Forsíðugrein

Viiiiiinstriiiiii!

vinstri500

Öskjuhlíð, daginn eftir kjördag.

Í kosningunum í fyrradag staðfestu Íslendingar þá aðgerð sem framin var í vetur er þúsundir manna þustu á göturnar og kröfðust þess með mótmælum og beinum aðgerðum að stjórn fáránleikans færi frá. Við tók vinstri stjórn, undir forystu Jóhönnu Sigurðardóttur, sem fól í sér sterk skilaboð um breytt viðmið, breytt grundvallaratriði. Þeirri stjórn hefur nú verið veitt fullt umboð til að takast á við vandann framundan. Víst er það ekki öfundsvert hlutskipti – en niðurstöður kosninganna eru afgerandi, og atburðir vetrarins mega taka af allan vafa um túlkun: vinstri flokkunum er treyst, auk Borgarahreyfingarinnar – Sjálfstæðisflokknum og Framsóknarflokknum ekki.

Erlendir fjölmiðlar eiga auðvelt með að greina frá niðurstöðum kosninganna. Íslensk dagblöð eru of nákomin hagsmunum og hugsjónum eins flokks, Sjálfstæðisflokksins, til að setja stórfréttina í forsíðufyrirsögn.

Fyrirsagnir erlendra stórblaða af kosningunum á Íslandi eru svohljóðandi:

Telegraph: Iceland elects new Left-wing government
Forbes: Left wins power in crisis-hit Iceland, eyes EU
Guardian: Icelandic caretaker government wins general election
NYTimes: At the Polls, Icelanders Punish Conservatives
United Press International: Icelanders support leftist government
Times: Center left wins Iceland election
Euronews: Iceland steers towards the EU
On Top Magazine: First Gay Prime Minister Retains Power in Iceland
Wall Street Journal: Election Will Move Iceland to the Left
Press TV: Social Democrat leader wins Iceland’s poll
Reuters: Left set to win election in crisis-hit Iceland
Euronews: Icelandic center-left wins historic election
BBC News: Centre-left wins Iceland election
Aljazeera: Leftists declare victory in Iceland
AFP: Leftists seal resounding victory in Iceland vote

Íslensku prentblöðin, undir ritstjórn Sjálfstæðisflokksins, leggja aðrar áherslur. Enn sem fyrr má segja að þau fari beinlínis á mis við stærstu tíðindin:

Morgunblaðið: Óbrúuð gjá í ESB máli
Fréttablaðið: Efnahagsmálin eru brýnustu verkefnin

Í frásögnum vefmiðla blaðann er áberandi áhersla lögð á tap Sjálfstæðisflokksins, frekar en sigur vinstrihreyfinganna. Þær fyrirsagnir mbl.is gegnum kosninganóttina, sem ekki er gefið til kynna að séu tilvitnanir í viðmælendur, eru eftirtaldar:

Rífandi stemmning, Sjálfstæðisflokkur tapar, Endapunkturinn á búsáhaldabyltingunni, Lánsfylgi Samfylkingarinnar, Fréttaskýring: Stærsta vinstrisveiflan, Mikið um útstrikanir, Tölurnar eru áfall og kalla á mikla endurskoðun, Kosið þvert á þjóðarhagsmuni, Davíð eyðilagði landsfundinn, Útstrikanir gefa hugsanlega ranga mynd, Framsókn sigurvegari ásamt Samfylkingu, Tafir á talningu vegna ófærðar í Bíldudal, Mikið um útstrikanir í Suðurkjördæmi, Tími prófkjara liðinn, Vel reyndist að leita ráðherra utan þings, Upphafið að endurreisn flokksins, Kosningarnar vekja athygli, Ekkert ákveðið um fundi, Mikil endurnýjun á þingi … svo heldur þetta eitthvað áfram með viðkomu í „Sextándi þingmaðurinn gleðitíðindi næturinnar“, það er sextándi þingmaður Sjálfstæðisflokks.

Úrslitin ekki sigur fyrir ESB-sinna, segir í fyrirsögn á miðlinum, án þess að enn hafi sést sá augljósi skilningur sem henni er ætlað að skrumskæla, að það blasir við að úrslitin fela í sér sigur fyrir ESB-sinna, hvað þá að birst hafi, málamiðlanalaust sem frétt blaðsins, hin augljósu stórtíðindi: Úrslitin sigur sósíalista.

