinn.
---
Var með í maganum í allan gær
fyrir þessa verðlaunaafhendingu. Fyrst var einhver æfing
sem ég hékk yfir í fleiri tíma og svo hátíðin
sjálf. Við komum þó bara fram í eina mínútu
eða svo, svo þetta var kvíðamagi fyrir lítið.
Er annars að mestu hættur að fá kvíðamaga
sem betur fer, en í æsku fékk ég kvíðamaga
oft í viku og ræpu í hvert skipti sem ég þurfti
að fara í sund eða leikfimi. Það má segja
að töfralyfið "verk og vindeyðandi" hafi verið minn
besti félagi þar til ég óx upp úr skylduíþróttum.
Jæja skítt með það. Fullt af íslenskum
selebs í gær en ég lét mig hverfa með hraði
þegar þetta var búið enda finnst mér fátt
jafn leiðinlegt og að "míngla" við eitthvað lið
sem ég nenni ekkert að tala við og drekka ókeypis
bús fram á nætur. Ég er einn slappasti "mínglari"
sem um getur og stend yfirleitt einn út í horni eins og einhvern
bjáni. Mér finnst það eiginlega bara kúl.
Þarna var slatti af poppurum og sinfóníuliði og
djössurum en allir í sínum hópi svona að
mestu. Það þurftu allir að þakka svona ægilega
mikið fyrir sig að dagskráin tafðist um fleiri mínútur.
Ég var búinn að spá í spilin fyrir Moggann
og hafði rétt fyrir mér í 5 tilfellum af 7. Svona
er ég nú klár. Hafði bara rangt fyrir mér
með söngvarana. Ég skil ekkert hvað þessi Hera
var að fá verðlaun sem söngkona ársins; ekkert
spes söngkona og hundleiðinlegur tónlistarmaður. Svo
skil ég ekki alveg hvað söngvarinn í Leaves var
að gera með verðlaun, mér finnst hann syngja allt í
einum tóni og öll lögin með þessari hljómsveit
eru nákvæmlega eins. Ágæt hljómsveit svo
sem en voðalegt rokkrúnk eitthvað og ófrumlegt.
---
Hurðin sem opnaðist fyrir okkur þegar
við gengum inn á sviðið var nú ekki eins mikið
töfratæki og halda mætti. Það var nú
bara sér maður frá Rúv sem vann við að
draga hurðina frá og ég held það hafi verið
Gunnþór sem var bassaleikari í Q4U. 10:35
23.01.03
Það er engin Alæta í kvöld,
bara bein útsending frá Íslensku TónlistarVerðlaununum.
Ég mæti auðvitað í mínu þokkalegasta
pússi enda eigum við Felix að kynna "lag ársins".
---
Ó nei nú er enn eitt handboltadraslið
í gangi. Íþróttadeild RÚV reynir eins
og þeir geta að æsa múginn upp í eitthvað
áfram strákarnir okkar dæmi. Það er meira
að segja kominn klaki í búðirnar frá Kjörís
eða Emmes sem heitir "Strákarnir okkar". Plebbalegt allt þetta
helvítis handboltadrasl. Þetta er ekki íþrótt,
bara eitthvað hnoð og menn að hossast hver á öðrum
og tuddandi hvern annan eins og fávitar. Geðveik þvæla
sem rennur upp úr íþróttafréttamönnum,
eins og þegar Ísland vann Ástrala þá var
það "einstakt afrek að liðið skildi halda einbeytingunni".
Æ handbolti er plebbismi og það er eiginlega enn meiri
plebbismi að vera að röfla eitthvað yfir plebbismanum
í kringum þessi leiðindi. Mest kúl auðvitað
að þykjast ekki vita að það sé eitthvað
mót í gangi.
---
Konan var með "klúbb" í gær
og ég hraktist að heiman í norðangaddi og varð
næstum úti á leiðinni í Háskólabíó.
Ætlaði í bíó hvað sem tautaði og
raulaði svo klúbburinn gæti horft á ER og saumaklúbbast
án þess að ég væri þarna sem niðurlægt
framlag karlmanna. Ég var búinn að stúdera myndirnar
sem voru í boði af mikilli kostgæfni en hafði samt
ekki gert upp hug minn. Mig langaði á franska kvikmyndahátíð
en þá var myndin kl. 8 einhver ástarmynd um lesbíur.
