Mótmælendum fyrir utan Hótel Borg tókst í dag að stöðva útsendingu Kryddsíldar Stöðvar 2, með því að kippa snúrum úr sambandi bræða tækjakapla með blysum.
Lögregla brást við mótmælunum af mikilli hörku og nokkru stjórnleysi að virðist. Ólíkt öguðum vinnubrögðum lögreglunnar, til að mynda þegar Haukur Hilmarsson var leystur úr ólögmætu haldi í lögreglustöðinni á Hverfisgötu, þá virtust lögreglumenn nú láta eigið skap eða skapgerðarbresti hlaupa með sig í gönur – og þeim um leið gefinn laus taumurinn. Táragasi var beitt á mótmælendur með uppréttar hendur þar sem þeir voru að hörfa undan lögreglu. Ungur maður segir frá því hvernig lögregla réðst að honum með táragasi þar sem hann var að hlynna að öðru fórnarlambi.
Það sem virðist hafa hleypt lögreglu upp voru ókvæðisorð sem mótmælendur hrópuðu að þeim, söngurinn „vísifingur, vísifingur, hvar ert þú“ – með tilheyrandi handapati – og mold sem kastað var að lögreglu. Auk þess getur hugsast að einhverjir í lögregluliðinu hafi hreinlega orðið skelkaðir vegna hávaðaláta af flugeldum, svokölluðum „kínverjum“ og reyk af blysum sem brennd voru á svæðinu. Áhorfendum að mótmælunum ber þó flestum saman um að þeir hafi ekki haft á tilfinningunni að þar væri neitt að óttast – ekki fyrr en kom til árásar lögreglu. Á myndbandi á vef Vísis.is má sjá hvar það sem virðist grjóthnullungur flýgur úr hópi mótmælenda í átt að lögreglu, þegar lögreglan hefur ráðist til atlögu við hópinn.
Fréttamaður Stöðvar 2 nefndi það skemmdarverk á tækjabúnaði og lét í veðri vaka að myndavélar hefðu verið eyðilagðar sem samkvæmt heimildum Nei. er rangt.
Einum heimildamanni segist svo frá:
„Ég fór öðru hvoru inn í portið en ég var ekki inni í húsinu. Fyrir utan voru meðal annara Egill Helgason með Kára og Illugi Jökulsson, einhverjir þingmenn frjálslyndaflokksins voru þarna og margir með börn. Þarna var fólk á öllum aldri. Ég sem sagt hef ekki mikið um þetta að segja. Mér var hins vegar sagt að kapallinn inn í húsið hafi verið brenndur með blysum. Þá sögðu krakkarnir mér að tæknimennirnir hefðu reynt að varna þeim inngöngu og þá hafi komið til einhverra átaka. Einn anarkisti sagði mér að hann hafi sagt við tæknimann að hann ætti ekkert sökótt við hann og væri ekki komin til að slást. Tæknimaðurinn hefði ekki viljað sleppa af honum takinu og þá hafi hann slitið sig lausann. Hann sagði mér líka að tæknimennirnir hefðu grátbeðið þau um að leyfa þeim að halda áfram útsendingu. Við því var ekki orðið. Anarkistinn sagði mér að tilgangurinn með mótmælunum hafi verið að stöðva þessa leiksýningu, það hafi tekist, mótmælin hefðu heppnast fullkomlega, tilganginum hefði verið náð.“
Af vitnisburði mótmælenda og nærstaddra að dæma virðist lögreglan hafa beitt mjög mikilli hörku, jafnvel beinlínis að tilefnislausu. Helgi J. Hauksson, ljósmyndari Nei, tók þessar myndir þar sem lögregla virðist beinlínis ráðast að hópi fólks sem hefur rétt upp hendur á undanhaldi – myndirnar eru teknar á 14 sekúndna tímabili:
Þá er lögregla sögð hafa hrópað að mótmælendum, á einhverjum tímapunkti, að þetta væru nú „ólögleg mótmæli“. Ekki er ljóst til hvaða lagagreinar lögregla vísaði með þeim orðum.
Þó er vert að hafa í huga að nú um áramótin, það er frá deginum í dag, tóku gildi víðtækari heimildir lögreglu til að bregðast við eignaspjöllum eða möguleikanum á eignaspjöllum á mótmælasamkomum, til dæmis með handtöku allra nálægra, án þess að viðkomandi þurfi að sæta rökstuddum grun. Verið getur að lögregla hafi, spennt fyrir nýju lögunum, þjófstartað.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir náði að leggja inn nokkur vel valin orð um mótmælendur áður en útsending var stöðvuð. Hún sagði það meðal annars hefð úr Arabaheiminum, sem „hér“ eigi sér engar rætur, að dylja andlit sitt með klútum – og til marks um að mótmælendurnir sem nú ættu í hlut væru að hegða sér á óásættanlegri hátt en hún sjálf þegar hún stundaði mótmæli á yngri árum – þá hefði hún ekki ógnað neinum en nú þætti henni sér ógnað.
