25.08.07
Skemmtiþátturinn er á sínum stað, nú
með Róberti í Ég
(Mér?) og Valla í Jan
Mayen í Sólópunkti. Auk þess óskalög
nörda, mögnuð lög (bæði klikkuð og óklikkuð)
og Topp 10: Minnst spiluðu lögin í jarðarförum.
---
Lagði á mig ferðalag til Hafnarfjarðar í
gær til þess eins að kaupa mér á skyrbarnum
í 10/11. Sem er náttúrlega besti skyrbar landsins.
Ferðalagið var alveg þess virði.
24.08.07
Ég er "8" og "people's person" skv. landsfrægri spákonu
í blaði í dag. Lufsan er enn að flissa út
af þessu.
---
Í sama blaði sé ég að Gunni Bjarni í
JBJ hljóp heilt maraþon, 42 km. Helvíti gott hjá
honum. Sé líka að Fóstbr eru að koma á
dvd - það verður hægt að kaupa boxsett og allt
til styrktar langveikum börnum. Eitt selt a.m.k.
---
Lærdómur gærdagsins: Vatnsmelónur eru vatnslosandi.
23.08.07
Nafnið á handáburðinum sem Lufsan fékk
í afmælisgjöf er fyndið. A.m.k. ef maður hefur
séð Borat.
---
Í Bakþönkum
dagsins skrifa ég um Mika. Meistara Mika eins og ég kýs
að kalla hann í dag.
---
Ef ég hef einhvern tímann tíma langar mig að
setja saman stórkostlegt klukkutímalangt workout mix trakk,
sérhannað til að spilast á meðan fólk
hamast í klukkutíma á bretti eða annars slags
líkamsræktartæki. Trakkið á að heita
Hlauptu keppur hlauptu. Í augnablikinu er það hin þrumugóða
plata Night ripper með Girl Talk sem er að gera hvað bestu
hlutina á brettinu og all langt er síðan System of a
Down sungu sitt síðasta þar.
---
Freyr Eyjólfsson er í einskonar baráttuherferð
fyrir rithöfundinn Chuck
Klosterman. Hann lánaði mér tvær bækur
og ég er að staulast í gegnum Sex, drugs and Choco pops.
Alveg ágætis stöff. Chuck eyðir þónokkru
púðri í að mæra Billy Joel og í því
tilefni ætla ég nú að setja Glass house á
fóninn.
22.08.07
Hitti Albert í Kringlunni. Hann sagði mér að
Chocolate
rain væri það heitasta. 7 milljón sinnum hefði
verið horft á Súkkulaðirigningunaá
Jútjúb. Allt vaðandi í grínútgáfum
og Wiki tjáir
sig um málið. Svona gengur
þetta fyrir sig á netinu. Annars er þetta
víst mestáhorft á jútjúb. Furðulega
vinsælt miðað við slappleika. Mér finnst nú
Mahir
Çagri alltaf bestur.
---
Stórkostleg frelsistilfinning. Ég var að fatta það
núna að ég hef ekki pirrað mig á Framsóknarflokknum
í marga mánuði.
---
Afhverju kalla blaðamenn Fbl Jógvan "fola"? Er það
af því að hann er Færeyingur eða hafa þeir
séð á honum skaufann?
---
Haustlitirnir. Ég hlakka til þeirra.
21.08.07
Hér eru dýpstu skilaboðin sem þú munt
lesa á innihaldslausum bloggrúnti þínum í
dag:
---
Ég gær tíndi ég ber á Þingvöllum,
í Grafningi og í hlíðum Ármannsfells. Maður
kemst nú ekki langt eða hratt yfir með einn næstum
4 ára og eina næstum 3 mánuða, en það
var gaman og ég át öll berin jafnóðum. Maður
hefði eflaust komist í feitari mál á efri högum.
En mikið helvíti eru menn farnir að byggja ógeðslega
stóra sumarbústaði. Þetta er náttúrlega
löngu hætt að vera sumarbústaðir, meira svona
sumarhallir fyrir konunga. Svo var auðvitað enginn í öllum
þessum húsum. Allir of uppteknir við að kaupa Newcastle.
19.08.07
Oft er djúpt á íslenskuna og þá grípa
margir til ensku þegar rétta orðið kemur ekki. Kannski
hafa þeir líka séð álíka atriði
í enskumælandi sjónvarpsþætti, en ekki
íslenskum, og því er þetta allt því
að kenna. Til dæmis ef ófrísk kona er spurð
hvort hún hafi fengið óslökkvandi löngun í
eitthvað furðulegt á meðgöngunni, þá
er alltaf spurt hvort hún hafi fengið eitthvað skrítið
cravings. Ég hef ekki heyrt neinn segja: hefurðu fundið
fyrir óslökkvandi löngun í eitthvað óvenjulegt,
gæskan en síðast í gær heyrði ég
þetta með kreifingið. Og ég er ekkert að púa
á það, bara að benda áða. Fátt er
leiðinlegra en sípúandi íslenskuhermenn, sbr.
fullkomlega réttmætt tuðið í Nirði P. vikulega
í Fbl.
---
En allavega, kannski er ég óléttur því
ég hef fengið tvö óvenjuleg kreifing að undanförnu.
Hið fyrra var gífurleg löngun í Fresca. Nú
er Fresca einhver bragðþynnsti drykkur sem völ er á,
en samt fann ég í huga mér Fresca renna gómsætt
niðrí maga. Hugrenningatenglsin kviknuðu þegar ég
horfði á Simpsons-þátt þar sem indjánar
láta Simpsons-feðgana drekka það sem þeir síðan
segja að sé bjarnarhland. Það er ekki fyrr en indjánarnir
segja að þetta sé Fresca sem Hómer og Bart spýta
drykknum út úr sér. (Annar drykkjartengdur brandari
úr þáttunum er þegar Hómer velur krabbadjús
fram yfir Mountain dew og drekkur 17 dósir á endanum.) Ég
er reyndar ekki enn búinn að opna Frescaflöskuna sem ég
keypti og eiginlega er kreifingið löngu farið. Samkvæmt
Fresca
á Wiki á drykkurinn nokkuð kúl sögu.
Kom fram 1963 og er orðinn költ eins og Tab, annar lúserdrykkur
frá Coca-Cola (samt ekki eins mikið lúser og Fruitopia-línan).
Þar að auki er minnst á Fresca í Ham-laginu Transilvanía.
---
Hitt kreifingið mitt var öllu smávægilegra, en
það var óstjórnleg löngun til að heyra
lagið Spinning wheel með Blood, Sweat & Tears. Iggy Pop var
að dissa lagið í Pitchfork-viðtali
og ég bara varð að heyra það. Ég man eftir
þessu úr útvarpinu, það hefur margsinnis
verið spilað þar í gegnum árin, og er eitt
af fáum vinsælum hippalögum sem er með gargandi blæstri.
Ágætis lag svo sem.
18.08.07
Tilkynning: Enginn Skemmtiþáttur í dag, bara m-næturgigg
í beinni. Abbababb! í Landsbankanum kl. 15. Svo hefjast sýningar
að nýju 9. sept og miðasalan von bráðar.
---
Því þá ekki T5? Tvö stelpupopp og þrjú
sjóðheit og glæný íslensk:
The
Bird & The Bee - Fucking boyfriend: Dúett frá
LA með svona líka vænan hittara af fyrsta LPinu sem djassgeggjararnir
hjá Blue Note gáfu út í ársbyrjun. Hugglegt
og rafmagnað batikpopp, minnir stundum á Beach Boys, stundum
á Cardigans, platan mjög góð í það
heila, en Fökking kærastinn einna fyrstur inn.
Candie
Payne - One more change: Hressandi stelpnagrúppupopp frá
Candie, sem er upprennandi, frá Liverpool og systir trommarans í
Zutons. Af fyrsta albúminu I Wish I Could Have Loved You More sem
kom í maí.
Retro
Stefson - Medallion: Sjóðheit og glæný
upptaka af þessum magnaða gleðipoppara. Nú vill maður
bara fleiri lög og helst plötu frá þessu almagnaða
stuðbandi.
I
Adapt - Historical Manipulation In A Nice Suit: Mammaþín
gefur út í næstu viku plötuna Chain like burden
með I Adapt sem eru búnir að harðkjarnast á kantinum
síðan 1700 og rauðkál. Hér taka þeir
angurværan sprett yfir jarðsprengjusvæði.
VilHelm
- Shine on silver star: Villi nagnlbítur eþs VilHelm
er kominn með fyrstu sólóplötuna The Midnight Circus
eþs Miðnætur sirkusinn. "Þetta eru rólegar
og rómantískar rökkursögur," segir Villi. "Í
sumum lögum er ég bara einn með kassagítar en í
öðrum fékk ég aðstoð vina minna." Haldnir
verða tvennir útgáfutónleika, aðrir í
Deiglunni, Akureyri, á Akureyrarvöku kl. 20:00. Hinir verða
á ORGAN, á bakvið Gaukinn, í Reykjavík,
miðvikudaginn 5. september. Þeir hefjast kl. 21:30.
17.08.07
Eins og ég spáði er Megasarfár. Fbl greinir
frá í dag að Frágangur sé að seljast
vel. Og ef einhver er efins um að Megas sé kominn inn úr
kuldanum nægir að líta á Cherrios-pakka þar
sem Megas er í liði með Steini Steinarr, Sigmund Freud,
Woody Allen og fleiri velþekktum Cherrios-ætum:
Gullfalleg mynd af meistaranum þar að auki.
---
Það er ekki þverfótað fyrir risagiggum.
