OKUR! OKUR! OKUR!
Hér eru birt okurdæmi frá lesendum (og líka ábendingar um ekki okur). Komum út úr neytendamyrkrinu!
Láttu vita um okur
Gagnlegar síður: Vaktin (verðsamanburður á tölvuvörum) / Gsmbensín (Hvað kostar dropinn?) / 
Skotsilfur (um persónuleg fjármál og sparnað) / Kári Harðarson (hugleiðingar um neytendamál)
Athugið: Bréfið þitt gæti líka birst í Fréttablaðinu, nema þú sér sérstaklega á móti þvi. Nöfn sendanda fylgja með nema nafnleysis sé sérstaklega óskað.

(Sett inn 03.09.08):

#1163    Ég varð fyrir því óláni fyrir ca þremur tímum að bíllinn minn bilaði til móts við Korpúlfsstaði. Jæja ég hringdi á Vöku, þar var mér tjáð að væri brjálað að gera svona tæp 2tímar í dráttarbíl, jæja ok með það, ég spurði um verð, hann sagði  að það væri 7000kr á dagtaxta og 9000kr á næturtaxta, humm jæja maður getur skilið það, þannig að ég féllst á að bíða eftir dráttarbíl, sem kom, lipur strákur og vann fumlaust, svo hoppa ég inn í bíl með kortið klár að borga, þá segir strákurinn, að verðið sé 9900kr? ha nú? segi ég, maðurinn í símanum sagðí 9000kr, já ég lendi í því eftir hverja vakt að´reyna að leiðrétta þetta við þá, það er nefnilega Securitas sem sér um símsvörunina, ég hringi beint í Vökunúmmerið úr dráttarbílnum, maðurinn sem heitir reyndar Gissur Agnarsson, sagði eftir smá japl og tölvupikk að það væri rétt, hvernig er hægt að vera ekki með verðið á hreinu ef það er svona mikið að gera? þú fékkst þó allavega þjónustuna sagði hann hálfhlæjandi, þjónustuna?:(, bíllinn kominn upp á pall og kominn ausandi rigning, lét mig hafa þetta en er alveg helósáttur og mjög hissa á þessu svari í símanum, kær kveðja frá einum ósáttum við enn eitt þjónustuklúðrið hjá stóru fyrirtæki. 
Svavar Smárason

#1162   Blaðagrindarokur
Árni Torfason

#1161 / 1160    Swiss mokka (heitt súkkulaði með skoti af espressó), er á mörgum stöðum orðið ansi dýrt og orðið erfitt að fá góðan bolla fyrir lítið verð. Í Te&kaffi í Suðurveri þurfti ég t.d. að borga heilar 420 krónur fyrir herlegheitin, og þurfti þar að auki að bíða í heila eilífð til að fá þjónustu. Mér finnst líka að það ætti að vera verðmunur á því hvort að maður fái í bolla til að drekka á staðnum eða fái í take-away máli. 
En svo kem ég við í Borgarnesi og fer í Geirabakarí sem er við hliðina á Bónus. Þar kostar bollinn af mjög góðu swiss mokka 300 krónur og þar er líka notað Te&kaffi (greinilega lægri flutningskostnaður til Borgarness).
Jóna B

#1160 / 1160    Jæja, þar kom að því að mér blöskraði nógu mikið til að leggja orð í belg. Ég er nýlega farin að borða Havre Fras (Hafrakodda) af miklum móð og vantaði meira fyrir morgunverðinn. Var því miður á ferðinni eftir lokun lágvöruverslananna, þann 1. september 2008! Ég byrjaði á því að fara í Nóatún (Grafarholti), þar var það ekki til, hafði verið fjarlægt úr hillum þar sem það hafði runnið út. Fjölskyldupakkinn (500 g) þar hefur verið á 445 krónur undanfarið, samkvæmt kvittunum síðan í júní og júlí, ég sá reyndar mér til skelfingar þegar ég blaðaði í gegnum gamlar kvittanir að í maí hef ég tvisvar sinnum keypt fjölskyldupakkann þar á 754 krónur, verð að passa þetta betur. Svo lagði ég leið mína í næstu okurholu; 11-11 við Kirkjustétt (Grafarholti) þar var fjölskyldupakkinn til, en ég rak upp stór augu þegar ég leit á verðið 839 krónur!! Ég fór með kassann að afgreiðslukassanum því ég ætlaði ekki að trúa þessu, afgreiðslustúlkan staðfesti að þetta væri "rétt" verð, ég sagðist hafa keypt þetta nýlega á rúmar fjögurhundruð krónur. Það þarf ekki að taka það fram að kassinn varð eftir í búðinni. Þegar heim var komið fann ég kvittun frá 10. ágúst ´08, þar var verðið, í sömu búð á 500 g pakkningu, 478 krónur. Hvað gerist eiginlega í millitíðinni? 
Svo verð ég að hrósa fiskbúðinni Hafberg í Gnoðavogi 44, ég keypti hjá þeim góðan lax og rúgbrauðsstykki í síðustu viku, þegar ég kem útí bíl tek ég eftir því að upphæðin á kvittuninni er hærri en hún átti að vera og þegar ég er alveg að stíga út úr bílnum kemur fisksalinn út til mín og spyr hvort ég hafi tekið eftir þessu. Hann hafði þá óvart stimplað inn 2.070  í stað 1.070. Hann leiðrétti þetta hið snarast. Svona á þetta að vera. Ekki allir sem hefðu haft fyrir því að leiðrétta þetta ótilneyddir. 
Þóra

#1159    Ég sá auglýsingu í Morgunblaðinu í dag frá MAX raftækjum.  Þar auglýsa þeir pizzuofn á "tilboði" á 9.989 kr. en fullt verð sé 13.989.   Sami ofn kostar í dag í vefverslun Elko 9.995 kr en kostaði í mars á þessu ári 6.900 kr. og man ég það vel þar sem við hjónin vorum að hugsa um að kaupa einn slíkan í brúðargjöf handa vinum okkar í mars.
Elkomenn gefa ekki upp fullt verð í verslun á vefsíðu sinni, einungis vefverð og á þá eftir að bæta sendingarkostnaði ofaná en ég geri ráð fyrir að verð í verslun sé á svipuðum slóðum og verð MAX manna, eða ca.13.000 krónur.
Þetta finnst mér ansi mikil hækkun á 5 mánuðum og þá sérstaklega með tilliti til þess að krónan hefur frekar verið að styrkjast en veikjast fyrir sumarið.  Ofninn hefur semsagt hækkað um 600 krónur á mánuði síðan í mars!
Ágústa Björk Steindórsdóttir

#1158   Elko er yfirleitt með mjög gott verð og sanngjarnir en:
PC: Spore Creature Creator (PC/Mac) PCCDSPORE
Er kynningarvara og undanfari leiksins Spore og í raun ekki leikur sem slíkur, heldur lítið forrit sem gerir manni kleift að prufa uppbyggingarkerfi leiksins. Þetta er forrit sem framleiðandi gefur frítt á heimasíðu sinni og verslunin BT gefur gestum og gangandi að kostnaðarlausu. Hversu lélegt er að selja á 995kr í Elko það sem á öðrum stöðum fæst gefins? Ef BT er að gefa þetta frítt er þetta augljóslega vara sem fyrirtækin fá á kostnaðarlausu.
Ómar Jónsson
(ATH: Ég vil samt benda á svolítið í sambandi við okur #1158 þar sem Ómar
Jónsson kvartar undan því að Elko rukki 995 krónur fyrir Spore Creature
Creator. Sannleikurinn er sá að hvergi er hægt að fá þennan leik gefins,
einungis er hægt að fá prufuútgáfu af honum gefins. Til þess að hafa
fullan aðgang að honum þarf að kaupa fulla útgáfu, sem Elko hefur til sölu
á 995 krónur. Sama vara kostar 4.98 pund á amazon.co.uk,
eða 798 krónur. Eftir toll og virðisauka væri það komið yfir 1000 krónur
svo það má segja að Elko séu bara með frekar sanngjarnt verð...)

#1157    Ég hringdi í Íshesta rétt áðan til að forvitnast um tilboð þeirra "Hestur í fóstur", en þá fá krakkar að koma og hirða um tiltekið hross einu sinni í viku. Þau fá leiðsögn um umhirðuna og einn reiðtúr að ég held. Þetta flokkast sem námskeið og kostar kr. 34 þúsund fyrir tólf skipti. Þegar ég hváði var ég spurð hvort ég væri ekki úr Hafnarfirði? Nei, af hverju? Út af frístundakortinu, var mér sagt. Mér fannst þetta samt ansi dýrt og fékk þá svarið, "Já en frístundakortið ..."
Ég hef áður talið mig sjá hækkanir á námskeiðum í Reykjavík í kjölfar tilkomu frístundakortsins, og er nokkur ástæða til að ætla að markaðskapítalisminn hagi sér öðruvísi þegar um er að ræða tómstundir barna en í öðrum málum?
Það væri áhugavert að skoða þetta nánar.
Kristín Elfa Guðnadóttir. 

#1156    Eftirfarandi er samrit af tölvupósti sem sendur var til verslunarstjóra í Krónunni á Hvaleyrarbraut í dag: "Ég versla stundum í Krónunni, þrátt fyrir lélegt vöruval, vörur oft í hillum eftir síðasta söludag og illa þjálfað og stundum hreinlega dónalegt starfsfólk.  Hef látið mig hafa það þar sem þetta er næsta verslun. Kom við í dag til að kaupa sykur í sultugerð. Tók 1 kg. pakka af Tate & Lyle strásykri.  Á kassanum var þessi vara "ekki á lista".  Starfsmaðurinn "Luiz" fór inn fyrir (að ég geri ráð fyrir til yfirmanns), kom síðan til baka og tilkynnti mér að þessi vara væri ekki til sölu.  Ég hef aldrei orðið fyrir því áður að vara sem er í hillu verslunar sé ekki til sölu.  Er þetta einhver ný stefna? Ég held að ég gefist alveg upp á því að reyna að koma við í þessari verslun."
Þar að auki sá ég að pakki af Pickwick Earl Grey te var á 306 krónur í Krónunni, en 199 krónur í Samkaupum í Hafnarfirði (þar sem ég fékk svo sykurinn)
Hildur Reykdal
(nb. Computer says no?)

#1155    Langar að segja frá okri sem ég sá í skóbúðinni Bianco í Smáralind. Skoðaði svört stígvél og kíkti á verðmiðann sem var svona "alþjóðlegur" (verð í nokkrum myntum) og voru stígvélin á rúmar 20 þúsund krónur ísl. en 1400 danskar krónur (skoðaði ekki hin verðin en það skiptir held ég ekki máli hér).
Tók svo upp önnur mjög svipuð svört stígvél og sá að þau kostuðu sömu 1400 dönsku krónurnar en mér til mikillar furðu voru þessi stígvél verðlögð á 32.600 íslenskar krónur. Ég bar þetta undir afgreiðslustúlkuna sem hafði þessa líka fínu skýringu á þessu "þetta eru sko ekki sömu stígvélin." 
Ég kom svo litlu síðar inn í búðina með vinkonu minni sem ég hafði hitt í millitíðinni og ætlaði að sýna henni grínið en þá var búið að fjarlægja dýrari týpuna úr hillunni svo ég spurði (komin ný dama á vaktina) hvort það hefðu ekki verið stígvél þarna og jú hún kom með þau í fanginu og setti þau í hilluna. Það vara búið að taka "alþjóðlega" miðann af og merkja stígvélin 32.600 kr. 
Held ég sé ekkert á leiðinni að kaupa mér skó þarna.....
Guðný Elísabet

(Sett inn 31.08.08):

#1154    Fór í Byko í dag og keypti sparperur í útiljósin hjá mér "OSRAM DLUX D 13W" stykkið kostaði rúmar 2300 krónur sem mér fannst vera ótrúlega dýrt.  Datt í hug að kíkja á netið og a.t.h. hvað svona pera kostaði í útlandinu, þar kostar svona pera £2.50  sem jafngildir 380 krónum, verðmunurinn er 6 faldur, sjá hér
 Jón Reynir Vilhjálmsson
(nb. Byko er að gera upp á bak. Þú þarft ekki að leita til útlanda til samanburðar. Í dæmi #1152 skíttapar Byko fyrir Bónus og í dæmi #1149 er Byko löðrungað af Glóey. Af þessu er hægt að áætla að Byko sé bévítis okurhola sem ber að forðast.)

