Print this page

Velkomin á heimasíðuna mína

Ég býð mig fram í 2.-4. sæti í forvali VG nú í mars 2009. Rauði þráðurinn í pólitískum áherslum mínum eru húmanismi og mannréttindapólitík, sjálfbær þróun, innflytjenda-, friðar- og þróunarmál – réttur komandi kynslóða til mannsæmandi lífs. Sú lýðræðisbylting sem kallað er á um allt samfélagið er mannréttindakrafa og býð ég fram krafta mína til að leggja henni lið – þar vil ég umfram allt vera talsmaður baráttu og bjartsýni.

 

Hver er ég?

Ég starfa sem þýðandi og ritstjóri, íslenskukennari hjá Alþjóðahúsi auk þess að vera framkvæmdastjóri Múltikúlti (multikulti.is).

Lauk stúdentspróf frá Flensborg í Hafnarfirði, BA í íslensku og MA í þýðingafræðum frá Háskóla Íslands.

Á meðal fyrri starfa minna má m.a. nefna verslunarrekstur, útflutning á fiski og hraungjalli en auk þess hef ég gegnt ýmsum störfum til sjávar og sveita.

Ég er kvæntur Sólveigu Jónasdóttur, mannfræðingi og á fjögur börn á öllum skólastigum, háskóla, framhaldsskóla, grunnskóla og leikskóla. Þau heita: Saga, Óskar, Jónas Hákon og Inga Sóley.



Næsta síða:Áherslumál