Aðsent, Fréttatilkynning

Ríkið – ný bók frá Andspyrnu

Andspyrna hefur gefið út nýja bók.

Þetta er Ríkið eftir mannfræðinginn og anarkistann Harold Barclay. Eftir Barclay liggja bækur eins og People Without Government, an anthropology of anarchy og Culture and Anarchism.

Barclay útskýrir í þessari bók hvernig valdamikill forréttindahópur hefur rænt stjórnun á samfélaginu. Ríkið hefur náð algerum yfirráðum með stjórn sinni á atvinnu, viðskiptum, landbúnaði og auðlindum. Hann rekur sögu ríkisins í samfélögum manna útfrá sjónarhorni mannfræðinnar, rekur hvaða þættir þurfa að vera til staðar í samfélagi til þess að ríki fúnkeri og veltir upp spurningunni hvort að ríkið sé virkilega nauðsynlegt eða hvort skipuleggja ætti samfélagið án þess.

Reyndar kom bókin út fyrir nokkru og hefur verið seld á götum en núna er hún komin í almenna dreifingu þ.e. í verslanir Máls og Menningar við laugaveg og Lækjartorg og í Bóksölu Stúdenta.

Á söluborði Andspyrnu og Food Not Bombs kostar bókin 500 kr en í verslunum um 800 kr. Hún er rúmar 100 bls í litlu broti.


Vefur Andspyrnu
  • [...] Published 24 jún, 2009 þvaður Leave a Comment Kaupa bók, lesa [...]

  • Afskipti ríkis og völd ríkistjórna eru alltof mikil, Hve mikið í hina áttina á að fara veit ég ekki en við erum komin vel yfir línuna. í raun þeir sem stjórna heiminum í dag eru bankamenn.

    “The modern banking system manufactures money out of nothing. The process is perhaps the most astounding piece of sleight of hand that was ever invented.

    Banking was conceived in iniquity and born in sin. Bankers own the Earth. Take it away from them, but leave them the power to create money, and with the flick of the pen they will create enough money to buy it back again…

    Take this great power away from them and all great fortunes like mine will disappear, and they ought to disappear, for then this would be a better and happier world to live in. But if you want to continue to be slaves of the banks and pay the cost of your own slavery, then let bankers continue to create money and control credit’.” ~Sir Josiah Stamp Director, Bank of England 1928-1941 (reputed to be the 2nd richest man in Britain at the time)

Skildu eftir skilaboð