#1153    Ég fór með son minn að sjá Dark Knight í Sambíóunum í dag og eins
og gengur þá keyptum við okkur popp og kók áður.  Einnig fengum við
okkur sitt hvorn pokann af bland í poka. Ekkert rosa mikið en að vísu
var strákurinn með 2-3 frekar þung stykki. Þegar það kom svo að
því að borga kom sjokkið.  2.800 kr fyrir 2 kók, 2 popp og 2 bland í
poka.  Ég spurði þá hvað blandið kostaði eiginlega og
afgreiðslustrákurinn sagði með smá brosi (svona eins og hann fengi
þessa athugasemd oft) að það kostaði um 1.100 kr.  Ég var því
fljótur að skila því og fengum við okkur í staðinn sitt hvort
súkkulaðistykkið. Algjört okur!
Geir

#1152    Okkur feðgum áskotnaðist fiskabúr um daginn. Það skyldi setja upp lítið sædýrasafna á heimilinu. Fínt 40 lítra fiskabúr. Takk Dengsi fyrir að gefa Elvari það. En, peran var ónýt og þá var að finna nýja. Svo þurfti ég í BYKO sem illu heilli er búið að úthýsa úr Hafnarfirði og planta eh risa dæmi útí hrauni í Garðabæ á slóðum IKEA. Í leiðinni var upplagt að athuga með peruna í fiskabúrið, en það var því miður ekki hægt að kaupa eina ! Nei það voru tvær í pakka sem varð að kaupa og pakkinn kostaði 570.- krónur !! Þetta eru ekki stórar perur og mér fannst þetta fjandi dýrt en huggaði mig við að með því að kaupa þennan pakka ætti ég eina til vara í annað hvort ísskápinn eða nú fiskabúrið góða. Dýrt samt ójá, því sjokkið kom í dag !! Okur okur okur var þetta. Ég var að kaupa mér rykmoppur í Bónus í Hafnarfirði áðan og hvað sé ég,: nákv. sömu helv.... perurnar sem sem ég hafði keypt á 570.- krónur í BYKO voru þarna í næstu hillu fyrir ofan rykmoppurnar ! 
Nákvæmlega sama vörumerkið: Osram Special 15W E14 2 stk. og verðið,: 199.- krónur. Þetta er svo mikið okur hjá BYKO að ég hef ákveðið að klippa í sundur viðskiptakortið mitt sem veitir mér þó heil 10 % í staðgreiðsluafslátt og snúa mér að samkeppnisaðilanum með ýmislegt smálegt í viðhald á heimilinu, og að sjálfsögðu í Bónus með þá hluti sem þar fást. 
Jóhannes Einarsson 

#1151    Ég bý erlendis og ætlaði að panta flug heim með Icelandair eftir um 3 vikur.
Ég breytti ferðaplaninu þegar ég rakst á skemmtilegan fídus hjá þeim: 2 ódýrustu flugfargjöldin (af 4) eru ekki í boði ef pantað er aðra leiðina með minna en um 25 daga fyrirvara.
Ef maður vill t.d. fara aðra leið til Kaupmannahafnar eftir 1-3 vikur er ódýrasta flugið á 51.824 kr.
Ef maður pantar báðar leiðir lækkar verðið á sama flugi niður í 13.507 kr svo miðaverðið næstum FJÓRFALDAÐIST.
Til að fá miða til Kaupmannahafnar á skikkalegu verði þarf sem sagt að kaupa miða heim líka (sem kostar frá 13.697kr), svo heildarverðið með miða SEM ER HENT er 24600kr. LÆGRA (48% lækkun).
Aðrir staðir eru eins - París: 63.938 fer niður í 20.938 kr ef heimflug er keypt.
Svo ef maður þarf miða aðra leiðina með Icelandair með skömmum fyrirvara getur það verið 15-30000 kr ódýrara að kaupa miða báðar leiðir og henda seinni miðanum. Er þetta eðlilegt?
Einar Jón Gunnarsson

#1150    Var stödd í Samkaup/Strax, sem er í hverfinu mínu. Þar er yfirleitt allt frekar dýrt, svo maður verslar bara nauðþurftir þar. Rak augun í uppáhalds múslíið okkar hjóna sem er frá fyrirtækinu Gott fæði og nefnis Morgungull. Ég leit á verðið sem var 449- sem mér fannst ansi dýrt fyrir 1 kg af múslí. Hugsaði með mér að ég skyldi kaupa það í næstu lágvöruverslunarferð. 
Var svo í Krónunni í Húsgagnahöllinni 28.ágúst. Sá múslípakkann og leit á verðið. Las að það kostaði um 300 kr svo pokanum var skellt með. Þegar heim er komið sé ég á kassakvittuninni að pokinn er verðlagður upp á 629 kr. Fannst það fúlt og fór í búðina aftur til að kanna málið. Þá sá ég að verðmerkingin á hillunni átti við allt aðra vöru, sem var ekki einu sinni nálægð þessu múslíi mínu. Athugaði á kassanum hvða pokinn kostaði og jújú, kassakvittunin hafði verið rétt. 629 kr. Ég lét þá vita að þetta væri mun ódýrara í klukkubúðnni í hverfinu mínu og þá ypptu starfmenn bara öxlum. Ég minnti þá á að þetta væri ekki ódýrara verð... hugsandu um slagorð Krónunnar, Krónan kostar minna. Þá fékk ég bara bros og setningna "svona er þetta bara"!
Mér finnst það lélegt að búð sem segist vera lágvöruverslun og gerir sig út fyrir það sé með mun dýrari vöru en klukkubúðin í hverfinu.
Hildur H

#1149    Ég fór í verslunarlarleiðangur í dag.  Mig vantaði m.a. peru í baðinnréttinguna.  Ég ákvað að kaupa tvær til að eiga til vara næst þegar peran færi.  Ég hef verslað rafmagnsvörur ýmist í Rafkaup eða Glóey, báðar verslanir í Ármúlanum.  Þar sem ég ætlaði að kaupa 2 eins perur sá ég tækifæri til að bera saman verð í þessum tveim verslunum.  Ég fór í Rafkaup og fékk peruna á 1.128 krónur. Röllti síðan yfir í Glóey og fékk samskonar peru þar fyrir 798 krónur.
Mig vantaði ýmislegt fyrir málningarvinnu m.a pensil sem ég sá í Verkfæralagernum á kr. 138.  Þar sem ég mundi þurfa að fara í BYKO til að kaupa rest. Ákvað ég að kaupa pensilinn þar ef penslar eru ca. á Þessu lága verði.  Í BYKÓ þar sem ég ætlaði að kaupa a.m.k. 8 hluti hætti ég snarlega við þegar ég sá að sambærilegur pensill, sem kostaði 138 kr. í Verkfæralagernum kostaði nærri 1.200 krónur í BYKÓ!!!.  É g skoðaði einnig verð á perunni góðu og í BYKO kostaði hún rúmar 1.400 krónur. Næst ætla ég ætla að reyna Múrbúðina.
Ásbjörn Ólafsson

#1148    Strætó er frekar óhagstæður ferðamáti fyrir meðalmanninn, þar sem verðið á strætómiðum er beinlínis skammarlegt þessa dagana (það borgar sig ekki fyrir mig að kaupa kort þar sem ég er í vaktavinnu). Auk þess er þjónustan hjá strætó orðin svo slæm að ég get ekki lengur sætt mig við hana, þrátt fyrir að hafa notast við strætisvagna í mörg ár. 
Þess vegna ákvað ég að fá mér frekar nýja 125cc vespu til að koma mér í og úr vinnu. Það er að mínu mati ágætis lausn, þar sem ný vespa kostar jú minna en nýr bíll. Auk þess er það, í mínu tilfelli, ódýrara að borga bensín á hana heldur en að kaupa mér strætómiða.  Þeir sem ég þekki og eru á svona farartækjum segja mér að þeir séu að borga ca. 60 þúsund í tryggingar, og sumir allt niður í 40 þúsund. 
Þar sem mér er skylt að tryggja fararskjótann, þá hringi ég í VÍS, sem eru með allt mitt hafurtask á sínum snærum (íbúð og innbú). Maðurinn í símanum hjá þeim býður mér að tryggja vespuna á 170 þúsund krónur! Ég varð að sjálfsögðu eins og snúið roð í hund og segi honum að ég geti ekki sætt mig við það og segi honum hvað kunningjar mínir eru að borga í tryggingar fyrir sín hjól. Svarið sem ég fékk var á þessa leið: "Vespur lenda í fleiri slysum en bílar, og þar sem að þú ert ekki með bíl hjá okkur. Þú notar ekki bíl og ert þá meira á vespunni og því er þér hættara við að lenda í slysum". Ég benti honum þá á að sumir kunningjar mínir væru á mótorcross hjólum í torfærum og á stökkpöllum og væru samt að borga minna í tryggingar.  Maðurinn í símanum sagðist ætla að athuga þetta aðeins, en kom svo aftur og sagði mér að hann væri búinn að athuga þetta vandlega og að því miður væri þetta eina verðið sem hann gæti boðið mér. Þegar ég svo tjáði honum að ég ætlaði mér þá að finna mér annað tryggingafélag og athuga hvort þeir gætu ekki boðið betur fyrir heildarpakkann hjá mér (íbúð og vespu), þá áttaði hann sig skyndilega á því að hann hefði ruglast á þyngdarflokki hjólsins og að verðið fyrir trygginguna væri núna 80.000 krónur. 
Núna er ég að leita mér að öðru tryggingafélagi sem getur orðið áskrifandi að peningunum mínum...Því ég sætti mig ekki við þessa þvælu hjá VÍS. 
Arngrímur 

#1147    Fór með armband í viðgerð í Klukkuna í Hamraborg, Kóp. Armbandið var keypt þar og kostaði 3900 kr. Það hafði slitnað og átti ad setja einn pinna i það, sem kostaði 3500 kr! -  algjört okur. Hef farið með skartgripi i viðgerð i Aurum i Bankastræti sem voru keyptir þar og aldrei þurft að borga eina krónu. Topp þjónusta i Aurum. Fer ekki aftur i Klukkuna í Hamraborg.
Helga Ægisdóttir

(Sett inn 29.08.08)

#1146    Fór með dóttur mína í gær í Sambíóin Álfabakka. Um var að ræða sýningu kl 15.40  á kvikmyndinni Wall e.  Þegar ég borgaði miðana varð mér hvelft við því þá þegar var ég  búinn að að fá blóðbragð í munninn við tilhugsunina 
um að borga 1.000 kr fyrir mig og 750 kr fyrir dótturina.  Þegar afgreiðslustúlkan rétti mér miðana og sagði 1.850 fauk í mig og ég sem meðvitaður neytandi spurði af hverju verðið væri ekki í samræmi við það sem auglýst er á verðaskrá við miðasölu. Jú sérstakt digital álag 50 kr er sett á bíómyndir sem eru sýndar í digital gæðum, mér er til efs að svona skattheimta sé eðlileg hvað þá lögleg.
Ég sagði vinnufélögunum frá þessu og kom þá á daginn að Sambíóin eru einnig farinn að rukka sérstakt álag fyrir lengri bíómyndir. 50 kr eru ekki málið hér en þegar okrið er orðið slíkt að smurt er á miðana með einhverjum rugl sköttum þá er nóg komið. Ég fer aldrei aftur í Sambíóin. 
Kolbeinn Marteinsson

#1145    Glaður í bragði hélt ég til útibús Glitnis í Kringlunni. Tilgangur ferðarinnar var að skipta þar um 50 dönskum krónum yfir í íslenskar krónur.
Ég rak þó í rogastans þegar- annars ljúf afgreiðsludaman, benti mér á það að ég þyrfti að borga aukalega 190,- kr. fyrir afgreiðsluna, þar sem kl. væri orðin 16.00.
Ég hélt nú ekki, rölti yfir í KB banka, þar sem ég var ekki rukkaður fyrir það hvað klukkan væri. Ætla þessir banka-plebbar ekkert að hætta að okra á okkur? Spyr ég, fávís maðurinn.
Óskar nafnleyndar

#1144    Með hvaða símafyritæki mælið þið og af hverju? Ég held ég sé að verða búin að fá mig fullsadda af Símanum. Loksins kemur þetta fína tilboð um að skrá fjölskylduna í "Núllið" þá geti fjölskyldan hringt frítt sín á milli, bæði með gsm í gsm og heimasíma! 
Jú af stað er farið og ég skrái mig í einhvern fínan þjónustuvef til að geta haldið áfram og skráð okkur fjölskylduna í "Núllið". Þegar það ferli allt er að verða búið kemur að því að samþykkja skilmála og skrá sig...
Já takk, í skilmálunum stendur að lágmark 3 gsm númer þurfi til að "Núllið" virki!
Við hjónin erum með sitthvorn gsm símann og einn heimasíma! Þannig að til ég geti fengið "Núllið" til að virka þyrfti ég að fara og kaupa gsm númer og síma til viðbótar. (þurfum ekki fleiri) Ég ætti kannski að splæsa í síma fyrir bráðum 4 ára son minn eða 5 mánaða dóttur! Svona til að geta nýtt mér "NÚLLIÐ"?
Fyrir mér er þetta frekar falskt tilboð! Þar fyrir utan ef gsm númer er frelsisnúmer verður maður að kaupa sér inneign fyrir 1000 kr á mánuði til að "Núllið" virki ;)
Fjóla Borg 

#1143    Sem þónokkuð meðvituðum neytanda langar mig að tilkynna um okurverð á hulstrum (Sleeve) fyrir Apple tölvur sem seldar eru í verslun með sama nafni í borginni.  Hulstur fyrir 13" fartölvur kosta 6.990.- kr! Svívirðilegt!
Steinunn
(nb. Er ekki allt rándýrt í þessari Apple búð? Þetta er svo fínt merki!)

#1142    Var að upplifa ótrúlegt okur í Snælandssjoppunni við Furugrund. Þar selja þeir Gevalia kaffipakka í lofttæmdum umbúðum á 950 kr. og fullyrða að þeir þurfi að kaupa hann inn á 780.kr.pk. Meira að segja 10-11 selja hann á 586 kr og eru þeir ekki þekktir fyrir að gefa neitt,svona kaffipakka keypti ég í gær í Bónus á 326kr.Hvers konar framkoma er þetta.Langar til að vita hverjir flytja þetta inn og hvaða verði er pakkinn seldur til kaupmanna.Takk fyrir að vera á vaktinni.
Elín Skeggjadóttir 

#1141    Ég fór í Krónuna í Mosfellsbæ í síðustu viku og keypti tvær langlokur frá fyrirtæki sem heitir Lína (www.samloka.is). Báðar langlokurnar voru framleiddar sama dag og þær voru keyptar, 25. ágúst sl. og kostuðu 289 krónur hvor.
Þegar ég opnaði lokuna mína þá var það fyrsta sem ég tók eftir hversu illa útlátið allt álegg og meðlæti var á brauðinu. Brauðið sjálf virkaði einnig gamalt og við fyrsta bita var augljóst að áleggið var úldið. Sömu sögu var að segja af hinni langlokunni sem maðurinn minn fékk. 
Báðar fóru þær beint í ruslið en þessum 578 krónum hefði vel verið hægt að verja í betri bita fyrir ferðalag okkar. Það er ekki réttlætanlegt að láta bjóða sér skemmda vöru á framleiðsludegi, ég er ennþá með óbragð í munninum. 
Neytandi

#1140  Ég má til með að nefna alveg ótrúlega hækkun á vöru hjá Lyf og heilsu í
Keflavík. Konan mín hefur notað heilsuvöru sem heitir Metasys með mjög
góðum árangri. Fyrir um 6 vikum síðan keypti hún mánaðarskammt fyrir rétt
um 3.800.- kr. En núna þegar hún ætlaði að kaupa næsta skammt kostar hann
5.700.- kr. Sem þýðir að hún hefur hreinlega ekki efni á því að nota þessa
vöru meir. Hvað er það sem réttlætir 50% hækkun á vöru á sex vikum, það
getur ekki verið verðbólgan. Gaman væri að vita hvað réttlætir þetta
skelfilega okur.
Páll Árnason, Keflavík

#1139    Er með bílalán eins og margir aðrir íslendingar hjá SP-fjármögnun. þegar ég var að greiða ágústgjalddaga tók ég upp á einu sem ég hef aldrei gert áður en það var að lesa allt sem stóð á seðlinum í heimabankanum þegar ég greiddi. tók ég þá eftir því að það var verið að rukka mig 450 kr vanskilakostnað án þess að lánið væri í vanskil. ég var mjög ósátt og hringdi 3x í þá til að reyna að fá útskýringar á þessu. þegar ég loksins fékk einhver svör þá var mér sagt að þetta væri seðilgjald með fleiru (ekki nánar útskýrt). Starfsmaðurinn í innheimtu lét það vel í ljós hvað það væri nú fáranlegt að vera að gera svona mikið mál úr 450 kr, en mér finnst kostnaðurinn við bílalánunum vera nóg fyrir þeir ættu ekki að þurfa að svindla á okkur líka. ég þrasaði lengi við þá og sagði að hlutir ættu að heita réttum nöfnum og þeim gæti ekki verið heimilað að rukka vanskilakostnað á láni sem væri í skilum þó svo að þeir vildu meina að þetta væri annar kostnaður. eitthvað röfluðu þeir um að þetta gerðist bara svona þegar greitt væri í heimabanka en mér finnst það engu skipta. ÞETTA HLÝTUR AÐ VERA ÓLÖGLEGT EÐA HVAÐ????????? mæli með að þeir sem greiða reikninga í heimabanka skoði kvittanir sínar sem þar birtast núna um mánaðarmótin. Hvert getur maður kært svona innheimtu???
Drífa Gunnlaugsdóttir
(öööö.... Neytendasamtökin?)

