| (Sett inn 23.09.08):
#1252 Fór
í Sambíóin og í hléi ætlaði
ég að fá mér svona rauðan svalandi klakadrykk
(slushy) en þá kostaði hann 310 kr... Mér
þykir ákaflega mikið okur að borga 310 krónur
fyrir frosið vatn með bragðefnum útí (sem sambíómenn
framleiða sjálfir og er kosnaðaverðið sennilega
5 kr fyrir 600 svona glös!!) OKUR!
#1251 Nei, ekki
okur, heldur frábær þjónusta. Þann 19.
sept. fór ég að í tvær búðir
fyrir fatlaðan mann sem ég vinn hjá. Sá hafði
brotið glerkönnuna á kaffivélinni sinni sem var
aðeins nokkra mánaða gömul og keypt í Elko
Skeifunni.Verslunin flytur ekki lengur inn glerkönnur (sem varahluti)
því það er svo óhagkvæmt sagði
afgreiðslumaðurinn um leið og hann gekk að kaffivél
sem stillt var út, rétti mér glerkönnuna af henni
og sagði: "Gjörðu svo vel, maðurinn má eiga
þessa!" Þessi hlýlega framkoma gaf mínum
manni um 6.000 kr (ný kanna).
Hinn staðurinn sem var Byggt og búið í Smáralind.
Þegar afgreiðslumaðurinn heyrði að ég væri
að versla fyrir fatlan mann bauð hann mér strax 10% afslátt
og sagði að verlsunin væri að bjóða sambýlum
og þjónustuíbúðum þennan afslátt.
Elko og Byggt og búið: Takk fyrir okkur!
Sesselja Guðmunddóttir, Mosfellsbæ
#1250 Var að
taka rútu heima úr skólanum frá BSÍ
og
ákvað að fá mér eina hálfslíters
kók í sjoppunni þar. Kókflaskan kostaði
250 kr. Sama kókflaska í bónus er yfirleitt undir
100 kallinum.
Gulli
#1249 Keypti glas
af rauðvíni í Flugleiðavél og það
kostar 500 KR. Glas af bjór líka 500 kr. Einfaldur af Koniak
500 kr. En sem dæmi kostar glas af rauðvíni 400 kr á
veitingastað IKEA í Garðabæ.
Gott ráð: Keyptu þér pela af koníak
í Fríhöfninni en þar færðu hálfan
líter af Hardy vsop 50cl. 40% á 2000 kr.,
en einfaldur er á 500kr í flugvélinni til að hafa
með kaffinu.
Og mundu eftir smjörinu því það fylgir
ekki lengur brauðinu sem þú færð í Flugvél
Icelandair
Og að lokum taktu með þér heyrnatól ef
þú vilt hlusta á efni það sem er í
tenglinum í sætinu. Eyrnatapparnir eru alveg ónýtir
í vélinni.
Ari
(Nb. Ekki veit ég hvort Icelandair myndu telja þetta
réttláta gagrýni! Það er víst ekki
það sama, rauðvín og rauðvín, það
er bannað að taka með sér fljótandi efni í
handfarangur (allavega til USA, nema það sé hætt?)
og ég hef aldrei lent í biluðum headfónum.)
#1248 Þannig
var mál með vexti að ekið var á bíl dóttur
minnar, bíllinn hennar er gamall og ekki mikils virði en engu
að síður í lagi. Afturhurð og bretti skemmdust
og þar sem ég treysti mér alveg til að gera við
þetta þá lét ég meta tjónið
á verkstæði. Matið hljóðaði uppá
109 þús kr. og ég sætti mig við það
og samdi við Tryggingafélagið Vörð að
þeir greiddu út tjónið og ég skyldi sjálfur
gera við. Tryggingafélagið Vörður greiddi
á endanum 76 þús kr. rúmar, ég var ekki
sáttur og vildi vita af hverju ég fékk ekki þá
upphæð sem tjónið var metið á. Svörin
voru þau að það væri hefð fyrir því
að draga 30% af tjónaupphæðinni þegar tjón
væru greidd út, þetta færi í ýmis
opinber gjöld virðiskaukaskatt ofl. Allt í lagi ég
samþykkti þetta en vildi fá að sjá útlistun
á þessum 30% hvernig skiptingin væri, nú væri
td virðisaukaskatturinn ekki nema 19,68% þegar hann væri
bakreiknaður osfrv. Ég fékk klárt nei -
við eigum þetta ekki til skilgreint var svarið en samt varð
ég að sætta mig við þetta !!!!! Reyndar
neituðu þeir í byrjun að leyfa mér að
sjá tjónamatið en það fékkst þó
í gegn eftir þrjú símtöl.
Er þetta löglegt? Þetta er amk siðlaust!
AB
#1247 Ef þú
kaupir þér tæki, t.d hljómtæki eða
gps-tæki í útlöndum fylgja með leiðbeiningar
á því tungumáli sem talað er í því
landi sem varan er keypt í. Ef þú hinsvegar kaupir
svona tæki á Íslandi eru leiðbeiningarnar á
ensku. Þetta finnst mér móðgun við íslenska
kaupendur. Hafði samband við Garmin-umboðið út af
gps-tæki sem þeir selja og kostar litlar 65 þúsund
krónur. Spurði um íslenskar leiðbeiningar en afgreiðslumaðurinn
sem svaraði í símann virtist ekkert vita um tækið
þegar ég spurði um leiðbeiningarnar en sagðist
ætla að gefa mér samband við „Óla“ sem auðvitað
var ekki við. Ég get ekki annað en skammast mín
fyrir að vera samlandi manna sem stunda slík viðskipti.
Kristján
(ATH: Það er eiginlega fáránlegt að
krefjast þess að leiðbeiningar fylgi með raftækjum
á Íslensku. Miðað við það að Íslendingar
séu um 300.000 þús og aðeins lítil % af
þessum 300.000 kaupir hvert tæki. Þú getur ímyndað
þér það hvernig það yrði fyrir framleiðendur
að fara að framleiða sér bækling fyrir allar borgir
eða bæi sem eru yfir 300.000 þús að stærð
út í heimi, kassarnir utan um tækin þyrftu að
vera helmingi stærri. Það er eiginlega bara fáránlegt
að það sé til dæmis íslenskur texti yfir
höfuð á DVD myndum miðað við hvað við
erum fá.)
#1246 Lítil
Kókómjólk (1/4 L.) í Sundlaug Seltjarnarness
kostar 180 kr. Það hlýtur að teljast okur!
GS.
#1245 Mig langar
að segja frá undarlegri hækkun á tóbaki
í Leifsstöð. Ég keypti þar karton af Café
Creme vindlum í júlí sl. sem kostaði þá
1.590 krónur. Aftur keypti ég karton um miðjan september
og þá kostaði það 1.899 krónur, semsagt
299 króna hækkun eða tæplega 20 % á tveimur
mánuðum!!!
Sigurður Einarsson
(Nb. Ég held að allar hækkanir á erlendu
dóti, smávindlum sem öðru, megi skýra með
gengis-siginu.)
#1244 Ég
hringdi í B&L um daginn til þess að fá
að vita hvað það kostaði að skipta um tímareim
í Renault Laguna árg. 2003. Það er líka
skipt um vatnsdælu um leið, hún er drifin af tímareiminni.
Ekki stóð á svarinu 120 þús. kr. (Dýr
yrði Hafliði allur.).
Pétur Eggertsson, Skagaströnd
#1243 Fór
í Krónuna að kaupa þvottefni sem ég
er búin að kaupa í nokkra
mánuði. Þetta er fljótandi þvottefni
sem heitir PUREX. En bíddu við það
var buið að hækka það um 40% kostaði undir
600hundruð kallinn en
kostar núna 990 krónur hvernig er hægt að réttlæta
þetta. Mun ekki
fara og versla í Krónunni í bráð held
mig við Bónus!
Inga
#1242
Ég vil hrósa Elko Lindum fyrir gott viðbót.
Ég kom með safapressu sem ég var búin að nota
í næstum 2 ár. Pressan tók upp á
því að leiða út. Verslunarstjórinn lét
mig fá nýja pressu án nokkurra vandkvæða.
Baðst afsökunar á því að pressan hefði
næstum getað drepið mig.
Einnig vil ég hrósa Hagkaup í Holtagörðum
fyrir skemmtilegt viðmót, ekkert mál að skila gölluðum
vörum þar.
Óskar nafnleyndar.
#1241 Við
hjónin tókum þá ákvörðun að
leyfa krökkunum að kaupa sér einstaka sinnum dvd myndir
til að horfa á hérna heima í staðinn fyrir
að fara í bíó enda horfa þau aftur og aftur
á sömu myndirnar. Við fórum því einn
föstudaginn í Bónus að gera helgarinnkaupin
og ákváðum að kaupa einn dvd disk. Fyrir ofan dvd
myndirnar er merkt "ódýrt dvd" á tæplega 900
krónur. Við völdum því eina mynd og þegar
við komum á kassann kostaði myndin tæpar 2200 krónur.
Við hættum því við. Fórum svo strax í
Hagkaup
og kaupa það sem vantaði upp á enda ekki allt sem
fæst í bónus. Við ákváðum að
kíkja í raftækjadeildina og skoða myndirnar og
sáum sömu myndina þar sem stóð "ódýrt
dvd" á tæpan 1000 kall. Við tókum því
myndina og ætluðum að tékka á því
hvað hún myndi kosta á kassanum. Við fórum
þó ekki lengra en fram á ganginn þegar við
sáum sömu myndina merkta á tæpar 2400 krónur.
Við spurðum því starfsmann í raftækjadeildinni
hvað myndin kostaði og hann sagði tæpar 2400 krónur
en þegar við sögðum honum að myndin væri líka
inni í deildinni á tæpar 1000 krónur tók
hann til baka hitt verðið og sagði að það væri
nýbúið að lækka myndina en þeir fengju
bara ekki að vita það strax. Samt var myndin komin inn í
deildina á ódýrara verðinu. Við fórum
allavega með myndina á kassann og keyptum hana þar sem
ódýra verðið var komið inn í kerfið.
Rósa Björg
#1240 Undanfarna
daga hefur "Hrís" nammi verið auglýst: "Þú
færð Hrís poka í næstu verslun á 90
kr". Ég keypti tvo poka í Krónunni og sá
á kassakvittuninni þegar ég kom heim að pokinn
kostaði 149 kr en ekki 90 kr.
Begga.
#1239 Ég
veit ekki hvort þér hefur verið bent á þetta
áður en fyrirtækið Birtingur sem gefur út
öll þessi vikurit og mánaðarrit fær ekki margar
stjörnur hjá mér. Við skráðum okkur fyrir
tilboði sem kallast „Bókatilboð" en þá fæ
ég 4 bækur og tvö mánaðarrit í 24 mánuði
á ákveðinn pening. Ég sem hrikalega lélegur
neytandi gerði þetta tilboð í október í
fyrra og fylgdist lítið með kortasundurliðuninnni en
tók mig til og skoðaði kortafærslurnar í sumar
og tók þá eftir því að verið var
að rukka mig miklu meira en um var samið. Þegar ég
hringdi og kvartaði yfir þessu var mér tilkynnt að
þessi blöð væru ekki mánaðartímarit
heldur 3 vikna blöð (Hús & Híbýli og
Nýtt Líf) því greiddi ég í það
minnsta alltaf fyrir 3 blöð í hverjum mánuði.
Um þetta var mér aldrei tilkynnt og ég skora á
þá sem eru með tímarit hjá þessu fyrirtæki
að fara vandlega yfir hvað er verið að rukka um. Maður
spyr sig hvað þeir geta fjölgað blöðum mikið
án þess að láta kúnnanna vita! Ég
fékk ekki að segja upp áskriftinni tafarlaust heldur
styttist áskriftarsamningurinn því sem samsvarar þessum
aukagreiðslum sem var hálft ár. Ef ég hefði
ekki skoðað þetta hefði ég greitt mánaðargreiðslur
í hálft ár aukalega miðað við samninginn
sem ég skrifaði undir.
Unnur
#1238 Síðasta
árið hef ég verið áskrifandi að Stöð
2 Sport og Sport 2. Á þeirri fyrri eru yfirleitt golfmót
í beinni um helgar og á þeirri síðari er
enski boltinn. Fyrir þetta var ég að borga u.þ.b.
7200 krónur. Nú í september hækkaði svo
verðskráin um nokkur prósent svo þessar tvær
stöðvar eru núna á um 8.000 krónur ef maður
bindur sig í 12 mánuði en 9.900 í einn mánuð.
Það fannst mér of mikið og sagði þessu upp,
enda um 100 þúsund krónur á ári þrátt
fyrir bindingu. Núna, nokkrum dögum síðar, datt
mér í hug að gaman væri að taka aftur inn Stöð2
Sport til þess að sjá Ryder Cup golfmótið milli
Bandaríkjamanna og Evrópumanna, stærsta golfviðburð
í heimi. Verðskráin á heimasíðu Stöðvar
2 segir að einn mánuður kosti 4.890 krónur. Það
er óneitanlega í hærri kantinum fyrir eina stöð,
en ég ákvað að hringja samt og reyna að fá
tengingu í gegnum þjónustuverið, enda útsending
byrjuð. Þá kom í ljós að í dag
19. september þarf ég að greiða fyrir seinni hluta
september og allan októbermánuð líka til að
fá opnað fyrir útsendingu, sem sagt einn og hálfan
mánuð. Það verða þá rúmlega
7.700 krónur fyrir eina stöð! Og ég sem vildi
bara fá að sjá eitt þrigga daga golfmót!
Ég bað sölumanninn bara afsökunar á ónæðinu,
sagði þetta of dýrt fyrir mig og kvaddi. Ég er
svo heppinn að fjölskyldumeðlimir hafa Sky sjónvarpsstöðina
og þær hundruðir stöðva sem þar fljóta
með, svo ég sé mótið bara þar. Startkostnaður
fyrir Sky með öllu, þ.e. uppsetningu, diski, afruglara,
opnunargjaldi osfrv. er um 100 þúsund en eftir það
er kostnaður á mánuði ekki langt frá 7.000
krónunum sem ég var að borga allan síðasta
vetur fyrir tvær íslenskar stöðvar. Það
tæki þá einungis 2-3 ár að borga upp byrjunarkostnaðinn.
Ég hef ákveðið að byrja að safna og koma
mér upp Sky pakkanum, og skil hreinlega ekki í því
að fólk láti bjóða sér svona okur eins
og viðgengst fyrir Stöð 2 Sport rásirnar.
Sigurður
#1237 Dóttir
mín átti afmæli nýlega og keyptum við handa
henni bókina
Draugaslóð úr Eymundsson á kr. 1490.
