Inni í hátíðarskreyttum veislusal sátu búkarnir sem kalla sig leiðtoga okkar og skáluðu fyrir syndum sínum í kampavíni, gerðu grín, höfðu gaman og töluðu í hringi um eigið ágæti. Við verðum aldrei annað en skríll í þeirra augum nema við verðum samdauna veruleika þeirra - handritinu sem okkur var úthlutað - og göngumst bogin og bljúg við valdboðinu.
Heiðvirðir borgarar verða að kunna að hlýða og þegja. Okkur leyfist að hópast á afmörkuð svæði, á fyrirfram ákveðnum tímum og við megum meira að segja hrópa okkur hás … svo lengi sem við truflum engan; á meðan við högum okkur eins og strengjabrúður er manndómur okkar lofaður.
Við erum löngu hætt að trúa þessu. Þess vegna kveiktum við þennan dag á kyndlum sem brunnu eins og réttlætisloginn sem nú brennur heitari en nokkru sinni í brjóstum okkar. Við erum til.
Smelltu á stóra svarta rammann efst á síðunni til að sjá.
Frábært.
Virkilega flottar myndir og lýsandi frásögn fyrir upplifunina og stöðuna.
vel gert og einlægt
baráttukveðjur
Frábært!
Mjög gott videó!
Takk fyrir. Upplýsandi, fallegt en sorglegt.
Ég fékk tár í augun. Þakkir mega fylgja ykkur til endaloka byltingar og upphafs nýrra tíma minir kæru aðilar.
Mjög áhrifaríkt! Takk.
Flott myndband, góður texti og réttlát sýn. Takk fyrir. Lifi byltingin!
Takk fyrir.
Frábært! Meira svona - magnaðar myndir - magnaður texti - magnaður SANNLEIKUR!
Kærar þakkir! Brýn skilaboð sett fram með framúrskarandi hætti - magnað verk!
Frábært myndband - góð tjáning. Eigið þakkir mínar fyrir að standa með framtíðinni.
Dýpstu þakkir fyrir frásögnina. Reiðin bráði af mér stundarkorn svo hlýnaði um hjartaræturnar. Í lokin fann ég til undarlegs stolts fyrir að hafa tekið þátt í blysgöngunni með ykkur öllum.
Minnist orða Gandhis:
First they ignore you. Then they ridicule you. Then they fight you. Then you win.
[...] - Veruleikaróf Published 6 jan, 2009 byltingin , þvaður Hér er myndband sem ég mæli með að allir horfi á og hlusti á það sem sagt [...]
Massíft !!! (það er vídeoið) - En einnig stórt Takk fyrir frábæran miðil, sennilega þann besta á landinu í dag.
Magnað myndband. Rétt lýsing á því sem er að gerast. Mér ofbauð þvaðrið í ráðamönnum á Borginni og fór niður í bæ og þetta var svona: eitt augnablik komst það í gegn að ráðamenn komast ekki upp með kjaftæði.
hefur einhver sett upp forum þar sem hægt er að deila hugmyndum varðandi frekari aðgerðir?
Kv. TFA
TFA, facebook - Stuðningmenn aðgerðasinna. Einnig tilkynning.blogspot.com. Ekki forum ennþá svosem.
Mjög flott og virkileg þörf á því að sjá annað sjónarhorn en fjölmiðlarnir sýna.
Hrefna
Ég fékk tár í augun. Listaverk. Dagblöðin eru dauð. Í þessu verki er margmiðlunartæknin færð til hæstu hæða á áhrifaríkan en fágaðan hátt. Meira svona!
mjog ahrifarikt og flottar myndir,med theim bestu sem eg sed lengi frabaer framsetning!!
meira,meira segi eg!!
Takk, takk, takk! Frábært.
ótrúlega flott.. Magnaðar myndir og lýsingar.. Skríllinn svarar fyrir sig!
[...] ekki má persónugera”… flott setning úr mögnuðu myndbandi sem finna má hér: http://this.is/nei/?p=2089 Published [...]
Yndislegt myndband, ég er orðlaus, ég er stoltur, ég er uppnuminn. Lifi byltingin!
Djöfulli var þetta magnað - tók mig langan tíma að jafna mig á geðshræringunni Takk kærlega fyrir mig Lifi byltingin
Látum þetta berast út, stöndum saman
Vá hvað þetta er flott hjá ykkur, ótrúlegt myndband !
þetta er enginn endanlegur sannleikur. og ekkert gefið mál að búrkur og brunnir kaplar betrumbæti landráð og þjóðarrán í grilljörðum talið.
en þá má auðvitað spyrja sig, eins og Þórarinn Haki gerði:
HVORT ER VERRA, BRUNNIR KAPLAR EÐA STEIKT HAGKERFI?
THETTA ER RAUNVERULEGT LISTAVERK!
faglegt mótvægi við allt miðstýrða draslið. dagblaðið Nei er ekki lengur dagblað, heldur margmiðlandi þrýstihópur.
Upplífgandi keimur af veruleika í öllu draumasvallinu!
Vá þetta hafði mikil áhrif á mig þvílíkt flott hjá ykkur. Þessar myndir eru mjög flottar´og áhrifaríkar.
Takk, þetta hrærði mig.
þetta er alvöru.
Frábært framtak! Meira svona!
Ég fékk tár í augun! Takk…. þurfti á þessu að halda. Suma daga er maður bara svo vonlaus um að það sé möguleiki að búa til betra samfélag hérna…Og þá er gott að fá svona magnað myndband
Jesús minn, þið fólk sem styðjið svona veruleikafirrt mótmæli þurfið að leita ykkar andlegrar aðstoðar. Hvernig hafið þið það í ykkur að ráðast á saklaust fólk, líkt og starfsfólk stöðvar 2 og starfsfólks Hotel Sögu?? Og svo kennið þið fólkinu sem fer með völdin um þetta allt saman, vissulega eiga þau að axla sína ábyrgð, en þau gera það í kerfi sem við erum með, og í því kerfi er kosið á 4 ára fresti ef ekki kemur til stjórnarslita. Þannig hættið nú þessu rugli ykkar og hættið að beita ofbeldi og skemmdarverkum. Því með þessum gjörðum ykkar eruð þið með skrílslæti og þá er réttnefni ykkar skríll.
Bye Bye
Frábært verðum ð halda áfram að standa saman
Mæli með því að þú opnir á þér augun og eyrun Björg og reynir að átta þig á hver raunveruleikinn á Íslandi er í dag. Þetta kerfi sem þú vitnar í er ónýtt og ef það fær að viðhaldast þá mun enginn þurfa að axla ábyrgð en skríllinn mun fá að borga skuldir þeirra er hafa logið að honum og rænt hann öllu.
Þetta myndband er frábært og bestu þakkir til þeirra er halda úti vefritinu NEI
BÝR BJÖRG EKKI Á ÍSLANDI?
Jú, Björg er ábyggilega búsett á Íslandi…. bara með bundið fyrir augun og banana í eyrunum
Ég er svo mikið og hjartanslega sammála henni Björgu sem skrifar hér fyrir ofan.
Þetta er voða fínt myndband og mikil dramatík og list í þessu en verð að hryggja ykkur með því að þið eruð ekki nafli alheimsins og jáhópur ykkar er þröngur.
Afar fáir sjá þennan ákveðna atburð með þessum augum.
Svona látalæti og leikaraskapur er engum til framdráttar hvað þá skemmdarverk og ofbeldi.
Nú sem aldrei fyrr þarf að þekkja sinn vitjunartíma.
Flott myndband og gott framtak. Eins og ég les þetta er krafa mótmælenda einföld: 1. Að þeir sem komu okkur í þessa stöðu víki til hliðar. 2. Að hrunið verði rannsakað af óháðum aðilum 3. Að þeir sem framið hafa glæpi verði dregnir til ábyrgðar 4. Að stjórnvöld endurnýji umboð sitt með kosningum
Eru þetta virkilega ósanngjarnar kröfur?
Ég styð Óla Jónsson heilshugar..
Gott mindband.Vandaður áróður.Bjørg,Þú borgar í skøttum allt Þitt auma lív 50% hærri skatt fyrir avgløp Þessara manna sem eru flestir háskólagengnir.Að auki hækka skuldir Þínar um helming og aftur um helming á Þessu ári.