Sumum finnst KB vera að stela veislunni af Rás 2 með því
að halda þetta risagigg sitt daginn fyrir menningarnótt.
Rás 2 heldur einmitt sitt árlega risagigg þá.
Maður gæti verið nastí og sagt að vonandi mætir
enginn á KBgiggið af því þeir græða
svo ógeðslega mikið og hefðu betur lækkað
þjónustugjöldin. En það væri nú
bara leiðinlegt. Er þetta ekki ágætis framtak hjá
bankagreyinu? Bankastjórinn, þessi sem borgar 400.000.000
í skatt, var á brettinu við hliðina á mér
í gær og virtist hinn indælasti maður. Hló
og skríkti eins og smákrakki þegar hann ræddi
við einkaþjálfarann. Ég reyndi að hugsa ekki
neitt um yfirdráttinn minn og gáði hvort 5000kallar dyttu
úr vösunum hans. Mér er fyrirmunað að vera kúl
í nágrenni við milljónamæringa. Þetta
er svipað og ef maður með auka höfuð út úr
bringunni hefðu verið á brettinu við hliðina á
mér. Frík sem maður getur ekki annað en kíkt
á í laumi.
16.08.07
Dagbjartur vildi endilega taka smábarna biblíu á
bókasafninu enda með 40 gluggum til að opna. Hann kallar
bókina reyndar dýrabókina. Þó mér
sé í mun að hlífa barninu við daunillu biblíukjaftæði
tók ég bókina og skáldaði nýjar
sögur við myndirnar. Þetta er náttúrlega ævagömul
leiðindadella og meiðandi lesning fyrir trúlausu, sbr.:
Já sonur sæll, þeir sem gera ekki eins og Jesús
segir eru heimskir.
---
Annars þýðir takmarkað að tjónka við
barnið. Það fer sínu fram. Ef hann vill Latabæjarbuff
á hausinn þá fær hann Latabæjarbuff á
hausinn. Ekki ætla ég að vera skrýtni pabbinn sem
neyðir son sinn til að vera með Sonic Youth buff á hausnum.
---
Aldrei þessu vant horfði ég smá á Ópru.
Hún var ægilega djúp. Fyrst kom Michael Moore að
plögga Sicko. Allir klöppuðu og hann iðaði í
spikinu af gleði á milli þess sem hann fór með
föðurlandsástarjátningar sem uppskáru meira
klapp og meira ið í spiki. Það er örugglega gott
að bylta amerísku heilsugæslunni en þetta er kannski
ekki mál sem maður nennir að sjá heila kvikmynd um.
Svo talaði Ópra við einhvern Cormac McCarthy, ægilega
frægan rithöfund sem ég hef aldrei heyrt minnst á.
Hann var voða svona rithöfundur af gamlaskólanum, pollrólegur
í gallajakkavinnuskyrtu, en ég stórefast um að
ég nenni að lesa nýjustu bókina hans, The Road,
sem Ópra var að sleppa sér yfir.
15.08.07
Gigg! Abbababb! gengið leikur og syngur fyrir landsmenn í
mínum gamla vinnustað, Landsbankanum í Austurstræti,
kl. 15 á laugardaginn. Þá stendur yfir hin ömurlega
m-nótt. Eftir giggið hleypur maður heim og læsir að
sér til að vera ekki laminn og nauðgað í hinum
suddalega miðbæ.
---
Í Grímsey búa 99 manns. Því er þægilegt
að reikna hvað skandalaferjan (500 millur) kostar mikið á
mann: 5.050.000 kr. Er það nokkur ofrausn? Héðinsfjarðargöng
kosta amk 7.000.000.000 kall. Deilt í íbúa Siglufjarðar
og Ólafsfjarðar (2500 manns) er það 2.8 millur á
kjaft. Pínöts.
14.08.07
Oft er tuðað um "hlutverk" Ríkissjónvarpsins.
Mörgum finnst það vera að sýna heimildaþætti,
en öðrum gæti t.d. þótt það vera
að forða okkur frá því að allar stöðvar
á landinu séu útúrvellandi af raunveruleikarusli
og skít. Í gær horfði ég næstum því
án þess að sofna á þýskan heimildaþátt
um sveppi. Ég er margs fróðari, veit t.d. núna
að ástralski kolkrabbasveppurinn hefur dreift sér um
alla Evrópu eftir að ónefndur einstaklingur bar gró
af honum með sér yfir úthöfin á skósóla.
Einhver pakkadíll virðist vera í gangi við þýska
framleiðendur því annað kvöld verður sýndur
þýskur heimildaþáttur
um popp og pólitík. Gæti alveg verið áhorfsins
virði.
---
Þegar haustar kemst maður í bíóstuð.
Á morgun hefjast bíódagar
Græna ljóssins. Margt er þar spennandi, t.d. For
your consideration, nýjasta myndin frá öfum mockumentsins,
liðinu sem gerði Spinal Tap, Waiting for Guffman, A mighty wind
og Best in show, sem eru allt eðalmyndir svo engin ástæða
er til að vænta annars af þessari. Ég er búinn
að sjá Fast
food nation, sem er alveg 3 stjörnu mynd, veit ekki hvort ég
nenni Sicko og svo eru þarna nokkrar sjokkmyndir, t.d. Zoo
um karla sem ríða hestum eða láta þá
ríða sér. Æi veit ekki hvað ég græði
á svoleiðis, kannski er maður bara vaxinn upp úr
því að finnast dýraklám merkilegt, eða
einhver afbrigðilegheit almennt. Jú annars, einu sinni sá
ég mjög skemmtilega mynd um leður og plastlið í
Danmörku og ég man atriði úr þeirri mynd mun
meira ljóslifandi en úr tonnum af amerískri afþreyingu.
Aldrei að vita nema maður mæti því galvaskur
á Zooið. En allavega fimmfallt húrra fyrir Ísa
fyrir að vera með kveikt á Græna ljósinu.
---
Hannes fer upp fyrir Gnúp
Stærstu hluthafarnir í FL Group halda áfram
að auka hlut sinn í félaginu. Oddaflug B.V., sem er í
eigu Hannesar Smárasonar, forstjóra FL Group, festi kaup
á eins prósents hlut í FL fyrir helgi. Kaupverðið
nam tæpum 2,1 milljarði króna.
Gnúpur? 2.1 milljarðar? Oddaflug B.V.? Það verður
að segjast að ég skil ekki rassgat í þessari
eða öðrum álíka fréttum. Og mikið
helvíti er ég glaður með það.
13.08.07
Fór og kíkti á lífræna stuðheimilið
Sólheima sem er svona hálfgert Disneyland með fötluðum
í stað Mikka mús. Lufsan segir að nú eigi
maður að segja fatlaður og ekki þroskaheftur eða
vangefinn svo það sé nú alveg á hreinu.
Boðið er upp á flottar listsýningar en ég
keypti ekkert í þessari ferð. Einnig lífrænt
kaffihús og gamlan slökkvibíl sem gaman er að hanga
utan í. Mjög gott að tékka á Sólheimum
annað slagið sem sunnudagsbíltúr. Því
miður varð ég ekkert var við Reyni Pétur að
þessu sinni. Berjavertíðin er annars yfirvofandi og nauðsynlegt
að
mæta bráðlega með fötu á hlíð.
---
Egill Helgason talar um nýaldarhippabæinn
Glastonbury í nýrri færslu. Ekki hef ég komið
þangað en bærinn Woodstock í NYfylki er líklega
svipaður. Þar er allskonar svona stuðrugl í gangi,
nýaldarkukl og fleira skemmtilegt, stólpípur og orkusteinar.
Í Skotlandi kíkti ég á eco-bæjarfélagið
Findhorn. Fínt að koma þangað þótt ég
sé líklega ekki nógu góður smiður til
að gera mikið gagn í svona pleisi. Á Íslandi
má kannski segja að Sólheimar sé í svipuðum
stíl og margt á Seyðisfirði. Svo var ég að
tékka á þessari
síðu og sé að Snæfellsás-community
er líka eco-þorp. Ég vissi nú ekki einu sinni
að það væri til nokkuð sem héti Snæfellsásþorp.
Reyndar vorum við Þór Eldon einu sinni að flækjast
þarna í fjörunni á Hellnum og gengum fram á
Gulla og Guðrúnu Bergmann og (að mig minnir) einhvern indjána
í miðju atriði. Þau voru með bál og indjánatrommu
og börðu og ákölluðu guðina. Mig minnir að
við höfum látið okkur hverfa hljóðlega.
En alveg eins gaman að þessu og að gaufa með vísakortið
í Smáralind. Kannski verða ekkert nema eco-þorp
í framtíðinni og hinir andlegu framtíðaríbúar
jarðarinnar horfa með fyrirlitningu til kapítalískrar
neysluhyggju samtímans. Hvað veit ég.
---
Það er aldeilis stuð á Jakóbínurínu.
Dissa allt innipúkasettið á einu bretti í nýju
Greipvæn viðtali og segjast ekki eiga sér andleg skyldmenni
innanlands fyrir utan Singapore Sling. Vonandi verður platan þeirra
nógu góð til að standa undir svona hressandi yfirlýsingum.
12.08.07
Mosfellsbakarí, Samtökin Börnin heim, Kron og Kron
Kron kynna með þónokkurri taugaveiklun, safnplötuna
Bíræfni bankaræninginn snýr aftur, eþs
Topp 5:
Elíza
- Empire fall: Empire fall er fyrsta Elízan sóló
og fínasta plata þar sem skröltandi högghamrar eins
og þetta titillag deila borði með rólegri dúnsængum
sem koma við í 60sinu með sérstakri áherslu
á Nico og Velvet.
