(English version below)
Svohljóðandi tilkynning barst – hana má einnig lesa á slóðinni oskra.org:
Öskra er hreyfing byltingasinnaðra háskólanema sem neita að loka augunum fyrir misréttinu í þjóðfélaginu. Íslenskt samfélag byggist á óréttlátu valdakerfi þar sem kyn, stétt og þjóðerni ráða stöðu fólks og koma í veg fyrir raunverulegt jafnrétti. Slíkt ástand er óásættanlegt.
Við sniðgöngum hina hefðbundnu stúdentapólitík og beitum okkur af fullum krafti gegn því óréttlæti sem hefur fengið að ríkja í öllu samfélaginu. Það er ekki hægt að kaupa okkur með loforðum um hærri námslán, malbikuð bílastæði eða betri samlokugrill. Við krefjumst allsherjar breytinga.
Hreyfingin Öskra er ekki starfsþjálfun fyrir stjórnmálamenn, við erum ekki pólitíkusar í framapoti heldur skríll sem krefst róttækra breytinga fyrir allt samfélagið og til að ná þeim árangri munum við ekki beita prúðum ályktunum heldur samfélagsþjónustu og beinum aðgerðum, innan og utan háskólans.
Við höfum enga trú á aðferðum stúdentaráðs, sem hefur um langt skeið samanstaðið af íhaldspungum og kratableyðum sem telja það ekki í sínum verkahring að hafa áhrif á þjóðfélagið með öðrum aðferðum en táknrænum gjörningum sem hafa hvorki pólitískan slagkraft né listrænt gildi.
Nú er tíminn fyrir beint lýðræði. Nú er tími breytinga.
Öskra is a movement of anti establishmentarian university students that refuse to turn a blind eye to the inequalities inherent to society. The Icelandic social order has been built around an unjust foundation where sex, class, and race control ones position within the system and prevents equality. The situation is unacceptable.
Therefore we boycott the traditional student politics and will put all our efforts into standing against the injustice that has engulfed our community. We won’t be bought with promises of higher loans, improved parking spaces, or better sandwich grills.
Öskra is not a place where future politicians can be schooled in the craft, and it is not designed as a springboard into a future in politics.
Öskra is a movement of individuals that demands drastic changes for our society as a whole and in order to achieve our goals we will not only utilize “sophisticated” speeches, but also provide services that will benefit the community; and direct action, both in and outside of the walls of the university.
We do not believe in the methods of the student council, which has, for years, consisted of “conservative” “yes men” and “left wing” “followers” that do not think it is their place to try and have an impact on the community with other than symbolic happenings that neither have any political effects nor artistic merit.
Now is the time for direct democracy! Now is the time for change!
[...] Ný stúdentahreyfing hefur komið fram. Lætur það vera sitt fyrsta verk að úthúða núverandi stúdentafylkingum. Hreyfingin Öskra er ekki starfsþjálfun fyrir stjórnmálamenn, við erum ekki pólitíkusar í framapoti heldur skríll sem krefst róttækra breytinga fyrir allt samfélagið og til að ná þeim árangri munum við ekki beita prúðum ályktunum heldur samfélagsþjónustu og beinum aðgerðum, innan og utan háskólans. Við höfum enga trú á aðferðum stúdentaráðs, sem hefur um langt skeið samanstaðið af íhaldspungum og kratableyðum sem telja það ekki í sínum verkahring að hafa áhrif á þjóðfélagið með öðrum aðferðum en táknrænum gjörningum sem hafa hvorki pólitískan slagkraft né listrænt gildi. [...]
LIFI SKRÍLLINN! Yndislegt og löngu, löngu, löngu kominn tími á þetta. Góða lukku Öskru-liðar. Er ég ekki annars að kyn-a þetta rétt?
Hipp hipp Húrra. Tími til kominn, kratableyður og íhaldspungana í gapastokka. Hrækjum á Hannes H. Gissurarson og Kúkum á samlokugrillið.
Gott framtak
Good initiative
Ótrúlega gott hjá ykkur!
Endilega gefið upp reikningsnúmer einhvers staðar fyrir frjáls framlög.
Þó það nú væri , það eruð þið sem komið til með að borga þetta klúður og verðið að því löngu eftir að ég geispa golunnnnnnnnnnnnnniiiiiiiiii…….. En ég mæti ef ég frétti af aðgerðum , hristum nú aðeins upp í hyskinu.
Ef þið eruð bara nógu mörg þá getið þið beitt borgaralegum leiðindum , verið fyrir og tefjið, fyllið stofnanir af fólki sem á tilgangslaust erindi, lokið á umferð með fjöldanum , farið á 2 -3 staði í einu, 4 jafnvel ef þið eruð nógu mörg, látið lögreglu þurfa að ríma svæði til að ráðamenn komist til vinnu og stympist ekki á móti, verið samtaka, hér í dag þar á morgunn , og munið landsfund klúðursflokksins, hvað ætli að það þurfi marga nýskráða til að hleipa honum upp eða til að leggja fram þá tillögu að stjórn seðlabankanns verði rekinn sökum vanhæfni og afglapa í opinberu starfi. gerum eitthvað því annað er ekki í boði.