TFA: Bloggsíður þar sem allir geta sent inn tilkynningar um fyrirhugaðar aðgerðir og mótmæli: tilkynning.blog.is tilkynning.blogcentral.is tilkynning.blogspot.com Tilkynning Aðgerðir Mótmæli á Facebook minnir á þegar eitthvað er í vændum. Addaðu þeim profíl og sá prófíll mun uppfæra status hjá sér þegar eitthvað er í vændum næstu daga.
Ágæta Snjólaug.
Ég er þér ósammála: ef heimurinn er endalaus er miðjan allstaðar (þar með talið í “naflanum mínum”) og þar með er ég alltaf, hvort sem mér líkar betur eða ver, staddur í miðju alheimsins. Og hér kemur galdurinn; þú líka. Sem líkamleg, og þar með takmörkuð vera, verð ég alltaf bundinn sjónarhorni og svo lengi sem ég þarf að eiga í samskiptum við verur bundnar sömu takmörkunum get ekki annað en talað út frá eigin “nafla”. En af orðum þínum má ráða að þú hafir misskilið myndverkið og teljir okkur halda því fram að við séum eini naflinn í heiminum, eina sjónarhornið. Guð forði okkur frá því að halda því fram.
Allur trúverðugleiki, öll góð sannindi, allt á þetta eingöngu rætur í skilningarvitunum. Það er lögmálið og því erum við, samkvæmt flestum heimspekingum sem fengist hafa við verufræði, allt að því ófáanlegir til að fylgjast með nokkrum hlut án þess að vera skáld um leið. Allt þetta þýðir að við erum frá rótum, frá upphafi vegar, vanir því að ljúga. Eða svo þetta sé sagt á hinu viðfelldna máli dyggðanna og hræsninnar: Við erum langt um meiri listamenn en við höldum.
Við skulum því við varast hinn aldna skáldskap sem gerði ráð fyrir ,,hreinu, viljalausu, sársaukalausu, tímalausu og þekkjanlegu viðfangi.“ Vörumst gildrur mótsagnakenndra hugtaka á borð við ,,hreina skynsemi”, ,,algera andlega göfgi,” eða ,,þekkingu í sjálfri sér”: þau krefjast alltaf þess að við hugsum okkur auga sem ekki er með nokkru móti hægt að ímynda sér, auga sem snýr ekki í neina sérstaka átt. Í þessu óhugsandi auga eru hin virku öfl túlkunar, sem gera það að verkum að sýn verður sýn á eitthvað, ekki til staðar; þessi hugtök krefjast því þvaðurs og fásinnu af auganu. Það er einungis hægt að sjá frá sjónarhorni, einungis hægt að vita frá sjónarhóli; og því fleiri aðilum sem við leifum að tala um einn hlut, því fleiri nafla, mismunandi nafla, sem við getum notað til að skoða einn hlut, því fullkomnari verður hugtak okkar um þennan hlut, því fullkomnari verður hlutlægni okkar.
Vonandi dettur mér aldrei í hug að leggja þeim 6 milljörðum sem byggja þessa plánetu orð í munn.
Með vinsemd og virðingu
Magnús Björn Ólafsson
Þarna er vitnað í einhverja gamla kalla en get þeirra ekki sérstaklega enda engin ástæða til að hluta í sundur þakkarskuldir í kommentadálkum.
Merkilegt nokk Snjólaug/Björg þá virðast samt allir sem voru á staðnum hafa upplifað það sem þeir sáu með sama hætti, og þar á meðal jafnvel Eyþór bloggari og tæknimaður SagaFilm, - allir nema Sigmundur Ernir, lögreglan og Ingibjörg Sólrún - aðrir kópera skrök-fréttir Sigmundar Ernis sem t.d. hvorki spyr eða greinir frá hve margir mótmælendur þurftu að leita læknishjálpar eftir árásir lögreglu á þá sitjandi inni og með hendur yfir höfði úti.
Þetta myndband tjáir afar vel upplifun þáttakenda.
Magnús halda mætti að R.A.W. væri þinn læriföður.
BTW: Meira af svona. Það þarf öflugan gagnáróður,það er ein helsta vígstöðin.
Lifi Byltingin!
Frábært, eins og ferskur andvari inn í þungbúið hús. Mér finnst allt vera lifna við. Kærar þakkir fyrir alvöru mótvægi NEI, þetta er allt að koma.
Það vantar mynd af glóðuraugum myndatökumanna og starfsamanna hótel Borgar - sem hafa að mér vitandi ekki gert mikið á minn hlut í það minnsta, þeir eru bara að reyna að vinna sína vinnu. Það vantar líka mynd af grjótkastinu í átt að lögreglu í þessum friðsamlegu mótmælum, eða kinnbeinsbrota lögreglumanninum. Enda fátt jafn friðsamlegt og að klifra yfir læstar girðingar og berja sig fram hjá starfsmönnum. Það tók lögreglu heillangan tíma að gera eitthvað þar sem þeir gáfu mótmælendum allan vafa sem þeir gátu til að sýna að mótmælin voru friðsamleg. Þegar lögregla skarst í leikinn til að færa fólk útaf hótel Borg sem það hafði engan rétt til að vera inná enda ekki í opinberri eigu þá æstust mótmælendur og voru ákveðnir í að taka vel á móti. Þess má reyndar geta að lögreglan eða einstakir lögregluþjónar eiga ekki sök á því ástandi sem er uppi. Þeir eru bara að reyna að vinna sína vinnu fyrir alltof lág laun. En aðrir borgarar sem eru ósáttir við sitt ástand og telja sig hafna yfir lög í mótmælum ákveða að reyna að berja á þeim og gera þeim nánast ómögulegt að gera annað en að beita táragasi, þrátt fyrir að það hafi sannarlega verið síðasta úrræði í öll skipti sem því hefur verið beitt. Ekki hefur dugað að tala við mótmælendur í það minnsta. Þessi hegðun sem sýnd var við hótel Borg var til skammar, þ.e. frá því að reynt er að ryðjast inná hótelið, allt fram að því voru mjóg góð mótmæli enda heyrðu allir sem horfðu eða hlustuðu á kryddsíld að fólk vildi ekki láta bjóða sér þennan gjörning sem var að gerast inni. Maður var líka ánægður eða vonaði þegar maður stóð á túninu álengdar að þetta yrði ekki verra. En aðilar með hnífa og grímur fyrir andliti eru ekki friðsamlegir mótmælendur, frekar glæpamenn.
Aldeilis listrænn taktur og myndgerð.
Maður skynjar það sem er á skakk og skjön í þjóðfélagi okkar þennan gamlársdag; þau og við.
Frábært. Takk fyrir aðgerðirnar. Takk fyrir kjarkinn og að standa vörðinn fyrir okkur sem fjarri eum, huglausari eða sinnulausari. Það er þrátt fyrir allt von í landi spillinganna meðan við eigum fólk eins og ykkur. Jóhanna,53 ára
Jóhann, eini maðurinn með glóðarauga var maður sem tók þá ákvörðun sjálfviljugur að reyna að henda mótmælendum út. Eins og sést á fréttamyndum stöðvar tvö tróðu mótmælendur sér inn, þeir voru ekki þarna til að slást. Fólk í svona troðningi fær stundum pústra.
Það náðust engar myndir af þessu meinta grjótkasti. Það hefur væntanlega gerst eftir á því engin lögga fékk í sig stein meðan ég var þarna. Fólk var virkilega reitt eftir framgöngu lögreglu og einhver hefur látið reiðina leiða sig í gönur. Þetta er það eina sem ég harma við þessi mótmæli.
Ruðst var inn í anddyri bakherbergis hótelsins, því það heyrðist ekki í okkur fyrir framan. Það hefði semsagt ekkert heyrst heima í stofu ef við hefðum ekki farið inn í portið.
Við eigum ekkert sökótt við lögregluna þegar hún beitir ekki vopnum á okkur.
Orðræða þín er lituð af áróðri Ara Auðvalds og skósveina hans, manns sem er einn þeirra sem setti okkur á hausinn. Ertu til í að kynna þér okkar hlið á málinu áður en þú heldur áfram að blammera?
