FRÉTTIR

20. mars 2004

Skrifað fyrir tímaritið Lagakróka (2004 útgáfa)
gefið út af ELSA sem er félag Evrópskra laganema á Íslandi.

Nú standa Íslendingar á tímamótum þar sem ég hyggst taka við forsetaembættinu af Herra Ólafi Ragnari Grímssyni í sumar. Það er mér mikill heiður að fara í spor ekki ómerkari Íslendinga en Sveins Björnssonar, Ásgeirs Ásgeirssonar, Kristjáns Eldjárns, Vigdísar Finnbogadóttur og nú síðast Ólafs Ragnars Grímssonar. Þetta er tækifæri sem ég mun nýta mér til fullnustu. Að starfa fyrir þjóðina og vera sómi hennar, sverð og skjöldur er háleitt og göfugt markmið. Tilhugsunin um að verða sjötti forseti Íslenska lýðveldisins fyllir mig bæði gleði og stolti. Talan 6 hefur líka alveg sérstaka merkingu fyrir mig af persónulegum ástæðum.
Við Íslendingar erum framúrskarandi á flestum sviðum og það má meðal annars rekja til móðuharðindanna því móðuharðindin voru leið móður náttúru til að skilja hismið frá kjarnanum. Margir hafa einnig bent á Snæfellsjökul sem er ein sterkasta orkustöð veraldarinnar og auðvitað njótum við góðs af henni, þó ekki sé hægt að virkja hana með hefðbundnum hætti.
Mér hefur stundum fundist náttúruauðlindir þessa lands hafi verið teknar fram fyrir mannauðinn sem hér býr. Það þykir mér miður því við Íslendingar erum ríkir af alls kyns hæfileikum sem enn hafa ekki verið virkjaðir. Það þarf og að vekja upp þjóðina og breyta hugarfari hennar, losa hana úr viðjum amerískrar neyslumenningar. Fá þjóðina til að standa með sjálfri sér og lifa eftir upprunalegum og náttúrulegum hefðum þar sem rómantíkin ræður ríkjum.
Þarna er líka tækifæri fyrir okkur Íslendinga til að verða fyrirmynd heimsbyggðarinnar og sýna henni fram á að andleg velmegun er ekki síður mikilvæg en efnahagsleg velmegun.
Mér þykir vænt um alla landsmenn, og sá ástarneisti fyllir mig löngun til að opna faðminn og breiða út blessun mína við öll möguleg og ómöguleg tækifæri.

Faðir minn heitinn var lögfræðingur og því yljaði það mér um hjartarætur þegar haft var samband við mig og ég beðinn um að skrifa í tímarit þetta. Faðir minn lærði lög við Háskóla Íslands næstum tilneyddur því hann hafði meiri áhuga á sjómennsku, en móðir hans krafðist þess að hann kláraði háskólanám. Hann var mín fyrirmynd og ég leit upp til hans. Sem barn furðaði ég mig á því að hann væri ekki forseti Íslands því hann var svo klár. Ég sagði honum einu sinni að mig langaði að verða lögfræðingur eins og hann en síðar ákvað ég að setja markið hærra.

Lífsganga mín hefur verið ólík fyrirrennurum mínum og reynsla mín því öðruvísi.
Í stað þess að fara beinan menntaveg, helgaði ég mig drykkjuskap og öðrum ósóma sem honum fylgdi. Fyrir vikið lenti ég í hinum ýmsu ævintýrum, góðum og slæmum. Dómgreind mín fauk auðvitað út í veður og vind á meðan drykkjuskapnum stóð og ég ögraði ekki bara umhverfi mínu heldur sálartetrinu einnig. Sumum samferðarmönnum þótti nóg um og bentu mér á að til væri lausn. Hana þáði ég og nú lifi ég heilbrigðu lífi.

Ég skulda íslensku þjóðinni það að gera henni gagn og gefa henni aðgang að mér og hæfileikum mínum. Ég fullvissa landsmenn um að af herra Ólafi Ragnari tekur hæfur maður og ég veit hann er að skila góðu búi í mínar hendur. Ég sver þess eið að hlúa að þjóð vorri eins og mínu eigin barni.
Matthías Jochumson sagði að íslensku börnin væru fallegustu börn á Norðurlöndum og það væri á ábyrgð foreldra og vina að sjá til þess að þau yrðu ekki svöng. Við erum fámenn þjóð og íslensk fegurð hefur alla tíð heillað íbúa Evrópu og annarra heimsálfa og það gæti jákvæðni okkar og bjartsýni einnig gert ef við gefum því tækifæri. Verum stolt og jákvæð og opnum faðm okkar til heimsbyggðarinnar því hún þarf á því að halda.
Nú hefst sjötti kafli Lýðveldisins Ísland.

Snorri Ásmundsson

© Snorri Asmundsson
Kosningasjóður. Reikningsnr.: 303-26-77777 Kt: 131166-4199