Fréttir

„Wannabe“ hvítliði skipaður verjandi mótmælenda

Lögreglan kallaði til lögfræðing til að gæta hagsmuna þeirra mótmælenda, meintu mótmælenda og grunuðu mótmælenda, sem boðaðir voru til yfirheyrslu í gær, í einhverjum tilfella án þess að heyra sakargiftir, og jafnvel án þess að hinn óljósi grunur ætti við rök að styðjast, eins og greint er frá í annari frétt í Nei. í dag.

Lögfræðingurinn sem var kallaður til heitir Oddgeir Einarsson. Oddgeir, fyrrverandi varaformaður Frjálshyggjufélagsins, hefur tjáð sig um málstað mótmælenda á opinberum vettvangi, og moggabloggaði til að mynda um mitt síðasta haust, þetta hér, í færslunni „Valdaráni hótað – hvar eru hvítliðarnir?“:

„Ég hef mikinn áhuga á að vita hvort lögreglan hafi gert ráðstafanir til að stöðva boðað valdarán. Er ekki kominn tími til að safna hvítliðum á nýjan leik eða hefur lögreglan nægan mannafla?“

Færslan var viðbragð Oddgeirs við ræðu Katrínar Oddsdóttur, laganema, á Austurvelli þá helgina. Skipaður verjandi mótmælenda er með öðrum orðum maður sem hefur nýverið hvatt til þess á opinberum vettvangi að hópar óbreyttra borgara fylkist saman til að beita sömu mótmælendur ofbeldi, hindra aðgerðir þeirra með valdníðslu, fantaskap og beinum líkamsárásum – ef orðið hvítliði er rétt skilið.


Hér er færsla Oddgeirs í heilu lagi, frá 26. nóvember 2008
  • Þetta er bara eftir bókinni og ekki annars að vænta í bananalýðveldinu Íslandi. Landinu stjórna apar. Væri etv. nær að kalla Ísland „Apapláhnetuna“… Þessi framganga yfirvaldanna er auðvitað af ásetningi gerð. Það er fjöldi hæfra lögfræðinga í landinu sem eru örugglega tiltækir til að verja hagsmuni meintra og grunaðra mótmælenda gegn ágangi lögreglu. Það þarf varla að kalla út frjálshyggjubjálfa til þess arna nema jú vinum BB fari fækkandi í röðum lögfræðinga. Það væri reyndar ljómandi eitt og sér.

  • Þetta dagsfrí Nei.sins hefur fært fram þvílíkar fréttir. Það getur ekki lengur verið álitamál hvort Ísland sé með gjörsamlega spillt stjórnkerfi, hagkerfi og fasíska stjórnarhætti. Bananalýðveldi - ó já.

  • Lögreglan kom í gær á vinnustað mótmælanda til að færa hann yfirheyrslu án þess að nein boðun hefði verið send áður. Lögreglan sagðist geta útvegað á lögfræðing, og benti á Oddgeir - ekki var val á milli t.d. tveggja eða þriggja lögmanna og fyrirvarinn of skammur til að útvega eigin lögfræðing.

    Hvað segir lögmannafélagið um að maður sem hvetur til stofnunar hvítliðasveita taki að sér réttargæslu fyrir mótmælendur?

  • Hvaða fórnarlambavæl er þetta? Mótmælendur geta væntanlega fengið sér verjanda að vild. Mótmælendur hljóta nú að hafa meira bein í nefinu en þetta, hafa kynnt sér vel réttindi sín og geta leitað í símaskránni að lögfræðingi, nú eða verið svo bráðsnjallir að vippa upp gemsanum og hringja í 118 og fá þar nokkur númer nú eða sýnt alvöru fyrirhyggju og vera búnir að útvega sér lögræðing fyrst að menn vita að þeir verði hugsanlega einhvern tíma kannski dregnir til yfirheyrslu. Engin þarf að svara neinu nema vera komin með talsmann. Þá er best að þegja þangað til sá talsmaður sem boðlegur er er mættur á svæðið.

    “ProAvtive not ReActive” er málið kæru meðmótmælendur!!!!