#1138    Símabær – snilllldddd. www.simabaer.is  Skjárinn á gsm-símanum fór – nýr skjár kostar um 2000 kr. Endilega athugið verðið hjá þeim áður en þið hendið gamla GSM símanum.
Einnig eru aukahlutir þar ódýrari en hjá símafyrirtækjunum – Gagnakapall (Nokia gagnakapall CA-53 ) 4990 kr hjá símanum(fann ekki hjá nova, vodafone né Tal) – 1990 kr hjá símabæ... 
Guðrún Jóna Jónsdóttir

#1137    Var að kaupa litla dós af soyaþurrmjólk um daginn, sem væri ekki í frásögufærandi nema vegna þess að ég borgaði fyrir hana 998 kr. í Hagkaup og hugsaði hvað hún hefði hækkað (hafði ávallt verið í kringum 500 kr). Fór svo nokkru seinna í Krónuna þar sem ég borgaði kr. 550 fyrir dósina. Svo tók nú botninn úr þegar ég sá að þessi sama dós kostar 1660 kr. í Lyf og Heilsu í Fjarðarkaupum – kannaði nú ekki hvað hún kostaði í Fjarðarkaupum sjálfum. En getur þetta verið eðlilegt? Það er alveg víst að Krónan er með einhverja X% álagningu á dósina en Hagkaup og hvað þá apótekið er með hundraðfalt þá álagningu! Mér finnst þetta langt frá því að vera eðlilegt og sýnir  hvað kaupmenn geta auðveldlega farið illa með blásaklausan almenninginn sem skoðar ekki strimilinn hjá sér og ber saman verð á vörum milli búða. Þetta er nú líka langt fyrir utan öll skekkjumörk. 
Guðrún Bergsteinsdóttir

#1136    Pólskur starfsmaður hjá mér kom til mín með kvittun frá Íslandspósti
hann hafði um daginn póstlagt böggul sem innihélt gjöf til 
eiginkonunar í Póllandi. Pakkinn hafði ekki skilað sér til konunar og hann vildi fá svör frá 
Íslandspósti og mína aðstoð við það, sem ég gerði.
En það er ekki málið, heldur að á kvittuninni frá Íslandspósti sá ég 
að pakki þessi viktaði aðeins eitt kíló en hann þurfti að borga hátt í 
3000 kr fyrir sendinguna, 3000kr!
Og pakka helvítið skilaði sér ekki einu sinni á áfangastað, enda 
kostar það örugglega extra.
Hafliði

#1135    Langar að segja ykkur frá viðskiptum mínum við BM Vallá steypustöðinni á Akranesi. Hringdi í þá og bað um rúmmetraverð á steypu með dælingu, ég fékk ásættanlegt verð og ákveð að versla við þá.  Þeir koma með dælubíl eins og lög gera ráð fyrir, en í miðju verki stíflaðist dælan, nú það endaði með því að múrarinn minn, á fullu kaupi hjá mér, sá um að losa hana en það fór heill rúmmeter af steypu niður í götuna.  Þá var haldið áfram með verkið og allt í lagi með það.  Þangað til ég fékk reikninginn, þar var dælunin ekki inní verðinu og ég var ekki tilbúin að borga þetta svo ég hringdi í BM Vallá, þar bentu menn hver á annan og sögðu að það væri venja að gefa ekki upp verðið á dælingunni en ég bað um verð með dælingu.  Þarna munaði rúmum 55 þúsundum.  Einnig var mér sagt að dælubíllinn hefði verið svo lengi hjá mér að ég mætti þakka fyrir að þurfa ekki að borga meira.  Semsagt ef þeir hefðu gefið mér upp rétt verð hefði ég ekki verslað við þá því það var hagstæðara verð hjá Loftorku í Borgarnesi, og eins og ég tjáði BM Vallá í dag þá mun ég versla við Loftorku hér eftir.  Þess má geta að ég bað þá um að koma eitthvað til móts við mig þar sem þetta voru jú mistök af þeirra hálfu en ekki sjens, enda þeir alsaklausir, og ég með leiðindi. 
Sigurbjörg Kristmundsdóttir, Stórvesír

#1134    Þessi hugleiðing mín snýst ekki beint um okur heldur meir um jákvætt fordæmi. Nú um þessar mundir eru nemakortin í strætó auglýst í gríð og erg og finnst mér það frábært. Það sem mér finnst hinsvegar skrýtið er af hverju grunnskólabörn fái ekki þessa sömu þjónustu.  Ég og dóttir mín bjuggum á stúdentagörðunum fyrstu 4 árin hennar í skóla og þangað kom alltaf skólabíll þar sem Suðurgatan var talin svo hættuleg.  Núna erum við fluttar lengra frá skólanum. Skólabíllinn sækir hana ekki lengur og hún varð himinlifandi þegar hún uppgötvaði strætóinn. Í staðin fyrir að ganga í 20-25 mínútur tekur hún strætó á miklu skemmri tíma. 
Auðvitað hafa börn gott af því að ganga í skólann en persónulega vil ég frekar að hún stundi aðrar tómstundir og útiveru en að ganga á meðal bíla í myrkri.  Þegar veðrið er sem verst keyri ég dóttur mína og miðað við umferðarþungan á skólalóðinni á morgnanna gera aðrir foreldrar það líka.  Væri því ekki betra fyrir alla að nemakortin í strætó væru líka fyrir grunnskólabörn. Börnin eru öruggari í strætó miðað við gangandi í umferðinni á veturnar og bílaörtröðin á skólalóðum myndi minnka.  Þetta leiðir líka til minni slysahættu, sem er það sem við öll leitumst eftir.  Svo eru eflaust ekki margir foreldrar sem eru heimavinnandi og geta skutlað börnunum í tómstundir út um allan bæ eftir skóla.
Með því að bjóða grunnskólabörnum ókeypis í strætó kennum við þeim snemma að nota strætó, sem er eitthvað sem þeim verður síðar meir tamt að nota og bensíneyðsla og mengun minnkar.
Eyja Líf

#1133    Fór niðrí bæ að leita af 8 porta switch hraðvirkum venjulegir switchar eru 10/100mb  en mig langaði að kaupa switch sem er hraðvirkari eða 10/100/1000mb. Fór fyrst í BT skeifuni að athuga þeir áttu  8 porta switch sem er 10/100/1000mb  hann kostaði  16.900 kronur  - ég ákvað að kikja í elkó við hliðina í skeifunni g athuga hvort þeir ættu svona switch. Þeir áttu líka 8 porta switch sem var 8 porta 10/100/1000mb, alveg sambærilegur switch en hann kostaði 5.995 krónur!!!!!  munur aðeins 10.905 krónur! Þetta kalla ég okur 
Elmar Ö Sigurðsson

(Sett inn 27.08.08):

#1132    Langaði til að tjá mig aðeins um íslenskan matvörumarkað og þá öfugþróun sem átt hefur sér stað á honum á undanförnum 10-15 árum. Þannig er að ég er nýfluttur til Hollands þar sem stærsta matvörukeðjan heitir Albert Heijn. Í þessum búðum er gott verðlag (um 20% ódýrara en Bónus heima, ferskvörur og áfengi 50% ódýrara), passlega mikið úrval (undantekning ef maður finnur ekki það sem vantar í matinn en samt ekki 10 tegundir af sömu hrísgrjónunum), góð þjónusta (hægt að finna starfsmann í búðinni og þjónustuborð t.d. til að kvarta yfir strimlinum), ekkert úldið grænmeti, allar vörur eru verðmerktar, það er opið frá kl. 8-22 og aldrei löng röð á kassanum.
Eftir að hafa haft svona búð í mínútu göngufæri (einu búðirnar í slíku færi frá venjulegum heimilum heima á Íslandi eru okursjoppurnar 10-11 og 11-11) hef ég spurt mig hvað Íslendingar hafa gert til að verðskulda þær ömurlegu keðjur sem eru heima. Hver keðja byggir tilvist sína á einu eða tveimur þeirra atriða sem ég nefndi hér að ofan, og allt annað er í molum. Þetta þarf ekki að vera svona. Mig minnir jafnvel að fyrir 20 árum hafi Hagkaup verið ekki ósvipuð búð og AH, ekki eitthvað risagímald, og venjulegt fólk gerði öll dagleg innkaup sín þar án þess að líða eins og það væri misnotað. Held að það sé ein svona verslun eftir á öllu Íslandi, hún heitir Fjarðarkaup.
Baldur Kristjánsson

#1131    Í september á síðasta ári keypti ég í Max Raftækjum í Kauptúni, 
Philips dvd tæki sem er með innbyggðum 250 GB hörðum disk og getur 
einnig skrifað á DVD diska.
Tækið sem ég fékk kostaði 45.000kr.
Algert snilldar tæki sem ég vil alls ekki vera án, en eftir ekki svo 
langan tíma hætti sleðinn sem kemur út úr tækinu og maður setur disk í 
að koma út, tækið bilað.
Ég fór með það til þjónustu aðilans sem skilaði mér tækinu eftir 3-4 
daga viðgerðu, en það dugði ekki lengi.
Nú vil ég taka fram að ég skipti ekki oft um diska, oftast er settur 
barna diskur í og hann er í tækinu svo vikum saman, þori að fullyrða 
að eftir 5-6 opnanir / lokanir bilaði sleðinn aftur.
Aftur fer ég með tækið í viðgerð og sama sagan með það, sú við gerð 
dugði ekki í margar diska skiptingar þannig að nú hafði ég samband við 
Max og talaði þar við Stefán sem er verslunarstjóri að ég held og bað 
hann mig um að gera eina tilraun enn og sagðist hann ætla að tala við 
þá á verkstæðinu um að fara extra vel yfir tækið, ok ég geri það og 
eftir þá viðgerð sögðu þeir á verkstæðinu mér að þeir hefðu skipt um 
hjól líka og vonuðust til nú ætti allt að endast.
En nei, þriðja bilunin kemur svo núna um helgina, ég hringi í Stefán 
og segi honum hvernig staðan sé, hann segir mér að koma með tækið til 
sín og hann skuli gera "eitthvað" fyrir mig.
Langþreittur á því að vera neitandi á Íslandi var ég viðbúinn 
einhverjum erfiðleikum um að fá samskonartæki í staðinn, enda allt 
hækkað í verði og því var ég vel undirbúinn í að standa fastur á mínum 
rétti : )
Á móti mér tekur sölumaður sem segist hafa verið settur í málið af 
Stefáni og fer með mig inn ganginn þar sem tæki af þessari gerð eru og 
bendir mér á eins tæki nema bara nýrri og fullkomnari týpu og spyr mig 
hvort ég vilji ekki bara fá þetta tæki í staðinn.
Mér verður starsýnt á verðmiðann sem á stendur 59.900 og segi að þetta 
sé mikið dýrara en fyrra tækið, hann segir það verði bara að hafa það 
enda sé ég búinn að standa í miklu veseni með fyrra tækið og eigi 
þetta bara inni.
Ég var auðvitað bara glaður með þessi málalok og fanns ég verða að 
segja frá, kúdos til þeirra í Max Kauptúni.
Hafliði

#1130    Bendi á okur hjá versluninni "Lush" á Íslandi.
Sem dæmi: 
Coolaulin hárnæring:

100 g. á Íslandi: kr. 1.678.- Í Frakklandi: e. 5,80 = 701 kr. (gengi: 121)
250 g. á Íslandi: kr. 3.356 - Í Frakklandi: e. 11,50 = 1.391 kr.
490 g. á Íslandi: kr. 4.487.- Í Frakklandi: e. 18,40 = 2.226 kr.

Reyndar í Lúxemborg og Köln í Þýskalandi á mjög svipuðu verði, innan við 20
Evrur. Velti auk þess fyrir mér hvers vegna 490 g. flaska er auglýst sem 500
g. á heimasíðu www.lush.is. (sjá einnig www.lush.fr). Er þetta eðlileg
álagning? 

