gelitincollage
Gelitin
HUGRIS
15. 07. 2006 - 13. 08. 2006
 
15.júlí - 30. júlí 2006
Opnar 15.júlí klukkan 19.30
GJÖRNINGUR aðeins á opnun kl.19.30 / SÝNING

„HUGRIS“ í undralandi

Ímyndunaraflið er frumkraftur tilverunnar. Það getur umskapað
raunveruleikann. Aðeins þeir sem sjá fyrir sér það ósýnilega ná að
framkvæma það ómögulega. Með krafti ímyndunaraflsins er hægt að sjá
það ósýnilega, taka á því ósnertanlega og framkvæma það ómögulega.
Þeir sem draga í efa að þetta sé hægt eiga ekki að standa í vegi
fyrir þeim sem stunda þetta. Málið er að einmitt þeir sem ástunda
notkun ímyndunaraflsins hafa rökstuddari hugmynd um hvað lífið snýst
en þeir sem trúa ekki á það. Í rauninni þarf raunsæismenn til að trúa
á kraftaverk. Endurnýjum ímyndunarafl okkar á hverri stundu! Er það
svo erfitt í raun? Við vitum hvað þarf að gerast en gerum við það sem
við vitum. Lífið springur út eins og goshver hjá þeim sem komast í
gegnum skel aðgerðarleysisins. Kyrrstaða á bara heima hjá
myndastyttum. Veröldin hreyfist og hugmyndir sem einu sinni voru
góðar eru ekki endilega góðar í dag. Í dag er grasið eins grænt og
hægt er að hafa það. Döfnum þar sem okkur er plantað. Það sem er
hefur alltaf verið. Ef við breytum viðhorfi okkar til hluta fara
þeir að breytast. Er það svo erfitt? Ruglum ekki saman hreyfingu og
framkvæmd. Þegar við breytum því sem við trúum, breytist það sem við
gerum. Ímyndunaraflið er ekki ósvipað skrúfulykli - það passar á
allt. Kertaljós tapar engri birtu eða krafti með því að gefa öðru
kerti ljós. Hugurinn er eins og fallhlíf - hann virkar ekki nema
opinn. Ímyndunaraflið ögrar sálinni að fara lengra en augun sjá. Við
þurfum bara að taka á okkur gjörðina - ekki útkomuna. Ímyndunaraflið
gefur óséðum hlutum von. Takmörkum aldrei framtíð okkar með því að
gera bara það sem við höfum alltaf gert. Er það svo erfitt? Víkkum
skynjun okkar og þrengjum væntingarnar. Finnum það sem býr í okkur
sjálfum - allt annað er tilbúið. Að ímynda sér ástarleiki er miklu
áhugaverðara en ástin í raunveruleikanum - jafnvel meðan leikurinn er
stundaður. Að gera það aldrei er mjög kynæsandi. Er það svo erfitt?
Það sem liggur fyrir framan okkur er svo lítilfjörlegt miðað við
kraftinn sem býr innra með okkur.

SJÁ EINNIG: http://artnews.is/issue010/010_gelatin.htm


Gelitin hópinn þarf vart að kynna fyrir þeim sem á annað borð fylgjast með listum en þeir hafa þekkt hvorn annan síðan 1978 og starfað saman síðan 1993. Á ferli sínum sem hópur hafa þeir sýnt m.a. á Feneyjartvíæringnum, Sjanghæ-tvíæringnum, Gagosian gallerí í New York og Pompidou í París og víðar.
Þeir hafa vakið mikla athygli fyrir verk sín þar sem þau eiga sér ekki endilega stað né tengingar innan veggja gallería eða listastofnanna heldur oftar en ekki við veruleikann í allri sinni mynd. Verk þeirra geta verið teikningar, skúlptúrar, gerningar, ferðalög eða eitthvað allt annað sem veruleikinn býður upp á. Líkaminn kemur þó alloft við sögu í list Gelitin og fremja þeir oft gerninga, sem mörgum hverjum þykja grófir þar sem þeir leyfa sér að leika með og teygja á hinu almenna tungumáli líkamans.
Gelitin segir m.a. um verk sín; “Fólk verður líkamlega ástfangið af því sem við gerum. Það er þessi “með fiðrildi í maganum” tilfinning sem við reynum að skapa í öllu því sem við gerum. En í sumum verkum okkar viljum við líka kalla fram hrylling, losta, þrá, svæsna kynferðislega girnd og aðrar jákvæðar tilfinningar. Við notum þau efni sem möguleg eru, þannig að tilvísanir okkar eru tilviljunarkenndar.”

