Allt efni, Forsíðugrein

Við erum að bregðast ykkur – núna

Yfirlýsing frá Jóni Bjarka Magnússyni

Ég finn mig knúinn, samvisku minnar vegna, að segja frá því að frétt sem ég skrifaði fyrir DV þann 6. nóvember síðastliðinn um Sigurjón Þ. Árnason fyrrverandi bankastjóra Landsbankans var stöðvuð. Þetta geri ég vegna þess að það er skylda mín gagnvart lesendum og fólkinu í landinu að upplýsa um slík mál. Ég hef reynt að sannfæra sjálfan mig í meira en mánuð um hið gagnstæða. Að best væri að gleyma þessu og þegja. Ég hef hinsvegar ekki gleymt þessu atviki, og ég get ekki þagað yfir því lengur. Ég tel það ekki vera ásættanlegt að einhverjir ónefndir aðilar úti í bæ geti stöðvað eðlilegan fréttaflutning. Ég get ekki gerst sekur um að vera þátttakandi í leynimakki og blekkingu í krafti auðvalds á þessum síðustu og verstu tímum. 

Þann 6. nóvember skrifaði ég grein um Sigurjón Þ. Árnason fyrrverandi bankastjóra Landsbankans sem hafði komið sér fyrir á skrifstofu í húsnæði Landsbankans við Pósthússtræti 7. Reynir Traustason ritstjóri DV hafði beðið mig um að vinna þetta verkefni. 

Eftir tvær heimsóknir og fleiri tilraunir til þess að ná tali af Sigurjóni í gegnum síma náði ég loksins að spyrja hann nokkurra spurninga. Í kjölfarið skrifaði ég grein þar sem meðal annars kom fram að Sigurjón væri að koma á fót ráðgjafarfyrirtæki í húsnæði Landsbankans. Einnig að hann vonaðist eftir verkefnum frá Landsbankanum. 

Ég skilaði fréttinni til fréttastjóra eins og vanalegt er og bjóst ekki við öðru en að hún myndi birtast í blaðinu daginn eftir. Þegar ég mætti daginn eftir kallaði Reynir Traustason mig inn á skrifstofu og tjáði mér að „stórir aðilar úti í bæ“ hefðu stöðvað hana. Hann sagðist ekki vera sáttur við þá ákvörðun að bakka með fréttina en ákvað samt að gera það. Ég varð hugsi yfir þessum fregnum en taldi mér trú um að eflaust væri best að láta þetta liggja á milli hluta. 

Nokkru áður eða þann 10. október síðastliðinn birtist leiðari í DV undir yfirskriftinni „Við brugðumst ykkur.“ Þar sagði Jón Trausti Reynisson annar tveggja ritstjóra blaðsins fjölmiðla hafa brugðist þjóðinni. Ég sé ástæðu til þess að rifja leiðarann aðeins upp. 

Hann hefst svona: „Hrun íslenska efnahagslífsins stafar ekki af hagfræðilegum ytri aðstæðum, heldur af lýðræðislegum ástæðum. Þjóðfélagið hefði aldrei farið á fullri ferð fram af brúninni ef það hefði ekki verið gegnsýrt af blekkingu í áraraðir. Blekkingin kom frá stjórnmálamönnum, viðskiptamönnum og líka þeim sem áttu að verja þjóðfélagið gegn blekkingunni, fjölmiðlamönnum.“

Ég lít svo á að með því að stöðva þessa frétt hafi DV ekki varið þjóðfélagið gegn blekkingunni, heldur viðhaldið henni. Fyrirsögnin mætti því vera: Við erum að bregðast ykkur núna. 

Frjáls fjölmiðlun er eitthvað sem þjóðin þarfnast nú. Á tímum sem þessum, við áfall á borð við það sem íslenska þjóðin er að ganga í gegnum, á að vera algerlega skilyrðislaus krafa að fjölmiðlar séu frjálsir og geti sagt hvaða þær fréttir sem þeim sýnist og hvernig sem þeim sýnist. Séu óbundnir af hagsmunum fárra, peningum, styrktaraðilum, stjórnmálaöflum eða lánadrottnum. Og ef þetta bregst tel ég að fólki beri skylda til þess að láta vita.

Ég geri mér ekki grein fyrir því hver eða hverjir það voru sem sannfærðu ritstjóra DV um að birta greinina ekki. En Reynir sagði mér á fundi sem við áttum saman, að þessir aðilar væru valdamiklir og að þetta hefði hreint og beint snúist um líf eða dauða blaðsins. Af orðum hans að dæma er ljóst að haft var í hótunum við hann. Hann þyrfti að hlýða. Ég vil ekki gera lítið úr þeirri klemmu sem ritstjóri minn var settur í: að birta ekki frétt, eða stofna ella lífi sjálfs blaðsins í hættu. Það er erfitt að vera í slíkri stöðu. 

En ég er ósammála ákvörðun hans. Ég tel að best sé fyrir hann, DV, þjóðfélagið allt, að fram komi hver sú atburðarás hafi verið sem hann vísaði til í samræðum við mig, þegar hann útskýrði að fréttin yrði ekki birt. – Að þetta sé jafnvel eina tæka vörnin við slíkar aðstæður. Og að stóra fréttin hljóti að vera þessi: Ónefndir aðilar réðust gegn því sem á að vera einn af hyrningarsteinum lýðræðis á Íslandi. Krafa mín og okkar allra hlýtur því að vera ófrávíkjanleg – að eftirfarandi verði svarað: 

Hvers eðlis er hótunin sem ritstjóri DV var beittur, og hver eða hverjir hótuðu?


Frá því að þetta átti sér stað hef ég velt því fyrir mér hversu algengt slíkt sé í íslenskum fjölmiðlum. Að ákveðnar greinar sem hafi verið unnar séu teknar úr umferð vegna þess að þær skaði á einhvern hátt hagsmuni valdamikilla aðila. Sögur ganga um slíkt, en fáar ef nokkrar rata fyrir sjónir almennings. Ef enginn stígur fram og segir opinskátt frá slíkum dæmum í „frjálsum fjölmiðlum“ er líklegt að stór hluti fólks standi í þeirri trú að ekki sé stunduð ritskoðun í íslenskum fjölmiðlum, að allt sé í himnalagi.

