Lögreglan beitti nú rétt um klukkan hálfeitt í nótt táragasi á Austurvelli, segir heimildamaður blaðsins. Það er raunverulegu táragasi en ekki piparúða á brúsa.
Lögreglumenn eru nú með gasgrímur yfir höfðum sér – í það minnsta þeir lögreglumenn sem næstir eru heimildamanninum, sem var við sjúkrabílana hjá Dómkirkjunni þegar hann hringdi.
„Ég fann bara að það lak og lak úr augunum á mér og mér fannst ég eiga erfitt með að anda – en gat síðan sannfært mig um að ég gæti víst andað … þetta var alveg eins og því hefur verið lýst.“
Ljósmyndari Morgunblaðsins sagði heimildamanni Nei. að hann hefði séð lögregluna króa manneskjur af og berja þær „í klessu“ og sparka karatespörk – börðu eina stelpu „frekar illa, sko. Þá byrjaði fólk af alvöru að láta rigna grjóti. Fram að því höfðu mótmælendur ekki hagað sér öðruvísi en áður.“
„Það er fullt af vitleysingum þarna núna maður, einhverjir gaurar sem vita ekkert um stjórnmál en eru allt í einu komnir með logandi spýtur að hlaupa að Hótel Borg, kemur málstaðnum ekki rassgat við,“ sagði heimildamaðurinn líka.
Hópurinn sem fór frá Þjóðleikhúskjallaranum á Austurvöll fór fagnandi, að sögn sjónarvotta – eftir að í ljós kom að Samfylkingarfélagið í Reykjavík þrýstir nú á um stjórnarslit.
Þegar hópurinn kom að Austurvelli var hins vegar viðbúnaður lögreglu frá því fyrr um kvöldið á bak og brott. „Núna þegar við komum upp að þinghúsinu voru fimm löggur sem stóðu fyrir framan það. Maður gat dansað í kringum þá. Ég notaði tækifærið því ég hélt að svo væru fleiri á leiðinni – en það kom enginn. Hvar voru þeir?“
Fleiri lögreglumenn stóðu dreifðir í kringum húsið, nokkrir við hornið Tjarnargötumegin, en enginn vörður var við framdyrnar eins og verið hafði .
Heimildamaður blaðsins sagðist hafa spurt lögreglumann þegar hann áttaði sig á þessu, hverju mannfæðin ætti að sæta. Lögreglumaðurinn svaraði þá: „Hva, viljið þið ekki hafa þetta svona?“ og glotti, að sögn viðmælanda.
Lögreglan var þá engan veginn í stakk búinn fyrir þann mannsöfnuð sem hefur að miklu leyti komið í stað mótmælenda gærdagsins og þeirra sem mótmæltu á Austurvelli lungann úr deginum í dag: mikið af unglingum er nú á vellinum, og fólk hefur áfengi um hönd. „Unglingar, pínulitlir krakkar á fylleríi. Fólk sem sá þetta í fréttum og vildi vera með í partíinu.“ Andi samkomunnar hefur mikið breyst, sagði heimildamaður sem hringdi á leiðinni burt af vellinum. Þar sem áður hefðu aðeins verið borin timburbretti, lausar spýtur og annað drasl á eldinn, væru nú „einhverjir naglar“ að taka skjólveggi veitingastaða, vinna þannig skemmdarverk upp á hundruð þúsunda og bera til að brenna.
Einhverjir báru eld í þinghúsið, sagði heimildamaður blaðsins – skvettu bensíni á það og kveiktu í svo skíðlogaði á framhlið hússins, um mannhæðarhár eldur, við dyrnar. „Og lögreglan stóð við hliðina á og hreyfði sig ekki. Hún gerði ekkert. Ég og einhverjir fleiri mótmælendur hlupum til og slökktum eldinn. Þetta á ekki að vera svona. Hvar er lögreglan? Hvað er hún að spá?“
Að sögn viðmælandans var lögregla semsagt fullkomlega vanbúin fyrir það sem mátti þó búast við. Vænta má að það muni hafa skýringargildi þegar kemur að því að skoða það offors sem hún beitir nú á Austurvelli, þar sem vígalegir hópar lögreglumanna ganga um með gasgrímur og kylfur, eftir að lögregla beitti táragasi á vellinum.
mbl flytur sömu frétt. Reikna með því að þetta megi hafa fyrir satt.
Fasistar. Fasistar, fasistar, fasistar. Fasistar!