Klassart
- January sun: Systkinabandið Klassart frá Sandgerði
er að gera góða hluti. Fyrsta platan er hin fínasta
og tilvalin fyrir þá sem fíla Mazzy Star, Cowboy Junkies,
kántrí, blús og allra handa láfreyðandi
sofna í sófa stöff.
The
Besties - Space song: Bandaríska bandið Besties gefur
út á sama merki og Dýrðin og spilar ekki ósvipað
bláaugnadúkkulísupopp. Í kvöld verður
bandið á Paddy's í Keflavík ásamt Hellvari
og Vicky Pollard en á miðvikudaginn á Organ með Jan
Mayen, Foreign Monkeys og Dýrðinni. Hér er speislag af
Singer (2005).
Durutti
Column - Jaqueline: Tony Wilson er dáinn.
Lést úr hjartaslag á föstudaginn, var 57 ára.
Hann kom Manchester á kortið sem tónlistarborg og er
stofnandi Factory Records, Hacienda klúbbsins, o.s.frv. Sjáið
24 hour party people (aftur). Þar má t.d. sjá gífurlega
tryggð Tonys við hljómsveitina Durutti Column, sem er aðallega
feiminn náungi Vini Reilly spilandi algjörlega innísig
lágstemmur. Tony skíttapaði á mörgu og var
skítsama. Heimurinn þarfnast fleira fólks sem er sama
þótt það tapi peningum eins lengi og það
er að gera eitthvað skemmtilegt. Það er hagfræði
pönksins. Pú á gróðrapúnga! Tapaðu
öllu og þú ert frjáls!
Young
Marble Giants - Brand new life: Weilska tríóið
YMG stakk alltaf snyrtilega í stúf við annað stöff
upp úr 1980. Þau gáfu út hjá Rough Trade
sem var ávísun á gæði á þessum
tíma og eina stóra platan þeirra Colossal youth er
hreinasta snilld. Þar töppuðu þau inn á sjaldgæfa
snilldarformúlu, höktandi gítar og bassa, fælinn
skemmtaratrommuheila og söngrödd Alison Statton, sem geislaði
innan í sig. Það eru töfrar í þessu
sem borgar sig ekki að kryfja. En allavega, Domino Records hafa nú
pakkað þessari plötu og öðrum upptökum YMG
inn í defíneraðan
megapakka. Bandið ku í blússandi kombakki og PF
gefur þessu 9.3. Semsé allt á uppleið hjá
YMG og endanleg staðfesting á snilldinni staðreynd.
11.08.07
Í dag á Rás 2 kl. 16:08 - Ögn samkynhneigður
Skemmtiþáttur Dr. Gunna með hörkuspennandi sólópunkti
á milli Elízu Newman,
sem gaf út fyrstu sólóplötuna sína Empire
Falls á dögunum, og Smára Guðmundssonar úr
blúsbandinu Klassart
sem kom með fyrstu plötuna sína nýlega. Þau
eru bæði af Suðurnesjum svo ég geri ráð
fyrir að rokkþekking sé yfirþyrmandi og því
eru spurningarnar níðþungar (eða svona...)
---
Nú er hið mikla leyndarmál orðið opinbert,
þetta með rosaskemmtiþáttinn í Sjónvarpinu
þar sem ég og 8 aðrir (Barði, Gummi Jóns, Maggi
Eiríks, Magnús Þór, Fabúla, Svala, Hafdís
Huld og Andrea Gylfa) eigum að leggja fram 3 poppsmelli hvert og láta
þjóðina velja úr. Þetta er hið mikla
leyndarmál sem ég ýjaði að um daginn og Fréttablaðið
fór hamförum yfir og hélt að ég og Þorvaldur
Bjarni værum á leiðinni í Popppunktslegan þátt.
Nei, slíkur þáttur bíður. En nú er
sem sé málið að ég komi með þrjá
heilalímandi gullsmelli og leggi fram til dóms. Þetta
dæmi verður í gangi í allan vetur þar til
eitt lag stendur uppi í febrúar eða eitthvað og verður
framlag Íslands í Serbíu í maí í
"gaypride á sterum". Ég er langt kominn með tvö
lög, annað er ofursætt popp og fjallar um ást í
ísbúð og er textinn saminn í gegnum email með
sjálfri Mengellu (eða
kannski Ólafi Sindra?).
Hitt er karl/konu dúett og á að vera nútímalega
sándandi human líg míts Timbalake. Þriðja
verður kannski karlmannleg ballaða í anda Neil Diamond og
Glen Campbell.
10.08.07
Gönguklúbburinn Kattahryggir er kominn úr ferð
sinni yfir Fimmvörðuháls sem var vægast sagt dúndurstuð.
Hér kemur ferðalýsing, sem er aðallega ætluð
þeim sem eru að spá í að ganga þessa
frábæru og fjölbreyttu leið.
Fimmvörðuháls 1043 m XXXX
Frá Skógum að Básum í Þórsmörk
eru ca. 23 km, sem maður getur farið rösklega á 7 tímum
eða 10 tímum á góðu drolli með kaffipásum
og miklu glápi. Fyrstu 2-3 tímana er gengið upp með
Skógaá þar sem stórglæsilegir fossar eru
með jöfnu millibili. Ég hef ekki tölu á þeim
en þetta voru allavega 10 stk þar til maður kom loks að
vaði þar sem brú er yfir ána. Þá tekur
við eins klukkutíma öræfalabb í smá
upphækkun alla leið að Baldvinsskála sem er nothæfur
þótt í hálfgerðu eyði sé. Enn
breytist landslagið enda er maður nú kominn á milli
Eyjafjallajökuls og Mýrdalsjökuls. Skítugan snjó
þarf að ösla og klakahröngl og smá svell --
létt þó, amk á sumrin. Þetta er klukkutíma
brölt upp á hæsta hluta leiðarinnar. Margt í
umhverfinu þarna minnir á leiðina upp á Hengil.
Mýrdalsjökull á hægri hönd er rosalega
flottur að sjá en Eyjafjallajökull til vinstri er mun ljótari,
minnir helst á skítugt þakið á Laugardalshöll.
Jökladrunurnar eru dulúðlegar. Hæst uppi utan á
smákletti er minningarskjöldur um fólkið sem varð
þarna úti 1970, það var illa búið og
hreinlega örmagnaðist í vonsku veðri. Veðrið
var gott hjá okkur en þarna uppi var þó rok og
auðvelt að sjá hvernig þessi blettur getur snarlega
breyst í veðravíti.
Nú blasir við unaðsfögur sýn yfir hálendið
og leiðin er niðrí móti það sem eftir er.
Dáldið hefí skriður og svo Heljarkambur sem maður
gengur haldandi sér í keðjur. Þetta er svona álíka
erfitt og klettarnir í Esjunni. Nú tekur við marflöt
Morinsheiði, korterslabb og svo niður hlíðar Heiðarhorns.
Nú heldur maður að maður sé á grænni
grein og á góðri siglingu til Bása en fyrr en
varir er maður þó kominn í skelfilegasta kafla
leiðarinnar, Kattahryggina. Þarna kemur rassinn sér vel
til niðurferðar, haldandi í ótryggar keðjur og
eitt 10 metra einstigi þarf maður að hlaupa með þverhnýpi
til beggja hliða. Best er að fara þetta með því
að horfa bara beint niður á skóna sína, en
ef lofthræðslan er alveg að fara með mann má hreinlega
skríða þarna yfir. Svo er frábært að
koma í aðstöðu diskóferðafélagsins
Útivistar í Básum, en það er lang flottasti
staðurinn af þessum þrem þar sem eru skálar
í Þórsmörk (hinir eru Langidalur og Húsadalur,
og jafnast ekki á við Bása í náttúrufegurð.)
Eftir gönguna var hreinn unaður að fá sér
kússkúss í máli og svo koníak, kaffi
og kúbuvindil. Ég gisti í skála með frönskum
göngustelpum sem voru að koma Laugarveginn og áður
en ég sofnaði sá ég endalaust fyrir mér
gönguna, þverhnípi og næstu stiku, næstu
stiku. Þótt ég reyndi að skipta þessari sýn
út fyrir erótískar stellingar með frönsku
stelpunum kom göngusýnin alltaf til baka. Svo fannst mér
ég ennþá vera með 10 kg bakpokann á bakinu.
Loks sofnaði maður og svaf eins og grjót enda orðinn
eins og hálfgerður steinkarl í skrokknum þrátt
fyrir teygjur. Rútan á leiðinni til baka fór kl.
13:30 og stoppaði bæði hjá skálum í
Langadal og Húsadal, sem eins og áður segir eru ekki
eins flott pleis og Básar, Langidalur þó flottari en
Húsadalur. Á báðum þessum stöðum
er sjoppa og m.a.s. lítill heitur pottur í Húsadal:
Þórslaug, Þórsmörk XX
Lítill og grunnur heitur (eiginlega volgur) pottur með takmarkaðri
búningaskiptaaðstöðu en 2 sturtum. Auðvitað
magnað að hita vöðva eftir labb, en fyrir utan heppilega
staðsetninguna er takmarkað stuð í Þórslaug.
---
Næsta sumar erða svo tvímælalaust Laugavegurinn,
54 km ganga frá Landmannalaugum að Þórsmörk,
sem maður splittar líklega upp í 3 daga. Metið var
nýlega slegið þegar einhver ofurmaður hljóp
Laugaveginn á 4 og hálfum klukktímutíma. Það
er alltaf söknuður að koma til byggða og eiginlega finnst
manni flatneskjuleg restin af Suðurlandi forljótt rusl eftir
að hafa verið í náttúrufegurðinni í
Básum. En maður venst svo sem fljótt aftur á steypuna
og gott er að vita af hinu á sínum stað.
