Áherslumál
Endurreisn.
Að líf manneskjunnar sé upp hafið og andleg og líkamleg heilsa sé metin ofar öllum öðrum verðmætum. Og að við séum öll nátengdari en við viljum vera láta. Tími til að vakna og meira.
Frábær vakning um neyslusamfélagið.
Að móta framtíðarsýn peningamálastefnu Íslands. Og bera fram klettföst rök fyrir þeirri stefnu, sem við getum sameinast um. Hvað er að gerast í mintkerfum veraldar.
Af þessu verðum við að læra. Tímasprengjan.
Lýðræðislegar umbætur og endurskoðun, stjórnarskrár Íslands og kosingalöggjöf. Að fresta lýðræðisumbótum er glapræði. Ég er fylgjandi stjórnlagaþingi. Erum við að glata frelsinu ?
Þingmenn verða að fá að koma með frumvörp fram fyrir þing frá borgurum sem vilja laga lögin.
Almenn mannréttindi á Íslandi séu virt, ábyrg hagstjórn og útlánastefna. Að útrýma óðaverðbólgu með ábyrgri hagstjórn og stuðningi við aðrar þjóðir. Ásamt því að leggja grunninn að framtíðar gjaldmiðla fyrirkomulagi á Íslandi fyrir utan Evrópusambandið. Stuðla að réttum hlutföllum í hagkerfinu (samfélaginu), hvort sem það eru hlutföll milli yfirbyggingar hagkerfis og grunnatvinnuvega eða hlutföll milli sprota og smáiðnaðar og stærri framleiðslu. Eða valdahlutföllum milli lántakenda og lánveitenda. Eða kvenna og karla. Stuðla að nýliðun og endurnýjun hagkerfis í átt að sjálfbærri þróun. Orku á að nýta sem best hér á landi og skila okkur sem mestum arði, tekið tillit til umhverfisáhrifa.
Kvóta á að færa aftur í einhverju magni til smábáta strax og koma til móts við tilskipan mannréttindadómstólsinns í Haag möglunnarlaust.
Koma í veg fyrir að bankar fái að rísa aftur til yfirstærðar og drottnunnar yfir samfélaginu í skjóli verðtryggingar og okurvaxta og duldu eignarhaldi, sjálfum sér og borgurum þessa lands til tjóns. Gegnsægi er nauðsynlegt.
Fjárfestingarstefnu lífeyrissjóða verður að endurskoða og lífeyriskerfið í heild sinni fyrr eða síðar.
Stefnuyfirlýsing VG er eins og skrifuð úr hjarta mér og legg ég glaður krafta mína við stefnu þeirra auk minna áherslumála. Stefna VG
Hversvegna sjálfbær þróun ? Og hversvegna kjölfestir peningar en ekki evra.
Hér er ástæðan fyrir því af hverju ég vil ekki Evrópusambandið og óttabandalög.
Peningakerfi heimsinns afhjúpað.
“The ideal tyranny is that which is ignorantly self-administered by its victims. The most perfect slaves are, therefore, those which blissfully and unawaredly enslave themselves.”
“A truth’s initial commotion is directly proportional to how deeply the lie was believed. It wasn’t the world being round that agitated people, but that the world wasn’t flat.When a well-packaged web of lies has been sold gradually to the masses over generations, the truth will seem utterly preposterous and its speaker a raving lunatic”
Dresden James
Stefnum á grænt frelsi opinberlega og með festu.

