Aðsent

Nokkur orð um VG

marxogengels

Karl Marx og Friedrich Engels

Steingrímur J. Sigfússon hélt ræðu á þingi þann 5. des. sl um lán það sem þáverandi stjórn hafði gengið frá við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (AGS). Hann mælti á þessa leið:

„Við höfum eftir það ekki frelsi til að velja þær leiðir sem við teljum bestar — fyrir hverja? Fyrir almenning í landinu, fyrir þjóðina, en ekki endilega fyrir peningamennina og fjármagnið sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn er fyrst og fremst að passa upp á… Ég vil láta það koma hér fram að eftir því sem við verðum í aðstöðu til að hafa áhrif á málin, þingmenn Vinstri grænna, verður það forgangsatriði af okkar hálfu á komandi misserum eða árum að reyna að borga Ísland út úr þessu prógrammi aftur. Það skal hafa algeran forgang af okkar hálfu að reyna að standa þannig að málum að við endurheimtum aftur frelsi okkar á þessu sviði eftir því sem aðstæður frekast leyfa.“

Í nefndaráliti sama dag bætti hann við:

„Með samkomulagi þessu er skrifað undir þá staðreynd að það sé í raun Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn sem stjórni efnahagsáherslum Íslendinga á komandi árum.“

Eftir að hafa skoðað aðgerðaáætlun AGS unna í samráði við íslensk stjórnvöld mat Steingrímur það svo að í því prógrammi passaði AGS upp á „peningamennina og fjármagnið“ en ekki „almenning í landinu“, auk þess að fyrirgera fullveldi Íslendinga. Slíkt mat er líka byggt á fyrri reynslu af AGS. Sjóður sá er viðgerðar- og framkvæmdaaðili fyrir stórauðvaldið. Hann hefur alls staðar það verkefni að gera við auðvaldsmaskínuna þegar í hana koma gangtruflanir, tryggja framgang frjálshyggjulausna, sjá til þess að kreppubyrðum sé velt yfir á almenning og opna hagkerfi viðkomandi lands fyrir alþjóðlegu fjármagni. Íslenska auðvaldskerfið lenti jú í kreppu og þá kom AGS stormandi og lagði upp sitt prógramm. Skilmálar AGS eru ekki fyllilega komnir fram. Mark Flanagan segir að „þau skilyrði verða sett á næstu níu mánuðum“ (heimild: samtal hans við Árna Daníel Júlíusson og Evu Hauksdóttur í mars).

VG í AGS-ríkisstjórn

Tveimur mánuðum eftir ofangreinda ræðu Steingríms tóku Vinstri græn sæti í ríkisstjórn í stað Sjálfstæðisflokksins. Jóhanna Sigurðardóttir tilkynnti strax að aðgerðaráætlun AGS væri hornsteinn efnahagsstefnunnar. Og fylgt er í öllum meginatriðum áfram þeirri aðhaldssömu hagstjórnarstefnu sem AGS markaði í nóvemberlok. Í samræmi við hana hafa helstu ríkisútgjöldin farið í endurreisn fjármálakerfinsins en bið verður á raunverulegum aðgerðum til stuðnings alþýðuheimilum. Niðurskurður í ríkisútgjöldum heldur áfram jafn kröftuglega og hjá fyrri ríkisstjórn. Kaupmáttur launa hefur lækkað um 10% á ári, greiðslugeta lífeyrissjóða er stórkostlega skert, ótal heimili í greiðsluþroti, atvinnuleysið er komið upp í 10%. Annað meginatriði í stefnuyfirlýsingu stjórnar Jóhönnu og Steingríms var að staðið yrði við allar erlendar skuldbindingar, s.s. varðandi ICESAVE.

Það að VG skuli mælast með svipað fylgi og Sjálfstæðisflokkurinn eru vissulega tíðindi og merki um vinstri sveiflu. En kemur það að gagni? Nýja ríkisstjórnin sýnist einkum hafa tvenns konar hlutverk. Annars vegar er hún innlendur uppáskriftaraðili fyrir Gjaldeyrissjóðinn (AGS) og „leppar“ tilskipanir hans (í byggingariðnaði er „leppur“ sá sem skrifar upp á fyrir réttindalausan byggingarstjóra). Hins vegar stundar hún smáskammtalækningar og einhvers konar líknarstörf gagnvart þeim sem standa allra verst. Á nýliðnu landsþingi VG var bersýnilegt að flokksforustan hafði étið ofan í sig harða gagnrýni sína á AGS án þess að ropa. Slíka kúvendingu efði hugsanlega mátt styðja einhverjum raunsæisrökum, en þegar kúvendingin er gerð án nokkurrar umræðu á fundinum er það órækt merki um hentistefnu.