Það var ekki laust við að maður væri þreyttur
þegar skrölt var í rútunni heim.
06.08.07
Lee Hazlewood hefur stimplað sig út.
Ég veitti honum (og Nancy) fyrst athygli eftir að ég
las Nick Cave mæra hann óskaplega í blaðaviðtali
sirka 1983. Sankaði að mér plötum næstu 10 árin
og á nokkra orginala á viníl sem karlar í útlendum
2nd hand búðum þurftu að sækja bölvandi
oní kjallara. Svo var áhugi minn að mestu farinn annað
þegar endurútgáfudæmið skall á á
vegum trommuleikarans Steve Shelley í Sonic Youth. Ég spurði
Steve reyndar útí Lee þegar ég fór með
honum (og Grími) á Paul McCartney og hann var greinilega
ekki á því að Lee væri svo æðislegur
gaur. Dæsti bara eitthvað og sagðann difficult, difficult.
En Lee með töffaralegu röddina og döpru textana og frábært
samstarf hans og Nancy Sinatra lifir lengi á hinum ýmsu formötum
og hér er Lee-Topp-fimm:
Lee
Hazlewood - If it's monday morning: Af Requiem for an almost lady
frá 1971. Klassískur Lee og ágætt lag til að
hlusta á ef fólk er að drepast á mánudegi.
Nancy
Sinatra - Lightning's girl: Massakúl Lee-lag sem Nancy söng.
Lee samdi haugana ofan í Nancy, gegnheila poppsnilld eins og Summer
wine, Sugar town, Friday's child og svo auðvitað These boots are
made for walkin'.
Nancy
& Lee - Some velvet morning: Hugsanlega besta lag Lees og eitt
af topp 10 bestu popplögum allra tíma. Komst víst í
26 sæti á bandaríska listanum þrátt fyrir
gífurlega furðulega uppbyggingu. Er á fyrstu dúetta
plötunni Nancy & Lee (1968).
Lee
Hazlewood - Pour man: Af plötunni Love and other crimes sem
kom líka út 1968. Mér tókst að væla
þessa plötu út úr John nokkrum Henderson sem hljómsveitin
Bless gisti hjá í Chicago 1990.
Nancy
& Lee - Arkansas coal (suite): Af Nancy & Lee again (1972)
sem ég var svo heppinn að fá í Safnarabúðinni
fyrir alllöngu á 200 kall. Platan er pressuð á "dynaflex"
sem var ótrúlega þunn og létt plata en samt
í toppgæðum. Dynaflexið er lofað fram og aftur
í plötunærhaldinu en varð aldrei toppvara. Platan
sjálf er líka fín eins og t.d. þetta opnunarlag
eftir Lee. Árið 2004 kom svo þriðja dúetta
platan þeirra Nancy & Lee 3 sem fór ótrúlega
hljótt. (Á myndinni má sjá Lee og Nancy með
Duane Eddy í stúdíói 2003.)
05.08.07
Maður er svo slappur að það tekur tvö kvöld
að skrölta í gegnum eina dvd mynd. Nú varða
ein vinsælasta myndin í dag, Smokin' aces sem er: Stíliseruð
ofbeldisrúnkfantasía sem byrjar ókei en fer síversnandi
er á líður. Ben Affleck er blessunarlega drepinn snemma
í henni XX.
03.08.07
Organ opnar í dag þar sem Skuggabarinn var í bakhúsi
í Hafnarstræti. Spurning hvert drykkjumennirnir fara þá?
Eða eru þeir kannski allir orðnir þurrir og farnir
að vinna í banka? Í kvöld bíður Orgar
upp á ókeypis gigg með Esju, The Way down og Pornopop,
svo Innipúkinn 2007,
og svo eitthvað og eitthvað, en svo þann 10., föstudag
eftir viku, er komið að Vetiver
frá Usa. Endurbirti að því tilefni toppfimminnlegg
frá því í fyrra:
Vetiver
- You May Be Blue: Flott lag af plötunni To Find Me Gone,
sem mönnum þykir góð. Þjóðlagakennt
hippanýbylgja og lið í sömu táfýlu
og Devendra, Newsom og það gengi allt.
---
Skemmtiþátturinn verður algjört skronster á
morgun og alveg nýr þáttur því Freyr Eyjólfsson
sér um hann með mér í tilefni Verslunarmannahelgarinnar
(helgi sem lætur alla skjálfa í stígvélunum
yfir væntanlegum fréttum af nauðgunum og þjóðvegadauða).
Við leggjum upp með að spila stuðlög og fáum
tvo frábæra gesti, Shady Owens, sem treður upp með
Stuðmönnum í Húsadýragarðinum á
sunnudag og Bobby Harrison, sem treður kannski upp með Stuðmönnum
líka, hvað veit ég?
---
Annars er það helst að frétta að ég
stefni á að ganga Fimmvörðuháls í næstu
viku og er þegar kominn með martraðir fyrir hryllingi eins
og Kattarhrygg og Heljarkambi, sem maður neyðist til að klöngrast
yfir á leiðinni. Er nefnilega ekkert svo brattur þegar
að hengiflugi kemur þó ég geti gengið sleitulaust
tímum saman jafnt á jafnsléttu og upp temmilegan halla.
Vonandi verður bara veðrið gott og vonandi þarf ég
ekki að skíta mikið á leiðinni. Skítandi
göngufólk er nefnilega bölvuð plága þarna
og lortar undir hverjum stein, skildist mér á fréttum
í gær. Þar var hvatt til að fólk tæki
notaði skeinipappír með sér til að vernda náttúruna.
Er það nú ekki einum of? Sjálfum finnst mér
fátt meira hressandi en að sitja á hækjum mér
með allt úti og láta goluna leika um mína annars
aðþrengdu prívatstaði. Til dæmis er eitt eftirminnilegasta
atriðið í fjallgöngusögu minni þegar ég
neyddist til að ganga örna minna í holu á milli
Syðri og Ytri Súlu. Ahh, holan.
---
Helgin verður án efa algjör lognmolla og ýkt
tsjill. Maður lítur eflaust á Innipúka, þó
ekki nema til að útvarpa þaðan á vegum Rásar
2, og Stuðmenn með Shady hljómar ekki svo illa, enda framlag
Shadýar til íslenskrar tónlistarsögu glæsilegt
og Stuðmenn náttúrlega klassík þótt
eflaust megi álykta að þeir hafi hætt 25 árum
of seint.
02.08.07
Maður þarf að redda sér tekjublaði svo maður
geti borið sig saman. Nema ég sé svo ómerkilegur
að komast ekki á blað. Alveg er ég samt viss um að
49.798 krónurnar sem ég greiði til skattsins renna beinustu
leið í rekstur íslenska sendiráðsins í
Japan.
31.07.07
Plötusnúður Rauða hersins e. Wladimir
Kaminer er góð bók. Æska og uppvöxtur
í móðurlandi sósíalismans eru uppistöðurnar
í þessu magnaða herlagadiskóteki þar sem
Wladimir Kaminer er með puttana á tökkunum. Hann er einn
helsti sérfræðingur heims í rússneskri popptónlist
og danskvöld sem hann skipuleggur, svonefnt Rússadiskó,
er ógleymanleg lífsreynsla öllum sem á hlýða,
segir í Bókatíðindum. Ég er reyndar bara
nýbyrjaður en bókin lofar mjög góðu.
Það getur vel verið að maður leiti að fleiri
bókum eftir Kaminer. Þar sem hann bjó sem barn var
geðveikraspítali nálægt og þar héngu
oft mongólítar fyrir utan. Hann dauðöfundaði
mongólítana því þeir þurftu ekki
að verða neitt þegar þeir urðu stórir, þeir
voru mongólítar og þjóðfélagið
gerði ekki meiri kröfur til þeirra. Gefum Wladimir orðið:
---
Það er eitthvað sem gerir mig sólginn í
austantjaldsstöff, sérstaklega lýsingar á sniðuga
þunglyndinu sem var gullöld Ráðstjórnarríkjanna.
Líf annarra og Lilja 4-ever eru t.d. með betri myndum sem maður
hefur séð undanfarið. Kannski þetta sé tilkomið
vegna þess að á tímabili héldu foreldrar
mínir að hamingjan og dýrðin væri að finna
í Rússlandi. En það stóð nú örugglega
stutt. Heima var fullur skápur af áróðursritinu
"Fréttir frá Sovétríkjunum", stórkostleg
heilaþvottablöð um ágæti kommúnismans.
Þau nýttust mér vel þegar ég stóð
í því að hanna og búa til plötuumslög
fyrir ímyndaðar hljómsveitir, full af myndum af traktorum,
sterkbyggðu fólki og innviðum verksmiðja. Það
hafði víst einu sinni komið kall með eitt blað og
svo kom þetta endalaust þótt pabbi reyndi að segja
tímaritinu upp. Það þýddi ekkert að segja
blaðinu upp og aldrei var hann heldur rukkaður. Þetta var
því svona forveri Fréttablaðsins, má segja.
Ég held sé kominn tími til að sveima í
fornbókabúðum til að komplítera Fréttir
frá Sovétríkjunum eða ekki.
---
En það ríkti svo sem einskonar kalt stríð
á heimilinu. Sagan segir að pabbi hafi farið með sjónvarpið
á verkstæði og látið búa svo um hnútana
að kanasjónvarpið næðist örugglega ekki.