Þetta fjölmiðlaástand er annars svo deprimerandi að við látum staðar numið hér. Ríkisstjórnin mun eiga við ramman reip að draga, í fjölmiðlum Sjálfstæðisflokksins, bæði þeim sem hlotið hefur hundruði milljóna í beina styrki frá ríkinu á þessum vetri, það er Morgunblaðinu, og hinum sem er ritstýrt af fyrrverandi formanni Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra.


Fyrirsagnir Vísis og mbl.is

Því má halda fram að þar sem blöðin koma ekki út á sunnudegi hefði fréttin hvort eð er verið orðin gömul. Dagblöð segja óhjákvæmilega alltaf gamlar fréttir, í samanburði við vefmiðla – óbrúuð gjá í ESB máli er ekki ný frétt. Með vali á forsíðuefni gefa blöðin fyrst og fremst skilaboð um mikilvægi hluta, auk þess sem þau eiga þannig veigamikinn þátt í söguskráningu.
Vefmiðlar blaðanna, hins vegar, sem hefðu samkvæmt þessu átt að hlaupa á stórfréttina um leið og hún kom í hús, gerðu það ekki. Stórfréttin sést hvergi frá því fyrstu tölur koma í hús þar til talningu lýkur, aðeins smáatriðin og aukaatriðin. Hér eru fyrirsagnir þeirra frétta sem birst höfðu á mbl.is í gærkvöldi. Við breiðletrum þær sem er ekki gefið til kynna að séu tilvitnanir, og má því gera ráð fyrir að séu blaðsins, eða blaðið taki í öllu falli undir:

Rífandi stemmning
Sjálfstæðisflokkur tapar
Jóhanna: Get brosað breitt ef þetta er niðurstaðan
Guðjón Arnar: Vænti þess að bæti í
Fimmti maðurinn í augsýn
Sigmundur Davíð: Hefði þegið viku í viðbót
Bjarni: Rétt að byrja vinnuna
Rekin inn á þing
Árni Páll: Ákall á aðildarumsókn um Evrópusambandið
Endapunkturinn á búsáhaldabyltingunni
Illugi: Verra en ég vænti
Steingrímur: Söguleg sveifla til vinstri
Björn Valur: Rær á ný mið
Lánsfylgi Samfylkingarinnar
Bjarni: Uppgjör við fortíðina
Fréttaskýring: Stærsta vinstrisveiflan – vissulega í áttina, en með því að gefa orðalaginu sveifla svona hátt undir höfði er sú túlkun gefin að hér sé um tímabundna uppákomu að ræða. Miðlarnir nota ekki orðið „hægrisveifla“ á þennan hátt. Ekkert í meðferð fréttarinnar gaf til kynna að vægi hennar væri meira en „Tafir á talningu vegna ófærðar í Bíldudal,“ – hún rann bara áfram með flaumnum.
Ögmundur: Krafa um áframhaldandi stjórnarsamstarf
Nóttin er ung segir Kolbrún Halldórs
Mikið um útstrikanir
Katrín: Líst ekki illa á
Birgir: Vona að þetta endi réttu megin við strikið
