Án titils
Videó skúlptúr/ vídeóinnsetning
Kjarvalsstaðir apríl 2008
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Konan í baðinu er á vissan hátt eins og fóstrið sem hún ber í þröngu rými umlukin vatni og bíður eftir að fæðast. Baðkarið getur líka minnt á líkkistu og það hvernig lífið og dauðinn eru samofin í eina órjúfanlega heild. Mig langar að við getum munað meira, dýpra og víðar, náð í minni sem hjálpar okkur upp úr úreltum hjólförum karlveldisins, hjálpar okkur að muna eftir lífgjafanum, konunni, eftir sjálfum okkur, sem virtri veru.....
 
Skissurnar hér fyrir neðan eru af froskakonu – konu með frosklaga fætur - sem koma fyrir á tréristumyndum frá seinni hluta steinaldar. Þær voru ristar í bein og fundust í helli hjá Les Trois Freres í Suður Frakklandi frá því 10.000 fyrir Krist. Þessar skissur voru m.a. kveikjan að verkinu.