Mótmælin hófust kl. 13:30 við Alþingi, bárust að Stjórnarráðinu þegar fréttist af ríkisstjórnarfundi þar – og mótmælendur kyrjuðu við taktfasta skelli: Vanhæf ríkisstjórn!, líkt og fyrri daginn.
Þar gerðu mótmælendur líka aðsúg að bíl Geirs H. Haarde, eins og sjá má á myndunum.
Mótmælin færðust aftur á Austurvöll, þar sem gert var hlé á mótmælum á meðan útför fór fram frá Dómkirkjunni. Síðan héldu mótmælin áfram og kveiktu mótmælendur nokkuð mikinn varðeld á vellinum líkt og daginn áður.
Mótmælin gengu þá að mestu leyti sinn vanagang, ef svo má segja, um nokkra hríð.
Fjöldi viðstaddra var raunar sammála um að stemningin á staðnum væri svolítið „súr“ kringum kvöldmatarleytið, þegar óeirðalögreglusveit þrammaði til í hvert sinn sem eldur hafði verið kveiktur og slökkti hann. Loks kveiktu mótmælendur tvo bálkesti í einu, fékk þá eldurinn að loga, og komst þá bæði meiri ró og gleði yfir mótmælin á ný.
Mótmælin færðust yfir að Þjóðleikhúsinu klukkan að ganga níu um kvöldið, en þar fór fram félagsfundur Samfylkingarfélagsins í Reykjavík. Á tröppum Þjóðleikhússins kveiktu mótmælendur líka bál, og kyrjuðu sama slagorð og fyrr: Vanhæf ríkisstjórn!
Þessi hluti mótmælanna má heita með eindæmum vel heppnaður. Mikill þrýstingur hefur verið á Samfylkinguna að rifja upp fyrir hvað hún hefur þóst ætla að standa, og var þeim þrýstingi sannarlega ekki létt við Hverfisgötu. Fundurinn samþykkti yfirlýsingu um að slíta þurfi stjórnarsamstarfi Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks.
Mótmælin færðust aftur á Austurvöll, eftir mikinn fögnuð. Þar var lögregla vanbúin og undirmönnuð. Þær fáliðuðu sveitir sem eftir voru á vellinum beittu þá vopnum sínum óspart á mótmælendur.
Ljósmyndari Morgunblaðsins sagði heimildamanni Nei. að hann hefði séð lögregluna króa manneskjur af og berja þær „í klessu“ og sparka karatespörk – börðu eina stelpu „frekar illa, sko. Þá byrjaði fólk af alvöru að láta rigna grjóti. Fram að því höfðu mótmælendur ekki hagað sér öðruvísi en áður.“
Ljóst þykir að einhverjir úr hópi mótmælenda grýttu múrsteinum eða einhvers konar hleðslusteinum í átt að lögreglu, og slösuðu lögreglumenn. Nei. er ekki enn ljóst hversu alvarlega. Aðrir mótmælendur, þeir sem voru á svæðinu sem tekið hafa virkan þátt í andófi liðinna vikna og mánuða, báru sig sérstaklega eftir því, eftir þetta, að stöðva slíka framgöngu, og slógu meðal annars upp varnarkeðju, „human shield“, fyrir framan lögreglumenn til að verja þá grjótkasti.
Þegar hópurinn kom að Austurvelli var hins vegar viðbúnaður lögreglu frá því fyrr um kvöldið á bak og brott. „Núna þegar við komum upp að þinghúsinu voru fimm löggur sem stóðu fyrir framan það. Maður gat dansað í kringum þá. Ég notaði tækifærið því ég hélt að svo væru fleiri á leiðinni – en það kom enginn. Hvar voru þeir?“
Fleiri lögreglumenn stóðu dreifðir í kringum húsið, nokkrir við hornið Tjarnargötumegin, en enginn vörður var við framdyrnar eins og verið hafði .
Heimildamaður blaðsins sagðist hafa spurt lögreglumann þegar hann áttaði sig á þessu, hverju mannfæðin ætti að sæta. Lögreglumaðurinn svaraði þá: „Hva, viljið þið ekki hafa þetta svona?“ og glotti, að sögn viðmælanda.