Stella í Framboði var ekki á dagskrá í
mínum huga en ég var að spá í þessari
Eminem mynd en langaði svo bara ekki enda hef ég engan áhuga
á Eminem og hafði lesið að þetta væri einhver
klisja þessi mynd. Grill Point var einhver mynd en mér leist
ekki á hana og fór því á lessumyndina.
Ekkert nema franskar lesbíur í salnum og ég og Árni
Þórarinsson en hvar var eiginlega Thor Vilhjálmsson?
Svo byrjaði myndin sem var svona skítsæmileg. Ekki mikið
um erótískar lesbíusenur. Önnur kerlingin er
ólm í hina, en sú hefur allt á hornum sér
og vill ekki sjá lessísk ævintýri nema þegar
hún á bágt og er langt niðri, þá
tekur hún vinuna í sátt og það var einmitt
í slíku ásigkomulagi sem eina lessuatriðið
fór fram. Báðar kafloðnar auðvitað enda franskt
á ferðinni og salurinn tók undir í æsilegu
atriðinu og frá bekkjunum bárust nautnahljóð.
Nei nei. En ætli maður þurfti ekki að drífa
sig aftur á franska kvikmyndahátíð og þá
kannski á eitthvað meira spennandi.
---
Annars er kalt og dimmt og maður alltaf syfjaður.
Skammdegisstemmning og það er allt í lagi. 11:30
18.01.03
Meik í stuði. Það er mín
spá að Apparat verði í sviðsljósi meiksins
í ár. PBS (Almenningssjónvarpið ameríska)
gerði smá innslag um íslenska mússikk og þar
voru þeir einhverfu hljóðgerflameistarar í aðalhlutverki.
Hér
er hægt að sjá þetta dæmi, nokkuð fönkí.
Þarna er m.a.s. talað við einhvern nördalegasta þungarokkara
sem ég hef séð og hann ku í hljómsveitinni
Charger. Say what!?
---
Jú þetta var víst Jónsi
öðlingur og ljósálfur sem var hent út fyrir
að vera "sá sem mest hafði sig í frammi" í
mótmælum á ráðhúspöllum. Ég
get bara ómöguleg séð Jónsa fyrir mér
sem einhvern brjálaðan mótmælasegg. Hvað gerði
hann eiginlega, æpti "tjú tjú" á Ingibjörgu?
Annar ofurtvíburinn
hefur á orði að þetta Kárahnjúkadæmi
sé eins og upp úr Lord of the Rings og ég hef einmitt
haft það á tilfinningunni líka. Góða
liðið eru Jónsi (Fróði), mamma Bjarkar, Kolbrún,
Hjálmar H og allt hitt frið- og náttúruelskandi
fólkið, en vonda liðið er framsóknarpakkið
og aðrir sveittir álpungar. Friðrik Sóphusson er
augljóslega vondi kallinn sem Christoper Lee leikur. Mér
hefur alltaf fundist sá gaur (Sóphusson) einstaklega svipljótur
og sminkdeildin þyrfti ekki að leggja mikið á sig
í förðun til að breyta honum í algjört
illmenni – þarf t.d. ekkert að eiga við nefið á
honum. Hann er þó eflaust ágætur enda kvennalistakerlingin
konan hans líklega búin að mýkja hann upp í
gegnum árin (þó ekki nóg). Svo er þarna
vondasta augað í turninum, það er greinilega Davíð
í stjórnarráðinu. Vonda liðið í
LOTR vill breyta öllu til hins verra, rífa skóga og
leggja sótsvart ský yfir tilveruna (sama með Framsókn
og álpunga) en góða liðið vill bara fá
að hobbitast áfram og rækta gulrætur og eitthvað
svona ("smáiðnaður"). Það er svo greinilegt hvaða
hlutverk liðið á Reyðarfirði hefur; það
er auðvitað orkar sem er hvatt áfram af Sóphussyni
og á sér æðst takmark að fá að strita
andlaust í sinni holu. Er það ekki? Nei ég veit
það ekki. Ég er t.d. ekki búinn að hugsa þessa
samlíkingu alveg til enda. Hvað er hringurinn? Hvað er Gollur
(eða hvað hann heitir – hefur engin annar en ég tekið
eftir því hvað það fyrirbæri er líkt
og kvikindið sem var í síðustu Harry Potter mynd?)
og hvað með þessa geðveiku trjákarla? Hef ekki
myndað mér skoðun enn, en maður hlýtur að
halda með góða liðinu. Ekki er maður allavega svo
ófyrirleitinn að halda með Sóphusson og Framsókn.
