Galopna kröfugangan - ÓGÖNGUR 2008
...já þessi gamla góða
Þá er komið að kommbakki Galopnu kröfugangarinnar
og í ár göngum við á Facebook undir nafninu ÓGÖNGUR 2008.
Upphaflegt markmið hinnar galopnu kröfugöngu var að skapa vettvang
til að viðra lýðræðið og tjáningarfrelsið. Fyrst með Meðgöngu 1999, svo Afturgöngu 2000,
síðan var það Afganga 2001 og Lausaganga 2002 og síðast Leynigánga 2003.
Nú er svo komið í lýðveldi okkar að nauðsynlegt er að bera í bakkafullan lækinn.
Það gerum við með því að fylla síður af kröfum okkar hverjar sem þær nú eru á Fésbókarslóðinni:
http://www.facebook.com/event.php?eid=66051215608
- og svo endum svo með blysför að stjórnarráðinu á gamlársdag
með viðkomu í Kryddsíldinni.
Slagorð Áhugamanna um kröfugöngur:
Vér mótmælum öllu!
Látum það ganga!
Þjóð gengur þá þrír ganga!
Byltingin bloggar sig sjálf!
Sjá nánar sögu Galopnu kröfugöngunnar hér að neðan...