Alveg meiriháttaR FRAMTAK… TÖKUM ÖLL HÖNDUM SAMAN.. f’olkið
FRABAERAR myndir, rosalega virkar svart hvita stemmningin… takk fyrir thetta. Annars datt eg inni i thessi motmaeli og fannst allt edlilegt sem tharna for fram……. Frammistada fjolmidla kemur einna lelegast ut… motmaelin fleyttu yfirbord reidinnar, adgerdirnar gegn Kryddsildinni virkudu, logreglan stod sig med prydi… (their voru bara i vinnunni sinni) adhlynning hjukrunarmannanna addaunarverd, reidi fulli kallinn!!! og sonur hans storskemmtilegir (sja frabaert myndskeid thessara tveggja framamanna……. ) Aldrei sa eg steininum hent en heyrdi seinna ad einn logreglumannanna hefdi kveinkad ser og sagt AE……….. Vona svo heitt og innilega ad meidsl hans verdi ekki varanleg og kludur stjornvalda, en frasogn fjolmidla af atburdinum er einna likust yfirferd af svipudum uppakomum i Kina. Hlutleysi ekki fyrir ad finna og greinileg medvirkni i gangi….. atti ekki von a thessu en hver atti svo sem von a thessu ollu saman…..
Frábært myndband, verðum að nota listina til að sporna við ótrúlegri rógsherferð fjölmiðla í garð þess gríðarstóra fólks sem studdi þessi mótmæli. Það er ótrúlegt að þurfa að rífast við fólk sem var ekki á staðnum sem telur fjölmiðla hafa gefið sér nægilega skýra mynd af því til að geta rifist um það!
Koma þessu til allra sem eru að rífast um það, og segjum upp áskrift að stöð2. Í það minnsta þar til þeir biðjast afsökunar á ósannindum og ýja að því að mótmælendur séu “ótýndir glæpamenn” sem þurfi að lumbra á. Þvílíkt og annað eins bull!
Frábært myndband. Mjög flott og lýsir stemmingunni utan húss vel. Meira svona.
lengi lifi skríllinn, hyskin og lýðurinn, megi strjórnin drukkna í egin þvælingi
Flott myndband, væmið og allt of dramatískt en flott.
Breytir því samt ekki að mótmælendur gengu of langt á gamlársdag, sorry.
Það sorglega er samt að hvert sinn sem farið er illa með almenning þá endar þetta alltaf með fátæklingum að berja á öðrum fátæklingum. Lögreglan er ekki óvinurinn. En Jóhann ég sel það nú reyndar ekki dýrara en ég keypti það, en ég hef heyrt flesta sem þarna voru að steinninn hafi komið eftir að táragasið var brúkað. Það er svo önnur umræða hvort það hafi verið réttlætanlegt. Sumum finnst allt ofbeldi í lagi svo lengi sem þú hefur réttu pappírana, ég er ekki sammála því.
já sammála þér pétur,
gamla konan þarna uppi með hrossabrestinn er greinilega alltof langt gengin !!
eða þannig
Jón Ég á ekki í neinum tengslum við Ara Edwald. Reyndar ertu að ofmeta hann stórlega þegar þú segir að hann sé einn af þeim sem settu okkur á hausinn. Gætir alveg eins dregið inní þessa mynd kassadömu á bónus enda er Ari bara uppá punt.
Hvenær steinum er kastað í lögreglu er algjört aukaatriði, fátæklingar að berja á fátæklingum lýsir fáránleikanum ágætlega. Það breytir ekki þeirri staðreynd að það eru lög í landinu og sem lögreglan þarf að fylgja. Þau lög voru ekki sett af núverandi ríkisstjórn, heldur almenn lög um hegðun borgara í siðmenntuðu samfélagi. Aðgerð lögreglu var fyllilega réttlætanleg enda er það skylda íbúa þessa lands að hlíta öllum kröfum lögreglu sem eru skv. lögum landsins. Það gerðu þeir sem voru að brjóta sér leið inní Hótel Borg ekki. Mótmælendur áttu engan rétt á að vera þarna. Hver var líka ástæða þess að kveikja í sjónvarpsköplum? Það var því miður ekkert friðsamlegt við þessi mótmæli, vonandi hagaði meirihlutinn sér vel, allavega hefur það líklega verið ætlunin. En múgsefjun verður mikil á svona samkomum og þá fara þeir að stjórna sem hafa hugsanlega mestu lætin og koma með verstu hugmyndirnar þar sem auðvelt er að fá aðra með sér, sem vilja hugsanlega meiri bein viðbrögð.
Tískuorðið aðgerðarsinni sem ákveðnir mótmælendur vilja kalla sig er einfaldlega samheiti yfir aðila sem telur sig ekki þurfa að fara yfir þeim lögum sem gilda í landinu. Voru hugsanlega auðmenn landsins aðgerðarsinnar?
En ég styð mótmæli gagnvart ríkisstjórn, vænti þess að mótmælendur kjósi þá engan af þeim flokkum sem eru til í dag í næstu kosningum. Áttum okkur á því að Samfylkgingin getur með því að smella fingri látið alla drauma mótmælenda rætast. Það er algjörlega á þeirra valdi að slíta ríkisstjórnarsamstarfi. Þeir gera það samt ekki og eru samt að koma vel útúr skoðanakönnunum, það sýnir hvað þetta ristir allt saman grunnt.
Flott myndskeið, tónlist og texti. Fimm stjörnur! Bestu baráttukveðjur, Hlynur
Flott hjá ykkur og við verðum að halda áfram að berjast gegn þessu úldna kerfi! Tveir punktar í viðbót:
eitt sem mér fannst líka skrýtið við aðgerðirnar eða mótvægi þeirra - hvers vegna voru starfsmenn veitingastaðarins að varna fólki inngöngu? - að verja þetta pakk - það er alls ekki þeirra starf og þeir eru alveg í sömu stöðu og við hin og reyndar löggan líka en mér fannst það furðulegt..
Brjótum þessa vitleysinga á bak aftur með byltingu því þannig breytast hlutirnir!
Björk, væri ekki gáfulegra að nota eitthvað annað en ofbeldi til þess að breyta þjóðfélaginu? Langstærsti hluti fólks vill aðgerðir af hálfu stjórnamanna en nánast allir í þjóðfélaginu eru á móti ofbeldi. Ef ofbeldi er notað þá fara málin að snúast um mótmælendur og ofbeldi ekki afglöp stjórnarmanna. Fyrir utan að ofbeldi er heimskulegasta tjáningarform mannsins. Eina sem kemst til skila er hversu vitlaus sá er sem beitir því.
Þetta er mjög áhrifaríkt myndskeið. Kemur vel fram stemningin sem myndaðist þarna á síðasta degi ársins. Ég var þarna, takk fyrir að koma þessu svona vel til skila, takk.
Shit, Leni Riefenstahl hefði varla geta gert betri propaganda mynd… þetta er svo veruleikafirrt pakk sem notar orðið mótmæli í því yfirskyni að það sé í lagi að brjótast inn, brjóta og bramla og veitast að fólki með ofbeldi og kasta grjót framan í fólk…
Alltaf verið að röfla um að afhverju handtekur löggan ekki hinn og þenna? er ekki verið að rannsaka öll þessi mál? Það er umsvifsmeira en að horfa á einhvern af ykkur pappakössunum brjóta glugga eða grýta fólk með múrsteinum.
Jóhann, var ég að tala um ofbeldi? Þegar ég á við byltingu þá á ég við um hugsunarhátt fólks í æðstu stöðum en ekki það að berja á einum og neinum. Við þurfum að gera þeim ljóst að við viljum þá burt og við viljum breytt samfélag, sterkar heiðarlegar stofnanir og burt með spillingu! Brjótum þá á bak aftur þá á ég við að koma þeim út með sterkum og öflugum mótmælum. Þannig gerast hlutirnir að mínu mati. Ekki sá ég neinn beita ofbeldi þrátt fyrir að hafa verið inná hótelinu þennan umrædda gamlársdag. Ég mótmælti friðsamlega og fékk í staðinn ofbeldi af hálfu lögreglunnar og úða til baka. Tjah ætli lögreglan séu ekki hinir raunverulegu vitleysingar.