Geir Haarde fundar í dag með lögreglunni og nú þetta… “skemmtileg” tilviljun. Skyldu góðkunningi lögreglunnar hann BB líka hafa verið á fundinum?
Ég var þarna og var búinn að vera fyrir framan Alþingishúsið í hátt í klukkutíma þegar þeir gösuðu Austurvöll. Þann tíma hafði ekki verið kveikt í neinni framhurð á húsinu. Hvort það hafi gerst áður veit ég ekkert um.
Þannig að meint íkveikjutilraun var á engan hátt kveikjan að táragasinu. Og jú, það voru einhverjir hálfvitar að atast í löggunni, miklu eðlilegra að mazea þá til að taka úr umferð heldur en gasa alla sem voru þarna að tromma og syngja og mótmæla friðsamlega.
Þetta var fáránleg aðgerð og verulega vanhugsuð og mun því miður líklega kalla á meira ofbeldi á morgun. Nema stjórnin fari frá.
Og sjá: Undir gangstéttarhellunum; STRÖNDIN!
Gunnar sagan seigir að þeir séu búnir með meisið! …úfff þetta er svo vanhugsað hjá þeim og ég hef áhyggjur af því að þeir eigi eftir að slasa fólk
Ég er að elska þessi mótmæli. Samstaðan hefur verið ótrúleg og þörf. Hins vegar var mín tilfinning seint í kvöld, og greininlega í samræmi við það sem lýst er hér að ofan, að fleiri ópólitískir, skemmdarvargar séu að vaða uppi. Komum í veg fyrir það. Sleppum því beita ofbeldi á morgun og hindrum að svartir sauðir skemmi fyrir öllum hópnum. Það væri bara svo frábært ef allir gætu fagnað á morgun (gef mér það að stjórnin falli þá) og dansað og sungið yfir árangrinum. Ef lögreglumenn slasast illa, þá dregur það svo fáránlega úr samstöðu þjóðarinnar með mótmælendum og styrkir þar með stöðu ráðamanna. Kommon, ekkert bull. Lifi byltingin.
Ég er algjörlega sammála tón þessarar fréttar - mjög leiðinlegt að mótmælin á Austurvelli eftir Þjóðleikhúsferðina, þróuðust svona. Það er ekkert launungarmál að lögreglan er skjót að bregðast við sjái hún sér þess færi - en annað er að nýr hópur innan mótmælenda er búinn að myndast, sem vill upplifa eitthvað sögulegt en kom of seint og vill af einhverjum ástæðum “action”.
Held að 99.9% mótmælenda kasti ekki grjóti eða flöskum en þrátt fyrir hrottaskap lögreglu í gær er ekki réttlætanlegt að grípa til þessa - og nú berast fréttir um tvo alvarlega slasaða lögreglumenn. Vonandi eru þær ýktar. Vonandi leiðir þetta ekki til handahófskenndra skýrslutaka saklaus fólks - fingraför, myndir, mælingar alls konar…
Þar sem 99.9% fólksins gerði ekkert ólöglegt, þá hefur lögreglan ekki neins konar sannanir um slíkt. Það sem maður óttast er að hún sé partur af svo fasísku samfélagi að hún þurfi ekki að virða mannréttindi okkar þegar hana langar ekki til þess..
Eru skemmdarvargar þessir ekki átómatískt pólítískir ef þeir taka þátt í mótmælum? Eru þeir vitlaust þenkjandi? Ég skil ekki alveg hvað málið er.
Annað hvort verða stjórnarslit í dag, eða þetta ástand vesnar og endar jafnvel með mannfalli. Það sorglegasta er að þetta skuli vera eina leiðin til að mótmæli virki. Ég ætla ekki að dæma neinn, hvorki lögreglu eða fólkið sem þarna var, ég var ekki á staðnum, enda í dólegheitum, stressleysi og veðurblíðu á Akureyri
[...] í ríki sjoppunnar er strax komið með ágætis naflaskoðunartakta. Eitthvað sem við ættum að vera löngu farin að sjá frá yfirvöldum og lögregluþjónum [...]
Þetta gekk allt of langt í nótt. Nú geta stjórnvöld kallað okkur skríl með réttu (þó ég viti að það eru bara örfáir svartir sauðir sem skemma fyrir öllum hinum). Við getum ekki látið þetta viðgangast, þetta kemur illu orði á mótmælin sem gerir þau minna sannfærandi. Og ég harma það að bæði lögreglu menn og almennir borgarar séu að slasast. Ofbeldi er ekki lausin. Ég legg til að þeir sem finnst of langt gengið veri ekki að mótmæla á nóttinni, það er þá sem fulla pakkið mætir og er með skrílslæti. Er ekki bara nóg að mótmæla til miðnættis og mæta svo bara aftur um morguninn?