Arnbjörg: Ósanngjörn umfjöllun
Jóhanna: Okkar tími er kominn
Tölurnar eru áfall og kalla á mikla endurskoðun
Bjarni: Munum endurvinna stuðninginn
„Áður verið í þessari stöðu“
Kosið þvert á þjóðarhagsmuni
Össur: Björguðu sér fyrir horn
Davíð eyðilagði landsfundinn
Útstrikanir gefa hugsanlega ranga mynd
Framsókn sigurvegari ásamt Samfylkingu???
Gunnar Bragi ánægður með gengi Framsóknarflokksins
Unnur Brá. Sterkasta vígið
Siv: Erum tilbúin til að axla ábyrgð
Tafir á talningu vegna ófærðar í Bíldudal
Björgvin: Óttast ekki útstrikanir
Mikið um útstrikanir í Suðurkjördæmi
Þorgerður: Tvö til hægri og eitt til vinstri
Tími prófkjara liðinn
Sigmundur: Styrkjamálið of áberandi
Vel reyndist að leita ráðherra utan þings
Ólína: Kvótakerfið og ESB brenna á fólki
Upphafið að endurreisn flokksins
ESB verði ekki ásteytingarsteinn
Kosningarnar vekja athygli
Ekkert ákveðið um fundi
Guðbjartur: Bjartsýnn á áframhaldandi samstarf
(Grímsey og Akureyri sameinast)
(Óljóst með samþykkt ESB-laga)
(Vill vakta hafið með ratsjám)
Tölur vantar úr 2 kjördæmum
(Potturinn fimmfaldur á laugardag)
Enn vantar tölur úr NA
(Hálkublettir á Vesturlandi)
Mikil endurnýjun á þingi
Friður og spekt á kosninganótt
27 nýir þingmenn
Jónína inn í stað Lúðvíks
„Réðist á síðustu stundu“
Aldrei fleiri konur á þingi
Ráðherra féll af þingi
Gaman að taka þetta á endasprettinum
Nýtt Alþingi Íslendinga
Ásmundur yngstur þingmanna
Segir skynsemina hafa sigrað
Ræðast óformlega við í dag
(Vopnað rán í Mávanesi)
Þarf skýrar línur um ESB aðild
Framtíð okkar ræðst á næstu dögum
Sextándi þingmaðurinn gleðitíðindi næturinnar
Óformlegar stjórnarmyndunarviðræður í dag
VG verður að gefa eftir í Evrópumálum
Siv vill skoða ESB-stjórnarsamstarf
Þráinn íhugar heiðurslaun
Þingað um nýja stjórn
(Björgólfur meðal ríkra)
Stranda ekki á Evrópumálum
(Ræningja enn leitað)
Úrslitin persónuleg vonbrigði
Eins og hvert annað starf
Lýðræðishreyfingin líklega fram á ný
Úrslitin ekki sigur fyrir ESB-sinna
Aftur á sjó
Heillandi starfsvettvangur
Í engri stöðu til að setja VG kosti
Þjóðin vill fara í aðildarviðræður
(Stúlkan hífð með þyrlu)
Eins og spírall niður á við
Útstrikanir í NV-kjördæmi breyta engu
(Línur lagðar vegna svínaflensu)
Evrópumálin erfiðust
Elítan vill í ESB
Getum valið úr öðrum kostum
Árni Johnsen niður um þingsæti
(Á syllu í þrjá tíma)