Eitt þeirra verka Gelitin sem hlotið hefur mikla athygli var þegar þeir byggðu svalir á Tvíburaturnanna sem voru og hétu er þeir höfðu tímabundna vinnustofu þar. Var gluggi tekin úr, svölunum skotið út í 20 mínútur meðan einn af hverjum meðlimi Gelitin birtist á svölunum. Einnig hlutu þeir nýlega mikið lof fyrir sýningu í Leo Koenig galleríinu í New York, borginni þar sem umhverfi listarinnar snýst fyrst og fremst um að selja. Þar byggðu þeir einskonar híbýli inni í galleríinu, lokuðu sig þar inn í viku með engum gluggum, símum, sjónvarpi eða klukku. Gestir sýningarinnar gátu komið með hvaða hlut sem er, set inn í híbýlið í gegnum þar til gerða lúgu og stuttu seinna skilaði hluturinn sér ásamt eftirlíkingu af þeim hlut, gerðum af Gelitin gestinum til eignar.

Gelitin elska að ferðast og eru listamenn, þar af leiðandi gæti maður spurt sig hvort það að ferðast geti orðið að list eða er það leitun að list? Gelitin leitast við með list sinni og ferðalögum að búa til tengingu milli síns og veruleikans.
Nýlega ferðuðust þeir á vespum frá Vínarborg til Sofia, höfuðborgar Búlgaríu. Á leiðinni söfnuðu þeir að sér reynslu, hlutum og tóku ljósmyndir á ferðum sínum. Endaði svo ferðin í galleríi í Sofia þar sem þeir voru með gjörning, notuðu hluti úr ferðinni og vespurnar og reynsla þeirra gerð áhorfendum kunn.

Þeir eru einmitt þessa daganna á ferðalagi um Ísland. Hvað þeir munu gera og sýna í Kling & Bang gallerí kemur í ljós í júlí.

Kling & Bang gallerí er opið fimmtudaga til sunnudag frá kl.14-18 og stendur sýningin til og með sunnudeginum 13.ágúst. Allir velkomnir – enginn aðgangseyrir.

http://www.gelitin.net

http://this.is/klingogbang/

http://www.gelitin.net/mambo/bibliography

http://www.gelitin.net/mambo/biography/

http://www.gagosian.com

http://www.leokoenig.com/

http://www.galerieperrotin.com/

http://www.massimodecarlo.it/

http://www.meyerkainer.com/

http://www.nicolavonsenger.com/


“Gelitin is a group of four artists working together in Vienna - Tobias Urban, Wolfgang Gantner, Florian Reither and Ali Janka. They met in 1978 and formed a partnership in 1993. Gelitin have shown in many international exhibitions including "Dionysiac," at the Centre Pompidou, Paris and the first Moscow Biennial, both earlier this year. In 2003 they were commissioned to make a performance for the first Frieze Art Fair, London, and in 2002 they made events for the Gwangju and Liverpool Biennials. Gelitin represented Austria at the 2001 Venice Biennale. They have participated in the first Performance Biennial in New York and the Art Sheffield 05 citywide forum”. Gagosian gallery

biography:

gelitin is comprised of four artists.
they met first in 1978, when they all attended a summercamp.
they have been playing and working together.
from 1993 they began exhibiting internationally.
2005 they changed their name from gelatin to gelitin.


2006

Bilder zum Fürchten, Gemäldegalerie d. Akad. d. Bild. Künste, Wien
Galleri Kling & Bang, Reykjavik
Galerie Emmanuel Perrotin, Paris
Mozart - Experiment Aufklärung, Albertina, Wien
„Chinese / Synthese / Leberkäse”, Kunsthaus Bregenz
„Strozzo Papolozzo”, Galeria Massimo de Carlo, Milano

2005

Performance Biennale, New York
„Tantamounter 24/7”, Leo Koenig Inc., New York
„Sweatwat”, Gagosian Gallery, London
Art Sheffield 05, Spectator 5, Sheffield
Joy, Casino Luxembourg, Luxembourg
„Hase”, Artesina (Italy)
„Les Grands Spectacles”, Museum der Moderne, Salzburg
„Bilder hauen – Skulpturen bauen” Zoom Kindermuseum Museumsquartier, Wien
X Wohnungen, Märkisches Viertel, Hebbel am Ufer, Berlin
„Dionysiac”, Centre Pompidou, Paris
„Les innocents aux pieds sales”, Performance, Galerie Emmanuel Perrotin, Paris
„Zapf de Pipi”, Moskau Biennale, Moskau

2004

„Nasser Klumpatsch”, Institute of contemporary art Sofia, Bulgaria
The yugoslav biennial of young artists, Vrsac, Serbia
„Möbelsalon Käsekrainer”, Galerie Meyer Kainer, Wien
„Otto Volante”, Galeria Massimo de Carlo, Mailand

2003

„gelatin Institut”, Leo Koenig Inc., New York
„gelatin at the shore of lake Pipi Kacka”, Performance, Frieze Art Fair, London
„Osmose II”, Haus Lange, Krefelder Kunstmuseum, Krefeld
„Arc de triomphe”, Rupertinum, Salzburg
„Im Arsch des Elefanten steckt ein Diamant”, Schirn Kunsthalle, Frankfurt
„Golden Shower”, Performance, Schirn Kunsthalle, Frankfurt
„Dessinez avec Desiree”, Galerie Meyer Kainer, Wien