Lögreglan var þá engan veginn í stakk búinn fyrir þann mannsöfnuð sem hefur að miklu leyti komið í stað mótmælenda gærdagsins og þeirra sem mótmæltu á Austurvelli lungann úr deginum í dag: mikið af unglingum er nú á vellinum, og fólk hefur áfengi um hönd. „Unglingar, pínulitlir krakkar á fylleríi. Fólk sem sá þetta í fréttum og vildi vera með í partíinu.“ Andi samkomunnar hefur mikið breyst, sagði heimildamaður sem hringdi á leiðinni burt af vellinum. Þar sem áður hefðu aðeins verið borin timburbretti, lausar spýtur og annað drasl á eldinn, væru nú „einhverjir naglar“ að taka skjólveggi veitingastaða, vinna þannig skemmdarverk upp á hundruð þúsunda og bera til að brenna.
Einhverjir báru eld í þinghúsið, sagði heimildamaður blaðsins – skvettu bensíni á það og kveiktu í svo skíðlogaði á framhlið hússins, um mannhæðarhár eldur, við dyrnar. „Og lögreglan stóð við hliðina á og hreyfði sig ekki. Hún gerði ekkert. Ég og einhverjir fleiri mótmælendur hlupum til og slökktum eldinn. Þetta á ekki að vera svona. Hvar er lögreglan? Hvað er hún að spá?“
„Það er fullt af vitleysingum þarna núna maður, einhverjir gaurar sem vita ekkert um stjórnmál en eru allt í einu komnir með logandi spýtur að hlaupa að Hótel Borg, kemur málstaðnum ekki rassgat við,“ sagði heimildamaðurinn líka.
Þrátt fyrir beitingu piparúða og barsmíða lögreglu héldu mótmælin þar áfram til um klukkan 00:30, þegar lögregla beitti táragasi til að leysa mótmælin upp. Er það í fyrsta sinn frá árinu 1949 sem íslensk lögregla beitir þessu efnavopni á mótmælendur, en þá mótmælti almenningur aðild Íslands að hernaðarbandalagi íslensku ríkisstjórnarinnar við aðrar ríkisstjórnir.
Lögregla er sögð hafa hrópað skilaboð í gjallarhorn um að mótmælin væru nú ólögleg, og svo skotið gasinu, einum níu eða tíu gassprengjum eða hylkjum.
„Af hálfu mótmælenda var ekkert ofbeldi fyrr en eftir að þeir sprengdu gasið,“ segir einn sjónarvotta. „Vissulega voru einn og einn að atast í löggunni en það var bara í formi þess að ýta á skildina þeirra og einstaka sinnum að kalla þá illum nöfnum. Ef þeir vildu losna við þetta bögg (sem ég myndi alveg skilja) þá áttu þeir að mazea viðkomandi og taka einstaklinga úr umferð en ekki gasa hundruðir friðsamra mótmælenda sem voru að tromma og syngja.“
„Algjörlega tilefnislaus árás með baneitruðu gasi. Ég forðaði mér eftir að þeir héldu áfram að sprengja táragas aftur og aftur og aftur. Hátt í 20 bombur sprengdar fyrir kl. 1. Engu grjóti var hent í lögguna fyrr en eftir táragasið.“
„Ég fann bara að það lak og lak úr augunum á mér,“ sagði annar heimildamaður, „og mér fannst ég eiga erfitt með að anda – en gat síðan sannfært mig um að ég gæti víst andað … þetta var alveg eins og því hefur verið lýst.“
„Þetta er auðvitað ekki ákvörðun einstakra lögreglumanna sem flestir standa sig eins og hetjur við mjög erfiðar aðstæður. Þetta er stjórnvaldsákvörðun til að sýna hver ræður. Ruddaleg aðferð og baneitruð til þess að dreifa mannfjöldanum.
Og já, eftir að þeir gösuðu þá kom ofbeldi frá mótmælendum. Fólk varð skiljanlega mjög reitt við þessa fullkomlega tilefnislausu árás.
Þarna var fólk á öllum aldri, vissulega yngist þegar líður á kvöldið en engu að síður fullt af fullorðnu fólk, þar á meðal ég.“
Vígalegar sveitir lögreglumanna gengu þá um Austurvöll með gasgrímur yfir höfðum sér.
