Friday, January 6, 2006, 10:14 PM
Náttúra Íslands er sameiginlegur arfur þjóðarinnar. Hún er órjúfanlegur þáttur sjálfsmyndar okkar og fjársjóður okkar til framtíðar. Náttúran er ekki eign stjórnmálamanna og þeir hafa ekki umboð til að fara með þennan auð sem sína eign. Ákvarðanir hér á landi um nýtingu náttúrunnar hafa til þessa einkennst af skammtímasjónarmiðjum. Geta það talist hagsmunir þjóðarinnar að fórna náttúruauðæfum fyrir erlenda stóriðju? Kárahnjúkavirkjun var pólitísk skyndiákvörðun. Undirbúnings- og vinnsluferlið hefur einkennst af mistökum og hagræðingu sannleika hvað varðar hönnun, rannsóknir, arðsemisútreikninga og flesta þá þætti sem að framkvæmdinni snúa.
Stjórnvöld eru þegar búin að lofa meiri orku til stóriðju en virkjanleg orka fallvatna býður upp á. Álrisarnir virðast hafa íslensk stjórnvöld í vasanum. Það er einsýnt að umtalsverðar tafir verði á að lokið verði við Kárahnjúkavirkjun. Alcoa hefur rétt á svimandi háum skaðabótagreiðslum verði orkunni ekki skilað á umsömdum tíma og mun ekkert gefa eftir. Verður sú sekt greidd með því að færa þeim nýtt álver á Norðurlandi á silfurfati? Fyrir utan stækkun Norðuráls eru þrjú ný risaálver komin mjög langt í undirbúningi. Má þar nefna stækkun álversins í Straumsvík – stækkun sem jafnast á við eina Kárahnjúkavirkjun – álver á Norðurlandi og á Reykjanesi. Það er krafa okkar að vera upplýst um hvar á að taka þessa orku svo að við getum ákveðið hvort við kærum okkur um þessa fórn áður en gengið er til samninga.
Enn þá eru veruleg auðæfi í óspilltri náttúru landsins, en tíminn er að renna út. Spjótin beinast að mörgum okkar helstu náttúrugersemum og virðist engu skipta hvort landsvæði hafi verið friðlýst eða ekki. Viljum við halda áfram á sömu braut? Álæðið firrir okkur skynsemi og lamar frumkvæði og sköpunarkraft í byggðum landsins þar sem íbúar eygja enga aðra framtíð en álver.
Nú verða Íslendingar að snúa við blaðinu og gera stjórnvöldum ljóst að náttúru landsins megi ekki fórna á þennan hátt. Með úrskurði Sigríðar Önnu Þórðardóttur umhverfisráðherra, sem laumað var að í skjóli jóla- og áramóta, eru Þjórsárverin enn á ný í yfirvofandi hættu. Hætta steðjar einnig að mörgum helstu náttúrugersemum Íslands og má þar nefna Langasjó, Torfajökulssvæðið, Skjálfandafljót, Jökulsárnar í Skagafirði, Mývatnssveit og jafnvel Gullfoss, Dettifoss og nokkrar af þekktustu laxveiðiám landsins.
Orkufyrirtæki landsins, með Landsvirkjun í fararbroddi, eru nú í kjölfar nýrra laga sem tóku gildi um áramótin, að fara í mikið kapphlaup sem minnir helst á gullæði fyrri tíma. Hvert einasta virkjanlega fallvatn og jarðhitasvæði eru bitar sem orkufyrirtækin slást um af miklu kappi.
Markmið ársins – áramótaheit okkar allra – er að bjarga Þjórsárverum, Langasjó, Skjálfandafljóti og Mývatnssveit, stöðva fyllingu Hálslóns og stofna þjóðgarð sem nær yfir hálendið allt. Þá fyrst mun okkar kynslóð skipta máli fyrir sögu þessarar þjóðar.
[ add comment ]
Friday, January 6, 2006, 10:10 PM
Blaðamannafundur HÆTTA!-hópsins verður haldinn
á Hótel Borg fimmtudaginn 5. janúar 2006 kl. 14
Stöðvum eyðileggingu hálendisins
Fjölþjóðleg álfyrirtæki reisa nú risastíflur, með stuðningi íslensku ríkisstjórnarinnar, til orkuframleiðslu fyrir álbræðslu. Þessar stíflur eru mikil ógn við ósnortna náttúru miðhálendisins en hluta þess verður sökkt á óafturkræfan hátt. Á miðhálendinu eru svæði sem teljast einstök á alþjóðavísu hvað varðar gróðurfar, jarðfræði og dýralíf. Þessi verðmæti eru í útrýmingarhættu ef eyðileggingin verður ekki stöðvuð. Baráttan hefur aldrei verið mikilvægari en einmitt nú því tíminn er naumur. Uppistöðulón Kárahnjúka mun fyllast í haust ef ekkert er að gert og fleiri virkjanir á viðkvæmum svæðum eru í farvatninu. Tilgangur tónleikanna er að vekja athygli, bæði innanlands og utan, á þessari aðsteðjandi hættu.