15:30
16.01.03
Fólk með hár fær frekar krabbamein í
hársvörðinn en ég. Sérstaklega ef það
litar á sér hárið. Alltaf gott þegar eitthvað
jákvætt og skemmtilegt gerist.
---
Var þetta Jónsi í Sigur Rós sem var með
mestu lætin í Ráðhúsinu í dag? Mér
sýndist það í fréttum. Nei ég trúi
þessu bara ekki. Voðalegur æsingur er í liðinu.
Maður er greinilega að missa af einhverju. Kannski ætti maður
að hætta þessum vingulgangi og "taka afstöðu"
og þykjast hafa svaka áhuga á þessu og vera svaka
á móti. Láta binda sig við skurðgröfu
og svona. Búa sér til skoðun og standa svo á henni.
Æ æ.
---
Hitti Hugleik sem prangaði
inn á mig bókinni sinni. Nú sé ég fram
á kvalitítæm, lesa bókina og hlusta á
safndiskinn "Blue Hawaii – A Vintage Anthology 1926-1942", sem ég
keypti í dag á útsölu hjá 12 tónum.
Hugleikurinn er með svona best of og vorst of bíómyndir
síðasta árs á síðunni sinni og ég
get ekki verið minni maður, þó ekki sé ég
kvikmyndanörd.
Bestu myndirnar sem ég sá 2002
1. Ghost World
2. Elling
3. Lord of the Rings (fyrsta myndin)
4. The Good Girl
5. Yu Tu Mama Tambien
6. From Hell
7. Jalla! Jalla!
8. Hafið
9. 24 Hour Party People
10. The Royal Tenebaums
Verstu myndirnar sem ég sá 2002
1. Joe Dirt
2. Interstate 84
3. American Pie 2
4. Jay and Silent Bob strike back
5. 3000 Miles to Graceland
6. City by the sea
7. Moulin Rouge
8. Star Wars II - Attack of the clones
9. A.I.
10. I'll make you happy
---
Ætli sánælin sé dauð? 19:30
---
Alætan er í kvöld kl. 22:10 á Rás 2.
110 mínútur af æsilegri mússikk (lög um
sameinuðu þjóðirnar, pönkhljómsveitir
sem byrja á X og spjall og óskalög með strákum
úr hljómsveitinni Hudson Wayne svo eitthvað sé
nefnt). Fyrir alla muni ekki missa af þessu!
---
Hef enn ekki tekist að mynda mér skoðun á "mesta
hitamáli síðari tíma", Kárahnjúk
– eða kannski "Kára Nuke em". Ég er hugsanlega fáviti,
en mér tekst ekki fyrir nokkra muni að æsa mig upp í
hafa skoðun eða áhuga á þessu. Sé mig
ekki votna um augun af eftirsjá eftir því landi sem
fer undir vatn (Eiga barnabarnabarnabarnabarnabarnabörnin eftir að
sjá eftir þessu öllu 2213 og blóta langlanglanglanglanglangafa
sínum fyrir heimskuna? Hmm?). Á hinn bóginn eru ekki
allir jafn heppnir og ég og Hjálmar H. Ragnars að hafa
gáfur eða eðli nagdýrsins til að meika sens í
svokallaðri list í hringiðu strauma og stefna í 101.