Nafnleyndar óskað

#1129    Í síðustu viku keypti ég nautahakk frá Goða í Krónunni. Um var að ræða u.þ.b. kílópakkningu, sem ég greip fegins hendi, því yfirleitt fást ekki nema pakkningar sem eru helmingi minni. Þegar ég kom heim datt mér í hug að vigta hakkið og viti menn, það vantaði þó nokkuð upp á að innihaldið væri í samræmi við það sem upp var gefið á pakkanum. Þá rak ég augun í að á verðmiðanum stóð að umbúðirnar vigtuðu 18 grömm. Ég ákvað að sannreyna það, og það var náttúrulega algjört bull. Þær voru hvorki meira né minna en 52 grömm. Þetta þykja mér ansi dýrar umbúðir því kílóverðið á hakkinu var 798 kr. og þá greiðir neytandinn að sjálfsögðu sama verð fyrir umbúðirnar. Þær kostuðu því 41.50 krónur. Það er náttúrulega alveg óforbetranlegt að neytandinn þurfi að greiða tugi króna fyrir umbúðir sem fara svo beint í ruslið. 
Guðbjörg Gunnarsdóttir

#1128    Þarsem ég á lítinn sumarbústað í Borgarfirði keyrði ég í Borgarnes til að kaupa ENSÍM sem maður notar fyrir rotþrær, ég fór á olíustöðina OLÍS
v/ Brúartorg, Borgarnesi og keypti 1 ltr. brúsa sem kostaði  kr. 2.046.-, 
Nú viku síðar  fór ég í Fjarðarkaup  og viti menn þar var til samskonar ENSÍM fyrir rotþrær  1 ltr. brúsar, verð  kr. 1.036.-
Inga Ingvarsdóttir

#1127    Er í pallasmíði og hringdi í Bykó á föstudaginn til að fá verð í 22X95 gangvarið efni.  Þá kostaði meterinn 137 kr í Bykó en 138 kr í Húsasmiðjunni.  Ætlaði að fara í Bykó í dag að kaupa hundrað metra af þessu og það hefði gert 13.700 kr en þá var búið að hækka meterinn í 230 kr þannig að hundrað metrarnir hefðu kostað 23.000 kr. Þannig að ég hringdi í Húsasmiðjuna og þá kom í ljós að efnið var uppselt hjá þeim og ekki væntanlegt fyrr en í næsta mánuði. Þessu hefur Bykó komist að og hækkað verðið hressilega enda þeir einu á markaðnum sem selja þetta efni núna eftir að Mest fór á hausinn. 
Óska nafnleyndar

#1126    Icelandair auglýstu grimmt aukið frelsi í miðakaupum. Nú er hægt að 
kaupa miða aðra leiðin í öll flug. Þá hélt ég að þeir væru að færa sig 
nær nútímanum og miði aðra leið myndi kosta 50% af miða báðar leiðir. 
En aldeilis ekki. Miði aðra leið Stockholm - Reykjavík kostar 3683 sek
(óháð dagsetningu) þegar miðinn báðar leiðir á ódýrum dögum kostar 
1258+1258 = 2543 SEK (skattar innifaldir). Miðaverð báðar leiðir 
miðast samt enn við að maður sé yfir laugardag, annars breytast 
miðaverðin, og líka ef bara fáir dagar eru  á milli fluga, þá getur 
miðaverð þrefaldast á völdum dagsetningum (flugmiði 5 sept kostar 1108 
SEK ef flogið yfir laugardag annars kostar sami miði 3608 SEK).
En það okur sem ég ætlaði að skrifa um var að ég lét breyta miða um 
nokkra daga, gegn smávægilegu gjaldi eins og það heitir. Það kostar 
15.700 íslenskar kronur, þó að þessi miði sé auglýstur á 1258 SEK á 
netinu. Það er, breytingagjaldið kostar sama og nýr miði, jafn mikið og 
50% af fram og til baka miðanum mínum.
Óskar Nafnleysis

#1125    Síminn er að ofrukka mig síðan í júlí vegna þjónustu sem ég hætti að kaupa í júní, bæði sjónvarp og ADSL. Eftir mánaðarlangt þref við „þjónustuver“, kom kreditreikningur fyrir hluta þess sem styrinn stendur um og ég greiddi einn reikning af þremur. Bregður þá svo við að á MIG falla vanskilagjald upp á 450 kr. og dráttarvextir upp á 16 kr. – en það var Síminn sem dró lappirnar og reyndi að gera sér matarholu á minn kostnað.
Nafnlaus

#1124    Ég er með meðgöngusykursýki og þarf því að mæla mig nokkrum sinnum á dag og sprauta mig með insúlíni. Það er mikið gert fyrir okkur ófrísku konurnar og fæ ég þau tæki sem ég þarf lánuð frítt en þarf sjálf að redda mér einnotadótinu. 
Það er fernt sem ég þarf. Insúlín, nálar fyrir insúlínið, hnífa til að stinga mig með og strimla til að setja blóðið á, allt einnota. Til að fá mælinn og fl. í byrjun fór ég á stað sem selur lækningatæki í Hafnarfirðinum (Logaland heitir fyrirtækið), þar þurfti ég að borga nokkra hundraðkalla fyrir dótið en insúlínið þarf ég að fá í lyfjaverslun. Í vikunni vantaði mig svo nálar, hnífa og strimla og fór ég í Lyfju í Smáralind og þurfti að borga yfir 3170kr. Ég mundi að það var nú ekki svo mikið sem hafði þurft að borga á hinum staðnum og spurði aðeins út í þetta. Afgreiðslukonan gat bara sýnt mér e-ð blað með heildarkostnaðinum en skiptingin á því hvað tryggingarnar borga mikið og hvað væri minn hlutur sást ekki, sagði mér semsagt ekki neitt svo ég labbaði út með dótið en með það á tilfinningunni að e-ð væri bogið. Ég hringdi í Logaland til að spyrjast fyrir. Þá kom í ljós að ég fæ hnífana og nálarnar ókeypis hjá þeim og þarf bara að borga 300kr fyrir strimlaboxin. Sem sagt 600kr þar sem ég hafði keypt 2 strimlabox, í stað 3170kr sem ég borgaði í Lyfju!!!!!!!!!! Þar að auki senda þeir frítt heim á höfuðborgarsvæðinu svo ég fékk samdægurs ókeypis nálar og hnífa (hringdi kl. 14 og fékk þetta um kl.17). Að auki fékk ég box fyrir notuðu nálarnar en ég hef áður keypt svipað á rúmar 200kr í apótekunum. Ég fór svo í Lyfju og skilaði nálunum og hnífunum sem ég hafði keypt hjá þeim en hélt eftir strimlunum þar sem ég var búin að opna annað boxið og hélt í einfeldni minni að það gæti nú ekki munað svo miklu í verði. Annað kom í ljós. Ég fékk endurgreiddar 1250kr sem þýddi að eftir stóðu 1920 kr fyrir 2x strimlabox = 960 kr stk!! Strimlabox sem kostar 300 kr hjá Logalandi!!!! Mér þykir þetta vera orðin heldur mikil álagning hjá lyfjaverslununum og á hreinlega ekki til orð.
Í sömu ferð í Lyfju keypti ég brúsa af hárspreyi, tegund sem ég hef keypt oft áður og hefur hingað til kostað rétt undir 1000kr. Kostar núna 1329kr sem sagt c.a. 33% hækkun!
Bravó Logaland, tiss tiss Lyfja!
Anna Guðrún Stefánsdóttir
(nb. Lyfja er okurapótek - ber að forðast í lengstu lög.)
(Ég gekk með barn 2006 og fékk meðgöngusykursýki og þurfti nálar og strimla til
að mæla blóðsykurinn. Mig minnir ekki betur en að í Lyfjum og heilsu Eiðstorgi
hafi ég fengið þetta ókeypis a.m.k. annað hvort. Það gæti hafa breyst. Fór líka
í Lyfju og þar þurfti ég að greiða fyrir strimlana eða nálarnar.
Vigdís Guðmundsdóttir)

#1123    Ég fór að versla í IKEA um helgina, mig vantaði glös, nema hvað ég keypti 12 glös á 349 kr, sem gerir 29kr stk, hvernig er þetta hægt????? ég ætlaði ekki að trúa því hvað þetta væri ódýrt þar til konan mín sagði við mig "get over it" það er allt svona ódýrt í IKEA.
Nafnleynd 

(Sett inn 24.08.08):

#1122    Undirritaður gerði samning við Og vodafone um svokallaða 3G internetþjónustu fyrir c.a mánuði síðan. Samningurinn er gerður til 12 mánaða og hljóðar upp á 1990 kr pr mánuð. Innifalið í því verði er 1GB í gagnamagn á mánuði. Gott og blessað. Með búnaðinum fylgir mælir, sem á að sýna hversu mikið gagnamagn er búið að skoða á netinu. Ekki hefur þessi mælir ennþá sprengt kvótann. En engu að síður fékk ég sendan reikning að upphæð 26.000 krónur fyrir umframnotkun. Bara fyrir síðasta mánuð!!! Guess what: Hvert MEGABÆT umfram notkun kostar 60 krónur, takk, hjá Og vodafone. Þetta er ekkert flókið: Það er massívt okrað á almenningi hérlendis, hægri vinstri. Hér er stólað á réttleysið.
Óskar Thor Óskarsson

#1121 Apple auglýsir nú skólatilboð á MacBook fartölvu þar sem kemur fram verð áður 134.990 og verð nú 124.990 sem gerir um 10.000 króna afslátt sem í sjálfu sér er ekkert slæmt, nú vill svo til að ég hef fylgst með verið þessara véla undanfarið og á meðal annars marga PDF verðlista frá þeim. Hæasta verð sem þessi vél hefur farið í samkvæmt þeim er 129.900.-
Það er farið að fara verulega í taugarnar á mér þessi tilbúnu "verð áður" sem menn eru að nota.
Óskar Nafnleyndar

#1120    Mig langar að benda fólki á að misræmi er mikið í verslun
10/11 Borgartúni. Ég freistaðist  til að versla smávegis þar í kvöld,
ég keypti frosin bláber í poka merkt verð 439 kr á hillunni og á kassa
550 kr. Kommon hvað er eiginlega í gangi? Mjög margir vilja ekki
kassakvittun eða afrit og því síður fylgjast með á kassaglugganum, en
þá náttúrulega veit viðkomandi ekkert hvað hann er að borga sem er
bara kæruleysi. Ég hef lent í þessu þrisvar í þessari verslun, og
það er ekki einu sinni beðist afsökunar þegar maður kvartar.
Jónína Jóhannsdóttir

#1119    Ég vill benda á svindl hjá Orkuveitunni. Þeir hafa bætt köldu vatni í heitavatnið til að koma í veg fyrir að fólk brenni sig. Núna þarf ég að færa stillinguna hjá mér yfir læsinguna sem segir 40c til að fá heita sturtu ( það er hættulegt að fara yfir læsinguna vegna þess að þá er orðið lítið mál að brenna sig)
Spurningin er þessi, ef þeir hafa kælt heita vatnið ættum við þá ekki að borga minna fyrir það þar sem við erum ekki að fá sama magn hita í hverjum lítra til upphitnunar og áður?
Teddi

#1118    Nú er aldeilis veisla hjá þeim sem gera út á skólafólk. Foreldrar í
streitu í yfirfullum búðum að kaupa það sem ungunum vantar og borga
uppsett verð - hvað sem það kostar. Ég er blessunarlega laus við þetta
rugl enda með stúlku í Barnaskóla Hjallastefnunnar þar sem foreldrar fá
EKKI innkaupalista sem þarf að versla fyrir skólann.
Reyndar vantaði okkur barnastígvél sem við fengum í ADAMS Smáralind á 500
KALL, sem er náttúrlega bara ruglódýrt. Flott stígvél sem dóttirin var
hæstánægð með og því rakið að tríta okkur á kaffihúsi á eftir - reyndar
kostaði ein ræfils muffins næstum það sama og stígvélin góðu. Fórum í
gegnum DEBENHAMS á leið okkar úr Smáralindinni og þar er bara til ein gerð
af stígvélum sem kosta 4000 kall og eru því tilvalin fyrir þá sem eiga
alltof mikið af peningum - ekki að sjá neinn gæðamun á 500 króna vélunum
og þessum. Mæli með ADAMS!
Axel

(Sett inn 21.08.08):

#1117 Barna-skólatöskur í dag eru orðnar ansi dýrar. Þær kosta upp að 13.000
þessar sem eru hannaðar til að verja bak barnanna. Ég vil benda fólki á
að skoða bakpoka fyrir ferðatölvur í tölvuverslunum en þessir bakpokar
eru sérhannaðir fyrir bakið og eru með mörgum hólfum en kosta helmingi
minna en skólatöskur. Hvernig stendur á því að skólatöskur eru svona
dýrar hér á landi?
Ónefndur

#1116    Mér blöskraði nú heldur betur í hádeginu í dag þegar ég fór í verslun 10/11 í Firði og keypti eina ferskju og borgaði fyrir hana 370 krónur. Ég athugaði miðann og sá þá að kg. kostaði kr. 1.499. Síðan reyndist hún skemmd svo ég hafði sem betur fer afsökun til að skila henni og fá endurgreitt þennan pening þar sem mér fannst þetta brjálæðislega dýrt. Seinna í dag fór ég í Fjarðarkaup og var stödd í grænmetisdeildinni þegar mér datt í hug að athuga verðið á ferskjum þar og viti menn, þar var kg. á kr. 349 og keypti ég eina ferskju til að bera þetta betur saman og kostaði hún 59 krónur. Þetta er náttúrulega ekki í lagi. Hvernig getur eiginlega staðið á þessu. Ég held ég hafi aldrei séð það kræfara.
Ingigerður Sigmundsdóttir

#1115    Mig langar að láta vita af dæmi um verð í Elko sem auglýst var í blaði frá þeim en var annað í versluninni og kassatölvunni þeirra.
Ég fékk blað með tilboðum frá Elko í gær. Framan á blaðinu stendur að blaðið gildi frá 18.-20 ágúst sem mér þótti einkennilega stutt þar sem það var 19. í gær. Aftan á blaðinu stendur hins vegar að tilboðin gildi frá 18.-24. ágúst svo við skulum láta það liggja á milli hluta. 
Ég fór í Elko í Lindum í dag og ætlaði að kaupa Proove fjarstýrðar rafmagnsklær, auglýstar í tilboðsblaðinu á 2995 kr. þrjár saman í pakka. Þegar ég kom að hillunni var varan merkt á 3995 kr. Ég hugsaði með mér að kannski hefði bara gleymst að breyta verðinu í hillunni og greip með mér tilboðsblaðið til öryggis en það lá út um allt í búðinni. Þegar á kassan kom var ég rukkuð um 3995 kr. skv. kassatölvunni. Ég sýndi blaðið og var þá strax rengd af afgreiðslustúlkunni. Hún þurfti að athuga hvort þetta væri örugglega rétt blað, að það væri örugglega í gildi (þrætti við mig um að dagsetningin stæði bæði framan á og aftan á en það skiptir kannski ekki máli) og athugaði mjög vel að þetta væri örugglega sama varan. Að lokum fékk ég að kaupa vöruna á 2995 kr.  Greinilegt er að verðinu á þessari vöru hefur ekki verið breytt í hillu eða í kassakerfinu í samræmi við tilboðið. 
Maður má líka passa sig á fleiri stöðum. Ég keypti pítsasnúð á 195 kr. og skinkukubb sem átti að kosta 175 kr. í Mosfellsbakaríi í sumar. Ég sá svo á kassakvittuninni að ég var rukkuð um 195 kr fyrir hvort tveggja. Ég hafði orð á þessu við stúlkuna sem afgreiddi mig og hún sagði að stundum kæmu bakkarnir með gömlum verðmerkingum fram, þetta ætti að kosta það sama. Ég sagði þá að þetta væri samt sem áður svindl, ég ætti að fá vöruna á auglýstu verði. Stúlkan greiddi mér mismuninn. Þetta er kannski ekki mikið en margt smátt gerir eitt stórt.
Kristín Ásta Ólafsdóttir 

