Þversögur
Vídeóinnsetning með hljóði
Janúar 2008
Myndbandið sýnir skóg þar sem upptökuvélin skimar um eins og í leit og staðnæmist öðru hvoru þannig að áhorf- andinn nær að fókusera á smáatriðin í trjánum og umhverfinu en heldur svo jafnskjótt aftur að skima. Um leið heyrast raddir sem segja persónulegar sögur fólks af atburðum sem hefur hent það, atburðum sem kalla mætti yfirnáttúrulega reynslu eða því sem stundum er hversdagslega kallað “tilviljanir”.
Hugsunin á bakvið verkið tengist m.a. hinum ólíku mystísku stærðum allt í kringum okkur sem koma meðal annars fram í vísindunum. Í stærðfræðinni er talað um rauntölur og þvertölur. Þær eru settar á ás lárétt eru rauntölur og lóðrétt eru þvertölur. Rauntölur eru allar þær tölur sem eru mælanlegar. Þvertölur eru aftur á móti þær tölur sem verður að bæta við til að láta viss mengi ganga upp en eru samt ómælanlegar.i²=-11
Þessar tölur voru fundnar upp af stærðfræðingi á 17.öld og kallaði hann þær „nombre imaginaire pur“ sem þýðir „algjörlega ímyndaðar tölur”. Þessar tölur eru eitt megintæki skammtafræðinnar (Quantum phisics) í dag.
Jógi Shiv Sharan Sing setti upp svipaða myndlíkingu fyrir andlegt og veraldlegt líf. Hann setti veraldlegar gerðir okkar á lárétta ásinn en andlegan part lífs okkar á lóðrétta ásinn. Hann heldur því fram að til þess að lifa í réttu jafnvægi ættum við að einbeita 80% að kröftum okkar á lóðrétta ásinn en 20 % á lárétta ásinn. En raunin er að við höfum þetta flest alveg í öfugum hlutföllum.