markposter
Pétur Örn - Helgi Hjaltalín
Markmið - Pétur Örn - Helgi Hjaltalín
10. 02. 2007 - 04. 03. 2007
 
OPNAR 10.FEBRÚAR KLUKKAN 17.30

Ímyndunaraflið hefur verið mikilvirkasta leiktæki drengja á öllum aldri í árþúsundir. Þannig hafa leggur og skel orðið að myndarlegum búsmala, trékubbar orðið að farskipum og flugvélum, og nokkrir einfaldir málmbútar að dularfullum framtíðartækjum og tólum til að sigra heiminn. Allt hefur virkað sem frekari hvati á drengi til að ímynda sér eitthvað enn meira framandi og furðulegt.

Með aldrinum fá flestir útrás fyrir áhuga sinn á tækjum og tólum í raunveruleikanum, og síðustu áratugir hafa verið gósentíð að þessu leyti; risajeppar, seglbretti og önnur óvenjuleg farartæki eiga sér dyggan aðdáendahóp, sem þreytist seint á að breyta, bæta, styrkja og búa til ný hlutverk fyrir þessi leikföng lífsgleðinnar. Tækjamanía er orðin viðurkenndur lífsstíll.

Helgi Hjaltalín og Pétur Örn Friðriksson hafa unnið saman að því að færa þetta áhugamál inn á svið myndlistarinnar. Það hefur þeim tekist með því að smíða furðutæki af ýmsu tagi; farskjóta fyrir nær óhugsandi aðstæður, tæki og tól sem hafa vafasamt notagildi, og vélar sem geta varla sinnt hlutverki sínu.

Notagildið er ef til vill takmarkað, en "markmið" þeirra Helga og Péturs virðist oftar en ekki vera ferðalag - hvort sem það er ferð myndbandstökuvélar niður fjallshlíð eða ferðir ýmisskonar ökutækja, sem ímyndunaraflið knýr áfram. Af þessum ökutækjum skín bæði lífsgleði og glettni, nær stráksleg ánægja yfir því sem hægt er að gera, og þeim ferðalögum, sem þannig er hægt að leggja í.

Þeir Helgi Hjaltalín Eyjólfsson og Pétur Örn Friðriksson eru með sýningar er bera heitið“Markmið”. Það fer varla upp eða niður myndlistarsýning á helstu söfnum Reykjavíkurborgar án þess að þessir tveir komi þar nálægt, þeir bæði þekkja það að gera verkin sýnileg okkur hinum á sýningum sem og þegar þeim er pakkað ofan í kassa eða inn í geymslur eða í gám. Þeir höndla og sjá það sem við hin sjáum ekki, hinar hliðarnar, bæði fyrir, núna og seinna. Svona einsog ef maður skoðar bækling frá byggingavörumarkaði og lætur sig dreyma um hjólsögina eða flottu borvélina,spurningin er hvort aðdáunin sé á tækinu eða á því sem maður ætlar sér að nota tækið í, nema bæði sé. Sýningin í Kling & Bang gallerí, tvær einkasýningar í samvinnu, þar sem nýbúið er að taka upp úr kössunum en líka setja inn í gám, löngu búið að skrúfa saman en líka sagað upp á nýtt. Þar fara saman ný verk og verk sem eru endurgerð að þau verða jafn ný og ógerðu verkin sem kvikna með byggingavörubæklingnum.Þar verður sýningin sjálf endurgerðin frekar en verkin sjálf og möguleikarnir óþrjótandi.
Sýningin stendur til 4.mars og er Kling og Bang gallerí, Laugavegi 23 opið fimmtudaga til sunnudaga frá klukkan 14 – 18. Allir velkomnir, enginn aðgangseyrir.
 
 
 
 
 
Grandagarğur 20 - 101 Reykjavík kob@this.is