#1114    Ég keypti í nóvember á síðasta ári prentarahylki í Pennanum Ísafirði.  Hylkið er í  Canon prentara verð 1.550.-  Ég skrifaði þetta sérstakleg hjá mér því hylkið hafði á skömmum tíma hækkað um 2-300 krónur.  Seinnipart vetrar keypti ég samskonar hylki og þá var verðið í kringum 1.600.-  Í lok júlí á þessu ári keypti ég samskonar hylki á sama stað verð 1.940.-  í fyrradag þurfti ég aftur að kaupa hylki verð 2.120.-
Henry Bæringsson

(Sett inn 20.08.08):

#1113    Ég keypti farmiða með Icelandair frá Lundúnum til Íslands í gær (sem var vel að merkja ódýrari en hjá Iceland Express). Þegar miði er keyptur á netinu er þess krafist að eftirnafn farþegans sé skrifað fyrst en fornafnið svo. Ég flaskaði á þessu og uppgötvaði ekki mistökin fyrr en staðfestingarglugginn kom upp. Hringdi ég í snarhasti í Icelandair til að fá þessu breytt svo ekki kæmi til rex og pex við vegabréfaeftirlitið á Heathrow-flugvelli. Fjarsölunni var ljúft að leiðrétta mistökin en aðeins gegn 4.000 króna gjaldi. Ég spurði hverju þetta sætti, ekki væri verið að skipta út einum farþega fyrir annan heldur einungis leiðrétta mistök innan við tveimur mínútum eftir að þau voru gerð. Fyrst kom svarið að um kostnað væri að ræða, sem ég dró mjög í efa. Þá upplýsti sölukonan að gjaldið væri e.t.v. haft svona hátt þannig að fólk gerði ekki sömu mistökin tvisvar. Aðspurð hvort fyrirtækið væri semsagt að refsa fólki fyrir saklaus mistök dró hún í land með þá skýringu. Ég sá að lítill tilgangur væri að standa í frekara stappi og greiddi því 4.000 krónurnar. Fargjaldið var þrátt fyrir þetta ennþá ódýrara en með IE en engu að síður finnst mér þetta ósanngjörn og illa rökstudd gjaldtaka.
Óskar nafnleyndar
+
Okkur hjónunum tókst að gera smá mistök í netbókun á flugi til London með Icelandair, rugla fornafni og eftirnafni þannig að eftirnafnið kom fyrst og svo fornafnið. Ég fékk þær upplýsingar hjá starfsmanni flugfélagsins (sem var reyndar alveg nógu vinsamleg) að þessu yrði að breyta. En það fellur undir breytingu á bókun sem kostar 4.000 kr. Þessi breyting tekur örugglega í mesta lagi mínútu í framkvæmd og getur nú varla talist stórvægileg. 4.000 krónur skulu það samt vera.
Guðni Th. Jóhannesson
(nb. Í gær bárust tvö eins dæmi af svíðingslegu okri Icelandair. Birti bæði.)
(ATH: Þessi aukakostnaður er breyting frá því sem var. Ég keypti flugmiða í gegnum netið hjá Icelandair í maí 2005. Nokkrum mínútum eftir kaupin uppgötvaði ég að brottfarardagsetningin var degi á eftir þeirri dagsetningu sem ég vildi fljúga á brott. Ég hringdi í snarhasti í Icelandair og þau leiðréttu það án aukakostnaðar og tóku skýrt fram að enginn aukakostnaður væri lagður á þar sem þetta hefðu verið mistök og uppgötvuð strax.)

#1112    Í byrjun þessa árs rakst ég á feikilega ódýrar bleiur í Krónunni -
pakkinn með 74 bleium kostaði undir 500kr. Í maí voru þær komnar yfir
600 krónur. Ã lok júlí (strimill dags 31. júlí) kostar bleiupakkinn
789 krónur. Tólfta ágúst kaupi ég síðan sömu bleiur í sömu
krónuverslun á 959 krónur. Hækkunin er 170 krónur á 12 dögum og
meira en 100% hækkun á hálfu ári. Finnst ykkur þetta eðlilegt?
Dagný Zoega.

#1111    Langaði aðeins að deila óánægju minni með lélega þjónustu i Sambíóunum á Akureyri. Fjölskyldan fór saman á Narniu. Mættum tuttugu mínútur í sýningu. Í stað þess að kaupa bíómiðana í miðasölu þarf maður að fara  í röð við sælgætissölu og kaupa miðana þar. Þar beið ég nákvæmlega 25 mínútur eftir að fá bíómiða. því fólkið á undan var líka að kaupa sitt popp og kók og litlu börnin fengu að velja sér sælgæti.Það fylgir bíóferðum að fá sér eitthvað góðgæti en það er samt ekki hægt að bjóða þeim sem ætla eingöngu að fá sér bíómiða að hanga í röð á meðan 7 sinnum 5 manna fjölskyldur eru að velja sér þetta súkkulaði eða hitt. Í ofanálag greiddi maður fyrst fyrir miðana og síðan þurfti að greiða aftur fyrir nammið.
Þetta er afturför í þjónustu verð ég að segja.  Svo var enginn dyravörður til að taka við miðum svo þetta er kannski kjörið fyrir þá sem vilja lauma sér inn án þess að greiða. Jú þetta er kannski sparnaðarleið eftir allt saman.
Halla Jóhannesdóttir

#1110    Ég versla mikið í Nóatúni í Nóatúni 17. Þeir eru með heitan mat í hádeginu á ekkert allt of mikinn pening (þó að það hafi nú hækkað talsvert upp á síðkastið eins og allt annað). Fyrir svona hálfu ári keypti ég hjá þeim heitan plokkfisk. En svo þegar ég ætlaði að fara að borða hann var ormur í fiskinum! Ég skilaði að sjálfsögðu fiskinum og fékk endurgreitt. Ég hef ekki verslað fisk hjá þeim síðan þá, fyrr en í dag. Núna er langt um liðið og ég ákvað að láta á það reyna aftur að versla hjá þeim fisk og fékk mér girnilegan steiktan fisk í raspi. Ég er bara búin með nokkra bita þegar ég finn aftur orm í fiskinum! Ég þarf varla að taka það fram að ég kem aldrei til með að versla fisk af þessi Nóatúnsverslun aftur og ég hvet annað fólk til að gera slíkt hið sama. Hugsið ykkur fólkið sem horfir ekki eins vel á matinn sinn og ég, hvað er það búið að borða marga orma??
Sigríður Rósa
(nb. Fullt af próteini í ormum. Nammi namm.)

#1109    Í kjölfar þessa um útsöluna hjá Húsasmiðjunni (#1107) langar mig að nefna dæmi úr Byko. Þangað fór ég um helgina á útsölu sem var auglýst, sláttuvélar voru undir hafsjó af útsöluskiltum og á verðmiðum stóð ýmist "sérverð" eða "útsöluverð" en verðin voru þau sömu og þegar ég skoðaði þetta í vor (þ.e. á þeim tveimur týpum sem ég skoðaði). Þetta er glæsilegt. 
Bergur T

#1108    Tók bensín í gær (18.08.08) hjá Shell í Hveragerði. Þegar ég er byjaður að dæla á bílinn tek ég eftir því að ósamræmi er á lítraverði á dælu og á upplýsingaskilti sem olíufélögunum ber skylda til að vera með við götuna þ.e. kr. 165.00 á dælu og 162.70 á upplýsingaskiltinu. Þegar ég fer að borga spyr ég afgreiðslumanninn út í þetta og mer tjáð að það væri ný búið að hækka verðið hjá Shell og þau kynnu ekki að breyta verðinu á upplýsingaskiltinu við veginn. Já það virðist auðveldara að breyta verðinu á bensíndælunum.
Guðmundur R Skúlason

(Sett inn 18.08.08):

#1107    Mig vantaði meitil í gær, og skrapp í Húsasmiðjuna í Grafarholti, enda auglýstu þeir útsölu þá um morguninn (og núna áfram).
Þegar ég loks fann einhvern til að aðstoða mig við að finna meitil, þá valdi ég einn skv. stærð og verði, sem átti að vera kr. 885,- skv. hillumerkingu.
Þegar ég kom á kassa kom upp verðið 999,- og ég fór til baka inn í búð að tala við afgreiðslustrákinn.
Hann fletti líka upp verðinu, og sagði að það væri bara vitlaust verðmerkt.
Ég hélt yfir honum smá pistil um neytendalögin, sem hann kannaðist ekkert við. Það eina sem hann sagðist geta gert var að breyta bara hilluverðinu.
Ég spurði hvort einhver yfirmaður væri við - nei, báðir í fríi.
Ég bið hann þá að koma með mér á kassa. Hann vill það varla og segist engar ákvarðanir geta tekið um verð.
Ég segi honum að hann geti a.m.k. sagt kassastarfsmanni hvert hilluverðið sé.
Hann sættist loks á það - en skýst svo á bak við til að afla sér upplýsinga, og kemur eftir nokkra stund og segir að þetta sé rétt hjá mér.
Kassastarfsmaðurinn sem ég var hjá mátti hins vegar ekki veita „afslátt“ og því varð ég að fara til „yfir“kassastarfsmanns, sem afgreiddi mig með hálfgerðum fýlusvip.
Sum sagt, tæplega 13% hækkun frá hilluverði, og það í byrjun útsölu.  Ætli sé ekki búið að breyta verðmerkingum til hækkunar núna?
Kristján Gaukur

#1106    Ég fór í  útilegu með barnabarnið mitt um helgina og átti að kaupa bleyjur Pampets no. 6 á leiðinni ég fór í Bónus en gleymdi að kaupa þær svo ég kom við í Kjarval á Hvolsvelli og þar kostaði pakkinn 1.749.- í Bónus í Mosfellsbæ kostar pakkinn 880.-. Mér finnst þetta dálitið mikill verðmunur.
Amma

#1105    Í vor kynnti Brimborg alveg nýjan Mazda 6 sem er stór fjölskyldubíll. Verðið á sjálfskiptum 4 dyra bíl var 3.490.000.
Aðalkeppinauturinn er Toyota Avensis. Í vor kostaði svoleiðis bíll 4 dyra sjálfskiptur: 3.445.000.
Nokkuð sambærilegir bílar að stærð og gerð og manni finnst að þeir ættu að fylgjast að í verði. Mazdan reyndar með 2,0 l vél en Toyotan 1,8 l
Toyotan kostar í dag 3.770.000 kr og er búin að hækka um 325.000 kr síðan í vor. (skv. toyota.is)
Mazdan kostar í dag ennþá 3.490.000 kr.   (skv mazdabrimborg.is)
Mig langar því að hrósa Brimborg fyrir að hækka ekki og þannig standa með okkur neytendum. Báðir bílarnir eru keyptir frá Evrópu í sömu mynt.
Björn J G.
(ATH: Legg til að þú skoðir Subuaru bíla hjá IH.Imprezan á held ég undir 3 mil með fjórhjóladrif og Legacy(aðeins stærri) á eitthvað rétt yfir 3 mil. með fjórhjóladrif. Báðir með góðri boxxer vél þannig þú færð lágan þyngdar pungt sem gerir þessa bíla einstaklega þægilega í akstri og eru mjög endingargóðir og öruggir. Mjög gott að hafa fjórhjóladrifið í íslenska vetrinum.)

#1104    Ég fór með fjölskylduna í sund á Illugastöðum í Fnjóskadal og eftir sundið splæstum við í ís, ísinn kostaði 250 kr. stykkið, svo fórum við í Vaglaskóg og hittum vinafólk okkar og þar voru börn sem vildu líka ís þannig að við skutluðumst í sjoppuna í Skóginum og keyptum alveg eins ís á 300 kr stykkið, ef flutningskostnaði er um að kenna 50kr mismun þá ætti ísinn að vera dýrari á Illugastöðum, það er lengra þangað en í Skóginn þannig að þetta er bara okur.
Anna Rósa

#1103    Ég þarf stundum að taka leigubíl í vinnuna -ekki löng leið- og ég fer
alltaf með Hreyfli. Fyrir um ári síðan borgaði ég í kringum þúsund krónur
fyrir ferðina og svo hækkaði þetta upp í 1300-1400 krónur en nú síðast
kostaði ferðin 1500 krónur! Ég spurði bílstjórann hvort það væri eitthvað
sérstakt álag þann daginn en hann svaraði að svo væri ekki. Vissulega
hefur bensínið hækkað en kommon, er þetta raunsæ hækkun á einu ári?
Rósa Björk Gunnarsd

(Sett inn 17.08.08):

#1102    Domino´s Pizza á Íslandi er 15 ára og í tilefni af því er Gígavika dagana 16 - 24.ágúst Ég þori nú næstum að hengja mig upp á að síðast þegar pizzu veldið bauð í gígaviku kostaði bakan 1050 kr, gæti þó verið 1100kr. En í dag er tilboðið svona: Allar pizzur af matseðli á 1.290 kr. ef þú sækir. Trúlega eru þetta samt bestu kaupin, en ég segi samt nei takk, læt ekki hafa mig að gígantísku fífli. Til hamingju samt með afmælið Dominos, ég kem bara ekki í teitið :-(
Hafliði P.
(NB. Þeir kalla það MEGAviku yfirleitt og einmitt, síðast minnir mig að pízzan hafi kostað 1190 á MEGAviku. Nú á GIGAviku kostar pízzan 1290. Maður hefði haldið að GIGA ætti að vera meiri afsláttur en MEGA, en nei nei, ekkert svoleiðis hjá Dominos.) 