það er búið að reyna friðsöm mótmæli. Það er ekki hlustað. það eina sem valdið skilur er vald. Það er kominn tími á að sýna þeim hver hefur valdið.
Björk, þrátt fyrir að þú hafir ekki séð neinn beita ofbeldi þennan dag, þá var ofbeldi beitt þarna þennan dag. Það er staðreynd.
Það sorglega og fyndna við þetta allt saman er hversu valdamikil þið álítið ykkur vera. Þið munið ekki koma ríkisstjórninni frá með svona aðgerðum, það mun ekki gerast. Friðsamlegu mótmælin eru mun líklegri til að hafa áhrif, t.d. mótmælin í Háskólabíói.
Það sem mig langar að vita frá ykkur sem voru þarna á Hótel Borg og stóðuð fyrir þessu, jafnvel líka þeim sem misstu stjórn á sér, eru eftirfarandi spurningar:
Hvað ætluðuð þið að gera ef þið hefðuð komist inn í útsendingarsalinn á Hótel Borg? (var eitthvað plan?)
Hvað teljið þið að fólk úr þessum hópi hefði raunverulega gert ef þau hefðu komist þarna inn?
Eitt er að plana mótmæli og plana að trufla útsendinguna, brjótast inn á Hótel Borg og reyna að komast í mynd.
Annað er svo múgæsingurinn og ofbeldið sem á sér stað þegar menn (konur eru líka menn) ógna öllum sem á vegi þeirra verður, kasta steinum í lögreglu, ráðast á starfsfólk Stöðvar 2 og Hótel Borgar sem reyna að hindra þessi ólögmætu mótmæli (voruð þið með leyfi Hótelsins þar inni?).
Maður spyr sig hvort einhver ofbeldisseggurinn hefði hreinlega í brjálæði sínu grýtt formenn stjórnmálaflokkanna eða ráðist á þá og stórslasað?
Annars er gaman að fylgjast með mótmælunum og heyra hvað sagt er á útifundunum. Ég get bara ekki sætt mig við ofbeldi og yfirgang, þetta verður að takast með friðsamlegum hætti, sama hvað hefur dunið yfir, við verðum að vera betri en þeir sem beittu þjóðina óréttlæti.
Ein spurning til þín: úr hvaða hópi? Ég var ekki partur af neinum hópi. Ég get bara svarað fyrir mig og ég hefði spurt hvernig þessir menn gætu setið þarna með góðri samvisku. Af hverju þeir taki ekki ábyrgð. Af hverju þeir hlusti ekki á fólkið sem er búið að vera að mótmæla í 9 vikur. Ég viðurkenni það þó fúslega að æsingur getur leitt til ofbeldis. Fólk er jú reitt. Staðreynd: það var einn sem kastaði steini og særði lögreglumann að vísu að sögn fjölmiðla. Tilgangurinn var jú að stoppa útsendinguna og ekki þurfa að hlusta á ráðamenn forðast spurningar Sigmunds eftir bestu getu, skála og gæða sér á dýrindis kræsingum. Ein staðreynd: ef allt fólkið hefði bara verið á Austurvelli að hrópa sín slagorð þar hefði ekki heyrst til þess. Við þurfum að láta þau heyra í okkur og stöðva þessar endalausu orðræður þeirra sem fara hring eftir hring og enginn er lengur fulltrúi þjóðarinnar. Bara þeir sem sitja heima í þögninni. Höldum áfram að láta í okkur heyra.
Hér hefur verið vandað til verks. Óska öllum sem létu hendur standa fram úr ermum til hamingju með afraksturinn.
Er farinn að hallast að því myndskeið á netinu sé orðin áhrifaríkasta aðferðin til þess að koma skoðunum sínum á framfæri - fann fyrir réttlætiskennd við áhorfið.
Það er óumflýjanleg staðreynd að í enda dags höfðu þeir sem að voru þarna að verki traðkað á annarra manna rétti. Hér var um að ræða upplýsandi þátt (ekki að það eigi að skipta máli) - fyrir þá sem vildu horfa - og hafði almenningur óskoraðan rétt til þess.
Að mótmæla opinberu valdi er mér vitanlega allt annað mál en að koma í veg fyrir að umræða stjórnmálamanna skili sér til almennings.
Ég tel það vera mjög mikilvægt að þjóðin sýni samheldni við þessar aðstæður - hættan við að fleiri mótmæli hafi sambærileg málalok er augljós. Almenningur hættir að hafa trú á að mótmæli muni skila bættu ástandi - hvað var það sem að gerðist með vörubílstjórana?
Frá mínum bæjardyrum séð er málið einfalt - þjóðin þarf að standa sameiginlega að þessu - það mun aldrei gerast nema með friðsamlegu móti - allt annað snýst upp í andhverfu sína á undraskömmum tíma.
Mikið rosalega er þetta flott hjá ykkur!! Framsetningin hreyfði mig allt frá stolti til sorgar og tára. Lokin „Við erum til!“ gáfu mér svo allt sem ég þarf einmitt núna! Hafið þið bestu þakkir fyrir frábært framtak!!
Frábært,,,,Áfram Ísland burt með skrílinn út úr Alþingi.
Frábært áróðursmyndband! Þýsku nasistarnir hefðu verið stoltir af þessu. Því miður nær þetta ekki að sannfæra mig um annað en að einhver sé klár í myndbandagerð og klippingu. Ég vildi nefnilega fá að heyra hvað stjórnmálamennirnir okkar voru að ræða. Þeir eru ennþá okkar löglegu fulltrúar hvort sem grímuklæddum skríl líkar betur eða ver. Eftir stendur að fólk sem ekki hafði til þess leyfi ruddi sér inn í Hótel Borg. Þið mynduð fá miklu fleiri í lið með ykkur ef þið hélduð ykkur við lögleg mótmæli.
Björk Þetta röfl um ofbeldi að hálfu lögreglunnar er því miður agjörlega fáránlegt. Það sáu það allir sem ýmist voru á staðnum eða horfðu á þetta í sjónvarpinu að mótmælendur voru að troða sér inná stað sem þeir höfðu hvorki leyfi til að vera á né neitt erindi í þá átt nema hugsanlega til þess að ráðast að fólki. Lögreglan beið að flestra mati fram á lengstu lög með að grípa til örþrifaráða, því ekki dugar að tala við mótmælendur í þessum ham sem þeir voru komnir í. Þú ert samt greinilega ein af þeim miðað við hvernig þú talar um aðgerðir lögreglunnar sem ert farin að líta á það fólk sem vinnur þar sem einhverja óvini þína. Það er líklega að koma fyrir þig það sem maður óttast að komi fyrir lítinn minnihluta þessara mótmælenda, Menn missa sjónar á markmiðum og þetta snýst út í eitthvað stríð lögreglu og mótmælenda. Lögreglumenn menn eru eingöngu að sinna sínu starfi, þeir finna líklega jafn mikið fyrir meintri efnahagskreppu og allir aðrir. En þetta er það sem er að mótmælunum og mótmælendum það áttar sig enginn á því hvað hann vill. Hvað græðum við á kosningum í vor? Vinstri grænir kusu með eftirlaunafrumvarpinu á sínum tíma t.d. eru þeir eitthvað betri. Þeir vilja halda í krónuna og hafna evrópusambandinu, s.s. fara sömu leið og Davíð. Samfylkingin neitar að fara að vilja mótmælenda þrátt fyrir að vera eini flokkurinn í aðstöðu til þess. Framsókn er rjúkandi rúst sem ber ásamt sjálfstæðiflokknum mesta pólitíska ábyrgð á öllu þessu. Þá eru frjálslyndir og ómar ragnarsson eftir, að ógleymdum Sturlu Jónssyni sem virðist ætla að koma fram með mjög málefnalegt og gott framboð.
Ha já! Lög! Já! Þetta fólk var í vinnunni sinni! Hættið að ybba gogg! Þegar maður er í vinnunni er búið að kaupa mann og maður máiggi gera neitt annað. Maður verður að vinna vinnuna sína. Alltaf! Nema þessir helvítis grímuklæddu skurðlæknar alltaf hreint. Þora þeir ekki að skera upp undir nafni? Hafa þeir kannski ekki leyfi til þess og þora ekki að standa fyrir honum? Og hvað með málarana? Geðsjúkur skríll!