Þar með var mótmælum ekki lokið. Mótmælendur stóðu við Stjórnarráðið fram eftir nóttu, slógu takt og kyrjuðu. Að miklu leyti samanstóð hópurinn þá af öðru fólki en fyrr um daginn, og allt öðru fólki en daginn áður – og meðalaldur mótmælenda hafði lækkað töluvert.
Einhverjir hópar klufu sig frá og ætluðu á Austurvöll, en lögregla hafði þá myndað veggi við allar aðkeyrslur að vellinum og beinlínis lokað honum með mannafla.
Að sögn viðmælandans var lögregla semsagt fullkomlega vanbúin fyrir það sem mátti þó búast við. Vænta má að það muni hafa skýringargildi þegar kemur að því að skoða það offors sem hún beitir nú á Austurvelli, þar sem vígalegir hópar lögreglumanna ganga um með gasgrímur og kylfur, eftir að lögregla beitti táragasi á vellinum.
Spennan milli mótmælenda og yfirvalda hefur færst á nýtt stig með aðgerðum lögreglu 21. janúar, þó ljóst sé að lögregla var með viðbúnað fyrir slíka aðgerð þegar á mótmælunum a þriðjudag, 20. janúar.
Við munum reyna að safna saman frásögnum vitna og þátttakenda og gefa sem heildstæðasta mynd af atburðunum þann 21. líkt og þann 20. – og biðjum um hjálp allra sem voru á staðnum við að fylla upp í myndina og segja frá atburðum sem þeir urðu vitni að, bæði smáum og stórum, hér í kommentakerfinu eða með tölvupósti.
[...] Ég get barið á potta, klappað og stappað, haft uppi hávaða og sýnt samstöðu með nærveru minni. Ég veit að lögreglan er ekki andstæðingur minn. Ég get þráast við að færa mig, ef lögreglumenn biðja þess, en myndi þó gegna ef á reyndi. Ég mæti ekki til mótmæla til þess eins að ögra lögreglumönnum og reyna að snapa átök. Ég fæ mig ekki til þess að kasta grjóti, Ég vil kynda bál, en ég kveiki ekki í húsum. [...]
Engin mótmæli föstudagskvöld eða laugardagskvöld. Látum ekki djammmenninguna blandast mótmælunum og byltinguna blandast fylleríi.
Látið ganga sem víðast.
Ég er mjög leið yfir því hversu miklu meiri athygli það fær í fjölmiðlum að fólk skuli hafa kastað grjóti í lögreglumenn. Hvað er fólk að hugsa að kasta múrsteinum í lifandi manneskjur? Það er ekkert annað en líkamsárás og algjörlega tilgangslaust. Ég varð fyrir gasi og varð gjörsamlega bálreið…en ég henti hvorki einu né neinu. Mér finnst ótrúlegt að fólk skuli þurfa að skemma svona fyrir öðrum.
Þeir sem ekki geta mótmælt nema með því að kasta flöskum og grjóti eru mannleysur og geta étið drullu. Það er þessu fólki að kenna að lögreglan beitir valdi, og í gær hefði lögreglan átt að grípa inn í mikið fyrr. Ef þið eruð nógu stórir kallar til að ganga fram með ofbeldi, farið þá ekki að grenja þegar því er svarað - bleyjubörnin ykkar.
Ég er appelsínugulur - mótmælum en stöðvum obeldið!!