#1101    Hagkaup, Kringlunni: Bent er á að fylgjast vel með því hvort vara er merkt tveim strikamerkingum. Í þessu sambandi er sýnt dæmi, þar sem pakki með shiitake-sveppum er merktur á íslensku með miða, sem hefur strikamerkingu og verðið er skýrt: kr. 99.
Á sama pakka er önnur strikamerking, eins og í ljós kemur, þegar myndin er skoðuð.
Sú merking var lesin í kassanum í mínu tilfelli (kr. 375).
Viðbrögðin við athugasemd minni var umsvifalaus endurgreiðsla á mismuninum og 'taut' um að gleymst hafi að líma fyrir hina merkinguna en þegar hvort fyrir sig var rennt gegnum lesarann, var annað á kr.99, hitt á kr.375. (Sem sagt: báðar strikamerkingarnar voru virkar).
Óskar nafnleyndar

#1100    Bónus sem einu sinni leiddi markaðinn heldur sig alltaf krónunni fyrir neðan Krónuna sem segir að þeir hafa gefið eigendum Nóatúns og Krónunnar þann kyndil að stjórna verðlagi á matvörumarkaðnum.  Bónus ætti eiginlega að heita Krónan, Eina Krónan.  Stjórn verðlags er því komin í hendurnar á Nóatúnsveldinu sem hafa verið sverir okrara í gegnum tíðina og opnuðu Krónuna til þess eins að verja markaðshlutdeild í stað einhverskonar neytendasjónarmiðs. 
Einu sinni var rekin lágvöruverðverslun við Skútuvog sem kallaði sig Bónus, hún tók ekki kort, var í hagstæðu húsnæði með takmarkaðan mannafla og opnunartíma og lét ekki Reykvíkinga greiða flutningskostnað útá land.  Þessi verslun hætti fyrir löngu en verslunarkeðja með sama nafni starfar í dag. Hún lætur Reykvíkinga greiða flutningskostnað á landsbyggðina, er í dýrasta verslunarhúsnæði landsins, leigir gjarnan verslunarhúsnæði af sömu eigendum sem hafa því hag af hárri leigu sem fer í verðlagið um leið og hún hefur opið á laugardögum og sunnudaga í flestum búðum. Að bera saman rekstrarmódelin gamla Bónus og hinn nýja er einfaldlega svart og hvítt og það er verið að taka landann illilega í bakaríið með blekkingu sem byggir á andliti Jóhannesar. Í raun er engin lágvöruverðsverslun starfandi á Íslandi í dag.
Hagkaup er rándýr lúxusverslun sem væri í lagi nema sameiginlegir eigendur hefðu ekki búið falskt viðmið, hækkað Hagkaupsverðin og Bónus líka án þess að neinn tæki eftir neinu.  Bónus hefur breyst í dýrari og dýrari búð á meðan neytendur standa í hópum eins og kjánar og segja, já en Bónus er ódýrust.  Mikið rétt, þeir eru ódýrari á kassa eitt en kassa tvö og Neytendasamtökin telja títuprjóna í neytendablaðinu sínu um leið og þau mynduðu þannig grunn fyrir þessa okursíðu sem skeinir Neytendasamtökunum daglega.
Íslendingar eru upp til hópa eins og auðtrúa asnar þegar það kemur að verðlagi en kannski er það ekki nema von þegar kjötfarssalinn getur stjórnað umræðunni í þjóðfélaginu í gegnum eigin fjölmiðla.  Við erum í raun hálfgert bananalýðveldi í þessum efnum og Samkeppniseftirlitið ætti að skoða gaumgæfilega.  Vitað er að Bónus hefur gefið Neytendasamtökunum peninga, (enda stunda þeir engar alvöru kannanir) en hvað með Samkeppniseftirlitið, fengu þeir eitthvað fyrir að leyfa Baugsmönnum að eignast 10-11 líka og breyta henni í verslun sem beitir hærri álagningu en smásjoppur alla jafnan gerðu....
Það hefur fyrir löngu skapast grunnur fyrir hagstæða lágvöruverðsverslun í anda gamla Bónus en það nennir enginn á markaðinn því þeir heildsalar sem lifðu af Bónusbyltinguna eru en að störfum því þeir eru í vasanum hjá risunum.  Það bara borgar sig að halda kjafti í svona umhverfi og makka rétt.
Svo er fólk hissa á að verðlag sé hátt á Íslandi en ástæðan er borðleggjandi eða of há álagning í krafti markaðsráðandi afla sem hafa ekki meira viðskiptasiðferði en svo að þeir sköpuðu sjálfir grunn að þessari okursíðu, ásamt hinum spilltu Neytandasamtökum og Samkeppnisyfirvöldum.  Takið hausinn úr sandinum neytendur.
Gylfi Gylfason

#1099    Ég ætlaði að greiða greiðsluseðla í heimabanka fyrir bifreiðagjöld um kl. 22:30 í kvöld, sem sagt á eindaga. Hætti við því Tollstjóraembættið var búið að leggja á dráttarvexti fyrir 45 daga (gjalddagi 1. júlí, eindagi 15. ágúst). Mér finnst þetta valdníðsla gagnvart borgurum sem eru að greiða á réttum degi og sendi reyndar kvörtun til Tollstjóraembættisins. Hef vanist því að geta greitt reikninga að kvöldi til á eindaga án þess að reiknist dráttarvextir.
Sigríður
(ATH: Mig langar að koma með eina athugasemd við kvörtun númer 1099. Ég vil bara minna fólk á að reiknistofa bankanna lokar bankakerfinu kl 21:00. Svo séu reikningar borgaðir eftir það flytjast þeir yfir á næsta dag. Þetta er tekið skýrt fram í heimabönkunum. Ég er ekki bankamaður, bara neytandi en vildi bara minna fólk á þetta, því óþarfa vaxtagreiðslur eru ekki góðar núna í kreppunni.
Sigurður G.)

#1098    Ég var í kvöld að fara yfir heimilisfjármálin.  Er ein þeirra sem er með síma, fasteignagjöld, rafmagn, hita og fleira í beingreiðslu inná visakortið mitt.  Rak augun í það í kvöld að skuldfærslan frá RARIK var komin inn á kortið og var hún núna vel yfir 10þús krónum hærri en síðustu mánuði.  Vitandi það að nú hefði ekki verið lesið af mælum þá þótti mér þetta skrýtið og fór að skoða rafræna reikninginn frá þeim í heimabankanum.  Var nú reyndar búin að reka í það augun á rarik.is að verðskráin átti að hafa hækkað um 6% frá og með 9. júlí 2008.  En skv mínum reikningi þá hækkaði heita vatnið heldur betur!  Til 8. júlí var rukkað 68,53 kr/rm ( án vsk ) en frá og með 9. júlí er rukkað 113,25 kr/rm !!!  Þetta er skv mínum útreikningi hækkun uppá 65,25% !!!  Þetta er nú bara bilun.  Skyldi þetta vera að hækka svona almennt á öllu landinu eða hvað???  Verstur andskotinn að maður getur ekki án heita vatnsins verið.... 
Rannveig Lena Gísladóttir

#1097    Hið vinsæla TUC Bacon ostakex kostar kr. 106.- í Hagkaupum en kr. 59.- í Krónunni.  Fæst ekki í Bónus !  Hið klassíska Ljómasmjérlíki kostar kr. 164.- í Hagkaupum en kr. 249.- í 10-11.  Hvoru tveggja dæmi um hve smásöluálagning er orðin lasin.
Óskar nafnleyndar

#1096    Álpaðist inn á KFC / Taco Bell í Hafnarfirði með fjölskylduna. 
Keypti sinn hvorn maísstöngulinn handa börnunum tveimur og lítinn skammt af nöggum (popcorn) sem ég skipti á milli þeirra. Rak svo augun í á strimlinum að þessi litli naggaskammtur sem rúmaðist í boxi sem ekki var stærra en kókómjólkurferna kostaði 599kr. Hver naggakúla (á stærð við kirsuberjatómat) hefur kostað á bilinu 25-30 kr.
Þegar ég spurðist fyrir á kassanum, því ég taldi hreinlega að það hlytu að hafa verið gerð mistök á kassanum, þá var mér tjáð að þetta væri bara svona dýrt, það þyrfti jú að flytja þetta inn.
Langar í leiðinni hrósa þjónustunni hjá Plusminus Optic gleraugnaverslun (Suðurlandsbraut 4). Þeir hafa reynst einstaklega liðlegir í tvígang. Annað skiptið var verið að leita að skrúfu til að geta tjaslað saman gömlum gleraugum en í hitt skiptið voru gleraugun mín orðið svo laus og sátu svo illa. Í bæði skiptin var allt gert til að aðstoða og ekki rukkuð króna. 
(nb. Ég tók einmitt eftir fáránlegu okrinu á þessum nöggum í síðasta skipti sem ég keypti þá. Allt annað þarna er á ágætis verði.)

(Sett inn 15.08.08):

#1095    Ég greiddi heilar 798 kr fyrir pínkulítinn 125 gr. poka af "lífrænum" Pekanhnetum í Krónunni í gær. Pekanhneturnar hef ég notað í kjúklingasalat sem ég útbý reglulega. Spurning hvort að maður sleppi því ekki bara hreinlega næst...eða noti salthnetur. Sendi fyrirspurn til þeirra þar sem ég spurði einfaldlega hvort að þetta gæti virkilega staðist. Fékk eftirfarandi svar:
"Góðan daginn,vegna fyrirspurnar um Pecan lífrænar hnetur 125 gr. þá er ég búinn að skoða verðið.  Þessi vara kemur frá Heilsu og hefur verið dreift beint í vöruhús á innkaupsverði 549 kr. sem er náttúrulega allt of hátt.  Er búinn að hafa samband við þá og fá beina dreifingu í búðir og um leið lækkun og að breyta útsöluverðiverðinu í 649 kr.  Takk fyrir ábendinguna."
Óskar nafnleyndar

#1094    Bréf til info@skjarinn.is: Ég er með Skjáinn heima og myndi kunna ágætlega við að geta notað VOD þjónustuna. Ég myndi hins vegar aldrei gera það af því að þessi þjónusta ykkar er alveg fáránlega dýr. Ég skil ekki hvernig þið getið varið 650 krónur á myndina. Ef ég fer út á Bónusvídeó fæ ég þrjár myndir fyrir það verð! Þá fæ ég líka dolby 5.1 hljóðrás, sem þið eruð ekki með. Ég fæ aukaefnið á disknum, sem þið eruð ekki með. Svo er það klárt mál að breytilegur kostnaður ykkar vegna útleigunnar er næstum enginn. 
Þegar nýjar myndir eru komnar niður í kr 300 getum við farið að íhuga þetta. Þangað til er það Bónusvídeó sem ég versla við.
Sverrir B.

#1093    Ég þurfti að kaupa súkkulaðiköku í Björnsbakaríi í síðustu viku.  Kakan kúrði í hillunni og var þar verðmerkt á 1649 krónur.  Þegar ég fékk debetkortastrimilinn minn sá ég hins vegar að ég hafði veri rukkuð um 1750 krónur fyrir kökuna.  Afgreiðslustúlkan sá að ég varð eitthvað hvumsa og tilkynnti mér að þótt verðmiðinn sýndi tiltekið verð, væri kakan skráð á öðru verði í tölvunni hennar. Björnsbakaríi hefur því legið ægilega mikið á að taka þátt í verðbólgunni. Á tímabilinu frá framleiðsludegi kökunnar (1. ágúst) og kaupdags, (7. ágúst), hefur greinilega orðið 6,13% verðhækkun á amerískum súkkulaðikökum í Björnsbakaríi.  Og mig grunar svosem að aðrar bakarísvörur hafi hækkað hjá þeim í leiðinni, þótt ég viti ekkert nú um það … Æi, pant ekki kaupa meira í Björnsbakaríi. 
Nafnlaus

#1092    Ég var á ættarmóti á Laugum í Sælingsdal og við vorum öll ættin að borða saman í íþróttasalnum sem er tengdur við Hótelið þar. Og það var bar á staðnum og svo ákvað mín að fara að kaupa gos á borðið okkar, labbaði mín rösklega og góð með sig að barnum og ákvað að kaupa 3 flöskur af 2 lítra gosi og vitir menn það kostaði heilar 2400 kr að kaupa 3 flöskur af gosi á barnum. Ég 30 ára konan kom aftur á borðið þessar 3 gos flöskur og sagði pabba sínum frá þessum frábæru kaupum sínum og ekki var hann stoltur af stelpunni, ég skil ekki ennþá afhverju ég rétti manninum kortið. Og það var tekin mynd af þessum þrem flöskum sem minning. 
Hlín Garðarsdóttir

#1091 Dýrt kaffi - keypti tvöfaldan expresso í Bakaríinu við brúna á Akureyri á 600 hundruð krónur og það var ekki einu sinni ekta expresso heldur ómerkilegt vélarkaffi.
Steinunn Kristinsdóttir

#1090    Fór í Krónuna í dag og sá að kjúklingabringur voru á 40% afslætti þar sem
kílóaverðið var 2998 og svo voru kjúklingabringur frá öðru fyrirtæki eða í
öðrum pakkningum á 10% afslætti þar sem kílóaverðið var 1998. Sem sagt 200
króna verðmunur eða 11,11%. Veit ekki hvort fyrirtæki geti verðlagt vöru
sína svona mikið hærra en samkeppnisaðilinn eða hvort um hreina blekkingu
sé að ræða? 
Nafnlaus

