Fyrir atvinnulausa í ástandinu.

Mundu að þú ert ekki vinnan þín, þú ert ómetanlega mikilvægur hlekkur í samfélaginu og engan veginn einhverskonar byrði. Þú ert dýrmæt sköpun. Við komumst í gegnum þetta saman.

Meðan atvinnuástand margra Íslendinga er ótryggt á að gefa atvinnulausum frítt í sund fyrir hádegi til að stuðla að virkni í samfélaginu, hreyfingu og mannlegum samskiptum.

Hugmyndaraduneytid.is

Rafmagnsnotkun í samgöngum er framtíðin.

Gefa á út kvóta fyrir smábáta.

Einfaldasta og eina leiðin til að hagkerfið jafni sig.

Er að verðbóla sem verður til vegna of mikil fjármagns á markaði verði skorin af verði í samfélaginu. Skuldir eru til komnar vegna verðbólgu og fasteignabólu sem eru hvort eð er stjórnvaldsmistök. Alls ekki vegna óráðsíu borgara. Þess vegna ber að lækka allar veðskuldir þar til allir geta borgað. Þetta er eina leiðin út úr okkar vandræðum. Þetta er samdóma álit hagfræðinga sem eru óháðir þeim öflum sem vilja kreista skuldara til síðasta blóðdropa í skammsýni sinni. Látum ekki talnakalla hagsmunaaðila (bankana) eiðileggja hagkerfi okkar með eigingirni og þrjósku. Bankarnir verða að taka á sig þetta tap. Lausnin á vanda okkar.

Koma upp grafísku súluriti verðbólguþátta (útlána) í Íslensku samfélagi, í Fjármálaeftirliti og Seðlabanka sem almenningur hefur beinan aðgang að.

Og auðvitað afnema verðtryggingu. Rök gegn verðtryggingu.

Nýtt skattakerfi

Auðlinda gjald og land skattur.  Silfurskotið í fátæktina.

Silfurskot 2.hluti.

n1085954298_30211337_1643

Nýtt skjaldamerki Íslands.

Þegar hrun fjármálakerfis var orðinn að veruleika var mér hugsað til

skjaldamerkis okkar með drekanum gráðuga sem tákn hins ílla í

skjaldamerkinu okkar. Og mér datt í hug að fjarlægja hann úr

skjaldamerkinu sem tákrænt afnám fégræðginnar úr samfélagi okkar. Svo

getum við sagt börnunum okkar frá því þegar fégræðgin og verðbólgan

sem sumir kölluðu góðæri, rústaði samfélagi okkar. Og sagt þeim að

ljónið sé tákn fyrir guðlegt eðli, kraft, heiðarleika og eilífan sigur. Ég

vona að við getum lært af reynslunni. Nú þegar hrun yfirbyggingar

froðuverðmæta er algjört, væri algjör geðveiki að ætla að byggja upp

samskonar hagkerfi.

Í banka sérhvers manns

Í banka sérhvers manns er fall hans falið.
Þú ferðast gegnum dimman kynjaskóg
af blekkingum, sem brjóst þitt hefur alið
á bak við veruleikans köldu ró.

Þinn banki býr þeim mikla mætti yfir
að mynda sjálfstætt líf, sem ógnar þér.
Hann vex á milli þín og þess, sem lifir,
og þó er engum ljóst, hvað milli ber.

Gegn þinni líkamsorku og andans mætti
og öndvert þinni skoðun, reynslu og trú,
í dimmri þögn, með dularfullum hætti
rís bankans bákn og jafnframt minnkar þú.

Og sjá, þú fellur fyrir banka þínum
í fullkominni uppgjöf sigraðs manns.
Hann lykur um þig löngum armi sínum,
og loksins ert þú sjálfur bankinn hans.

Steinn Steinarr (með örlítilli breytingu frá JÖM)