Ranimosk, verksmiðja & verslun, er rekin af Maríu Pétursdóttur myndlistarmanni og Braga Halldórssyni hönnuði.

Við hönnum og framleiðum megnið af því sem við erum með, allt prent, eins og póstkort, skissubækur, ísskápssegla, lyklakippur og boli. Auk þess flytjum við inn ýmsa (vonandi) skrítna og skemmtilega hluti.

Við höfum það að markmiði að hafa eins gaman af þessu og mögulegt er og trúum því að ef það er ofsalega gaman hjá okkur gæti öðrum fundist þetta gaman einnig.

Því bjóðum við ykkur velkomin með gleði í hjarta og brosi á vör :)

Við erum að Laugavegi 20, síminn er 551 33 44. Opið er 12 til 6 vika daga og 12 til 4 á laugardögum.

Stundum er þó opið oftar og lengur ef sá gállinn er á okkur, veður gott og stemmning í bænum.

Póstfang okkar er: ranimosk(at)this.is

Við erum einnig á Myspace:
http://myspace.com/ranimosk3