Það skiptir í raun minnstu máli hvað fram kemur í þessari frétt. Líklega er ekkert í henni sérstaklega afdrifaríkt, en þó er ljóst að á þessum tíma var eftirspurnin eftir fréttum um athafnir Sigurjóns Árnasonar geysilega mikil, meðal annars vegna vangaveltna Egils Helgasonar um Sigurjón, og hvað fram færi á skrifstofunum við Pósthússstræti. Og hversu mörgum “stórfréttum” er þá kippt úr umferð við að einhverjir menn úti í bæ meti það sem svo að birting kæmi sér illa fyrir þá?

Á Eyjunni var fjallað um skrifstofu Sigurjóns þann fjórða og sjötta nóvember Á vefsíðunni T24 var meðal annars fullyrt að Sigurjón væri að vinna ötullega að því að „greiða úr“ skuldaflækjum fyrirtækja sem tengjast Baugi við Landsbankann. 

Þar sagði meðal annars þetta:

„Á götuhorninu er því haldið fram að hugmyndafræðingurinn að baki kaupum Rauðsólar á fjölmiðlahluta 365 hf. sé Sigurjón Þ. Árnason, fyrrum bankastjóri Landsbankans. Fullyrt er að hann vinni nú ötullega að því að „greiða úr“ skuldaflækjum fyrirtækja sem tengjast Baugi við Landsbankann. Sigurjón er sagður vinna náið með Jóni Ásgeiri og tengdum aðilum en Sigurjón og Ari Edwald, forstjóri 365, eru gamlir samherjar  í háskólapólitík og Sambandi ungra sjálfstæðismanna. Þeir sem standa á götuhorninu og velta fyrir sér hvernig kaupin gerast á eyrinni eftir að ríkið yfirtók bankana velta því fyrir sér hvort og þá með hvaða hætti fyrrum yfirmenn banka, sem nú eru í þrotum, koma að málum varðandi uppgjör skulda einstakra viðskiptavina.“

Andrés Jónsson fjallaði um störf Sigurjóns á bloggi sínu þann 5. nóvember: „Meðal viðskiptavina Sigurjóns (auk Baugs og Rauðsólar) eru Samson, stór breskur banki og stór þýskur banki. Einnig einhverjir fleiri erlendir og innlendir aðilar. Þeir treysti engum betur en Sigurjóni til að gæta hagsmuna sinna í tengslum við Landsbankann, enda hafi hann verið sá sem setti öll þessi viðskipti saman á sínum tíma.“

Ég sem blaðamaður var stöðvaður, grein mín ekki birt og ég svo beðinn um að tala ekki um það. Með hliðsjón af því sem hefur meðal annars komið fram í forystugreinum DV um að allt yrði að vera uppi á borðinu fannst mér þetta skjóta skökku við. Blekkingin sem svo mjög hefur verið gagnrýnd var allt í einu farin að ná inn á ritstjórn DV. 

Í leiðara DV þann 10 október segir einnig: „DV mun í framhaldinu sýna aukna harðfylgni í samskiptum við stjórnmálamenn og viðskiptamenn. Þeir verða ekki látnir komast upp með að ljúga að þjóðinni athugasemdalaust. Því þeir sem ljúga að fjölmiðlum ljúga líka að almenningi. Blekkinguna verður að uppræta, því hún er meinið sem varð þjóðinni að falli.“

Ég tek undir þetta og svara hérmeð kalli blaðsins. Ég hvet fleiri blaðamenn, sem hafa látið stöðva fréttirnar sínar, til að stíga fram, og að lokum vil ég ítreka kröfuna um að eftirfarandi spurningum verði svarað: 

Hvers eðlis er hótunin sem ritstjóri DV var beittur, og hver eða hverjir hótuðu?


Greinin sem var stöðvuð

Sigurjón Þ. Árnason fyrrverandi bankastjóri Landsbankans kom sér fyrir á þriðju hæð í skrifstofuhúsnæði Landsbankans á Pósthússtræti fyrir nokkrum dögum. Þetta staðfestir hann við DV. Hann segist ekki vera að vinna fyrir bankann, heldur sjálfan sig. 
Aðspurður um það hvaða starfsemi fari fram á skrifstofunni segist hann vera að koma á fót litlu ráðgjafafyrirtæki. „Sko. Það sem ég er að reyna að sjá er hvort maður eigi möguleika á því að vinna ráðgjöf fyrir hina og þessa. Maður er að reyna að búa sér til vinnu,“ segir Sigurjón og bætir því við að hann vilji helst halda því fyrir sjálfan sig hvað hann ætli sér að gera með fyrirtækið. 

Leigir af Landsbanka

Sigurjón leigir skrifstofuna af Landsbankanum. Hann segir þó að Landsbankinn hafi leigt húsnæðið af fyrirtæki sem eigi fasteignir út um alla borg. Hann segir skrifstofuhúsnæðið vera tómt og að verið sé að yfirgefa skrifstofur Landsbankans í húsnæðinu. „Þetta er allt meira og minna tómt núna,“ segir hann. 
Blaðamaður DV heimsótti húsnæðið í gær. Á fjórðu hæðinni, fyrir ofan nýja skrifstofu fyrrverandi bankastjórans, voru skrifstofur Landsbankans en þar var ennþá starfsemi í gangi. Þegar Sigurjón var spurður út í þetta sagði hann; „þá er bara ekki búið að færa það. Annars veit ég það ekki nákvæmlega. Ég held að það eigi að leigja þetta út fyrir einhverja nýsköpunarstarfsemi,“ segir hann.