  • Hvaða fórnarlambavæl er þetta? Mótmælendur geta væntanlega fengið sér verjanda að vild. Mótmælendur hljóta nú að hafa meira bein í nefinu en þetta, hafa kynnt sér vel réttindi sín og geta leitað í símaskránni að lögfræðingi, nú eða verið svo bráðsnjallir að vippa upp gemsanum og hringja í 118 og fá þar nokkur númer nú eða sýnt alvöru fyrirhyggju og vera búnir að útvega sér lögræðing fyrst að menn vita að þeir verði hugsanlega einhvern tíma kannski dregnir til yfirheyrslu. Engin þarf að svara neinu nema vera komin með talsmann. Þá er best að þegja þangað til sá talsmaður sem boðlegur er er mættur á svæðið.

    “ProActive not ReActive” er málið kæru meðmótmælendur!!!!

  • @Gústa:

    Málið er bara að sumir mótmælendanna hafa ekki efni á sínum eigin lögfræðing…sérstaklega í kreppunni.

  • Við skulum hafa eitt alveg á hreinu: Hvítliðar eru hættulegri lýðræðinu og réttarríkinu en háværir mótmæleundur - jafnvel hættulegri lýðræðinu og réttarríkinu en ofbeldisfullir mótmælendur. Það væri ekki fyrr en fram væru komnar vopnaðar og skipulagðar sveitir mótmælenda að réttlætanlegt gæti talist að ríkið færi að kalla saman einhverskonar boragaralegar öryggissveitir. Og jafnvel þá orka þær tvímælis. Ef Oddgeir eða aðrir telja að það þurfi að efla löggæslu á að gera það með eðlilegum hætti, efla lögregluna. En að tala um “hvítliða” angar því miður af fasisma. Þó ekki væri nema vegna þess að hvítliðasveitir hafa ætíð verið skipaðar fasistum og verið nátengdar fasistahreyfingum.

    Gústa: Þetta getur því ekki talist “fórnarlambavæl” og þó hvítliðar og andlegir frændur þeirra haldi að “mótmælendur” hljóti allir að vera “atvinnumótmælendur” einhverskonar froðufellandi kommúnarðar og anarkistar sem hyggja á valdarán og blóðuga byltingu fer því fjarri - flestir eru venjulegt fólk með venjulega vinnu, sem aldrei hefur komist í kast við lögin og þó það sé reitt stjórnvöldum hefur það enga andúð á lögreglunni, og heldur, í einfeldni sinni, að lögreglan hljóti að gæta hagsmuna þeirra, eða í það minnsta, að lögreglan sé hlutlaus. Ekki að lögreglan vísi þeim á mann sem er mjög vafasamt að geti talist hæfur sem verjandi í máli sem þessu.

    Ég þekki þennan Oddgeir ekkert. Kannski er hann hinn vænsti maður, og vammlaus utan bloggheima, og hugsanlega getur hann skilið sínar pólítísku skoðanir eftir þegar hann tekur niður bloggpottlokið og setur upp lögmannshúfuna. Ég held ekki einu sinni að Oddgeir sé endilega fasískur hvítliði - sumir bloggarar skrifa allskonar þvaður og gera sér upp skoðanir og hörku sem þeir kannski myndu ekki kannast við innan um siðað fólk. Kannski er Oddgeir bara að gera að leik sínum, eða hæðast að Katrínu og benda henni á að þegar rauðliðar fari að bera fólk út úr húsum muni rísa upp hvítliðar sem berji á móti. Eða kannski þekkir Oddgeir ekki sögu hugtaksins “hvítliði” og gerir sér því enga grein fyrir því hvað það er sem hann er að leggja til?

    Þannig að kannski er Oddgeir fullfær um að verja mótmælendur. En mér er það til efs, og það verður ekki sagt annað en að þetta líti ílla út.

    En það var Oddgeir sem fór að tala um hvítliða og vakti þannig upp þessa mynd, af götubardögum í anda Weimar og upplausn réttarríkisins. Ekki Katrín, og ekki ég.

