Jæja, fyrsta lag mitt á nýju ári, svona frekar í rólegri kantinum.
Annað svona rólegt lag sem að valt upp úr mér í sumarbústaðarferð á Snæfellsnesinu.
Enn eitt rólega lagið... Þetta virðist ætla að vera varanlegt ástand á mér. :/
Jæja, ég er allur að koma til... - Hækkaði mig um heil sex slög á mínútu frá síðasta lagi hehe.
Enn við sama heygarðshornið... Þetta lag er afrakstur þess að ég var að æfa mig í að gera hljóma.
Jæja, nú er þetta að hressast!! Þetta er endurvinnsla á lagi úr tölvuleik sem ég spilaði mikið þegar ég var svona sjö ára og ber lagið sama titil og leikurinn. Upprunalegu melódíuna má heyra með því að smella HÉRNA. Alveg ótrúlegt að svona flott melódía hafi verið sköpuð með einungis þremur rásum hehe. Höfundarréttur melódíunnar tilheyrir Capcom.