Vonast eftir verkefnum

Sigurjón segir að hinar og þessar deildir Landsbankans hafi verið í húsinu. Hann vill þó ekki fara nánar út í það. Á skilti sem er á veggnum fyrir utan dyr húsnæðisins kemur fram að á þriðju hæðinni, þar sem skrifstofa Sigurjóns er, sé lögfræðisvið bankans staðsett. Þegar hann er spurður hvort að hann sé byrjaður að gefa Landsbankanum ráðgjöf svarar hann; „já ég ætla að vona að ég geti fengið einhver verkefni þar eins og annars staðar. Að sjálfsögðu.“ 
Hann tekur fram að það geti vel farið svo að að hann komi að einhverjum verkefnum til aðstoðar bankanum. Aðspurður um það hvort að hann hafi átt bréf í bankanum segir hann svo ekki hafa verið. Sigurjón segist undanfarið hafa skráð niður það sem gerðist í aðdraganda hrunsins til þess að það lægi fyrir og til að tryggja að menn hafi réttar upplýsingar. „Ég er auðvitað alltaf boðinn og búinn til að hjálpa Landsbankanum. Ég er alltaf tilbúinn til þess að gera það,“ segir hann að lokum.
Jón Bjarki Magnússon,
fyrrverandi blaðamaður á DV
  • Jón Bjarki Magnússon, þú átt Fálkaorðuna skilið fyrir þetta. Þ.e.a.s. ef þér finnst hún þess virði.

  • Þetta er það sem við þurfum, að þeir sem vita segi frá. Takk fyrir þetta Jón Bjarki.

  • Hetja.

    Þá vantar bara að svara spurningunum.

  • Jón Bjarki, þú ert hetja. Takk fyrir þetta framlag, ég er viss um að þetta er skref í átt að einhverju stóru.

  • Frábært að þú lætur þetta ekki naga þig, stórkostlegt. Ég vona innilega að þú munir hafa sýnt fordæmi, aðrir blaðamenn verða að taka þessu fordæmi.

  • Frábært fordæmi sem þú ert að setja Jón Bjarki fyrir aðra blaðamenn. Takk fyrir hugrekkið:)

  • Átti þessi frétt ekki bara heima í Séð og heyrt?

  • Fálkaorðuna er einskírs virði úr hendi glæpamanns,,en takk Jón Bjarki Magnússon frjáls og óháð fjölmiðlaumfjöllun er það sem þarf.

  • Það sem að blaðmenn/dagblöð þurfa að hafa meðal annars er traust og trúverðugleiki. Ef að DV hefur einhverntíman haft þessa eiginleika þá eru þeir gjörsamlega horfnir núna. Ég leit alltaf á Reyni Traustason sem svona kall sem að léti ekki vaða yfir sig og segði sína skoðun umbúðarlaust. Maður hefur greinilega haft kolrangt fyrir sér. Einsog danski blaðamaðurinn sagði þá er hann bara enn ein “pissudúkkan” í þeim sorapolli sem að viðgengst hér á klakanum.

  • Var búin að heyra orðróm um veru Sigurjóns ennþá í bankanum…..nú er það staðfest takk fyrir að birta þessa grein…..þetta er svakalegt…

  • Ert þú að skopast Hón B. Magnússon ?

  • Takk Jón Bjarki fyrir hugrekkið. Þetta sýnir bara það sem allir vita, að þrátt fyrir gjaldþrot íslensku þjóðarinnar, þá skammast glæpamennirnir sýn ekki, það nægir þeim ekki að eyðileggja og svíða allt, það á að halda áfram.

    Ef aðrir fréttamenn hefðu siðferðið sem þú virðist vera með þá væri það stórt skref í rétta átt, en því miður bara góð byrjun. Hefur einhver haldið því fram að Reynir Trausta sé ekki keyptur? Dettur einhverjum í hug að svo sé ekki?.

  • Takk fyrir að þora. Þjóðin þarf á öllum sönnum blaðamönnum nú að halda.

  • Hver hélt að Reynir Trausta væri annt um sannleikann ekki ég,ég þekki kauða.Þetta er allt sami viðbjóðurinn

  • [...] News Article by Jon Bjarki Magnusson, former reporter of DV Original Article in Icelandic [...]

  • Það er ég sannfærður um að Geir Haarde, Ingibjörg Sólrún og Björgvin G. Sigurðsson vita alveg um þessa leyndu glæpastarfsemi í Landsbankanum sem þú ert að upplýsa um en allt þeirra tal um að allt verði uppi á borðinu og steinum verði velt við er bara lýðskrum og lygaþvæla. Jón Bjarki, þú átt alla mína aðdáun fyrir þessa birtingu!

  • Flott hjá þér en vantar alveg að segja alla söguna. Fyrr en þú upplýsir hverjir þessir aðilar voru sem stöðvuðu fréttina er þetta hálfgerður bastarður og snakk.

  • Blaðamannastéttin virðist meira og minna lömuð. Þetta eru grafalvarlegar ásakanir og þarf að ganga betur á eftir þessu máli. Málflutningur Reynis er ekki trúverðugur.

    Og vel má vera að haldið sé aftur af frétt þótt ekkert sérstakt komi fram í henni. Hins vegar gæti einhver HALDIÐ að eitthvað hafi kvisast út, sérílagi eftir að tekið er viðtal, hvað þá við mann eins og Sigurjón. Þá er alls ekki ólíklegt að einhver teygi sig í símann, í panikk.

    Ætla blaðamann á tímum eins og þessum að vera slíkir letingjar og gungur að segja: “nei, ég held ekki. Trúi Reyni.” Eruð þið allir sofandi? Hvernig væri að rannsaka þetta af heilindum? Hver er í aðstöðu til að hóta ritstjóra DV? Hver er skuldastaða DV, eignarhald? Tengsl við Sigurjón? Enginn áhugi? Trúa bara Reyni?

  • Ég velti því soldið fyrir mér hver framvina málsins hefði orðið ef ritstjórinn hefði ekki orðið við þessari beiðni um að birta ekki fréttina.

  • Lyktar þetta ekki allt af 100 milljarða-manninum Jóni Ásgeiri Jóhannessyni ? Enn ein sönnun um óhugnanlegt veldi og kverkatak Baugs-mafíunnar á prentfrelsi landsins. Ætlar þjóðin ALDREI að vakna ??

