| (Sett inn 01.08.08):
#1059 Ég er ein
þeirra sem þarf að greiða skattinum fúlgu
fjár næstu mánuðina. Eitthvað sem engin leið
er að komast undan, ja nema þá kannski með því
að skjóta sig. Ég fór til tollstjóra áðan
til að semja um greiðsluna þar sem ég sá ekki
fram á að geta borgað þær upphæðir
sem áætlað var á mig fram til áramóta.
Það var í sjálfu sér lítið mál
- hinsvegar þarf ég að greiða 26,5% vexti af
öllum herlegheitunum! Um mánaðarmótin verður
dregið af launum mínum umsamin upphæð en 1.sept. næstkomandi
mun reiknast 26,5% vextir af mismuninum fyrir ágústmánuð,
á ársbasis og svo koll af kolli. Þessir vextir eru
þeir allra hæstu á landinu þó víða
væri leitað. Þeir eru fáránlega háir
að mínu mati.
Líkt og margir aðrir á ég
einnig von á rukkun frá LÍN á næstu vikum
og ég ákvað því að athuga hvort það
væri möguleiki að fá undanþágu frá
september greiðslunni svona í ljósi þessa alls.
Niðurstaðan: Maður þarf eiginlega að láta
saga af sér útlim til að fá undanþágu
hjá LÍN.
Ég vona að ómagar og ónytjungar
þessa lands muni njóta launanna minna næstu mánuði
því ég mun svo sannarlega ekki gera það.
Brynja
(ATH: Ég rak augun í færslu
1059, og ég vildi bara benda á að það er möguleiki
fyrir þá sem að eru í skuld við LÍN
og telja sig ekki hafa fjárhagslegt bolmagn til að borga LÍN
geta kært synjun á undanþágu til borgunar til
stjórnar LÍN. Þessi aðili gæti vísað
í þessi lög
10. gr.
Námsmaður sem hefur haft svo lágar
tekjur á fyrra ári að honum reiknast ekki viðbótargreiðsla
og fjárhagur hans hefur ekki batnað á endurgreiðsluárinu,
getur sótt um undanþágu frá fastri ársgreiðslu
ef lánshæft nám, atvinnuleysi, veikindi, þungun,
umönnun barna eða aðrar sambærilegar ástæður
valda þessum örðugleikum hjá lánþega
eða fjölskyldu hans. Skal hann þá leggja fyrir sjóðstjórn
upplýsingar um eignir sínar, lífeyri og annað
það sem stjórnin telur máli skipta. Stjórninni
er þá heimilt að veita undanþágu að hluta
eða öllu leyti eftir atvikum. Sjóðstjórn setur
nánari almennar reglur um framkvæmd þessa heimildarákvæðis.
Þessi aðili ætti að setja
sig í samband við einhvern hjá stúdentaráði
HÍ, Pétur Markan að mig minnir og fá hjá
honum leiðbeiningar um hvað hann á að gera. Einnig eru
þau hjá SÍNE mjög hjálpsöm þegar
kemur að svona málum.)
#1058
Get ekki orða bundist. Lét skoða bílinn minn í
byrjun júlí hjá Frumherja á Höfn.
Var mér bent á við skoðun eftirlitsmanns að gat
væri á púströrinu og þurrkublöð
orðin lúin. Kostaði þessi skoðunar aðgerð
rúmlega sjö þúsund krónur, sem var greitt
á staðnum. Keyrði ég út með grænan
miða og frest út júlímánuð til að
lagfæra. Allt í lagi með það! Lét síðan
lagfæra það sem að var fundið. Við endurskoðun
hjá Aðalskoðun í Hafnarfirði þurfti
ég enn að greiða kr. 2800 til viðbótar! Kannski
ekki há upphæð, en það tók skoðunarmanninn
minna en 3 mínútur að setja bílinn í gang
og hlusta og síðan að líma nýjan miða
á númeraplöturnar. Bara spyr. Hverning í ósköpunum
er hægt að innheimta slíka upphæð fyrir nákvæmlega
ekki neitt!
Hélt í einfeldi minni að þetta
væri frítt og greitt með fyrsta skoðunargjaldinu.
Mitt álit. Algjört okurfyrirtæki með lögverndaða
greiðsluþvingun, þar sem klippt yrði af bifreiðinni,
ef ég hefði neitað að greiða þetta uppsetta
okurverð!
Alfreð Guðmundsson
#1057
Við hjónaleysin vorum að fara að elda uppáhaldsréttinn
okkar og
gleymdum að kaupa Cashew hneturnar
sem eru alveg ómissandi. Þar sem
við uppgötvuðum það eftir
lokun Bónus skrölti bóndinn í Hagkaup
og
keypti 150gr poka af hnetunum góðu
á kr. 401 og blæddi mjög að borga
þessa upphæð fyrir hnetur. Daginn
eftir skrapp ég í Bónus, fann
nákvæmlega sömu hneturnar frá
sama framleiðanda á kr. 259 - eða 54,8%
lægra takk fyrir!! Fengum þarna ágætis
áminningu af hverju við
verslum aldrei í Hagkaup.
Sigurlaug
#1056
Ég held að Hótel Valhöll eigi heimsmetið
í okri, að minnsta kosti Íslandsmet. Við fórum
þarna, ég, konan og mamma gamla, og okkur svimaði svo
þegar við sáum verðlagið að það
lá við að við dyttum í vatnið þegar
við fórum út. Ég man eftir súpudiski á
1250 kr. stk. og vöfflu á 990 kr. Það hefði kostað
okkur þrjú tæplega sjö þúsund kall
að fá okkur vöfflur og súpu. Við fórum
nú bara í Þjónustumiðstöðina og
fengum okkur samlokur.
Orri
#1055
Rakst á þetta
á femin.is. Þessir segulskartgripir eru líka til sölu
í útlöndum á mest 5 evrur. Kosta 4.900
á femin.is
(Sett inn 31.07.08):
#1054
Ég ætlaði að kaupa batterí í Húsasmiðjunni
um daginn AA Duracell
þar sem þau kostuðu 695 krónur.
En þá var eitthvað vesen á
viðskiptavini sem var á undan mér
svo ég nennti ekki að bíða
endalaust og var frekar pirraður því
þetta er eini kassinn í búðinni
og fór út. Jæja það
var ekki til í N1 svo ég ákvað að fara bara
í vélsmiðju hérna í
bænum sem er þekkt fyrir að vera dýr. Ég
fékk 4stk AA Duracell á 395kr 43.2%
munur. Svo tók ég eftir að Coca
Cola 1/2 líter er á 150kr þar
en 175 kr í N1. Þetta er bara algjört
bull. Hvað er að kaupmönnum í
dag? Húsasmiðjan er allaveg að flippa
út miðað við fleiri greinar
hérna á þessari síðu.
Já svo er annað, ég keypti
Peltor heyrarskjól með útvarpi
bara venjulegt í húsasmiðjunni
á útsölu 13990 en svo sagði félagi
minn að það kostaði 6990 í
Dynjanda en það nýja á markaðinum
13990 með tengi fyrir ipod. Ég gat
ekki skilað heyrnarskjólinu því
þau voru á útsölu og
líka að ég var búinn að merkja þau.
Þetta
er svívirðilegt okur það
ætti að híða svona fólk. Jón Sigurðsson
forseti fengi magasár yfir okri eins og
þessu.
ÓAF
#1053
Mér langaði að vekja athygli á því að
allir bankarnir bjóða þeim sem eru 60 ára og eldri
verðtryggða reikninga á góðum vöxtum sem
eru ekki bundir. Ef maður er hins vegar á aldrinum 19-59
þá á maður ekki sjéns á verðtryggðum
reikningum nema að hafa þá bundna í langan tíma.
ÁG
#1052
Fór á bensínstöð N1 við Reykjavíkurveg
í Hafnarfirði um daginn, þar sem mig vantaði 10 amp.
öryggi í billinn minn. Á Reykjavíkurveginum kostaði
stykkið 90 kr. Í verslun N1 við Dalshraun 17, sem er í
nokkur hundruð metra fjarlægð, kostar sama öryggi 25
kr. stykkið.
Þröstur Sverriss.
(nb. Gamall lager?)
#1051 Það
er mér ævinlega jafn mikil ánægja að greina
frá sjálftöku Íslandspósts á
"þjónustugjöldum".
Fyrr í þessum mánuði gerði ég pöntun
á Amazon.co.uk á bókum. Virðisaukaskattur á
bókum er 7% og heildarverðmæti pöntunar með sendingarkostnaði
var:
Item(s) Subtotal: £39.04
Postage & Packing: £9.93
Grand Total: £48.97
Ef ég greiddi eingöngu virðisaukaskatt af verðmæti
vöru s.s. 39.04 GBP, við værum hluti af Evrópusambandinu
og VSK væri því greiddur í upprunalandi (Bretlandi)
þá hefði ég ekki þurft að greiða
nema brot af því sem síðar varð.
Íslandspóstur er nefnilega eina fyrirtæki landsins
sem lætur neytendur greiða sér sérstakt þjónustgjald
ofan á almenna verðskrá vegna þjónustu sem
fyrirtækið innir af hendi fyrir ríkið s.s. innheimtu
virðisaukaskatts (full póstburðargjöld eru auk þess
greidd).
Þessi sjálftaka Íslandspósts fer fram á
grundvelli alþjóðasamninga og vitnar fyrirtæki til
reglna sem í gildi eru t.d. í Noregi. Í bæði
Noregi og Bretlandi er hins vegar lágmarksverðmæti
skilgreint áður en til gjaldtöku kemur. Þannig
er miðað við að ekki séu greidd nein gjöld
ef verðmæti er innan við 2-3 þúsund krónur
enda er þessi gjaldtaka mjög súr ef verðmæti
vöru er lítið eins og ég sýni með dæmi
hér síðar.
Það sem er furðulegt við þetta, er að Íslandspóstur
mismunar vörum. Þannig er hingað flutt ókjör
af efni sem ekki er innheimt vsk af. Erlend tímarit, blöð
ofl. sem allt ber sama vsk og bækur. Líklega er það
vegna þess að þeim þykir líklegt að ef
þeir myndu reyna að rukka þjónustugjöld fyrir
hvert tímarit yrði þessum reglum breytt.
En snúum okkur að mínu dæmi. Heildarverðmæti
- FOB 7936,57 - FOB gengi GBP er því 203,30 krónur
og krónurnar mínar enn minna virði en ég hélt.
Af þessu greiði ég 7% VSK 556 krónur.
Svo hefði ég mátt búast við því
að greiða Íslandspósti 450 krónur fyrir að
sjá um innheimtu á VSK fyrir ríkið.
Vegna þess að Amazon ákvað að senda þetta
í tveimur hlutum - svona til þess að ég þyrfti
ekki að bíða of lengi - þá greiddi ég
hins vegar 900 krónur til Íslandspósts og afhending
er samt sem áður á sama degi.
Skoðum nú aðeins hvað þetta þýðir.
Kaupverð með flutningskostnaði: 7936 krónur
Kaupverð með VSK ef við værum í ESB: 7936
krónur (því í Bretlandi er ekki VSK á
bókum)
Kaupverð ef ég hefði fengið þetta í
einum pakka: 8942 eins og ég hafði gert ráð fyrir
Kaupverð með okri Íslandspósts: 9392
Verðmunur utan og innan ESB - 1456 krónur!
Ég hef raunar aldrei áttað mig á því
afhverju ég er látin greiða þetta "Tollmeðferðargjald".
Ég þarf t.d. ekki að greiða sérstakt gjald
í næstu verslun vegna þess að verið er að
innheimta VSK þar. En það er alveg ljóst að
á meðan þessar reglur eru svona - þá malar
Íslandspóstur gull af smásendingum til Íslendinga
og raunar er hvati fyrirtækisins mjög sterkur til þess
að gera sem mest af því að telja sendingar tollskyldar.
Það er raunar hlægilegt að ef bók kostar 1000
krónur, fær íslenska ríkið (við) 70
krónur en Íslandspóstur 450 krónur. Jafnframt
eru þeir duglegir við að opna gjafasendingar og þá
er ævinlega farið fram á reikninga - sem oftast fylgja
ekki gjöfum. Það er raunar sorglegt að þurfa stöðugt
að segja vinum erlendis að gera mér ekki þann bjarnargreiða
að senda mér gjafir. Slíkt kosti mig bara erfiði,
tíma og leiðindi.
Sigmundur Halldórsson
(ATH: Fyrir utan þetta óheyrilega "þjónustugjald";
sem er fáránlega hátt,
þá hef ég oft pirrað mig alveg óskaplega
yfir því að maður sé látinn borga toll
OG virðisaukaskatt af PÓSTBURÐARGJALDI (Postage &
Packing (UK)/Shipping and Handling (USA)) hjá Íslandspósti.
Hvernig í ósköpunum getur póstburðargjald
verið toll- og virðisaukaskatt skylt??? Ég bara skil ekki
þessa röksemmdafærslu.)
#1050 Svo óheppilega
vildi til að ég þurfti að redda einum hlut í
klukkubúðinni Tíu ellefu á Hverfisgötunni.
Á undan mér var feitlaginn drengur að kaupa sér
örbylgju-pizzu
og eftir að afgreiðslumaðurinn hafði rennt kortinu í
gegn og afhent kúnnanum kvittun staldraði drengurinn aðeins
við. "Bíddu, pizzan var sögð kosta 689 kr. í
kælinum en ég er að borga 869." Þegar verslunarstjórinn
hafði athugað málið kom í ljós að
kúnninn hafði rétt fyrir sér. Pizzan var vitlaust
verðlögð og munurinn var ekki tíu krónur eða
tuttugu heldur tvö hundruð krónur. Þess ber þó
að geta að drengurinn fékk tvö hundruð krónurnar
tilbaka. En ekki er víst að allir séu jafn athuglir og
hann.
Freyr Gigja
#1049 Ég
fór í bankann um daginn til að fá greiðsluþjónustu.