Hún fékk svo annað eintak í
afmælisgjöf. Þegar við ætluðum að
skipta eintakinu sem við keyptum þá
var búið að lækka verðið á henni
í kr. 1117 (ekkert nema gott um það
að segja svo sem). Þó svo að við værum
með kvittun upp á kr. 1490 þá
fengum við ekki meira en kr. 1117 í skiptunum. Þetta
eru engar stór
upphæðir og væntanlega hægt að benda á
að stundum gengur þetta líka í
hina áttina en bara leiðinlegt þegar það
gerist.
Bragi Walters
#1236 Langið
að benda á frábæra þjónustu hjá
þeim í RB Rúm í Hafnarfirði. Fór
á stúfana að leita að rúmi fyrir strákinn
minn, stærð 90 x 200 cm. Á svakalegu afmælistilboði
í Rekkjunni, 67.000 kr. en hjá RB Rúm 52.000 kr. og
innifalið í því var bólstrun á neðri
dýnu, ál fætur og HEIMKEYRLSLA sem ég átti
nú ekki von á. Fyrir utan það þá var
rúmið afhent daginn eftir að ég lagði inn pöntun.
Frábær þjónusta á frábæru
verði.
Nökkvi Svavarsson
#1235 Ég
hef verslað nánast eingöngu í Bónus síðan
ég flutti út frá foreldrum mínum. Ég
hef fylgst vel með verðmerkingum þar og hvet alla til að
lesa nákvæmlega hvað er verðið að verðmerkja
miðað við neðangreinda sögu.
Eitt skiptið sá ég tilboð "Mömmu pizzur"
199 kr./stk. Sem var náttúrulega flottur díll.
Ég geri ráð fyrir að fleiri hafi gert sömu
mistök og ég í þetta skiptið því
þegar ég
var kominn á kassa sá ég 499 krónur dúkka
upp á skjáinn á kassanum (sem var meðalverð
á búðarpizzum á þessum dögum).
Ég stoppa kassadömuna og segi henni að ég hafi
séð verðið 199, hún kemur með mér
inn í búðina og segir að pizzan sem ég er
með sé "ömmu pizza" en það hafi ekki verið
tilboð á þeim. Þess ber að geta að mömmu
pizzurnar umræddu voru ekki til.
Eftir þetta hef ég alltaf gefið mér góðan
tíma til að lesa verðmerkingarnar betur í Bónus
því þegar maður fer að skoða verðmerkingarnar
eru oft miklu dýrari vörur við verðmerkinguna. Rakst
til að mynda á "Bónus Boyone skinka - 40% afsláttur
á kassa" en þar var enga "Bónus Bayjóne skinku
að finna heldur Ali sem var miklu dýrari". Eftir mikla leit
fann ég þó ódýrari skinkuna og tók
á það ráð að færa skiltið á
þann stað sem það átti í raun að
vera. Að mínu mati er þetta löglegt hjá
þeim en siðlaust.
Jóhann Már Sigurbjörnsson
#1234 Mig langar að koma eftirfarandi hugleiðingu
á framfæri: Þegar maður skoðar topp 10 listana
á okursíðu dr. Gunna slær það mann að
sjá eintóm stórfyrirtæki sem "Vondu gæjana"
á meðan að "Góðu gæjarnir" eru oftar en
ekki litlar búðir. Sjálfur hef ég sannreynt
að það borgar sig oft að versla við litlu kaupmennina
sem flestir halda að séu dýrari en þeir stóru.
Nýleg dæmi eru t.d. Garðs apótek sem seldi mér
lyf á mun lægra verði en stóru keðjurnar tvær.
Einnig hef ég átt mjög ánægjuleg viðskipti
við litla reiðhjólaverkstæðið Borgarhjól
á Hverfisgötu í sumar og haust en þar hef ég
undantekningalaust fengið það sem mig vantaði, stundum
eftir að hafa farið erindisleysu í stóru búðirnar
nálægt Grensási. Verðið hefur einnig verið
mjög sanngjarnt á verkstæðinu.
Síðast en ekki síst er það oftast mun ánægjulegra
að versla við "kaupmanninn á horninu" sem hefur mikla þekkingu
á því sem hann verslar með ólíkt
sumu afgreiðslufólki hjá stórum verslanakeðjum.
Heimildamyndin "Kjötborg" sýnir okkur hvers við förum
á mis við þegar við verslum í stóru
matvörubúðunum. Ég mæli eindregið með
Kjötborg, bæði myndinni og búðinni sjálfri.
Sigurður Hr. Sigurðsson.
#1233 Þar
sem ég er held mikið upp á vörur frá 66°norður
var mér illa brugðið, nú ég hafði hugsað
að kaupa mér jakka sem heitir Vindur hjá þeim og
kostaði 23 og eitthvað 24.000 segjum það en í
gær var hann komin upp í 29.800 þúsund þetta
er svakaleg hækkun á þessum vörum þó
að þær séu flottar og í flestum tilfellum
mjög góðar. Þetta er verulega mikil hækkun
og tala nú ekki þegar ég þarf að kaupa á
börnin fyrir veturinn er ég hrædd um að ég
versli ekki meira í bráð hjá þeim.
Guðrún Haraldsdóttir
#1232 Ég
vildi bara skrifa þér til að leiðrétta eitt
á okursíðunni þinni. Í Topp 10 listanum
þínum yfir vondu gæjana, þar er Leifsstöð
í 5. Sæti.
Epal Design rekur verslun í Leifsstöð og þar
eru allar vörur ódýrari en í bænum, og
samkvæmt könnun sem Flugstöðin gerði á rekstraraðilum
komum við mjög vel út. Verðin hjá okkur eru
frá 15-65% lægri í Leifsstöð.
Þannig að listinn þinn ætti eflaust frekar að
tilgreina einstakar verslanir í Leifstöð (svo sem Fríhafnarverslunina),
en ekki alhæfa yfir alla rekstraraðila. En það er samt
rétt hjá þér að sumar verslanir eru alls
ekki með ódýrari vörur heldur en í bænum
og er mjög gott að láta vita af því, en slæmt
þegar það bitnar á öðrum sem reyna að
gera vel við neytendur.
Dagur Eyjólfsson / Epal hf.
#1231 Við
hjá Rekstrarvörum erum að selja rekstrarvörur
til fyrirtækja en heimilin þurfa líka rekstrarvörur.
Við erum með td RV þvottaefni og Windfresh frá USA
á undir 300kr pr kg, meðan það kostar almennt um 500kr
Gráir ruslapokar eru hér á 385 en 549 og 538 í
Húsasm og Byko (það þarf að kenna fólki
að hætta að kaupa á 15kr og nota sjálf poka
frá okkur.)
10 herðatré hjá okkur eru 493 en 917 og
849 i Húsa-Býko.
4x AA rafhlöður, eigin innfl kostar hjá okkur 280kr
meðan þær kosta 790 í Húsasm.
Kaupum í gámavís frá samsclub í
usa. Erum með bæjarins bestu verð á mörgum vöruflokkum.
Við erum að flytja inn vörur framhjá heildsölunum
ss Neutral, Duni, Gevalia ofl.
Hingað koma um 500 manns á dag að versla til heimilisins,
búðin er etv ekkert fancy eða með dýrar hillur,
en hún virkar. Best varðveitta leyndarmálið í
bænum. Kíktu á www.rv.is.
Thomas forstjóri RV
(+ Við hjá RV vorum að bera saman nokkur verð.
Í blaðinu í dag ertu að tala um bleyjur. Við
flytjum inn, framhjá heildsalanum hér, og seljum beint í
búðinni, libero midi5-8 kg babysoft á 947kr 33
stk eða 28,5kr stk
Einnig erum við líklega með ódýrustu
dömubindi á landinu, dæmi libresse 10 stk á 182
kr, heilu saumklúbbarnir koma hingað og taka þetta í
kassavís,
Nýbakaðir foreldrar koma hér í hópum
og sækja bleyjur, hreinsiefni og ekki síst mesoft grisjur
til að hreinsa bossana á börnunum fyrir 210kr, kostar 3falt
í sumum búðum íbænum
Og hér kemur rúsínan......listerine tannhreinsiskol
kostar það sama hér og í sumum búðum,
um 1500kr, nema okkar er 1,5 ltr, en hja hinum fást aðeins um
300ml á sama verði.....það munar og munnar um minna!)
#1230 Ég
er með viðskiptakort hjá N1. Seðilgjaldið
var 160 kr en var að hækka í 250kr. eða um 56%.
Þetta er kjaftshögg í andlitið á launamanni
þegar verið er að tala um þjóðarsátt.
Ég hringdi í N1 og spurði af hverju þetta hefið
hækkað og hvort að þetta seðigjald væri ekki
ólöglegt. Konan sem svaraði taldi að seðilgjaldið
væri ekki ólöglegt og að það hefði
verið tekið upp "nýtt kerfi" og þá hefði
seðilgjaldið verið sett 250kr. Ég sagði henni
að ég væri alvarlega að hugsa um að hætta
viðskiptum. "Þú verður bara að meta það
sjálfur hvort þú sjáir þér hag
af því að vera í viðskiptum". Núna er
seðilgjaldið hærra en afslátturinn sem ég fær
af bensín kaupum. Þessi viðskipti borga sig ekki
lengur. Þetta er síðasti mánuðurinn sem
ég mun nota viðskiptakortið frá N1.
Geir
(Sett inn 22.09.08):
#1229
Svona af því Hraunbergssjoppan kemst á lista yfir góðu
gæjana fyrir ódýrasta tóbakið þá
er kannski rétt að minnast á að Leifasjoppa
í Iðufelli er með ódýrasta tóbakið.
Hugsanlega á sama verði og Hraunberg, þar sem Hraunberg
var með dýrara tóbak og lækkuðu sig einhvern
tíma til að verða jafnir Leifasjoppu.
HT
(Nb. Þetta er rétt. Ég
ruglaðist á Hraunbergssjoppu og Leifa. Það mun vera
Leifi sem er leiðandi á ódýrum sígarettum
og er hann beðinn afsöknar á mistökunum – þetta
er hneyksli! Listanum hefur verið breytt þar að lútandi.
Sem sé, ef þér viljið svæla gat á
þín lungu á sem ódýrastan hátt
ferðu til LEIFA!!!)
(ATH; Af gefnu tilefni og þar sem fullyrt
er að Leifa sjoppa í Breiðholti sé með
ódýrasta tóbakið í Reykjavík vil
ég leiðrétta það hér með. Ódýrasta
tóbakið er í söluturninum Sunnutorgi á Langholtsvegi
60, þar kostar kartonið 5400 kr en ekki 5600 eins og hjá
Leifa. Stakir pakkar kosta svo frá 570 til 590 stk. Rétt
skal vera rétt. Verð hjá N-1 og fleirum er komið
vel yfir 600 kallinn svo hér munar all nokkru.
Pétur K.)
#1228 Þú
segir Santa María vera til fyrirmyndar og það er
örugglega rétt ef krónur og aurar eru eina viðmiðið.
Hinsvegar leist mér ekki á blikuna eina skiptið sem ég
borðaði þar. Burritoinn var vondur með ógeðslegri
brúnni sósu en misjafn er manna smekkur og allt það
og við hverju býst maður á ódýrum veitingastað.
Okkur brá þó verulega í brún þegar
við ætluðum að fá okkur vatn en staðurinn
er með borð á miðju gólfinu þar sem gestir
geta sótt sér vatn. Þar var dúkur á borðinu
eða það héldum við þar til við tókum
eftir kunnuglegu bláu logoi sem á stóð "Eign Þvottahúss
Spítalanna". Þannig áklæði viljum við
ekki hafa nálægt matnum okkar nema við séum á
spítala og hófust umræður um hvaða kokkur hefði
haft hvaða sjúkdóm til að eignast svona áklæði.
Maður á ekki alveg að láta
bjóða sér hvað sem er þó að það
sé ódýrt. Við erum enn með klígjuna
í hálsinum eftir þessa heimsókn. Okkar sparnaðarráð
er að borða sjaldnar úti og njóta þess mun
meira þegar það er gert.
Daði
(ATH: Ég er annar eigandi veitingastaðarins
Santa María og mig langar að fá að svara honum Daða
sem sendi þér okurdæmi #1228. Mér þykir
ofboðslega leitt að heyra hvað hann var óánægður
með heimsóknina til okkar. Auðvitað er smekkur fólks
misjafn og það sem einum þykir gott þykir öðrum
vont. Sósan á búrrítóunum er þó
ekki brún heldur rauð, ætli þetta brúna hafi
ekki verið baunir, en hvað um það. Ég get þó
ekki alveg tekið því þegjandi að hann tengi
saman lágt verð og slæman mat, enda notum við ekkert
nema gott hráefni, allt ferskt og fyrsta flokks. Það að
verðin eru lág tengist frekar því að við
erum að reyna að vera sanngjörn með því að
láta fólk ekki borga mikið meira en varan og þjónustan
kostar okkur.
Í sambandi við dúkinn góða
þá er hann reyndar löngu horfinn en dagaði þarna
uppi fyrir einhvern misskilning. Kokkarnir okkar eru við hestaheilsu
og mér þykir sárt að sjá Daða gefa í
skyn að eitthvað ógeðslegt gangi á í eldhúsinu.
Þar sem starfsfólkið okkar er flest erlent skildi enginn
áletrunina á dúknum (sem slæddist þangað
inn ásamt tandurhreinum þvotti frá hótelinu),
en um leið og ég sá
blessaðan dúkinn var hann látinn
fjúka. Ég vona að Daði hafi geð í sér
að koma einhverntíman til okkar aftur með opnum huga og
við munum gera okkar besta, eins og alltaf, til að hann fari kátur
heim í það skiptið.
María Hjálmtýsdóttir)
#1227 Langar
til þess að koma með smásnuðfrétt.
Þannig var að ég opnaði
dós af niðursoðnum sveppum frá ORA, en ORA er í
miklu uppáhaldi hjá mér. Mig rekur í rogastans
þegar dósarskömmin opnast en þar neðst í
botni dósarinnar liggja örfáir sveppir en restin var
bara vatn. (sjá mynd).
Ég er búinn að vera í
dálitlu áfalli vegna þessa, því vinir
mínir hjá ORA hafa aldrei svikið mig og ég hef
keypt og borðað ORA grænar baunir og annað frá
þeim síðan ég man eftir mér.
Ég ætla að fyrirgefa þeim
þetta núna ef þetta kemur ekki fyrir aftur.
Kristján Blöndal
#1226 / #1226
Veit ekki hvort þetta hafi komið fram áður, en Mojito
á Apótekinu 1.700
krónur. Sanngjarnt og gott verð! :-)
Vissi ekki af því að
heimsmarkaðsverð á myntu væri
að sliga barina í Rvík svona rosalega.