Jóhann fer með ósannindi hér: “Vinstri grænir kusu með eftirlaunafrumvarpinu á sínum tíma” Þetta er helber lygi. Þingmenn VG greiddu atkvæði gegn frumvarpinu, einn ef til vill hjá. Það er hægt að fletta þessu upp á alþingisvefnum ef maður nennir. Það er frekar þreytandi þegar fólk sem ekki veit betur er að bulla og enn verra þegar menn eru ljúga hérna í athugasemdum. Kveðjur, Hlynur Hallsson
Hlynur, þú ættir þá kannski að gefa þér tíma til þess að fletta þessu uppá Alþingisvefnum. Það var borið fram af þingmönnum úr öllum flokkum, Halldóri Blöndal úr Sjálfstæðisflokki, Guðmundi Árna Stefánssyni úr Samfylkingu, Þuríði Backman úr Vinstri grænum, Jónínu Bjartmarz úr Framsóknarflokki og Sigurjóni Þórðarsyni úr Frjálslynda flokknum. Það hafði þá áður verið samþykkt að formönnum allra stjórnmálaflokkana. Ég man reyndar ekki hvort að Steingrímur hafi “óvart” verið með varamann inni þegar kosið var um málið, en það breytir því ekki að VG á sömu sök á þessu og allir aðrir flokkar.
ótrúlegt bull í jóhanni. þessum efturlaunaósóma var stjórnað af dabba odds. halldór blöndal var bara leppur. í atkvæðagreiðslu um málið greiddu þingmenn vg atkvæði gegn málinu. það er staðreynd sem dæmir þín ummæli ósannindi.
Fyrir minnihluta að kjósa á móti frumvarpi sem þeir voru samflutningsmenn að og höfðu lagt blessun sína yfir gefur þeim enga syndaaflausn. Það hefur verið dæmt betra að kjósa á móti ef kindur samfélagsins myndu rísa á afturlappirnar og mótmæla þessu. Hvers vegna er annars Þuríður meðflutningsmaður að tillögunni? Var það ekki bara svo allir flokkarnir tryggðu að þeir gætu tryggt sér og sínum sem mest sérréttindi. Svo er auðvelt að vera bara á móti núna. En það er jafn sannfærandi og jarmið í Framsóknarmönnum sem láta núna eins og síðasti áratugur hafi ekki verið á þeirra ábyrgð.
Amen.
á móti eftirlauna ósómanum núna! er ekki allt í lagi hjá þér jóhann? þingmenn vg greiddu atkvæði gegn þessu rugli á sínum tíma. og ég nefni bara að enginn hefur barist eins gegn þessum ólögum á þingi eins og ögmundur jónasson þingflokksformaður vg. þingflokkur vg hefur einnig lagt fram frumvarp um að engar sérreglur gildi um eftirlaun þingmanna og ráðherra. ef þetta er ekki nógu skýrt fyrir þig þá get ég ekkert gert fyrir þig meira jóhann. þetta er mín síðast fæsla um málið enda hef ég ekki tíma í eitthvað hártog við náunga sem vilja ekki viðurkenna að þeir fara með rangt mál. fullyrðing þín hér áðan: “Vinstri grænir kusu með eftirlaunafrumvarpinu á sínum tíma” er ósönn og það stendur. bestu kveðjur, hlynur hallsson
Björk: Hópnum sem var að reyna að komast inn á Hótel Borg.
Áhugavert að eins og margir hafa lagt orð í belg hefur enginn svarað því hvað þið ætluðuð að gera ef þið kæmust inn í útsendingarsalinn?
Þú horfir samt algjörlega framhjá þeirri staðreynd að Þingmaður VG var einn flutningsmanna tillögunnar. Hitt var ónákvæmt ég er ekki að þræta fyrir það, en ég sé engan mun á því að flytja tillögu styðja hana meðal formanna flokkana og svo sem lítill minnihluti kjósa á móti henni til að friða samviskuna, sem vitað er að breytir ekki því að lögin taka gildi og sérréttindin gilda fyrir alla á þingi. Önnur ástæða fyrir því hvers vegna ekki ert hægt að kjósa VG frekar en aðra flokka á þingi er einmitt Ögmundur og hans menn í verkalýðsforystu og lífeyrissjóðum. Þetta eru þeir sem hafa alla tíð barist fyrir verðtryggingu. Á sínum tíma voru þetta mennirnir sem samþykktu afnám verðtryggingu launa en héldu henni á lánum. VIð eigum Ögmundi einmitt mikið að þakka. Það er honum og hans líkum að þakka að bankar hér í landi áttu kost á því alla tíð að klæða sig í bæði belti og axlabönd og rukka mjög háa, breytilega vexti, verðtryggt. Þeir sem hafa svo áhuga á að skoða VG í dag ættu að spyrja Ögmund hvað hann vill gera varðandi verðtrygginguna í dag. Það svar verður pottþétt algjörlega loðið en samt eingöngu í þá átt að lífeyrissjóðirnir þurfi að vera tryggir. Gott og blessað en fólk á götunni í dag myndi frekar vilja fá minna úr lífeyrissjóði í dag og halda húsinu sínu og geta þá bara sparað meira en að missa allt. Svo má velta fyrir sér hvað VG vill gera varðandi krónuna, það er mest lítið og ekkert vit í neinu sem kemur frá þeim varðandi það. Ekki vilja þeir evrópusambandið í það minnsta, því þá fá bændur ekki jafn mikla styrki og í dag. Ég tek það fram að ég hef jafn mikið á móti öllum stjórnmálaflokkum samtímans.
Jóhann, þá ferð þú og skilar auðu og leyfir öðrum kjósendum að ákveða fyrir þig hverjir verða við völd. Þú gætir líka tekið þessa umræðu upp á fundum VG, það væri áhugavert að sjá viðbrögðin. Ekki vera bara fylgjandi, meðlimur af hjörðinni, reyndu að hafa málefnaleg áhrif á þeim vettvangi sem stendur þér næst.
Það er greinilegt að þér er heitt í hamsi Jóhann. Ekki að mér sé svo sem ekki alveg sama og mér sýnist að þér sé það líka en þá má samt benda á þetta:
já: Árni Magnússon, Árni M. Mathiesen, Birgir Ármannsson, Bjarni Benediktsson, Björn Bjarnason, Dagný Jónsdóttir, Davíð Oddsson, Einar Oddur Kristjánsson, Geir H. Haarde, Guðjón Hjörleifsson, Guðjón Ólafur Jónsson, Guðmundur Hallvarðsson, Guðmundur Árni Stefánsson, Guðni Ágústsson, Halldór Blöndal, Hjálmar Árnason, Jón Kristjánsson, Jónína Bjartmarz, Kjartan Ólafsson, Kristinn H. Gunnarsson, Magnús Stefánsson, Páll Magnússon, Pétur H. Blöndal, Sigríður A. Þórðardóttir, Sigurður Kári Kristjánsson, Sigurrós Þorgrímsdóttir, Sólveig Pétursdóttir, Sturla Böðvarsson, Tómas Ingi Olrich, Valgerður Sverrisdóttir
nei: Anna Kristín Gunnarsdóttir, Ágúst Ólafur Ágústsson, Ásta R. Jóhannesdóttir, Grétar Mar Jónsson, Gunnar Örlygsson, Helgi Hjörvar, Hlynur Hallsson, Jóhanna Sigurðardóttir, Jón Bjarnason, Katrín Júlíusdóttir, Mörður Árnason, Sigurjón Þórðarson, Steinunn K. Pétursdóttir, Ögmundur Jónasson
sat hjá: Ásgeir Friðgeirsson, Björgvin G. Sigurðsson, Bryndís Hlöðversdóttir, Einar Már Sigurðarson, Guðrún Ögmundsdóttir, Jóhann Ársælsson, Jón Gunnarsson, Kristján L. Möller, Margrét Frímannsdóttir, Rannveig Guðmundsdóttir, Þuríður Backman
leyfi: Birkir J. Jónsson, Drífa Hjartardóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson, Gunnar Birgisson, Kolbrún Halldórsdóttir, Lúðvík Bergvinsson, Össur Skarphéðinsson fjarst.:
Einar K. Guðfinnsson
Og ef ég giska á rétt, þá er Hlynur Hallson sem þú ert að rökræða um þetta, einmitt sá sem kom inn á þing á þessum tíma í fjarveru Steingríms J. ekki að hann ætti þá að vita eitthvað um þetta mál meira en þú, bara svona eitthvað til að pæla í.