    Hverskonar hugmynd er það annars að safna saman föntum og stuttbuxnahyski og fela því einhverskonar lögregluvöld? Er það til þess fallið að halda uppi lögum og rétti eða ró í samfélaginu? Hvað heldur Oddgeir að “mótmælendur” geri ef þeim mæti óeinkennisklæddur tuddalýður? Ég held að það sé öruggasta leiðin til að hleypa þessum mótmælum öllum upp í alvarlegt ofbeldi og götuslagsmál. Kannski er það það sem Oddgeir vill?

    Því verður alla vegana ekki neitað að lögreglan hefur með þessu síst unnið sér tiltrú eða traust mótmælenda.

    Látum vera að það skuli vera lögfræðimenntaðir menn sem haldi að þetta sé góð hugmynd, en að lögreglan sé að halda þesskonar mönnum að mótmælendum sem eru færðir til yfirheyrslu? Annað hvort er lögreglan beinlínis og meðvitað að reyna að koma í veg fyrir að mótmælendur hafi lögfræðiaðstoð sem þeir geta treyst - og er þannig vísvitandi að reyna að koma á þá höggi eða koma í veg fyrir að hagsmuna þeirra sé gætt - eða að lögreglan, með allt sitt eftirlitsbatterí veit ekki hvar lögmenn standa sem þeir eru að ráðleggja fólki? Hvort er verra? Vanhæfni lögreglunnar eða meinfýsni?

    Með baráttukveðjum, Magnús

  • Ég er sammála svo gott sem öllu sem Magnús sagði en vil engu að síður benda á eitt: “kommúnarðar og anarkistar” eru líka “venjulegt” fólk, sækja líka vinnu eins og aðrir, eru ekki “froðufellandi” né hyggja þeir upp til hópa á “valdarán” og “blóðuga byltingu” (þó eflaust geri sumir þeirra það). Ég veit að ætlunin var ekki hjá Magnúsi að draga upp þessa mynd af “kommúnörðum og anarkistum” en við að lesa texta hans má engu að síður draga þá ályktun, viti maður ekki betur. Að draga þessa línu milli “venjulegs fólks” og svo róttæklinga á vinstri kantinum (hvort sem þeir eru kallaðir anarkistar, kommúnarðar eða eitthvað annað) er ekki bara sundrandi heldur einfaldlega rangt, þar sem lítið mál er að vera bæði í einu.

  • Já - enda var orðunum beint til Gústu, því því miður hef ég orðið var við að ansi margir virðast hafa þessa skoðun á mótmælendum.

    Það er mjög sorglegt hversu margir á stuttbuxnakantinum, og því miður líka ákveðnir formenn sumra jafnaðarmannaflokka, virðast ekki átta sig á því að það sé ekki hægt að skipta fólki svona í flokka, kommúnista annarsvegar og heiðarlegan almenning hins veagr - að annarsvegar sé heiðarlegt gott fólk sem sæki vinnu, og sé “almenningur” og hins vegar einhver skríll sem mótmæli og sé með læti, margir líklega ekki með heiðarlega vinnu, eða vinni við mótmæli, borgi líklega ekki skatta, froðufelli og sé almennt öllu góðu fólki til ama.

    Yfirleitt kvartar síðan sama fólk yfir því að “atvinnu” mótmælendur séu að setja svartan blett á mótmæli eða eitthvað álíka, og finnst það vera í verkahring þeirra sem er heitt í hamsi og vilja hrópa meira en nokkur “já” á Austurvelli, vilja jafnvel vera með háreysti fyrir utan Hótel Borg og horfa á aðgerðalaus þegar einhver eyðileggur framlengingarsnúrur Jóns Ásgeirs, að láta sér líða vel í sinni smáborgaralegu sál.

    Svo er annað merkilegt smáatriði: Oddgeir er fyrrverandi varaformaður í Frjálshyggjufélagi. Sem er skrýtið, því það síðasta sem nokkrum sönnum frjálshyggjumanni dytti í hug er að fara að blása saman hvítliðasveitir til að standa vörð um ríkisvaldið og halda í skefjum fólki sem ofbýður vanhæfni og óstjórn stjórnvalda!