Þá kom í ljós að undanfarin 7 ár
hefur verið tekin upphæð milli 800-2000 á mánuði
af Vísareikningum mínum til að greiða fyrir
netfangið "@mmedia.is". Ég bað um netfangð árið
2001 og að afborgun yrði tekin af vísakortinu.Hef hins vegar
ekki notað netfangið í um 6 ár og sökum almennrar
heimsku, búin að steingleyma þessari átómatísku
skuldfærslu. Í byrjun var upphæðin um 2000 kr. á
mánuði en var komin í "einungis" 800 kr núna um
daginn þegar ég uppgötvaði herlegheitin. Þar
sem ég er greinilega Zombie með vísakortið og hafði
ekki skoðað gaumgæfilega hverja færslu gegnum tíðina
- sem maður ætti svo sannarlega að gera- þá
er ég núna nokkrum tugþúsundum króna
fátækari og Ogvodafone þeim sömu krónum
ríkari.
Droplaug Erlingsdóttir
#1048 Svo sem
kvenna er siður, ákvað ég um daginn að prófa
nýja hárgreiðslustofu. Ég bý í
vesturbænum og í göngufæri við eitt flottasta
hótel bæjarins, sem hýsir þessa stofu. Er með
stutt hár og vildi tveggja lita strípur og lagfæringu
á klippingu. Til að gera langa sögu stutta, enduði
þessi ósköp þannig að klippingin var eins og
óviti hefði komist í hnakkann á mér og
strípurnar mjög lélegar. Ég komst að því
að stúlkan sem annaðist mig var nemi á 3ja ári.
Ég hringdi og kvartaði, þar sem ég borgaði
rúmar kr. 13.000.- fyrir meðferðina, en sú kvörtun
bar engan árangur . Nú vildi ég bara vita hvort þetta
væri viðtekin venja hjá betri stofum bæjarins að
plata inn á mann nemum og rukka fullt fyrir, einhvern tíma
var maður spurður hvort nemi mætti annast mann fyrir þá
minna verð. Eða þarf maður kannske að taka fram við
pöntun að fyrir fullt verð vilji maður fulla þjónustu??
Elísabet
#1047 Við
hjónin og 12 ára sonur okkar fórum og skoðuðum
Draugasetrið.
Mér finnst ég sjaldan eða aldrei hafa verið hafður
að eins miklu fífli. Fyrir þetta heimskulega uppátæki
mátti ég punga út 7.180 kr – 2 x 2.700 fyrir fullorðna
og 1.780 kr. fyrir strákinn.
Jónas Hallgrímsson
(ATH: Mig langar að koma með athugasemd varðandi færslu
#1047. Þar bendir Jónas Hallgrímsson á að
verð fyrir fullorðna í Draugasetrið sé 2700 kr.
og 1780 kr. fyrir börn. Á heimasíðunni er eftirfarandi
verð aftur á móti gefið upp:
Aðgangseyrir á Draugasetrið
1.500.- fyrir fullorðna
990.- fyrir 12-16 ára
tekið af http://www.draugasetrid.is/Default.asp?Page=261)
(Nb. Vetrarverðið komið?)
#1046 Fann mig
knúinn til að koma með eitt gott dæmi um okur. Þannig
er mál með vexti að kúplingin í bílnum
þarfnast skiptingar og fór ég þá að
litast um eftir góðu verði, byrjaði á að
hringja á nokkra staði en þeir áttu ekkert til.
Mér var þá bent á að Poulsen gæti
verið með gripinn. Allt í góðu, ég hringi
og viti menn, þeir eiga glænýja kúplingu, pressu
og legu saman í pakka á 13 þúsund krónur...sem
verður nú að segjast að er alls ekki mikið. Ákvað
að athuga hvað sami pakki myndi kosta hjá Heklu og
viti menn, ekki nóg með það að þeir áttu
ekki allan pakkann heldur vildu þeir rukka 52 þúsund
krónur fyrir! Það er ágætt hjá þeim
að smyrja 39 þús ofan á lægsta verð...þekki
fleiri dæmi þar sem þeir ofrukka svona svakalega.
Það þarf varla að taka það fram mér
dettur ekki í hug að versla við Heklu aftur. Og þakka
sömuleiðis starfsmönnum Poulsen fyrir frábæra
þjónustu.
Börkur Þór Björgvinsson
#1045 Ég
skellti mér í Sambíóinn á Akureyri
um daginn í sumarfríinu. myndin sem varð fyrir valinu
var the dark knight nýjasta batman myndin.
Ég rak augun í miðaverðið 900kr á
miði.is en var ekki svo klár að fjárfesta í
miða þar þannig að ég fer á staðinn.
Þar stóð fyrir ofan miðasöluna miði kr 1000kr.
Jæja ég tapaði 100 kalli þar.
Svo kemur röðin af mér og ég rétti afgreiðslu
stúlkunni kortið og hún hleypur burt og segir 1050? þegar
hún kemur til baka spyr ég afhverju það kosti 1050
þegar það stendur að það kosti 1000. Hún
gefur mér þá skýringu á að þetta
sé álag sem bætist ofan á þar sem þetta
var sýning klukkan 23.
Ég varð svo hneykslaður að ég ákvað
að skrifa hér inn. Hef tekið eftir að það
eru miðnætur sýningar fyrir sunnan á sömu
mynd, ætli það sé álag þar líka
á miðaverð eða ætli bíóstjórinn
fyrir norðan sé að hala inn tekjur fyrir auknum launakostnaði?
það er nógu dýrt fyrir og ég efast um að
afgreiðslufólkið fái eitthvað hærri laun
fyrir.
Ég hafði það ekki í mér að versla
mér popp og kók í hléi, gat ekki ímyndað
mér hversu mikið álag yrði á því
þegar klukkan var orðinn svona langt gengin yfir miðnætti.
Hilmar Kristjánsson
(ATH: Ég fór í bíó í fyrsta
skipti í langan tíma s.l. þriðjudag. Vissi nú
alveg að miðaverð hefði hækkað (t.d. vegna lesturs
þessarar síðu). Fór í Kringlubíó
(á The Dark Knight) kl. 17:00 (virkur dagur, fyrsta sýning)
og miðinn kostaði 1.050 kr. (Svo, 2.100 kr. fyrir 2). Á
miðanum var ekkert sundurliðað verð eins og sumir hafa
sagt frá hér, heldur stóð bara: Verð: 1.050
kr.)
(Sett inn 29.07.08):
#1044 Fór
í B. Ormson í dag að sækja fjarstýringu
á Pioneer magnara sem mér var sagt að ætti að
kosta 7000-10500 kr þegar ég pantaði hana 16.6.08. Þegar
ég ætla að taka hana í dag 28.7.08 þá
á hún að kosta 21000 kr. Skýringar eru gefnar
af afgreiðslumanni gengisbreyting og erlendar hækkanir. Gengið
er NOK. Það hefur hækkað ca. 3% á þessum
tíma. Ég neitaði að taka hana og bað hann að
segja yfirmanni sínum að ég skildi taka hana á
kostnaðarverði sem hann sagði vera 11000 kr. Það
var hringt í mig síðar í dag og boðið
20 % afsláttur sem yrði þá um 17000 kr. Ég
afþakkaði og sagðist ætla að skoða málið
til morguns ef reiði mín yrði mér ekki til trafala.
Dagbjartur R. Sveinsson
#1043 Ég
bara varð að skrifa þar sem mér blöskraði
verðlagið á einum Kellogs K special kassa með berjum.
Á mínu heimili er borðað mikið af þessu
annars góða morgunmat og kostar kassinn yfirleitt rúmar
500 krónur og ég keypti einmitt einn á föstudaginn
var í Hagkaupum sem er nú ekki ódýrasta búðin
í bænum, kassinn þar kostaði 515 krónur.
Í dag fór í Krónuna í Hafnarfirði
að versla og tók einn kassa af þessu Kornfleksi og setti
í körfuna en þá varð mér litið
á verðið stóð 798 krónur, ég tók
kassann, 100% viss að þetta væri bara rangt verð og
rétt verð kæmi í ljós þegar ég
færi að borga. Nei, kassinn kostaði 798 krónur, að
sjálfsögðu hætti ég snarlega við að
versla hann. Mér finnst ansi mikill verðmunur þarna á,
Krónan er ekki alltaf ódýrust.
Linda
#1042 Fyrir sumarfríið
fór ég með son minn í Útilíf
í Smáralindinni til þess að kaupa á
hann góða gönguskó fyrir fríið. Gerði
alveg ráð fyrir því að eyða slatta af pening
í þetta handa 10 ára guttanum. Við förum og
skoðum og finnum fína skó á hann. Þar sem
þeir voru til sýnis kemur fram að þeir ættu
að kosta 9990 kr. Við förum nokkuð sátt á
kassann og þegar stúlkan sem var að afgreiða gaf okkur
loksins tíma til að afgreiða okkur, var að brjóta
saman úlpu á borðinu, þá rukkar hún
okkur um 11.990 kr. Ég þóttist viss um að hafa
tekið vel eftir og sagði henni að það gæti
ekki staðist, án þess að segja orð, labbar hún
í burtu til þess örugglega að ath verðið
og kemur aftur eftir nokkrar mín og fer eitthvað að fikta
við kassann og ég segi þá við hana, passar
það ekki að þeir hafi kostað tæpar 10 þús.
“Jú, sagði hún og bætti svo við, þetta
er alltaf að gerast”. Mér brá ögn við, ekki
bara við það að blessuð stúlkan kunni ekki
lágmarkskurteisi, veit reyndar ekki af hverju hún var að
vinna í þjónustustarfi, heldur þegar hún
sagði að þetta væri alltaf að gerast. Hvað
ef ég væri nú með margar flíkur og dót,
þá man ég ekki alltaf nákvæmlega krónutöluna
á hverri flík. Auðvitað geta gerst mistök en
eins og þetta kom út í þessi tilfelli þá
missti ég dáldið traust. Veit ekki hvort mig langi að
versla þarna aftur, verð samt að koma því að
að strákukrinn sem afgreiddi okkur í skódeildinni,
veitti framúrskarndi þjónustu.
Guðrún Helga
#1041 Mig langar
að benda á að nýjuasti diskurinn af "Pottþétt
47" kostar 1.999 í
Hagkaupum en 2.677 í Skífunni eða rétt
rúmlega 26% munur.
Þegar ég spurði út í verðmunin hjá
starfsmanni Skífunar komu undarlegar
útskýringar til og ein af þeim var að Hagkaup
tæki ekki við skiladiskur. Þegar
ég ræddi nánar við viðkomandi starfsmann
og benti vinsamlega á að rök hans
stæðust ekki þá reif hann bara kjaft að
sagði að ég gæti bara farið í Hagkaup
og keypt diskinn þar, honum væri sko alveg sama!
Venjulega læt ég margt yfir mig ganga en ákvað
að benda á þennan mismunu
þ.s.viðbrögð viðkomandi starfsmanna og röksemdarfærsla
var alveg út úr öllu
korti sem og verðmunurinn!
Elísabet
#1040 56 stykkja
pakki af Pampers Midi Active Fit númer 3 kosta 1410 kr. í
Bónus í Mosó en 1199 kr. í Krónunni
í sama bæ...
Karlkynsáhugamaður um bleyjuskiptingar
(ATH: Í Samkaup Strax á Þórshöfn
kostar 56 stk. pakki 2.195!! Geri aðrir "betur"! Lauslega reiknað,
miðað við að barn noti 6 bleyjur á dag þá
kostar það tæpar 90.000 á ári að vera
með bleyjubarn. Það greinilega margborgar sig að fara
að taka upp gömlu góðu taubleyjurnar aftur, það
er líka umhverfisvænna:)
Bleyjumamma)
#1039 Í
góða veðrinu í síðust viku ákvað
ég fá mér ís hjá Ruby tuesday.
Hann er góður þar. Svona ís-shake einhvern veginn.
Minnti að hann væri dýr, þess vegna fær maður
sér ekki alltaf ís hjá Ruby. Minnti að hann
væri um 400 kall.
Panta 2. "1.780krónur" Ert'ekki að grínast!?
"Nei, við erum með svona spes ís" var svarið!
890,-kr. stykkið!!!!! Þetta var svona eins og miðstærð
af shake í venjulegum ísbúðum. Þar
sem hún var búin að búa hann til (greinilega alveg
frá grunni á 10mínútum) þá hættum
við ekki við! Ég skammast mín fyrir að
hafa tekið þessu hljóðalaust. Ég át
ísinn með mesta móral í heimi! Bara passið
ykkur á þessum.
Ingileif
#1038 Ákváðum
að taka sunnudaginn snemma og skelltum okkur í Keiluhöllina
í Öskjuhlíðinni. Höfðum farið
áður á þessum tíma (uppúr opnun á
sunnudegi) og það var nóg að gera. Tókum strax
eftir því að það var einn bíll á
bílastæðinu. *skrítið* En jæja,
drifum okkur inn. Pöntuðum braut fyrir 4 og þá
var okkur bent á nýtt fyrirkomulag. Nú þarf
maður að borga eftir tíma, en ekki eftir fjölda leikja.
Núnú,... allt í lagi. Ætluðum að
taka 55 mín og fyrir 4. "4.200krónur".
Ha? Nei,... ert'ekki að grínast? Stóð
á blaðinu 2.400,- (tók illa eftir - sé núna
á verðlistanum að það hefði átt að
vera 3.400,-kr.) fyrir kl. 17:00. En þar sem kveikt var á
Diskóljósunum þá kostaði þetta tvöfalt.
Diskókeila!!! Klukkan 11:00 á sunnudagsmorgni!!!???
Þar sem við vorum með börn, sem voru orðin spennt
að fara í keilu, þá ákváðum við
að taka 25mín og bara fyrir 2 börn - í stað
þess að hætta við.
Niðurstaðan er sú:
1 keilu-leikur fyrir 3 í maí (í rólegheitum
- 1 klukkutími ca.) kostaði okkur 2.000,-kr. (2 fullorðnir
+ 1 barn)
1 keilu-leikur fyrir 2 í júlí (ekki í
rólegheitum - 25 mínútur) kostaði 2.100,-kr.