Hér koma fyrirsagnir Vísis.is, frá því fyrstu tölur bárust:

Ögmundur á leið út samkvæmt fyrstu tölum
Niðurstaðan í samræmi við kannanir
Ákall um aðild að Evrópusambandinu
Á von á áframhaldandi stjórnarmynstri
Steingrímur er fyrsti þingmaður í Norðausturkjördæmi
Jóhanna: Ég er hrærð, stolt og auðmjúk
Kosningaskýring: Samningsstaða VG hefur versnað
Þarf að nást samstaða um Evrópusambandið
Kosningasjónvarpið í beinni á Vísi
VG stærst í Norðaustur kjördæmi
Kosningaskýring: ESB sinnuð framboð sigurvegararnir
Mikið um útstrikanir í Reykjavík
Ögmundur Jónasson: Sallarólegur þrátt fyrir að vera ekki inni
Ríkisstjórnin heldur velli
Á von á að viðræður hefjist á morgun
Munum sækja fylgið til baka
Ögmundur nær kjöri samkvæmt nýjustu tölum
Samfylkingin að stíga á sviðið sem kjölfestuflokkur
Kosningaskýring: Samfylkingin komin í lykilstöðu
Þorgerður Katrín: Þetta er grautfúlt
Davíð eyðilagði landsfund Sjálfstæðisflokksins
Kemur vel til greina að hafa utanþingsráðherra áfram
Sigmundur hlakkar til að taka til starfa
Þingflokksformaður ekki inn á þingi
Þau eru að missa vinnuna
Óvíst um áhrif af umræðu um Drekasvæðið og Icelandair
Sigurður Kári dottinn út af þingi
Lokatölur úr Reykjavík suður
27 nýir þingmenn
Lokatölur Rn - Sigurður Kári og Ásta Möller atvinnulaus
Fimm fjölmiðlamenn í hópi nýrra þingmanna Samfylkingarinnar
Gríðarlegar sviptingar hjá þingmönnum
Ekki stærsti sigur Samfylkingarinnar
Samfylkingin hagnast á uppbótarþingsætum
Lokatölur í Suðurkjördæmi – Borgarahreyfingin fær mann kjörinn
Lúðvík Geirsson: Ég er Samúel Örn þessara oksninga
Lúðvík úti – Jón Gunarsson aftur inn
VG með þrjá þingmenn í NV kjördæmi
Lúðvík Geirsson er inni
Samstarf vinstri flokkanna ekki sjálfgefið
Lokatölur úr Kraganum – Ögmundur verður þingmaður áfram
Talningu lokið
Lokatölur kosninga: Sjálfstæðisflokkurinn tapar 9 þingmönnum
„Ég fer ósár frá þessu“
„Fín sárabót í restina“
Listi yfir þá sem taka sæti á Alþingi – 27 nýir þingmenn
Segir fjölmiðla hafa lagt flokkinn nánast í einelti
Vissi að fylgi Sjálfstæðisflokksins væri ofmetið í Vestmannaeyjum
Fallnir af þingi
Búsáhaldarbyltingin komin á þing
Framsóknarflokkurinn kominn til höfuðborgarinnar
(Vopnaðir menn réðust inn á heimili eldri hjóna og héldu þeim í gíslingu)
„Þetta er bara upphafið – nú er að sanna sig“
Lýðræðishreyfingin langt frá fjölda meðmælenda
Þúsundir útstrikana í Reykjavík – niðurstaða eftir helgi
Efar að ummæli um olíuleit hafi kostað sig þingsæti
Hefur ekki íhugað afsögn
Telur að álver rísi í Helguvík
Andvíg inngöngu í ESB en vill tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu
Fundi lokið á Hjarðarhaganum – ræddu Evrópumálin
Björgvin heldur efsta sætinu – 8,5% strikuðu hann út
Segir VG hafa unnið stærsta sigurinn
(Nítján ára stúlka í sjálfheldu í Vífilsfelli)
(Ræningjanna á Arnarnesi enn leitað – vísbendingar borist)
Árni Johnsen fellur líklega niður um sæti
Guðni óttast vinstristjórn
  • The Australian, blaðið hans Rupert Murdoch, skrifar: “Icelandic voters freeze out conservatives” og kemst þannig næst túlkun mbl.is “Sjálfstæðisflokkur tapar”. Skemmtilegt annars að “on top magazine” skuli teljast til stórblaða.

  • :-) Listinn er tekinn beint af Google news. HMH.

  • Frábær úttekt!

    Á Spáni voru fyrirsagnirnar líka á þá leið að Íslendingar hefðu kosið sér vinstri stjórn.

    kv. óttar

  • Ef að vinstristjórn klúðrast útaf ESB þá verður hér önnur bylting, strax

    Það er hægt að greiða atkvæði á þingi um aðildaviðræður, þá er gott að hafa gagnrýnni flokka með í leiðangrinum um ESB en Samfylkingu allsráðandi. En mikilvægustu skilaboðin voru vinstri stjórn, félagshyggja, Árni Páll og Björgvin voru ekki að hlusta…

  • Það sýnir bara hroka Samfylkingarinnar gagnvart lýðnum, hægrihneigð hennar og sjálfhverfu þingmanna hennar að hún skuli halda sig hafa rétt til þess að mynda hérna eitthvað annað en vinstri stjórn. Þeir hafa bara nákvæmlega ekkert umboð til þess.

    Ef þeir gera það samt verður þeim enn á ný gert skýrt hvaðan þeir þiggja vald sitt og það tekið af þeim, í annarri byltingu.

  • 50 prósent af heimilum eiga ekkert nema skuldir, það er stóra vandamálið. Skuldaklafann á síðan að binda aftan á fólk svo lengi sem það lifir, skuldir sem hækka hraðar en verðmæti eignanna. Evrópusamband er hrópað, getur einhver sagt mér afhverju? Hverju á það að bjarga?

