PRANA / Lífsorka
Vídeó innsetning
7:56:23 mínútur
Nóvember 2005
 
Ég stend í dyragjætt og  horfi inní framtíðina með gustinn úr fortíðinni í bakið. Ég held á ljósi sem varpar
flöktandi skuggum í báðar áttir. En um leið velti ég því fyrir mér hvort tíminn sé svona línulegur. Er fortíðin fyrir aftan og framtíðin framávið eða getur verið að tíminn sé hringlaga með ekkert upphaf og engan endi. Hvaða merkingu hefur það fyrir okkur sem mannverur? Hverju breytir það um upplifun okkar á umhverfinu?
 
Myndbandið er hluti af tilraunum með ljós sem varpað er í gegnum glerkúlu. Myndinni er varpað á pappír sem strekktur er í dyragætt milli tveggja rýma. Þannig sér áhorfandinn ekki ljósgjafann og áttar sig ekki
auðveldlega á því hvort einhver er á bak við tjaldið.