
Það verður æ augljósara að ríkisstjórn Geirs Haarde lítur svo að hún eigi mun fremur í stríði við fólkið í landinu en ástandið sem hún hefur leitt yfir fólkið í landinu. Á föstudag birtist í sjónvarpinu frétt þess efnis að ríkisstjórnin hafi ráðið norskan hernaðarsérfræðing sér til halds og trausts. Maðurinn sem birtist á skjánum heitir Björn Richard Johansen. Hann tjáði okkur í gegnum fréttamann RUV að á Íslandi væru til neyðarráðstafanir gegn náttúruhamförum en ekki fjármálakreppum og að áætlunin sem að unnið væri eftir væri neyðaráætlun NATO. Á meðan Björn Richard tjáði sig runnu tvö myndskeið yfir sjónvarpsskjáinn, annað af þvögu mótmælenda að ganga niður Bankastrætið og hitt af ásatrúarmönnum við trúarathafnir sínar.
Hér vakna margar spurningar, og einhverjar þeirra kunna að skýrast af því að í Morgunblaðinu í morgun, mánudag 10. nóvember, kallar Geir okkur sem mótmælum friðsamlega þeirri meðferð sem þjóð okkar hefur hlotið skríl. Forsætisráðherrann kallar okkur þegna sína skríl. Ég og þúsundir annarra manna sem söfnuðumst saman á Austurvelli erum skríll. Geir Haarde og ríkisstjórn hans virðast komin í nákvæmlega sömu stöðu og austurþýski kommúnistaflokkurinn var árið 1953 þegar verkamenn mótmæltu og kröfðust lýðréttinda. Fyrst þjóðin, sem hann kallar skríl, velur hann ekki ætlar hann að velja sér þjóð. Þessu hljótum við öll að mótmæla einsog maðurinn sem stendur á Austurvelli og horfir á þinghúsið gerði á sínum tíma.
Maðurinn sem hann velur til að gæta öryggis síns og teflir gegn þjóðinni með neyðaráætlun NATO í vasanum, Bjorn Richard Johansen, er fyrrverandi ráðgjafi Bjarna Ármannssonar og spunameistari Glitnis. Hann er titlaður yfirmaður fjárfestingartengsla Glitnis í Noregi og í fréttum frá 2007 er greint frá því hvernig hann stóð sig á erlendum vettvangi við að hvítþvo íslenska bankakerfið. Er þetta ekki algjörlega borðliggjandi, hverjir hafa haldið um valdataumana, hverjir halda um valdataumana og hverjir ætlar sér að halda um valdataumana. Íslenskur almenningur á að hreinsa upp eftir þetta lið í margar kynslóðir og þeir halda áfram að stjórna okkur. Og þeir ætla ekki bara að taka af okkur peningana, húsnæðið, sjálfsvirðinguna heldur líka að berja okkur. Við erum jú skríll í augum forsætisráðherra.
Því hvað þýðir neyðaráætlun NATO? Neyðaráætlun NATO þýðir ekkert annað en leyfi til að setja herlög. Slíkri áætlun var beitt í Grikklandi árið 1967. Ætla Ingibjörg Sólrún og Össur Skarphéðinsson að taka þátt í þessu? Er þau tilbúin að samþykkja að þeir sem gagnrýna ríkisstjórnina verði handteknir og allt frelsi afnumið? Er Samfylkingin tilbúin í stríð við þjóðina? Við hljótum að krefjast þess að þessi neyðaráætlun NATO sem Bjorn Richard Johansen er að smíða ásamt tveimur almannatengslafyrirtækjum, GSP-samskiptum og Bæjarútgerðinni verði gerð opinber. Þá kemur einnig fram í fréttum að fyrir hópnum fari aðstoðarmenn ráðherra. Við hljótum að krefjast þess að aðstoðarmenn ráðherranna, til dæmis Kristrún Heimisdóttir og Einar Karl Haraldsson, geri grein fyrir máli sínu.
Um hvað snýst þessi nefnd og til hvaða ráða mun hún grípa? Ég tek það fram að fréttin sem ég vísa til var ekki á vegum Spaugstofunnar og að þetta er grafalvarlegt mál. Þetta er hótun í garð þjóðarinnar, en við erum kannski bara skríll. Við krefjumst svara. STRAX!
[...] Published 2008-11-11 baráttan , ruglið þetta, þó þið lesið ekki annað, þessa [...]
Við sem höfum unnið hörðum höndum og gert okkar besta þurfum ekki að skammast okkar fyrir að vera íslendingar. Engin getur gert betur en svo. En þeir sem gerðu ísland gjaldþrota með kjánaskap og græðgi verða að víkja með góðu helst, en annars með illu. Látum ekki þessa rotþró sem stjórnar landinu komast lengra með okkur. Stopp. stopp. stopp.
Mætum fleiri á Austurvöll á laugardaginn. Við bara verðum að halda áfram og láta það ekki viðgangast að við séum endalaust höfð að fíflum sem troðið er á eins og druslum. Það er líka viðhorfið hja´forsætisráðherra að við séum “skríll”
Gordon Brown setti a Íslendinga hriðuverkalög…Skal einhvern undra þegar “okkar” forsætirráherra kallar okkur skríl. Ég hef ekki fundið hjá mér hvöt til að fara á Austurvöll en mun svo sannarlega gera það næsta laugardag og hvet alla til að gera það og sýna Geir SKRÍLINN (ÍSLENSKU ÞJÓÐINA) sem kaus hann. KV. Helgi
Mótmæli á Austur velli kl 12 í DAG! Sláum Skjaldborg um Alþingi, um lýðræðið!
http://www.nyirtimar.com
[...] Vil líka benda á góða lesningu. Smellið hér [...]
Held að hér gæti smá misskilnings hvað varðar atvinnuheiti ráðgjafans.
Líklegast er nú að hann titli sig semstrategic adviser/consultant, en oft er orðið “strategic” þýtt á íslensku sem “hernaðar-” þegar þarf alls ekki endilega að þýða það (þó stundum geti það átt við) þar sem túlkunin er víðari en íslenska þýðingin býður upp á og nær því sem við slettum “strategískt” (og kemur byssum sjaldnast við).
R