(2 börn)
Núna sé ég blessuðu verðskránna
á netinu:
Verðskrá:
Dagverð virka daga til kl: 17:00: 1/2 Tími 1.200kr. 1. Tími
2.400kr. 2 Tímar 4.800kr
Kvöld og helgarverð: 1/2 Tími 2.100kr. 1. Tími
3.400kr. 2 Tímar 6.800kr
Diskó keila 1/2 Tími 2.100kr. 1. Tími 4.200kr.
2 Tímar 8.400kr
Diskókeila er á:
Miðvikudögum 20:00-24:00
Föstudögum 20:00-02:00
Laugardögum 11:00-15:00 og 20:00-02:00
Sunnudögum 11:00-15:00
Vil benda fólki á þetta!
Ingileif.
#1037 Fór
í 10-11 núna í dag að versla mer fanta
1/2L og brá heldur í brún þegar
ég var búinn að borga flaskan kostaði 195kr ekki
nóg með það þa stóð 185kr
á hilluni síðan fór ég í europris
þa var sama flaska 109kr veit að 10-11
er dýrari verslun en að þeir komast með 86kr mun
það er bara með ólíkinum.
Hörður Ottó Friðriksson
#1036 Unnusti
minn var staddur á akureyri um helgina og ákvað að
fá sér miðstærð af
ís í boxi með heitri sósu á
N1,
heita sósan var ekki til svo hann fékk 2-3 msk
af ídýfu á ísinn í staðinn...
Fyrir herlegheitinn borgaði hann 990kr!!!!!!!! Hann sagði ha við
afgreiðslumanninn sem svaraði að þetta væri
bara verðið hjá þeim.
1 ltr af ís í boxi er á um 7-900kr og oft fylgja
1-2 sósur með í mörgum
ísbúðum. Og miðstærð með heitri
sósu er á milli 340-480.kr í flestum sjoppum svo þetta
er all svakalegt okur!
Ónefnd
#1035 Hverfisverslunin
í mínu hverfi er 10-11 og versla ég stundum þar
en þó ekki oft, bara helst það sem vantar allt í
einu. Ég hef þó stundum keypt sallatbox þar.
Þau voru alltaf í kringum 400 kr. Fyrir þó
nokkru ætlaði ég að kaupas mér svona box en
snarhætti við þegar ég sá að verðið
var komið upp í 1199 kr.
Ég skil ekki að nokkur kaupi þetta þegar ennþá
er hægt er að fá samskonar box á 419 kr. Í
Nóatúni. Það er næstum því 3
fyrir 1. Þetta finnst mér okur
Ingibjörg Björnsdóttir
(Sett inn 28.07.08):
#1034 Fór
til að kaupa DVD mynd handa syninum "Sammi Brunavörður"
fór í BT
skeifunni þóttist viss að þar væri ódýrt
fann þarf eitt stykki á 2200kr,
fannst þetta ótrúlegadýrt fyrir eitthvað
sem er bara ca 40min á lengd.
Labbaði yfir í ELKO fann þarf 4dvd bundið saman
2xSammi Brunavörður og 2x
Elís Björgunarbátur 2400kr. !!!!
BT er þarna með OKUR!
Nafnlaus
#1033 Litla sem
mér brá um daginn þegar ég pantaði mér
pizzu
á Dominos og vildi auka skinku. Svo fannst mér
pizzan svo dýr að ég fór að skoða þetta
betur, þá sá ég að auka skinka kostar 495
krónur......!!!!! Ég fæ heilan skinkupakka í
Bónus fyrir minna en þetta!
Thelma Hrund Hilmarsdóttir Kralj
#1032 Barnamatur
hefur hækkað óeðlilega mikið í Bónus.
T.d. í mars kostaði Gerber sveskjumaukskrukka 33 kr í
Bónus, í dag kostar sama litla krukkan 69 kr. Sem sagt hækkun
um 109% á 5 mánuðum. Einhver hækkun er sennilega
eðlileg í ljósi breytinga á gengi o.fl. en 109%
hlýtur að vera óeðlilegt.
Þorgerður Þráinsdóttir
#1031 Fór
á útsölu hjá Intersport upp á höfða
og sáum peysu handa 2 ára dóttur okkar en hún
átti að kosta 4999 kr á 30% afslætti þannig
að við ákváðum að bíða aðeins,
en seinna um daginn áttum við leið framhjá nýju
Intersport búðinni í Lindunum og þar var sama peysa
á 60% afslætti en samt á 5999. kr KAPITALISTA
SVÍN!!!
Guðmundur Bragason
#1030 Nú
er maður alltaf að reyna að borða hollari mat og reynir
því að vera að kaupa grænmeti og ávexti.
Í flestum tilvikum verslar maður í Bónus þar
sem þar er einfaldlega ódýrast. Ég fylgist alltaf
með verði, bæði í gegnum tíðina og
milli hillu og afgreiðslukassa. Og vil benda fólki á
það að í nánast öllum tilvikum er Krónan
mun dýrari en Bónus. Skil ekki hvernig þeir geta
komið út nánast sama og Bónus í verðkönnunum.
En aftur að grænmetinu þá er það búið
að vera síðan í vor, mars/apríl, að mjög
margt grænmeti og ávextir eru skemmdir þegar heim er
komið og maður ætlar að nota það eða bara
daginn eftir.
Bara sem dæmi jarðaber úr Krónunni. Þau
voru mygluð daginn eftir og fóru því í ruslið,
þau voru þó á tilboði á 229 minnir
mig, en samt dýrt.
Og eins kirsuberjatómatar, ákvað meira að segja
að kaupa lífrænt ræktaða því þeir
voru á næstum sama verði, þeir voru meira og minna
skemmdir þegar heim var komið.
Svo keypti ég mangó í vetur, minnir hafi verið
í Bónus, og ég geymdi það þar til
það var nógu þroskað og mjúkt til að
borða það (um 5 daga) þá byrjaði ég
að skera það og borðaði smá bita. Var þá
ekki bara stór hvít lirfa í einum bitanum og ég
næstum ældi og borða ekki mangó í dag.
Og undanfarið hef ég keypt sætar kartöflur, bæði
Bónus og Krónunni. Önnur hver hefur verið skemmd.
Ein var skemmd eftir viku í ísskápnum mínum,
sem ég tel ekki góðan geymslutíma á svona
grænmeti. Næsta á eftir sem ég verslaði var
bara ekki bleik/appelsínugul heldur gul, eins og rófa og
bragðaðist ekki eins og sæt kartafla.
Svo ég tali nú ekki um, reyndar fyrir mörgum árum,
tómata sem ég keypti í 10-11 og voru morandi í
hvítum ormum, sem varð til þess að ég borðaði
ekki tómata í nokkur ár og í dag sé
ég alltaf fyrir mér ormana í hvert skipti sem ég
sker tómata! Það er viðbjóður. Talandi
um andlegan skaða.
Hvernig á maður að geta verslað grænmeti,
sem er nógu dýrt fyrir, ef það er bara svona oft
skemmt?
Íris
#1029 Veit ekki
hvort þetta hefur komið hérna áður, en Kringlan
bíður uppá "2
fyrir 1" í bíó á fimmtudögum gegn
miða sem maður fær þegar maður verslar í
Kringlunni. Svo ákváðum við kærastan að
nýta okkur þetta og fara að sjá
mynd sem okkur langaði að sjá, en þegar á
hólminn var komið var mér tjáð
að miðinn gildir ekki á "nýlegar" myndir (myndin
var frumsýnd 2 dögum
áður).
Þegar miðinn er glögglega skoðaður stendur "Nema
annað sé tekið fram í
miðasölu" smáu letri fyrir neðan flennistórt
"2 fyrir 1 í Kringlubíó!".
Og Kringlubíó eru ekki með margar sýningar
í gangi á sama tíma, og því
annaðhvort að fara á einhverja aðra mynd (sem er
sjaldan hægt), snúa við
og fara heim (frekar fúlt eftir að vera búinn að
plana bíó og hafa sig
til) eða láta taka sig í enn eitt skiptið í
skraufaþurrt Ra... , skella
2000 kr á borðið og búa til bréfaskutlu
úr "2 fyrir 1" miðanum.
nb. Afhverju stendur ekki "Gildir ekki á nýlegar myndir"
og enn fremur
hvernig er nýlegt skilgreint? Þarf myndin að vera
búin að vera viku í
sýningu eða kannski mánuð? Eða fer það
bara eftir hentugleika?
nb 2. Gosflaska kostar 250 kr í bíóum!!
Bjarnþór Egilsson
#1028 Þar
sem tannlæknar mega ekki auglýsa þá er ég
nýbúinn að skipta um tannlækni sem heitir
Örn Ernst Gíslason og er með stofu á Hverfisgötu
105, hann er bæði ódýr og MJÖG góður!
Ónefnd
#1027 Ég
skrapp í Samkaup og sá þar frekar ómerkilegt
amerískt grill á 39.900,-. Þeir eru hins vegar
svo óheppin þar að innan í lokinu á grillinu
er miði frá heimalandi þess þar sem stendur að
þetta grill kosti $138.- eða 11.100 krónur. Og það
í smásölu erlendis. Samkaup er ekki að borga smásöluverð
ytra. Benti verslunarstjóra á þetta, sem skeiðaði
strax af stað og sagðist ætla að plokka miðann af.
Svona miði hefði verið á kassanum en límt hefði
verið yfir hann. Eru Íslendingar til í að borga hvað
sem er fyrir hlutina?
Hjörleifur Jóhannesson
(Sett inn 25.07.08):
#1026 Um daginn
vorum við í fjölskyldunni í útilegu, við
vorum samtals fimm.
Við höfðum keypt það sem héldum að
væri tvöfaldur pakki af SS pylsum
sem voru auglýstar á sérstökum afslætti
í Bónus á Egilstöðum. Við
tókum annan helmingin af þessu með okkur út
í óbyggðir og reiknuðum
auðvitað með því að vera með 10 pylsur,
þ.e. 2 pylsur á mann.
Í óbyggðunum kom hins vegar í ljós
að við höfðum látið blekkja okkur.
Í pakkanum voru einungis 9 pylsur og verðið á
þeim þar af leiðandi
afskaplega venjulegt. En það sem var verst, var að við
vorum lengst
úti í rassgati og engin búð nálæg
og þess vegna þurfti eitthvert okkar
að sætta sig við að fá bara eina pylsu, sem
var auðvitað sorglegt í
meira lagi eins og sjá má á myndinni hér
að ofan. Útilegan okkar var
eyðilögð. Svona getur græðgi Sláturfélags
Suðurlands leitt til
fjölskylduharmleiks. Maður hefur vanist því frá
blautu barnsbeini að
í stórum pakka af SS pylsum séu 10 stk., hér
var um lúmskulegar
söluaðferðir að ræða í þeim
tilgangi að telja manni trú um að
pylsurnar væru óvenju ódýrar.
Þórður og fjölskylda
#1025 Í
dag fékk ég tilboð frá Netklúbb Kortsins
sem vakti áhuga minn. En GÁP auglýsti 5 Mongoose
Tyax Elite fjallahjól á sérstöku tilboði
eða á aðeins 39.900 en almennt verð var samkvæmt
auglýsingunni 62.900,-
Þar sem það var tekið skýrt fram í
auglýsingunni að „Fyrstir koma. Fyrstir fá.“ þótti
mér réttari að hringja í verslun GÁP og
kanna hvort að hjólið væri enn til. Í símanum
var mér sagt að hjólið væri til og ég
gæti einungis keypt það með því að
koma á staðinn. Ég fékk því leyfi
til að fara fyrr úr vinnu svo ég gæti nýtt
mér þetta „frábæra tilboð“.
Áður en ég lagði af stað kíkti ég
snöggvast inn á síðu GÁP til að sjá
betri mynd af hjólinu og sá þá að samkvæmt
heimasíðu GÁP væri verðið 49.900 á
sömu týpu. Hmmmm. Ég kíki samt. Þegar ég
mætti svo í verslun GÁP og hafði upp á afgreiðslumanni
sem þekkti til tilboðsins var mér tjáð að
hjólið væri ekki til í minni stærð. Ég
varð fyrir þó nokkrum vonbrigðum og spurði hvort
að von væri á því. Kannski á morgun
var svarið. Ég spurði þá afgreiðslumanninn
hvort að
hann gæti kannað það fyrir mig. Hann var nú
ekkert á því en spurðist að lokum fyrir. Ég
fékk þá þau svör að hjólið
kæmi kannski á morgun en það væri ekkert víst.
Á tali hans kom loks fram að hjólið væri til
á lager en hann vissi ekkert hvenær það kæmi
í verslunina. Ég spurði þá hvort að
ég gæti keypt hjólið til að nýta mér
þetta tilboð en það var ekki hægt. Hann þyrfti
að vera með hjólið í búðinni svo ég
gæti keypt það. Ég spurði þá næst
hvort ég gæti tekið hjólið frá? Nei
var svarið, en ef ég hringdi á morgun þá
gæti ég tekið það frá. Ég spurði
því næst hvort að það væri rétt
að ég gæti ekki tekið hjólið frá
núna heldur yrði ég að hringja á morgun. Já
var svarið. Ég spurði þá hvort að afgreiðslumaðurinn
gerðir sér grein fyrir því hversu heimskulega það
hljómaði að ég yrði að hringja inn á
morgun svo hægt væri að taka hjólið frá
þegar ég stæði fyrir framan hann. Svona vinnum við
þetta, sagði hann. Ég spurði því næst
hvort ekki væri hægt að skrifa þetta niður á
miða og taka hjólið frá. Miðar týnast
bara var þá svarið.
Nú var ég orðinn frekar pirraður og sagði
við viðkomandi að ég gæti mjög auðveldlega
gengið yfir götuna og keypt hjól hjá Erninum.
Gerðu það þá bara var svarið. Ég
rölti þungur í brún yfir götuna og von á
svipuðum mótökum frá starfsfólki Arnarins.
