Nýjar bækur með skissum frá kaffihúsum

 

 

MOKKA MENNING

Myndirnar í þessari bók voru flestar gerðar á kaffihúsinu Mokka, skólavörðustíg, og voru þar til sýnis í nóv-des 2004, en einnig gefur að líta þær teikningar sem voru aftaná síðum innrömmuðu myndanna, alls 93 myndir.

Myndirnar eru gerðar á tímabilinu 2000-2004.
Þær eru unnar með ýmsum efnum, en kaffið sjálft er iðulega notað og gefur það hinn ósvikna Mokka blæ.
Sjá umfjöllun á Kistunni.

Tómas Ponzi, Mokka menning (Reykjavík, 2005). 93 myndir, 101 blaðsíða í fullum litum. Verð: 2500 kr
ISBN 9979-9721-0-6


 

MOKKA  2005

Áframhald af bókinni MOKKA MENNING; teikningar gerðar á Mokka á tímabilinu mars 2005 - mars 2006. Hér gefur að líta marga af fastagestum mokka við kaffidrykkju og spjall.

Myndirnar eru unnar með kaffi, vaxlitum, bleki, tússpenna kúlupenna, japönskum pensilpenna, pennastöng, og einnig var notaður fjöðurstafur og sortulyngsblek við gerð nokkurra myndanna.
Sjá umfjöllun á Kistunni.

Tómas Ponzi, Mokka 2005 (Reykjavík, 2006). 93 mydir, 101 blaðsíða í fullum litum. Verð: 2500 kr
ISBN 9979-9721-2-2

 

Bækurnar má panta með því að senda póst á tap@this.is eða í síma 6990847

©2006, Tómas Atli Ponzi