Þetta blessaða fólk sem hýmir eins og kotasæla
í kyndiklefa fyrir austan í þorpum sem hafa varla burði
til að reka bensínstöð, hvað þá til
að geta boðið upp á ljóðaupplestur eða
sýningu á nýjustu verkum letihauga úr listaháskólanum,
má það ekki vinna í álverksmiðju ef
það nennir eða vinna við að leigja Pólverjunum
sem vinna í álinu videó eins og þetta verður
orðið eftir sirka fimm ár? Alveg er mér sama þó
þessi skítafabrika sé í miðjum firði
og að þarna fyllist allt af eiturgufum. Já já,
en djöfull er þetta leiðinlegt og ég hef ekki enn
myndað mér skoðun.
---
Hef fundið fyrir undarlegri kennd síðustu daga, þeirri
að langa til að sjá franskar kvikmyndir. Kannski er þetta
vegna þess að ég er að lesa þessa slöppu
ríðingarbók þarna eftir hann Húllembecq.
Þetta gæti verið úr henni: "Valérie beygði
sig og tók tittlinginn upp í sig. Hún tottaði
vel og ég þurfti að halda aftur að mér til
að fá það ekki upp í hana. Á sama tíma
nuddaði svertingjastúlkan rennblautri píkunni í
andlit mitt og sterk lyktin bar mig næstum ofurliði. Hún
sat klofvega ofan á mér og erti risavaxinn snípinn
með nefbroddinum á mér. Við fengum það
bæði í einu og lágum svo hljóð í
svitapolli, en Valérie þurrkaði framan úr sér
og fróaði sér á meðan hún horfði
á okkur. Ekki leið á löngu þar til hún
fékk það með háværu öskri sem fékk
svertingjastúlkuna til að bregða."
---
Hef legið og fundið blóðið renna til skildunnar
á meðan ég les þetta krapp en nú er þessi
bók sem betur fer að verða búin. En mig langar allavega
að sjá franska mynd. Það er ekkert á leigunum
nema í mesta lagi einhverjar búningadrömur sem mig langar
ekkert að sjá (búningadrömur eru það leiðinlegasta)
heldur langar mig til að sjá eitthvað nýtt og nútímalegt
(og franskt). Ég ber einhverja undarlega kennd til fransks kúltúrs
þessa dagana og því hljóp aldeilis á snærið
hjá mér því nú er víst frönsk
kvikmyndahátíð að bresta á í Háskólabíói.
Um að gera að menna vel á það. 10:59
14.01.03
Ef fólki þyrstir í meiri
Popppunkt getur það spreytt sig sjálft hér.
Þetta er spurningasíða sem þrír íslendingar
reka, nokkuð sneddí en erfitt. Ég gat ekki rassgat í
þessu. Þá er víst enginn PP fyrr en hugsanlega
í haust og tekur annað við. Sólóplata og skáldsaga
svo eitthvað sé nefnt. Best að hætta þessu rövli
hér, enda lítið í rövlskjóðunni
eins og er, og drífa sig í þeim verkefnum.
11.01.03
Þess má geta að spekingaþáttur
Popppunkts er í kvöld kl. 21 og er það síðasti
skammtur í bili. Alveg frábær þáttur þar
sem Óli Palli, Andrea og Arnar Eggert fara á kostum á
móti SSSka, Tjödda og Ölvir sem fara algjörlega á
kostum sömuleiðis. Meiri PPPP næsta haust ef "guð lofar"
eins og kellingin sagði og ég vomi yfir gestabókinni
eins og gammur ef gestir álpast nú til að nefna eitthvað
sem meikar sens en er ekki bara eitthvað rugl.
---
Voru Hafnfirðingar hoppandi af kæti
með flugeldasýningu þegar álverið í
Straumsvík komst á koppinn? Jæja gott hjá fólkinu
fyrir austan að það sé loksins eitthvað komið
í líf þess sem er nógu gott fyrir fagnaðarlæti.
Vei! húrra! við fáum að strita bakveik og sveitt
í álverksmiðju fyrir 120þúsund á
mánuði! Jibbí jei! Æ ég veit það
ekki. Kannski er þessi grenjandi Steinunn Sigurðardóttir
eða óðamála Jakob Magnússon ekki rétta
liðið til selja salti jarðar fyrir austan þá hugmynd
um að "virkja hugaraflið". Í þessum málum eins
og svo fjölmörgum öðrum kýs ég þá
lýðræðislegu afstöðu að vera drullusama.