Ég veit ekki hvort þetta er flökkusaga eða eitthvað
sem var tæknilega framkvæmanlegt. Ég fór stundum
í Sölu varnarliðseigna en passaði að segja ekki
mapa frá. Einu sinni keypti ég Kissplötu og dauðskammaðist
mín fyrir að draga hana inn á heimilið. Þar
fyrir utan var hún hundleiðinleg, fannst mér, svo það
var siðferðislegur léttir þegar ég losaði
mig við hana.
---
Fall Sovétríkjanna er lýsandi dæmi um að
það sem öllum finnst mikilvægast í heimi á
einum tímapunkti er léttvægasta ekkert á öðrum.
Svona fer um allt. Sjáið bara Varnarliðið. Áratugum
saman reifst fólk um það en eftir að það
fór er öllum skítsama þetta skiptir engu máli.
Tíminn jafnar allt út og gerir jafn þýðingarlaust.
Því er glatað og tilgangslaust að eyða tíma
sínum í kjaftæði. Og flest er kjaftæði.
29.07.07
Fréttamenn athugið: Er erfitt að fylla fréttatímana
í gúrkutíðinni? Fáið þá
Steingrím Joð eða Ögmund til að þusa um það
sem hæst ber. Palestínu, Natoæfingar, bla bla... auðveld
og skilverk leið til að búa til a.m.k. 5 mínútna
leiðinda"frétt". Fréttaþusið er í boði
VG sem er með fleiri á lager ef SJ og Ö verða þreytandi.
Fjögur ár framundan af þusi, vei frábært,
gaman að vera í stjórnarandstöðu, hei.
---
Decode og Íslenskur heimilisiðnaður kynna með megnustu
fyrirlitningu safnplötuna Þetta er vonlaust, yfirgefið skútuna!
e.þ.s. Topp Fimm:
Bat
for Lashes - What's a girl to do: Bat for Lashes er Natasha Khan,
sem er tæplega þrítug og býr í Brighton.
Henni hefur verið líkt við hið heilaga þríeyki
Björk, Tori Amos og Kate Bush, en það er nú örugglega
bara útgáfufyrirtækið að búa til auðveldan
leiðarvísi fyrir tímatæpa hlustendur. Fyrsta platan
heitir allavega Fur and gold og þar má finna þetta skínandi
popplag sem er sirka 50/50 girlgroup og David Lynch (svo ég búi
til auðveldan leiðarvísi fyrir tímatæpa lesendur).
Voða fínt.
Midnight
Juggernauts - Shadows: Dystopia heitir væntanleg fyrsta fulla
plata þessa ástralska sintadansbands sem tekur fram að
ELO sé einn helsti áhrifavaldur sinn og er búið
að vera að gera andfætlinga okkar brjálaða síðustu
misserin með dansidansipoppiminn. Nú er vonandi að einhver
arðræninginn kaupi lag í auglýsingu svo bandið
fari sömu leið og samfætlingarnir Jet og Wolfmother og komist
á heimskortið. Hér er rosa nettur smellur.
Jay Reatard
- My family: Jay er pönkmenni frá Memphis, Tennissí,
sem hefur dælt út og dundað síðan hann var
15 ára 1998, bæði einn og í böndum eins og
The Reatards, Lost Sounds og The Final Solutions. Blood visions er fyrsta
sólóplatan hans og kom út í fyrra, 15 laga
popppönkplata smekkfull af hoppandi kæti og almennu rugli. Stuð.
Pissed
jeans - Bad Wind: Ímignu gallabuxurnar frá Penissylvaníu
afturhverfa til drullurokksins (sjá næsta lag) og eru að
vekja lukku með annarri plötunni sinni, Hope for men (útg.
SubPop). Spurning hvort drullurokkið komi nú sterkt inn eða
hvort þetta sé bara skammvinnur fornleifauppgröftur.
Þetta lag sleikir allavega hreðjar og textalega þykja þeir
ímignu sterkir og slaga upp í fyrstu verk Costellos þar
sem ömurlegheit þess að vera strákbjáni og
vinna í glötuðu starfi eru steikt upp úr varnarfitu
sinnuleysis og kaldhæðni (bónus: Pissed
Jeans - Ashamed of my cum, af fyrri plötunni, Shallow):
I'm always so full of cum
Never run out not even once
And I say "Hey man, don't touch that stuff"
"You know it's just not right!"
I'm always so full of cum and it makes my brain get
really numb
And I - I gotta gotta gotta gotta get something all
done
Yeah - I'm ashamed of my cum
Never satisfied, even after I'm done
I'm ashamed
And it makes me feel it everywhere
"Hey man, I don't think about that stuff"
You know I beat it beat it beat it and beat it 'til
you know that I'm done
I'm always so full of cum and it makes my brain get
really dull
You know when I think about you, it's just not right
Yeah - I'm ashamed of my cum
Never satisfied, even after I'm done
Yeah - I'm ashamed of my cum
Never run out even after I'm done
Woo, I'm ashamed of my cum
Never satisfied, even after I'm done
I'm ashamed
We're all ashamed of our cum
Never satisfied even after we're done
We're all ashamed of our cum
Never satisfied even after we're done
Killdozer
- Cotton balls: Einu sinni var drullurokk ekki viðurkennd söluvara
á markaðstorginu. Það var hressandi en breyttist með
Nirvana. Fyrir Nirvana sullaðist ameríska drullurokkið í
skítugu undirgrándi og enginn var að fylgjast með
nema tímarit eins og Forced
Exposure (kom síðast út 1993 og hefur breyst í
bráðgáfaða diska og plötusölu í
dag) og útgáfur eins og Touch
and go (enn í góðu stuði) og Amphetamine
reptile (svo til hætt). Kaldhæðni var leiðarstefið
og "mér er drullusama"-attitjúdið. Slakkerar héngu
við fót og skógarhöggsmannaskyrtur voru enn ekki
stimplaðar grugg, enda gruggið enn ekki fætt. Drullurokkið
gat af sér góðan haug af fínni tónlist
sem maður lapti innflutta sirka 1986-92. Meðal helstu snilldarinnar
má nefna Jesus Lizard, Butthole surfers, Big Black og svo hið
sexfætta skriðdýr sem er Killdozer. Frá Madison,
Wisconsin, spilandi hægt, þungt og rymjandi og oft takandi
kóverlög (bónusdæmi: Killdozer
- American pie) og oft syngjandi um sveitalubbalega hluti og með
lag um Ed Gein, sem fjöldamyrti sig í sögubækurnar
og er einn frægasti sonur Wisconsin. Þetta lag um bómull
er af plötunni Little baby buntin' og er mjög lýsandi.
Meðal annars drullurokks sé fólk komið í drullustuð
má nefna Lubricated goat frá ástralíu (sem
ég sá á tónleikum 1990 en þeir tónleikar
eru nú ekki minnisstæðir fyrir annað en risa útúrdópaða
blökkumanninn sem ætlaði að berja Grím), No trend
(mæli með hinu gullfallega Too many humans), skituuppábakbandið
Flipper og protogruggbandið Mudhoney.
28.07.07
Vér feðgar vorum á Akureyri. Höfuðborg norðurlands
á stóran stað í huga mínum, enda hef ég
örugglega farið þarna á hverju ári, fyrst
til að heimsækja ömmu og afa í Stórholtið,
síðar til að heimsækja Oddnýju systur. Akureyri
er stórfenglegt pleis enda í fegursta firði landsins,
Eyjafirði. Ég skoðaði fasteignaauglýsingar með
nokkrum áhuga í dagskrárblaðinu, þarna er
svona helmingi - 1/3 ódýrara að kaupa sér húsnæði
en á mölinni. Held að flutningur strandi þó
á Lufsinni sem vill ekki flytja úr bænum. Meðal
hápunkta í ferðinni var eftirfarandi:
* Jólagarðurinn. Alltaf sígildur og salt water taffy-karamellurnar
eru að gera góða hluti.
* Kjarnaskógur. Frábær garður fyrir alla. Lætur
Húsdýragarðinn, Öskjuhlíð og Elliðaárdal
líta úr eins og aumingja.
* Frúin í Hamborg. Skransala sem mun flytja í
stærra húsnæði í ágúst. Eigandinn
ætlar að koma upp sérstöku vinýlplötuherbergi.
Tók ágætan skrans á plötunum og keypti
fimm:
# Safnplatan Hottest Hits, From the vaults of Treasure Island - raggí
safnplata með umslagi sem ég kannaðist við frá
því í gamla daga. Merkimiði frá Vöruhúsi
Kea, fyrri eigandi: Elín Ása Geirdal.
# Sjö tomma með Change útg. Orange, Yaketty-Yak, smacketty-smack.
# Ítalska Bítlasafnplatan The
Beatles in Italy.
# Deildarbungubræður - Saga til næsta bæjar -
stuðpopp frá 1976. Merkimiði frá Hljómver
(2400 kr), fyrri eigandi Bára Margrét Stefánsdóttir.
# Fischer-Z - Word salad. Plata sem ég átti sem unglingur.
Keypt aftur til nostalgíubrigða.
* Brynjuís. Besti ís á Íslandi, punktur.
* Heilsuhornið í Glerártorgi (sem nú er í
undirbúningi að stækka um 2/3). Þarna fann ég
rótarbjór, engiferöl og fleiri exótíska
drykki sem fást bara þarna á öllu Íslandi
(sjá gos).
* Hjalteyri. Draugaleg yfirgefin síldarverksmiðja. Vildi
ekki vera þarna í myrkri. Fjaran ágæt í
kring. Þarna er líka ágætis kaffihús,
Kaffi Lísa.
* Sakka. Bær í Svarfaðardal sem við komumst í
heimsókn til vegna fjölskyldutengsla. Dagbjartur fór
hamförum á traktorum og fleiri ökutækjum auk þess
að fá egg hjá landnámshænum.