Ertu að verða náttúrulaus? – tónleikar
Þann 7. janúar mun stórskotalið íslenskra og erlendra listamanna leiða saman hesta sína á stórtónleikunum Ertu að verða náttúrulaus? í Laugardalshöllinni. Með uppákomunni vilja listmennirnir vekja athygli á einstakri náttúru sem er of dýrmæt til að henni sé fórnað fyrir virkjanir og álver. Það er kominn tími til að stoppa stíflurnar!
Þetta stórkostlega tækifæri til að njóta tónlistar a heimsmælikvarða ásamt því að sýna hug sinn í verki hefur mælst vel fyrir því miðarnir 5.500 seldust upp á örfáum dögum.
Listamennirnir sem koma fram á tónleikunum eru Björk, Zeena Parkins, Múm, Damien Rice, Lisa Hannigan, Ghostigital, Damon Albarn, Egó, Magga Stína, Mugison, Rass, Sigur Rós, KK, Ham, Hjálmar, Sigtryggur Baldursson, Magnús Pálsson, Roni Horn, Rúrí, Tjörvi Jónsson, Andri Snær Magnason, Gjörningaklúbburinn, Kristín Eiríksdóttir, Ingibjörg Magnadóttir og Ósk Vilhjálmsdóttir auk leynigesta.
Allir listamennirnir, skipuleggjendur og þorri starfsmanna gefa alla vinnu sína í þágu málstaðarins. Verði hagnaður af tónleikunum mun hann renna í sérstakan sjóð sem verður notaður til að efla náttúruvernd á Íslandi.
Allar frekari upplýsingar eru veittar hjá nature@hive.is.
[ add comment ]
Friday, January 6, 2006, 10:09 PM
Stop the dams!
A gig for nature in Laugardalsholl Stadium 7 January 2006
Bjork, Zeena Parkins, Sigur Ros, Ghostigital, Damon Albarn,
Damien Rice, Lisa Hannigan, Mugison, Mum and many others.
Stop the dams! press conference
at Hotel Borg in downtown Reykjavik, Thursday, 5 January 2006, at 14:00.
Stop the destruction of the Icelandic highlands!
Multinational aluminium corporations, aided by the Icelandic government, are building massive dams to generate power for aluminium smelters. These dams are posing great danger to the pristine highlands of Iceland. Parts of the largest remaining wilderness areas in Europe will be irreversibly submerged. The Icelandic highlands include areas that are internationally recognized for their unique vegetation, geology and ecology. These areas are now doomed unless this vandalism is stopped. The battle has never been more important but time is running out with the planned filling of reservoirs this coming autumn and subsequent construction of more power plants in other precious areas. This is a desperate call for help to the international community.
Stop the dams! music festival
On January 7, Icelandic rock-'n'-roll's biggest guns join forces with international music stars in a Stop the dams! gig at Laugardalsholl Stadium. With the event the artists and organisers want to bring into focus a unique nature that is too valuable to sacrifice for hydroelectric power stations and aluminium plants. It is time to stop the dams!
This great opportunity to enjoy fantastic music while supporting an important cause has been widely appreciated; all 5500 tickets sold out in only a couple of days.
The musicians performing are Bjork, Zeena Parkins, Mum, Damien Rice, Lisa Hannigan, Ghostigital, Damon Albarn, Ego, Magga Stina, Mugison, Rass, Sigur Ros, KK, Ham, Hjalmar Sigtryggur Baldursson, plus surprise guests.
Other artists include Magnus Palsson, Roni Horn, Ruri, The Icelandic Love Corporation and Osk Vilhjalmsdottir.
All the artists, the organizers and the majority of staff donate their efforts to the cause. Any profit will be used to start a special fund for the protection of nature in Iceland.
For further information contact nature@hive.is,
Website: www.this.is/nature
[ 153 comments ] ( 824 views )
Monday, December 5, 2005, 11:34 PM
In east Iceland, one of the last remaining wildernesses of Europe is now being destroyed for an Alcoa aluminum smelter. The Icelandic government is turning Iceland into a heavy industry zone, and seems willing to destroy a vast amount of Icelandic wilderness for that purpose. In September 2006, a series of huge dams will flood an area of highland vegetation, birdlife and reindeer, also causing hazard to seal breeding grounds on the coast. A series of 20 waterfalls will be dammed in a glacial river that falls from one cliff after another, a total of 600 kilometers running from Vatnajokull, the greatest glacier in Europe. [ 17 comments ] ( 2695 views )