Það var þó ekki raunin og var tekið vel á
móti mér og endaði ég að eyða rúmum
60 þúsundum. Ég fæ nýja hjólið
mitt á morgun. Þeir ætla meira að segja að senda
mér sms þegar það er klárt.
Óskar nafnleyndar
#1026 Ég
keyfti GEVALIA kaffi (12 í kassa) hjá heildsölunni
Innes um leið og ég fór með kaffikönnuna mína
í viðgerð hjá þeim, ég borgaði og
þegar heim var komið þá kíkti ég á
nótuna þá kostaði einn pakki af kaffi 682 krónur,ég
gerði mér ferð í Bónus þar var sami
pakkinn á 340 krónur ég hefði geta keyft 24 kaffi
pakka í Bónus fyrir sama verð.
Ég hringdi í Innes og spurði hvort þetta væri
ekki einhver vitleysa í tölvunni hjá þeim það
svar sem ég fékk að þeir væru alltaf með
nýjasta verðið.
Sigurður
#1025 Hef alltaf
keypt 10 kg. pakkningar af pedigree hundamat í Bónus sem
kostuðu 1789 kr. Einhverra hluta vegna hætti Bónus með
þessar pakkningar og um tíma var ekki til nema litlir pokar.
Síðan eftir mánuð eða meira komu í Bónus
7 kg. pakkningar sem kosta í dag 1789 kr. eða sama og 10 kg.
kostuðu mánuði áður…………. Skítt……
Bara svo það sé á hreinu, þá er
ég að tala um Bónus í Njarðvík, hef
ekki hugmynd hvort þetta sé í öðrum búðum.
Jóhanna
#1024 Ég
ákvað að kíkja um daginn í Europris, enda
ný komið hérna á Akureyri. Ég skoðaði,
og jú sumt virðist vera á góðu verði en
ekki eins ódýrt og maður hefði haldið miðað
við að þetta virðist vera þrep fyrir ofan byrðarsalana,
en það er það sem blekkir fólk, enda blöskraði
mér þegar ég var búin að sjá 5 stk
Snickers í pakka á 199 kr og síðan í nammihorninu
þá var það á 329 kr og síðan 10
stk snickers í pakka á 899 kr. Tek það fram að
þetta var allt í sömu stærð af snickers samt
allt mismunandi verð. Maður hefði geta keypt 4 pakka af 5 stk
snickers á 199 kr og samt fengið tvöfalt meira magn og
yfiir 100 kr í afgang í staðin fyrir að kaupa 10
stk í pakka.
Ég skil líka ekki hverning bíóin hafa endalaust
komist upp með þetta samráð sitt sín á
milli, þeir hækka verð saman og síðan skipta
þeir myndum á milli sín og eru því aldrei
í samkeppni og aldrei virðist vera neitt sagt yfir þessu
en er það sem þau eru að gera ekki skilgreining á
samráða fyrirtækja?
Ég vona innilega að Neytendasamtökin standi síðan
við loforð sitt og fari að sekta verslanir og fyrirtæki
sem eru með rangar verðmerkingar eða jafnvel engar verðmerkingar
(Held að bíóhúsin eigi eftir að koma hræðilega
út úr því þar sem þeir ekki með
neinar verðmerkingar)
Hrafnhildur
#1023 Ég
er áskrifandi á neti hjá Tal. Þar eru
auglýstir mismunandi pakkar (http://tal.is/index.aspx?GroupId=517)
.
Í langan tíma var ég með 12mb hámarkshraða.
Borgaði 5990kr á mánuði fyrir það. En í
þessum efnahagsþrengingum hef ég þurft að
draga úr útgjöldum og skipti yfir í 1mb tengingu
fyrir 2990kr á mánuði. Ég finn ENGAN mun
á 12mb og 1mb tengingu. Mér er farið að gruna að
þetta sé einhverskonar blekking. Erlent niðurhal er ótakmarkað
hjá báðum tengingunum þannig það er ekki
málið. Þetta er ráðgáta fyrir mér.
Á meðan þessi ráðgáta er óleyst
mun ég halda mér við 1 mb tenginguna.
Ingi Vesturbær
#1022 Það
var tilboð á egils kristal í krónunni um
daginn...6 x 0.5 lítri
kostaði 730 en ef maður keypti bara eina 0.5 l. flösku
þá kostaði hún 103
kr...svo ég keypti frekar 6 flöskur en að kaupa þær
innplastaðar í kippu
og benti starfsmanni krónunnar góðfúslega
á hvað þetta væri nú vitlaust!
Greinilegt að krónumenn halda að fólk kunni ekki
einn plús einn...
Íris Jónsdóttir
#1021 Ég
hef þennann mánuð verið að fylgjast með olíuverði,
gengi dollars og dæluverði hjá Olís, enda versla
ég þar með 6kr afslætti (sýni þó
ekki afsláttinn minn í útreikningunum hér að
neðan). Alla virka dag í hádeginu tek ég þetta
saman og set upp í exel. Eins og sjá má hefur
olían lækkað um 11% frá síðustu mánaðarmótum
en dæluverð um 1-2%. Þykir mér það nú
frekar óeðlilegt enda greinilega svigrúm til lækkunar.
Ég væri alveg til í að fá diselinn minn
á 172 kr. (10% lækkun)
Sjá TÖFLU
Ég held það sé kominn tími til að
sparka ærlega í þessa bensínmafíu hér
á klakanum, merkilegt finnst mér hvað lítið
hefur heyrst frá FÍB, neytendasamtökunum og neytendastofu.
ÓSKAR NAFNLEYNDAR
(Sett inn 24.07.08):
#1020 Ég
var að koma frá Vestfjörðum og fullyrði að
mýtan um að allt sé dýrara úti á
landi sé dauð. Borðuðum t.d. á flottasta fiskistað
landsins, Tjöruhúsinu á Ísafirði þegar
ég átti afmæli, fengum þar tvíréttað
með tveimur glösum af víni á mann, gosi fyrir krakkann
og afmæliskökusneið og kaffi á eftir fyrir 7400 krónur!
Rétt er að taka fram að forrétturinn var útibú
frá plokkfiski barnsins (sumsagt hennar skammti skipt á þrjá
og svo gat hún fengið alla þá ábót
sem hún vildi), seinni vínglösin voru gefin þar
eð við vorum búin að bíða í heilan
hálftíma eftir matnum (sic, ekki þætti það
langt í bænum) og afmælistertan var frí. Held
svo að kaffið sé innifalið. Besta var þó
að maturinn var ekkert annað en ÓLÝSANLEGA góður!
Fyrir sama rétta- og drykkjafjölda á einhverjum lásí
millidýrum pastastað í Reykjavík hefðum við
aldrei sloppið undir 15 þúsund kallinum. Og þá
er ekki verið að bera saman gæðin. Til samanburðar
má líka taka til “fisk dagsins” á Thorvaldsen sem
hefur á tveimur árum farið úr 1290 krónum
með súpunni innifaldri í 2190 krónur án
súpu. Fiskurinn er svo yfirleitt einstaklega naumt skammtaður
þar en fiskipönnurnar á Tjöruhúsinu voru
svo troðfullar að við gátum ekki komið niður
matarbita daginn eftir sökum ofáts.
Tvö önnur dæmi eru:
Risa paninibrauð með fullt af kjúklingi og beikoni og
fíneríi með frönskum á Langa Manga
á Ísafirði: 850 kall. Sambærilegt á sæmilegu
kaffihúsi í bænum aldrei undir 1200-1300 kr.
Brauð í Gamla bakaríinu á Ísafirði:
350 krónur. Sambærilegt brauð hjá bakarameistaranum
475 krónur.
Það er ÓDÝRARA úti á landi. Allavega
á Ísafirði
Hallveig Rúnarsdóttir
#1019 Ég
fór um daginn í Mosfellsbakarí á Háaleitisbraut.
Þar ætlaði ég að kaupa
heilhveitihorn og bað afgreiðslustúlkuna um að setja
ost og skinku á það.
Ég hætti snarlega við kaupin þegar hún
tjáði mér að þetta kostaði 515 kr!!
515 kr fyrir smurt heilhveitihorn! Mér var svo brugðið
að ég gekk bara út,
það á ekki að láta bjóða sér
þetta og nú beini ég viðskiptum mínum annað!
Margrét Guðmundsdóttir
#1018
Við afleggjara að Dettifossi eru Grímsstaðir
þar sem við hjónin ákváðum að
fara með börnin og leyfa þeim
að pissa og jafnvel að fá okkur kaffibolla í
leiðinni. Það voru engar verðmerkingar
uppi við og maður vissi svo sem að
þetta yrði dýrara en gengur
og gerist en óraði fyrir því sem koma skyldi.
Við enduðum með að borga 2.100
kr. fyrir 2 Svala, 1 kaffibolla, 1
súkkulaðibolla og 1 sneið af epplapæ.
Ef maður setur þetta upp í einhverri
mynd þá var þetta kannski
200 fyrir hvern Svala, 350 fyrir kaffið, 550
fyrir súkkulaðið og 800 fyrir
epplapæ. Það má líka taka fram að kaffið
var
hefðbundin uppáhelling og súkkulaðið
líklega Swiss Miss.
Ég fer annað næst þegar
börnin þurfa að pissa.
Freyr Guð og fjölskylda
#1017
Við hjónin fórum í Húsasmiðjuna í
dag til að kaupa 3 cylindera úr krómi í
einum pakka, pakkningin af þessu kostaði þar 13.870 en
nákvæmlega sama pakkning af ASSA cylinderum kostaði 8.838
kr hjá Byko. Þetta fannst okkur brjálæðislegt
...OKUR.
Pallaskrúfur voru líka á
uppsprengdu verði í Húsasmiðjunni eða 52 kr stk.
takk fyrir,voru þó á mun skárra verði í
Bykó eða 42 kr. stk.og spáið í það
hvað þarf margar slíkar í einn pall!
Helga Jónsdóttir.
#1016
Okurverð á Kornax hveiti fyrir brauðvélar!
Var orðin hveitilaus og bý í Árbænum og
skellti mér í Krónuna að kaupa hveiti, kúmen
og mjólkurduft en ekkert af þessum vörum var til þar.
Næst lá leið mín í Bónus og sama
sagan þar, ekki til. Þá datt mér í hug
að athuga í Nóatúni, rosa köld og þar
áttu þeir ekki til kúmenið og mjólkurduftið
en hveitið áttu þeir til og skoðaði ég
verðið um leið og ég skellti 2 kílóa pokanum
í körfuna, heilar 498 krónur. Eitthvað vafraði
ég meira um búðina og fannst allt frekar dýrt
og hugsaði með mér að þessar vörur væru
sjálfsagt allar til í Nettó í Mjódd
og hætti við kaupin í Nóatúni skilaði
hveitipokanum og fór allslaus út. Nettó átti
allar þessar vörur til og kostaði hveitipokinn þar
heilar 279 krónur, mismunur uppá 219 krónur og keypti
ég að sjálfsögðu 3 poka því ég
baka mikið í brauðvélinni. Þetta er langt frá
því að vera eðlilegur mismunur og Nóatún
á villigötum í verðlagningu. Fór sæl
og ánægð út úr Nettó og mun ekki
beina viðskiptum mínum að Nóatúni hér
eftir, það er stutt síðan að maðurinn minn
borgaði 60 krónum meira fyrir piparsósupakka í
Nóatúni heldur en í Bónus. Þetta safnast
saman í miklar fjárhæðir og það marg
borgar sig að hafa gott verðskyn þegar verslað er í
matinn. Hrósaði happi yfir að vera ekki tekin í bakaríið
og hreinlega rænd. Okur!!!! Næst fer ég beint
í Nettó og fæ allt þar og spara bensínið
í leiðinni.
Hvernig lifa verslanir með svona háa
álagningu? Ég hef ekki efni á að versla
þar, hvað með þig???
Björk Emilsdóttir
#1015
Mig langaði að láta vita af okri hjá Tölvuversluni
Start.is en ég hef verslað mikið af DVD diskum
þar. Í mars 2008 kostaði 25 stk.16X í spindle 990
kr. og í maí 2008 voru þeir komnir uppí 1.290
kr. og núna í júlí eru þeir komnir uppí
1.990. Þetta er rúm 100% hækkun á nokkrum
mánuðum. Algjör OKUR! Það er hægt að
fá sömu dvd diskana hjá Tölvutek í Borgartúni
á 1.490 kr með sama
verð í marga mánuði.
Páll Þórir
#1014
Við hjónin keyptum okkur sumarferð í Bretlandi.
½ mánaðar ferð – flug, og flott hótel
með morgunmat fyrir 75.000.- ( Okkur bæði nota ben )
Svo þurftum við að bóka
ferð til Bretlands frá Íslandi og þá kom
upp OKRIÐ. Ferð með Icelandexpress 112.000.- fram og til baka
( innifalið: sala á samlokum frá Júmbó
– þröng sæti og stutt flug !! ) – Icelandair . Að
endingu borgum rúmar við 100.000.- Kr. Fram og til baka. Takk
takk.
Ok ok. Nú gerðum við smá
vitleysu í bókunninni ( klaufar á þessar tölvur
) og þurftum að hafa samband við söluskrifstofu Icelandair.
Jú takk. 36.000.- kall kostaði það
okkur að láta laga vitleysuna. 18.000.- á mann (samt
var bókunin hjá okkur aðeins ein bókun á
hjón.)
Jú takk, minn venn . Þegar íslenskir
okrarar eru annarsvegar þá er sko ein bókun ekki ein
bókun – hún er hjón í sitthvoru lagi og það
skal kosta 18.000.-þúsund kall á mann!!!!
Það er eins gott að þetta
er ekki svona í leigubílum á íslandi. Þú
hoppar upp í leigubíl og segist ætla að fara í
Árbæ
nr 7. en mismæltir þig – áttir við 17. BREITINGARGJALD
10.000.- KALL. Hvað er eiginlega í gangi hjá þessum
flugfélögum á Íslandi?