Keypti mér Canon EOS 1000D í Beco
í vikunni sem leið + 18mm-55m linsu og
55mm-250mm linsu og svo 2GB minniskort = 137.100
kr (fæ það ekki ódýrara
hér í CPH), síðan fékk
ég Tax-free 20.500 ISK þannað að lokaverð 116.600
ISK. Í fríhafnarverslun ELKÓ
kostar bara vélin 74.900, litla linsan
59.900 en ekki fékkst verðið í
stærri linsunu...er örugglega þó um 49.900,
þá um 185.000 og það vaskfrítt!?
Leifsstöð er orðin að verslunarmiðstöð
eins og Kastrup.
Vil svo að lokum benda doktornum á,
í kjölfar Silfursins í dag, að
verslanir hér í Kaupmannahöfn
eru svona tveimur klössum verri en finnst á
Íslandi. T.d. Krónuverslunin
á Smáratorgi er gull af búð samaborið við
gæðamatvörubúðir hér
í Köben (SuperBest t.d.). Vöruúrvalið verra
og verð
fer hækkandi, samt þó ódýrara
en á Skerinu; þá sérstaklega kjúkling-
og
svínakjöt, grænmeti og áfengi.
Farðu í Fakta, Rema1000 eða Netto næst
þegar þú heimsækir Danmörku,
þá færðu sjokk.
Vegna þess hve gengið er hagstætt
ferðaglöðum Íslendingum þessa stundina,
þá kostar 300 gr. nautalund á
Hereford Beufstow við Tívolíið um 6.000 ISK
í dag. Góður matur, en orðinn
ansi dýr fyrir fólk með tekjur í ISK.
Guðmundur Björn Eyþórsson,
Danmörku
(Nb. Ég er ekki haldinn þeirri
ranghugmynd að halda að Danmörk sé einhver paradís
og búðir þar eru ekkert spes, alveg satt.)
#1225
Þannig er að ég keypti mér leðursófasett
3+2+1 hjá versluninni Öndvegi fyrir 4 árum síðan.
Ég skoðaði sófasett víða en ákvað
að eiga viðskipti við Öndvegi vegna þess að
mér leist vel á sófasettið og að ég
hafði þær hugmyndir um þá verslun að hún
seldi vönduð húsgögn. Sófasettið kostaði
204 þúsund krónur árið 2004. Ég taldi
mig vera að kaupa sófasett sem myndi duga næstu
10 til 20 árin.
Sófasettið var notað sem sparisett,
í stofu sem einungis er notuð þegar gestir koma eða
á jólum og afmælum, sem sagt lítil notkun á
sófasettinu. Settið var þrifið og borið á
það eftir leiðbeiningum frá versluninni Öndvegi
sem seldi okkur settið. 2-3 árum eftir að ég
keypti settið fór að bera á litamun á því,
sem jókst jafnt og þétt og lítur út fyrir
að liturinn sé að fara af sófasettinu. Nú
er svo komið að sófasettið er orðið verulega
ljótt, koníaksbrúni liturinn farinn af á mörgum
stöðum á settinu og skín í appelsínugulan
undirlit.
Við höfðum samband við Heima/Öndvegi,
en þeir vildu ekkert gera fyrir okkur þar sem liðin voru
meira en 2 ár frá kaupunum. Þá lögðum
við málið fyrir Kærunefnd lausafjár- og þjónustukaupa
og bárum við ákvæði um 5 ára kvörtunarfrest
þegar um er að ræða vöru sem ætlað er
að hafi langan líftíma eins og leðursófasett.
Sjá hérna
2003
nr. 48 20. mars, grein nr. 27.
Niðurstaða Kærunefndarinnar var
okkur í hag, þeir telja sófasettið gallað og
falli undir þau lög sem ég vísa í hér
að ofan. Þeir komast að þeirri niðurstöðu
að Heima/Öndvegi skuli veita okkur afslátt að upphæð
90 þúsund krónur vegna gallans í sófasettinu.
Heima/Öndvegi hafa ákveðið
að una ekki úrskurði Kærunefndarinnar. Nú sitjum
við uppi með 4 ára ónýtt leðursófasett
frá versluninni Heima/Öndvegi. Mig langar að vara lesendur
við að eiga viðskipti við verslunina Heima/Öndvegi,
þeir telja sjálfir í álitsgerð sinni að
líftími húsgagnanna sem þeir selja sé
skemmri en 10 ár. Ég sem hélt að verslunin seldi
eingöngu vönduð húsgögn en nú veit ég
betur.
Arndís
#1224
Fyrir um mánuði síðan keypti ég grill,
kennt við George Foreman, í MAX
raftækjum í Garðabæ.
Þessi verslun stærir sig af lágu verði og segir
orðrétt á heimasíðu
hennar: ,,Bjóðum ávallt besta verð á markaðnum!".
Fyrir grillið greiddi ég tæpar
9 þúsund krónur. Daginn eftir var ég við
matarinnkaup í Fjarðarkaupum í
Hafnarfirði og sá þá í hillu nákvæmlega
eins grill á tæpar 8 þúsund
krónur! Ég ætla aldrei aftur inn í MAX
raftæki, heldur beina viðskiptum mínum
annað. Fyrir utan hátt verð þá
fékk ég lélega þjónustu;
það vantaði verðmerkingar í hillum og
starfsfólkið hafði lítinn
áhuga á að aðstoða mig við kaupin.
Guðmundur B. Ingvarsson
#1223
Ég er á þeirri skoðun að höfum meiri öll
völdin í okkar hendi ef við stöndum saman og gegn
ófétum í viðskiptum. Bílaverkstæði
Láka á Sauðárkróki er farinn á
hausinn vegna þess að þeir héldu að fólk
væri fífl. Mamma fór með bílinn minn til
þeirra vegna framhjólalegu, hún var með bílinn
í láni því ég var á sjó.
Þeir sögðu að það kostaði 12Þ +
varahluti um 6Þ samtals 18Þ. Þegar hún sótti
bílinn voru þeir búnir að skipta um leguna, bremsuklossa,
bremsuslöngur, drif gúmmíhosur báðum megin
að framan, rúðuþurkublöð og framljósperu,
reiknigur samtals 90Þ. Mamma greyið fór í algjört
rusl og viðhorfið þeirra var að eigendum bílanna
kæmi ekki við hvað þeir gerðu fyrir bílanna
og ef fólk mótmælti og neita borga, þá
var því hótað Intrum eða verra (lögfræðing).
Svona viðskipti gengu í smátíma og fólk
fór ekki með bílinn til þeirra nema einu sinni.
Ég keypti 1/2L COKELIGHT í Olís
á Selfossi 200kr, ég kváði og svar starfsmannsins
var "hey það er kreppa". Ég fer aldrei þangað
inn aftur.
Unnþór
#1222
ÞETTA KALLA ÉG OKUR:
1. Það kostar 120 kr. að bæta
smá fetaosti á matinn sinn (sem er ekki ódýr
fyrir) á SERRANOS
2. Það kostar 17,900 að fara í
klippingu og litun á TONY AND GUY (sbr. 92 evrur í
Hollandi á sömu stofu).
3. Tyggjópakki með 6stk. kostar 110
krónur á BSÍ.
4. KAFFITÁRS KAFFI i pokum kostar allt
að 700 krónur í Melabúðinni.
5. KÓK / KRISTALL eða hvaða hálfslíters
drykkur kostar 195 krónur í 10 / 11.
HÆTTUM ÖLL SEM EIN AÐ VERSLA VIÐ
10 / 11 BÚÐIRNAR!
Vigdís Jónsdóttir
#1221
Ég var að æfa í Hreyfingu fyrir nokkrum
árum og ætlaði að kaupa árskort,
en mér var bent á það
að ég gæti líka gert svona samning þar sem
væri
dregið af reikningnum mínum mánaðarlega.
Þannig að ég gerð árssamning. Ég
man það 100%, að þetta var
árssamingur. Síðan leið árið en þau
héldu áfram
að draga af mér 3000 kall (minnir
það) mánaðarlega.
Ég hafði samband og sagði þeim
að það áttu sér stað mistök,
þau gleymdu
að taka mig út úr kerfinu og
ég bað þau vinsamlegast að greiða mér þennan
13. mánuð til baka.
NEI! Enginn mistök, ég þurfti
sjálfur að segja upp árssamingnum, takk fyrir.
Af hverju í óskupunum að kalla
þetta fyrir árssamning ef maður þarf hvort
sem er að segja þessu upp. Þetta
var svona endalaus árssamningur. Frábær
hugmynd.
Sævar.
(Sett inn 21.09.08): í tilefni af
eins árs afmæli Okursíðunnar:
Topp 10 - Vondu gæjarnir!
1. 10/11 (og aðrar klukkubúðir) = Okur!
Lausn: Ekki koma þér í þá aðstöðu
að þurfa að versla í þessum búðum.
2. Lyfja, Lyf & heilsa, o.fl apótek = Okur!
Lausn: Lyfjaver er ódýrarara apótek og e.t.v.
einhver fleiri.
3. Byko og Húsasmiðjan = Okur!
Lausn: Múrbúðin og Vörulagerinn hafa fengið
jákvæða umsögn. Svo kemur Bauhaus og rústar
þessu (skulum við vona).
4. Icelandair = Okur, skrýtnir prísar, dýrt
að gera mistök.
Lausn: Iceland Express er ekkert endilega skárra og það
getur líka jafnað sig út að þurfa að koma
sér í bæinn frá þeim útnáraflugvöllum
sem þeir fljúga til. Þessi tvö fyrirtæki
hafa mann "á eistunum" ef maður vill sleppa um stund af skerinu
og því um að gera að ákveða með löngum
fyrirvara að ferðast. Stökkva skal á tilboð og
gera samanburð. Og náttúrlega vanda sig óskaplega
þegar maður pantar á netinu því þar
geta mistök orðið dýr.
5. Leifsstöð = Okur, ekki ódýrara en í
bænum / Dýr kaffitería
Lausn: Bús og sígó er a.m.k. helmingi ódýrarara,
nammi ca. 15% (segja þeir), snyrtivörur eitthvað aðeins,
en annað er á svipuðum prís. Sértu að
spá í að kaupa eitthvað dýrt er betra að
bera saman og hringja á undan sér. / Taktu mér þér
nesti?
6. Apple á Íslandi = Okur!
Lausn: Láta einhvern kaupa fyrir þig í útlöndum
(varla samt hagstætt með genginu núna) / fá þér
PC.
7. Krónan = Ekki sú lágvöruverslun sem
hún gerir sig út fyrir að vera.
Lausn: Bónus.
8. Te & kaffi / Kaffitár = Okur á kaffi og sérstaklega
samlokum og öðrum mat.
Lausn: Ekki éta þarna!
9. Sambíóin = Okur!
Lausn: Regnboginn er með kreppubíó. Svo má
poppa í potti og horfa á gamla spólu!.
10. BT = Okur!
Lausn: Elko virðist í flestum tilfellum vera ódýrari.
Bubblandi og kraumandi undir: Jói Fel, Eymundsson, Tekk kompaní,
olíufélögin og símafyrirtækin! Svo ekki
sé minnst á BANKANA!!!!!!
Topp 10 - Góðu gæjarnir!
1. Santa María, Laugavegi
Allt á matseðli undir 1000 kall. Meðvitaðir eigendur
með samfélagslega ábyrgð.
2. Lyfjaver
Ódýrasta apótek landsins.
3. Dússa-bar á Borgarnesi!
Dússi hefur ekki séð ástæðu til
að hækka hjá sér matseðilinn frá því
í ágúst 2007! (a.m.k. hafði hann það
ekki þann 18.07.08)
4. Tjöruhúsið á Ísafirði
Ekki bara ódýrt heldur hrikalega gott. Lokað á
veturna.
5. Símabær
Eins manns operasjón og ekkert okur.
6. Leifi
Leifasjoppa, Iðufelli 14 – Ódýrasta tóbakið!
7. Ikea
Sænska kaupfélagið er að standa sig. Svo má
líka eta þar með allra fjölskyldunni á undir
2000 kall.
8. Tölvuvirkni
Hafa komið vel út í samanburði.
9. Fiskbúðin Hafberg, Gnoðavogi 44
Meðvitað starfsfólk (Sjá #1160).
10. Bónus
Eru skástir, en er það nóg? Væri ekki
betra að fá alvöru samkeppni í matvælin? Smá
hjálp að utan kannski? Svona Bauhaus-hjálp? Ætli
nokkur nenni því.
Bubblandi og kraumandi undir: Bernhöftsbakarí, Asía,
22, Vaka, Hárhorn Torfa rakara!
---
#1220
Laugardaginn 20.september rétt fyrir kl. 5 verslaði ég
í Spar-búðinni
í Bæjarlind í Kópavogi.
Ég hvet fólk til að skoða
strimlana áður en búðin er yfirgefin.
Ég lít svo á að eigendur
verslunarinnar láti ekki starfsfólkið vita að
það eigi að ganga frá körfum,
og vera kurteist við kúnnana. Þess vegna
mun hvorki ég né fjölskylda
mín versla oftar í þessari búð.
Og vel á minnst, þessi búð
er rándýr.
500 gr skyrdós kr.149 í Spar
117 í Bónus
Ég kom með hjólakörfuna
að kassa í dag þar sem sat unglingsdrengur sem
var að lesa blað. Ég þurfti
að ýta frá 2 körfum til að komast að
bandinu og í rennunni var fyrir ein hjólakarfa
þannig að
fyrirsjáanlegt var að ég þyrfti
að taka til eftir fyrri kúnna ef ég
ætlaði að komast út.
Ég sagði við drenginn að það
væri erfitt að komast að bandinu vegna
uppsafnaðra kerra, hvort það væri
ekki í hans verkahring að setja
körfur á sinn stað og hann svaraði
mér með skætingi og sagði: ef
kúnnarnir myndu ganga frá eftir
sig þá væri þetta ekki svona. Hann
gerði sig ekki líklegan til að
ganga frá körfunum og ég sagði að þetta
héti léleg þjónusta
að ég þyrfti að ganga frá eftir aðra kúnna
ef ég
ætlaði að komast mína leið.
Þá svaraði hann með skætingi eitthvað á
þessa leið: eigðu það
við sjálfa þig. Eitthvað fleira fór okkur á
milli, ég trúði þessu
varla, að hann ætlaðist til að ég lagaði til
eftir aðra viðskiptavini.
Ég fór með mína körfu
á sinn stað og þurfti að ýta frá enn
fleiri
körfum til að komast að körfuröðinni.
Svo leitaði ég að yfirmanni,
fann annan dreng í kjötinu og sagði
honum frá þessu.
Í þessari búð afgreiða
eingöngu unglingar ca. 14-16 ára og þegar ég
kom heim sá ég að ég
hafði verið látin greiða fyrir Morgunblaðið
kr.
200 sem ég hafði ekki beðið
um né fengið. Ég fór aftur til að fá
þetta
leiðrétt og drengurinn í kjötinu
sagði mér að þetta hefði ekki verið
eins og ég hefði sagt, því
hann hefði talað við drenginn sem sagði
allt aðra sögu. Svo hér stend
ég, miðaldra lygalaupur og ætla ekki að
versla þarna oftar. Eldri drengurinn hefði
vel getað beðið mig
afsökunar en líklega hefur enginn
kennt honum það.
