Eins og fjölmiðlar greindu frá í gær rústaði íbúi á Álftanesi hús sitt, með þeim orðum að engu skipti hvort hann yrði gjaldþrota fyrir 60 milljónir eða 120 milljónir.
Þór Saari, þingmaður Borgarahreyfingarinnar, fór á vettvang til að sækja brak úr húsarústunum, sem hann sagðist myndu færa Jóhönnu Sigurðardóttur að gjöf.
Húsið var raunar ekki lengur eign mannsins, enda lagði fréttastofa RÚV áherslu á að þarna hefði verið skemmdarverk á ferð, og ræddi aðeins við „fulltrúa nýrra eigenda“ en húsið var boðið upp af viðskiptabanka mannsins á dögunum, vegna vangoldinna lána. Þessi pólitísk-efnahagslega andófsaðgerð var þannig spiluð niður í ríkisfjölmiðlunum, sem skemmdarverk, og ekki rætt við þann sem verknaðinn framdi. Aðrir fjölmiðlar komu á framfæri undrun frekar en skilningi, eins og þeim er vant.
Atburðurinn var vel skipulagður, og hafði sá sem missti húsið bæði flutt gröfu á lóðina til að fremja sjálfan verknaðinn, og ráðið verktakafyrirtæki í kvikmyndagerð til að mynda atburðinn.
Dæmi þekkjast á Íslandi eru um skemmdir á húseignum annarra, í einhvers konar hefndarskyni við húseiganda. Engin þekkt fordæmi eru hins vegar um merkjasendingu með þessum hætti, það er að maður rústi eigin íbúðarhúsi, í pólitísku skyni. Táknrænar sjálfsárásir verið fátíðar á landinu, eða þeim í það minnsta ekki veitt athygli af fjölmiðlum, en einnig er sjaldgæft að pólitísk skilaboð séu flutt með svo verulegri efnislegri fórn.
Frjálsi fjárfestingarbankinn er frjáls. Lifi frjálshyggjan, Hannes Hólmsteinn, Davíð Oddsson, Bjarni Ben, Sigurður Kári og öll stuttbuxnadeild SjálfstæðisFLokksins.
Aðalatriðið í þessu máli er að maðurinn axli ábyrgð á gjörðum sínum! Hann er búinn að valda samfélaginu tjóni upp á tugi milljóna!
Húsinu var stolið af manninum og hann tók taktík hinnar sviðnu jarðar og valdi frekar að eyðileggja verðmætin en láta bankann taka þau til notkunar gegn almenningi í þessu landi. Maðurinn á stuðning okkar skilinn og mun þurfa á honum þegar fjármagnið mun nota ríkisvaldið geng honum.
Hörður Stefánsson: En þeir sem ollu hruninu ollu ekki manninum tjóni. Eða hvað? Er ekki einhver ruglingur á réttlætiskenndinni þarna? Það verður fróðlegt að fá viðbrögð Jóhönnu við spítnabrakinu!
Skrifaði Færeyingur þessa grein ?
Frábær frétt og annar vinkill en mataður er beint frá lögheimtunum.
Hið sanna hefur ekki komið fram, húsið var ekki málað í FRAM litunum eins og eigandinn bað um - því brást hann við á þennan hátt….! Þannig munu SPUNNAmeistarar SAMSPILLINGARINNAR útskýra þennan snildar gjörning..:). Fyrir ykkur hinn sem ætlið að kveikja í húsunum ykkar síðar í haust þá mæli ég með OLÍS bensínunni, það brennur hraðar - skilst mér…!
kv. Heilbrigð skynsemi
Tekið ofan!
Hörður Stefánsson - þessi maður hefur engu tjóni valdið þjóðinni, það hafa hinsvegar útrásarskíthælar og talsmenn þeirra gert…legg til að almenningur sjálfskipi handtökusveit til að ná í þessa karla, má loka þá inni í einhverri kartöflugeymnslunni, lögreglan ætlar ekkert að gera varðandi útrásar aumingjana sem hafa flestir hlaupist á brott, en voru fljótir á staðinn þarna þegar verið var að valta yfir (eigur) frjálsa skítabankans
Styð gjörninginn af heilum hug - reiðin verður að fá að bíta þá sem sköpuðu hana. Fyrr en það gerist átta men sig ekki á samhengi hlutanna. Fulltrúar valdsins voru snöggir til að kalla gerandann til sín í viðtal - undarlegt? Betur hefði verið að þeir hefðu brugðist svo skjótt við þegar hrunið átti sér stað.
Þorgrímur Gestsson og Steinar Sörensson það er augljóst mál að maðurinn olli hruninu sjálfur með kaupum á þessu risastóra,húsi sem var örugglega með flatskjá í hverju herbergi, heitan pott á bakvið hús og upphækkaðan jeppa fyrir framan.
Og verið ekki að tala illa um útrásar-víkingana, þessar elskur sem hafa verið pungsveittir við að flytja út “tæra snilld” mörlandans.
En að öllu gamni slepptu þá er ég 100% sammála ykkur báðum.