Þannig varð ekki vart við að hún gerði sér fulla grein fyrir stöðu sinni sem breytu í upplifun af mómælunum.
Það vita þeir sem vilja, langi mann til að hugsa út frá hefðum frekar en skynsemi, að þúsund ára hefð er fyrir því að dylja andlit sitt, í frásögnum af íslenskum heljarmönnum, tvö hundruð ára hefð í villta vestrinu, og tíðkaðist víst á 7. og 8. áratugnum í Evrópu. Ingibjörg fór þarna með staðlausa stafi, eða þvætting.
Hins vegar verða ummælin um hefð úr Arabaheiminum varla skilin öðruvísi en sem einkar ankannanleg tilraun til að heimfæra rasíska fordóma sem alið hefur á kringum „stríðið gegn hryðjuverkum“ upp á íslensku mótmælendurna, með því að láta í veðri vaka að þeir hafi orðið fyrir einhvers konar smiti frá Arabaheiminum.
Utanríkisráðherra virðist orðið fjarri öllum veruleika ekki bara íslenskum. Ekki þarf að fara lengra en til samtíma Danmerkur (síðustu 15 ár eða svo) til að finna unga andófsmenn sem hylja andlit sín - enda eru þeir að stríða við þau öfl sem mestu ráða í glóbalíseríngunni og eru meira eða minna andlitslaus. Auk þess er vert að taka fram að það er skynsamlegt að hylja andlit sitt nú um stundir ef stefnan er að beita andstæðinga stjórnvalda piparúða í nafni ,yfirvofandi eignatjóns’. Það er gamla sagan: Hvar var piparúðinn þegar almenningur varð fyrir eignatjóni?
Auðvitað er utanríkisráðherra krakki sem ekki hefur öðlast skilning á nær- og fjærumhverfi sínu. Hegðun Ingibjargar Sólrúnar og yfirlýsingar eru af þessu sauðahúsi; úr húsi sauðanna. Afar heppilegt að láta hafa eftir sér vitleysu eins og tilvísandir í „Arabaheiminn“ undir ofangreindum kringumstæðum. Hef aldrei trúað orði af því sem þessi manneskja segir en nú er ástæða til að véfengja yfirlýsingu þá sem ráðherrann nýlega lét frá sér fara varðandi yfirstandandi hryðjuverkaárásir og fjöldamorð zionista á Palestínuaröbum…Maður bara spyr hvort sú yfirlýsing sé ekki bara útprentað skjal sem fær nýja dagsetningu eftir aðstæðum…
Ég ræddi við bæði lögreglu og tæknimenn eftir mótmælin og spurði m.a. um hið meinta eignatjón. Báðir aðilar minntust einungis á skemmda kapla. Þá sagði sviðstjórinn mér að þetta væri tjón upp á hundruð þúsunda. Þetta er sem sagt ekki milljóna tjón eins og forsvarsmenn Stöðvar 2 halda fram. Þeir hafa sem sagt logið um meint myndavélatjón og ýkt almennt úr hófi fram. Þeir Sigmundur Ernir og Ari Edwald eru lygarar og fréttastofa Stöðvar 2 er almannatengslaskrifstofa fjárglæframanna.
Ég benti sviðstjóranum á að ef þeir hefðu einfaldlega hleypt mótmælendum inn í útsendinguna hefðu þeir fengið miklu betra sjónvarpsefni (í góðum takti við ástandið í þjóðfélaginu) og sloppið með allt tjón og átök. Það hefði orðið með eftirminnilegri útsendingum hjá Stöð 2: Bylting í beinni.
Varðandi ummæli Sigmundar Ernis að mótmælin væru “aðför að lýðræðislegri umræðu” (eða svipað), þá vil ég benda á að lýðræðisleg umræða, lokuð af með formönnum stjórnmálaflokka er ekki lýðræðisleg og viðhald hennar aðför að lýðræðislegri umræðu.
Óttalegt væl er þetta í kerlingarálftinni. Ef hún telur ógn stafa af því að fólk hylji andlit sín, þá spyr ég:
Hverjum var Ingibjörg Sólrún þá að ógna með því að hylja hár sitt með slæðu í frægri Miðausturlandaför sinni fyrir ekki svo löngu síðan?
Getur einhver svarað mér því?
Þegar mótmælendurnir hrópa „vísifingur, vísifingur, hvar ert þú?“ o.s.frv. þá ota þeir fram löngutöng. Er þetta einhverskonar brandari eða klaufalegur misskilningur?
Guðmundur: ég veit ekki hvar mistökin eiga sér uppruna, en það er alltaf hrópað „langatöng langatöng, hvar ert þú?“. Þessi villa er rosalega algeng í umræðuni um hótel borg. Ýkt pirrandi, allir að edita greinarnar sínar.
[...] in to the air to show that the group was unarmed. Like photographer Helgi Hauksson, has shown with his photos, the police attacked the people with their arms in the air. More eyes got burned this time and [...]
[...] in to the air to show that the group was unarmed. Like photographer Helgi Hauksson, has shown with his photos, the police attacked the people with their arms in the air. More eyes got burned this time and [...]