_mg_3524Venjulegur borgari.

Ég er umbyltingarsinni, verðtryggingarbani og risaeðluveiðimaður í rómantískum skilningi. En ég er fyrst og fremst sonur elskandi Guðs, andleg og líkamleg vera með sál.

Hvert stefnum við ?

Ég trúi því að á tímum erfiðleika og óvissu sé ekkert mikilvægara en skýr framtíðarsýn í efnahagsmálum. Von og sameiginleg framtíð okkar er að veði. Við getum ekki verið klofin mikið lengur í Evrópumálum. Tími stefnutöku er kominn. Við stöndum við vissar krossgötur og stundum upplifi ég þetta sem örvæntingarfullan tíma en samt ótrúlega spennandi þar sem við getum öll komið að því að móta framtíð þessa lands með virkri samfélagslegri þáttöku, umræðu og stefnumótun. Það er nauðsynlegt fyrir þroska lýðræðisins að við sofnum ekki fyrir framan fjölmiðlamötun og kokgleipum framtíð sem aðrir hafa mótað. Framtíðin er okkar. Það er okkar að móta hana.

Við erum öll tengdari en við viljum viðurkenna. Hagfræðilega erum við tengdari en við viljum viðurkenna. Ójöfnuður bitnar á öllum. Stríð hefur áhrif á alla heimsbyggðina hagfræðilega og við finnum nú fyrir því áþreifanlega. Íslendingar eiga að afþakka þáttöku í óttabandalögum og viðskiptablokkum sem kúga þriðja heiminn.

Ég trúi því að ég geti og ég hafi stuðlað að jákvæðum breytingum á Íslandi með þáttöku minni í stjórnmálum, mótmælum, fundarhöldum og samfélagslegri þjónustu. Ég trúi því að það sama geti átt við um þig.  Ég vil nota tækifærið til að þakka öllum þeim sem standa upp og krefjast breytinga í orði og verki.

Það eru mikilvægir tímar framundan á Íslandi. Þáttaka þín og mín er ómetanlega mikilvæg. Ég hvet þig til samfélagslegrar virkni. Tími frelsis, friðar og raunverulegra verðmæta er kominn.

Á þessum vef mun ég leitast við að leggja drög að nýju fjármálakerfi sem hefur samfélagslega ábyrgð að leiðarljósi. Kerfi sem er ekki dauðadæmt til að falla saman undan skuldsetningu á 30 ára fresti.

Við stöndum frammi fyrir því að fjármálakerfi okkar er hrunið og allir þeir sem skoða málið með opnum augum, sjá miklar og jafnvel óyfirstíganlegar brotalamir í þessu kerfi.

Við erum komin í þá stöðu að vera undi þumal auðvalds sem við ættum að ráða yfir sjálf sem sjálfstæð þjóð. Við höfum alið í landi okkar flokk sem vill í raun afsala okkar stæstu auðlind til evrópu. Og gera okkur að nýlendu í Evrópska heimsveldinu. Þessi hugsun og sýn er algjörlega lamandi fyrir það raunverulega vald sem er í okkar hendi. Ég vil ekki nota niðrandi eða svertandi orð um þá sem hafa aðhyllst þessar skoðanir en ég er oft sár og svektur yfir hversu langt þessi hugsun er kominn meðal þjóðarinnar. Þessar tilfiningar hafa kallað fram skrif og þorsta eftir fróðleik sem gæti vísað okkur veginn inn í framtíðina.

ESB,  evran eða annar gjaldmiðill, sem er ekki gefinn út af okkur sjálfum er algjörlega fjarstæðukend þvæla að mínu mati. Og ég mun ekki eyða tíma mínum eða þínum í að leggja þann veg til afsals fullveldis sem felst í því að ganga undir þetta kerfi. Það verður vonandi okkar sameiginlega markmið að finna leiðir undan því.