½ mánaðar sumarferð með
hóteli og öllu – flugi- hóteli og morgunmat í
Bretlandi kostar 75.000.- En flug frá Íslandi og heim aftur
kostar 112.000.-
Ég bara spyr. Er eitthvað annað
í mjólkinni hjá ykkur en minni ??
Sigga (hrikalega flughrædd með íslenskum
flugfélögum).
(Sett inn 23.07.08):
#1013 Greifinn
á Akureyri er merkilegt veitingahús sem allir sem koma til
Akureyrar verða að koma við á. Það sem er
aðalega merkilegt við þetta fornfræga veitingahús
er þó verðlagið á matseðlinum. Jú
jú það kostar að fara út að borða og
ég veit um staði slakari að gæðum sem rukka svipað
mikið fyrir einn sveittan hammara en þegar veitingahús
rukkar 110 kr. Fyrir smá tómatsósudrull er
mér nóg boðið. OKUR!!!!!
Nafnleynd
#1012
Ég og minn maður erum gengin niður úr íþróttaskónum
okkar og ákváðum því að splæsa
á okkur tveimur pörum semsagt, einu á hvort okkar. Við
lögðum því leið okkar í "lágvöruverslunina"
Intersport Bíldshöfða sunnudaginn 20. júlí
sl. Þar er heilmikið úrval íþróttaskóm
á "útsölu". Skórnir eru ýmist á
20, 30 og 40% afslætti. Við byrjum á að róta
í úrvalinu og sjáum fljótlega að skókassarnir
eru með verðmiða sem hafa verið settir yfir aðra verðmiða!
Og að sjálfsögðu kroppuðum við efri miðann
af til að tékka á verðinu sem var undir.... og viti
menn og konur, undantekningalaust voru verðin LÆGRI á
miðunum sem voru undir! Dæmi: Íþróttaskór
sem kostuðu 13.990 kr. voru á 20% afslætti, en miðinn
undir sagði að skórnir voru á 11.990 kr. Á
"útsölunni" kosta því skórnir 11.192 kr.
eða 798 kr. frá upprunalegu verði. Sá sem lætur
plata þessa skó inn á sig er því í
raun aðeins að græða 798 kr. kaupunum en ekki 2.798 kr.
eins og maður er látinn halda!! Þetta er náttúrlega
svívirðilegt svindl og ekkert annað, jú og OKUR.
Ég fékk þá hugmynd um að heimta þessar
20% verðlækkun af neðri miðanum en maðurinn minn
mælti frekar með því að við skyldum koma
okkur þaðan út og við gerðum. Það verður
bið á því að ég fari í lágvörumarkaðinn
Intersport aftur.
Það þýðir lítið
fyrir forsvarsmenn Intersport að skýla sig á bak við
bága stöðu krónunnar og hækkandi gengi því
þessa
skó var búið að verðmerkja með tilliti til
þess gengis sem varan var leyst út á!! Og hana nú.
Látum ekki taka okkur í skræfurþurrt bakaríið
á þessum “útsölum”!!!
Hildur Rúnarsdóttir
ps. Ég tek undir með Gumma #978 með
barnamatinn. Ég er reyndar ekki svona köld eins og hann að
fara í Nóatún eftir barnamat en hef rekið mig
á mikinn verðmun á barnamat í Bónus og
Krónunni. Gerber barnamatur í krukkum nr. 2 er á verðbilinu
54-69 kr. í Bónus (fer eftir bragðtegund) en í
Krónunni eru þær allar á 99 kr. Þetta gerir
30% verðmun á dýrustu krukkunni og 45% verðmun á
ódýrustu krukkunni í Bónus sem er náttúrlega
OKUR hjá Krónunni.
#1011
Vil benda á okur hjá Franch Michelsen úrsmíðameistara
á Laugaveginum. Ég fór um daginn þangað
með armbandið mitt í viðgerð en einn krókur
sem heldur armbandinu
saman hafði slitnað og ég þurfti
nýjan. Mjög lítið mál að ég held
að laga
svona. Eftir tveggja vikna bið (er víst
mikið um sumarfrí núna en þau ætluðu
að
hringja í mig þegar það
yrði tilbúið sem þau gerðu síðan ekki)
er það loksins
tilbúið og er kostnaðurinn hvorki
meira né minna en 1800 krónur! Ég trúði
ekki
mínum eigin eyrum. Þetta er pinkulítill
krókur og ég trúi ekki að það hafi
verið mikið mál að laga þetta.
Fór með armbandið í viðgerð fyrir nokkrum
mánuðum vegna sömu ástæðu
og þá hjá Jóni og Óskari og það
kostaði nokkra
hundraðkalla. Semsagt, okur og léleg
þjónusta.
Kristín86
#1010
Langaði til að benda á mikinn verðmun á hinum
geisivinsælu buff höfuðfötum
sem börn nota mikið t.d. undir hjálma.
Þessi Buff fást víða meðal annars í
Hagkaup þar sem þau kosta 2.299 en
aðeins 1.490 í Baby Sam. Þetta er 800
kr. Rán! um hábjartan dag.
Sigrún Bragadóttir
#1009
Ég ákvað um daginn að kaupa mér strauborð.
Ég byrjaði á því að renna í Byko
á Breiddinni til að athuga með þokkalegt strauborð.
Þar var til ein tegund af strauborði og kostaði hún
rétt tæpar 10.000kr. Mér fannst það heldur
mikið fyrir strauborð og ákvað að renna við
í Rúmfatalagerinn á Smáratorgi og athuga hvort
ég fengi ekki eitthvað aðeins ódýrara. Þar
var til nákvæmlega sama strauborð og í Byko (sami
framleiðandi og sama stærð) á 4990kr. Í Rúmfatalagernum
var einnig hægt að fá aðra tegund af strauborði,
nokkuð sambærilega á 2990kr.
Hildur Tryggvadóttir
#1008
Fór um helgina á tjaldsvæðið í Þjórsárveri
( rétt fyrir utan Selfoss) og þar er rukkað 1500.-
fyrir fyrstu nóttina og svo 1200.- fyrir þá næstu,
það er kannski allt í lagi EF aðstæðan væri
í lagi!!!!!!!!
(Þetta er verð fyrir þá
sem eru ekki með útileigukortið, og eru með tjaldvagn
og stærra ( s.s. ekki tjald ))
En fyrir hvað er verið að borga ????
Það voru 4 salerni ( 2 fyrir KVK og 2 fyrir KK ), svo var 1 sturta
og 1 vaskur fyrir uppvask. En málið er að það
gátu svona 3 vaskað upp og þá var heita vatnið
búið ( veit ekki hvernig það ætti þá
að vera hægt að fara í heita sturtu ) svo voru
útisalernin 2 orðin stífluð á laugardagskvöldinu.
Mér finnst þetta vera okur fyrir
litla sem enga aðstöðu og þar sem maður er með
tjaldvagn og hefur þá engan vask eins og þeir sem eru
í hjólhýsi til að vaska upp í. Ef ég
ætti að giska að þá voru um svona allavegna
100 hjólhýsi/tjaldvagnar þannig að það
var ansi margir á svæðinu.
Ja allavegna ætla ég ekki þangað
aftur.
Elsý Vilhjálmsdóttir
#1007
Var að versla í 10-11, Grímsbæ. Keypti:
Tópas, stór pakki 179 kr !!!
Prins Póló 99 kr
Extra tyggjó, venjulegur 109 kr !!!
Lítil kók ó gleri 135 kr
!!
Alls 522 krónur og geri aðrir
betur!!!!
Mér gjörsamlega blöskraði
þetta okur.
Nafnlaus
(nb. Já en þú hefðir
getað verslað þetta kl. 4 um nótt! Nei í alvöru,
þú ferð ekki í 10-11 eða aðrar álíka
nema þú sért að biðja um að láta
ræna þig.)
#1006
Kom við á Geysi í gær. Ofbauð verðlagningin.
Einn diskur af kjötsúpu kostaði 950 kr. Er þetta
ekki okur? Langar hins vegar að benda á mjög hóflega
verðlagningu hjá nýju kaffihúsi á Norðurfirði.
Mjög notalegt nýtt kaffihús.Þar kostaði nýbökuð
vaffla með rjóma sultu og súkkulaði og GOTT kaffi
með áfyllingu aðeins kr. 650.
Margrét S. Pálsdóttir
(nb. Helvíti langt að fara í
sunnudagsbíltúrinn til Norðurfjarðar samt!)
#1005 Við
fjölskyldan höfum haft gaman af að fara í Kringluna
að borða.
Fórum í dag að borða hjá
Rikka
Chan. Komumst þá að því að maturinn
hefur hækkað um ein 20% og skammtarnir hafa minnkað heilan
helling. OKUR!!!!!
Bjarki H
#1004
Byko rukkar útskriftargjald vegna
sendra gíróseðla kr. 400. Þau mistök urðu
á afgreiðslukassa að afgreiðslustúlka setti vöru
í reikning sem átti að staðgreiða. Þetta
var leiðrétt á staðnum er varð til þess
að síðar kom rukkun fyrir 400 kr. útskriftagjald.
Þar sem þetta gjald var ekki greitt
fyrir 10 dag mánaðarins hækkaði það í
603 krónur og þegar ekki var búið að borga
20. hækkaði það í 1.184 kr. Þetta er ekki
bara okur, heldur "sjálftaka" Sem ég held að sé
pent orð yfir þjófnað!
Sigurður Bárðarson
(ATH: Ég hef lent í þessu
líka hjá þeim og þetta er bara sjálfvirkt
í
tölvunni. Þ.e. að senda út
gíróseðil ef reikningur hefur verið
notaður, og eins að það
reiknist vextir sé það ekki greitt. Ég hringdi
á skrifstofuna hjá þeim
og fékk gjaldið niðurfellt, það var ekkert mál
og þeir hinir almennilegustu!)
(ATH: Til að undirstrika hversu ómerkilegir
Byko eru þá borga þeir aldrei seðilgjöld af
reikningum sem þeim eru sendir, leggja alltaf inn beint inn á
reikning viðkomandi aðila (ef þeir geta) upphæðina
án dráttarvaxta og seðilgjalda því þeir
setja sinn eigin tíma á hvenar þeim þóknast
að borga reikninga, og sá tími er ekki stuttur. Ætli
ég gæti farið til Byko og tekið út vörur
og borgað þegar mér hentar án vaxta eða nokkurs
kostnað??)
#1003 Nú hef ég
ekki stundað dekkjaverkstæði mikið enda með menn
sem skipta
undir hjá mér bæði vor
og haust frítt. En ég lenti í því að
það sprakk
undir bílnum hjá mér um
daginn. Ekkert stórmál, ég skipti bara um dekk
enda varadekkið mitt eins og hin 4.
Ég átti svo leið í Kópavoginn og
ákvað að láta bæta
dekkið sem sprakk hjá Bílaáttunni. Góð
þjónusta og
viðgerðin tók innan við 5
mínútur, þ.e. að taka skrúfuna sem ég
hafði
keyrt á og bæta í gatið.
2000 kr fyrir pínkulitla bót og smá límklessu
takk fyrir!
Nafnlaust
#1002 Ég
fór i Bónus í dag og keypti gróðurmold
sem er framleidd á Flúðum "Flúðamold".
í júníbyrjun kostaði 20 lítra poki 389,
eða þar um bil, og í dag kostaði sami poki 459.
Gengismunur ??? eða launahækkanir (efast um að starfsfólk
kannist við það), aukinn framleiðslukostnaður ???
- þar sem þetta er lífrænn úrgangur - SPURNING?
Það er með ólíkindum að vörur sem
hafa EKKERT með gengismun að gera, né nokkuð örugglega
LAUNAHÆKKANIR, skuli geta hækkað sem þessu nemur
á rúmum mánuði.
Þórunn
#1001 Við
erum þrjár mæðgur sem ákváðum
að freista gæfunnar og versla okkur "SÓLAR-LOTTÓ"
hjá ferðaskrifstofunni Plúsferðum, förinni
var heitið viku til Costa del Sol.
Ég var búin að skoða alla
gististaði vel inná á plusferdir.is áður en
sú ákvörðun var tekin og auðvitað gæti
maður átt von á stórum vinnig í LOTTÓ-inu
og var það að lenda á eitt af glæsihótelunum
sem Plúsferðir bjóða uppá..
Svo biðum við spenntar eftir úrdrættinum
í lottóinu og viku fyrir brottför fékk ég
sendann á e-maili uppgefinn gististaðinn Apartamentos Tropicana
- og fékk einnig í emailinu link inná sumarferdir.is
og jú þar fann ég þetta fína 4 STJÖRNU
TROPICANA HÓTEL, en ég hringdi strax í Plúsferðir
til að fá þetta staðfest af því ég
sá að á TROPICANA HÓTELIÐ var gert ráð
fyrir 2 persónum í herbergi en við vorum þrjár
...... Plúsferðir fræddu mig þá á
því að það væri einhver vitleysa að
linkurinn væri inná Sumarferðir... en að við hefðum
fengið úthlutað stúdíó-íbúð
á Apartamentos Tropicana sem væri bara hinum megin við
götuna við TROPICANA HÓTELIÐ einfaldar og snyrtilegar
íbúðir sögðu Plúsferðir ... svo var
mér bent á að myndir væru af Apartamentos
Tropicana inná plusferdir.is ... jú jú það
passaði ég kíkti á myndirnar og leist bara ágætlega
þær og lýsinguna á Gististaðnum okkar Apartamentos
Tropicana....
Við komum á TROPICANA HÓTELIÐ
seint á mánudagskvöldinu 7. júlí þar
skildi Plúsferðarfarastjórinn okkur eftir og sagði
að hér myndu við fá lykla af íbúðunum
og svo byrjaði svaðilförin og það var að finna
gististaðinn sem okkur 22 íslendingum var úthlutað
í þessari SÓLAR-LOTTÓ viku... Einu vísbendingarnar
sem við fengum var frá spænskum starfsmanni í lobbýi
TROPICANA HÓTELSINS og hann benti út í myrkrið
og sagði HÆGRI og aftur til HÆGRI og viti menn í
þeirri götu sem var frekar drungaleg var EKKERT sem bar nafnið
Apartamentos Tropicana eins og ungur frændi minn sagði þegar
hann sá myndirna hjá mér þá leit Hótelið
út að utan eins og þetta væri tekið í
Bagdad....og nú skulið þið sjálf dæma
af myndunum hvernig við áttum að finna gististaðinn
sem er algjörlega ÓMERKTUR.