Margrét
#1219
Langar að koma með ábendingu um okur. Var að leita mér
að svona
æfingabolta sem er hægt að
nota í joga, leikfimi ofl. Hægt að kaupa
svona bolta í ýmsum íþróttabúðum,
s.s. Hreysti og kosta þeir milli 5-6
þúsund. http://www.hreysti.is/?category=93.
Svo er einnig hægt að kaupa sambærilega
bolta á femin.is og
modurast.is. Nema hvað þeir boltar
eru með myndum á ásamt litlu
statífi. Mig langaði mest í
svona bolta með mynd af froski á frekar en
þessa einlitu sem fást í
Hreysti. Boltinn kostar 10.890 á femin.is :
http://www.femin.is/shop_products.asp?id=5539.
Nákvæmlega sami bolti er meira en
5 þúsund krónum ódýrari í Móðurást
og þar er hægt að kaupa boltann
á netinu eða í búðinni a sama verði,
kr. 5.580,
http://www.modurast.is/item_detail.asp?product_id=498925&VT=614
Það skal tekið fram að afgreiðslukonan
í Móðurást vissi af þessum
verðmun og taldi ekki ástæðu
til að hækka verðið.
Hrund
(ATH: Bolti í setti með dýnu
og teygju kostar 2990 krónur í Europris.)
(Sett inn 20.09.08):
#1218
Ég fór til útlanda í sumar og þar sem
ég hef hvorki verið mikið í sólarlandaferðum
né í sundi almennt þá vantaði mig sárlega
bikiní eða tankíni eins og þetta dæmi
með buxum og heilum toppi heitir víst og þar sem ég
hef ekki mikla þolinmæði í búðarráp
þá ákvað ég að byrja bara á því
að fara í Sigurbogann á Laugaveginum og fékk þar
fína þjónustu og fann mér sundföt eftir
aðeins 10mínútur inni í búðinni og
mér skyldist það á merkinum í búðinni
að það væri útsala í gangi allavega var
frekar lítið af vörum eftir þarna, en allavega var
ég rukku litlar 18.000kr fyrir sundfötin sem mér fannst
auðvitað hreint rán en þar sem ég nennti ekki
að leita lengur og þetta passaði mér mjög vel
þá ákvað ég að láta kyrrt liggja,
fór svo í Intersport stuttu seinna og sá þá
að buxur og svona heilir toppar kosta hátt í 16.000kr
þar svo ég var nokkuð sátt við kaupin, þangað
til að í dag þá fer ég í Eirberg
sem
er hjálpartækjamiðstöð uppi á Höfða,
þar sé ég nákvæmlega eins tankíni
og spyr um verð og þar er það á 6.500kr takk
kærlega fyrir, ég borgaði semsagt þrefalt verð
fyrir það. Hvernig er hægt að leggja þrefalt
á vöruna??
Illa farin...
(nb. Það er ekkert mál, sérstaklega
þegar einhver kaupir þetta á okurverðinu!)
#1217
Ég keypti flugmiða heim frá USA, er í Iowa,
þannig að ég þarf að
fljúga frá Cedar Rapids til NY.
Ég kemst ekki heim fyrr en 19.
desember vega lokaprófa í skólanum.
Þannig er að miðinn kostar (aðra
leið) um 27000 kr (þegar ég
keypti hann, núna kostar hann um 29000kr)
til 15. desember, en svo hækkar hann skyndilega
upp í u.þ.b. 47000 kr
16. desember (núna er hann kominn upp
í 50000 kr). Þarna er klárlega
verið að níðast á þeim
sem ráða ekki hvenær þeir komast heim, s.s.
stúdenturm, og þeir eru oftar en
ekki aflögu færir. Ég er viss um að
þetta verður til þess að
einhverjir hætta við að fara heim um jólin!
Ég skrifaði neytendastofu og þau
sögðu að þet væri algerlega löglegt.
Siðlaust, en löglegt.
Sigrún Vala Þorgrímsdóttir
#1216
Ég verð að spyrja að einu, hvers vegna er fyrirtækjum
með posa ekki skylt að tæma út úr honum
daglega? á föstudaginn fyrir viku keypti ég bensín
(óskemmtileg reynsla eitt og sér) hjá Shell við
Smáralind fyrir rétt rúmlega 4000 krónur og
borgaði með debet-korti. Svo veit ég ekki fyrr til en FIT
kostnaður er fallinn á mig vegna þess að þeir
tæmdu ekki posann sinn fyrr en á mánudeginum og ég
hafði greinilega eytt umfram efni yfir helgina, en kortinu ekki hafnað
vegna þess að bensínkaupin höfðu ekki verið
dregin af reikningi mínum. Á jákvæðari nótum
þá hringdi ég í bankann vegna FIT kostnaðarins,
sem ég fékk endurgreiddan vegna þess að ég
hef aldrei áður notað kortið mitt án þess
að innstæða væri fyrir því. SPRON í
Borgartúni fær því smá props fyrir að
endurgreiða mér kostnaðinn, en ég stóð
líka í þeirri trú að FIT væri ólöglegt
og Alþingi hefði staðfest það, hvers vegna er þetta
þá ennþá innheimt?
Bryndís
(ATH: Nú vann ég 3 ár sem vaktstjóri
og gerði þar að leiðandi upp. Þegar maður notaði
bæði kassakerfið og venjulegu posana þá var
alltaf sent inn við vaktaskipti.
Ísak Jóhannsson)
#1215
Vegna 1189 og 1190 (dýrt kók). Fór um Leifsstöð
um daginn og borgaði 260 fyrir 1/2 l. Diet kók! Allt
í þeirri flugstöð er helmingi of dýrt.
Eli
(Sett inn 19.09.08):
#1214
Mig langar að segja frá okri í BYKO, geri ráð
fyrir að þetta sé viljandi hjá þeim. Ég
var að kaupa í Byko á Akureyri net í körfuboltakörfu
og á hillunni stóð 281.kr en kassadaman stundi út
úr sér 749kr. Og ég sagði ha…það getur
ekki verið það stóð 281 á hillunni, nú
sagði kassadaman, horfði vondaufum augum í kringum sig,
stimplaði svo eitthvað í kassann, starði tómum
augum á mig og sagði svo” 281kr.” Ég fékk á
tilfinninguna að þetta hafi ekki verið fyrsta kvörtunin
en þvílíkt bull. Rúmlega 500kr. munur á
kassa og hillu…þetta er ekki í lagi.. Við átum
maðkað mjöl í mörg ár og erum enn að
því að sumu leyti.
Körfuboltakörfueigandi á Akureyri.
#1213
Fór í Debenhams að kaupa mér púður
frá Kanebo. Þar er mér tjáð að púðrið
sjálft með öskju (askan seld sér) kosti 6890 kr.
Nema hvað, þegar ég kem á kassan segir hún
"9580 krónur". Ég trúði henni varla og spurði
hvort púðrið kostaði nú nærri 10 þúsund.
Þá segir hún að askjan kosti víst 2690 kr.
Hún ruglaðist! Plast askja og púði á 2690
kr.?? OKUR! Eru ekki einhver lög um að ef þér er
gefið upp verð standi það?
Nafnlaus
#1212
Ég keypti glæra króka með lími aftaná,
nánar tiltekið Tesa Powerstrip, í Eymundsson Austurstræti
þann 18. september á 1.030 kr. Fannst það frekar
dýrt fyrir 8 litla króka en lét mig hafa það.
Síðan átti ég leið í Brynju sama dag
og rak þá augun í sömu vöru á 435
kr.! Þarf varla að taka það fram að ég gekk
rakleiðis aftur í Eymundsson og fékk þar endurgreitt.
Brynja er framúrskarandi verslun og hér með sannast það
enn og aftur.
Hjördís
#1211
Vantar tvífót undir riffil. Hlað selur Harris
fót á 8.900 kr, Sportbúðin (Veiðihornið)
selur á 10.880 kr en Ellingsen selur sama dótið
á 13.900 kr. Borgar sig að gera verðkönnun á
netinu.
AG
#1210
Apple á Íslandi:
Ragnar Freyr
(Nb. Líklega munu þeir kenna
um gengisþróun. Svo kemur lið eins og Davíð
Oddsson í sjónvarpið að bullar um að það
skipti engu hvort við séum með krónu eða eitthvað
annað. Einmitt. Hann ætti að reyna að segja krökkum
í námi erlendis það.)
(Sett inn 18.09.08):
#1209 Vil bara
benda á að eldsneytisverð á heimsmarkaði hefur
lækkað mjög
mikið undanfarið og er nú á sama verði
og það var í febrúar á þessu ári.
Í febrúar á þessu ári voru þessi
verð á sjálfsafgreiðslu dælum
Skeljungs:
bensín 137,9
dísil 142,4
í dag er verðið hins vegar:
bensín 165,7
dísil 179,6
Hvað er málið?
Hafliði
(nb. Gengishrun íslensku krónunnar er málið.
Í feb var 1$ = 65 kall, nú 1$ = 95 kall. Ég held satt
að segja að bensínið hækki bara ef eitthvað
er... Eins og allt annað!)
#1208
Mig langar að vekja athygli neytenda á einstaklega vönduðum
og hræódýrum barnahúsgögnum sem greint
er frá í heimilisdálki Fréttablaðsins s.l.
mánudag. Meðal annars er þarna að finna lítið
náttborð sem tilheyrir H.C.Andersen-húsgagnalínunni
og fæst í Tekk Company. Náttborðið
er með stórri útdreginni skúffu og kostar aðeins
37.700 krónur! Enn fremur hefur Tekk Company til sölu
vegghillu fyrir leikföng og bækur á ótrúlega
lágu verði eða 31.000 krónur! Rúsínan
í pylsuendanum er svo H.C. Andersen-bókahilla frá
sömu húsgagnaverslun þar sem hægt er að raða
bókum, leikföngum og körfum til skiptis. Bókahillan
er á þvílíku tombóluverði að
maður tekur hreinlega andköf. Aðeins 200.000 krónur!
Segi og skrifa: 200.000 krónur. Það hlýtur
að vera roksala í svona hundbillegum húsgögnum!
Tekk Company á hrós skilið fyrir að keyra verðið
niður í kreppunni til hagsbóta fyrir efnaminni fjölskyldur.
Gunnar.
(Nb. Góður Gunnar ;-))
#1207
Ég er mjög ósátt við að láta okra
á mér en lenti því miður í því
um daginn. Þá var ég að breyta í herbergi
dóttur minnar og keypti málningu og veggborða
hjá Slippfélaginu. Ok allt í lagi með það,
borga fyrir veggborðann 2.051 kr með vsk. Svo þegar búið
er að mála og byrjað er að setja upp veggborðann
kemur í ljós að hann er ekki nógu langur. Þar
sem það var sunnudagur og Slippfélagið lokað,
fer ég í Byko og finn þar alveg eins borða, fer
með hann á kassann og viti menn, þar kostar veggborðinn
ekki nema 1.244 kr með vsk!!! Það munar því
aðeins 807 krónum á sama hlutnum í þessum
tveimur verslunum!!! Þetta er náttúrulega ekki hægt
og búðir eiga ekki að leyfa sér að okra svona
hrikalega á viðskiptavinunum! Ef þið hafið áhuga
á að staðfesta þetta þá heitir veggborðinn
ZIZAZOU hjá Byko en ZIZAZOV hjá Slippfélaginu. Hann
er með myndum af litlum prinsessustelpum (ekki disney) og er 5 metrar
í báðum búðum:)
Ásdís
#1206
Ég legg það nú ekki í vana minn að vera
að kvarta, geri mér fulla grein fyrir að stundum er hinum
og þessum verðmerkingum, þjónusta o.fl ábótavant
á flestum stöðum. Hins vegar hefur mér verið
verulega ofboðið undanfarið í Krónunni
í Hafnarfirði (Hvaleyrarbraut held ég að gatan heiti).
Þannig er mál með vexti að
um daginn fór ég að versla og ég er yfirleitt
nokkuð meðvitaður um hvað ég er að borga fyrir
vörurnar. Ég keypti 2 hundabein um daginn og var 450 kr stykkið.
Hins vegar borgaði ég, skv kassakvittun, um 1100 kr fyrir þau
tvö. Ég leiddi þetta fram hjá mér þar
sem svona mistök geta oft átt sér stað.
Hins vegar var ég aftur nokkrum dögum
síðar að versla og verslaði þá barnapela.
Merkt verð í hillu var tæplega 400 kr en þegar ég
leit á kassakvittunina þegar ég kom heim þá
stóð 889 kr!!! Ekki ætla ég að fullyrða
hvort gengislækkun o.þ.h. hafi haft áhrif eða hvort
þetta sé einfaldlega vitlaust merkt eða hvað. En mér
var verulega misboðið. Eftir þetta fór ég að
fylgjast aðeins betur með og kom í ljós að það
er þó nokkuð um að vörur séu alls ekki
merktar og sömuleiðis eru verðin vitlaus. Mér þykir
þetta með öllu ólíðandi enda er ég
og mín fjölskylda að berjast í bökkum sem og
aðrir. Spurning að fara bara í Bónus?
Ragnar
#1205
Þegar Netið kvaddi dyra fann ég lítið
fyrirtæki sem hét Heimsmynd eða eitthvað álíka
og veitt þessa frábæru þjónustu. Litla
fyrirtækið stækkaði, varð að C-síma
og síðan Landsíma eða var það öfugt,
en það skiptir ekki máli því í hvert
skipti sem stærra fyrirtækið gleypti minna fyrirtækið
versnaði þjónustan. Sífellt var verið að
skipta um fólk og nýi maðurinn/konan var „reynslulausari“
en sú á undan.
Þegar allt var komið í hnút
færði ég mig yfir til „gamla“ TAL og var það
nokkuð gott í byrjun en síðan endurtók sagan
sig, stærra fyrirtæki, nýtt fólk, verri þjónusta.
Þegar reikningar þeirra voru orðnir tvöfaldir (þeir
tví-rukkuðu mig) og ég fékk loks leiðréttingu
flutti ég mig í skyndi yfir til „Gamla góða símans“
- en síminn var á þessum tíma að skipta
um eigendur og enn endurtók sagan sig.
Til að spara hætti ég að
nota .is-lén og losaði mig við allan þann kostnað
og okur sem því fylgdi og fékk mér .net lén
í staðinn sem kosatar mig tíu dollara á ári
og aðra tíu á mánuði fyrir vistun erlendis.
Enn fann ég lítið og gott fyrirtæki
sem hét HIVE og bauð þessa fínu þjónustu
á tölvusviðinu, síðan heimasíma og stóð
til að taka GSM símann líka. Þegar það
gerðist var nafninu breytt í TAL (aftur) og nú átti
allt að vera í þessu fína hjá sama aðilanum.