Myndband af human shield hér:
http://grapevine.is/Features/ReadArticle/Protest-Actions-Mount-in-Reykjavik-Watch-Exclusive-Videos-Of-Police-Confrontation
Lögruglur eru skaðræðisskepnur og sérstaklega sérsveitasvínin eru ekki lifandi fólk heldur viðbjóðsleg ómenni er ráðast á og misþyrma, spreija óspart börn, unglinga og drukkið fólk. Allt ofbeldið hefur verið að frumkvæði skepnanna og er það líklega eina frumkvæði sem þær hafa. Þetta eru varðhundar glæpsamlegs ríkisvalds. Svínahundarnir eiga allt slæmt skilið og múrsteinar er í raun væg afleiðing. Þess vegna kalla allir heiðarlegir og hugsdandi menn upp Loksins, Loksins hafa einhverjir ‘islendingar hrist af sér hænsna suðaorðið þegar sjö svín lentu á dýraspítalanum síðustu nótt. Svínin eru viðeigandi skotmörk. Loftski
Hvernig er þetta með púritanann Sigga Punk sem stal nafninu frá gamla Hlemmaranum. Vill hann ekki taka þátt í “The Revolution of Fun,,? Vinna og leikur fer vel saman, dettum í það og göngum endnalega frá sérsveitinni sem hlýtur að vera orðin uppgefin samkvæmt virtum svínasálfræðingum. Loftski
Algerlega sammála Sigga Pönk. Látum ekki fyllibyttur og slagsmálahunda eyðileggja okkar góða málstað. Sleppum mótmælum á föstudags og laugardagskvöld. Tökum enn betur á því á hefðbundnum laugardagsfundi kl.15.00. Að blanda saman mótmælum og helgardjammi í miðbænum gæti reynst eitraður kokteill, væri vatn á millu þeirra sem vilja kæfa raddir okkar. Lifi byltingin.
Þorri Forni9 er alveg að fara að grenja… vitlaust og óskrifandi pelabarn!
Edrú bylting hlýtur að vera leiðinleg bylting, einskis virði. Í Spænsku byltingunni fengu lýðveldissinnar oft ekki menn á vígstöðvarnar fyrr en búið var að hella þá vel fulla. Getið þið þessir alvarlegu ekki bara haft ykkar sér púritanabyltingu í anda Cromwells, Mullah Omars og skandivisk petakog sósalisma áttunda áratugarins með viðeigandi umræðum og leshringjum?
Þú virðist ekki hafa vit á ritstíl, ironíu né háði oli. Auk þess er ég skellihlæjandi á meðan ég drita þetta á lyklaborðið.
Ritstíll þinn skilar bara ekki því að þú sért hlæjandi. Ég er sammála þér Siggi - höldum þessu fjarri fyllerísmyrkrinu. Hinsvegar er full ástæða til að mæta í dag og á morgun um daginn og svo að sjálfsögðu á laugardaginn…ef ekki bara til þess að fagna að sumar kröfur okkar hafa verið uppfylltar.
ég er ekki hlæjandi þegar ég skrifa þetta
Rétt Þórir… komum saman, mótmælum, gefum þessum mönnum engan vinnufrið því við viljum ekki að þeir vinni lengur, látum í okkur heyra og gerum þeim erfitt fyrir… en það hlýtur að vera hægt án þess að slasa fólk.
[...] er við það að ramba yfir brúnina og falla líkt og ég í stafsetningarprófi í MR og feykilega öflug mótmæli voru í kringum fund Samfylkingarfélagsins í Reykjavík þar sem samþykkt var með dynjandi [...]
Hvaða gáfnaljós ákváðu að hætta að mótmæla, loksins þegar að komast var skriðþungi í málið? Talandi um að að eyðileggja mómentið. Alheimskulegasta aðgerð mótmælenda. Þó svo að Lögreglan hafi valið að snapa sér fighting í nótt, sennilega eftir að Geir Jón fór af vaktinni og yfirfasistinn tók við stjórninni, þá á ekkert að hætta að mótmæla. Á svo að koma saman á laugardaginn þegar Alþíngi sefur heima sér??? Þingmönnum er andskotans sama um mótmæli sem þeir þurfa ekki að horfa uppá og láta fara í taugarnar á sér. Hafa menn ekkert lært á 15 vikum???? Hvernig væri nú að hætta að Haardera og mæta aftur niður á Austurvöll??????
Sammála því að blanda ekki saman djammi og mótmælum.
Alger óþarfi að gefa heimdellingum og öðrum þeim sem ganga um með hvítliða drauma í maganum tækifæri á að hleipa þessu upp í ólæti, þegar þeir eru búnir að drekka í sig kjark til að standa andspænis mótmælendum.
En það þýðir ekki að maður hætti að mótmæla.
Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins fundar á morgunn.
SÆKJUM ÞAU Í GRENIÐ OG STÚTUM DJÖFULS SPILLINGARPAKKINU!!!!!!!
Förum allavega og truflum fundinn, gefum þeim engan frið, látum þá vilta að þeir geti hvergi falið sig, en… það þarf ekki að beita líkamlegu ofbeldi.