Vinstri grænir ríða nú um landið sem hugprúðir riddarar til bjargar íslenska kapítalismanum frá honum sjálfum, svo ná megi aftur upp hrapandi arðsemi peninganna. Sjálfstæðismenn höfðu ekki lengur tiltrú við það starf. Olræt, VG er ekki sósíalískur flokkur. Við vissum það fyrir. Hitt er verra: Þátttaka VG í ríkisstjórn er mjög til þess fallin að hindra baráttu íslenskrar alþýðu gegn kreppuárásum auðvaldsins. Með inngöngu VG í ríkisstjórn og málflutningi VG-forustunnar síðan gefur hún þau skilaboð til fylgismanna sinna – og þeir voru stór hluti fötgönguliðs Búsáhaldabyltingarinnar – að nú skuli slíðra vopn fjöldaaðgerða og hafast ekki að því ný ríkisstjórn þurfi starfsfrið, og auk þess þurfi menn að undirbúa kosningar.

Raunverulegur andófsflokkur hagar sér ekki þannig. Ef svo ólíklega skyldi vilja til að hann lenti í ríkisstjórn veit að hann kemur ekki í gegn neinum breytingum sem skerða hagsmuni auðvaldsins nema hafa á bak við sig eina vopn alþýðunnar, virk samtök hennar sjálfrar. Óskastaða auðvaldsins er hins vegar sú að baráttan lokist inni á þingi, sú barátta sem annars gæti komið fram á þeim sviðum samfélagsins sem kæmu auðstéttinni ver. Sú afstaða að kosningar og stjórnarþátttaka geti leyst af hólmi fjöldabaráttu í grasrótinni er hin hefðbundna afstaða krataflokka. Þátttaka VG í þessari AGS-ríkisstjórn og þessi afstaða til stéttabaráttunnar felur í sér svik við baráttuna gegn kreppuaðgerðum auðvaldsins. Enda ganga skerðingarnar og árásirnar yfir almenning af óskertum krafti eftir stjórnarskiptin.

Nýja ríkisstjórnin notar vissulega annað orðfæri en sú gamla, enda er þjóðin, eftir hremmingar síðustu mánaða og missera, móttækilegri fyrir málflutningi í anda félagshyggju en frjálshyggju. Fólk hefur hins vegar ekki áttað sig á því að breytingin liggur í orðfærinu en ekki stjórnarstefnunni. Það sem við horfum upp á er snögg umbreyting VG úr einhvers konar andófsflokki í valdaflokk. Og flokkur kemst auðvitað ekki til valda í íslenska auðvaldskerfinu nema hann gangist inn á forsendur íslenskrar yfirstéttar, þ.e. að hann sýni fyrirfram að hann ætli að tryggja íslenskum kapítalistum „ásættanlega arðsemi peninganna“.

Þingræði handa hverjum?

Í kreppunni skýtur hugtakið „kapítalismi“ aftur upp kolli. Vofan Karl Marx rís úr gröf sinni. Við búum ekki einfaldlega við „atvinnulíf“ heldur ákveðið efnahagskerfi sem byggir á stéttardrottnun. Ríkisvaldið sem við búum við er ekki einfaldlega „almannavald“ heldur valdatæki sömu stéttardrottnunar. Marx kallaði valdaafstæður milli stétta efnahagskerfisins „framleiðsluafstæður“ og bætti við:

„Þessar framleiðsluafstæður mynda í heild hagkerfi þjóðfélagsins, þann raunverulega grundvöll sem lagaleg og stjórnmálaleg yfirbygging hvílir á og viss form félagslegrar vitundar svara til. Framleiðsluháttur hins efnalega lífs skilorðsbindur félagslegt, stjórnmálalegt og andlegt lífsferli yfirleitt.“ (Marx/Engels. Úrvalsrit, I, 240)

Samfélagsþróunin snýst öðru fremur um baráttu stéttanna, sagði Marx, og á okkar dögum er það auðstétt gegn verkalýðsstétt. Vald auðstéttarinnar byggist á tvennu: Í fyrsta lagi á yfirráðunum yfir auðmagninu og í öðru lagi á yfirráðum yfir ríkisvaldi sem er tæki stéttardrottnunar samofið eignakerfi atvinnulífsins (með valdatækin her, lögreglu og emættismannakerfi auk þjóðþings) en læst þó standa fyrir ofan og utan stéttirnar. En alþýðan býr einnig yfir valdi. Það er fólgið í hinni stéttarlegu samþjöppun sem auðvaldsþróunin hefur framkallað. Samþjöppunin auðveldar verkalýðnum að skipuleggja baráttu sína, færir honum samtakamáttinn, ekki síst þann möguleika að stöðva þjóðfélagið með verkföllum. Marx kenndi þá speki að eina færa leiðin til að skáka valdi ríkjandi stéttar væri leið stéttabaráttunnar, að skipuleggja og virkja þau öfl í samfélaginu sem hafa efnahagslega hagsmuni andstæða auðvaldinu.