* Tók viðtal og sólópunkt við þá
stórmeistara Helga Þórsson og Rögnvald Gáfaða
úr Helga og Hljóðfæraleikurunum
og Hvanndalsbræðrum. Útkoman
verður flutt í sérstakri Akureyrar-útgáfu
af Skemmtiþættinum í dag kl. 16:08.
---
Svo komum við heim (Brú í Borgarfirði mættu
alveg hafa ekki alveg svona gömul pulsubrauð og Landnámssetrið
í Borgarnesi mættu alveg hafa fleira fólk að vinna
við matsölu. Kaffihúsið Við árbakann á
Blönduósi er þó að gera mjög góða
hluti.) og fórum á Simpsons myndina með íslensku
tali. Íslenskan böggaði mig nú lítið
nema smá fyrst og þetta er alveg ágæt mynd, segjum
3 og 4. Ekkert geðveikt meistaraverk enda erfitt að teygja formið
í heila mynd. Maður var dálítið farinn að
líta á klukkuna undir það síðasta. Þarf
að sjá þetta með ensku tali áður en ég
skrifa dóm.
25.07.07
Er ekki próteinsjeik kolvetnisjöfnun? Eða skyr og harðfiskur
frekar. Svona fæðubótarusl er nú náttúrlega
bara rusl. Einu sinni keypti ég svona Hydrokött fitubrennslutöflur
og át samviskusamlega í mánuð. Gerði ekki
djakksjitt.
---
Át á Sjávarbarnum
sem er beint á móti gamla Ellingsen sem er núna Saltfélagið.
Ég var listalaus vegna kverkaskítsins og fann eiginlega ekkert
bragð svo ég sleppi að rýna staðinn í
þetta skiptið, en ég held engu að síður
að það sé alveg hægt að mæla með
þessu. Hlaðborðið kostar 1200kall í hádeginu
sem er glæsilega gott verð því það er
svo mikið í boði. Allskonar fiskiréttir, heitir og
haldir og líka kjötbollur. Hráefnið ferskt, svaka
almennilegt starfsfólk (Magnús kokkur og félagar)
og ekkert rugl. Fer aftur og smakka þá það sem kokkurinn
kallaði hina frægu sjávarréttarsúpu. Svo
fór ég á Saltfélagið til að hlæja
inn í mig af ógeðslega dýra dótinu sem
má fá þar. Bara sökkers sem kaupa designdrasl
á svona uppsprengdu verði. Hundómerkilegur leðurstóll
á 350.000. Frekar færi ég nú til heitu landana
í mánuð með fjölsk og keypti stólgarm
í Ikea á 10.000, eða 3000 í Góða hirðinum
ekki eins og mig vanti stól svo sem. En það er nú
í lagi mín vegna þótt grey hafi fundið sér
tilgang í lífinu með því að sanka að
sér dýru dóti. Það nauðgar þá
engum á meðan. Tja nema í American Psycho. Ég
get alveg viðurkennt á mig designáhuga og væri
alveg til í að skreppa í t.d. Moma
búðina í NYC þar sem maður þarf ekki
að gráta úr sér horin þegar maður skoðar
verðmiðana. Í síðust ferð minni þangað
fjárfesti ég í úrvals Orka gúmmí
ofnahanska og glæsilegum rafknúnum saltstaut frá einhverju
voða fínu design. Nei í alvöru, ég er ekki
bara einhver Ikea gaur, þótt ég þoli ekki okur.
24.07.07
Öruggan stað til að vera á - vælið...
hefur löngum toppað auglýsinga-græna bólu-listann
en nú hefur ný auglýsing náð toppnum: Hafðu
það grillvænt og gott alla daga-vælið... er komið
á toppinn.
---
Munurinn á Rás 2 og Bylgjunni kristallast í því
að á Bylgjunni er búið að blíbba út
"fucking" í nýju Green Day-útgáfunni af Working
class hero, en ekki á Rás 2. Annað er eftir þessu.
Hvaða Íslendingur fær annars hland fyrir brjóstið
þegar hann heyrir "fucking" í útvarpinu?
---
Gott viðtal núna í Síðdegisútvarpinu:
draugfullur Megas að atast í sallarólegum Frey Eyjólfssyni.
Hápunkturinn var "Árni, Bjarni, nei Magni". Frágangur
er kominn á fóninn. Frágangur góður.
---
Næsti Skemmtiþáttur
er Akureyskur. Akureysk tónlist, akureysk óskalög og
í sólópunkti mætast tveir meistarar: Helgi Þórsson
úr Helgi og Hljóðfæraleikararnir
og Rögnvaldur Gáfaði úr Hvanndalsbræðrum.
Nýkomin er ný plata með HogH og skást of Hvanndalsbræður
er sjóðheit í verslunum. Sem sé, alveg magnaður
helvítis þáttur kl. 16:08 á Rás 2 á
laugardaginn.
23.07.07
Lúkas kominn í leitirnar. Ég nenni nú ekki
einu sinni að segja eitthvað fyndið. Stærsta frétt
dagsins er þó auðvitað að nýjan platan
með Megasi er komin í búðir, Frágangur.
---
Ef maður fer í apótek og segir ég er með
kverkaskít, áttu eitthvað? fær maður bara Strepsil
og verkjalyf. Það tottar að fá kverkaskít um
mitt sumar.
22.07.07
Rollingunum vantar greinilega aur því þeir léku
fyrir 700 bankabubba í höll í Barcelona. Heimildir eru
misvísandi um þóknun, en hún var annað
hvort 5.400.000 pund eða dollarar. Hellingsmunur þar á,
660 millur eða 322 millur. Þá vita íslenskir bankabubbar
sirka hvað kostar að fá alvöru band í partíið
sitt í staðinn fyrir glataðar lummur og drasl. Þá
er bara að byrja að safna eða hækka bara yfirdráttarvextina
og þjónustugjöldin. Koma svo!
---
Tónlist punktur is er ágætis apparat. Popparar
eru þó mishrifnir af þessu og mörgum finnst þeir
ekki fá nóg fyrir sinn svokallaða snúð. Bubbi
Morthens lætur ekki rugla neitt í sér og fór
fram á 50 kall hærri greiðslu á hvert lag en í
boði var. Þess vegna kostar hvert Bubbalag
núna 149 kall á meðan lög hinna auminganna
kosta 99 kall. (öppdeit: Djöfulsins vitleysa. Það er
fullt annað en Bubbi á 149 kall lagið, m.a.s. ég
sjálfur.
---
Sumt er þó ókeypis, eins og t.d. 290 myndbönd
sem má glápa á. Þarna eru m.a.
4
Ununar-myndbönd. Ég var nú búinn að gleyma
tilvist margra þeirra. En þetta er ekki allt, mig rámar
í 5 Ununar-myndbönd í viðbót: Ísklumpavideóið
sem Sjón leikstýrði. Það tók heilan
dag í frystigámi og kostaði 500 þúsund kall
sem var álíka mikið og ég hafði í kaup
það árið (1996 eða 7). Svo held ég að
það hafi aldrei verið sýnt, kannski einu sinni. Myndband
við Ýkt döpur sem var gert á Rúv og sportaði
Heiðu í hárgreiðslustól. Myndband við
Sumarstúlkublús líka af Rúv. Sportaði mér
með hárkollu. Annað videó við Lögungafólksins
(eða ensku útgáfuna Kung Fu Blue) sem gerðist á
Prikinu og var með voða kúng fú. Líklega var
það besta videóið okkar. Svo mesta flippið: Ást
í viðlögum myndband sem Jóhann "Rækja" Sigmarsson
leikstýrði. Það tók heila nótt í
Laugarásbíói. Þór nennti ekki að
mæta svo það var staðgengill í fötunum
hans. Jonni lagði mikinn metnað í þetta og lagði
svaka lestarteina um allt bíó. Þeir voru svo aldrei
notaðir. Þegar myndbandið var loks tilbúið biðu
hljómsveitarmeðlimir spenntir og leist ágætlega
á framan af. Eftir sirka 2 og hálfa mínútu
af 4 mínútna lagi kláraðist myndbandið skyndilega.
Hva, er ekki meira?, spurðum við. Æi nei, svaraði Jonni,
þessi myndbönd eru hvort sem er aldrei spiluð í fullri
lengd í sjónvarpinu!
---
Hér er fullum afköstum haldið og nú kynnir Rio
Tinto með stolti safnplötuna Ef þú ert á móti
áli flyttu þá til Azerbajan, hippabeljan þín,
eþs Topp 5:
Ragnhildur
Gísladóttir - Draumaprinsinn: Geðveikt flott
lag og ýkt töff örlí 80s hljóðgerflaútsetning
eftir meistara Magnús Eiríksson. Var í súrleginni
kvikmynd Hrafns Gunnlagussonar, Okkar á milli (í hita og
þunga dagsins) 1982. Lagið er eitt af 100 á nýja
80's pakkanum frá Senu. Svo haldið sé áfram að
minnast á Unun, þá lékum við þetta
lag einu sinni á tónleikum í Háskólabíói
árið 1995. Þá var verið að veita "Hallbjörninn",
verðlaun í stuttmyndakeppni menntaskólanna, í
fyrsta og eina skipti. Mig minnir að við höfum líka
spilað Contact með B.Bardot og eitt enn, líklega Einkalíf.
Valgeir
Sigurðsson - Evolution of waters: Og meiri Ununar-tengsl: Hér
er hljómborðsleikarinn Valgeir með lag af sinni fyrstu sólóplötu.