Hausinn er ekki bara til að setja á klút, það má líka nota hann til að leysa vanda án ofbeldis!
Ég verð að segja; þið eruð allir obboslega sætir byltinga-verkarar:) Þið virðist orðnir skaddaðir af málþófi.
Þorri - kemur þú ekki í Kvöldkirkjuna,(Dómkirkjan kl.20:30) þar ættirðu að geta rætt þetta í rólegheitunum við hann Geir Jón, um svínin og það allt. Og þið hinir, það er best skjól þar, þegar vindurinn er farinn að blása.
Ég held að Jesús frá Nazaret sé með okkur - gegn valdníðingum; ekki lögreglunni eða ‘húsbyggingum’.
Í Guðs Friði:)
Mér finnst víða vera til kominn sá misskilningur að jafngildi sé milli grímuklæddra, anarkista og grjótkastara. Án þess að láta dóm falla um neinn hópanna held ég að óhætt sé að segja að grjótkast samræmist hugsjónum og hagsmunum anarkista ekki sérstaklega fremur en annarra mótmælenda. Þá sé ég ekki hvers vegna fólk má ekki bera grímur fyrir andlitinu án þess að hljóta fordóma fyrir.
http://grapevine.is/Features/ReadArticle/They-Keep-Bangin-Reykjavik-Protests-Continue-Despite-Bad-PR-Shitty-Weather
Meira jútjúb og stöff frá deginum í dag.
Allir sem vilja mega og eiga senda stöff á editor@grapevine.is til birtingar - helst á ensku. Frásagnir, myndir og fleira.
Það er fjöldi útlendinga að spyrjast fyrir um hvað er í gangi - og mér finnst mikilvægt að við leyfum þeim að fylgjast með.
Kkv,
haukur SM
Ófriðsamleg en ofbeldislaus mótmæli
Beinum líkamsmeiðingum ætti aðeins að vera beitt í sjálfsvörn og skemmdarverk aðeins unnin ef þau þjóna tilgangi, t.d. að brjótast inn í alþingi eða stjórnarráð til að stoppa fund. Ekki bara brjóta til að brjóta.
Hvar verður annars þessi sjálfstæðisflokksfundur á morgun?
Mér finnst nú eiga að láta lögreglu rannsaka hverjir skrifa á þennan vef:
“Brandur
Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins fundar á morgunn.
SÆKJUM ÞAU Í GRENIÐ OG STÚTUM DJÖFULS SPILLINGARPAKKINU!!!!!!! “
Mér segir hugur um að þetta sé hótun og eigi að skoða sem lögreglumál!
Einnig: Ég mæli með að bækur Steinars Braga verði ekki keyptar í ljósi þess að hann styður ofbeldisfull (og stendur reyndar í þeim sjálfur skv. myndum sjonvarps). Það ætti að kenna honum.
Freyr: Það kom fram í fréttinni að hann hafi ekki tekið þátt í ofbeldisfyllri aðgerðum en að tromma á skjöld lögreglumanns. Ég held að þú getir ekki einu sinni keypt þér Andrés Önd blað ef slíkt trommerí er skilgreining þín á “stuðningi við ofbeldi”.
“Það ætti að kenna honum” er setning sem mér finnst hinsvegar hatursfyllri en þetta trommerí.
Og Brandur mætti fara að sleppa ofbeldinu - ég held að Nei-ið hafi ekki mannskap í að þurfa að vaka allan sólarhringinn til að ritskoða comment.
Forseti lýðveldisins getur rofið Alþingi, og skal þá stofnað til nýrra kosninga, [áður en 45 dagar eru liðnir frá því er gert var kunnugt um þingrofið],1) enda komi Alþingi saman eigi síðar en [tíu vikum]1) eftir, að það var rofið. [Alþingismenn skulu halda umboði sínu til kjördags.]1)
Ég held að eini embættismaður landsins með beint umboð allrar þjóðarinnar ætti að grípa inn í á þessari stundu.
Átti að standa: 24. grein[...]
Skuggalegar myndir frá Sigga Gunnars:
http://grapevine.is/Features/ReadArticle/Pictures-From-Wednesday-Protest-That-Speak-For-Themselves
Sendið stöff.