#1089    Þetta er nú meira þjónusta en okur, en við vorum á ferðinni í dag með 
2 krakka, sem hafa verið að safna stimplum í vegabréf N1 í ferðalaginu.
Um 2 leytið í dag komum við í Staðarskála í Hrútafirði og þau fengu 
sitthvora fanta flöskuna án nokkurra vandræða.
Svo komum við í N1 í Borgarnesi og þau hlupu inn til að fá stimpil, 
sem var nr 4 og honum fylgir ekki einu sinni dót, en þau komu tilbaka 
með það að leikurinn sé hættur og þau geti ekki fengið stimpil lengur.
Þetta fannst okkur frekar skrítið þar sem leikurinn var enn í gangi í 
Staðarskála nokkrum tímum fyrr, svo ég fór inn með þeim og spurði um 
frekari svör.  Þá fékk ég að vita frá 2 strákum, ca 18 ára, að þeir 
hefðu fengið póst í morgun um að leikurinn væri hættur og þeir búnir 
að senda allt til baka. Þetta fannst mér nú frekar lélegt, þar sem 
það kemur hvergi fram nein enda-dagsetning, fyrir utan að dregið 
verði úr vinningum 16. ágúst.
Svo prufaði systir mín að fara með þeim, til að "nöldra enn meira" um 
þetta, og þá tóku strákarnir upp stimpil, sem hefur þá líklegast 
orðið eftir þegar þeir sendu allt til baka og stimpluðu í bækurnar. 
Allt er víst þá þrennt er, er kannski mottóið hjá þeim.
Svo komum við til Hveragerðis, þar sem krakkarnir hlupu aftur inn með 
bækurnar sínar og fengu stimpil og sinnhvorn flugdrekann. Þar á bæ 
kannaðist starfsfólk ekkert við neinn póst eða skilaboð um að 
leikurinn væri hættur.
Fyrir okkur fullorðna fólkið er kannski ekkert mál að loka á leik 
svona bara eftir geðþótta, eða ég-veit-ekki-hverju, en þegar maður er 
6 ára, þá er ansi erfitt að skilja þetta og mikið búið að spá í því á 
leiðinni hvers vegna sé svona erfitt að fá stimpil í Borgarnesi.
Berglind Halldórsdóttir

#1088    Ég keypti smurolíu hjá N1 áðan, einn lítra Mobil ódýrasta olían 10-40 (fjölþykktar) á kr. 908 krónur. Ég keypti sams konar olíu fyrir ca 25 dögum á 666 krónur. Þetta er ca 35% hækkun. Þetta er náttúrlega ekki hægt og ég sá á afgreiðslufólkinu þegar ég nefndi þetta að þeim leið illa þegar ég nefndi þetta og umræðurnar urðu litlar. 
Arnór Ragnarsson 

#1087 Rizzo pizza eru með frábærar pizzur en gosið hjá þeim er allt of dýrt! 2 l Pepsi á kr. 360. Ef þú ferð í bónus við hliðina þá færðu 2l á svona 160 krónur, stundum minna þegar það er á tilboði. Vandinn er reyndar sá að þar er gosið ekki kalt. Svo það borgar sig að eiga kalt gos úr Bónus heima þegar maður ákveður að kaupa pizzu.
Björn Ingimundarson
(nb. Þetta er nú bara vægt okur. Ég minni á að okrið sem startaði þessari síðu var 350 kall fyrir litla kók í gleri svo 2 l flaska þarf eiginlega að kosta 2000 kall svo það teljist okur.)

#1086    Óverðmerktar skólatöskur í Hagkaupum: http://ellasiggag.blog.is/blog/ellasiggag/entry/615427/

(Sett inn 13.11.08):

#1085    Fór í Krónuna sem er fínasta verslun.  Ákvað að kaupa skinkuhorn sem 
kostaði 165 kr.  Allt í lagi með það.  Verðið kom vel fram á miða við 
hlið vörunnar.  Skinkuhorn kr. 165 ----2 stk kr. 330.  Frábært hugsa 
ég.  Tek tvö og græði smá.  Hvað ætli ég græði annars mikið?  2x165? 
Já reiknið nú.  Þrjúhundruðogþrjátíukall!  Svona var flest 
bakaríisdótið þarna merkt.  Gefið í skyn að það borgi sig að taka tvö 
stykki.
Svo kom að kókinu.  4x2lítrar í kippu 699 kr.  Það er 175 kall flaskan 
ekki satt.  Rölti inn í gosganginn og tékkaði verðið á einni tveggja 
lítra bokku.   Jú jú var það ekki 169 kr. flaskan ein og sér!
Krakkar, látum ekki plata okkur, notum stærðfræðina.  Jafnvel 
máladeildarpíur eins og ég ráða við svona einföld dæmi, bara gefa sér 
smá tíma.
Kolbrún Jónsdóttir
(ATH: Ég vil byrja á að þakka þér fyrir þessa ábendingu.
Þegar kók flaska lækkar á að sjálfsögu að lækka kippuverðið líka, hörmun við
þennan þessi mistök sem áttu sér stað, ef þú hefur ekki fengið leiðréttingu
á þessari kippu vil ég endilega biðja þig um að tala við viðkomandi
verslunarstjóra og hann leiðrétta það strax við þig.
Með kveðju,
 Kristinn Skúlason, Krónunni)

#1084    Talandi um okur þá er eitt af svæsnustu dæmum sem ég hef séð hjá Lyfju.
Þar kosta einnota lesgleraugu kr. 1457.-, en hjá Bónus og Rúmfatalagernum kosta nákvæmlega eins gleraugu kr. 198.-
Lauslega reiknað er verðmunur ca. 643%, og geri aðrir betur.
Í mínum huga er Lyfja ein sú allra versta okurbúlla sem hefur orðið á vegi mínum og skora ég á alla að sniðganga slíkar búllur eftir fremsta megni.
Sigurður Kristinsson
(nb. Svo enn einu sinni sé nú tuggið á því: ódýrasta apótekið heitir Lyfjaver!)

#1083    Hef keypt Samsölu Sólkjarnabrauð lengi og þótt gott. En nú er komið óbragð. Einn pakki kostaði 124 krónur í Bónus(i) fyrir hálfum mánuði og pakkinn kostar enn kr 124  þann 10. júní – nú en hvað er málið.  Jú pakkinn var 410 gr áður en hefur nú skroppið saman í 270 gr. 51,8 % hækkununarokur.
Ingibergur Elíasson

#1082    Á þessu síðustu og verstu verður maður bara að benda á smá týru í 
myrkrinu.  Fórum á Klausturkaffi á Skriðuklaustri í Fljótdalshrepp. 
Fengum okkur hádegishlaðborð, 2 fullorðnir og 2 6-12 ára.  Kostaði 1.750 
fyrir fullorðinn, hálft gjald fyrir krakkana.  Kostaði okkur 5.250.  Gast
borðað eins og þú gast í þig látið, stanslaust að koma með rétti á borðið, 
greinilega ekki eldað fyrir 100 manns og svo kólnar þetta bara á borðinu. 
Kaffi og kaka í eftirrétt fylgdi með.  Og þetta bragðast meira að segja 
vel.  Hrósuðum þeim fyrir matinn og verðlagninguna og sagði hún sem er með 
þetta að þau vildu nú frekar fá fólkið inn en að okra á þessu.  Margir 
veitingastaðir mættu taka það sér til fyrirmyndar.  Semsagt, góður matur á 
hóflegu verði á Klausturkaffi í Skriðuklaustri.
Kjartan Þór Guðmundsson
(nb. 1750 kall á kjaft er nú ekkert svo svakalega æðislegt á hádegistilboði. Ég tók saman grein um þetta nýlega fyrir Fbl. sem er svona: 
Borðið úti í hádeginu!
Það er ekki ódýrt að snæða á veitingahúsum landsins. Þeir sniðugu með tóman maga geta þó fengið sér í gogginn í hádeginu án þess að fara á hausinn því margir veitingastaðir bjóða upp á ódýrari matseðla í hádeginu heldur en á kvöldin. Það er líka sniðugra að borða vel í hádeginu en að belgja sig út á kvöldin þegar stutt er í svefninn.
Lítum á nokkur dæmi. Nú eru sumarfríin í algleymi svo við skulum líka kíkja á hvað er í boði fyrir krakkana.
Byrjum á hlaðborðunum. Sjávarbarinn, Grandagarði 9, býður upp á sjávarréttahlaðborð á 1.400 kr. á mann. Krakkar frá 0-6 ára fá matinn frían en frá 6-12 ára borga hálft verð. Potturinn & pannan, Brautarholti 22, er með hlaðborð á 1.490 kr á mann. Krakkar borða á hálfvirði. Hlaðborðið á Pizza Hut leggst á 1.290 kr. á mann, krakkar borga 770 kr. Hádegishlaðborðið á Aski, Suðurlandsbraut 4, kostar 1.690 kr á manninn, 890 fyrir krakka. Á Vox Bistro í Hótel Nordica við Suðurlandsbraut kostar hádegishlaðborðið 2.600 kr. Þar er hálft verð fyrir börn 6-12 ára, en frítt fyrir yngra fólk.
Þá skulum við skoða veitingastaði í amerískum stíl. Á Ruby Thuesday bjóðast réttir á hádegisverðartilboði á 1.090 upp í 1.390 krónur. Á T.G.I.Fridays í Smáralind er hægt að velja úr átta réttum á 1.290 kr. hvern. Í Grillhúsinu við Tryggvagötu fást réttir á hádegistilboði frá 1.195 kr. til 1.495 kr. Á öllum þessum stöðum er barnamatseðillinn sá sami og vanalega.
Og þá að fínu stöðunum. Jafnvel þar tímir maður að spandera á sig í hádeginu við vel valin tækifæri. Á Lækjarbrekku í Bankastræti má velja um tvo rétti á 2.400 kr., og þrjá á 2.900 kr. Af barnamatseðli má velja ýmsa rétti á 1.800 kr.
Sjávarkjallarinn, Aðalstræti 2, er með tveggja rétta hádegisseðil á 3.300 kr. eða 3.900 kr. með eftirrétti. Alla réttina má gera "barnavæna" og kosta þeir þá helmingi minna.
Á sjálfu Hótel Holti má velja um ýmsa rétti af matseðli, tvo rétti á 2.700 kr., þrjá á 3.300 kr. Hægt er að útbúa kjúkling og franskar fyrir krakkana á 1.800 kr.)

#1081    Var gestur á Króksmóti (fótboltamót) um síðustu helgi á Sauðárkróki, fékk þjónustu þar hjá N1 sem ég hef ekki rekist á áður og er að spá í hvort á rétt á sér.  Keypti lítinn ís í brauðformi með dýfu og kurli, afgreiðslustúlkan spyr "á ég ekki bara að setja hann í box fyrir þig" með svipnum "annars fer þetta út um allt" og ég bara "jú jú", hélt að ísinn væri eitthvað linur hjá þeim eins og getur gerst í mikilli traffík.  Svo borga ég ísinn en fannst hann í dýrari kantinum svo ég tek kassastrimilinn sem liggur þarna á kassanum þar sem stúlkan hafði ekki rétt mér hann, en hún var nota bene horfin eitthvað innfyrir. Þá er þar þessi kostnaður á strimlinum sem ég hef ekki séð áður, box og skeið kr. 45 þ.e. í viðbót við verðið á ísnum.  Hún s.s. rukkaði mig fyrir kr. 45 fyrir boxið (venjulegt lítið pappaísbox og plastskeið) sem hún bauðst til að setja ísinn í sem var reyndar alls ekkert linur og tek það fram að ég er fullorðin en ekki lítið barn.  Þetta hækkaði verðið á ísnum um ca 15-20%.  Er þetta eðlilegt?
Óska nafnleyndar

(Sett inn 11.08.08): 

#1080    Ég er heimavinnandi húsmóðir í fæðingarorlofi og nota stundum blautklúta á bossann á barninu mínu, sérlega gott að eiga einn slíkan pakka í skiptitöskunni. Ég nota Neutral, sem eru án ilm-og litarefna. Ég keypti slíkan pakka í Krónunni í Mosfellsbæ um daginn. Núna fyrir helgina keypti ég annan pakka hér í Bónus í Mosfellsbæ. Ég fór að skoða strimlana og athuga hvað pakkarnir kostuðu í hvorri búð fyrir sig. Í Krónunni kostaði pakkinn 469 krónur en í Bónus kostaði hann 379 krónur. 90 krónum ódýrari í Bónus! Mér finnst stundum vera Nóatúnsverð í Krónunni. 
Svava J

#1079    Ég fór í dag í búðaleiðangur að kaupa dót handa dóttur minni. Fór í Hagkaup
Smáralind og keypti rosa fínan gíraffa sem er með hljóðum, boltum og fíneríi.
Allavega þá borgaði ég 1999 kr fyrir hann þar.
Fór svo í Toys r´us að skoða meira dót og þar sá ég nákvæmlega eins gíraffa sem
kostar þar 4999 !!! s.s ÞRJÚÞÚSUND KRÓNA verðmunur á NÁKVÆMLEGA EINS
LEIKFANGI!!! ÞAÐ ER OKUR !!! 
Inga Jóna Kristjánsdóttir

#1078    Tilboð er ekki tilboð! Skellti mér í Byko um daginn og verslaði  mér eitt stykki ferðagasgrill á tilboði. Fínt tilboð 3500 kr fyrir grillið. Þegar heim var komið og  meistarinn kominn í Ikea samsetningar gírinn kom í ljós að það vantaði þrýstijafnarann með grillinu. Fyrir þá sem ekki vita hvað þrýstijafnri gerir fyrir grill, þá er það tengibúnaðurin á slönguna sem festist á gaskútinn og án hans er grillið ónothæft. Ég hugsaði með mér að þarna hliti nú að hafa átt sér einhver mistök þannig að ég rauk upp í Byko og tékkað á þvi hvort ekki hefðu orðið mistök í innpökkun á herlegheitunum. Svo var ekki og var mér boðið að kaupa þrýstijafnaran sér á 2500 kr. Ég get ekki betur séð en að tilboðsgrillið mitt sem átti að kosta 3500 kr hafi í raun kostað 6000 kr þegar upp er staðið.!!! 
Jónas Hlíðar

#1077    Fór í 10-11. Þar kostar Durex smokkapakki með 3 smokkum 509 kr.! Eða 169 kr. stk. Þetta verð stuðlar að barneignum. Svo kostar Maruud snakkpokinn 729 kr. í þessari ránbúð! Rugl og vitleysa!
Smokki

#1076    Mig langar að benda á okurdæmi frá Hótel Valhöll. í fyrradag vorum við 4 manna fjölskyldan í gönguferð á Þingvöllum í tæplega 30 stiga hita. Tókum með okkur nesti að heiman en ákváðum að kaupa drykkina frekar á staðnum til að hafa þá kalda vitandi að hitinn væri svakalegur. Það er hins vegar dýr lúxus. Hálfur lítri af Kristal plús kostar hvorki meira né minna en 300 krónur flaskan. 300 kall!! og samtals 1200 kr. Hefði kostað innan við 400 kr í Bónus. Það er ekki eins og maður hafi verið að kaupa þjónustu því þetta er afgreitt í flöskunni nákvæmlega eins og í hverri annarri sjoppu.
Þetta er algjörlega svívirðilegt en því miður þá afþakkaði ég ekki kaupin enda afar þyrst eftir gönguferðina. Næst þegar farið verður á Þingvöll verður gosið keypt í Bónus, troðið ofan í eitthvað plastbox eins og eru líklega til á öllum heimilum og kælielementið úr kæliboxinu gamla græjað og haft með. 
Helga Kristjánsdóttir