  • Til hamingju með þá ákvörðun þína að koma út úr skápnum, nú er mikilvægt að við fáum að vita hvaða menn vildu halda þér þar inni, svo við getum rassskellt þá duglega.

  • þakka þér - en hver er Jón “Ditleifsson”- ?

    Ólafur I. Hrólfsson

  • Mjög mikilvægt er að afla mikilvægra upplýsinga og skrá þær niður. Þetta á sérstaklega við þessa einkennilegu tíma þegar þjóðfélagið er allt meira og minna á hvolfi eftir gervigóðærið. En gæta þarf að mannréttindum bæði þeirra sem spjótin beinast að og einnig fjölmiðlafólkinu sem er að vinna í þágu lýðræðisins. Fjölmiðlar verða að sýna bæði nærgætni og sanngirni. Aldrei má halla máli neins og virða ber andmælaréttar. Var ekki skrifað eitt sinn: Sannleikurinn gerir yður frjálsa! Mosi

  • Reynir Traustason, lesendur DV vilja fá svar !

  • Hvað gerir Reynir Traustason nú? Ég spái því að nú fari forvitnilega atburðarás í hönd. Ég er sestur niður með popp og kók og hlakka til að sjá ritstjórann reyna að smúla af sér þennan skít.

  • Gott mál Jón Bjarki. Hafi ráðherraflokkur Íslands ekki vitað um þetta fyrr, þá veit hann nú…..

  • Mér finnst upplagt að DV útnefni þig sem hetju ársins. DV leitar að hetju ársins - http://www.dv.is/frettir/2008/12/15/dv-leitar-ad-hetju-arsins/

    Við skulum öll kjósa Jón Bjarka Magnússon sem hetju ársins fyrir að koma í veg fyrir að fjölmiðlar séu ritskoðaðir!

  • Til hamingju með þetta kallinn minn þinni réttlætiskennd verður ekki viðbrugðið. Hvaðan ætli þú hafir þetta ? Kanski úr Melaættinni. Ég óumræðilega stolt af þér fyrir að þora það hefðu ekki allir gert. Haltu áfram og styrktu aðra til þess sama það er það sem þjóðin þarf á að halda í dag.Kveðja þín mamma.

  • Glæsileg framtak, meigi fleyri blaðamenn stíga fram og láta vita.

  • RANNSAKA ALLA f.v. STJÓRNENDUR BANKANNA m.t.t. ÞESS AÐ ÞEIR SÉU EKKI Á ,,RÁÐGJAFASPENANANUM” HVAÐ ER RÍKIÐ AÐ HUGSA?

  • Það vill til að DV auglýsir í dag eftir tilnefningum um “Hetju ársins” (http://www.dv.is/frettir/2008/12/15/dv-leitar-ad-hetju-arsins) þar sem lesendur eru beðnir um að senda nafn þess sem þeim finnst “verðugir þess að bera nafnbótina Hetja ársins 2008 fyrir eitthvað sem viðkomandi afrekuðu á árinu sem nú er senn á enda.” Hægt er að senda tilnefningar á hetjaarsins@dv.is eða í pósti á Birtíng útgáfufélag, en ég sting uppá Jóni Bjarka Magnússyni. Kannski hlýtur hann titilinn ef nógu margir mæla með honum.

  • Jæja þetta kemur trúlega fáum á óvart. Það er hinnsvegar slæmt að alltof margir skuli sjá sér hag í að verja þessi ræningjabæli og skuli þá ekki vera vandari að meðulum. Jóhannes Ásjbarnarson.

  • Frábært hjá þér Jón Bjarki, eins og komið er í dag er fólk úr öllum stéttum með sterka réttlætiskennd eina von þjóðarinnar.

  • Haltu áfram að upplýsa almenning!

  • Takk fyrir þetta Jón Bjarki.

  • Þú færð nafnbótina heiðarlegasti blaðamaður Islands.Eru ekki yfirhilmingamenn útrásarglæpamannana ríkistjórnin,flestir alþingismenn,fjármálaeftirlitið,ríkisskattstjóri sem eltist bara við litla manninn og fl.ALLT EIN STÓR MAFÍA ps. ætli G.Harði hafi þegið múturnar sem D.O neitaði um árið frá Baugsklíkunni

  • Magnað framtak hjá þér!

  • nú hafa allir blaðamenn DV sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu: og enn trúi ég þér frekar Jón Bjarki því þú ert allavega ekki undir neinum þrýstingi nema þinni eigin samvisku:)

    “Fyrrverandi blaðamaður DV, Jón Bjarki Magnússon, heldur því fram á vefritinu Nei, að ritstjóri DV hafi falið frétt um fyrrverandi bankastjóra Landsbankans. Í sömu grein hvetur hann blaðamenn til að stíga fram og segja frá ef fréttaskrif þeirra hafi sætt ritskoðun.

    Í tilefni þessara orða vilja blaðamenn árétta nokkur atriði. Blaðamenn DV hafa aldrei þurft að þola ritskoðun í þeim fjölmörgu, og oft viðkvæmu málum, sem þeir hafa fjallað um. Blaðmenn DV eru ósérhlífnir og þjóna eingöngu sannleikanum og almenningi í heiðarlegri viðleitni til að upplýsa um málefni sem oftar en ekki brenna á þjóðinni. Margoft hefur DV sýnt tilgang sinn og hollustu gagnvart lesendum sínum, og nægir að nefna þegar blaðið upplýsti almenning um skilyrði Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eða huldufélagið Stím ehf., auk þeirra fjölmörgu atburða sem DV hefur fjallað um að undanförnu.

    Blaðamenn DV eru að engu leyti undir vilja og skoðanir eigenda DV eða hagsmunaaðila settir. Blaðamenn DV hafa unnið heilshugar að fréttum fyrir almenning og munu gera áfram.”