Til að gleðja viðskiptavinina var boðið upp á
ókeypis BÍÓKORT. Þú ferð á
Netið og skráir þig inn og... ALDREI kom kortið. Þegar
ég fór að grennslast um þetta hjá skrifstofunni,
því ekki er hægt að hringja í þessi
fyrirtæki, nema þú viljir bíða - „Þú
ert númer 12 í röðinni“ - kom í ljós
að ekki er um KORT að ræða þó alls staðar
sé talað um kort: að sýna kortið færðu
þetta og með kortinu leigir þú... o.s.frv.
því það er bara kennitala þín og GSM
númer sem er fært inn í gagnagrunn hjá vídeóleigunni.
Bara fara á næstu leigu, nefna kennitölu og sýna
skilríki og þú færð ókeypis bíó.
Nei, góði minn, þú verður að fara aftur
heim og skrá þig aftur á Netið. Þar sem ég
bý úti á Nesi og skrifstofa TALs er í Síðumúlanum
hefur þetta BÍÓKORT kostað mig töluvert í
bensíni og ef ég fæ einhvern tímann bíó
þá verður það ekki ókeypis og ekki út
á bíókort.
Ég er að svipast um eftir litlu símafyrirtæki
eða ætti ég kannski að stofna mitt eigið...?
Jón Axel Egilsson
(Nb. Ég held þetta sé
reynsla mjög margra. Síma/net-bisness á Íslandi
er í endalausri flækju og erfitt að vita hver er í
raun að bjóða besta dílinn.)
#1204
Ég þurfti að kaupa mér svokallað ,,límhanka"
um daginn þar sem það er vesen að negla í veggina
heima hjá mér. Ég kíkti í Griffil og
fann límhankana þar á tæplega 700kr en keypti
þá ekki þar sem betur fer. Leið mín lá
svo fyrir tilviljun inn í Verkfæralagerinn og þar
fann ég nákvæmlega eins hanka á 330kr!! Sem
segir allt sem segja þar.
Þessi búð hefur alveg farið
framhjá mér, en þvílíkt sem hún
er ódýrari. Skoðaði þar af leiðandi margt
þarna og það er allt rosalega hagstætt, þannig
fólk kíkið í Verkfæralagerinn!! Eins og
afgreiðslukona þar sagði NIÐUR MEÐ VERÐIÐ
:)
Erna
#1203
Ég var að lesa um hvað maður þarf að passa
sig við búðarkassa langar mig að segja frá hverju
ég og dóttir mín lentum í í Bónus
í Holtagörðum á laugardaginn 6/9´08. Við
skuppum í smá verslunarferð til að kaupa nokkra hluti
sem okkur vantaði og viti menn ég sá sokkabuxur sem ég
er ánægð með og kostuðu þær í
hillu 759- kr. dóttir mín keypti barna sokkabuxur og kostuðu
þær 299.-kr. og voru merktar svo á pakkningu. Við
kassa þegar átti að borg kostuðu mínar 998.-kr
og barnabuxurnar 499.- kr. Við fengum þetta jú lagfært
en ef við hefðum ekki verið vakandi yfir þessu þá
hefðum við borgað heldur of mikið fyrir þessar buxur
og þar sem við keyptum tvennt af hvoru þá var þetta
svolítill peningur.
Sigríður Þormar
#1202
Sólveig Sigurðardóttir í Söluturni Atlantsolíu
Kópavogsbraut 115 gerði verðkönnun 11. sept. 2008:
Olís
Atlantsolía, Kópavogsbraut 115
Mjöll hreinsibón
1079
640
Mjöll hraðbón
909
740
Mjöll Ultrabílabón
782
570
Sónax 250 ml
1062
850
Sónax 500 ml
1643
1120
Auto Glym Protec extra 1829
1270
Auto Glym Vinyl og
rubber care
1549
1215
Rainex
1084
860
Sám 2000 1.L
1179
790
Sám 2000 5.L
3932
2730
Hrollur rúðuvökvi 5,L
979
860
Þá hafði Sindri Bergmann samband
og vildi benda á ebay-klónvefinn sinn SELT.IS.
Þar er eflaust hægt að gera góð kaup og það
er alltaf að stækka úrvalið hjá honum.
(Nb. Það er ekki stefnan að
Okursíðan verði grundvöllur fyrir fólk að
auglýsa eigin fyrirtæki, og hér munu aldrei birtast
borgaðar auglýsingar.)
#1201
Fyrir nokkrum vikum eða mánuðum kom símsvari
hjá símanum þegar hringt var í 118.
Því miður eru allir þjónustufulltrúar
okkar uppteknir .os.frv. Síðan: afsakaðu biðina ,
ekkert gjald er tekið meðan beðið
er, þú getur fengið beint samband við númerið
sem þú biður um fyrir aðeins 3.krónur.!
Nú er þessi símsvari ekki
lengur við "störf" en þess í stað spyr starfsfólk
viltu beint samband eða númerið.
Ég spurði á dögunum hvað
beint samband kostaði, TUTTUGU KRÓNUR var svarið.
Ég býst við að margir haldi
að þjónustan kosti ennþá þrjár
krónur, enda eru þeir hjá símanum ekki að
segja frá þessari
gríðarlegu hækkun af fyrra bragði.
G.G.
#1200
Hæ, langar að tilkynna óeðlilega hækkun á
einum degi. Ætlaði að kaupa mér
Apple Mac Pro fartölvu og var verðið
á henni í gær 119.900 krónur í Elko
og 129.900 krónur í Mac búðinni.Í
dag þegar ég ætlaði svo að ganga frá
kaupunum hafði tölvan hækkað
um 10.000 krónur í báðum búðunum! Þegar
ég
spurði svo út í þetta
var mér sagt að forsvarsmenn Apple á Íslandi hefðu
ákveðið að hækka hana
svona mikið vegna uppsafnaðrar hækkunar á gengi og
þar sem engin hækkun hefði verið
í sumar hefði þetta verið nauðsynleg
hækkun. Ég verð að segja
að mér finnst þetta fullgróf hækkun á
einum
sólarhring og sagði ég verslunarstjóranum
að ég myndi mæta í búðina um
leið og dollarinn væri kominn niður
í 85 krónur og vænti þess þá að
tölvan
væri ódýrari (líkurnar
á því eru nú sjálfsagt ekki miklar).
Þess má til gamans geta að Mac
Pro kostar 1.999 dollara úti í búð í USA
og
miðað við að gengið sé
þetta hátt (c.a 92 krónur) þá kostar talvan
183.908
krónur íslenskar eða 46.000
krónum ódýrari en hér á landi. Er í
alvörunni
ekki til svigrúm til að ráða
við hækkun á dollara þegar verðmunurinn er út
í hött fyrir???
Þessi hækkun er einmitt að gerast
á sama tíma og nýja búðin þeirra
er að
opna í Kringlunni. Kannski Apple
á Íslandi hefði átt að láta sér
nægja
íburðaminni verslun í Kringlunni
og reyna að halda vöruverði frekar niður?
Ég er allavega mjög óánægð
með þetta og vildi gjarnan koma því á framfæri
hérna.
Ungfrú nafnlaus
(ATH: Eftir að ég sá dæmi
#1200 fór ég á apple.is til að athuga hvað
tölvan sem ég er búin að vera pæla í
að kaupa en það er ódýrasta týpan af
MacBook Pro. Hér kemur það: Hún er búin
að hækka úr 229.990 í 269.990 kr.!!!)
#1199
Ég fór inn í Hverabakarí í dag
vegna þess að ég kaupi stundum hjá þeim
súrdeigsbrauð sem þau segjast baka á mánudögum
og fimmtudögum. Viti menn, þegar ég ætla
að fara að borga brauðið þá rek ég
augun í að búið er að skera brauðið í
sneiðar en það er venjulega gert daginn eftir, ef brauðin
sem bökuð voru þann dag seljast ekki öll. Nú
sem sagt það er fimmtudagur og ég er í þann
mund að greiða afgreiðslustúlkuni fyrir nýbakað
súrdeigsbrauðið en rek þá augun í að
það er búið að skera brauðið niður.
Er það ekki nýbakað spyr ég? Jú
en það er úr frosti segir afgreiðslustúlkan.
Já en þá er brauðið ekki nýbakað
segi ég, jú það var sett nýbakað
í frost segir afgreiðslustúlkan. Og ertu að
reyna að segja mér að þið seljið brauð
sem var bakað á mánudaginn og sett í frost sé
sellt á 400 krónur á fimmtudegi. Þá
segir konan við mig frekar frenjulega, þú
þarft ekki að kaupa brauðið frekar en þú
vilt... Ég kom ekki inn í bakaríið
til að kaupa mér gamalt brauð og gekk því út
brauðlaus.
Ingibjörg
(Sett inn 15.09.08):
#1198
Kannski ekki okur, en spurning um (ó)eðlilega viðskiptahætti:
Ég keypti laptopptölvu í
Hagkaupum í Smáralind fyrir rétt rúmlega ári
- Acer Aspire
Þetta er ágæt vél,
en það komu böggar í hana eins og gengur og gerist.
Þrátt fyrir tilraunir mínar
til að laga kerfisvillur, endaði hún í að hrynja
í morgun. Það lítur út fyrir að harði
diskurinn sé "fysiskt" í lagi, en að kerfisfælar
séu skemmdir. Ég er með veiruvarnir, e.t.v. aðeins
um of, því ólík veiruvarnakerfi gætu flækt
hvert annað.
Þetta eru málsatvik, en ekki það
sem skiptir máli.
Ég tel mig hafa þokkalega tölvukunnáttu
og myndi vilja "strauja" tölvuna sjálfur, en fattaði þá
að ég fékk engan kerfisdisk (Vista) með vélinni.
Það getur verið að þetta sé seljanda að
kenna, en það getur líka verið að þetta
sé hluti af einokunarstefnu Microsoft. Hvað um það,
ég er hundfúll yfir að þurfa að fara með
tölvu í viðgerð, sem ég hefði getað
straujað sjálfur. Nenni því tæplega, en velti
því aðeins fyrir mér að setja í staðinn
upp Ubuntu Linux og verða Microsoftfrír.
Einar G. Torfason
(ATH: Bara smá ábending, því
ég hef verið í sömu aðstæðum þegar
ég hef aðstoðað vini mina. Líklega hefur þetta
ekki baun með viðskiptahætti Hagkaups að gera, þeir
græða ekki baun á því að svíkja
þig um fylgihluti tölvunnar.
Margar tölvur í dag koma án
svona "physical" eða raunverlegs stýrikerfisdisks. Margar
koma með diskum sem heita "recovery disks", en á þeim
er stýrikerfið ásamt öllu sem var í tölvunni
þegar þú fékkst hana, stundum þarf maður
að brenna þá sjálfur með hjálparforriti
sem fylgir. Þegar þeir eru keyrðir inn, færðu
tölvuna uppsetta, "straujaða" eins og þú fékkst
hana út úr búðinni. Svo er einnig mjög
algengt að það sé búið að skipta harða
diskinum, á litlu svæði sem oft heitir "recovery" er allt
sem til þarf. Þá þarf maður bara að
kunna setja það í gang. Það er misjafnt
eftir tölvum og verður þú að bera þig eftir
þeim upplýsingum? Ef þú á?tt gögnin
sem fylgdu tölvunni, þá ætti það ekki
að vera vandamál.
Að skipta yfir úr Window í
Linux: Hægara sagt en gert ;)
Þórhallur Árnason)
(ATH2: Leyfið ásamt tegund MS Vista
ætti að vera límt á botn lappans.
Nóg að fá lánaðan
disk sömu tegundar og strauja svo sjálfur.
Það er leyfið sem skiptir neytandann
öllu máli, ekki miðillinn sem
í þessu tilfelli er einhver DVD
diskur, sem er verðlaus án þess.)
#1197
Hversu margir ætli geri sér grein fyrir eftirfarandi: Þegar
þú færð talhólf þegar þú
hringir í einhvern þá borgar þú upphafsgjald
kr. 15-25 kr. eftir símafélögum, þó
þú skellir á um leið og talhólfið
byrjar að "tala" og lesir ekkert inn.
Fæstir, ef nokkrir, sem ég spurt
segjast actually lesa inn á talhólf þegar þeir
fá þau í hausinn.
Sennilega af því að það
nenna fæstir að hlusta á boðin heldur sjá í
missed calls að einhver
hefur hringt og hringja einfaldlega tilbaka.
Ef viðskiptavinur sem er að fá
sér síma væri spurður; Ert þú til
í að fá þér talhólf, þú
þarft bara að borga alltaf þegar einhver kemst í
samband við talhólfið, þó hann noti það
ekki!? ; myndi sá viðskiptavinur segja já við því?
Samt sem áður borgum við þetta
öll með því að samþykkja að hafa talhólf,
fá svo reglulega talhólf allra hinna í hinna í
hausinn (eftir 4-5 hringingar) og skella strax á.
Ef reikna má með að þetta
komi fyrir GSM notendur með talhólf ekki nema 1 x að meðaltali
á dag eru tekjur símafélaganna lágmark (reiknum
með að helmingur þeirra sem eiga GSM síma séu
með talhólf) 100.000 x 365 x 15 = tæpar 550.000.000.-
krónur á ári fyrir þjónustu sem maðurinn
sem þú hringdir í samþykkti fyrir þína
hönd! Er það ekki alveg að lágmarki siðlaust
ef ekki ólöglegt? Ekki fer nein þjónusta fram
í þína þágu, í mesta lagi er þjónustan
í þágu þess aðila sem þú hringdir
í og hann ætti því að borga.
Ef hins vegar símafélögin
settu það upp þannig, býst ég við að
flestir myndu fatta að þeir væru að borga fullt af
peningum fyrir ekki neitt og segja nei takk.
Björn
(ATH: Okur #1197 fjallar um talhólf
og þann kostnað sem sá sem hringir borgar við það
eitt að hlusta á það. Í flestum símum
sem ég hef átt (bæði Nokia og Sony Ericson) er
möguleiki á að slökkva á talhólfinu.
Þannig forðast ég að fá skilaboð í
talhólfið og ef ég svara ekki hringir bara út.
Ég mæli með því.
Berglind Inga)
(Sett inn 14.09.08):
#1196
Ég var að leita hvar maður getur fengið ódýra
áprentalega DVD diska á netinu og jú ég fann
þá hjá Tölvuvirkni
á 1,960 kr. 25 stk í spindli. Og þeir voru dýrastir
hjá Tölvutek
á 3,490 kr 25 stk í spindli. Ég var líka að
leita að ákveðnum harðadisk á netinu Seagate
1TB/1000 GB 32mb og ég fann hann hjá Tölvuvirkni
á 16,860 kr. Og fann sama harðadisk hjá Tölvutek
á 21,900 kr það er algjört OKUR!
