Eirún Sigurðardóttir sýnir í Ásmundarssal Listasafns ASÍ 14. okt - 5. nóv.
Opnun 14. okt. 2006 kl 15
 
 
Sýningin heitir Blóðhola. Þessi hola sem er sterkari en þrumuguðinn Þór og bjartari en nokkur dís hefur að geyma unaðslega mýkt og sveigjanleika. Hún er tenging okkar við fortíðina, hellinn þar sem líf okkar kviknaði.
Innan í hvítum helli listasafnsins, er frumkrafturinn tignaður í milljónasta veldi. Unaðslegar mjúkar kúlur sem geta af sér kúlur sem geta af sér kúlur og svo framvegis ínn í framtíðina sem engin veit hver verður en eitt er þó víst að fortíðin fer með okkur inní framtíðina. Við erum tenglar eða millistykki þess sem var og þess sem verður. Til þess að átta sig á samhengi hlutanna þarf ekki alltaf að skilja allt. Stundum er nóg að skynja og skoða. Treysta á eigin tilfinningar og þrátt fyrir flækjur sem erfitt getur verið að greiða úr heldur hárið samt áfram að vaxa.
 
Eirún útskrifaðist úr Myndlista og handíðaskóla Íslands 1996 og Hochschule der Künste Berlin 1998. Hún er stofnandi og 1/3 Gjörningaklúbbsins og hefur sýnt víða undir hans nafni frá 1996. Nánari uppl. www.ilc.is
Eirún hefur einnig haldið einkasýningar m.a. í galleri Hlemmi og Kling og Bang ásamt því að taka þátt í samsýningum.