Getum Valgeiri orðið:
"Ég kláraði hana í vor en þetta er fyrsta
sólóplatan mín og hún er gefin út af
mínu eigin útgáfufyrirtæki," segir Valgeir en
platan heitir hinu stóra nafni Ekvílibríum. Þegar
hann er beðinn um að lýsa tónlistinni segir hann:
Þetta er einhvers konar blanda af akústískum og elektrónískum
tónum og flest lögin eru instrúmental. Þó
eru fjögur sem sungin eru af gestasöngvurum en það
eru þeir Will Oldham eða Bonnie Prince Billie", Don MCarthy
og Ástralinn J. Walker sem syngja inn á plötuna fyrir
mig." Hér er annað lagið sem Bonnie syngur en platan kemur
út 9. ágúst.
Jan
Mayen - The sexual connection: Örstuttur en sprengimagnaður
tryllir af næstu plötu Jan Mayen, So much better than your normal
life, sem er væntanleg í ágúst. Þar er
stíft tekið áðí enda gæðaplötu
að fylgja, hinni ýkt kúl fyrstu plötu JM. Fylgist
spennt með.
Bryndís
Jakobs og Shady - Ljáðu mér eyra: Veðramót,
kvikmynd Guðnýjar Halldórsdóttur um stúlknahryllinginn
á Breiðavík (sem tók víst við þegar
strákahryllingnum var lokið) verður frumsýnd 7. sept.
Tónlistina gerðu mæðgurnar Ragga og Bryndís
og dregur hún dám af períódu myndarinnar, örlí
seventís. Hljómsveitin sem leikur undir heitir SHADY (gott
nafn!). Hér er sýnishorn úr sándtrakki. Bryndís
og Dóri DNA eru skrifuð fyrir lagi og texta.
Trúbrot
- Ég sé það: Talandi um Shady
(Owens) þá er nú ekki hægt annað en að
leyfa henni að eiga síðasta orðið. Hér er
magnað lag sem hún dúettar með meistara Rúnari
af sjötommu Trúbrot frá 1970. Hitt lagið á
plötunni er meistaraverkið Ég veit þú kemur.
Andrésar andar hljóðin í endanum á laginu
eru auðvitað hliðarverkanir grasneyslu en á þessum
tíma var Trúbrot svo mikið í grasagarðinum
að Vikan birti stríðsfyrirsögnina: Já, við
reyktum marijuana. Því miður varð viðvera Shadýar
ekki nógu mikil í íslensku rokki og hún flutti
til Bandaríkjanna þaðan sem pabbi hennar var.
21.07.07
Þetta er úr Blaðinu í dag:
Listakonan Brissó
er að gera góða hluti.
---
Fór í bústað hjá Krissrokk
sem var voða fínt þar til Ísland breyttist í
Ísland aftur með súld. Þarna á Borg í
Grímsnesi var sundlaug og fjall sem ég notaði og hef
sett í viðeigandi
síðu. Bústaðurinn var fínn en umhverfis
allt manngert og ekki fullgert. Þetta var dálítið
eins og að vera í Norðlingaholti, bíst ég
við. Óþarfi að örvænta því
18 holu golfvöllur ku á leiðinni. Talandi um golf þá
eru það nú meiri helvítis fíflin sem ráða
yfir golfútsendingum í Ríkissjónvarpinu. Maður
ætlar að sýna stráksa lögbundið barnaefni
kl. 18 en nei nei, bara eitthvað helvítis golf í gangi
síðan um morguninn. Löngu kominn tími til að
Rúv annað hvort komi sér upp sérstakri íþróttastöð
eða leyfi Sýn bara að hafa þetta.
---
Í Laugardalshöll er Sena með markað. Keypti Simpsons
8 til að komplítera (sæmilegt verð 3999) en annars
er þetta nú engin stórkostlegur snilldarmarkaður.
Sérstaklega ekki þegar maður hefur gefið cda upp á
bátinn.
---
Í dag kl. 16:08 er Skemmtiþáttur og Orri
Harðarson og Ívar
Bjarklind ætla að keppa í sólópunkti.
Óskalögin verða úr Slakka (samnýttar sumarleyfisferðir)
og Topp 10 að þessu sinni verður yfir óvænta
arftaka Emilíu í Nælon.
---
Dagbjartur er í sumarfríi, Elísabet liggur og
sýgur Lufsuna svo við feðgar erum í allskonar aksjón.
Fórum í gær til Kef og nutum listisemda bæjarins.
Því miður var Vatnaveröldin í sundlauginni
lokuð vegna þrifa og þessi sundlaug fær því
ekki dóm að svo stöddu. Leist nokkuð vel á hana
samt. Ólsen Ólsen er góð hamborgarabúlla
en þeir eru með Rifja-Ólsen og allskonar "Ólsen"
sem er það sama og Hlölli og Nonni í höfuðborginni.
Fínn staður. Ekki er hægt að segja það sama
um sjoppuna Nýung sem samkvæmt lókalíbúa
átti að vera með besta ísinn. Starfsmenn Hollustuverndar
kæmust í spikfeitt þar. Rör var sprungið svo
gólfið var á floti. Ísinn var volgur og frá
MS sem er ekkert spes. Þarna voru svo tvær gríðarlega
hættulegar tyggjókúluvélar. Maður borgar
50 kall fyrir eina kúlu sem kemur út eftir ferðalag inni
í vélinni. Önnur vélin hjó í sundur
kúluna og þegar ég borgaði aftur festist nýja
kúlan í leifunum af gömlu kúlunni. Hér
var Dagbjartur orðinn nokkuð fúll. Hin vélin skilaði
reyndar kúlu en kúlan var mygluð með stærðar
myglubletti. Ég hélt að tyggjó gæti ekki
myglað en það er greinilega allt hægt í Kef.
Kannski þetta væri gott mottó fyrir Kef:
Komið til Kef - þar sem tyggjókúlur mygla
Alls ekki verra en mottó Bolungarvíkur:
Endastöð sem kemur á óvart
Starfsstúlkan óð bleytuna til að endurgreiða
mér tyggjókúluútgjöldin og var ekkert
nema almennilegheitin. Síðasta stoppið var svo pólverjabúðin
Jubo á Iðivöllum. Þetta er önnur tveggja pólskra
búða í Kef. Fjárfest var í malt-stælingunni
Karmi og allskonar exótísku nammi. Allt var þetta hræbillegt
enda varla hægt að bjóða Pólverjum sem eru
vanir hræódýrum mat annað. Keflavík er magnaður
staður og hefur nokkurn veginn haldið exótíkinni
þrátt fyrir að Kaninn sé farinn.
---
Úrslit eru ljós í HVAÐ ER FALLEGASTA ORÐIÐ
Á ÍSLENSKU:
HNAKKASPIK
hefur sigrað með yfirburðum, 22% atkvæða. Silfurskotta
þykir næst fallegast (15%) en Leisíboj og hið gullfallega
Völsabrók (e. Strap-on dildo) reka lestina með 4%. Ég
þakka þeim sem kusu og þeir sem verða dregnir úr
pottinum fá bréf um vinning bráðlega.
17.07.07
Ég hélt að Ísland væri hamingjusamasta
þjóðríki í heimi en samkvæmt þessu
erum við bara í 64. sæti á eftir allskonar liði,
t.d. bæði Kyrgyzstan og Hondúras. Hvernig stendur á
því?
---
Húsnæði Safnarabúðarinnar er til
sölu. Búðin hefur verið starfandi í ein
34 ár og er mikil stofnun í tónlistarlífi landsins,
eða öllu heldur verslunarsögu landsins. Nú er spurning
hvort einhver sjái sér leik á borði og taki við
búðinni eða hvort henni verði lokað og þarna
komi matsölustaður eins og hvatt er til í auglýsingunni.
---
Hvað er fallegasta orðið á íslensku? Taktu
þátt í laufléttri sumarkönnun. Allir fara
í pott sem verður dregið úr. Fimm úr þeim
potti fara í annan pott sem síðan verður dregið
úr. Sá heppni fer aftur í fyrri pottinn og má
ekki eiga von á neinu.
16.07.07
Þegar ég vaknaði brann ein spurning á mér:
Er Elízabet Taylor lifandi eða dauð? Eftir gúggl
hef ég komist að því að hún er lifandi.
---
Hefði ég vitað að þessi hola sem var verið
að grafa út í Viðey væri fyrir friðarsúlu
Yókóar Ónó hefði ég án efa
veitt henni meiri athygli.
---
Mikið væri nú gaman ef hægt væri að
fletta blaði án þess að sjá út undan
sér myndir af viðbjóðspakkinu Beckham. Í sjónvarpinu
sá ég út undan mér það nýjasta
í smáhundatískulínu Parísar Hilton.
París má eiga það að hún er nógu
heimskuleg í framan til að vera meinleysisleg en Viktoría
lítur út fyrir að ömurlegasta tík í
heimi. Æi, nú hef ég dregið sjálfan mig
niður á lægsta mögulega plan. Ég sem ætlaði
að komast í gegnum lífið án þess að
skrifa nokkurn tímann "París Hilton".