#1195
Mér hefur lengi fundist okur vera áberandi þegar okkur
Íslendingum er seldur bjór af krana. En fyrir slíkri
sölu er ekki löng hefð hér á landi, svo við
höfum sennilaga bara vanist því eins og öðru
okri.
Maður hefur stundum velt því
fyrir sér hver muni ganga fram fyrir skjöldu og selja kranabjór
á verulega lægra verði en hinir og taka kanski bara þar
með markaðinn.
Skilja okrarana eftir. Opna Bjórgarð
að erlendri fyrirmynd með umgjörð sem kostar ekki arm
and a leg. Enginn hefur nú þorað hingað til.
En svo komu þeir dagar að skyndilega
var hægt að selja stóran bjór á 500 krónur
í stað 850. Skotaverð!
En það gerðist ekki fyrr enn 3-4
þúsund Skotar gerðu sig heimakomna í miðbæ
Reykjavíkur
Mér er spurn, af hverju að gefa þeim
þennan 40% afslátt?
Er þetta viðskiptavit? Þessir
Skotar voru komir hingar hvort eð var. Hefðu þeir keypt minni
bjór ella? Ég held ekki. Enda bara hér í þrjá
daga.
Mér finnst að þeir veitingamenn
sem þetta gerðu og hældust um yfir rosalegri sölu
til Skotanna ættu að skammast sín.
Það hefði verið nær að
selja Skotum bjór á íslensku verði, þar
sem þeir voru nú komnir til Íslands og hefðu sennilega
keypt hann hvort eð var.
Svo hefði verið flott að bjóða
Íslendingum Skota-tilboðið góða, í eina
viku eða svo, 500 kall !
Því þeir eru jú kúnnarnir
sem halda þessum stöðum uppi hina 362 daga ársins.
Veitingamenn sem grobba sig í fjölmiðlum
af Skota-gróðanum ættu að huga að því.
Þeir eru hreinlega að sýna sínum
föstu viðskiptavinum dónaskap.
Annað mál, mælieiningar.
Ég drekk ekki bjór en hef tekið
eftir því að þegar fólk pantar hér
lítinn eða stóran af krana eru glösin kirfilega
merkt rastal merkingu, 33cl. eða 50cl.
Öðru máli gegnir þegar
pantað er glas af rauðvíni eða hvítvíni.
Þá er hægt að búast við öllum
stærðum og gerðum af glösum sem innihalda á bilinu
1 – 2 desilítra
Allt eftir stöðum og skapi starfsfólks
sýnist mér. Verðið er þó almennt
8-900 krónur þó að víninu sé dælt
úr kassa. Ekkert eðalvín þar. Það er
okur.
Af hverju eru ekki til hér ákveðnar
reglur og lögbundin glös fyrir vín í glasatali
? Og hvað sé verið að selja fólki. Þetta
þekkist hvergi í siðmenntuðum heimi.
Ingibjörg.
(ATH: I sambandi vid faerslu #1195 um hatt verd
fyrir kranabjor,
tha er Blásteinn i Árbænum
med bjor a krana a 500-550 kall allt arid
og hefur ekki haekkad i morg ar. Ekki verid ad
snuda mann thar.)
#1194
Mig langar að benda á að maður þarf að vera
vel meðvitaður um verð á vörum þegar maður
fer að verslar. Ég fór í Krónuna
og tók þar úr hillu morgunkorn Grandóla frá
Gæða fæði. 475 gr. Ég hætti við að
kaupa morgunkornið og fór í Nettó og fékk
eitt kíló á sama verði og ég hefði
borgað fyrir í Krónunni fyrir 1/2 kg. Í Bónus
og Nettó kostar 1 kg.innan við 500,-kr. Einnig keypti
ég í sumar í Krónunni skóáburð
sem er staukur. Hann kostað tæpar 800 kr. í Krónunni.
Ég fór og athugaði verðið i Hagkaup þar
kostaði sami staukur 357 kr. Samt er Hagkaup ekki þekkt fyrir
að vera ódýrastir. Það munaði meira en
100% á þessari vöru sem hún var dýrari
í Krónunni. Það eru fleiri vörur í
Krónunni sem eru mun dýrari en t.d. í Bónus.
Ég fór í Krónuna
og skilaði þessum skóáburði þar sem ég
var ekki farin að nota hann. Krónan setur mikla álagningu
á ýmsar vörur sem fólk tekur ekki eftir. Þar
af leiðandi er Krónan alls ekki lágvöruverslun.
Anna Kristjánsdóttir
#1193
Mig vantaði daglinsur og átti leið í Lyfju
í Lágmúla. Þar fást Dailies linsur
og
kosta 30 stk 3360 kr. og pakkarnir tveir sem mig vantaði 6720 kr. Það
þótti mér heldur dýrt enda versla ég
oftast í pro-optic og minntist þess ekki að hafa borgað
svona mikið. Svo ég brenndi í Skeifuna og í pro-optic
búðinni í hagkaup kostar sami pakkinn 2600 kr. Nema hvað,
það er tilboð á þreföldum pökkum sem
kostuðu 3275 kr... þannig að ég keypti 180 daglinsur
á 6450 kr. í staðinn fyrir að kaupa 60 stk á
6720 kr. í Lyfju.
Húrra fyrir þeim!!!!
Björk
(Sett inn 12.09.08):
#1192
Ég vil vekja athygli á villandi auglýsingu sem slær
ryki í augu okkar neytenda.
Ég heyrði auglýsingu frá
Þjóðleikhúsinu
í útvarpinu þar sem auglýst er að miðinni
í leikhúsið fyrir okkur sem erum yngri en 25 ára
kosti 1500 kr. Þar kemur einnig fram að þetta gildi á
allar sýningar, hvenær sem er.
Mér fannst þetta hljóma ágætis
"díll" og ætlaði að kaupa miða á sýninguna
sem nú er til sýnis, Ástin er diskó. - nema
hvað? Þá er mér sagt að tilboðið gildi
ekki á hana og ég ætti að borga 3500 kr á
sýninguna. Þvílíkt okur! Þau í
miðasölunni sögðu að tilboðið gilti ekki
á allar sýnignar. Þetta finnst mér fáránlegt.
Það kom ekkert fram um þetta í auglýsingunni
og út í hött að auglýsa svona núna
og svo gildir þetta ekki á einu sýningin sem leikhúsið
sýnir á sama tíma. Og sennilega er þessi sýningin
eina sýningin sem mínir jafnaldrar hafa einhvern áhuga
á að sjá í þessu leikhúsi, ekki langar
mig á Hart í bak (sem miðasölukonan bauð mér
að fara á fyrir 1500kall í október!). Fyrst
þetta er svona, þá á bara að segja það
í auglýsingunni. Ekki að draga mann niður í
miðasölu þar sem maður ætlar að kaupa miða
og hefur svo ekkert efni á að kaupa miða á sýninguna.
Sennilega halda þau að maður segi bara "skítt með
það" og kaupi miða á 3500 - en það hafa
bara ekki allir efni á því. Eða að maður
fari á sýningu sem enginn vill sjá (og borgi 1500kall
fyrir það). Mér finnst að það ætti
að vera ólöglegt að auglýsa svona vitlaust.
Mér finnst bara að það þurfi
að benda á svona bull.
Jón
#1191
Sonur minn, 21 árs, keypti notaðan bíl hjá Brimborg
seinna part árs þegar tilboð var í gangi. Tekið
var sérstaklega fram að það var búið að
skipta um tímareim. Í síðasta mánuði,
á leið heim úr vinnu, þá fór tímareimin.
Hann var miður sín, sá fram á fleiri hundruð
þúsund kostnað sem hann átti ekki fyrir.
Þar sem bílinn er enn í ábyrgð fór
hann samt í Brimborg til að athuga hvernig staðan hans væri.
Samtalið tók 5 mín. Bílinn var sóttur,
farið með hann á verkstæði í viðgerð
og hann fékk bíl til umráða á meðan.
Strákurinn hafði áhyggur af skemmdum sem koma þegar
tímareim fer og hvernig viðgerðakostnaðurinn mundi skiptast.
Nei, hann fær bílinn aftur í fullkomnu standi og án
kostnaðar. Hann er búinn að fá bílinn
og er í skýunum. Hann er staðráðinn í
að næsti bíl verður keyptur hjá Brimborg.
Elsa Jónsdóttir
(ATH: Langaði bara til að láta
vita af því að reynsla #1191 af Brimborg er ekkert einsdæmi
því ég hef lent í svipaðri þjónustu
hjá þeim (fékk að vísu ekki lánsbíl
á meðan) en þeir virðast taka vel á öllum
svona málum.)
#1190
Í öllu þessu verðbólgutali hef ég grun
um að ákveðnir aðilar nýti tækifærið
og hækki vörur sýnar umfram það sem eðlilegt
er.
Í flestum söluturnum kostar
núna 2L af Coke lihgt yfir 300 krónur og ekki óalgengt
að 2l flaskan kosti 340 kr. Í Bónus kostar flaskan 118
kr sem er rétt rúmur 1/3 af verðinu í söluturnunum.
Væri sumséð næstum hægt að fá þrjár
flöskur fyrir 340 kr í bónus. 2L flaskan í söluturnunum
er næstum 200% dýrari en í bónus. Kanski á
þetta sér eðlilegar skýringar en ég hef
lúmskan grun um að þarna sé okur á ferðinni.
Má í þessu sambandi einnig benda á að þegar
virðisaukaskatturinn á matvæli var lækkaður
hér í byrjun árs 2007 var hann mest lækkaður
á gosi og sælgæti.
Níels Árni Árnason
#1189 10/11
- HÆTTUM AÐ VERSLA ÞARNA.
Var ógeðslega þyrstur og neyddist
til að stoppa í 10/11 Hjallabrekku held ég að staðurinn
heiti (Orkan er á sama stað ) rétt áður en
maður kemur að Smáralind. Keypti 1/2 lítra af horkóla
og það kostaði 195 kr. - sama flaska 4 x stærri kostar
á bilinu 70 - 160 kr. í bónus, þ.a. verðið
er allt 10 x hærra þarna - takk fyrir. Alltaf er maður
að lenda í sama helv. kjaftæðinu.
Það er alveg sama hvað er keypt
þarna - helvítis okur. Eiginkonan mín bað
mig um að kaupa salatpoka um daginn og ég nennti ekki í
bónus, var staddur við hringtorgið áður en maður
ekur úr Hafnarfirði og á suðurnes. Sem sagt
keypti helv. pokann 100 gr. af salati kostuðu 499 sagði afgreiðslumaðurinn
eins og það væri sjálfsagt að greiða einn
rauðan Jón Sig sem var einu sinni 50.000 kr. gamlar.
Djöfull blöskraði mér þetta.
Ég legg til að við tökum
okkur til NEYTENDUR og hættum að versla þarna - .... Látum
loka sjoppunum og hætta að traðka á okkur. Öryggisverðirnir
sem afgreiða þarna geta farið að vinna í bónus
því þar verður þá meira að gera.
Að lokum. Ég keypti parketlista
í Söginni í Kópavogi um daginn.
Ekki versla þarna því maðurinn sem á pleisið
fékk enga þjónustulund í vöggugjöf
og hló bæði að mér og konunni þegar við
gerðum athugasemd og skiluðum gallaðri vöru.
Kristján
#1188
Ég keypti í matinn í Krónunni á
Höfðabakka í gær og þegar ég renndi
yfir strimilinn á kassanum rak ég augun í að pakki
af 18 klósettpappírsrúllum sem venjulega hefur kostað
í kringum 300kallinn kostaði 619 krónur! Og þetta
var enginn sérstakur prinsessusilkipappír, heldur bara ósköp
venjulegur krónupappír. Valið stóð semsagt
milli þess að ganga um óskeind eða láta Krónuna
rí*a mér í ra**gatið.
Þar sem ég er með börn
á heimilinu þurfti ég að bíta í koddann
í þetta skiptið & vona að þetta tæki
fljótt af. En ég fer ekki aftur í Krónuna.
Svívirt húsmóðir.
(Sett inn 11.09.08):
#1187 Ég
vil vekja athygli á því hvernig Tal og Vodafone og
Síminn sem
eru ráðandi fyrirtæki á markaðnum hegða
sér gagnvart nýjum
samkeppnisaðila NOVA.
Þeir verðleggja hringingar frá sér í
NOVA á kr. 27 til 28 kr. mín.
NOVA verðleggur hringingar frá sér í Símann
og Vodafone, tal á 15 kr. mín.
Síminn, Tal og Vodafone verðleggja sín á milli
frá kr. 16 og max 23 kr. per mín.
Þarna eru ráðandi aðilar á markaðnum
að misnota gróflega aðstöðu sína.
Það er ekki meiri tilkostnaður að hringja í
NOVA úr öðrum kerfum.
Svo segist þetta lið alltaf fagna samkeppni, þvílíkt
BULL
"Staðreyndin er sú að það verður engin
góður í skák nema
hafa einhvern til að tefla við".
Ég mæli með því að fólk sem
er hjá VOÐAFONE, Tali og Símanum
flyti sig yfir í NOVA í mótmælaskyni hið
fyrsta, því aðeins þannig næst árangur
á þessu OKRI þeirra.
Pétur
(ATH: Hef smá athugasemd um okur nr 1187 um verðlagningu
á símtölum í NOVA úr öðrum kerfum.
Ég veit ekki betur en mínútuverð hjá Tali
sé það sama í öll farsímakerfi og eigi
því ekki skilið að vera talið upp með símanum
og Vodafone í þessu sambandi. Tek það fram
að ég tengist símamarkaðnum ekki á nokkurn
hátt, rak bara augun í þetta misræmi.
Steinar)
(ATH2: Vegna okurs #1187 - Þá rukkar Nova hærri
tengigjöld fyrir símtöl sem fara inn í þeirra
kerfi en hin símafyrirtækin, þannig að NOVA eru
fullkomlega ábyrgir fyrir að dýrara sé að
hringja í þá en önnur fyrirtæki. Ekki er
hægt að ætlast til að önnur fyrirtæki niðurgreiði
símtöl í Nova . Þeir rukka mas hin símafyrirtækin
mismikið í tengigjald...)
#1186 Mig langaði
að benda örlítið á okurmaskínuna sem
Félagsstofnun
Stúdenta
(FS) er. Þessi samtök, eða hvað þetta er,
eru svokölluð hagsmunasamtök
stúdenta. Mig langar þess vegna að líta örlítið
á verðlag í kaffistofum
stúdenta sem reknar eru af FS. FS segir á heimasíðu
sinni að "Meginmarkmið
Kaffistofa stúdenta er að stuðla að heilbrigðu
mataræði háskólastúdenta
með því að bjóða fjölbreytt og
gott vöruúrval á lágmarksverði."