Við fundum af einskærri tilviljum gististaðinn
og viti menn að þegar við komum inní íbúðina
þá fengum við nú algjört áfall ALGJÖR
KOMPA og okkur datt ekki einu sinni í hug að taka uppúr
ferðatöskunum og ákváðum að mæta strax
næsta morgun á fund hjá fararstjóra Plúsferða
við buðum honum með okkur uppí íbúðina
til að fá það á hreint hvort það
væri þetta sem Plúsferðir eru að bjóða
okkur uppá og viðurkenndi hann að svo væri EKKI rafmagnsvírar
hangandi útúr veggjunum og að þetta væri
ekki mönnum bjóðandi og vildum við fá okkur
færðar á annað hótel en þegar ferðin
okkar var hálfnuð og við sáum að við fengjum
ekki annað hótel þá fyrir tilviljun urðu
við vitni af að íbúðin við hliðina á
okkur var að losna svo við fengum að færa okkur þangað
og var sú KOMPA aðeins skárri. Spænskur húsvörður
hótelsins samþykkti að við fengjum að skipta um
íbúð en það væri með einu skilyrði
að við myndum EKKI kvarta yfir að loftkælingunni í
þessari íbúð hún væri svolítið
hávær, við lofuðum því en það
rann nú á okkur tvær grímur þegar við
lögðumst til svefns þessa fyrstu nótt í aðeins
skárri íbúð í nístings gaddi og
með þyrluhljóð í eyrunum...
Húsvörðurinn góði
gleymdi að segja okkur að loftkælingin var ekki bara hávær
einnig var EKKI hægt að slökkva á henni...Ég
tók að mér hlutverk Þórðar rafvirkja
næstu kvöld og sló út rafmagninu á íbúðinni
eða öllu hótelinu við vorum ekki alveg vissar!!!!!!!!!!!!!!
Það má taka fram að við
erum allar vanar að ferðast bæði á einföldum
og fínni hótelum, en þetta var langt fyrir neðan
það sem kallast einfalt :-(
ER ÞETTA EITTHVAÐ LOTTÓ SEM
PLÚSFERÐIR BJÓÐA UPPÁ? Í OKKAR AUGUM
ERU ÞETTA VÖRUSVIK
Við sendum kvörtunarbréf strax
til Plúsferða en núna 8 dögum seinna hafa þeir
ekki enn haft fyrir því að svara okkur...
Svanhvít Stella Ólafsdóttir
(ATH: Í framhaldi af athugasemdum þínum biðjumst
við velvirðingar á því að vegna sumarleyfa
hefur dregist að svara umleitan þinni. Okkur
þótti leitt að heyra að þið voruð
ekki ánægð með gistinguna á Tropicana.
Þegar ljóst var að ferðaskrifstofan átti nokkur
óseld sæti til Costa del Sol en engar gistingar var
ákveðið að reyna að fá viðbótargistingar
og setja upp Sólarlottó. Vikan var seld á
kr 39.900. (flugsæti til Costa del Sol kostar 44.900 kr).
Venjulega er verið að nota gistingar sem við erum að
selja allt sumarið og þekkjum vel í Sólarlottóið,
en ekki að þessu sinni. Við leggjum okkur fram um að
skoða allar þær gistingar sem við erum með á
boðstólum. Að þessu sinni gafst ekki tími
til þess þar sem stutt var í brottför og urðum
við að treysta á umboðsskrifstofu okkar erlendis.
Það kom svo í ljós að íbúðirnar
á þessu hóteli eru mjög misjafnar og hafa þær
verið teknar úr sölu.
Um leið og við þökkum ykkur fyrir ábendinguna,
viljum við biðja ykkur innilega afsökunar ef aðbúnaðurinn
á hótelinu hefur valdið ykkur óþægindum
en vonum að Costa del Sol hafi staðið undir væntingum
ykkar,
Bestu kveðjur
Þjónustudeild Plúsferða og Sumarferða)
(Sett inn 21.07.08):
#1000
Við fjölskyldan fórum í Árbæjarsafnið
einn daginn sem var alveg yndislegt að öllu leyti....nema kaffihúsið
var bara djók. kvart biti úr flatköku með hangikjöti
450 kr!!! Litil gos 300 k, kökusneið 650 kr, kleina 300kr þvílík
bilun. Eyðilagði ánægjuna af annars yndislegum
stað. Mæli með ferð þangað en NESTI er málið.
Óskar nafnleyndar
#999
Ég fór í Bónus í Holtagörðum
í gær og keypti m.a. tvöfaldan pakka af
cheerios á 538 kr. Skrapp svo yfir í
Hagkaup til að kaupa nokkra hluti
sem fást ekki í Bónus. Þar
kostaði samskonar pakki 499 kr. Ekkert
tilboð var í gangi á þessu
morgunkorni í Hagkaupum.
39 kr. eru kannski ekki mikill peningur en það
kom mér á óvart að
Bónus skildi vera dýrari en
Hagkaup í einhverju tilviki.
Pumaskór sem kosta 9.990 kr í Útilífi
kosta 12.990 kr í Intersport sem
þó gerir sig út fyrir að
vera lágvöruverslun.
Guðrún Helga
#998
Ég er vafalaust einn af mörgum viðskiptavinum OB bensín
sem er með lykil og fékk því sent sms skilaboð
17. júli varðandi afslátt, sem átti að gilda
fyrir þann dag og næsta, þ.e. 18.júlí.
Ég set skilaboðin hérna eins og þau bárust.
“5 kr. afsláttur af eldsneyti hjá ÓB í dag
og á morgun = 7 kr. fyrir þá sem eru með ÓB
lykilinn. ÓB ávalt ódýrir.”
Eins og ég skil svona tilboð þegar
komið er að dælu (diesel ) og uppsett verð við dælu
er 186.50 þá stend ég í þeirri meiningu
að afslátturinn gildi frá því verði.
En þegar ég var búinn að slá lykilinn inn
þá kemur upp verðið 184.50, sem er aðeins 2ja
krónu afsláttur m.v. að vera með
lykil. Ég hafi samband við Olís
og fékk samband við markaðsstjóra og kvartaði
undan þessu tilboði (sem var ekkert tilboð), sem hann viðurkenndi
að loknum umræðum að væri klaufalega auglýst.
Hvergi kom fram hjá ÓB frá hvaða verði þessi
auglýsti afsláttur gilti. Þeir virðast líta
á síðustu eldsneytislækkun sem tilboð en ekki
raunverulega verðlækkun.
Mér finnst þetta skrítin
markaðssetning og lélegir viðskiptahættir og vildi
helst ekki fá svona sms skilaboð, sem ég hef þar
að auki aldrei beðið um að fá í símann.
Elís E Stefánsson
#997
Sem flugmaður með atvinnuflugmannsréttindi er mér
virkilega brugðið vegna viðskiptahátta Fluglækningastofnunar,
sem er, þrátt fyrir nafnið, einkarekin læknisstofa.
Því miður er maður ekki að vinna sem slíkur,
fyrir utan einstaka flugkennslu. Til að viðhalda réttindum
atvinnuflugmanns þarf maður að endurnýja læknisvottorðið
á hverju ári, sem gert er í kjölfar læknisskoðunar.
Einkaflugmenn þurfa núorðið að gera það
einungis á fimm ára fresti. Þetta er sama skoðunin
að mestu, eina sem munar er gildistíminn á skírteininu.
Fyrir tveimur árum kostaði þessi skoðun fyrir atvinnuflugmann
7.600 kr. með hjartalínuriti. Núna: 20.000 án
hjartatékks. Þetta er yfir 163% hækkun á
tveimur árum. Fyrir einkaflugmenn er hækkunin enn meiri, því
hún var ódýrari en atvinnuflugmannstékkið
fyrir tveimur árum, en nú er hún á 21.000.
Ef við reiknum dæmið; til að viðhalda læknisvottorðinu
fyrir atvinnuflugmann kostar það 20.000 á ári;
en 21.000 á fimm ára fresti fyrir einkaflugmann.
Fluglækningastofnunin segist hafa hækkað
verðskrána til samræmis við gjaldskrár sambærilegra
lækna á Norðurlöndunum. Ekki veit ég hvað
til er í því, en ef fleiri myndu temja sér þennan
hugsunarhátt myndu vextir lækka um 70%, verðbólgan
hverfa, matarkarfan yrði ódýrari og bílar myndu
lækka um 20%. En þessi hækkun fluglæknana í
Reykjavík nær engri átt og er bara ein önnur hækkunin
sem dynur á flugmönnum um þessar mundir.
Haraldur Diego
#996
Microsoft Windows Vista Ultimate 64bit FULL w/ SP1
$319.95 frá Microsoft
$189.00 frá ktiusapc
(ebay)
í íslenskum krónum
25.369,60 frá Microsoft
14.983,92 frá ktiusapc (ebay)
svo reyndar bætist aðeins á
innflutningskostnaður og þannig en ég fékk mitt
á svona 20 þúsund allt í allt. og ég
fékk 32 OG 64 bita útgáfu í sama pakka á
þessu verði.
En að kaupa þetta Á íslandi
kostar MUN meira en það...
53.750 hjá att.is
(stendur ekkert hvort þetta sé 32 eða 64 bit) OKUR
22.900 hjá tölvutækni
(bara OEM (fæst þá bara ef þú kaupir tölvu
líka))
24.900 hjá kísildal
(ekki okur ef þetta er satt...)
22.900 hjá start.is
(bara OEM (fæst þá bara ef þú kaupir tölvu
líka))
22.900 hjá tölvuvirkni
(bara OEM (fæst þá bara ef þú kaupir tölvu
líka))
23.900 hjá hugver
(bara OEM (fæst þá bara ef þú kaupir tölvu
líka))
23.900 hjá digital
task (bara 32 bit OEM (fæst þá bara ef þú
kaupir tölvu líka))
26.900 hjá tölvulistanum
(bara OEM (fæst þá bara ef þú kaupir tölvu
líka))
Ég athugaði verðin þó
aðeins með vefverslunum fyrirtækjanna, notaði vaktin.is
til að finna fyrirtækin. Ekki öll sýna þessa
vöru í sínum listum.
Ég man líka eitthvertíma
eftir að hafa heyrt um verð nálægt 70 þúsund
fyrir þennann pakka, man þó ekki hvaðan.
Kannski maður ætti bara að fá
sér Linux og hætta þessu veseni (linux er frítt
stýrikerfi, til í allskonar útgáfum)
Gunnar Guðvarðarson
(Sett inn 18.07.08):
#995
Mig langar til að benda á gott Ekki-okur. Á hinum akfína
stað Matstofan (aka Dússabar) í Borgarnesi hefur
Dússi ekki séð ástæðu til að hækka
hjá sér matseðilinn frá því í
ágúst 2007 og þar má til dæmis fá
alvöru Pinoy burger með öllu fyrir aðeins 750 kr.
Einnig er hægt að fá þar Jolly burger með öllu
fyrir 850 kr. ef maður vill gera sér sérstaklega glaðan
dag. Þá hefur Dússi ekki séð
ástæðu til að hækka gos á matseðli
frá árinu 2004. Þetta kallar meður EKKI-okur.
Guðni Halldórsson
#994
Þetta fjallar ekki um okur heldur nýjustu verðhækkanir
og súrrandi verðbólgustuð á íslenskum
kaupmönnum. Þeir eru býsna ósvífnir í
verðhækkunum þessa dagana. Ég keypti mér
poka af fílakaramellum í Nóatúni 17. júlí
sl. Merkt hilluverð var 398 kr. en þegar pokanum var rennt í
gegn var ég rukkuð um 525 kr. Það er 31.9 prósent
hækkun á einu bretti !! Takk. Ég vakti athygli á
misræminu og fékk endurgreiddan mismuninn - athugasemdalaust
- að öðru leyti en því að kassastúlkan
sagði þreytulega: “Það erum ekki við sem verðleggjum
þetta”. Karamellurnar í pokanum voru 25 talsins þannig
að stykkjaverðið er 21 króna (miðað við
525 kr. fyrir pokann), en 16 krónur á “gamla verðinu”.
Til gamans má geta þess að sömu karamellur kosta
15 krónur í lausasölu í Borgargrilli við
Miklubraut. Miklu betra að kaupa þetta í nætursölu
þar heldur en í Nóatúni.
Sjálfsagt fer að styttast í
að kaupmenn auglýsi eins og þeir gerðu í gamla
daga þegar ég var ennþá á reiðhjóli
og í takkaskóm: Eigum fyrirliggjandi nokkrar frystikistur
á gamla verðinu .... !!
Lana Kolbrún Eddudóttir
#993
Maðurinn minn skrapp í Bónus um daginn og keypti þar
grísagúllas
frá Íslandsgrís. Á pakkningu stóð
"Stolt kjötmeistarans" þannig að maðurinn minn var ægilega
ánægður með kaupin. Sérstaklega í ljósi
þess að gefinn var 20% afsl. við kassa af kílóverði
(sem var 1869 kr). Allt í góðu. Þegar heim kom
og ég byrjaði að elda matinn var fyrsta mál á
dagskrá að steikja gúllasið. Sem hefði kannski
ekki verið neitt mál nema vegna þess að það
var óvinnandi vegur. Ástæðan? Jú, það
streymdi stöðugt meira og meira vatn úr gúllasinu
þannig að það soðnaði í stað þess
að steikjast. Þetta endaði með því að
ég hellti dágóðum skammti af vatni af pönnunni,
svo miklu reyndar að mér blöskraði og ákvað
að vigta gúllasið þegar mesta vatnið var runnið
úr því. Viti menn. Gúllasið, sem var áður
508 grömm var allt í einu orðið 393 grömm! Þannig
að úr þessu hálfa kílói rann meira
en desilítri af vatni - rýrnunin var rúmlega 23% ef
ég hef reiknað þetta rétt.