  • Já já þetta er svosem flott framtak hjá honum Jóni Bjarka en þegar ég les þessa grein þá get ég ekki annað en hugsað til þess hvers vegna fólk er að kippa sér upp við þetta núna. Það var öllum sama um svona hluti þegar “allt gékk vel”. Það er vitað mál að spilling er og verður alltaf partur af tilveru mannkynsins. Við erum siðferðilega dauð (eða allavega virkilega heft) að innan þannig að það kemur mér ávallt á óvart hvað fólk er alltaf furðu lostið þegar svona lagað kemur upp á yfirborðið.

    Ef þið viljið breytingar á þessu ástandi þá skulið þið byrja á því að breyta sjálfum ykkur og síðan breyta umhverfinu í kringum ykkur.

  • Þeir áttu nú ekki annað eftir, það sorablað sem er DV. Þeir hugsa sig ekki tvisvar um áður en þeir skella sér í hlutverk dómstóls götunnar og birta myndir af meintum afbrotamönnum og einhverju aumingjans smákrimmum útí bæ. En að þeir fjalli um eitthvað sem máli skiptir, Nei

  • Flott hjá þér að segja frá Jón Bjarki. Allir blaðamenn hafa þá skyldu að greina nú frá hlutum af þessu tagi.

    Láttu ekki kúga þig!

  • Haltu áfram Jón Bjarki! Prentfrelsi er grundvöllur lýðræðis.

  • Ég er stolt af mínum manni

  • En nú skiptir miklu máli að fólk fái að vita hvers konar ritskoðun viðgengst á öðrum miðlum, því það er alveg ljóst að DV er ekki eitt um slíkt.

  • Þú ert flottur strákur, Jón Bjarki… Flottur strákur.

  • Reynir, gamli skólabróðir, hvurn fjárann ertu að bralla, sannleikann upp á borðið kall minn :)

  • flott hjá þér. þú sefur betur við þetta

  • Jón Bjarki, þú titlar þig fyrrverandi blaðamann á DV. Hver er skýringin á því? Var þér sagt upp? Ég er ekki tilbúinn að kvitta fyrir það, að þessi birting núna sé einhver sérstök hetjudáð. Það er allt eins hægt að túlka þetta sem gunguskap, að birta þetta ekki fyrr en þú ert hættur á blaðinu. Er þetta kannski hefnd fyrir uppsögnina? Sá spyr sem ekki veit.

  • þú er greinilega með bein í nefinu jón minn.. ég get ekki beðið eftir morgundeginum..

  • Húrra! Þú átt stórt hrós skilið fyrir hreinskilni. Því miður virðist sem sú dyggð sé að dauða komin í Íslensku samfélagi, sér í lagi hjá stjórnmálamönnum. Vonandi sjáum við mikil viðbrögð við þessu. Umræðu er þörf.

  • Góð grein Jón Bjarki. Það er synd að þetta helvítis spillinga pakk ráði hér öllu. En verra þykir mér þegar ritstjórar blaðana láta spila með sig möglunarlaust. Ég hafði nú álit á Reyni T. hélt hann væri maður sem léti æru sína ganga fyrir viðskiptahagsmunum og hótunum. En greinilega ekki, er sami huglausi auminginn og hinir ritstjórarnir. Ég mun aldrei aftur taka nokkurt mark á því sem hann segir/skrifar.

  • Fíla þig!

  • Ég sendi póst á Reyni í gærkvöldi og tjáði honum að ég yrði að hætta að vinna hjá blaðinu og segja frá því sem gerðist. Ég hefði auðvitað átt að greina frá þessu strax, en reyndi að telja mér trú um að rétt væri að þegja. Þangað til ég gat ekki annað en komið þessu frá mér.

  • þú ert snillingur. Ekkert skrítið að mamma er stolt af syninum, ég er svo stolt líka.

  • Mér finnst þetta verulega flott hjá þér :) Það mættu fleiri vera eins og þú.

  • Ok, flott hjá þér Jón Bjarki. Það hefði samt kannski verið spennandi að sjá viðbrögðin við þessu ef þú hefðir ekki sagt upp. Hefðu þeir þorað að reka þig? Nú fáum við aldrei svar við því.

  • Jón Bjarki Það skal engin segja okkur að þú hafir ekki spurt Reyni um hverja væri að ræða. Þú verður að klára söguna - alla söguna og segja hverjir þessir “stóru” voru.

  • Ég sem var farin að hafa trú á að DV gæti lifað af? Ef þeir létu ekki múlbinda sig? Nú verður þú bara að stofna fjölmiðilse er frjáls og óháður! Ekki spurning!

  • Þakkir til þín,en ekki smáleiðinlegt að fá ekki að fylgja þessu eftir Ég var á fundinum þar sem ritstjórinn þinn fékk hrós fyrir rannsóknarblaðamensu dv.Eitthvað mikið hlýtur að liggja að baki þessu,Haltu áfram að hamra á Reyni og fylgdu þessu eftir

  • Ég sendi þennan póst á Hetju ársins á DV - hetjaarsins@dv.is

    “Mig langar að tilnefna Jón Bjarka Magnússon, fyrrverandi blaðamann á DV fyrir að beygja sig ekki undir Baugsveldið.

    Kveðja, Gunnar.”

  • Frétt, þar sem ekkert nýtt kom í sjálfu sér fram, var ekki birt. Ég get hæglega trúað því að eðlilegar orsakir séu fyrir því, en ekki dularfull afskipti “stórra aðila”.

    Enda fæ ég ekki hvaða hag hinir “stóru aðilar” gætu hafa haft af því að fréttin birtist ekki, né hverjir þeir “stóru aðilar” gætu verið.

  • Reynir Traustason á að svara því hver stöðvaði fréttina, ekki Jón Bjarki.

    Hver stöðvaði fréttina? Reynir?

    Hver stöðvaði fréttina? Reynir?

  • Flott hjá þér Jón svona eiga alvöru blaðamenn að vera

  • Rétt að segja frá þessu. Gott mál, þannig.

    En hver stöðvaði birtinguna ?

    Ha ?