Auðstéttin drottnar sem sagt í krafti yfirráða yfir auðmagninu og yfir ríkiskerfinu. Svo má bæta við þriðja atriðinu, þingræðisblekkingunni, þeirri blekkingu að miðstöð valdsins sé í þjóðþinginu. Stéttarveldi borgarastéttarinnar allt frá 19. öld hefur byggst á formlegum almennum kosningarétti til þings samhliða efnahagsvöldum og hugmyndalegu forræði. Friedrich Engels hélt því fram að þjóðþingið gæti aldrei orðið raunverulegt vald fyrir verkalýðinn:

„Loks er þess að geta að eignastéttin ræður beinlínis ríkjum í krafti hins almenna kosningaréttar… Almenni kosningarétturinn er þannig mælikvarði á þroska verkalaýðsstéttarinnar. Hann getur aldrei orðið annað meira í nútímaríkjum og mun ekki verða það.“ (Marx/Engels. Úrvalsrit, I, 490)

Lenín tók mjög undir þessa afstöðu. Hann sagði: „Vér erum fylgendur lýðræðislegs þjóðveldis sökum þess að það er besta ríkisformið fyrir verkalýðinn meðan auðvaldið stendur..“ En hann bætti við að lýðræðislegt þjóðveldi væri hin besta „pólitíska hula“ fyrir almætti auðsins. Vald auðsins væri þar tryggast af því þar væri hin pólitíska gríma haganlegast gerð (Ríki og bylting, 18, 24). Það þýðir að formlegt lýðræði sýni frekar styrkleika yfirstéttarinnar en nakinn járnhnefi lögregluríkis gerir, en það þýðir auðvitað ekki að alþýðan eigi ekki að berjast fyrir lýðræðislegum réttindum.

Við Íslendingar höfum séð það margstaðfest undanfarið að valdið hér á landi liggur ekki í þjóðkjörnum stofnunum. Atvinnutæki sjávarplássanna voru lögð niður eða seld burt. Almenningur var ekki spurður, og yfirleitt ekki Alþingi heldur né sveitastjórnir. Auðmenn voru bara að ráðstafa eigum sínum. Sláturhús plássins og frystihúsið voru lögð niður, kvótinn fór, þjónustustofnanir og skóli voru lögð niður „ ..og málinu skotið til markaðarins sem mállaus vinnur sín verk.“ (Einar Már). Sparisjóður byggðarinnar einkavæddur og gleyptur af hákörlum. Heimamenn ekkert spurðir. Peningarnir teknir út úr sjávarútvegi og fluttir úr landi. Við vorum ekkert spurð, ekki einu sinni Alþingi. Bankarnir voru einkavæddir. „Þetta eru bara lögmál markaðarins og reglur EES“ var sagt. Og það var satt. Írak var sagt stríð á hendur. Enginn var spurður. Bankarnir ofþöndu sig í útlöndum fyrir lánsfé og ábyrgðin var skrifuð á ríkissjóð. Enginn var spurður, til dæmis ekki Alþingi. Í kreppunni eru svo skuldirnar þjóðnýttar og kreppunni skipulega velt yfir á herðar almennings, án þess að hann sé neins spurður í því efni. Þetta er nefnilega ekki eiginlegt lýðræði heldur alræði auðsins (auðræði er einnig gott orð).

Hið rómaða þingræðisskipulag er svona: Við höfum annars vegar embættismannakerfi sem samofið er stéttbundnu eigna- og valdakerfi efnahagslífsins. Það er hluti af hinu opinbera framkvæmdavaldi. Það matreiðir upplýsingarnar til þingsins og annast hin raunverulegu stjórnunarstörf. Þau eru unnin þar í kyrrþey á meðan haldnar eru ræður á Alþingi. Hins vegar er ræðustóll Alþingis sem hefur það sérstaka hlutverk að draga að sér athygli, rétt eins og örlög þjóðarinnar ráðist þar, en í reynd er vald þingsins gagnvart framkvæmdavaldinu mjög takmarkað.

Þingpallaleið til magnleysis

Verkalýðsstéttin er jafngömul kapítalismanum og býr að reynslu. Hún hefur á tímabilum risið upp og sett sér það markmið að taka völdin og afnema kapítalismann, umturna ríkjandi samfélagsháttum og stéttardrottnun. Hún hefur eignast stjórmálaflokka sem hafa skipulagt baráttu hennar fyrir hagsmunum sínum og framtíðarmarkmiðum. Þegar uppsveifla er í baráttu hennar hefur hún sett sósíalismann skýrt á dagskrá. Þess á milli hafa komið tímabil þar sem baráttan koðnar niður í krónukarp og stéttasamvinnustefnu. Það gerist jafnan með þeim hætti að stjórnmálaflokkar hennar hafa gengist inn á stjórnmálaforsendur ríkjandi skipulags, „þingræðislegar aðferðir“. Þeir bjóðast þá til að stýra auðvaldskerfinu, sveigja það að hagsmunum alþýðu. Þeir tala á þessa leið: „Ef alþýðuflokkarnir komast til valda má snúa kapítalismanum yfir í einhvers konar sósíalisma“. Fyrst gengu flokkar sósíalsdemókrata þessa slóð. Leið hins kratíska hentistefnuflokks lá gegnum „vinstri stjórnir“ með sívaxandi stéttasamvinnustefnu yfir í það að verða pólitísk meginstoð í valdakerfi auðsins. Svo uxu upp byltingarsinnaðir flokkar kommúnista. Það voru harðsnúnir stéttabaráttuflokkar sem höfðu það aðalstarf að fylkja verkalýðnum í hinni daglegu stéttabaráttu, ekki síst á tímum kreppunnar á 4. áratugnum (samfylking gegn fasisma o.fl). En upp úr miðri öld, undir forustu m.a. Krúsjoffs, tóku þeir að boða þá stefnu að nú bæri kommúnstum einkum að „vinna meirihluta á þjóðþingi og breyta því í verkfæri alþýðuvalda“ (úr „leyniræðu“ Krúsjoffs á 20. þingi Sovéska flokksins 1956). Þegar meginþungi baráttu þeirra færðist inn á þingið varð leikurinn auðstéttinni auðveldur.