  • Getur einhver komið með staðreyndir? Ef ég verð handtekin hef ég þá bara um þennan Oddgeir að velja? (ég hef svo sannarlega ekki efni á einka lögfræðingi) og ef ég vil ráðfæra mig vð einhvern um rétt minn? Er það sá hinn sami Oddgeir? Vinsamlegast svarið þið sem getið…

    Og ein hugmynd… eru ekki einhverjir lögfræðingar með réttlætiskennd sem vildu vera svo vænir að hjálpa til í byltingunni? Þeir gætu sett nöfnin sín inn á þessa síðu.

    Þá þyrftum við ekki að reiða okkur á menn sem ekki er hægt að treysta. Við þurfum að standa saman og hjálpast að…

  • [...] er lögmaður og hefur nú eins og dagblaðið Nei. greinir frá, verið ráðin af lögreglunni til að aðstoða þá einstaklinga sem lögreglan er að rannsaka [...]

  • Hér er kominn upp listi yfir hættulega hvítliða: http://aftaka.org/2009/01/16/hvitlidasveitin/

    Lesið og komið með ábendingar.

  • Afhverju í andskotanum gat hún ekki hringt í Atla Gíslason, ef henni var svona ummunað að fá einhvern lögfræðing sem er skoðanabróðir sinn.

    Það hlýtur að vera hart í ári hjá morðingjum, nauðgurum og barnaníðingum að finna lögfræðing sem er “fylgjandi” þeim ákveðna einstaklingi.

    Gæti til að mynda nauðgari afsalað sér lögmanni sem væri kona, og hefði opinberlega talað um of vægar refsingar í kynferðisbrotamálum.

  • Í 20. grein laga um lögmenn nr. 77/1998 segir: “Lögmanni er skylt að taka við skipun eða tilnefningu sem verjandi eða réttargæslumaður í sakamáli, enda fullnægi hann til þess hæfisskilyrðum og hafi ekki ósamrýmanlegra hagsmuna að gæta vegna sjálfs sín, venslamanna sinna eða annars umbjóðanda síns.”

    Hér má vissulega deila um það hvort ekki sé um ósamrýmanlega hagsmuni að ræða í ljósi þess að Oddgeir birtir opinberlega skoðun sína um að söfnun Hvítliða sé góð hugmynd.

    Í 9. gr. Siðareglna lögmanna segir að lögmanni sé “skylt að gera skjólstæðingi sínum kunnugt hvaðeina, er kann að gera hann háðan gagnaðila eða gera tortryggilega afstöðu hans til gagnaðila, svo sem frændsemi, samstarf, fjárhagslega hagsmuni eða önnur slík tengsl”.

    Oddgeir metur sitt hæfi sjálfur, og vel má vera að honum finnist hann hafa verið fullkomlega trúverðugur sem lagalegur fulltrúi mótmælandans. Hins vegar má vissulega deila um það, sérstaklega hvað varðar traust sem augljóst er að umbjóðandi þarf að bera til lögmanns síns.

    Ef mótmælandanum sem um ræðir finnst hafa verið á sér brotið getur viðkomandi lagt fram kvörtun fyrir Lögmannafélagið, smbr. 27. grein Lögmannalaga, en þar segir að sá sem telur að lögmaður hafi í starfi sínu gert á hlut sinn með háttsemi sem stríðir gegn lögum eða siðareglum lögmanna geti lagt fram kvörtun fyrir úrskurðanefnd lögmana á hendur viðkomandi lögmanni.

  • Við viljum bara koma þeirri hugmynd á framfæri að mótmælendur sem mest hafa orðið fyrir barðinu á lögreglu - td þeir sem hafa farið í skýrslutöku og í gegnum fingrafarafasisma - leiti til lögfræðings (einna eða tveggja) sem þykja hafa mannúðleg lífsviðhorf (til dæmis Ragnar Aðalsteinsson eða Atli Gíslason) og fái þá til að vera viðbúna ef á þarf að halda. Ef mótmælendur gætu leitað til sama aðila trekk í trekk myndi sá aðili geta gert sér betur grein fyrir heildaraðförum og taktík lögreglu og þannig varið rétt fólksins betur (og greint frá opinberlega þegar þurfa þykir).

    kveðjur

    fólkið í landinu

Skildu eftir skilaboð