Ef þetta eru ekki vörusvik, þá
veit ég ekki hvað!
Við erum hér með hætt að
kaupa nokkuð af þessu merki - ef þetta er stolt kjötmeistarans,
þá langar mig ekki að komast að því hvernig
restin af vörunum er.
Hólmfríður Gestsdóttir
#992
Ég hefsvo sem ekki staðið við grátmúrinn
mikið hvað varðar verðlagningu en ég held að
að ég verði að segja frá þessu þó
mér þyki það sárt. Fór nefnilega um
daginn í það ágæta fyrirtæki sem hét
bílanaust hér áður en N1 hefur yfirtekið
og keypti mér kerti í Terrano og reyddi þar
fram með viprur í andlitinu 6700 kr. fyrir fjögur
ngk kerti í bílinn. Hins vegar þar sem ég þeyttist
um landið tók minn eðli Terranó að haga sér
eins og rotta með rúllustigafælni og fretaði út
í eitt upp allar brekkur. Þannig að ég endaði
með að fara í Stillingu í kópavogi og þar
keypti ég fjögur Champion kerti og borgaði fyrir 2700.
kr. Sem ég svo skrúfaði í með herptar rasskinnar
og viti menn terranó rokkaði eins og geimskutla. Ég fór
svo aftur í Bílanaust og fékk þar bara spékoppa
frá afgreiðslumönnum eins og eg væri launbarn jólasveinsins
enda vinna þeir bara 8-5 og ráða bara hvað þeir
hafa í nesti í vinnuna. Ég hef hins vegar öðlast
nýja trú Terranóinum mínum en hvað varðar
N1, ja ég tek ekki margar ákvarðanir í minni fjölskyldu
en svo lengi sem ég finn til í rassgatinu (sem verður
mörg tungl) verður ekki verslað við N1 einn á mínu
heimili.
Doddi Skjól, Akureyri
#991
Intersport / Útilíf / Adidasbúðin
Ég skoðaði Adidas peysuí
þessum þremur búðum. Hún kostaði 5990
í Útilíf,
rúmar 3500 á útsölu
(áður á 5990 ) í Adidasbúðinni en 7000
á útsölu í
Intersport (Kostaði áður 9990).
Og Intersport segist vera ódýrastir og eru
með verðvernd!! En það er annars
áhugavert að sjá útsöluna í Útilíf.
Hún
er samsafn af afgöngum fyrri ára,
en “venjuleg” vara er á engum afslætti.
Flott útsala í Adidasbúðinni
þar sem allt er með 40% afslætti og þeir hafa
ekki hækkað verðið fyrir útsöluna.
Hrós dagsins til Adidasbúðarinnar. Pú
dagsins á Intersport og raunar Útilíf
líka fyrir lélega útsölu.
Nafnlaus
#990
Fór í Hagkaup í Holtagörðum um liðna
helgi og þar var auglýstur 35%
afsláttur af kryddlegnum kjúklingalundum.
Ég ákvað að skella mér á þær
þar
sem dagsetningin var líka mjög góð
á þeim en oft loðir við að afsláttur
sé á vörum hjá þeim
sem eru við það að renna út.
kem að kassanum og þá reiknaðist
afslátturinn ekki inn.
Ég vildi fá leiðréttingu
á því og það var svo sem ekkert mál
og labbaði
með piltinum alla leið út í
hinn endanum á versluninni til að sýna honum
afsláttarmiðann (leið eins og
glæpamanni).
Fyrir 2 helgum síðan fór ég
í N1 verslun í Grafarvogi fyrir ofan
kirkjugarðinn. Srákurinn fékk
að velja sér ís fyrir ferðalagið og varð
Snikcers
ís fyrir
valinu. Ósköp aumingjalegur og lítill
cone. Þegar ég er búin að greiða
fyrir vöruna fór ég að
reikna saman og fannst þetta bara alls ekki geta
passað. Þegar ég leit á
verðmiðann duttu augun nærri úr höfðinu því
ísinn
litli kostaði ekki "nema" 479 kr.!!!!
Ég varð vond móðir því
ég tók hann af barninu og sagði við hann að ég
skyldi kaupa fyrir hann risaís annarsstaðar
og skilaði helvítinu. Fékk
endurgreitt af skömmustulgeu starfsfólki
sem hefur væntanlega líka
blöskrað verðið og keypti ís
aanrsstaðar fyrir drenginn á helgmingi lægra
verði og mun stærri.
Hanna Stefánsdóttir
#989
Keypti MS Bíomjólk MEÐ JARÐARBERJUM í
KS á Sauðárkróki. Verðið kom mér
ekkert á óvart, en ég las innihaldslýsinguna:
-Léttmjólk sýrð með
Biogarde gerlum, sykur, JARÐARBER (3%) !!!!!!!!, rauðrófuþykkni,
bragðefni.
-Er réttlætanlegt að segja að
eitthvað sé með jarðarberjum ef nauðsynlegt er að
setja rauðrófuþykkni fyrir lit!?
-Réttara væri að taka fram að
vara gæti innihaldið snefil af jarðarberjum, svona eins og
gert er á súkkulaðistykkjum; Gæti innihaldið
snefil af hnetum.
-Svona eru allar jarðarberjamjólkurvörur
á Íslandi!! LÝGI!!!
Jóhann Guðmundsson
#988 Við ákváðum
að skella okkur til Reykjavíkur í "Fjölskyldu"og
húsdýragarðinn, fjórar með börnin
okkar, 11 stk. Samtals vorum við 14 og borguðum okkur inn
kr. 4500. Svo þurftu börnin auðvitað að fá
dagpassa sem kostuðu 1500 kr hver. Við keyptum 7 stk. Og þar
sem að fjögur barnanna voru ekki alveg með aldur til þess
að fara í stóru tækin voru keyptir stakir miðar
16 stk. Samtals voru þetta 18.000 kr. Þetta er svo sem allt
í lagi þar sem að þetta skiptist á þrjár
fjölskyldur. En merkingar og aldurstakmörk eru ekki
til staðar á nokkuð mörgum tækjum og lentum við
illa í því. Systir mín og mágkona
fóru með tvær fjögurra ára í ökuskólann
og máttu þær bíða í meira en korter
eftir að röðin kæmi að þeim og á meðan
þær biðu horfðu þær upp á tvo stráka
hrækja niður af brúnni á krakkana sem að keyrðu
undir brúnna, ekkert heyrðist eða sást til starsmanna
en þegar systir mín fór að svipast meira um sá
hún einn starfsmann með skeiðklukku að taka tímann
á ökuferðunum hjá krökkunum.(þær
eiga að vera ca. 3 mín) Svo kom röðin að
stelpunum þeirra og konan lítur á þær og
segir: Hvað eruð þið gamlar ? Fjögurra segja
þær og þá var þeim vísað í
burtu því að þetta er bara fyrir sex ára
og eldri !!!! Ekkert merkt og ég vil taka það fram að
þær voru fremstar í röðinni í góðan
tíma, þannig að það hefði alveg verið
hægt að pikka í þær eða láta mömmurnar
vita. Þær stóðu jú líka í
röðinni með stelpunum. Systir mín ákvað
að hafa upp á einum starfsmanni þarna og kvarta yfir lélegum
merkingum við ökuskólann, hún sagði að hún
væri bara nýbúin að taka miðann niður því
að þær Stelpurnar voru auðvitað svekktar og amma
ákvað að bjóða bara hópnum upp á
ís.... Ekki tók betra við. Mamma og systir mín
fara í röðina við sjoppuna og ég og mágkona
mín smölum liðinu okkar saman og bíðum.
Loksins kemur röðin að þeim og mamma segist ætla
að fá fimmtán barnaísa með dýfu....
Stelpan í sjoppunni segir: ha, vá það gengur ekki...
þær segja bara ha????
Stelpan: já fimmtán ísa,
sérðu ekki röðina?
Þær: Jú við vorum í
henni.
Stelpan: það er allt of mikið ég
stend ekki í því.
Þær: Viltu frekar að við
förum þrjár í röðina og kaupum fimm ísa
hver ?
Stelpan: jaaa ....
Okkur var svo misboðið og það
er greinilegt að þetta er ekki ætlað fyrir stórar
fjölskyldur.
Inga Ágústs.
#987
Hinn sívinsæli LR Henning dietkúr hefur hækkað
úr 19.000 krónum í rétt tæpar
27.000 krónur á hálfu ári,
þá er miðað við startpakkann, hvað er í
gangi!! Sjá
www.dietkur.is
en ég ætlaði að versla mér aftur startpakka,
en snarhætti við
þegar ég sá að pakkinn
hafði hækkað um 8 þúsund krónur...ég
segi að þetta hafi
bara hækkað svona vegna vinsælda
kúrsins, þetta er svívirða!!
Alva Ævarsdóttir.
#986
Hafði mjög gaman af því að kaupa Tilda hrisgjón
í Krónunni í gær. Mig vantaði grjón
og sá það út að ég yrði að kaupa
eitthvað annað en Tilda. 1kg basmalti hrísgrjón kostaði
749kr þetta er græðgi og geðveiki. Svo þegar
ég var búin að kaupa mér 0,5kg af heilsugrjónum
sem kostuðu 250kr sá ég að hægt var að
kaupa 0,5kg basmalti hrísgrjón á 149kr en þau
voru í suðupoka... Svo ég labba út með 0,5kg
af tilda í suðupokum.... og 0,5kg af heilsugrjónum fyrir
400kr. Borgar sig að skoða, enda er 749kr geðveiki fyrir 1kg
af grjónum
Kristjana Ósk Birgisdóttir
#985
Ég náði mér í 16” pizzu á Pizza
höllinni um daginn. Fínasta pizza en ég prófaði
að mæla hana vegna þess að mér hefur fundist
16” pizzur hafa minkað undanfarin ár. Þessi 16” pizza
var hvorki meira né minna en 14”. Alltaf verið að svindla
á manni.
Ólafur Hrafn Hilmisson
#984
Ég má til með að deila reynslu minni með lesendum
af verðlaginu hjá Hans Petersen. Um daginn fór
ég að láta umrædda verslun framkalla myndir fyrir
mig og bað jafnframt um að tekin yrðu út rauð
augu á sex myndanna. Starfsmaðurinn sagði mér
að það væri aukakostnaður, en þegar ég
spurði hann hvað það kostaði vissi hann það
ekki. Þar sem ég veit að þetta er auðvelt að
gera í Photo Shop hugsaði ég með mér að
þetta gæti nú ekki verið mjög dýrt og
sló til. Þegar ég síðan sótti myndirnar
kom í ljós að það að taka út rauð
augu kostar aðeins litlar kr. 450.- á mynd. Takið eftir
– á mynd! Var ég því rukkuð um heilar kr.
2700.- fyrir þessar sex myndir.
Þegar ég lét í ljós
óánægju mína og furðu var mér sagt:
,,... að þetta væri sko handgert í Photo Shop og
það tæki tíma og væri dýrt”. Ég
hringdi í Ljósmyndabúiðina í Skipholti
og fékk þau svör að nákvæmlega eins
aðgerð kostaði hjá þeim kr. 180.- Ég lét
ekki þar við sitja heldur hafði samband við skrifstofu
Hans Petersen sem fannst verðið afar eðlilegt þar sem
þeirra vinnubrögð væru betri og í því
lægi verðið. Ég sagði þeim að ég
væri félagi í Neytendasamtökunum og myndi láta
þá fá þetta mál í hendur sem ég
hef nú þegar gert og vona að þeir láti til
sín taka. Hafið þetta í huga ágætu
verðlagsvaktendur – látum ekki bjóða okkur slíkt.
Kristín Helgadóttir
(ATH: Vil bæta við okur #984, ég
ætlaði að láta "framkalla" um 80 stk af digital myndum
og renndi við í Hans Petersen og bað um að fá
þær samdægurs, það var lítið mál,
en ég þyrfti í staðinn að borga 55 kr. pr.
mynd. Þetta þótti mér frekar dýrt (4.400kr.)
ég afþakkaði og brunaði upp í Ljósmyndavörur
(Fuji) í skipholti, þar fékk ég myndirnar til
baka eftir klukkutíma og var rukkaður um 29 kr. pr. mynd eða
2.320 kr.
Með öðrum orðum Hans Petersen
er 89,6% dýrari en Ljósmyndavörur (Fuji).
Jón Ingi Björnsson)
#983
Ég skrapp í 10-11 í Staðarbergi í
Hafnarfirði því mig vantaði þvottaefni.
Þar fæst hið ágæta Neutral sem er án
allra aukaefna og þvær vel. Verðmerking í hillu
var 779 krónur fyrir pínulítinn pakka, 850 grömm.
Ansi dýrt og enn undarlegra er að varan er skýrt merkt
390 kr. pr. kíló. Þegar á kassan er komið
kostar þessi litli pakki hinsvegar 899 krónur og hefur þá
hækkað um 120 krónur við það að fara
í mína körfu og úr henni aftur. Kílóverðið
er hinsvegar áfram hið sama. Í Bónus á
Völlunum kostar sama þvottaefni í tveggja kílóa
pakkningu aðeins 389 krónur - 2 kíló á
389 krónur. Er 10-11 ekki á villigötum með
verðlagningu á þessu tiltekna þvottaefni?
Hjörtur Howser
#982
Í apríl fór maðurinn minn í langferð
sem hófst í Keflavík, hann var
með 14 kíló yfirvigt
og var rukkaður útá velli um 70.000.- krónur,
fyrir alla leiðina sem var Keflavík
- Frankfúrt - Madríd - Banjul.
Honum þótti þetta okur og
fór fram á að borga aðeins þann hluta sem
Icelandair átti tilkall til Frankfurt
sem var 14.000.- kr. Í
Frankfurt var hann síðan rukkaður
um 7000.- kr og ekkert eftir það
mismunurinn semsagt 50.000.- kr.