Allt þetta höfum við reynt hér á landi. Alþýðuflokkurinn byrjaði sem verkalýðsflokkur en lét svo af öllum kröfum um afnám kapítalismans, færði baráttu sína inn á Alþingi og í ríkisstjórnir og bauðst til að reka íslenska kapítalismann „betur enn íhaldið.“ Í kreppu 4. áratugsins harðnaði stéttabaráttan í landinu mjög og íslensk verkalýðshreyfing efldi samtakamáttinn undir forustu kommúnista og vinstri sósíalista. Þá og á 5. áratugnum vann alþýðan sína glæstustu sigra. Þingstyrkur róttæklinga var að vísu talsverður en miklu meira munaði um skipulags- og forustuhlutverk þeirra í hinni daglegu stéttabaráttu. Í kjölfar krata fóru vinstri sósíalistar einnig að veðja á „ráðherrasósíalisma“ og tóku þátt í mörgum ríkisstjórnum. Með hverri vinstri stjórn eignuðust A-flokkarir fjölmarga menn í stjórnum ríkisstofnana og í bankaráðum. Með hverri vinstri stjórn stórjukust afskipti ríkisvaldsins af kjaramálum. Með hverri vinstri stjórn styrktist hugmyndin um samráð og samvinnu stéttanna og sú hugmynd að þjóðfélagsátökin skyldu leidd til lykta á Alþingi. Þjóðfélagslegt afl verkalýðsins minnkaði í réttu hlutfalli við það. Verkalýðshreyfingin og flokkar hennar aðlöguðu sig kapítalismanum, yfirgáfu vettvang stéttabaráttunnar og kepptust um fá að stýra auðvaldsskútunni. Verkalýðshreyfingin varð fyrst og fremst þjónustustofnun, innmúruð og innbyggð í auðvaldskerfið. Langvarandi stéttasamvinna bjó til lítinn forréttindahóp innan hreyfingarinnar til að annast kaup og kjör. Slíkur hópur er mikilvægur hluti af valdakerfi ríkjandi stéttar á Íslandi eins og víðast í þróuðum auðvaldsríkjum nútímans.

Ég man til áranna 1968-70. Öll þau þrjú ár voru harvítug verk-föll í landinu, í 2-3 vikur í hvert sinn. Það var ólga og verkalýðshreyfingin enn nokkuð harðskeytt og gerði valdsmönnum lífið leitt. Svo kom vinstri stjórnin „Ólafía“ 1971-74. Hún samdi við verkalýsðhreyfinguna í friði og engin verkfallsátök urðu í landinu í hennar stjórnartíð. ASÍ hefur reyndar ekki staðið fyrir meiri háttar verkfalli síðan og kannski má álykta sem svo að samtökin hafi aldrei náð sér eftir þessa vinstri stjórn. Nokkru síðar kom vinstri-miðju stjórn Steingríms, Ólafs Ragnars og Jóns Baldvins og gerði „þjóðarsáttarsamningana“ árið 1990 við verkalýðsshreyfinguna um að gefa atvinnuvegunum svigrúm og ná niður verðbólgu. Verkalýðshreyfingin tók þar fulla ábyrgð á efnahagskerfi auðsins, sem auðstéttin (einkum fjármálaauðvaldið) notaði svo til að byggja nýja glæsilega hæð ofan á kerfið fyrir sig. Og 1. mars 2009, þegar kaupmáttur hefur fallið um 10% undafarið ár, semur ASÍ strax um frestun á leiðréttingu launa í ljósi þess að ný ríkisstjórn er tilbúin að „koma eitthvað að málunum.“ (Mbl 26. febr.)

Hver er í mestri afneitun?

