Án titils
Vídeóskúlptúr/ vídeóinnsetning
Samsýning þriðja árs nema
Austurbær nóvember 2007
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Eitt áberandi viðfangsefni í verkum mínum er ákveðið varnarleysi, einhver viðkvæmur hluti af okkur sjálfum og / eða samfélaginu sem við felum og jafnvel gleymum til þess að vera ekki of auðsæranleg. Þessi hluti er jafnframt okkar styrkur sem við höfum oft gleymt.
Myndbandið er af ungbarni sem er baðað í hvítum bala. Barnið spriklar af lífi og ánægju í vatninu. Þessari mynd er svo varpað aftur á balann fullan af vatni. Vatnið myndar ákveðna mótstöðu þannig að barnið virðist þrívítt og sjónhverfingin er alger.