---
Ég er hvílíkt búinn
að taka mig á í bókalestri. Kláraði
doðrant um daginn (sjá menningarafurðir)
og er nú hálfnaður með aðra bók, Áform
eftir Michael Huellembecq. Þar segir hann m.a. að fyrst konur
séu komnar út af heimilunum og séu í sífellt
meiri mæli að líkjast körlum í hegðun
þá hljóti að vera stutt í að þær
fari að leita sér dráttar hjá hórulhúsum
fyrir kerlingar þar sem sætir strák-hórlar svitna
við afgreiðslu. Konan mín er algjörlega á móti
þessari hugmynd sem er vissulega ágætt. Gaman væri
þó að heyra í jafnréttiskerlingum í
gestabókinni og hvort þær myndu notfæra sér
svona þjónustu. Til dæmis mætti ímynda
sér hórulhúsið ÁSTARHREIÐRIÐ í
bakhúsi á Grundarstíg. Konur ganga inn í hvítmálaða
forstofu þar sem ljúf rakspýralykt dillar í
nefi. Við afgreiðsluborð stendur hórulpabbinn, maður
sem líkist Sigurðuri A Magnússyni, í leðursvuntu
utan yfir jakkafötum. Hann leiðir konur inn í setustofu
og spjallar við þær á meðan með sjentílmanískri
röddu. Einn veggurinn í setustofunni er úr gleri og
þar fyrir innan eru hórularnir númeramerktir. Þarna
eru nokkrir hórlar á lausu, númer sex líkist
Fjölni Þorgeirssyni, hann er í leðurpungbindi einu
fata, númer 12 er svipaður og Bent Rottvæler, hann er
í hvítum karlanærbuxum og væfbíter og
er að maula kleinur. Númer 13 er af asísku bergi brotinn
í leðurbuxum þar sem rassinn stendur ber út úr
en númer 17 er sláandi líkur Stefáni Jóni
Hafstein, hann situr í íþróttabuxum en ber að
ofan og er að greiða sér fyrir framan spegil. Úr
þessum föngulega hóp velur konan nú hórul
og skemmtir sér vel með hjálp nautnakremsins Vígal,
sem er reyndar óþarfi því hórullinn er
fagmaður og vindur sér í verkið af einurð og
krafti. Er þetta eitthvað sem lesendur telja rakta gróðraleið?
17:35
10.01.03
Hér
er
hægt að reyna að komast að sem trommari í bandinu
hennar Marzípan. Þokkaleg tímaeyðsla.
---
Djöfull er ég latur maður. 11:20
09.01.03
Í heiminum hefur allt meira eða minna
verið að fara til fjandans síðan ég man eftir
mér. Fyrst varða kalda stríðið en nú erða
eitthvað ennþá skemmtilegra og það er hægt
að velja um ýmislegt til að hugsa um eða bara sleppa
því alveg enda væri ég kominn á hæli
ef ég hefði fylgst grannt með öllum viðbjóði
heimsins síðan ég man eftir mér. Til að fylgjast
með þessu öllu á einfaldan hátt og í
smá fjarlægð er upplagt að lesa punktana hans Jónasar,
enda sá karl nokkuð ferskur. Skipti þó engu að
hann væri ritstjóri í 1/4 öld, allt er jafn mikið
að fara til fjandans fyrir því og sama drullan á
Íslandi og annars staðar. Ég sé annars ekki fram
á almennilegt ástand fyrr en öllu lífi hefur
verið eytt af jörðinni nema skordýrum og grasi. Þá
verður komið eðalástand og friður að eilífu
amen. 19:00
---
Nei nei, hvaða hvaða, ekkert álag
lengur á þessu pöntunarkerfi hjá æsland
express enda erlent kerfi. Búinn að kaupa miða og allt!
Verð sukkandi með Mikael Torfasyni yfir helgi í maí
og er ástæða til að fara að hlakka til strax.
14.600 kall báðar leiðir mar. Ekkert smá lúxus.