VG leggur fram þá greiningu að kreppan á Íslandi sé einkum til komin af hægrisinnaðri hagstjórn Sjálfstæðisflokksins. Steingrímur J. ritaði nýlega grein um það: „Sjálfstæðisflokkur í afneitun“. Þetta er skilningshamlandi þrenging á umræðunni, til framdráttar áróðrinum fyrir vinstri stjórn. Það er að vísu rétt að Sjálfstæðisflokkurinn var fánaberi frjálshyggjunnar, en það eru fleiri flokkar í afneitun en hann. Sú þróun sem við upplifðum í þróuðum auðvaldsríkjum undanfarna 2-3 áratugi var efnahagsleg og hugmyndaleg endurskipulagning auðvaldsins sjálfs. Hagvöxtur undanfarinn áratug hefur fyrst og fremst verið í fjármálageiranum, og framrás fjármálaauðmagnsins hefur orðið samhliða framgangi pólitískrar markaðshyggju. Það endurspeglaðist í flokkakerfinu í heild. Það var ekki bundið við hægri flokka, það sló jafnvel enn meir út í krataflokkunum. Það er ekki meginmunur á afli frjálshyggjunnar milli landa eftir því því hvort hægri flokkar eða krataflokkar hafa verið við völd. Og kreppan er ekki heldur neitt betri í Bretlandi eða Þýskalandi þar sem kratar hafa lengi setið að völdum (stundum í samstjórn með öðrum) en t.d. í Frakklandi þar sem hægri menn hafa ráðið ríkjum síðan 1995. Það er beinlínis forheimskandi að fókusa fyrst og fremst á hið séríslenska í þessari þróun. Hin almenna og ríkjandi þróunarstefna kapítalismans undanfarna áratugi er annað og stærra mál en stefna Sjálfstæðisflokksins. Íslenska fjármálaauðmagnið tók kappsamlega þátt í þessari þróun, reyndar glannalegar en flestir. Og allir stjórnmálaflokkarnir tóku einhvern þátt í þeim dansi, misákafan að vísu. Það er ljóst að Samfylkingin hefur til þessa aðhyllst litlu vægari markaðshyggju en Sjálfstæðis- eða Framsóknarflokkur. Hún var jafn áköf um einkavæðingu bankanna (og barðist gegn dreifðri eignaraðild) og jafn áköf um útrásina. Íslenska fjármálaauðvaldið er ekki bara evrópusinnaðasti hluti auðvaldsins heldur jafnframt útrásar- og hnattvæðingarsinnaðasti hluti þess. Framrás fjármálaauðvaldsins hefur fylgt aukinn hagsmunaklofningur innan auðvaldsins, ekki síst í evrópumálum. Samfylkingin er einarðari stuðningsaðili fjármálaauðvaldsins en nokkurn tíma Sjálfstæðisflokkurinn þar sem útgerðarauðvaldið hefur ennþá sterkasta stöðu. Nú hentar VG illa að rifja þá staðreynd upp.

Úr andófsflokki í kerfisflokk – ekki óvænt

Fleiri voru þeir sem mærðu útrásina:

„Að lokum, nokkur orð um útrásina. Almennt gleðjumst við landarnir yfir árangri af fjárfestingum erlendis. Í sumum tilvikum hefur líka verið sýnd stórkostleg hugkvæmni og framsýni og vil ég þar nefna árangur bræðranna sem kenna sig við Bakkavör. Bakkavararbræður hafa haslað sér völl í Bretlandi og víðar og margt af því sem ýmsir aðrir íslenskir aðilar eru að gera víðs vegar um heiminn er aðdáunarvert.”

Hér talar Ögmundur Jónasson haustið 2006. Málflutningurinn endurspeglar væntanlega að nokkru leyti fjármagnsútrás lífeyrissjóðanna sem áttu stóran hlut í Bakkavör. Þegar svo Brown og Darling höfðu sett á hryðjuverkalögin haustið 2008 brást Ögumundur þannig við:

„Skömm bresku ríkisstjórnarinnar er mikil. Þeim mun ánægjulegra yrði ef Bakkavör og önnur flaggskip í íslenskum atvinnurekstri erlendis komast lífs af.“ (www.ogmundur.is/annad/nr/4162)

Þetta er skrifað eftir að Bakkavör hefur breytt sér úr framleiðslufyrirtæki í eignarhaldsfyrirtæki, aðallega í fjármálageiranum. Bakkavararmenn voru annar stærsti eignaraðili í Kaupþingi. Forusta VG var hvorki á móti framrás fjármálaauðmagnsins né útrásinni sem slíkri þótt hún hafi varað við ofþenslu. Breyting VG núna í valda- og kerfisflokk er ekki óvænt, þar sem flokkurinn hefur aldrei haft neina andkapítalíska hugmyndafræði að styðjast við, aðeins boðað græna umhverfisstefnu og svo fegrunaraðgerðir á kapítalismanum.