  • ESB bjargar ekki miklu varðandi heimilin. Ég held að vinstristjórn mun horfast í augu við að þurfa að bjarga einhverjum fyrirtækjum en leyfa öðrum að falla. Þá mun hún einnig þurfa að bjarga heimilunum með annari lausn en að lengja í ólinni. Það getur hún gert núna örugglega með þingmeirihluta. Hún þarf að hlusta á tillögur Hagsmunasamtaka heimilanna og tillögur Borgarahreyfingarinnar.

    Þetta helst líka í hendur með rannsókn á þeim glæpum sem hér voru framdir, því eignafrysting og eignaupptaka geta, til lengri tíma litið, bjargað ýmsu.

    Mikilvægasta málið er samt sem áður IMF og þeirra verkferli. Við verðum að geta gert það sem flestir aðrir eru að gera, í stað þess að skera allt niður til helvítis, þá þurfum við að styrkja okkar kerfi. Til að gera það verðum við að horfast í augu við hvaða skuldir við getum borgað og hverjar ekki. Við eigum ekki að semja um skuldir sem við getum ekki borgað.

    Þarna tengist ESB málunum aftur, því ef við borgum ekki allt, gæti Brussel verið fúlt og hafnað okkur. Þess vegna er mikilvægt að við hugsum um auðlindirnar og langtíma hag fólksins fyrst, svo ESB. Langtíma hagur er ekki endilega ESB, og alls ekki bara ESB, það er margt sem skiptir máli, eins og að reisa efnahagslífið á stoðum réttlætis og jafnrétti en ekki spillingu og frændhygli sem leiðir til algjörs siðrofs. Þá er mikilvægt að vernda okkar náttúru í stað þess að undirbjóða mest arðrændu ríki veraldar í nauðungarsölu sinni á sjálfum sér og kalla að hér á landi er ódýrasta gleðikona í heimi: náttúra Íslands, sem skiptir engan máli því engin hefur séð hana!

    Við þurfum því að gæta að ýmsu og ESB er langt í frá eina spurningamerkið sem við blasir. Það sem skiptir þó máli er að í leiðangurinn fari þeir, sem að mestu leyti, hugsa um hag almennings, ekki klíka, og taka langtímaákvarðanir með langtímamarkmiðum, á sem lýðræðislegastan hátt.

  • Mér finnst þetta ekki merkileg tíðindi. Frekar vil ég að fjölmiðlarnir verði í örgustu andstöðu við ríkisstjórnina, sama hvaða flokkar skipa hana, heldur en að þeir verði henni meðvirkir.

  • Undarleg viðbrögð vefritsins NEI.

    Vinstristjórn svokölluð mun, eftir því sem við vitum, fara að fyrirskipunum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins þrátt fyrir aðvaranir sérfræðinga, þ.e. láta þjóðina greiða fyrir ólýðræðislegar ákvarðarnir fyrri stjórna um að gefa einkaaðilum bankana. Vinstristjórnin svokölluð mun viðhalda aðild Íslands að hernámi Afganistans (sem er kölluð ‘friðargæsla’) og aðild Íslands að stærstu hryðjuverkasamtökum heimsins: North Atlantic Terrorist Organisation. Vinstristjórnin mun virða einkaeigu á stærstu fjölmiðlum, stærstu fyrirtækjum landsmanna og pukrið sem þeim fylgir. Vinstristjórnin mun leyna frá þjóðinni upplýsingar um þátttöku fyrrverandi ráðherra í stríðsglæpum. Vinstristjórnin mun blekkja þjóðina um eðli Evrópusambandsins, einkum þróun lögregluríkis á vegum Sambandsins.

    Ég mun éta hattinn minn, ef mér skjátlast.

    Að menn skuli dirfast kalla þetta “vinstristjórn”!

  • Það er mikilvægt fyrir launafólk og fólks utan vinnumarkaðarins að vinstristjórnin sé varin og því verðum við að gera þingmönnum okkar ljóst sögulegt mikilvægi þess að glutra ekki sigrinum á lokasprettinum. Þó stjórnin sé sósíaldemókratísk stjórn tveggja sósíaldemókratískra flokka og ekki sósíalísk að þá sjá hin vinnandi stétt þessa lands kosningarnar sem sigur sem hún getur notað til að vinna að hagsmunum sínum. Það er mikilvægt að við vinnum að því að svo verði!

Skildu eftir skilaboð