… eða þú færð Marx í skóinn!

„Þótt marxismi hafi fyrir löngu fest sig í sessi innan hug- og félagsvísinda víða um heim leikur enginn vafi á því að nú um stundir fer áhugi á honum mjög vaxandi. Ástæður þess má ef til vill finna í höllu gengi nýfrjálshyggjunnar frá því í kringum árið 2005 og í kjölfarið í matvælakreppu og síðar því fjármálahruni sem dundi yfir heiminn á árunum 2007–2008, með afleiðingum sem Íslendingum eru vel kunnar.“

Nýhil hefur gefið út bókina Af marxisma, greinasafn sem kannar erindi marxískra fræða við samtímann. Samhengi útgáfunnar er rakið skilmerkilega í formála ritstjóra sem Nei. hefur fengið góðfúslegt leyfi til að birta til kynningar.

Aktífistaspjall
Schwarzer Kanal bleibt!

Schwarzer Kanal bleibt!

Framtíð vagnþyrpinga í Berlín

„Fyrir mig er það mjög mikilvægt að við skilgreinum okkur sem queer innan aktífista­hreyfingarinnar og að við vinnum með mismun­andi þemu á queer-femin­ískan hátt. Það er mikilvægt að hafa bland­aðan hóp aktivista þar sem þú getur komið og tekið þátt í pólit­ísku starfi án þess að þurfa enda­laust að standa í umræðu um hvernig manneskja þú ert.“

Prójektið Schwarzer Kanal hefur verið starfrækt í Berlín í 20 ár. Það hefur verið vett­vangur óteljandi menn­ingar­legra uppákoma, tónleika, kvikmynda­sýninga og vinstri-pólitískrar grasrótar­baráttu ásamt því að vera heimili fólks.

Gæslan

Ritskoðunarfrelsi

Sjálfstæðisflokkurinn beitir sér gegn frjálsri fjölmiðlun

Sigrún Stefánsdóttir, Sjálfstæðiskona og pólitískt skipaður dagskrárstjóri RÚV, fór þess á leit við Bubba Morthens að hann hætti að tjá sig um stjórnmál í útvarpsþætti sínum eftir að hann lét orð falla um Davíð Oddsson og Hannes Hólmstein Gissurarson. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hringdi í Hrein Loftsson, eiganda Birtíngs, til að gera kröfu um að Hreinn stöðvaði gagnrýninn fréttaflutning DV um Bjarna. Óðinn Jónsson, fréttastjóri RÚV og Sjálfstæðismaður, fjarlægði frétt um Jórunni Frímannsdóttur, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, þar sem henni þótti hennar bestu hliðar ekki koma fram í fréttinni eins og hún var unnin. Vika í lífi þeirra miðla sem ekki er ritstýrt af fyrrverandi formanni Sjálfstæðisflokksins.

1 mynd
Marxískar klippimyndir Óttars Martins

Marxískar klippimyndir Óttars Martins

Óttar Martin Norðfjörð birtir nokkrar marxískar klippimyndir í safnritinu Af marxisma sem Nýhil gefur út. Höfundur og útgáfa veittu Nei. góðfúslegt leyfi til að birta eina klippimyndanna.