(http://www.fs.is/kaffistofur)
Hafa skal í huga að FS er með einhverskonar einkarétt
á því að reka
veitingasölur í Háskólanum og því
með góðan aðgang að einum stærsta
vinnustað landsins. Svo er alllangt í næstu veitingasölur
frá flestum
húsum Háskóla Íslands, nema helst Hótel
Sögu.
Dæmi um verðlag:
500 mL baukur af Egils Malt í kaffistofum FS kr. 200. Í
Bónus kostar
baukurinn kr. 78 og í 10-11 kr 180. Maltið er því
156% dýrara í
kaffistofum FS en í Bónus.
Skyrdrykkur með mangó kostar kr. 175 i kaffisölu FS.
Í Bónus kostar sama
vara um kr 110 og í 10-11 á 154 kr.
Kók er aftur á móti ódýrara hjá
FS en í 10-11, á kr 175 á móti kr 195.
Meistaraverkið Háma bauð upp á fínan mat
í hádeginu fyrir nema og
starfsfólk skólans á kr 550 fyrir heita máltíð.
Þann 27. ágúst fengu nemar
póst þar sem auglýstur var stúdentaafsláttur
í hámu. Póstinn var sendur út þegar þessi
"afsláttur" tók gildi 28. ágúst og þýddi
100 kr hækkun á matarskammtinum. Eitthvað vegna breyttra
skattalaga eða bla bla bla. Grunnurinn er að máltíðin
hækkaði úr kr 550 í
kr 800. Stúdentar fá þá einhvern afslátt
ofan á það.
Ég tel mig geta haldið þónokkuð áfram
að benda á okur verð hjá þessari
samlokusjoppu sem FS er en læt hér staðar numið.
SG
#1185 Við
fjölskyldan ákváðum að skreppa á Pizza
Hut, við vitum svo sem að þetta er ekki ódýrasti
staðurinn en ákváðum að leyfa okkur þennan
munað.
Það gekk hinsvegar alveg fram af mér þegar ég
áttaði mig á því að goskannan
(1,7 ltr að þeir segja) kostaði 950 krónur. Persónulega
finnst mér þetta vera allt of dýrt.
Daníel
#1184 Var að
leita mér að fartölvu í gærkvöldi á
netinu. Skoðaði heimasíðu EJS til að sjá
Dell Inspiron-tölvurnar þeirra. Skoðaði svo síðuna
hjá þeim í morgun og þá er búið
að hækka allar tölvurnar (Dell Inspiron) þeirra um
25.000 kr. yfir línuna! 89.900 kr. tölva hækkaði
því um næstum 30% á einum degi!
Óskar nafnleyndar
(Sett inn 10.09.08):
#1183 Ég
hef oft keypt Bónus safa, appelsínu og epla, hjá
samnefndri verslunarkeðju. Alveg fram á þetta ár
kostaði 1 líters ferna 68 krónur, svo hrundi krónan
og safinn hækkaði í 88 krónur, allt í lagi
með það, er um 30% sem samsvarar um það bil því
sem krónan veiktist um og ekki vaxa epli eða appelsínur
á Íslandi þannig að hráefnið er innflutt.
Fyrr í sumar hækkaði svo líterinn í 98 krónur
og þegar ég fór í Bónus síðasta
föstudag (05.09.2008) stóð á hillumerkingunni að
líterinn kostaði 108 krónur! Það væri
gaman að vita hvað liggur að baki þessum viðbótarhækkunum.
Mér datt nú svona í hug að salan á
safanum hafi ekki minnkað eftir að verðið hækkaði
í 88 krónur og menn hafi því ákveðið
að hækka í 98 krónur, bara svona til að kanna
þolmörk neytenda og sjá hvort þeir haldi ekki bara
áfram að kaupa safann þó 10 krónur bætist
við. Svo hefur kannski komið í ljós að salan
minnkaði bara ekkert og því tilvalið að kanna
hvað gerðist ef öðrum tíkalli væri bætt
við verðið og því best að skella því
í 108 krónur.
Það er rétt að taka fram að ég hef
ekki keypt svo mikið sem einn líter af þessum safa eftir
að hann hækkaði í 88 krónur.
Kristján Kristjánsson
#1182
Ég og konan vorum í Krónunni í gær
og vorum að versla inn í ansi tóman ísskáp...
Ekkert er betra en góður ávaxtasafi
á morgnana og ákvað ég að kaupa mér
Happy
Day appelsínusafa í tilefni þess. Ísskápurinn
okkar er rúmgóður og gríp ég því
2lítra fernuna enda er það augljóst mál
að maður sparar á að kaupa stærri einingar.......
eða hvað... Ekki í þessu tilviki. Hér er mynd
af Happy Day djúsnum hlið við hlið
1Líter 149 krónur
2Lítrar 339 krónur eða 169,5
krónur lítrinn
ég segi OKUR!!!!
Hörður Ágústsson
#1181
Ég og börnin mín þrjú, 2ja, 6 ára
og 10 ára (ásamt einum 5 ára frænda) ákváðum
að skella okkur í BÍÓ um helgina – Bíóferðir
eru orðnar sjaldgæfur lúxus á þessum síðustu
og verstu enda þarf engan stærðfræðisnilling
til að reikna út að Bíóferð fyrir 5 manna
fjölskyldu er mun dýrari en einfaldlega að bíða
þolinmóður eftir að myndin komi á DVD ! En
nú var s.s. Ákveðið að fara í Bíó
með hersinguna og allir mjög spenntir enda byrjað að sýna
nýja mynd “Grísirnir Þrír” - samkvæmt
auglýsingu í dagblaði þá var ódýrast
að fara í 1-Bíó og ákveðið tilboð
í gangi þá – 650kr.- f. fullorðna en 550kr.- fyrir
börn, ógurlega löng röðin frá miðasölunni
rúmlega hálftíma fyrir sýningu sagði mér
að fleiri en ég höfðu ákveðið að
grípa þetta “kostaboð”.
Þegar loks kom að því
að greiða fyrir miðana kom í ljós að þetta
góða tilboð var ansi lpðið!! Samkvæmt skilgreiningu
Smárabíós á barnamiða gildir það
aðeins við um börn til 8 ára aldurs – eftir það
ertu s.s. gjaldgengur fullorðinn!! - 2ja ára barnið varð
að greiða fyrir sem fullvaxta barn enda byrjað að rukka
fyrir það frá og með 2ja ára afmælisdeginum
– og engin leið að rökræða að barnið tæki
nú ekki einu sinni sæti heldur vildi heldur hjúfra
sig í kjöltu mömmu sinnar.
Myndin var vægt sagt hrútleiðinleg
– söguþráðurinn enginn – en verst þótti
mér þá að hér var klárlega um lélega
DVD –mynd að ræða í ömurlegum hljóð-og
myndgæðum og lá við að auglýsingarnar í
hléi tækju lengri tíma en spilunartími myndarinnar.
Ég hætti hér en gæti örugglega skrifað
annað eins bréf um okrið í sjoppum Bíóhúsanna
en þar var greinilegt að “barna-box” tilboðin samastanda
af gömlu poppi síðan kvöldinu áður – lítilli
vatnsþynntri kók og hörðum gúmmíböngsum.
5 manna fjölskyldan er að hugsa frekar
um að spara sér rúman 3.000 kallinn (plús annað
eins í popp og kók) og kaupa sér bara góða
ræmu og poppa heima næst!
Þórhildur Laufey Sigurðardóttir
(ATH: ég hugsaði það
sama þegar ég fór á þetta í bíó
nema hvað ég hef ekkert slæmt um myndina að segja.
Hins vegar finnst manni alltaf að einhver hlæi að sér
þegar sýndar eru svona ódýrar dvd-útgáfur
í bíósölum. Það sem ég vil bæta
við er að alblóðugast er að þurfa að horfa
á ómerkilegar sjónvarpsauglýsingar í
10-15 mínútur eftir að sýningartími er
hafinn. Sömu helvítis sjónvarpsauglýsingar og
maður getur alla jafnan sleppt með því að skipta
um stöð. Þetta er s.s. það sem maður greiðir
fyrir. Það er í lagi að horfa á 3-5 auglýsingar
um bíómyndir eins og hefur tíðkast eins lengi
og maður man en hvað í fjáranum hafa börn sem
fara á Grísina 3 að gera með að horfa á
auglýsingar um tryggingar, tölvur og slíkt eða bara
auglýsingar yfir höfuð. Þetta eru börn sem hafa
bara ákveðinn athyglistíma í bíó
og þarna er vel gengið á hann, popp og kók búið
þegar loksins er ýtt á play.)
(Sett inn 09.09.08):
#1180
Ég sprakk úr hlátri þegar ég tók
utan af þessari "girnilegu" samloku og
gat ekki stillt mig um að taka mynd. Eins
og hér sést, þá fer ekki mikið
fyrir brakandi beikoni og djúsí
nachos-sósu. Þetta lítur eiginlega meira
út eins og brauð með bremsufari
ásamt skinku unninni úr vegabráð. Það
þarf
varla að taka það fram að þessi
verður send með pósti aftur í
verksmiðjuna.
Már Egilsson
#1179
Fór í Hagkaup um helgina og keypti 3 hluti, m.a. 1
rauða papríku. Nennti ekki að renna út á
Fiskislóð og vissi að það yrði okrað á
mér (en ég stýri því þó,
aðeins 3 hlutir keyptir). Papríkan kostaði 149 kr.,
já takk fyrir! Fór svo í Krónuna í
dag og keypti 1 rauða til þess einungis að bera saman
verð. Kostaði 37 kr. Ég veit að ekki
gengur að bera saman eppli og appelsínur. Hagkaup og Nóatún
eru okurbúllur.
Eitt í viðbót, starfa mjög
nálægt Maður lifandi í Borgartúni.
Vantaði mjólk í kaffið um daginn og þar sem
Maður lifandi er næst mér fór ég þangað
til þess að kaupa mér litla soja mjólk. Vissi
svo sem að ég mundi ekki fá venjulega mjólk og
allt í lagi með það. Ein svona ¼ l venjuleg
soja mjólk kostar 145 kr. Þetta fannst mér ótrúlegt
okur og slepti kaupunum. Þetta er lítra verð annars
staðar. Labbaði svo yfir í 10-11 sem er næst
við og ekki ódýrasti kosturinn í bænum og
kostaði sama soja mjólkin 69 kr. Maður lifandi
er okurbúlla dauðans.
Nafnleynd
#1178 Okkur í
fjölskyldunni datt í hug að skella okkur á landsleikinn
á miðvikudaginn Ísland – Skotland, ég fer inná
miði.is og brá í brún er ég sá miðaverðið.
Það kostar okkur fjögur 20.000.- krónur í
bestu sætin ,14.000.- kr í þau næstbestu, þetta
kalla ég okur.
NN
#1177
Hér er svosem ekki um okur að ræða, en varðar
neytendamál og ég læt það því
flakka. Fyrir einhverjum vikum síðan var ég staddur
á bensínstöð í Reykjavík. Sá
þar langloku frá Sóma og kíkti á
dagsetninguna svo að hún yrði sem ferskust. Og haldiði
ekki að ég hafi dottið í lukkupottinn - hún
var svo fersk að hún var framleidd daginn eftir!
Semsagt var framleiðsludagsetningin tilgreind sem næsti dagur
á eftir - dagur sem var ekki enn runninn upp.
JHO
#1176
Ég var í viðskiptum með netteingingu hjá
SKO. Keypti minnsta skammt á kr 1990 á mánuði.
Þjónustan var frábær og skammturinn dugði
fyrir mig (ellilífeyrisþegan) sem smánotanda.
Einn daginn, varð breyting á. SKO
var sameinað Tali. Mánaðargjaldið hækkað
upp í 2990 krónur. Þeir hjá Tali sögðu
skammtinn hafa verið aukinn um helming. Af hverju sem það
stafar virðist þetta vera allt tregara núna en það
var áður hjá SKO.
Þeir hjá Tali buðu tilboðspakka
(Síma, gsm og nettengingu) sem ég þáði.
Á fyrsta reikningum sem kom, samkvæmt
tilboðinu var rukkað fyrir leigu af nettengibúnaði kr190
mánaðargjald sem hvergi kemur fram í tilboðinu, ekki
heldur í auglýsingum á þessum tilboðspakka
frá Tali.
Ég hringdi á opnunartíma
í skrifstofusíma Tals og ætlaði að gera athugasemd
við þetta þar (vissi að reikningurinn var útfærður
þar). Náði ekki þangað inn en var allt í
einu kominn inn í símtalabiðröð þjónustuversins,
þar sögðust þeir svara öllum símtölum
sem þangað (á skrifstofuna) bærust en gátu
ekki gefið samband þangað, en varðandi kvörtunina,
bentu þeir á að leigugjaldið væri á heimasíðu
Tals undir liðnum önnur gjöld, þar undir ásamt
leigugjaldinu, eru ýmis gjöld vegna sérþjónustu
og breytinga sem óskað er eftir.
Þarna er eðlismunur á. Er rétt
að hafa svona fast gjald falið inn í sér þónustugjöldum?
ekki rukkaði SKO leigugjald af þessu tagi og veit ekki til að
hinir keppinautarnir geri það. Eru þetta eðlilegir
viðskiptahættir hjá Tali? Þjónar sameining
fyrirtækja á þennan hátt notendum?
Ellilífeyrisþegi
(Sett inn 06.09.08):
#1175
Keypti 100 ml fyrirtaks hvítlauksolíu frá ömmubakstri
í Bónus í gær á
129kr sá svo sömu vöru í
Nóatúni
í
dag á 415kr! Keypti einnig Tebollu á tilboði 98kr stk
en á kassanum kostaði hún 168kr.
Ég fékk verðið leiðrétt,
sama gerðist með kúnnann fyrir aftan mig í
röðinni en hann keypti rúnstykki
á tilboði sem ekki kom fram á kassanum!
Fljótgert að græða á
þessu og því miður týpiskt fyrir Nóatún.
Virðist gegnum gangandi að tilboðin
séu bara á hillu hjá þeim en ekki
þegar komið er á kassann.
Fyrr í ár keypti ég kex,
meter stórt skilti stóð við kexið 50% afsláttur.
þegar á kassann kom var engin afsláttur
því þetta var gamalt tilboð þeir
höfðu bara gleymt að taka niður
skiltið!!!
Eitt sinn keypti ég lax, en á kassanum
hét hann stórlúða, að sjálfsögðu
mun dýrari fiskur. það kemur
varla fyrir að maður þurfi ekki að leiðrétta
verðið hjá þeim. Þessi
reynsla á við Nóatún við Rofabæ.