Svo keypti ég kjúkling í Nóatúni áðan
á 290 kall. Heilan kjúkkling. Ég held nú að
þessir vesalings Íslendingar sem flutt hafa til Danmerkur
undanfarið, helst í þeim tilgangi að kaupa ódýran
kjúkling að mér skilst, ættu nú bara að
fara að koma sér heim. 18:00
---
ALÆTAN Á RÁS 2 Í
KVÖLD KL. 22:10. FULLT AF ÆÐISLEGRI
MÚSSIKK!!! Lög um rostunga. Lög um eiturlyf. Ný
lög með Heiðu, Ms John Soda og The Roots. Gestir: strákar
í hljómsveitinni DIKTA (diskurinn þeirra "Andartak"
er fínn)
---
Ahhh, íslenska verkvitið. Ekkert slær
því við. Ætlaði auðvitað að rjúka
til og kaupa miða hjá Iceland
Express, en þar er bókunarkerfið að sjálfssögðu
algjörlega í hakki og bara endalaust please try later. Mér
líður eins og ég sé í biðröðinni
hjá Elko og það sé útsala. Styð þetta
fyrirtæki þó heilshugar – burt með bláa einokun
Flugleiða! – og mun reyna aftur og aftur að bóka á
netinu uns það tekst.
---
Eftir langa fjarveru var ég farinn að
halda að hinn léttlyndi og hressi Thors væri alveg hættur
að skrifa á innpíkulesbókina, en nei nei, er hann
ekki mættur blessaður drengurinn og segir mig nú tötsí
og pirraðan sem er að sjálfssögðu hverju orði
sannara þótt engin sé Herbalæf neyslan. Ég
sef þar að auki til kl. 11 á hverjum morgni og er ógeðslega
lengi í gang. Fyrir nokkrum mánuðum rauk ég í
gang kl. 6 og skrifaði rosa bálka hér en nú rétt
nennir maður að pota á rafblað nokkrum línum.
Ég kenni geðsveiflum algjörlega um þetta misræmi.
Þessi umskipti hafa þó jákvæða hlið
því nú get ég vakað frameftir og klárað
myndirnar sem ég leigi. Í október sl. leigði ég
myndina Lantana en sofnaði í henni miðri. Horfði á
hana í gær glaðvakandi og hress og er hún komin
á gagnrýnissíðuna. Ég sofnaði líka
yfir Amores Perros í haust og þarf því að
taka hana aftur við fyrsta tækifæri og klára.
---
Fólk er mikið að tjá sig
um huxanlega keppendur í PP2 og þetta er að sjálfssögðu
eitthvað sem maður hefur pælt í. Við eigum slatta
af stórpoppurum eftir og eru þar vitanlega fremstir Bubbi,
Bó, Maggi Kjartans og Megas. Það verða auðvitað
bara 16 bönd í næstu umferð en mikið er um að
velja. Hér er það helsta í stafrófsröð.
Endilega bætið við á innanpíku ef það
vantar eitthvað:
PP2 HUXANLEGIR KEPPENDUR:
Á móti sól
Á túr (Beta Rokk, Bibbi Curver
+ 1)
Apparat
Bara flokkurinn
Ber
Botnleðja
Brimkló / Sléttuúlfarnir
/ HLH-flokkurinn (til að ná Bó)
Brunaliðið / Júdas (til að
ná Magga Kjartans)
Bubbi + ? (t.d. Stríð & Friður,
Egó, MX21 - varla Utangarðsmenn því menn eru í
fýlu frá síðasta túr).
Búdrýgindi
Buttercup
Change
Dúkkulísurnar
Ensími
Grýlurnar
Kalk
Kátir piltar
Kikk
Kolrassa
Logar
Megasukk (Megas + Súkkat)
Mezzoforte
Mínus
Nefrennsli (til að ná Jóni
Gnarr)
Oxzmá
Papar
Quarashi
Rikshaw
Ríó tríó
Risaeðlan
Saktmóðígur
Sign
Sigur Rós
Skítamórall
Skriðjöklar
Sniglabandið
Snörurnar / Erna+Eva+Erna
Sóldögg
Sororicide
Stjórnin
Stuðkompaníið
Þú og ég (Helga Möller,
Jóhann Helga + Gunnar Þórðarsson)
Todmobile
Trabant / Funerals
Vinyll
Þúsund andlit
Svo má fastlega búast við að
einhver ný unglingabönd verði orðin vinsæl næsta
haust og allt það. Það verður að setja ákveðinn
fyrirvara á "meikböndin" (Sigur Rós, Quarashi etc) því
þau gætu verið fjarverandi í meiki á úrslitastundum.