Þegar heim var komið forvitnaðist
ég um hverju það sætti að munurinn
væri svona mikill, þjónustufulltrúi
Icelandair sagði mér að þeim væri
uppálagt að að rukka fyrir alla
leið og að kílóið kostað 50 evrur í
Evrópu. Etthvað var ég ósátt
við útskýringarnar og hafði samband aftur
við Iclandair eftir tvo eða þrjá
daga og þá var sama svarið nema að
kílóið í evrópu
var komið í 100 Evrur eða 12000.- íslenskar krónur.
Því miður á ég
bátt með að trú því að það
sé satt, 100% munur á milli
daga er ekki trúverðugur.
Ég vil koma þessu á framfæri
til allra þeirra sem fara í tengiflug að
það margborgar sig að greiða
ekki yfirvigt fyrir alla leið á
upphafsstað ef að hann er ísland.
Auður Friðriksdóttir
#981
Núna er Smárabíó búið að
ganga fram af mér þrisvar í röð svo ég
hugsaði með mér - hingað og ekki lengra, ég verð
að deila þessu með öðrum!
Fyrsta skiptið vorum við hjónin
að fara með börnin í bíó á mynd
sem var bönnuð innan 12 ára (Hulk). Börnin eru innan
við 12 ára en í fylgd með fullorðnum svo ég
taldi mig geta keypt barnamiða handa börnunum. En Smárabíó
bíður ekki upp á það- heldur þurftum
við að kaupa 4 miða á 1000 kr. stykkið. Við
fórum síðan í Sambíóin með börnin
að sjá Indiana Jones, sem er líka bönnuð innan
12 ára (já, við erum auðvitað ferleg að fara
með börnin á bannaðar myndir en það er önnur
ella). Þar var að sjálfsögðu hægt að
kaupa 2 barnamiða og 2 fullorðins- plús fyrir Sambíóin.
Annað skiptið var ég á
hraðferð og syni mínum vantaði afmælisgjöf
handa vini sínum. Við höfum oft verslað bíómiða
í Sambíóum í afmælisgjafir (á
barnabíómiðaverði) og þar sem ég var
stödd í Smáralind þá skaust ég í
Smárabíó með það í huga að
kaupa afmælisgjöfina. Ég fer í miðasöluna
og bið um gjafakort á barnabíómiða, en miðað
við fyrri reynslu hefði ég getað sagt mér það
sjálf að það væri að sjálfsögðu
ekki hægt. Mér var boðið að kaupa gjafabíómiða
á 1000 krónur, en þeir selja ekkert sem heitir barnabíómiða-gjafakort.
Annars plús fyrir Sambíóin.
Þriðja skiptið sunnudaginn 13 júlí.
Við hjónin ætluðum með börnin í bíó
svo ég skimaði yfir bíóauglýsingar Fréttablaðsins.
Þar stendur mjög skýrt að það kostar 550
krónur á fyrstu sýningu dagsins í Sambíóum.
Smárabíó auglýsir hins vegar "tilboðsverð"
á fyrstu sýningar dagsins, en það kemur hvergi
fram hvert tilboðsverðið sé. Þar sem við búum
stutt frá Smáralind þá hentaði okkur best
að fara þangað en ég ákvað samt að
hringja í miðasöluna og athuga hvert tilboðsverðið
væri. Miðasalan opnaði hins vegar ekki fyrr en 12.30 og myndin
byrjaði klukkan 13:00 svo við fórum á staðinn
og biðum í biðröð. Og viti menn- tilboðsverð
Smárabíó-manna var 650 krónur. Ef ég
hefði álpast í Álfabakkann í bíó
hefði ég sparað mér 400 krónur- og það
er bara heilmikið á þessum síðustu og verstu.
Það sem fer líklega mest af öllu í taugarnar
á mér er þó að menn komist upp með að
auglýsa "tilboðsverð" án þess að það
komi fram í hverju tilboðið felst.
Berglind Ósk Kjartansdóttir
#980
Fyrir ári síðan auglýsti KB banki fjarfestingarleiðir
, svokallaðir Gull og Silfur leiðir með höfuðstólstryggingu.
Fimmhundruð þúsund krónur var lágmarksupphæð
sem hægt var að fjarfesta. Samkvæmt opinberum tölur
hefur KB banki ekki gengið illa í fyrra – var með um 39miljarða
kr. hagnaður en við fengum í dag 500þ kr. okkar til
baka – ekki einni krónu meira en þá upphæð
sem við fjárfestum í Silfur ávöxtunarleið
fyrir ári síðan. Ekki var nú silfrið mikið
sem við fengum að árinu liðnu. Í raun og veru
fengum við ekki einu sinni upphæðina til baka því
verðbólgan er búin að taka sína sneið.
Skilur einhver þetta???
Esther Brune
#979
Mig langar til þess að láta vita af okri á ferðum
á milli Reykjanesbæjar og Reykjavíkur. Önnur
leiðin með SBK kostar hvorki meira né minna en 1200kr aðra
leið 2400kr fram og til baka. Þetta er algjörlega
fáránlegt verð. Sendi hérna með verðlista
SBK
Skagamenn komast svipaða vegalengd með
strætó og borga aðeins venjulegt strætógjald
eða nota grænakortið. Væri nú gaman ef
ráðamenn í Reykjanesbæ myndu beita sér fyrir
strætóferðum á milli.
Þórey Guðný Marinósdóttir
#978
Ég fór í Nóatún að kaupa barnamat.
Ég keipti 14 krukkur af Garber með hinum ýmsu bragðtegundum
og Nestle 370 GR Hafragraut fyrir ungabörn. Afgreiðsludaman rukkar
mig um 2638 krónur. Ég borga en hugsa að það
geti ekki staðist þannig að ég kíki á
miðann þegar ég fæ hann og sé að krukkan
er á allt frá 129kr til 149 kr stikkið og Hafragrauturinn
á 845kr. Ég skila öllu umsvifalaust og fæ ekki
annað en inneignarnótu í staðinn. Ég fer í
bónus og kaupi allt það sama, nema þar kostar krukkan
54 til 69kr stykkið og Nestle hafragrauturinn kostaði 389. Heildarupphæðin
er því nú 1.280 krónur fyrir allt það
sama. Sparnaður 2638 - 1280 = 1358kr.
Tekið skal fram að þetta var Bónus
og Nóatún á Selfossi.
Gummi
#977
Ég var sendur í búð gærkvöldi því
þegar verslað var vegna baksturs í Bónus fyrr um
daginn hafði gleymst að kaupa sykur og lávöruverslanirnar
voru lokaðar. Því varð ég að fara í
einu matvöruverslunina sem var opin sem heitir Samkaup á
Akranesi.
Ég fór þar og tók
3 x 2 kíló af sykri og var hver poki merktur 289 kr stk.
Þegar kom á kassa tók ég eftir því
að þá var verðið 339 kr stk og gerði ég
athugasemd við það, þá sagði stelpan á
kassanum að 289 kr væri vitlaust verð en rétt verð
væri í tölvunni, ég sagði henni að það
væri ekki rétt því að hilluverð væri
alltaf rétt verð og fyrir því væri nú
landslög sem segðu svo og bað ég hana að leiðrétta
verðið í kassanum í samræmi við merkt hilluverð.
Þá bar að annan eldri starfsmann sem sagði mér
að það hefði bara ekki verið leiðrétt
hilluverð og rétt verð væri verðið sem væri
í kassanum. Sótti hann þá hillu miðan og
kom í ljós að fullyrðing mín um verðið
var rétt og endurtók ég þá að það
væru nú bara lög gegn svona viðskiptaháttum
og bað um að ef þau gætu ekki leiðrétt verðið
þá hringdu þau i einhvern sem gæti það.
Eftir að ég beið mjög lengi og margir afgreiddir fram
fyrir mig þá var ég loks afgreiddur með miklum
trega á hilluverðinu. En ekki fékk ég nokkra afsökun
eða nokkur hlut frá þeim.
Mér finnst forkastalegt að Samkaup
á Akranesi hækki vöru úr 289 í 339 sem
er Okur! og hafi eitt verð í hillu og annað í kassa.
Verslunin uppfræðir starfsfólk ekki á nokkur hátt
um hvernig á að taka á því þegar upp
kemst um svik verslunarinar á viðskiptavinum sýnum.
Og loksins þegar maður fær leiðréttingu
þá er ekki einu sinni beðist afsökunar.
Það þarf ekki að taka fram
hvar ég versla ekki á Akranesi
Hafþór Pálsson
#976
Fór um daginn í bíó og vitið menn,
miðinn kominn í kr 1.050,-. Hefur hækkað um
kr. 205,- á skömmun tíma. Þetta er andskoti
vel í lagt. Miðaverð var lengi kr. 800,-. Það
var þegar gengisvísitalan fór yfir 150 stigin hér
um árið. Síðan lækkaði vísitalan
en ekki lækkaði miðaverðið. Ég vil meina
að kvikmyndahúsaeigendur hafi enga ástæðu til
þess að hækka verðið núna. Keypti
mér lítin popp og litla kók og var rukkaður um
rúmlega kr. 400,-. Sem sagt; bíóferð upp
á tæpar kr. 1.500,-
Siggi Helgi
#975
Ég á Daihatsu Cuore sem er einn heilbrigðasti bíll
sem fáanlegur er en hlutir bila. Hjá mínum fór
kúplingsvír
nú um daginn og eiga engir slíkan nema umboðið ef
umboð skal kalla, Brimborg sinnir þessu bílmerki svotil
ekkert og enginn þarábæ veit hversvegna.Vírinn
var hægt að panta og það er svosem ekki hægt
að kvarta undan verðinu sem er 6000 en hjá Bílahlutum
kostaði vírinn notaður! úr gömlu hræi
5000. Það er okur.
Daihatsu eigandi.
(ATH: Í fyrsta lagi er Daihatsu sinnt
varahlutalega og þjónustulega eins og kemur glögglega
fram í kvörtuninni og verð á nýjum hlut hagstætt
m.v. notaðan hlut. En varðandi sölu á nýjum
Daihatsu bílum þá hafa bílarnir undanfarin ár
ekki verið samkeppnishæfir í verði og því
hefur Brimborg ekki getað boðið þá á Íslandi
á verði sem íslenskir neytendur eru tilbúnir til
að greiða fyrir þá. Þetta hafa starfsmenn Brimborgar
verið upplýstir um og full djúpt í árinni
tekið að halda því fram að enginn viti hvers vegna
Daihatsu hefur ekki verið seldur hér á landi undanfarin
ár.
Með kveðju
Brimborg ehf.
Egill Jóhannsson, forstjóri)
#974
Faðir minn fór fyrir stuttu í Griffil Skeifunni 11 til
þess að kaupa svart
blekhylki í Canon ljósmyndaprentarann
sinn. Hann fær aðstoð starfsmanns
við að finna hylkið, tjáir
honum að þetta sé IP3300 týpan sem honum vanti
hylkið í. Starfsmaðurinn finnur
hylki og faðir minn borgar fyrir það.
Þegar hann kemur heim opnar hann sölupakkningarnar
sem hylkið er í og sér
strax að þetta er ekki rétta
hylkið, sölumaðurinn hafði selt honum hylki í
IP3000 sem er eldri týpa og notar ekki
sömu hylki, hann sleppir því að
opna plastið sem hylkið sjálft
er í.
Þegar hann kemur aftur í Griffil
og ætlar að fá rétta hylkið þá
neita
starfsmenn að taka við því
sökum þess að það er ekki í "söluhæfum
umbúðum".
Vissulega var sölupakkningin (pappaaskja)
opin að ofan en hylkið var ennþá í INNSIGLUÐU
plasti. Mér finnst það hneykslanlegt að viðskiptavinurinn
þurfi að líða fyrir augljós mistök starfsmanns.
Arnar Sigurður Ellertsson
(ATH: Ég bara varð að skrifa vegan OKURS nr. 974
(maðurinn sem fékk vitlaust prenthylki í Griffli og var
neitað um að skipta í rétt hylki). Svona á
maður ekki að láta yfir sig ganga. Ég veit að
mörgum finnst erfitt að vera “með læti” eða “rífast”
við starfsfólkið, en maður verður bara að standa
á sínu (eins og maðurinn í OKRI 977 sem var að
kaupa sykurinn á Akranesi, gott hjá honum!). Í þessu
tilviki var það starfsmaður sem lét manninn hafa vitlausa
vöru. Ef starfsmenn neita að leiðrétta mistök,
þá í fyrsta lagi reynir maður að fá
að tala við einhvern hærra settan. Ef sá vill ekki
leiðrétta mistökin er ég með leið sem virkar
nánast alltaf. Hún er ekkert mjög skemmtileg (fyrir
flesta) en hún virkar. Maður verður bara að vera nógu
andskoti leiðinlegur og erfiður, þannig að þeir
endi með því að gera það sem maður vill,
bara til að koma manni út úr búðinni. Ef með
þarf getur maður stoppað alla afgreiðslu í einni
röð á meðan, svo fullt af pirruðu fólki
sé að bíða og stafsmanninum finnist skárra
að láta undan en að allt stoppi.
Það er rétt fólk! Make a scene! Ef það
er eina leiðin til að fá réttlætinu framgengt,
þá það. Og það fyndnasta er, vitiði
hvar ég lærði þetta trick? Hjá varðstjóra!
Perla Haraldsdóttir.)
#973
Á leið okkar til útlanda í rauðabítið
á dögunum ákváðum við skötuhjúin
að fá okkur léttan árbít hjá Kaffitári
í Leifsstöð. Keyptum við okkur tvo bolla af kaffi latte
ásamt skinkufylltu croissanti og rúnnstykki. Þetta
losaði rúmar 1700 krónur. Mestu munaði um rúnnstykkið
sem var skreytt graskersfræjum og fyllt kjúklingabaunakássu
(hummus) og smávegis salati: 640 krónur, takk fyrir. Ég
hefði skilið verðlagninguna ef humar eða hráskinka
hefðu verið áleggið en ekki baunasalat. OKUR!
Kristrún Jónsdóttir
Okur #903 - 972 eru hér.
Veistu um svakalegt okur? Láttu
vita! |