Er ekki sorglegast að sjá það að fjármagnið ræður áfram öllu. Þannig er umræðan. Það að einhver sem missir heimili sitt sé tilbúinn til að láta mótmæli í ljós með sterkum og afgerandi hætti ætti í raun að fá miklu meiri umræðu um óréttlætið sem við hinn almenni borgari býr við. En í staðinn er fussað og sveiað alls staðar fyrir fjármagnið. Erum við ennþá sömu undirlægjurnar og við vorum öldum saman?
Þarna er sorgleg saga manns sem kominn var í þrot löngu fyrir bankahrunið . Húsið var selt á nauðungaruppboði í Nóvember 2008 . Þó nokkur aðdragandi er að slíkri sölu og því ljóst að blessaður maðurinn hefur verið kominn í veruleg vanskil strax 2007 þegar allt stóð í blóma og óskhyggjan ein dugði stundum en ekki altaf . Hann ræðst síðan á egnir annara og veldur á þeim tjóni . Það hefði verið virðingaverðara ef hann hefði fræmkvæmt þennann gjörning fyrir Nóvember 2008 þegar húsið var skráð á hann og því formlega hans eign . Að lokum er aðkoma Þórs að málinu sorgleg .
Sammála Tryggva, Þessi maður minnir á útrásarvíkingana, skuldsetti sig óhóflega í góðærinu, er nú búinn að drulla upp á bak og skilur bara eftir sig rústirnar.
sorglegt.
Kreppan var skollin á löngu fyrir okt 2008
… og óbilgirni og græðgi banka og innheimtulögmanna á sér miklu lengri sögu þó margir séu fyrst að uppgötva hana núna. Það hefur margur maður verið illa leikinn af ótrúlegri græðgi innheimtulögmannanna og frelsi þeirra til að setja á skuldarann hvaða innheimtureikning sem honum dettur í hug.
Ljóst er að húsnæðislánið var erlent og því gegnis-háð, og að möguleikar mannsins til að bjarga sínum málum í vandræðum helgast af umhverfi kreppunnar og bankakerfi hrunsins. - Þ.e. hann hafði enga möguleika til að ná húsinu til baka ef Frjálsi Fjarfestingabankinn vildi ekki semja innan ramma þess mögulega.
hefur engum dottið í hug að gera þetta sama við eigur þeirra sem fóru svona með ÍSLAND !?
Þær eru allar sem nýjar engin undir að verðgildi 100 millj.
Þetta mál snýst einungis um að maður reisti sér hurðarás um öxl og tók að sér skuldbyndingar sem hann gat ekki staðið undir á þeim tíma sem það var hvað auðveldast á síðustu árum . Hrun bankanna og það sem á eftir fylgdi hefur ekkert með gjaldþrot þessa manns að gera . AÐ halda því fram er að fara rangt með staðreyndir. Þessi maður á meira sameiginlegt með Hannesi Smárasyni og öðrum útrásarvíkingum en þeim fjölskyldum sem eru að missa allt sitt í dag . Höfðu allt sit á hreinu og stóðu í skilum síðastliðið haust . Hann bítur síðan höfuðið af skömminni með að rústa eign sem hann á ekkert í lengur .
Popúlismi dauðans.
Mogginn tekur loks athyglisvert viðtal við „eigandann“ og gerandann hér: http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/06/18/bidur_nagranna_afsokunar/
Ótrúlegt hvað fólki finnst sjálfsagt að eyðileggja hluti til að mótmæla, um að gera að bæta svolitlu við það fjárhagstap sem þegar hefur orðið hjá öllum. Klappið fyrir liðinu sem er að eyðileggja eigur annarra, um að gera. Finnst þessi búsáhaldabylting og það lið sem þar var bara grín. Ekki gert annað en að láta kjósa yfir okkur óstjórn sem ekkert getur, kosta fleiri milljónir í biðlaun og bull! Helvítis fífl allt upp til hópa! Hefði verið nær að ná í útrásarvíkingana sem sjálfur forsetinn dæmdi heiðursorðu og láta þá borga aftur það sem þeir stálu af okkur. Komu svo saklausir í Silfur Egils og Kastljós og hist og pist og lýstu því hvernig stjórnin hefði eyðilagt góðærið fyrir þeim… já heyriði, frétti líka að það væri sko engin spilling á Íslandi! Fífl og fávitar allt saman
Þeir sem segja að þessi maður hafi reist sér hurðarás um öxl og blah blah, þá kom það fram að maðurinn er smiður sem byggði húsið sitt sjálfur, ég hef séð húsið það er timburhús, einingahús, sem talin eru mjög hagkvæm í byggingu.
Hann var verktaki í húsasmíði og fékk ekki greitt hjá þremur aðilum sem gerði það að verkum að hann lenti í vandræðum með lánið. Þegar svo lánið hækkaði um ríflega 100% vegna gengishruns krónunnar þá vildi Frjálsi Fjárfestingarbankinn ganga að veðinu og fá húsið. Engir samningar í boði þegar lánið var orðið svona stórt.