Hvað segja lesendur um þetta? Hvað vantar? Öskraðu
þig hása(n). 12:05
07.01.03
Glæsilegur þáttur um tunglgönguna
í gær frá Frakklandi. Virðist sem þetta hafi
allt verið svindl og allt tekið upp í stúdíói
eins og var reyndar haldið fram í einni af uppáhaldsmyndinni
minni, Capricorn One. Blessaður vertu, það er allt meira
og minna svindl í þessum fréttum, kæmi mér
ekki á óvart að einn daginn kæmi í ljós
að þessi Ósama Bin Laden sé bara einhver leikari
í Mið-ameríku.
---
Veit ekkert hvar Dato Triffler er niðurkominn.
Sennilega á lyfjum einhvers staðar út á landi.
Flatus lifir ha?! Sannleikurinn kemur í ljós einhvern tímann
en meira verður ekki togað út úr mér nema
með rafmagni í punginn. 20:10
06.01.03
Hössi hættur í Kvarassí.
Þá myndi maður nú halda að bandið væri
búið. Allavega var Hössi alltaf aðalgaurinn í
videóunum og þetta er því örugglega markaðsátak
í súginn.
---
Mogginn á mánudögum líka.
Enn eitt blaðið sem maður missir af.
---
Af hverju fá þessir klónunargeðsjúklingar
svona mikli athygli í fjölmiðlum? Það er ekkert
mál að klæða sig í mussu og segjast vera æðstiprestur
og láta einhverja gleðikonu halda því fram á
blaðamannafundi að klónaðar krakkar velti nú
út úr útungunarvélunum í massavís.
Fáránlegt bull en sniðugt ef þetta lið er ekki
geðveikt heldur bara svona mikið flipplið.
---
Djöfull lýst mér illa á
þennan Donald Römsfíld. Það sést langar
leiðir hvað hann er geðveikur. Það þarf ekki
sterkt ímyndunarafl til að sjá að hann myndi sóma
sér vel í hvítum sloppi að gera tilraunir að
hætti nasista á einhverjum arabavitleysingi. George Bush er
hinsvegar ekki illskulegur að sjá, bara vitlaus.
---
Lalli Johns vatt sér að mér
í morgun og rövlaði eitthvað um að einhver í
athvarfinu hefði þjóðkennt sig. Sagðist ætla
upp á Stöð 2 með þetta stórmál.
Kallgreyið. Alltaf í góðu stuði.
---
Fegurðardísin María Ellingsen
byrjuð í Planet Reykjavík. Mikið myndi geðsjúki
stalkerinn úr Séð og heyrt að öfunda mig að
fá að svitna við hliðina á henni. 10:50
03.01.03
Er þessar stundirnar í heví
vinnu fyrir engan annan en Einar Bárðason og því
lítið um blogg á næstunni. Tja, sjáum til.
Það eru svo slæm skilyrði að ég verð
að hlusta á Súra gæjann í gegnum netið.
Hann er í feikna stuði heyrist mér. Já og meðan
ég man: Gott ég minntist þess: Horfa á Gnarrenburg
á eftir. Ruglað auðvitað því þetta
Norðurljósabatterí er ekkert nema gamlir diskóboltar
úr Hollywood eða einum of streit lið úr MK, sbr.
þau í sófanum, Guðrúnu og Snorra Má.
Nei hvað er þetta: þau eru ágæt. Samt ekki
það gott stöff þarna að maður tými
að blæða í áskrif enda nóg af skyldu-
og fríu sjónvarpi.
---
Helv. eru þau hress í Hveragerði.
Eru búin að hleypa mér í "Listamannaíbúðina"
sína í apríl. Mar verður bara skrifandi meistaraverkið
í góðum gír í höfuðborg hasslampanna.
Jamm jamm og fokking jamm og til hamingju gamli hólkur segi ég
nú bara í skitzófrenísku flogi.