Núverandi kreppa felur í sér stórkostlegan tilflutning fjármagns og hert arðrán, hér sem annars staðar, þegar óstjórn, spillingu, lántökum, sukki og gambli auðmanna er velt yfir á alþýðuna í viðbót við „hefðbundið“ arðrán. Stéttabaráttan mun óhjákvæmilega harðna enda er kreppan pólitískur skóli. Aðeins með því að byggja upp mótafl alþýðu gegn afli auðsins er hægt að breyta innbyggðum valdahlutföllum í þjóðfélaginu. Til þess þarf líka að setja sósíalismann og kollvörpun kapítalismans á dagskrá. Að ætla sér að bæta auðvaldsskipulagið er jafngilt því að gangast inn á forsendur þess – aðlaga sig því, ekki öfugt. Þá er gott að hafa í huga að íslensk verkalýðshreyfing náði að styrkja verulega stöðu sína – byggja upp mótaflið – í síðustu stóru kreppu, á 4. áratugnum. Þá gerðist það einkum undir forustu kommúnista. Ennþá hefur ekki komið fram neitt stjórnmálaafl sem fyllir þeirra skarð. En þörfin er æpandi. Róttækt fólk sem stutt hefur VG þarf því að hugsa sitt ráð.

marxogstalin

F.v.: Stalín, Marx.

Myndirnar með greininni frá Dunechaser
Þórarinn Hjartarson
  • Þarfar athugasemdir settar fram á virkilega flottan hátt! Vinstri hefur ekki þýtt vinstri allt of lengi, og í dag þýðir það bara ekki-eins-augljóslega-hægri

  • Glæsileg skrif. Talað út úr mínu hjarta. Við þurfum andófsflokk, sósíalistaflokk sem hafnar auðvaldsskipulaginu eins og það leggur sig. Samfélag sem er byggt á samvinnu iðnaðar, samvinnu íbúa og félagslegri hugsun.

  • Góðar ábendingar og þarfar.

  • Takk fyrir. Ég held við þurfum hreinlega byltingu, þar sem þingið er sett af, og nýtt sett upp þar sem takmarkið er að sinna aðeins því sem nauðsynlega þarf að reka sameiginlega, en einstaklingurinn og hans frelsi sett á stall.

    Við göngum nú til “rússneskra” kosninga, með útsmognum kosningalögum og samstöðu flokkana þá er sama hvað við kjósum, við fáum alltaf eins stjórn, það skiptir ekki máli hvort við veljum politburo 1 eða politburo 2. Ég held ég sitji heima og taki ekki ábyrgð á að gefa þeirri stjórn sem kemur “endurnýjað umboð”. Sá frasi verður holur ef kjörsókn er kannski 30-40%, að sitja heima er besta leiðin til að lýsa vantrú á þingið og þeirra leikrit.

    Smellið á nafnið mitt til að lesa um Fabian samfélagið.

  • Skuldir Íslands og íslendinga. Er stjórnvöldum treystandi?

    Ljóst virðist að Ísland stendur á barmi þjóðargjaldþrots og að skuldir af völdum bankahruns og efnahags óstjórnar eru sennilega meiri en hægt er að ráða við.

    Ekki fæst staðfest hversu háar skuldir þjóðarinnar eru, en stjórnvöld halda samt áfram með stöðugar yfirlýsingar um að fær leið sé út úr skuldafeninu með hefðbundum tekjustreymis aðferðum ríkissjóðs, s.s. skattahækkunum og stórfelldum niðurskurði útgjalda.

    Kominn er tími til að stjórnvöld geri þjóðinni nákvæmlega grein fyrir hverjar skuldirnar eru en hegði sér ekki eins og fyrrverandi ríkisstjórn sem hélt mikilvægum upplýsingum um væntanlegt hrun leyndum fyrir þjóðinni.

    Nýlega fram komnar upplýsingar frá tveimur erlendum hagfræðingum, Michael Hudson og John Perkins benda til þess að íslensk stjórnvöld séu hugsanlega á algerlega rangri leið með þjóðina, leið sem muni hneppa íslendinga í skuldafen um langa framtíð. Báðir halda því hiklaust fram að í slíku skuldafeni munu fyrr eða síðar eignir þjóðarinnar s.s. auðlindirnar, atvinnutækin og stoðkerfi eins og samgöngumannvirki og veitustofnanir, verða seld erlendum fyrirtækjum sem leið út úr vandanum. Þetta segja þeir alþekkt.

    Framsaga þeirra beggja í Silfri Egils s.l. sunnudag og á fundum í Háskóla Íslands og á Grand Hóteli á mánudaginn hefur vakið mikla athygli en jafnframt sætt nánast algerri þöggun í mörgum helstu fréttamiðlunum s.s. RÚV –sjónvarpi og útvarpi og Morgunblaðinu.

    Hér er á ferðinni mál sem skiptir alla íslendinga gríðarlegu máli, mál sem heggur að grundvallar lífsskilyrðum okkar, barna okkar og jafnvel barna-barna þar sem vegferð stjórnvalda virðist vera sú að skera hér samfélagsáttmálann í ræmur sem aldrei verður aftur byggt á.

    Bæði Hudson og Perkins hafa bent á að aðferðir AGS, þær sömu og íslensk stjórnvöld hafa engist undir, hafa valdið stórkostlegum skaða til áratuga í þeim löndum sem þeim hefur verið beitt. Á hinn bóginn hefur þeim löndum sem hafnað hafi meðulum AGS jafnan vegnað mun betur og þau verið fljótari að rétta úr kútnum eftir áföll.

