Söguþráður - Storyline
Textil video 5,6min
April 2006
Í verkinu er unnið með textil og hina gömlu kvenlegu arfleifð: þessa gömlu vitru konu, næstum goðsagnakenndu veru, hana sem þekkir fortíð okkar og forsögu sem hún varðveitir í sögunum sínum. Myndbandið sýnir andlit 95 ára gamallar konu sem er mikill sögumaður. Hún er á myndinni að segja sögu en vegna sjónarhornsins og þess hve myndin hefur verið hægð niður finnst manni nánast eins og maður sjái hrukkurnar myndast á andliti hennar. Það er sagan í andliti hennar sem áhorfandinn upplifir.