2002

„True LoveIV”, Gwangju / Korea, Biennale
„Win Win”, Shanghai Biennale, Shanghai
„Le Cadeau”, Galerie Emmanuel Perrotin, Paris
„Die Schlotze”, Festwochen, Berlin
„Flaschomat”, Kunsthalle St. Gallen
„Grand Marquis”, Ars Futura Galerie, Zürich
„Site de création contemporaine”, Palais de Tokyo, Paris
„Armpit”, Liverpool Biennal, Liverpool
Wald und Explosionen, Helmhaus, Zürich

2001

„Stefan”, Art in General, New York
„gelatin is getting it all wrong again” - Leo Koenig Gallery, New York
„Die totale Osmose”, Biennale di Venezia, Venedig, Austrian Pavillion with Granular Synthesis
„You must stop curien”, Sonsbeek 9: Locus/Focus, Arnheim, Holland
„Schlund”, Marstall, München
„Furball”, Playing amongst the ruins, Royal College of Art, London

2000

„Buttik Transportør”, Galerie Meyer Kainer, Wien
„Weltwunder”, In Between, EXPO 2000, Hannover
„Kolibri d´ amour”, with David Moises, In the beginning was Merz, Sprengel Museum, Hannover
„Lebt und arbeitet in Wien”, Kunsthalle Wien, Wien
„Das Ks Ks”, Milch vom ultrablauen Strom, Kunsthalle Krems, Krems
Die neue Künstlergeneration, Kunsthalle Krems, Krems
„A Hole to China”, 2000 Awesome Festival, Perth
„Der traurige Turm”, Max Mobil Sendemast, Krems
„The B-Thing”, Lower Manhattan Cultural Council, World Trade Center, New York
„Schlürfbrunnen”, Staatz

1999

„Schlammloch”, Alhambra, Diendorf
„Hugbox”, Liverpool Biennial, Liverpool
„The Gelatin Paprika Ship”, Bishopsgate Goodsyard, London
„Pollo Feliz”, with NEPCO, Wahlverwandschaften, Wiener Festwochen, Wien
„!Que quapo!, La Panaderia, Mexico City
„Human Elevator”, with Cargnelli/Szely, Mackie Appartment, Los Angeles
„Operation Lila”, New Hospital, Meran
„I like my job II”, Royal College of Art, London
„Overflow” mit Caroline Schneider, New York, USA
„Breakfast in Bed”, Austrian cultural institut, London, UK

1998

„Percutaneous Delight”, P.S.1, New York
„Suck and Blow”, Spencer Brownstone Gallery, New York
„Abgasblase”, Mackie Appartment, Los Angeles
„Week-end” , Galerie Schloss Damtschach, Damtschach
„Aliale” , Krems
„I like my job I”, Honcho Magazine, New York
„Safe Harbours”, Times Up, Posthof, Linz
„Vidi Wall”, Flex, Wien

1997

„America”, Miami, Memphis, Chattanooga, New York
„Association of Anonymous Astronauts”, with Bruno Stubenrauch, Public Netbase, Wien
„Overdub”, Kunsthaus Glarus, Glarus
„Gelatin‘s little spanking show”, Flex, Wien
„Operation Lila”, Hospital, Meran
„Lock sequence activated”, with Cargnelli/Szely, Kunstbüro, Wien
„Back from America”, Flex, Vienna
„Fresh Meat”, Not Coffee Studio, New York
„Take the elevator to the 3rd Floor”, Safe, New York
„Truck high”, Highways, Austria

1996

„Pronoia in Exnerland”, Kunsthalle Exnergasse, Wien
„Les Bubble Gelatin”, Mariahilferstrasse, Wien
„Break the safe”, Einsiedlerplatz, Wien
„Junge Szene 1996”, Secession, Wien
„Real Sex”, Südrast, A2
„Coming up”, Museum Moderner Kunst Stiftung Ludwig, 20er Haus, Wien
„Double Bubble”, Galerie Land Niederösterreich
„Der große Tobilisator”, Schottenfeldgasse, Wien
„Low pressure”, Zentrum für zeitgenössische Kunst, St. Moritz
„Sea of Madness”, Kärnten, Budapest, Graz, Kunsthaus Glarus

1995

„Fake Sex”, Raststation Mondsee
„Reise nach Rom”, Stadtsaal, Krems
„G. C. Ballina International”, Galerie Station 3, Wien

1994

„Flat Rabbit” Jesolo, Italy
„Vier Tage Schönes Leben”, Altes Schlachthaus, Krems
 
 
aaa.thumb aac.thumb gelitinhase
 
 
 
Grandagarður 20 - 101 Reykjavík kob@this.is