    Hagsmunir almennings hljóta að krefjast þess að samstarfið við AGS verði endurskoðað og að leitað verði annarra leiða út úr skuldafeninu. Gleymum því ekki að það var ekki almenningur sem stofnaði til þessara skulda heldur örfáir fjárglæframenn í samvinnu við vanhæfa ríkisstjórn og stjórnsýslu.

    Það er krafa okkar að það verði fjallað um þetta mál í fjölmiðlum og á Alþingi. Yfirlýsing frá XO - 8. Apríl 2009.

  • Grein í Information um AGS http://www.information.dk/187830

  • Kærar þakkir,

    VG eiga ekki atkvæði mitt tryggt.

  • Þ.e.a.s. þau þurfa að vinna fyrir því.

  • Það er ótrúlegt að eldgömul stéttapæling skuli ennþá vera í notkun hjá áhangendum vinstrivillunnar. Það eru í raun ekki til neinar stéttir byggðar á lífskjörum á vesturlöndum lengur. Það sem hangir á spýtunni í dag er kúgun á þeim sem ekki geta eða vilja koma fyrir sig orði. Þetta hallærisvefrit er eitt af þeim kúgunartækjum. Allir flokkar á þingi eru sama marki brenndir. Kannski er Sjálfstæðisflokkurinn þó skástur af flokkunum hvað þetta varðar því hann trúir þó að minnsta kosti í orði á einhver grundvallarréttindi einstaklingsins. Kúgun nútímans byggir á því að taka sér þann rétt að hugsa fyrir aðra. Kúgun nútímans byggir á því að taka sér þann rétt að ryðja út úr sér endalausri steypu um kenningar og stefnur og annað slíkt bull. Að ákveða hvað er öðrum fyrir bestu og framkvæma það. Þannig fer eitthvað lið upp á Kárahnjúka og vill stoppa framkvæmdir af því að þeim sýnist svo. Ekki af því að fólkið í landinu vilji það endilega heldur einungis af því að þeim finnst það rétt út frá einhverri hugsjón. Hugsjón sem til dæmis getur kallast að hafa vit fyrir öðrum. Ef íbúar Austurlands eða meirihluti Íslendinga vill virkjanir þá er ákveðið að hafa vit fyrir þeim og mögulega vitnað í að heimurinn sé á annarri skoðun eða þá að skoðun meirihlutans er sögð svo vitlaus að hana þurfi að brjóta niður með “aðgerðum”. Þannig verða aðgerðasinnar til. Fólk sem vill taka völdin í sínar hendur og þar með hylla þá ofbeldishugsun sem það vænir andstæðinga sína um. Hústökufólk fer inn í hús í Reykjavík og öllum gömlu róttæklingunum finnst það gaman. Þeir vita reyndar hverjir ráða í raun (eins og sannaðist þegar mótmælin hættu um leið og VG komst til valda) en þeim finnst þetta allt saman svo sætt og róttækt. Liðið sem tekur hús flýtir sér að semja húsreglur mitt í anarkismanum, reglur sem meðal annars kveða á um hverjir mega koma inn í húsið og hverjir ekki (t.d. má lögreglan ekki koma inn). Síðast þegar ég vissi snérist anarkismi ekki um að semja reglur. En auðvitað má búa til nýjan anarkisma.. Anarkisma sem er öðruvísi en áður.. Anarkisma sem er eitt í dag og annað á morgun. Svo fremi sem fólk fái tækifæri til að vera aðgerðasinnar í skjóli VG. Fái að taka hús í rómantískum friði en fær auðvitað samt ekki að taka hús á forystu VG eða hrista þá stofnun á neinn hátt. Á meðan eru venjulegir Íslendingar ekki spurðir því það þarf ekki að spyrja þá að neinu. Þeir skipta ekki máli. Liðið út á landi kann ekki að rökræða á kaffihúsum. Liðið sem er í vinnunni til að borga lánin sín hefur ekki tíma og er því ekki spurt. Liðið sem missti vinnuna er ekki spurt því það er ábyggilega svo vitlaust eða þá að það kaus einhverntíman Sjálfstæðisflokkinn eða Framsókn. Einungis þeir sem hafa búið í fílabeinsturnum og fara síðan og berja pönnur og taka hús eru marktækir. Fjölmiðlarnir elska ástandið enda bjuggu þeir til góðærið og nú eru þeir að stjórna kreppuorðræðunni. Fjölmiðlarnir segja að allir skuldi því þeir hafi allir tekið þátt í góðærinu. En merkilegt nokk þá tók enginn þátt í góðærinu nema fjölmiðlar og auðmennirnir. Jú við fengum gjaldeyri ódýrari en áður. En flestir lifðu einfaldlega sínu lífi. Án þess að spá í Marx eða Engels eða snöruna hans Leníns. Þetta endalausa mosavaxna bull forræðishyggjunnar um alræði öreiganna er ótrúlega úldið. Ímyndar- og skoðanavaldið (sérstaklega á vinstri vængnum) mun sjá til þess að einungis þeir sem eru vel verseraðir í fræðunum og nenna að sitja á endalausum sellufundum (að ræða listir, róttækni og umhverfi) mun ráða öllu.