---
Verð að segja að mér líst
á að jólin séu búin, sérstaklega
ef þetta sumarveður helst. Mar var orðinn alvarlega soðinn
á þægindunum og sluxinu. Soðið grænmeti.
20:48
---
Þegar ég fór í strætó
um daginn var ég að koma mér fyrir aftast með poka
fulla af gjöfum og eitthvað jóla jóla. Þá
heyrði ég lágt neyðaróp og skimaði í
kringum mig. Sá fyrst ekkert en svo kom ég auga á
gamlan karl sem var með hausinn út en líkamann inni.
Gúmmíhulsur strætóhurðanna héldu
honum föstum, lágu að kinnunum og klemmdu hann fastann.
Ég hafði engan tíma til að sjá skoplegu hliðina
á þessu heldur æpti á strætóbílstjórann
sem var að leggja af stað. Þessir strætókallar
eru nú upp til hópa algjörir lúðar og þessi
varð bara fúll og kenndi gamalmenninu um allt saman. Opnaði
þó hurðina svo klemmdi kallinn komst út og gekk
leiðar sinnar, af því er virtist í heilu lagi.
Alltaf gaman í strætó skal ég segja ykkur. 10:08
01.01.03
Hei hei! Gl. ár! Verð í fyrramálið
Sigurjóni
til halds og trausts í þættinum hans. Kl. 8 skilst mér.
Svo er auðvitað ALÆTA
annaðkvöld og í tilefni af nýju fersku ári
ætla ég bara að spila lög sem hafa náð
efsta sæti vinsældarlistans í Ameríku eða
Bretlandi síðustu 50 árin eða svo. Óskalagagesturinn
verður bassaleikari Írafárs,
Siggi Sam, enda Írafár besta og mesta bandið í
dag. Þú mátt setja drullu oní þig ef þú
ert eitthvað ósammála því.
---
Hef verið ógeðslega latur að
rövla hér í handarkrika bloggsins yfir svokallaðar
hátíðir enda á maður ekki að lyfta litla
fingri þessa daga. Við skulum sjá til hvort hagur strympu
í blogginu vænkist ekki núna þegar makkintossið
er búið og gráhvítur raunveruleikinn með ógeðslegu
megrunarfæði og þrotlausum æfingum í rækt
djöfulsins tekur við.
---
Helstu plön ársins 2003 eru svohljóðandi:
feb/mars: kaupmannahöfn ferðalag
maí/júní: Flatus
Lifir! (sólóplata)
sumar: skotland /
austurland ferðalög
haust/vetur: MMÚH (leyniheiti) -->
skáldsaga
september-desember: Popppunktur 2003 (II hluti
- 16 ný bönd + nördaþáttur II sem Óskar
stuðpiltur hefur unnið sér þáttökurétt
í með einföldum romm í kók)
---
Annars er auðvitað best að plana
sem minnst (líklega) því á morgun gæti
maður verið kominn með æxli í drellirinn eða
loðnar vörtur á skordýraheilann (já ég
var að fletta "Lifandi vísindi").
---
Þess má geta að ég hefi
(hvað er að þýðendum sem nota alltaf "hefi" í
staðinn fyrir "hef"?) legið yfir nokkrum spólum og gert
þeim skil á menningarafurðasíðu.
Ef þú hefur eitthvað á móti því
geturðu drullað upp í þig.
---
Voða var Bubbi asnalegur með gamalmennunum
að taka á móti stórriddarakrossi eða hvað
þetta kjaftæði er. Sá hann í sjónvarpinu
áðan. Voða asnalegt. Ekki ætla ég að sækja
minn kross þegar ég fæ þetta. É ræt.
Verð
mættur slefandi fínn í pússinu með fávitaglott
fyrstur manna.
---
Mér finnst þessi síða
stórkostlega vel hönnuð og þú getur drullað
í buxurnar ef þú ert eitthvað ósammála
því.
---
(verð að muna að hætta
að segja fólki að drulla hingað og þangað.
Það er svo mikil gelgja).
---
Síðasta ár byrjar svo hér........................::::::::::::::::::::::::::::::20:20 |