  • Ég er stolt af thér. Takk fyrir ad thora ad segja sannleikann, hlusta á samviskuna thína. Ég veit hvad thetta er búid ad reynast thér erfitt, en thú ákvadst ad segja sannleikann, svíkja ekki sjálfan thig. Og sama hvad gerist núna, ekki sjá eftir thví, thú varst trúr sjálfum thér og thad er thad sem skiptir máli.

  • KASTLJÓSIÐ!! SNILLINGUR!!

  • Úr yfirlýsingu ritsjóra DV:

    Áréttað skal að hótanir eða ábendingar koma ekki í veg fyrir birtingu frétta í DV. Aftur á móti er hver ábending vel þegin og farið í saumana á henni. Jón Bjarki hefur ekkert fyrir sér hvað það varðar að hótanir hafi átt sér stað. Hann staðhæfir að stórir aðilar hafi haft í hótunum við DV. Það er algjörlega óstaðfest ásökun og lýsir vel þeirri herferð sem hann hefur nú lagt upp í. Hann réðst gegn eigin blaði með tilhæfulausum ásökunum sem bera vott um afleita blaðamennsku. Hann hafði í hótunum við ritstjóra til að fá að birta óstaðfestar ásakanir sínar eða fara fram með þær sjálfur að öðrum kosti.

    Í ljósi upptökunnar sem var spiluð í Kastljósinu í kvöld ættu Reynir Traustason og Jón Trausti að biðja Jón Bjarka afsökunnar og segja svo af sér í kjölfarið.

  • Maður svitnar.

    Björgólfur Guðmundsson, prentsmiðjueigandi?

    Sigurjón í hysteríu?

    Aðgerðir! Nýja ritstjórn á Djévaff, til að byrja með. Senda svo alla blaðamennina á Björgólf og Sigurjón.

  • Gott mál hjá þér Jón Bjarki, á meðan þjófar stjórna fjölmiðlum fáum við aldrei rétta mynd af ástandinu og ástæðum þess að þessir þjófar komust þetta langt með þjófnaðinn. DV er héðan í frá marklaus snepill sem er stjórnað af þjófum!

  • Ég er búin að fylgjast með umræðunni á þessari síðu í dag og var rétt í þessu að horfa á Kastljósið og ég er ekkert smá ánægð með þig! Ég er búin að heyra af þessu með Sigurjón í meira en mánuð og ég hef aldrei skilið af hverju það hefur ekkert verið rætt um þetta. Nú skilur maður betur af hverju. Stór ástæða fyrir því hvernig komið er fyrir landinu og af hverju ekkert er gert í málunum er einmitt útaf því að þeir sem eru í þeim stöðum sem virkilega hafa eitthvað að segja þora ekki að standa andspænis þessum föðurlandssvikurum! Þú átt mikið hrós skilið Jón Bjarki og ég veit um mjög marga sem eru sammála mér! Af hverju er ekki löngu búið að gera eignir þessara manna upptækar???? Mér hreinlega blöskrar að lesa það sem Reynir skrifar um þig eftir að hafa hlustað á upptökuna þína!!! Ég hvet nú alla til þess að kjósa Jón Bjarka Magnússon sem hetju ársins á hetjaarsins@dv.is. Ekki að það verði eitthvað að marka niðurstöðuna úr þeirri könnun þar sem „við vitum hverjir“ eiga eftir að ritskoða hana;) Haltu áfram að vera samkvæmur sjálfum þér, við Íslendingar þurfum fleiri eins og þig!!!!

  • Ég verð þó að segja að ég furða mig á viðbrögðunum við greininni. Hún er tiltölulega saklaus. Hvernig eru þá blaðamenn handeraðir ef meira kjöt er á beinunum en þetta?

    En það átti greinilega að slátra átti þér Jón Bjarki. Eins gott að þú tókst símtalið upp. Slefberanum Reyni Traustasyni verður varla sætt í ritstjórastólnum eftir þetta.

  • Glæsilegt! Var kominn of langur tími frá því G.Pétur birti viðtal sitt við G.Hilmar - sjá hér: http://www.youtube.com/watch?v=E3zqtGWEc8U þar til annað fréttamaður sýndi siðferðisþrek sitt

    En þetta var fullkomin afhjúpun spillingar og lyga. Ég efast um að þú hefðir spilað upptökuna ef Reynir hefði ekki logið og reynt að troða þér í svaðið. Spurningarnar sem spyrja þarf m.a eru afhverju ekki er búið að framkvæma eignarnám hjá glæpamönnunum, afhverju allar upplýsingar varðandi rannksóknarnefndina eru ekki á tæru og afhverju yfirheyrslum nefndarinnar verði ekki sjónvarpað beint? Þessi nefnd ætti svo alls ekki að vera skipuð af ríkistjórn sem af meirihluta landsmanna er álitin vanhæf, ólýðræðisleg og spillt

    Ég skora á allt heiðarlegt fjölmiðlafólk og bankafólk að stíga fram með þá vitneskju sem hjálpar okkur að afhjúpa spillinguna og draga fólk fyllilega til ábyrgðar!

    p.s auðvitað kaus ég Jón Bjarka hetju ársins á vef DV!

  • Gaman að eiga svona stóran bróðir sem þorir að segja sannleikann. Kv.Þinn litli bróðir Trausti.

  • geðveikt láttu þá bara heyra það :) ;)

  • Gott hjá þér frændi. Sá þig í Kastljósinu í kvöld, þú stóðst þig vel :-)

  • FAllegt hvað heiðarleikinn getur gert, hugrekki og heiðarleiki. Nú skora ég á alla aðra sem hafa verið í svipuðum sporum og Jón Bjarki að koma fram og tala.

    Og ég skora á blaðamenn Íslands að fara alla leið með þetta mál, klára það. Ekki er nóg með að Reyni sé ekki sætt lengur, heldur skuldar hann Jóni afsökunarbeiðni og þjóðinni skuldar hann sannleikann um hvað gerðist.