    Úff.. hljóma ég eins og ég sé eitthvað á móti ungu spennandi róttæklingunum.. Vá.. ég hef ekki einusinni neitt sérstaklega mikið á móti þeim.. Það eina sem ég er á móti eru klisjurnar úr öllum áttum.. líka þeim sem koma fram á þessum vef..

  • Ég trúi nú samt að V.G. séu líklegastir til þess að koma okkur út úr þessu IMF samstarfi sem fyrst. Hverjir aðrir? IMF er bara hér til að styrkja bankanna og halda þessu kerfi á en það þurfum við ekki. Ekki ef við viljum alvöru frelsi. Við ættum að nýta tækifærið og rífa þessar stofnanir niður og byggja á nýjum grunni samfélag án peninga. Hátæknivætt sósíaleriserað samfélag. Samfélag byggt á því að það sé betra að gefa en þiggja.

    Ég verð að segja að frekar væri ég til að lifa eins og fátækur bóndi einsog ættfeður mínir í nokkur ár núna eða bíða í nokkur ár þangað til IMF hefur gert okkur öll að fátækum bóndum og landið okkar verður komið á útsölu. Í nafni auðvaldsins mun það gerast. Þá munu ættfeðurnir snúa sér við í dánarbeði sínu hvort sem þeir eru í haugum eða krossmerktum gröfum.

  • Já, það er rétt hjá þér mm, þessi romsa þín er enn þá vemmilegri en hin fyrri. Fullr af einstrengingslegum fullyrðingum, fordómum og kjánalegum spurningum með fyrirframgefnum patentlausnum sem var gotið í andlegri hungursneið hægrimanna kaldastríðsins.

  • „Ég trúi nú samt að V.G. séu líklegastir … Hverjir aðrir?“ spyr Sigurður. Ég get ekki bent á neina aðra. VG hefur margt gott á stefnuskrá, er skikkanlegur flokkur og lítið spilltur. Það er bara ekki nóg. Svona flokkur skipuleggur ekki eða leiðir andóf (á vinnustöðum, stéttarfélögum, nújum baráttusamatökum, á götum úti…) heldur nýtir sér andófsöldu til að fleyta sér „í aðstöðu“ – og þar sveigir hann sig að ríkjandi þjóðfélagsskipan og leikreglum hennar. Greinin mín er meira um grundvöll kratismans en um AGS-málið. Við þurfum öðru vísi flokk.

  • Mér líst vel á að fá sósíalistaflokk á Íslandi. Hann verður að kallast það sem hann er og koma hreint fram. Ágæt grein, vil bæta við að þetta með verkalýðshreyfinguna og tímasetningar á þöggun verkfallsaðgerða hefur átt sér stað á svipuðum tíma í öðrum löndum. Er því ekki sér- íslenskt fyrirbrigði þó sér-aðstæður séu fyrir á öllum sérstökum stöðum.

  • Þórarinn - kannski er það ekki málið að við þurfum betri flokk. Kannski er bara frekar málið að losa sig við flokkana??

  • mm Það væri nú gaman að spjalla við þig yfir kaffibolla þegar þú ert búinn að jafna þig á þessu öllu saman. Það þurfa allir að blása út ..hi hi

  • Grein Þórarins er ágæt, eins og langt og hún nær. Mér finnst að í henni felst vonsvik við stefnu VG. Það var þó ljóst um leið og VG ætlaði að bjóða til Alþingis, að flokkurinn ætlaði að taka þátt í lýðræðisleikhúsinu, sem er ef til vill rétt nafn fyrir það sem okkur er sagt sé “lýðræði”. Ég vil hér með leggja áherslu að lýðræði getur ekki þrífist þar sem einstaklingar geta eignast fjölmiðla í krafti fjármagns og keypt sér almenningsálit, né getur lýðræði þrífist þar sem einstaklingar geta keypt þingmenn í krafti fjármagns. Að stofna sósíalistaflokk í dag er því engin lausn sem slík, ef markmið þess er að bjóða fram til sama leikhúss, þar sem þingmenn venjast góðum launum og sitja með stéttaandstæðingum sínum að snæðingi.

    Auk þess vil ég ítreka það sem ég hef þegar sagt áður: Það er ekki unnt að treysta neinum stjórnmálamanni sem ennþá trúir að múslimar ógni Vesturlöndum og hafi framið fjöldamorðin 11 september eða árásirnar í Madrid og London. Slíkir einstaklingar eru annaðhvort ekki starfi sínum vaxnir eða taka þátt í vísvisandi blekkingum. Það er ekki heldur hægt að treysta þeim stjórnmálamönnum sem hafa þagað um aðild íslenskra ráðherranna Davíðs Oddssonar og Halldórs Ásgrímssonar í stríðsglæpum (þegar þeir samþykktu þann 23.4.1999 á NATO-fundi í Washington að heimila sprengjuárásir á borgaraleg skotmörk).

Skildu eftir skilaboð