Það er skemmtilegt með þetta ,,skrílsofbeldi” sem alltaf er talað um þegar fátækt fólk hendir eggjum, treður sér inn eitthverstaðar óvelkomið eða er bara almennt fyrir. Þér finnst það greinilega ofbeldi þegar fólk sest í anddyri hótel borgar og hrópar hástöfum, ég verð að vera ósammála. Fyrir mér er aldrei hægt að nota til vald í neitt gott, hinsvegar getur slæma aðgerðin valdbeiting leitt af sér góða hluti. Dæmi: til að stöðva Hitler þá ákveða Bandamenn að fara í stríð, stríð verandi ömurlegt ástand sem allir vilja forðast, var litið á sem nauðsynleg slæm aðgerð til þess að ná út góðum niðurstöðum. Bandamenn beittu sínu afli, til að skapa vont ástand með hugsanlegan góðan endi. Auðvitað eru mótmælendur ekki að berjast við Hitler, né hafa þeir stofnað til stríðs. En mótmælendur eru þó að grípa til aðgerða sem þeir telja vera í jafnvægi við það sem hefur skéð á þessum kletti. Hér er eiginlega allt farið/eða á leiðinni á hausinn, stjórnmálamennirnir okkar voru óhæfir um að koma í veg fyrir það og fólk hefur þ.a.l. ekki traust til þeirra til að koma okkur út úr þessu. Þrátt fyrir að augljóslega hafi verið brotin flest almennt viðskipta siðgæði þá hefur engin rannsókn hafist né enginn verið dreginn til saka. Sem að mínu mati stendur fast í máttlausu regluverki yfirvalda, eða þá einfaldlega bara óvilja stjórnvalda vegna þess að þau eru sjálf svo kámug af drullunni.
En svo vil ég enda á að það er hægt að nefna 2001 slæman hlut varðandi óeirðir. En það er enginn að fara að segja mér að þær geti ekki haft áhrif. Dæmi: Ungdomshuset í CPH, stjórnarslit Argentínu eftir fjármálakreppu, frelsun vatnsbirgða i Guatemala og svo mætti lengi telja.
Kv. Elías Þórsson.
Sást svo glitta í allar myndirnar í Austurstræti af litlu börnunum sem eiga erfa ósómann.
Elías. Mér er akkúrat ekkert heitt í hamsi ég bara skil ekki svona Lynchmob stemningu. Hvað varðar þeta eftirlaunafrumvarp þá að sjálfsögðu skautar Hlynur alltaf framhjá því að einn þingmaður VG var flutningsmaður tillögunnar og þá staðreynd að hún hafði verið rædd og samþykkt af öllum formönnum stjórnarflokkana. Þessi neitun í síðustu kosningu er algjörlega marklaus og í besta falli, en þó varla táknræn þar sem þeir vissu alveg að þetta nei skipti ekki engu máli. Það var búið að maka krókinn.
Varðandi hótel Borg þá líklega manstu hvernig þetta var í Seðlabankanum þegar “setumótmælin” voru þar. Þar varð ekki uppi fótur og fit og mótmælendum meinaður aðgangur. Það urðu friðsæl mótmæli, en á Hótel Borg var sagan önnur. Þar sást bara eins og gerist svo oft í svona múgæsingu hversu grunnt er á friðsemdinni. Þarna innan um leynast alltof margir sem eru eingöngu komnir til þess að skapa vesen, eru með hnífa í vasanum og hylja andlit sitt, til þess eins að taka þátt í einhverjum tískustraum sem flýtur í gegn núna. En þegar starfsmenn hótels Borgar reyndu að varna mótmælendum inngöngu, þar hefðu friðsamlegir mótmælendur stoppað og sest niður þar. Því var ekki að skipta þarna og því var ekkert friðsamlegt við þessi mótmæli. Þeir sem skrifa uppá þessa hegðun eru einfaldlega að gefa grænt ljós á aðeins meira ofbeldi næst. Hvað ef í næsta steinkasti einhver slasast alvarlega ( við skulum ekki ímynda okkur að það geti ekki gerst) og þá meina ég meira en bara kinnbrot. Verður það þá “a small price to pay” fyrir eitthvað óskilgreint markmið sem er að koma á einhverri ríkisstjórn Samfylkingar og VG ( Hér má setja inn hvaða flokka sem er). Heldur fólk að þá yrði allt betra. Ég mæli með því að mótmælendur finni málsmetandi menn innan sinna raða. Stofni svo í framhaldi af því einfaldlega pólitískt afl sem keppir á þeim grundvelli og reynir að koma sér inná þing ( það er pottþétt stutt í kosningar og ef réttu málin kæmu fram þá myndi krafan hjá almenningi um kosningar aukast).
[...] http://this.is/nei is a free media news web that posted this article today with a video. Click on th… [...]
Æji guð minn góður Jóhann. Fyrir mér snýst þetta ekkert um að koma á eitthverri samsteypustjórn Samfó og VG. Ef það er það sem þú last útúr þessu þá ertu að lesa eitthvað annað en ég skrifaði. Svo er nú líka búið að leggja ágætis stein í götu nýrra framboða með blessaðri 5% reglunni. En bara svona til að endurtaka þá ætla ég bara að henda þessu inn, því þetta var svona loka punkturinn í fyrra svarinu mínu:
“Þrátt fyrir að augljóslega hafi verið brotið flest almennt viðskipta siðgæði þá hefur engin rannsókn hafist né enginn verið dreginn til saka. Sem að mínu mati stendur fast í máttlausu regluverki yfirvalda, eða þá einfaldlega bara óvilja stjórnvalda vegna þess að þau eru sjálf svo kámug af drullunni.”
Ég skrifaði hér að ofan frekar snemma en nenni ekki að lesa 90% af þessum grenjuskjóðu kommentum sem þið hafið síðan skrifað. En las þó nokkur, og reyndi að lesa þau sem voru málefnaleg. Ekki bara, þú ert með lokuð augun og ávökt í eyrum. Allavega að þá er ég bara nokkuð sátt með kerfið sem við lifum í, það er lýðræðilegt og hjálpar þeim sem minnst mega sýn, s.s. öryrkjum, öldruðum og fötluðum en lætur síðan hinn almenna borgara standa við sínar skuldbindingar.
Ég hef aldrei þegið ölmusu frá neinum, þvert á móti ræktaði ég mitt nám vel ( sem by the way er nánast ókeypis á Íslandinu góða). Með því að rækta nám mitt vel fékk ég tækifæri í atvinnulífinu á Íslandi og mjög gott tækifæri því það var búið að búa vel út um hnútana fyrir okkur. Ég komst til metorða í mínu starfi og efnaðist vel á því, ekki í gegnum neina klíku, bara í gegnum vinnu, ég á fjölskyldu sem er mér allt og ég fer í vinnuna hvern dag til að sjá til þess að hún hafi það gott, og líka vegna þess að ég vil ekki sóa lífi mínu í rugl, líkt og mótmælendurnir sem flestir eru krakkar sem vilja fá að komast í blöðin eða sjónvarpið. Ég er stolt af því að segja að ég er ekki aumingi, ég nýti tímann minn vel, ég var heppin að halda starfinu mínu, en mín besta vinkona hélt því ekki, hvað gerði hún, hún fór ekki að væla, hún barðist áfram og er núna komin með aðra góða vinnu, þar sem hún getur tryggt framtíð sína. Við sem berjumst og köstum bara ekki inn handklæðinu eins og þið ósómalýður, það erum við dugnaðarfólkið sem munum erfa landið og því miður að þá munum við þurfa að greiða undir ykkur aumingjana, því við við erum ekki með skítslegt eðli eins og þið og viljum ekki láta ykkur frjósa í hel eða svelta. Það mynduð þið mótmæenfur hinsvegar ekki hika við að gera, enda beitið þið ofbeldi, líkt og gerðist á Hotel Sögu, fyrir framan Lögreglustöðina og á pöllum Alþingis.
