Íbúðin er ekki langt frá Flughafen Schönefeld.
Strætisvagn númer 171 merktur „Hermannplatz“ stoppar beint fyrir framan Schönefeld flugvöllinn. Endastöðin er Hermannplatz.
Ferðin tekur um klukkustund en frá Hermannplatz er fimm mínútna gangur að íbúðinni.

Góðar og ódýrar samgöngur við Kaupmannahöfn td. eru tvö rútufyrirtæki sem bjóða uppá þessa leið. Berlin Linien Bus og Berolina. Með Berolinu er ókeypis fyrir börn undir 16 ára. Þetta er er mjög þægilegur ferðamáti en hluti leiðarinnar er um borð í ferju. Lágjaldaflugfélagið Easy Jet flýgur líka daglega á milli Kaupmannahafnar og Berlínar. Tilvalið að skoða ef dagsetningar og fargjöld henta betur í gengum Kaupmannahöfn.

samgöngur í Berlín