Óskar nafnleyndar
#1174
Fór í Elko um daginn, og sá mér til
undrunar að heimabíókerfi sem ég hafði keypt
í febrúar/mars 2007 á 122.000
kr á tilboðsverði í Heimilstækjum kostaði
í dag 140.000 hjá Elko! Þannig að ég ákvað
að athuga hvað þetta tiltekna heimabíókerfi
kostaði hjá
heimilistækjum í dag... og viti
menn.... Núna er þetta heimabíókerfi auglýst
á TILBOÐI hjá Heimilistækjum 149.000, en fullt
verð sagðst 169.000. HVAÐ ER Í GANGI???
BTW: Raftæki eldast ótrúlega
hratt og því eðlilegra að þetta verð ætti
að vera mun lægra, sá einmitt fyrir nokkrum mánuðum
(ca 3) Elko auglýsa sömu tegund heimabíó kerfis
á 99.999
Nafnlaus
#1173
Tilboð 2 á Hamborgarabúllu Tómasar. Miðstærð
hamborgari + lítill franskar + lítill shake. Svo bætti
ég við bakon á borgarann og fékk bernessósu
með frönskunum. 1820 krónur.. OKUR! Venjulegt tilboðsverð
var 1490.. 330 krónur fyrir smá sósu og bakonsneið!!!
Pétur Ingi Egilsson
#1172
Ég var að koma úr verslunarferð fyrir hundana mína,
er með 5 hvolpa heima sem þurfa allt að naga og mér
fannst kjörið að finna eitthvað gúmmí og
fann þennan fína bolta, sem þó kostaði 680
krónur. Ég lét mig hafa það og keyrði
svo í Dýraríkið til að kaupa hvolpafóður.
Ákvað að skoða hvaða gúmmígripir væru
til sölu þar og heldurðu að ég hafi ekki fundið
nákvæmlega sama boltann á 2.011 krónur!
Ég gat ekki á mér setið og benti afgreiðslustúlkunni
pent á þetta, en hún svaraði mér ekki einu
sinni (enda ótrúlegt að hún sjái um verðlagninguna.
Mér finnst þó í lagi að láta vita
að maður fylgist með)..... Alla vega, mér finnst þetta
rosalegur munur og ég mun hugsa mig tvisvar um áður en
ég versla í Dýraríkinu aftur. Er þetta
ekki allt framleitt í Kína og kostar svona 10 krónur,
svo eru þessar búðir að græða á tá
og fingri.
Ásta Sól
#1171
Ég fór í 10/11 á Hjarðarhaganum
í vikunni. Fyrir framan mig í röðinni við kassann
var gamall maður. Sá ætlaði að kaupa eina jólaköku
og eina ferskju. Þegar drengurinn á kassanum sagði honum
hvað vörurnar ættu að kosta hváði gamli maðurinn,
enda ekki skrýtið. Drengurinn vigtaði ferskjuna aftur og
kom í ljós að ein ferskja kostaði 480 krónur...480
krónur! Kílóverðið var 1499 krónur,
ferskjan vóg 320 sem gera 480 krónur. Gamli maðurinn
skilaði ferskjunni. Síðar um daginn fór ég
í Krónuna, enda versla ég ekki við 10-11 nema
tilneydd. Þar var kílóverðið á ferskjum
399 krónur. Hvað er það sem réttlætir
þennan verðmun? Fólk áttar sig eflaust ekki á
því að kílóverðið sé svona
gífurlega hátt og eflaust hafa margir lent í því
að vera með 3 ferskjur í poka innan um hinar vörurnar
án þess að átta sig á því að
þær kosta 1500 krónur.
SV
(nb. Gamli maðurinn og ferskjan. Var það
ekki einhver bók eftir Hemmingway?)
(Ekki það að ég ætla
draga úr þeirri staðreynd að 10-11 er mesta okur sem
finnst þá efast ég um að drengurinn á kassanum
hafi haldið að þetta væri ferskja frekar en nektarína,
verðmunurinn á þessum tveimur er svakalegur. Hef verið
að vinna í 10-11 sjálfur og man alltaf þetta, kílóverð
á nektarínum 1499 kr. ...sem réttlætir ekkert,
en fannst vert að minnast á þetta.)
(Nb. Ég hringdi í Hagkaup og
fékk það uppgefið að bæði ferskja og
nektarína kostuðu 699 kall kílóið)
#1170
Keypti mér rúm í gegnum netverslun Rúmfatalagersins
á dögunum. Voða fínt Amerískt á 39.900
kr. Rúmfatalagerinn tók 2000 kr auka fyrir að koma því
á afgreiðslu Flytjanda í RVK. Við það
hækkar það í 41.000. Gott og vel. En hvað skyldi
nú kosta að fá þennan bálk austur á
Seyðisfjörð.: 20.216 kr. Heildarkostnaður 61.216.(Ég
þarf ekki að taka það fram að hjartað hætti
að slá um stund) . Ef þetta er ekki okur þá
veit ég ekki hvað okur er. Ég vil hvetja fólk
á landsbyggðinni til að kynna sér flutningskostnað
vel áður en það pantar sér eitthvað fínerí
að sunnan . Ég mun að minnsta kosti gera það.
Í upphafi skyldi endirinn skoða.
Anna Helgadóttir
(ATH: Sambandi við flutningskostnað
út á land þá hef ég heyrt frá
fólki þar að það borgi sig að biðja
um að vörurnar séu sendar með póstinum en ekki
bílum ( líka stóru hlutina) það muni það
miklu á gjaldskrá. Hef ekki skoðað þetta sjálf.
Jóna)
#1169
Ég var að fatta eitt pínu áhugavert. Ef þú
pantar ferð til útlanda með Icelandair, þá
eru fargjöldin mishá eftir dögum. Það borgar
sig í einhverjum tilfellum (ef ekki öllum) að kaupa ferðir
fram og til baka sitt í hvoru lagi. Ég keypti mér
ferð til Stokkhólms um daginn, sem hefði átt að
kosta 44.000 krónur en þar sem ég pantaði leiðirnar
sitt í hvoru lagi borgaði ég ekki nema 33.000. Það
munar um minna, ekki satt?
Sóley Tómasdóttir
(Sett inn 05.09.08):
#1168 Ég
fór í Bónus í Lóuhólum
í gær, 2.september, en þegar heim var komið sá
ég að
annar pakkinn af kjúklingamánum sem ég keypti
var útrunninn 1.sept. Ég fór með
pakkann og kvartaði og þvílík þjónusta
sem ég fékk! Ég rétti stúlkunni pakkann
og fór svo og náði í aðra matvöru
sem mig vantaði. Þegar ég kom að kössunum
voru langar biðraðir en þá birtist þessi
unga kona og bauð mér að koma á auðan
kassa og afgreiddi mig þar. Fyrir utan að láta mig
fá annan pakka af mánum gaf
hún mér heilan bakka af kjúklingabringum að
andvirði 2130kr sem sárabætur.
Þetta kalla ég frábær viðbrögð
vegna mistaka við að taka útrunnar vörur úr
hillum. Þessi kona er yfirleitt alltaf þegar ég
versla þarna svo ég geri ráð
fyrir því að hún sé verslunarstjóri,
ef ekki þá á hún það fyllilega skilið!!!
Takk fyrir mig!
Þórunn Austurbergi
#1167 Fór
í Nóatún í Smáralind í
vikunni til að kaupa cherry tómata. Í grænmetisdeildinni
voru þeir verðmerktir á 299 krónur. Þegar
ég fór svo yfir strimilinn sá ég að ég
hafði verið rukkuð um 599 krónur fyrir þá.
Ég fór þá aftur á kassann og bað
um að mismuninn endurgreiddann, þá kom í ljós
að boxið sem ég var með (sama tegund og öll hin
boxin) kostar 599 en það var eitt box frá öðrum
framleiðanda undir þeim og það kostar 299.
Ónefnd tómataæta
#1166 Ég
stoppa reglulega á Shell stöðinni við vesturlandsveg
(Höfða) og kaupi mér kruðerí á morgnana.
Kaupi reglulega hnetuvínarbrauðið þeirra –
sem nú hefur allt í einu hækkað úr 155kr
í 183kr á einu bretti!
(nb. Það hlýtur að vera vegna alþjóðlegu
hnetuvínarbrauðshækkunarinnar!)
#1165 Að gefnu
tilefni langar mig til að deila reynslu minni af hárgreiðslustofunni
Kompaníið
sem er í turninum í Kópavogi.
Í byrjun ágúst, 6. eða 7. ágúst,
fór ég þar í klippingu og litun. Ég hafði
aldrei farið þangað áður, ég ákvað
að fara þangað því daman sem hefur klippt hárið
mitt síðustu ár á annarri stofu var farin í
barneignarleyfi og taldi ég mig vera örugga að fara á
þessa stofu þar sem ég hafði heyrt að standardinn
væri hár þar, eða eins og segir á heimasíðu
þeirra „Fagmennska í fyrirrúmi“.
Ég er sjálf í barneignarleyfi og er með nokkra
vikna gamalt barn heima og var því búin að sjá
til þess að faðir barnsins hefði næga mjólk
heima svo ég gæti farið áhyggjulaus. Ég
hafði hugmyndir um að láta lýsa á mér
hárið og snyrta því við vorum að fara að
skíra barnið okkar og gifta okkur í leiðinni.
Á hárgreiðslustofunni tók á móti
mér hárgreiðslukona. Ég sagði henni frá
hugmyndum mínum, þ.e. að ég vildi láta snyrta
á mér hárið og lýsa en vildi alls engar
áberandi rendur. Einnig sagði ég henni frá skírninni
og giftingunni og barninu mínu sem var heima og hún skildi
svo vel hversu erfitt væri að fara frá svona litlum ungum
þar sem hún ætti nokkur sjálf og hversu mikilvægt
væri að líta vel út á svona stórri
stundu.
Hárið á mér var vel klippt og var ég
ánægð með það en aðra sögu er að
segja um litinn. Hárgreiðsludaman dekkti á mér
hárið og setti nokkrar ljósar mjög áberandi
strípur í það, hárið mitt varð s.s.
dekkra og röndótt. Ég sagði henni strax frá
því að mér fyndist hárið dökkt
og strípurnar of áberandi. Hún sagði mér
að þetta myndi jafna sig og að ég ætti að
hafa samband ef ég yrði ósátt.
Þegar ég kom heim var ég alveg miður mín
yfir þessu hrikalega hári og ekki nema rétt rúm
vika í stóra daginn. Ég hafði því
strax samband við hárgreiðsludömuna sem bauð mér
að koma daginn eftir. Ég greindi henni frá því
hversu erfitt það væri fyrir mig að fara svona frá
og ætti enga mjólk sem hægt væri að gefa barninu
meðan ég væri í burtu. Hún sagði að
þetta tæki bara eina klst. þannig ég féllst
á að koma meðan barnið svæfi.
Þegar ég mætti daginn eftir var hárgreiðsludaman
ekki mætt og þurfti ég því að bíða
eftir henni. Svo var hafist handa við að laga hárið
og þegar liturinn var kominn í ætlaði hún
að setja e-a viftu yfir hárið svo biðin tæki skemmri
tíma en setti hana ekki í gang fyrr en ég benti henni
á það. Nokkru seinna kallaði móttökudama
í hana og sagði henni að e-r annar viðskiptavinur vildi
koma fyrr og sagði hún að það væri hið
besta mál. Þessi viðskiptavinur kom skömmu seinna
og sinnti hún honum meðan ég beið með litinn
í hárinu. Hárgreiðsludaman hafði síðan
ekki lengur tíma til að sinna mér vegna hins viðskiptavinarins
og var ég því látin bíða lengur en
ella með litinn og eftir að ég spurði hvort það
væri ekki hægt að láta skola á mér
hárið þá fékk hún aðra dömu
til þess. Allt þetta tók miklu meira en eina klst. og
átti þá eftir að greiða á mér
hárið og blása. Ég sagði þeim að
ég hefði ekki tíma til að vera lengur og sagði
þeim einnig að ég væri óánægð
með hárið þar sem það var ekki enn búið
að lýsa það og það var enn ein ljós
áberandi strípa í hárinu og fór út
með ógreitt og óblásið hárið svo
ég gæti farið heim til að sinna barninu.
Ég var svo óánægð með hárið
og hafi í raun engan tíma til að fara aftur til að
láta laga á mér hárið að á endanum
klippti ég sjálf þessa hrikalega ljósu strípu
úr hárinu svo ég væri ekki með einn ljósan
áberandi lokk. Þá fór að fara í taugarnar
á mér hversu hárið var ennþá dökkt
tæpri viku eftir litunina að ég hafði samband 15.
ágúst og bað um að fá að tala við
eigandann. Móttökudaman sagði mér að það
væru þrír eigendur og fékk ég að tala
við einn þeirra sem ég fékk ekki nafnið á.
Ég sagði honum sögu mína og sagðist hann ekki
geta gert neitt fyrir mig þann daginn með hortugu fasi en ætlaði
að tala við hárgreiðsludömuna ég hafi hitt
og vera síðan í sambandi við mig.
Ég hef ekki enn heyrt frá neinum á þessari
stofu í dag, 3. september, en það fór svo að
ég var óánægð með háralit minn
daginn sem ég skírði barnið mitt og gifti mig og
borgaði kr. 17.000,- fyrir þennan harmleik!
Þessi þjónusta þykir mér arfa slök
og mun ég ekki fara á þessa stofu aftur né mæla
með henni við neinn. Lágmark hefði verið að
hafa samband við mig hvort sem eigendur stofunnar hefðu verið
til í að gera eitthvað fyrir mig eður ei!
Helga Kristjánsdóttir
#1164
Erindi mitt er spyrja hvort ,,góð þjónusta"
sé eitthvað sem ekki finnist hér á landi? Jú,
það er alveg sama við hvern eða hverja maður talar
þá er verið að segja manni frá einhverju sem
er alveg fáranlegt! Einn er að segja frá samtali vegna
þess að bíllinn bilaði og hann fékk rangar
upplýsingar um kostnað! Einn sagði mér frá
því að hann keypti síma í Elko og var batteríið
ónýtt í símanum. Það tók einn
mánuð að fá þetta lagfært, en ekki fyrr
en búið var að hafa samband á hverjum degi! Í
fréttum er verið að segja frá viðskiptum við
Heimsferðir vegna matareitrunar í Grikklandi. Hver er þjónustan
sem þar er í boði ? Jú, þetta kemur
okkur bara ekkert við!
Í sumum verslunum eru viðskiptavinirnir
sendir hverfanna á milli til að ná í vörurnar
sem verið var að kaupa! Að fara í Byko eða Húsasmiðjuna
og ætla að fá einhverja þjónustu? Jú,
það getur tekið klukkustund en þá ertu í
vitlausri deild eða sá sem er við afgreiðslu veit minna
en þú! Hvar getur maður fengið ,,góða þjónustu"?
JR
(nb. Góða þjónustu?
Hugsanlega hjá Eggerti feldskera, ég er samt ekki viss!)
Okur #1060 - 1163 eru hér.
Veistu um svakalegt okur? Láttu
vita! |