Og já, að lokum, ég tapaði ,miklu fé á hruninu, en ég græt það ekki, ég hef heilsuna, hæfileikana og dugnaðinn til þess að halda áfram að gegna samfélagslegum skylduym mínum, og þær skyldur eru ekki að brjóta og bramla og kenna öllum öðrum en sjálfum sér um eigin aumingjaskap!
Góðar stundir
I don’t understand the voiceover, but the powerful and atmospheric photography is fantastic. Good luck with your protests.
Hver ertu, Björg? Ertu áreiðanlega til? Því mér finnst þú hljóma eins og skáldskapur frá Sjálfstæðisflokknum – tilbúningur sem notaður er til að matreiða hugmyndafræði ofan í fólk … Ef þú ert til, veistu ekki hvað er verið að gera þér? Hvað er búið að gera þér?
Ef þú tapaðir miklu fé á hruninu, sem þú vannst fyrir sjálf, veistu hvað það þýðir? Hversu mörgum klukkustundum, dögum – árum af lífi þínu hefur þegar verið rænt og gefið ríkum?
Eru það mótmælendur sem „kasta inn handklæðinu“?
Hvaðan kemur þessi innræting að mótmælendur myndu láta einhvern frjósa í hel og svelta? Björg, þetta eru ranghugmyndir.
En þú ættir að athuga hvað það er sem gerir þig reiða við að sjá aðra tjá ósætti sitt við ranglæti. Getur verið að þú sért að halda aftur af þínu eigin ósætti sem þú þorir ekki, vilt ekki eða kannt ekki að láta uppi? Þessi bræði er mjög skrítin.
Mótmælendurnir eru heiðvirt sómafólk.
Haukur Már Helgason.
Björg, maður segir “rækja” nám sitt, ekki “rækta”.
Rækja er ekki bara hrææta!
Megi friðurinn mikli koma yfir okkur öll. Eftir uppgjörið! Takk myndbandingi!
Það er mjög skemmtilegt að lesa ummælin og sjá umræðuna hér. Mikil orka í gangi og gaman að finna hvað mótmælendur eru róttækir í hjarta. Það sem stuðar mig mjög er þegar Elías Þórsson talar um jákvæða útkomu óeirða og nefnir ungdomshuset í Kaupmannahöfn. (ca. 10 ummælum hér fyrir ofan)
Elías, styður þú slíkar óeirðir? Myndir þú leggja blessun þína yfir að bílar yrðu brenndir og óeirðir ættu sér stað á götum Reykjavíkur?
Mig langar líka að vita frá einhverjum úr hópnum sem reyndi að komast inn á Hótel Borg, hvað þið hefðuð gert ef þið kæmust inn í útsendingarsalinn?
Ég þakka fyrir að hafa fengið að horfa á þetta flotta myndband. Eða á ég að segja að hafa fengið að fara í þetta fallega ferðalag? Málið er orðið soddan samsafn af klisjum að það er best að segja sem minnst nema kannski hvísla: takk.
Jógi, við gerðum hávaða eins nálægt og mögulegt var. Það var markmiðið að trufla. Ef við hefðum komist að pallinum hefðum við gert enn meiri hávaða.
Hér eru margir uppfullir af réttlætiskennd og hrauna yfir þá sem eru ekki yfir sig hrifnir af uppátækjunum og yfirdrifnu myndbandinu hér.
Það þýðir ekki fyrir svona ofsafengna mótmælendur að búa sér til sínar eigin reglur og ætlast til ákveðinna viðbragða við þeim.
Í félagslegum samskiptum sýnum við viðbrögð við hegðun annarra og aðrir gagnvart hegðun okkar. Við búum í samfélagi og hljótum að þekkja viðmið og gildi lýðræðislegs samfélags.
Hefur komið afar illa við mig þegar svona mótmæli fela í sér ofbeldi og sagt er “bara” rúða, “bara” snjóbolti, “bara” þetta og hitt. Það er EKKI “bara”.
Venjulegt fólk vill ekki svona ruðning. Við höfum öll okkar persónulega svæði sem ber að virða og ógnandi líkamsbeiting og tilburðir ógna vissulega fólkinu sjálfu og vinnustöðum þess.
Frábært myndband - flottur texti og áhrifaríkar myndir.
Ég hef nú til þessa ekki blandað mér í það kviksyndi sem skoðanaskipti á netinu eru, en ég verð bara að spyrja hana Snjólaugu einnar spurningar: Hvað gerir þig og þína skoðanabræður og systur að “venjulegu fólki”? Við erum öll venjulegt fólk, meira að segja þeir sem kveikja í rafmagnsköplum eða reyna að stöðva útsendingu úldinnar kryddsíldar með öðrum hætti. Þú ert líka venjuleg manneskja þó þú sért ekki endilega sammála mér eða meirihluta þjóðarinnar. Það voru yfirvöld sem sköpuðu sundrungu og ólög í landinu með því gera bönkunum kleyft að verða svo stórir að blaðran sprakk með tilheyrandi látum.
Hvernig er hægt að ætlast til þess af þjóðinni að hún þekki enn þá “viðmið og gildi lýðræðislegs samfélags” þegar yfirvöld, fjölmiðlar og stórskuldugir athafnamenn hafa sett okkur öll á hausinn með sínu grandavaraleysi og sinnuleysi? Er skrýtið að fólki sé heitt í hamsi þegar engin(n) er dregin(n) til ábyrgðar í stærsta bankaráni sögunnar?
Við erum að sjálfsögðu öll venjulegt fólk Hlynur, það sem ég átti við er tákngerfingur meirihluta þjóðarinnar sem hefur lent í mörgum og margvíslegum áföllum í lífinu og rís upp aftur án þess að brjóta allt niður í kringum sig með neikvæðni og niðurrifi.
Ef við virðum ekki þessi lýðræðislegu gildi erum við ekkert betri en þeir sem komu okkur í þessa stöðu.
Því miður fylgdi lífinu engin handbók og enginn lofaði, a.m.k. ekki mér, að lífið yrði auðvelt.
Fylgjumst með og sjáum að það er verið að vinna eftir bestu getu, það verður erfitt og tekur tíma en sjáum hvernig tekst til. Svo koma nefnilega kosningar.
“En svo vil ég enda á að það er hægt að nefna 2001 slæman hlut varðandi óeirðir. En það er enginn að fara að segja mér að þær geti ekki haft áhrif. Dæmi: Ungdomshuset í CPH, stjórnarslit Argentínu eftir fjármálakreppu, frelsun vatnsbirgða i Guatemala og svo mætti lengi telja.”
Bendi sérstaklega á fyrstu setninguna af þessari málsgrein minni sem stuðar þig svona rosalega Jógi. Ég hef bloggað um mismunandi tegudir óeirða og bendi ég þér á að lesa það, eða að fara einfaldlega á wikipedia og skrifa riots. Vandamál fólks eins og þín er að þegar við bendum á himininn þá horfir þú á puttann. Í staðinn fyrir að rekja þig í gegnum orsök afleiðing stigann þá stoppar þú á afleiðingu og hugsar ,,AHA!”.
Allar þær óeirðir sem ég nefndi í dæmi mínu eru eitthverjar sem koma eftir að stjórnvöld höfðu gjörsamlega gengið fram af fólki. Í tveimur dæmum kom IMF við sögu. Þessar óeirðir eiga lika allar sameiginlegt að þær skiluðu árángri. Inn í þessum 2001. slæmu hlutum sem ég nefni um óeirðir eru vissulega; eignatjón, ofbeldi, verðmæta tap, kostnaður og svo framvegis. Ég er ekki að segja að óeirðir per say séu góðar og ég hélt að það kæmi fullkomlega vel fram og afsaka ég það ef skrif mín voru óskýr, en það sem ég sagði var að ,,það er enginn að fara að segja mér að þær geti ekki haft áhrif.” Þér eins og fleirum sem eru með svona skrílsrökræður, finnst notalegt að mistúlka hluti á þinn veg, eða þannig kemur þú allavega mér fyrir sjónir.