#1075    Ég get ekki annað en sagt frá þessu þar sem Krónan og bónus eru að keppa um verð, ég fór í Bónus í dag og keypti poka af kjúklingabringum 900gr frá danmörk og viti menn
Bónus kostaði þetta 858kr pokinn en í krónuni 1198 kr nákvamlega sami framleiðandi og allt, Krónan er alls ekki eins ódýr og menn vilja halda. 
Skoðaði líka verð í hillum vel í krónuni þar sem ég hef oft lent í því að verð á hillu er annað en þegar varan er skönnuð inn.
Reynir Lord

#1074    Í Grímsnesinu erum við mörg með Digital Ísland, þjónustan er mjög léleg og klukkustundunum saman erum við án sjónvarps.  Misstum t.d. af Ól-eikunum í dag, Eftir mörg símtöl og kvartanir fékk ég nóg og spurði hvort ég fengi ekki endurgreiddan hluta af áskrift minni (c.a. 8000 á mánuði). Nei því miður, ef vandræðin eru ekki sök 365, þá er ekki endurgreitt.  En hún játaði að það væri vandræði með sendinn á Langholti (uuhh) hvers sök er það þá?  Þau væri búin að vera vinna í þessu en viðgerð væri ekki lokið! 
Halldór Ísleifsson

#1073    Ég má til með að segja frá því sem kom fyrir mig í Timerlandverslunni í Kringlunni nú fyrr í sumar. Ég keypti skó sem mér leist nokkuð vel á og ákvað því að sleppa kassanum.  Ég gerði mér grein fyrir því að þá gæti ég ekki skilað vörunni ef mér snérist hugur, nú það gerðist ég fékk aðra skó í Kringlunni sem mér leist betur á og af því að það var bara liðin hálf klst. frá því ég var í búðinni flýtti ég mér til baka og athugaði hvort möguleiki væri að skila skónum. En viti menn þvert nei!! fékk ég og ekki einu sinni rætt að fá inneignanótu!!  Þvílík stífni á einungis hálftíma.  Ef ég hefði komið næst dag, hefði ég skilið þetta með kassann en konan var búin að rífa hann þess vegna kom ekki til greina nein endurgreiðsla að neinu tagi, hvað ef skórnir hefðu verið gallaðir og hún sem talaði um að það væri sérstakt númer á kassanum. Var ekki hægt að gera þá að sýningareintaki nóg var af þeim.  Ég hef oft verslað í Timberland hef verið góður kúnni, fengið góða þjónustu , þangað til núna.  Rándýra peysu fékk ég frá þeim og hef notað mikið nú í meira en ár, væri ekki í frásögu færandi nema vegna þess að verið var að stela henni af snúrunni hjá mér!! Hvað er í gangi í þessu þjóðfélagi! Ég er ekki útlendingahatari en þeir eru ornir svo margir  í leigukjallörum í kringum mig eiga ekki neitt og hvað á maður að halda þarf ég að fara að vakta þetta fólk?? ( góð hettupeysa til að vinna í  blá að lit ) Karlmannspeysa. Alveg súper. 
María Kristjánsdóttir 

#1072    Ég fór í 10-11(Firði Hafnarfirði) í hádeginu í dag til að kaupa mér hádegismat (rúnstykki) geri það einstaka sinnum svona til að breyta til. Ég keypti mér rækjusalat og yfirleitt kaupi ég mér eitt soðið egg úr salatbarnum með til að blanda saman við rækjusalatið því mér finnst of mikið mæjones í því. Hef gert þetta nokkrum sinnum og yfirleitt greitt um 15 kr. í gegnum tíðina fyrir soðna eggið. Fer stundum eftir því hver hefur verið að vinna hvað eggið hefur kostað (einstaka sinnum 20 eða 25 kr.) En í dag kostaði það 66 kr.!!!!! Núna er allt vigtað af salatbarnum semsagt 1.199 kr. kílóið. Mun sjóða eggin framvegis heima :) þetta er bara okur þó að upphæðin sé ekki mikil en mig langaði samt að koma þessu á framfæri. 
Guðrún 

#1071    Ég fór með bílinn í smurningu hjá Smurstöðinni Fosshálsi 1 í desember 2007. Þá var unnið samkvæmt gjadskrá fyrir kr 4.180 og líterinn að olíu var kr 700.
Nú í dag er sama gjaldskrá kr 5.320, eða 27% hækkun og olíulíerrinn á kr 940, eða 34% hækkun. Ég get nú skilið olíuna, en að gjaldskrá fyrir vinnu skuli hækka þetta mikið á 8 mánuðum finnst mér heldur gróft.
Svo mætti nú eitthvað segja um kr 790 fyrir smá dreitil af rúðuvökva sem fæst fyrir brot af því á bensínstöðvum, með þjónustu.
Þráinn Sigurbjarnarson

#1070    Fór í gær í Nóatún (var ekki um marga staði að ræða þar sem þetta var 
frídagur verslunarmanna) að versla og keypti m.a. Mills-kavíar. Svona 
túpa kostar normalt rúmar tvö hundruð krónur í Bónus eða á öðrum 
stöðum...en ekki þarna í Nóatúni...425 kr. O K U R! Ástæðan fyrir því 
að ég keypti andsk...kavíarinn var að það var ekkert merkt í hillunni 
hvað hann kostaði ...svo í ofanálag var kavíarinn að renna út á 
dagsetningu (í byrjun sept.). Í aukaofanálag þegar ég var að bíða 
eftir að kassastelpan afhenti mér kvittunina, þá henti hún henni í 
fötu fyrir neðan sig, án þess að spyrja mig hvort ég vildi 
MIÐANN...eins þær eru vanar að spyrja! Ég bað hana vinsamlegast að 
láta mig fá kvittun. Hún rótaði í fötunni og fann helv...miðann að 
lokum.
Auðvitað er frjáls álagning og allt það er þetta er hreint 
okur...jaðrar við sprúttsölu!
Hjalmtyr Baldursson

#1069    Sko vs. Tal 
Verslaði við SKO lengi vel þar sem þeir voru ódýrastir fyrir mig og familíuna. 
Þessu komumst við að eftir að hafa prófað okkur aðeins áfram... 
Þess má geta að ég og frúin unnum bæði hjá fyrirtækjum sem versluðu við Vodafone og því ódýrara að hringja vinnutengt með Vodafone síma... 

Síminn = mánaðarreikningur familíunnar = 30.000 
Vodafone = 20.000 
Sko  = 5 - 8.000 

En svo breyttist SKO í TAL og ég fer að taka eftir að SMS um áfyllingu eru farin að berast mun oftar... 
Þegar ég fer að kanna málið þá sé ég að ódýrustu símtölin hafa hækkað úr 2-3 krónum í 14,9 kr og úr því að vera 10 sek í að vera mínúta... 
Ekki par hress með það og er búinn að senda TAL tóninn og farinn til NOVA sem rukka fyrir 30 sek þrep 15,0 kr mín (skárra en 60 sek) 
Að hringja og segja "ég er kominn" t.d. þegar maður er að sækja frúnna í vinnuna var orðið dýrara en að senda SMS á 10 kr. 
Mér finnst samt virkilega frekt að láta notendur ekki vita af breytingum á gjaldskrá og hef hugsað mér að sækja mismuninn til þeirra, þetta getur ekki verið löglegt... 
KK

#1068    Mér finnst ekki annað hægt annað að segja frá stað þar sem ekki er verið að okra á okkur neytendum, ég því miður er með þann ósið að þurfa að reykja tóbak og hef barist við að hætta því, með frekar lélegum árangri, en hvað um það!  Ég verslað mér  tóbak á þeim stað sem stendur mér næst þegar pakkinn klárast. Enn fyrir tilviljun þá var ég staddur í efra breiðholtinu og datt inn í sjoppu sem heitir Hraunberg söluturn, þar gat ég keypt tóbak á 530 kr sem ég hef verið kaupa undanfarið á 670 kr, í 10/11, sem er glæpur, ég veit ekki hvort þetta sé jákvætt að geta keypt tóbak á þessu verði eða ekki,,, enn á minnsta kosti á með ég stunda þennan ósið að reykja þá getur þetta skipt sköpun á einu ári í buddunni minni.
Gunnar Þór Gunnarsson

#1067    Get ekki orða bundist..var að koma úr sundi með krakka-skara..keypti 
nokkra kleinuhringi hjá Oddi bakara Hafnarfirði 182 kr st..takk!!!
fór síðan 10 dögum seina í Fjarðarbakarí sem er líka í Hafnarfirði.
þar kostuðu sömu hringirnir (báðir með glassúr karamellu) 160 kr st..
sem sagt 22 króna mismunur eigum við eitthvað að ræða það? ha?
ps: í USA kosta svipaðir hringir 25 kr;;;; he he he áfram Íslenskir 
bakarar...
Magnús Sveinbjörnsson

#1066    Fékk ábendingu um að senda þér þetta.
http://cafesigrun.com/2008/08/02/sjampovisitalanaftur/ 
http://cafesigrun.com/2008/07/30/posturinn-pall/ 
Sigrún

#1065    Ég keypti í vikunni þvottaduft í Hagkaupum í Skeifunni, Neutral Compact Color, 850gr.  Mér brá þegar ég sá verðið á miðanum, það var kr. 818 pakkinn. Í gær átti ég leið í Bónus í Holtagörðum og datt í hug að skoða verðið á þessu þar, sama pakkning:  Pakkinn kostaði kr. 459 þar. Bónus er að vísu lágvöruverslun og Hagkaup ekki, en að það skuli kosta 78 % meira að kaupa pakka af þessu þvottadufti í Hagkaupum en í Bónus finnst mér vera okur!
Eva Benediktsdóttir

#1064    Ég fer sem betur fer ekki oft í banka sem betur fer,er með heimabanka en nú brá svo við í fyrradag að ég varð að borga reikning í snatri í annan banka sem og ég gerði (síðast þegar ég gerði það fyrir ca:2 mánuðum kostaði færsligjaldið 100 kr -en viti menn nú er búið að hækka
gjaldið í 200 kr 100% hækkun! Hvað er að ske? Var ekki verið að birta ársfjórðungsuppgjör bankanna síðustu daga sem hljóðar upp á tæpa 80 milljarða!! Hvenær ætlum við þessi venjulegi viðskiptavinir bankana að rísa upp á afturlappirnar og segja NEI TAKK!!.Við erum ekki fífl!
Eggert Birgisson

#1063    Var á Hólum í Hjaltadal um helgina og ákvað að gleðja börnin og kaupa ís og gos fór ég og skoðaði úrvalið og var niðurstaðan sú að festa kaup á íspinnum og Egils appelsíni  í gleri.  Þegar kom að því að borga þá fékk maður blautu tuskuna framaní sig  4 íspinnar  1200kr  og Apelsínulímonaðiflaskan 300 kr.  semsagt betra hefði verið að panta þetta með leigubíl frá Sauðárkróki heldur en að versla þetta á Hólum. 
Tjaldgestur

#1062    Ég sá verðkönnun í Fréttablaðinu þann 29 7. 08 á gaskútum, og brá þegar ég sá verðin .Því þar stendur að hjá N1 kosti plastkútur með áfyllingu kr.10.165 en það á sko ekki við allar verlsanirnar þeirra .Ég keypti 10 kg gaskút hjá N1- Hyrnunni nokkrum dögum fyrr og þar þurfti ég að greiða 10.165 bara fyrir kútinn og svo 4.650 fyrir fyllinguna eða samtals 14.815 kr.
Þegar ég sá svo verðkönnunina fór ég og bað um skýringu á þessum verðmun og var sagt að þar sem þetta væri N1-Samkaup þá væri  þetta verðið á þessu , þeir leggja semsagt 4.650 kr á hvern kút.Er þetta virkilega leyfilegt að leggja hvað sem er á hlutina ???Þeir græða aldeilis stórlega á sumarbústaðaeigendum í Borgarfirðinum með þessu,þvílík ósvífni.Þetta varð allavega til þess að ég er  hætt að eiga viðskipti við þetta okurfyrirtæki.
Ragnheiður.

#1061    Okur !  Rakvélablöð..  Það er vegið að karlmensku okkar !!!  Gillette er alsráðandi á markaði í rakvörum á öllu Íslandi og sennilega víðar , það er alltaf okurdýrt að kaupa sér rakvévablöð eins og allir kallmenn mannkynns þekkja sem eitthvað þurfa til þess að nýta.  ég notaði rakblöð sem heita EXEL þá kostaði blöð 8 stk í pakka 900 kr   nú er það vörumerki ófáanlegt og tekið af markaði, nýjar línur komnar inn.  Það sem er í boði heitir nú M3 Power eitthvað rafhlöðudrasl með snípjuð víprr drasli sem á að gera skeggið okkar betra en þetta er bara drasl !!!  átta sinnum dýrara !!!!  Nú er aðeins hægt að kaupa blöð í kapital flokknum Gilette  M3   4.blöð í pakka á aðeins 1990 kr  við erum að tala um 400% hækkun og viti menn ekki fyrir sömu gæði því gömlu Exel sköfurnar gat ég notað allt að 6. sinnum en þessar nýju eru krapp.
Dolli Dropi / Jónas Björgvinsson

#1060    Við fjölskyldan fórum í smá bíltúr rétt áðan og komum við í Bónusvideó í
Garðabæ.  Tókum mynd og keyptum okkur sitthvoran ísinn sem er ekki í
frásögurfærandi en þegar kom að því að greiða fannst mér upphæðin heldur há og
spurði um sundurliðun. Kom þá í ljós að Kit-kat ís sem eitt okkar valdi sér
kostar 567.-kr.  Einn lítill ístoppur -örugglega ekki meira en 50gr. 
Ég hef aldrei vitað annað eins verðlag og það endaði með að við gátum ekki
hugsað okkur að borga þetta fyrir vöruna og skiluðum ísnum.  Þetta er komið út
fyrir öll mörk- ég get ekki orða bundist og mun hugsa mig tvisvar um áður en ég
versla aftur við þetta fyrirtæki.
Særún

Okur #973 - 1059 eru hér.

Veistu um svakalegt okur? Láttu vita!