  • Loksins alvöru rannsóknarblaðamennska, að taka upp samtalið var snilld. En það hljóta fleiri svona sögur að leynast í skúffum landsmanna. Eru allir hlutaðeigandi kannski “innmúraðir” og þátttakendur í spillingunni að þeir þora ekki að segja frá ? Koma nú ! Setjum af stað herferð til þess að hrekja þessar ládeyður og aumingja (Sigurjón, Björgólf ofl. ofl.) af landi brott. Ekki viljum við að þeir geti um frjálst höfuð sér strokið og gengið frjálsir um göturnar ? Eða er það ?

  • Þetta er nokkuð nett hjá þér að koma svona fram með þetta, sýnir bara hversu heiðarlegir Siglfirðingar eru :)

  • hálvitar

  • Eitt orð Jón Bjarki “SNILLINGUR”

  • Frábært hjá þér Jón Bjarki, það voru þá Mealatöggur í þér eftir allt saman. Ég sá ekki betur en það perlaði sviti á hatti ritstjóra DV í tíu fréttunum í kvöld, það þarf líklega að þvo sængurfötin hans í fyrramálið.

  • Sæll Jón Bjarki !

    Ég tek ofan fyrir þér að sýna það Hugrekki og styrk að segja frá þessu. Þessi Mafía á ekki að fá að Traðka á þjóðinni lengur. Þessi Mafía hefur verið lengi til og er kannski núna fyrst almennilega að sjást í þennan viðbjóð.

    Jæja Stöndum saman Íslenska Þjóð þá getum við allt! Sýnum okkar styrk í mótmælum eftir áramót og látum ekki traðka á okkur lengur!

    Enn takk aftur Jón Bjarki.

  • Jón Bjarki þú er hetja og ég er búin að kjósa þig hetju ársins! Skora á alla að kjósa Jón Bjarka Magnússon og sjá hvað blaðið gerir með það? (henda þeir þeim tölvupóstum?)ÞAð eiga kannski fleiri eftir að koma á eftir þér!

  • Nú líst mér á - nú líst mér á! Hugur, hjarta og hönd - allt sem þarf! Þetta getur kallinn…

  • Gott framtak og ekki veitir af slíkum mönnum sem þér. Haltu þinni heiðarlegu stefnu áfram í lífinu. “Betra er réttlátt einræði en spillt lýðræði”. (þetta kom af tilviljun upp í huganum en hef samt ekki heyrt þetta áður…) Þegar fréttir utan að heimi tala um svikamyllu fjármálaheimsins hvað eftir annað eins og nýjasta dæmið um vel þekktan fjármálamann í Evrópu, Bernard Madoff, eigandi Madoff Investment Securities, sem hefur sagt að eigin sögn að heildartapið næmi um 50 milljörðum dala, jafnvirði 5800 milljarða króna, þá heyrist ekkert að eitthvað sé bönkunum hér við að sakast og menn ekki sóttir til saka vegna þess að utanaðkomandi áhrifa var að ræða. Sjálfur hefur Madoff viðurkennt að um hefði verið að ræða einskonar píramídafyrirtæki. Einmitt það einkenndi íslensku bankanna í þeirra útrásavíkinga- stefnu. Það er athyglisvert að skoða einn stað í bók bókanna: “Hlustið á, þér auðmenn, grátið og kveinið yfir þeim bágindum, sem yfir yður mun koma. Auður yðar er orðinn fúinn og klæði yðar eru orðin möletin, gull yðar og silfur er orðið ryðbrunnið og ryðið á því mun verða yður til vitnis og eta hold yðar eins og eldur. Þér hafið fjársjóðum safnað á síðustu dögunum.” (Jak. 5:1-3) Núna eru allra stærstu bankarnir að riða til falls í Evrópu og nú er spennandi að sjá hvort evran stendur fyrir sínu á þessum síðustu og verstu tímum heimsins og Sigurjón og hans kumpánar eða kumpbjánar.

    Bíð spenntur eftir viðbrögðum Reynis (ef hatturinn hans er ennþá orginal þá er hann ennþá tiltölulega sjálfum sér samkvæmur en ef hann er búinn að fá sér nýjan hatt þá er ekki gott að segja).

  • Sæll

    gott að einhver þorir að segja satt ,og ég vona að þú fáir ekki bágt fyrir …ég er enn þeirrar skoðunar að þessir menn eigi að sitja bak við lás og slá og nærast á vatin og rúgbrauði á meðan að verið er að ransaka þeirra mál…og ég skil ekki að til séu lengur einhverjir stórir herrar út í bæ sem að geti ráðið því hvað er byrt í blöðum og hvað ekki..en ef að svo er þá vil ég uppræta þá strax gangi þér vel í þínu starfi…kv minna61

  • Gott heiðarlegt framtak hjá þér og vonandi helst það áfram um ókomna tíð. “Betra er réttlátt einræði en spillt lýðræði” (þetta kom bara óvart út úr mér, hef ekki heyrt þetta áður en samt skondið….hvað lýðræðið í dag stendur fyrir) Hvað eftir annað er hrun í fjármálaheiminum og það nýjast nýtt með stærsta banka Evrópu og næststærsta og margir aðrir banka í mörgum heimsálfum eru í djúpum skít. Einn þekktasti fjármálamaður Evrópu, Bernard Madoff, eigandi Madoff Investment Securities, sagði sjálfur að heildartapið næmi um 50 milljörðum dala, jafnvirði 5800 milljarða króna. Hann hefur sjálfur viðurkennt að um hefði verið að ræða einskonar píramídafyrirtæki. Er það ekki einmitt sem útrásarvíkingarnir með bankana þrjá í fararbroddi leiddi íslensku þjóðina út í? Var þetta eftir allt saman ekki bara píramídaleikur hjá þeim? Leikur sem FME (Fjármálaeftirlitið valdalausa eða spillta) skildi ekki eða lék með? Athyglisverð orð úr bók bókanna segir: “Hlustið á, þér auðmenn, grátið og kveinið yfir þeim bágindum, sem yfir yður munu koma. Auður yðar er orðinn fúinn og klæði yðar eru orðin möletin, gull yðar og silfur er orðið ryðbrunnið og ryðið á því mun verða yður til vitnis og eta hold yðar eins og eldur. Þér hafið fjársjóðum safnað á síðustu dögunum.” (Jak 5:1-3) Það sér ekki endann á hruni bankanna sem bitnar náttúrulega bara á almenningnum eins og Geiri Harði lék eftir með björgunarkútana sína, Ingibjörgu og Björgvin. Missum við trú á evruna eftir allt saman (5.800 milljarða tap er það sama og 5,8 billjónir, ekki satt!) Eru ekki alltof margir í stjórnarpólitíkinni fyrir svona fámenna þjóð, er ekki hægt að byrja að skera þar niður. Við erum aðeins rétt rúmlega 300 þúsund íbúar!!! Spennandi að sjá framhaldið hjá Reyni og Sigurjóni og hans kumpánum eða kumpbjánum. (Ef hatturinn hans Reynis er ennþá orginal þá er karlinn nokkuð sjálfum sér samkvæmur en ef hatturinn er nýr þá er ekki gott að segja..) Haltu áfram Jón Bjarki !!