Hvað er líka með þetta ,,hvað hefðuði gert ef þið hefðuð komist inn?”. Ég sé ekki alveg hvaða máli það skiptir.
Sæll Elías, takk fyrir að svara svona málefnalega. Gott og vel. Þú segir að allar þessar óeirðir skiluðu árangri sem ég dreg ekkert í efa. Nú ert þú greinilega búinn að stúdera óeirðir vel, ég dreg þá ályktun af skilaboðum þínum hér fyrir ofan, má ég þá spyrja þig fárra spurninga í viðbót mér til fræðslu. Eru óeirðirnar þar með réttlætanlegar og allt sem þeim fylgir, vegna þess að þær skiluðu árangri? Hefði ekki mátt gera ráð fyrir að borgarstjórn Köben hefði komið með önnur úrræði ef ekki hefði komið til óeirða? Heldur þú að ríkisstjórn Íslands sé ekki að vinna að því að leysa þessa kreppu sem við erum í og komi okkur út úr henni án óeirða? Við höfum unnið okkur út úr kreppu áður og munum gera það aftur. Það er gefið mál.
Mér finnst það skipta höfuðmáli hvað þið höfðuð í hyggju að gera ef þið kæmust inn. Þú áttar þig kannski ekki á því, en mörgum finnst mjög óhugnarlegt þegar verið er að reyna að brjóta sér leið inn í sal þar sem formenn flokkanna sitja fyrir svörum.
[...] can be found here, a video report in English here and photo-show with music and Icelandic text here. aftaka tróð þessari færslu í Aukaefni. Þú getur fylgst [...]
[...] Video from a news website Mbl.is can be found here, a video report in English here and photo-show with music and Icelandic text here. [...]
Til að byrja með þá vil ég þó nefna það að ég var ekki viðstaddur tiltekin mótmæli og hef réttarsagt ekki verið viðstaddur nein mótmæli þar sem ég stunda nám í Danmörku.
Kaupmannahöfn er auðvitað auðveldasta dæmið til að taka af þeim sem ég nefndi og geri ég ráð fyrir að þú nefnir það vegna þess að það sé það sem þú þekkir best. Hinsvegar voru engar blikur á lofti um að krakkarnir fengu nýtt hús fyrr en eftir að allt vesenið byrjaði. En ef við tökum t.d. dæmi af Guatemala, þá ætlaði ríkið að selja Bandarísku einkafyrirtæki tvær stærstu ferskvatnsbirgðir landsis. Óeirðirnar sem urðu þá komu í veg fyrir það.
En svo að við snúum okkur að Íslandi, þá getur verið að þú líkt og margir sem ég hef rætt við hafi trú á því sem stjórnvöld eru að gera, ég líkt og þeir sem stunda þessa síðu og fleiri hafa það ekki. Við trúum því ekki að fólkið sem er við völd hafi eitthver ráð eða lausnir fyrir okkur og því er þrýstingur á breytingar. Það hafa nú verið mótmæli þrettán laugardaga í röð, samt sitja en sömu stjórnvöld og sama fólk í helstu stöðum kerfisins, fólk gefst á endanum upp á að á það sé ekki hlustað. Ég lít á mótmæli eins og í Guatemala og Kaupmannahöf sem afleiðingar ekki orsakir. Þær verða vegna aðstæðna skapaðar af yfirvöldum.
En ég veit svo sem ekki hvað fólkið sem reyndi að komast þarna inn ætlaði sér, ég geri þó ráð fyrir að það hafi verið að slökkva á myndavélum og taka úr sambandi.
Hreint magnað!
Djöfuls fokking fokk
Því miður.Friðsamleg motmæli eru ekki að virka. Það hlustar enginn. Við erum reið. Mjög reið.
Hér tala nokkrir um “lýðræðisleg gildi” og dugnað og æðruleysi einsog það sé í mótsögn við mótmæli. Eins hefur verið kvartað yfir að aðferðir mótmælenda séu ólöglegar.
Í fyrsta lagi var lýðræðið sjálft ólöglegt í eina tíð, sem og verkföll og ýmis önnur sjálfsögð mannréttindi nútímans.
Í öðru lagi er tómlæti Bjargar og Snólaugar í sjálfu sér andstætt lýðræðinu. Það er borgaraleg skylda að taka lýðræðinu til varnar misbeiti stjórnvöld valdi sínu einsog nú er.
Doddi, ertu að bera saman verkfallsréttindi og lýðræði við réttindi til að veitast að fólki, brjótast inn, skemma og brjóta?
Ég er að tala um ýmislegt smálegt sem brotnaði þegar lýðræði var komið á og eitthvað skemmdist nú í verkalýðsbaráttunni.
70% þjóðarinnar vill kosningar.
Lögum er venjulega ekki breytt fyrr en eftir að almenningsálitið er löngu orðið fylgjandi lagabreytingum.
Ég er ekki að krefjast réttar til að skemma. Ég er að krefjast réttar til að skipta um kjörna fulltrúa sem augljóslega hafa brugðist. Það er rétturinn sem ég og meirihluti þjóðarinnar er að heimta.
Valdastéttin vill ekki missa völdin og þá kann eitthvað að brotna og skemmast í átökum sem eru óhjákvæmileg.
Ef ríkisstjórnin færi frá og boðað yrði til kosninga, myndi öll þessi orka sem nú fer því miður í niðurrif, ofbeldi og neikvæðni fara í jákvæðan farveg
Þessi Jógi er alveg magnaður og svo þeir sem eru með VG á heilanu. Vinstri grænir virðast vera mestu skúrkarnir í þjóðfélaginu þó þeir hafi engin völd, magnaðir glæponar þessir Vinstri Grænu.Þriðjungur þjóðarinnar krossar við þá um þessar mundir. Hvað er þessi þriðjungur að hugsa eiginlega. Þeir eru auðsjáanlega sekir um hvernig komið er fyrir þjóðinni.Skamm, Skamm
Takk fyrir flotta uppsetningu .. Það er rétt að við erum ekki skríllin sem á að handtaka og meiða …
Ég hef líka verið a spá í því hvort að löggan sé ekki með öllu mjalla ..
því þetta snýr að henni líka þetta er bara venjulegt fólk eins og við og ætti líka að mótmæla..
Nógu lengi hefur valdi verið beitt röngu fólki ..
Ég segi nei .. Ekki meir af rangtlæti …
Snilld. Mætti gera mikið meira af þessu.
TAKK-TAKK-
Flott myndband, góð ræða!
þessi mynd segir allt sem segja þarf… hversu súrrealískt er það nú þó að þetta er ógn á móti ógn, alvaldið hræðist frelsi einstaklingsins meira en allt saman því að án efa, þá er það “elitan” sem eru fangar sinnar firringu,það er elitan sem er afvegaleidd í ótta,…sjálfskaparvíti sem erfitt er að ná sér úr virðist vera, þetta er stjórnar fíkn og mikilmennskubrjálæði sem hellist yfir þau, heltekin af hugtaki peninga og græðgi…en þetta er auðvitað alltaf val,valið að líta framhjá eða valið að glugga inn á við og skoða sannleikann í sinni mynd, og það eitt getur verið gríðarlega ógnandi þegar maður nærist á sífelldri blekkingu sem byggist á ótta og öllum undirflokkum þeirrar tilfinningu eins og þeim er lagið… og svo er okkur ógnað lífsviðuværinu,við erum kúguð, afvegaleidd ,svikinn, vanvirt, skilin eftir nærrum allslaus og nakin…og svo fleira mætti lengi telja!… maður vildi óska þess að friðsamleg mótmæli myndu vega meira…en gjörðir virðast tala hærra máli fyrir daufum eyrum… það eru takmörk fyrir því hversu mikið maður getur látið bjóða sér…nóg er nóg…hversu mikið þarf að ganga á þangað til að við lærum að lifa í skilningi, umburðarlyndi og tillitsemi gagnvart öllum þáttum okkar tilveru… maður vonar eftir vitundarvakningu… og það fer sko ekki framhjá vakandi fólki að við erum til! og valdið er í okkar höndum! …leitum inn á við og endurspeglum frelsi hjartans út á við… gullfallegt verk og mikilvæg skilaboð!…