Alls staðar á vesturlöndum á duglegt fólk, sem getur gert hlutina sjálft, að geta fengið lán á góðum kjörum ÁN VERÐTRYGGINGAR OG ÁN GENGISÁHÆTTU VEGNA ÓNÝTS GJALDMIÐILS. Það þýðir ekkert að vera með sleggjudóma hér, það er ekkert í boði fyrir duglegt fólk annað en OKURLÁN.
Góður maður, kominn tími til að fjármagnsstofnannir hætti að vinna fyrir auðvaldið og fari að vinna fyrir fjöldann.
Helvítis frjálshyggju markaðshyggjupakk ber ábyrgð á atburðum seinustu ára.
Hvort er stærri glæpur að rústa efnahag heillar þjóðar eða einu íbúðarhúsi? Ég sé á viðbrögðum löggæslunnar á hvaða máli stjórnvöld eru en trúi ekki að almenningur sé svo heilaþveginn að hann taki undir það með þeim!
Það skiptir engu máli hvað almenningi finnst um neitt hér á landi. Það flokkast bara undir “almannatengsl” hjá stjórnkerfi og fyrirtækjavaldi og er algerlega afstætt og undirorpið því hvað hent er miklum peningum í áróðurinn þá og þá stundina.
Það er orðið mikið þreytandi að heyra stöðugt þessar raddir sem eru svo fullar af eilífri undrun yfir valdníðslunni og kúgun auðvaldsins.
Þetta er eins og ground Hog Day!
Hélduð þið virkilega að við mundum kveða niður kapítalismann á Íslandi með því að berja í nokkrar pönnur og veifa appelsínu gulum borðum í nokkra daga!?
Ekkert mun breytast fyrr en við göngum á milli bols og höfuðs á öllu stjórnvaldskerfi og auðvaldi.
Af með silkihanskana!
STÉTT GEGN STÉTT!
Nú er komið fram í fréttum að þessi Björn var óheiðarlegur í sínum viðskiptum og hafði 10 miljónir af viðskiptavini sínum á árunum 2006 til 2007 . Ætli það séu kanski fleiri sem hafa farið illa fjárhagslega á viðskiptum við þennann mann ?
Niðurrifsmaður á Álftanesi hafði milljónir af fimm manna fjölskyldu http://www.visir.is/article/20090619/FRETTIR01/112846184
Takk kærlega fyrir að segja „rústa hús“ en ekki „rústa húsi“.
Úpps - þar slitnaði þráðurinn. Maðurinn var þá ekki slík alþýðuhetja. Gjörningurinn er óskiljanlegur, alveg sama hvernig á hann er litið. Ætli bankinn fái húsið ekki bætt hjá tryggingafélagi sínu - sem hækkar svo aftur iðgjöld viðskiptavina þess. Aðgerð mannsins mun engu breyta - nema fyrir hann sjálfan - og er því tilgangslaus með öllu. Hrein sóun.
Þetta er ískyggileg þróun. Við hverju má búast næst, fyrstu íslensku sjálfsmorðsárásinni? En samkvæmt viðurkenndum viðmiðunum og íslenskum verðmætamatsstöðlum er þetta verra en sjálfsmorðsárás því verðmæti og efnisgildi hússins hlýtur að vera margra mannslóifa virði. Ekkert er Íslendingnum jafn sárt og átakanlegt og þegar einhver nafnlaus læðist að nóttu til og rispar bílinn hans.
Viðbrögð netverja við þessari frétt er klassískt dæmi um Lúkasarheilkenni. Skrifa fyrst, spyrja svo. Óvenjulegt að sjá þingmann taka þátt í slíku.
Ég fékk kjánahroll þegar ég sá myndina af þingmanninum.
Lúkasarheilkenni er orðið yfir innlegg margra ykkar hér að ofan.
Tryggvi, Þór Herberts kannski?
Og Guðrún: “Finnst þessi búsáhaldabylting og það lið sem þar var bara grín. Ekki gert annað en að láta kjósa yfir okkur óstjórn sem ekkert getur, kosta fleiri milljónir í biðlaun og bull! Helvítis fífl allt upp til hópa!”
Ég er sammála því að núverandi stjórn er slæm, mest megnis vanvitar, en síst myndi ég vilja hafa sama viðbjóð við völd og hér var! Fólkið sem ætlaði að moka öllu undir teppið, haldandi vikulega upplýsingafundi um ekki rassgat og skýlandi fólkinu í bönkunum í tætaravinnunni.
Svo eru sumir hálfvitar sem tala um “eigur annara” þegar það á í raun við eigur bankanna, bankanna sem felldu þetta þjóðfélag, sem eru núna önnum kafnir við að kaupa upp sumarbústaðalönd á slikk og aðrar fasteignir.
Það getur vel verið að þessi maður sé ekki besta dæmið um hvernig almenningur hefur verið illilega leikinn, en ég skil hann vel, hann byggði húsið, fékk enga málamiðlun, og á svo að horfa upp á aðra fá það á slikk!? Mér finnst líka fínt að þetta gerist í uppahverfi svo þessar græðgishórur sjái smá hvaða hugarfar er í uppsiglingu hér.