Sigrún Stefánsdóttir, Sjálfstæðiskona og pólitískt skipaður dagskrárstjóri RÚV, fór þess á leit við Bubba Morthens að hann hætti að tjá sig um stjórnmál í útvarpsþætti sínum og spilaði meiri tónlist þess í stað, eftir að hann lét einhver orð falla, vafalaust mörg og kannski hörð, um Davíð Oddsson og Hannes Hólmstein Gissurarson. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hringdi í Hrein Loftsson, eiganda útgáfunnar á bakvið DV, til að gera kröfu um að Hreinn skipti sér af og stöðvaði jafnvel gagnrýninn fréttaflutning blaðsins um Bjarna. Óðinn Jónsson, fréttastjóri RÚV og Sjálfstæðismaður, fjarlægði frétt um Jórunni Frímannsdóttur, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, og viðtal við hana af vef útvarpsins, bæði sjónvarpsfrétt og skrifaða veffrétt um sama mál, þar sem henni þótti hennar bestu hliðar ekki koma fram í fréttinni eins og hún var unnin. Hvorki fréttastjóri né fréttastofa höfðu orð á því að heimildin hefði verið fjarlægð, fyrr en Lára Hanna Einarsdóttir hnaut um það og skrifaði um það á bloggi sínu.
Þetta er á einni viku, hjá þeim fjölmiðlum landsins sem eru ekki undir beinni ritstjórn fyrrverandi formanns Sjálfstæðisflokksins, sem enn virðist þar gegna eins konar hertogastöðu. Þegar blaðamannafélög Norðurlanda álykta sameiginlega um áhyggjur af stöðu tjáningarfrelsis á Íslandi, í kjölfar ráðningar hertogans svarar útgefandi blaðsins, Óskar Magnússon, Sjálfstæðismaður „Var ályktunin samin undir áhrifum frá formanni íslenska blaðamannafélagsins sem sagt var upp störfum á Morgunblaðinu nýlega?“
Lengi lifi miðillinn Nei!
Endilega bjargið geðheilsu minni frá því að fletta Fréttablaðrið af þessari venjulegu rælni, og haldið áfram að skrifa.
Bubbi Morthens er fótosjóppaður “þræll” að reyna að selja plötu og bók. Mannlífsviðtalið við hann afhjúpar hann algjörlega og ég tek undir með síðasta ræðumanni látið þetta kyrrt liggja og skrifið meira.
Óðinn Jónsson Sjálfstæðismaður? Neee.
Hann hefur eiginlega fengið bara frekar óblíðar móttökur af Sjálfstæðismönnum og hann úthrópaður Samfylkingarmaður. Davíð Oddson hefur t.d. hundskammað hann fyrir Samfylkingarfréttamennskuna á RÚV.
Sigrún konan verður að svara þessu sjálf.
Bjarni Ben kvartaði yfir röngum fréttaflutningi, er það virkilega svo slæmt? Mynduði ekki kvarta í sömu sporum?
Gaman að sjá ykkur standa með auðvaldinu!
Kveðjur.