  • Það er svolítið fyndið að ef maður skrifar nei.is - þá birtist vefsíðan ja.is….skrifaði þá netslóð inn þegar ég var búinn að lesa yfirlýsingu Reynis og blaðamanna hans. Hmm…gat nú verið að Síminn og auðvaldið kæmu að þessu.

  • Fyrirgefið að þetta kom aftur, hélt að klausa mín hefði eitthvað skolast til og ekki farið inn og gerði því aftur svipaða athugasemd, vonandi er það í lagi.

    Haukur í Horni (passa mig næst)

  • Vefslóðin er http://www.this.is/nei

  • ì hávamálum segir “vitid thér enn, eda hvad?”

    Skiljum vid núna vid hvad vid erum ad fást? Ritskodun, sidleysi, ábyrgdarleysi og vanvirding á grunnsteini lýdraedis - upplýsingarétti.

    Ég bý ekki á Ìslandi, og thekki ekki thau nöfn sem falla í grein thinni. En núna er ég ad taka út thann toll ad thurfa ad skýra út fyrir mínum vidskiptavinum og kunningjum, ad ég sé ekki óheidarlegur. Thad er komis samasemmerki á milli thess ad vera ìslendingur og ad vera óheidarlegur, og ég thakka thakka thér fyrir, Jón Bjarki, ad veita mér trú á ad vel thenkjandi og hugrakkir drengir gangi fram og faerir okkur naer thví ad upllýsa thjódina um hver virkilega á íslenska lýdraedid.

    “vitid thér enn, eda hvad?”

  • Góð grein það eru áræðanlega fleiri í þessum bransa af g0mlu stjórnrndum bankanna

  • Magnað stunt hjá þér nafni að vera með diktafóninn í vasanum og taka upp þvæluna í slefberanum og rugludallinum Reyni Traustasyni. Það sem að hann hefur svitnað þegar hann fattaði þetta og tala nú ekki um þegar hann horfði á þig í Kastljósinu í gærkvöldi. Trúverðugleiki hanns er gufaður upp ef hann var þá einhver fyrir. Persónulega hefði ég reyndar aldrei ráðið mig í vinnu hjá þessum skítasnepli sem DV er og hefur alltaf verið en það er önnur saga. Fjölmiðlar á Íslandi eru sosum ekki upp á marga fiska núna hvar sem rekunni er stungið niður, Mogginn, 365, RUV það kemur allstaðar upp drulla og skítur!

  • Eftir stendur samt að þú vannst á þessum sorasnepli. Hver er munurinn á skít og kúk?

  • Það er áhugavert að grafa það upp að Sigurjón er að nota tölvubúnað Landsbankans. Auk þess er hann að nota bankaaðganginn sömuleiðis. Ætli hann geti framvísað reikningum fyrir veitta þjónustu? Skilst að hann vaði í hvaða skjöl sem hann vill. Má það? Ef það yrði ráðist inn til hans, hvað ætli hann héldi á mörgum trúnaðarskjölum??? Er það nema von þar sem nýji bankastjórinn er barnið hans… og hún er sú sem bjó til Icesave. Greinilega kona sem hægt er að stjórna. Svona eins og fjarstýrðu flugmódeli, sem eyðilagðist ekki alveg í fyrsta crashi.

  • [...] Af Nei » Við erum að bregðast ykkur - núna. [...]

  • Frábært hjá þér……takk takk takk…..

  • Gott hjá þér.

  • Ég þakka þér hugrekkið og er sannfærð um að þú munir uppskera ríkulega í framtíðinni vegna heiðarleika þíns. Þú varst mjög trúverðugur í Kastljósi og það er ábyggielga rétt hjá þér að þú þyrftir að segja frá þessu, annars hefðir þú aldrei verðíð sáttur við sjálfan þig. Ég, eins og margir aðrir, hefði ekki trúað því að Reynir Traustason myndi reyna að ljúga sig út úr þessu. Ég hef alltaf haldið að hann væri meiri karl an það, en nú er maður búinn að missa allt álit á honum. Gangi þér vel á nýjum starfsvettvangi.

  • Þó leið okkar beggja liggji um sömu borg, og líklega sé þar enginn griðastaður. Þá gengur þú heill á hólm við böl og sorg. Og hugsar sjáfur,Það er að vera maður. (Davíð)

    Til hamingju. Þú kemur standandi niður úr þessu og vel það. Þá er tilgangnum náð. Að brjóta ekki gegn samvisku sinni.

  • Flott hjá þér Jón Bjarki :) Íslenska þjóðin getur verið stolt af þér að þora..

  • þetta er snild vantar þig eithvað að gera ertu atvinnulaus??

  • Þakka þér, Jón Bjarki ! Ég vona að fleiri blaðamenn taki þig til fyrirmyndar..

  • Keep it up !

Skildu eftir skilaboð