Ég tek það samt fram að ég var ekki þarna í nótt svo ég sá ekki með eigin augum hvað var að gerast þarna. En ég var um eftirmiðdaginn og fannst ótrúlegt að sjá hvað það var mikið af umglingum þarna sem voru bara þarna til þess að hanga og vera kúl, henda flugeldum í lögguna og svona. Einn strákur (ca. 14 ára) sem stóð fyrir framan mig henti grjóti í lögguna og ég spurði hvað væri að honum. Hann sagði glottandi að hann væri svo reiður, mhm…einmitt!
En jæja LIFI BYLTINGIN! En reynum að halda þessu innan vissra marka.
Í allan gærdag var lögreglan með eindæmum þolinmóð og með eins lítil viðbrögð við sífelldum skyrslettum, málningarslettum og öflugum kínverjum sem verið var að henda í átt að þeim. Upp við Þjóðleikhús stóðu þeir álengdar og fylgdust meðán nokkurra afskipta. Ákveðinn hópur er þarna eingöngu til að atast í lögreglunni og þþví miður fer að styttast í að við hin venjulegu mótmælendur fari að taka þá úr umferð. Gerið okkur greiða og verið heima hjá ykkur.
Ásmundur, ópólitískir var kannski ekki rétta orðið, því maðurinn er pólitísk skepna. En allavega, þá voru þetta mikið til unglingar, sem á samræðum sínum að dæma, höfðu þá einu hugsjón í mótmælunum að skemmta sér á kostnað lögreglunnar (og í raun annarra mótmælenda.)
Hvernig væri að foraldrar beri ábyrgð á unglingunum sínum og haldi þeim heima á nóttinni?
Þetta er fín lýsing á því sem gerðist. Ég fór af staðnum um miðnætti því mér fannst einmitt alltof mikið komið af krökkum með bjór (og þá meina ég krökkum - á grunnskólaaldri jafnvel) og aggressívum gaurum sem löbbuðu um með óhugnanlegt blik í augum. Ungir krakkar geta að sjálfsögðu verið pólitískir og margir hafa tekið virkan þátt í mótmælunum, en þarna hafði safnast saman mikið af fólki sem var klárlega bara mætt í lætin, ekki til að sýna pólitíska afstöðu. Hins vegar er fáránlegt að táragasi hafi verið beitt. Ég veit að fólk sem var að slá í potta og dansa fékk yfir sig táragas og þessi óþverri barst langt út fyrir völlinn. Lögreglan hafði fullan rétt á að handtaka þá sem voru komnir út í skemmdarverk og kjaftæði, en þetta var ekki leiðin. Höldum áfram andspyrnunni - það hefur aldrei verið mikilvægara. Aðalfréttin á öllum “stóru” netmiðlunum er grjótkast vitleysinga en ekki yfirvofandi stjórnarslit. Látum þá ekki komast upp með að afskræma hreyfinguna.
Og mér líst í raun ágætlega á það sem Helena segir hér að ofan - hvers vegna ákveðum við ekki að fara heim á miðnætti, til dæmis? Þá yrðu skýr skil á milli mótmælanna og vitleysisgangsins.
Ef einhver grímuklæddur maður rænir Lyfju er þá búið að eyðileggja allt fyrir alla viðskiptavini allra verslana landsins? Auðvitað er slæmt ef einhverjir eru að skemma og eyðileggja að óþörfu og við eigum öll að reyna að koma í veg fyrir það. Það er líka mjög mikilvægt að lögreglan og aðrir sem starfa í almannaþjónustu fari að lögum og hagi sér eins og ætlast er til að fólk hagi sér. En næsti áfangi er: Burt með ríkistjórnina og kosningar strax.
Já já þetta er komið á óerirðastigið með árásarhneigðum ungum mönnum undir áhrifum dómgreindaskerðisins mikla, alkóhóls. Og þetta á eftir að versna - þið getið fengið það skriflegt. Þetta er öllum náttúrulögmálum samkvæmt. Allir sæmilega sigldir einstaklingar vita að ef þeir myndu setja kannabisreyk í táragasbomburnar þá myndu þær ná tilætluðum árangri þes minnka en ekki auka árásarhneigð. Luuve and peace bruthas and sistas!
Nei, djók! For fokks sake, látum það nú ekki eyðileggja byltinguna!
Heim á miðnætti. Sammála Sölku!