Saga prjóns I
Handavinnusíða Hörpu
Heimasíða Hörpu Hreinsdóttur
 
 
 
Svissneskar skjóður undir helga dóma
Elstu varðveittu prjónastykki í Evrópu tengjast flest kaþólsku kirkjunni enda rík stofnun og voldug. Meðal þess sem elst er talið af varðveittu prjónlesi eru sex skjóður sem taldar eru hafa geymt helga dóma, þ.e.a.s. einhverjar líkamsleifar dýrlinga. (Myndin til vinstri er af Chur-skjóðunni og krækir í stærri mynd. Hér má sjá myndir af endurgerðri skjóðunni og einnig hér. Litum hefur verið breytt í seinna dæminu um endugerð og skjóðan er ranglega kennd við Sion.)

Svissnesku skjóðurnar eru taldar frá fjórtándu öld og svo líkar eru þær að þær eru taldar af sama uppruna. Fimm þeirra fundust í dómkirkjunni í Sion (Sitten) en ein í dómkirkjunni í Chur. Sion er í vesturhluta Sviss en Chur er í austurhluta landsins.

Hver skjóða er prjónuð í hring úr fínspunnu silkigarni. Prjónið er slétt tvíbandaprjón. Prjónafesta er um 7 lykkjur á sentimetra.

Skjóðurnar eru ferhyrndar og á bilinu 20,5-34 cm langar, 16-26 cm á breiddina. Þær eru saumaðar saman í botninn sem skreyttur er 9-15 löngum skúfum. Opið er dregið saman með löngum streng með dúskum/skúfum á hvorum enda. (Svarthvíta myndin til hægri er af einni skjóðanna sem fundust í Sion. Litla myndin krækir í stærri mynd.)

Sjá má skannaðar myndir af öllum skjóðunum úr bók Richards Rutt, A History of Hand Knitting, á síðunni Medieval Knitting Notes. (Þar eru þær sagðar frá 13. öld en Rutt telur þær ekki alveg svo gamlar.) Endurgerðir þessara skjóða má m.a. sjá hér, hér og hér

Hér er grein um fléttuðu strengina á þessum skjóðum.

Einnig hefur fundist prjónuð skjóða í dómkirkjunni í Sens í Frakklandi, líklega frá þrettándu eða fjórtándu öld. Hún er talsvert ólík svissnesku skjóðunum, er t.d. miklu minni og virðist mega greina letur efst á henni. Skjóðunni er skipt í fjóra fleti með strautböndum. (Krækt er í mynd af skjóðunni frá Sens.)

Smelltu á myndina til að opna pdf-skjal með munstrinu af Chur-skjóðunni.
Litirnir í munstrinu samsvara greiningu Richards Rutt.
 
 


Smelltu á myndina til að opna pdf-skjal með munstrinu af einni af Sion-skjóðunum.
Litirnir í munstrinu samsvara greiningu Richards Rutt.
 
 
 

 

Heimild fyrir utan efni á vef sem er krækt í:

Rutt, Richard. 1989. A History of Hand Knitting. Interweave Press, Colorado 1989 (fyrst gefin út 1987), s. 50-52
 
 
 
 
 
 
 

Gert í mars 2012
Harpa Hreinsdóttir