15.07.07
Hérna ætti ég kannski að vera með einhverja
lista yfir bestu plötur ársins til þessa, vegna þess
að árið er hálfnað, en sannast sagna dettur mér
ekkert í hug í fljótu bragði nema Of Montreal
platan og Battles platan. Bestu plöturlistar bíða því
áramótanna. Svo er þessi plötuhugmynd alveg á
útleið, eins og ég hef bent á, og hlustunarmynstrið
meira í shuffle og einstökum lögum en 10-15 laga plötuflykkjum
þótt hljómsveitir séu flestar fastar í
því fari ennþá. Reyndar hafa Ash gefið það
út að nýja platan þeirra sé sú síðasta
og héðan í frá geri þeir bara lög -
"The way people listen to music has changed, with the advent of the download
the emphasis has reverted to single tracks", einmitt, en hverjum er nú
kannski ekki alveg sama hvað Ash gera. Fáð'ér bara
Topp fimm:
The
Brunettes - Structures and cosmetics: Ný-sjálenskt krúttdúó
sem hefur sungið um ís og nammi og fleira krúttlegt síðan
um aldamót. Fyrsta platan þeirra, Holding hands feeding ducks,
var mjög fín, en á nokkrum epum og einu lp enn var svo
sem ekki mikið í gangi. Nú hefur Sub Pop gefið út
nýja plötu, Structures and cosmetics, þar sem dúóið
spýtir í lófana. Hér er hið dimma titillag
sem er ekki lýsandi (restin er mun meira djollí), en flott
engu að síður og hljómar eins og úrvalslag
með Nancy og Lee.
Caribou - Eli:
Caribou er Daniel V. Snaith, Kanadamaður að nálgast þrítugt
sem hefur gert haug, fyrst undir nafninu Manitoba (þurfti að
breyta um nafn þegar Handsome Manitoba úr prótópönkhljómsveitinni
The Dictators hótaði lögsókn. Ég og Steini
vorum einmitt leiddir að bar Handsome í pönktúrnum
i NY). Plata Caribou frá 2005 The milk of human kindness var einmitt
ein af bestu plötum þess árs (#6 sé ég
í gömlu bloggi)
svo það var tilhlökkunarefni að tékka á
nýju plötunni Andorra sem nú er komin. Hún er
fjandi góð. Melódískt og ljúfpoppuð,
minnir oft á eðal sólbakað barrokkrokk eins og Left
Banke, The Zombies eða stöffið hans Curts Boettchers. Samt
er þetta nýtt stöff og engin kopíulæti í
gangi.
Digitalism
- Idealistic: Þýskir skrattar sem gefa út á
franska Kitsuné Music merkinu. Ekki mjög ósvipaðir
örlí Daft Punk þessir Digitalism drengir og fyrsta platan
þeirra, Idealism, ágæt.
Dragonette
- I get around (Midnight juggernaut mix): Til þess að hafa
góðan hljóðheim í ræktinni er ég
farinn að leita uppi góðar safnplötur. Kitsuné
Maison vol. 4 er ein slík og þar er margt um fína spretti
sem má spretta úr spori við. Kanadíska hljómsveitin
Dragonette sem hér fær gasagóða snyrtingu frá
hinum áströlsku Midnight Juggernaut (sem koma með fyrstu
plötuna sína bráðlega) ku vera á uppleið
og hefur staðið í upphitunum fyrir Duran Duran, New Order,
Basement Jaxx og Sugababes les ég á wikipedia sem þú
getur sjálf/ur lesið ef þú vilt vita meira.
Cut
copy - Going nowhere: Ástralskir strákar í svona
80s áhrifuðum diskónjúveiffíling eins og
annar hver maður er í í dag. Af annarri nýlegri
safnplötu, Digital penetration vol. 1, sem er ekki síður
spretthörð.
---
Ég vakna yfirleitt á milli 5 og 6 og sé því
stöff út um gluggan sem flestir sofa af sér. Núna
er náttúrlega slangur af rennandi-af-unglingum og liði
að drattast heim til sín, sumir einir, sumir með deyja-ofan-á
með sér. Þá þakka ég hamingjunni fyrir
að þessu leiðindaskeiði sé lokið í
lífi mínu og að það séu liðin ár
síðan ég fór út á hið svokallaða
líf (ef undan er skilið hið árlega fyllirí
sem í fyrra var farið í Liverpool en er ekki líklegt
að af verði í ár vegna stækkunar). Annað
er þó mun furðulegra og það er það
svakalega magn af Kínverjum sem ganga hér fyrir gluggann
og allir eru þeir með myndavélar með sér. Árrisulir
ferðamenn eða agentar frá kínverska sendiráðinu
að njósna? Og þá að njósna um hvað?
Hulin ráðgáta.
---
Nú er Siggi pönk
orðinn hættulegasti maður á landinu, skilst mér.
Ýmist á manni að finnast "aðgerðir" SavingIcelandtrúðslæti
eða maður er smáborgari
ef manni finnst þetta trúðslæti. Mér einhvern
veginn stendur á sama, væri kannski fúll ef ég
væri að flýta mér og lenti í miðri skrúðgöngu,
en blessaðir unglingarnir mega flippa fullir af heilagri reiði
fyrir mér, eins og hvert annað götuleikhús frá
Hinu húsinu. Það verður 90% af þessu liði
komið í sorglega millistéttapakkann fyrir fertugt hvort
eð er og ágætt að láta minna sig á að
það eru ekki allir vafrandi í Kringlunni með slefuna
á hökunni. Þó sú slefa sé reyndar
subbulega sæt, enda mettuð allsnægtum nútímans.
Eins gott að sökkva sér í þær allsnægtir
því þær standa stutt og við munum öll
farist í eyðimörk global warming. Eða ekki.
Svo er þetta eflaust gott fyrir fréttastofur í gúrkunni
sem geta þóst vera rosa merkilegar í beinni og allt
og hvílt sig aðeins á gassniffandi hálfvitum á
meðan.
14.07.07
Bráðum fá eigendur Aygo og fleiri smábíla
að leggja frítt í miðbænum. Væri ekki
góð hugmynd að þeir sem eru með dauða máva
á húddinu fái líka að leggja frítt?
---
Fréttamenn Stöðvar 2 athugið: erótískt
nuddandi mellur á Egilsstöðum skv. smáauglýsingum
Blaðsins. Drífa sig á staðinn með kameruna.
---
Kl. 16:08. Skemmtiþáttur á Rás 2 með
Stafrænum Hákoni og Sindra Seabear í æsispennandi
sólópunkti.
13.07.07
Ég get ekki af því gert en mér finnst eins
og allir sem kenna sig við mæður sínar hljóti
að hafa verið misþyrmt af föður sínum í
æsku eða átt ömurleg samskipti við karlinn. Líklega
er ég þó bara fastur í hlekkjum vanans.
---
Íþróttahelmútar hafa líklega aldrei
heyrt minnst á máltækið sá vægir sem
vitið hefur meira.
---
Líklega ætti ég hafa þriðja bloggið
um eitthvað sem er "líklega eitthvað" eins og t.d. að
líkt og Jónas finnist mér það ekki taka
því fyrir minna en þrjár færslur á
dag. Eða bara sól.
12.07.07
Laufléttri og sumarlegri smásögu minni sem ég
sendi inn sem Bakþanka dagsins var vitanlega hafnað enda vill
blað sem er sent á öll heimili ekki hafa menn að fá
úronum á baksíðu sinni fyrir framan börn
og gamalmenni. Þetta
kom þá í staðinn. Hér kemur bakþankinn
sem birtist ekki, fyrir þig, blogglesandi góður, sem ert
náttúrlega hér á eigin ábyrgð og
ekki mér að kenna þótt þú sjáir
þetta. Þetta er svona létterótísk saga
í anda Ellýjar, nema bara með körlum svo þetta
er viðbjóður.
Fyrsta íslenska klámmyndin
Þetta var stór dagur hjá Sigga. Allt hans líf
hingað til, eða að minnsta kosti síðan hann fann
miðjustykkið á sér rísa í fyrsta sinn,
hafði verið upphitun fyrir það sem nú var um það
bil að gerast. Öll fyrri afrek hans þegar hann fékk
áritunina hjá Ron, þegar hann opnaði síðuna,
þegar hann lét búa til bolinn allt var þetta
hjóm eitt miðað við drauminn sem nú var um það
bil að rætast.
Hann var í bílskúrnum hjá Óla vini
sínum og handlék kameruna spenntur. Óli og annar vinur
hans, Gummi, sátu vandræðalegir á fermingasófanum
í nærbuxum og sokkum einum klæða. Ertu nokkuð
með flöffer?, spurði Óli til að brjóta ísinn.
Ha ha, kannski mömmu þína? botnaði Gummi og hló.
Þegiðu fávitinn þinn!, skipaði Siggi fúll
en tók snöggt viðbragð þegar bankað var á
bílskúrshurðina. Jæja félagar, nú
fer að hitna í kolunum, sagði Siggi og opnaði út.
Helvítis vonbrigði. Þetta var bara karlinn hann Jónas
sem Siggi hafði einu sinni unnið með á bensínstöð.
Andskotann var hann að vilja hér? Hafði Siggi ekki afþakkað
aðstoð hans kurteislega? Nei, andskotinn! Karlhelvítið
reif sig úr öllu á mettíma og hlammaði sér
á milli Óla og Gumma, strjúkandi á sér
skottið.
Jæja, hver eru beibsin?, spurði Jónas iðandi í
skinninu og bætti við: Er þetta vígvöllurinn?
Hann hnykkti hnakkaspikuðu höfðinu í áttina
að dýnunni sem stóð í horni við hliðina
á vetrardekkjastæðu. Ha, jú, sagði Siggi. Tja,
stelpurnar hljóta að fara að koma, en hérna, ég
var nú eiginlega ekkert búinn að samþykkja að
þú fengir að vera með.
Hvað meinarðu?, spurði Jónas reiðilega og greip
ósjálfrátt um hnén á Óla og Gumma.
Þeir kipptust við og litu ringlaðir hvor á annan.
Hví ættirðu ekki að vilja að landsins mesti foli
leiki í þessari mynd þinni? Ég skal segja þér
það karlinn minn að myndin þín verður algjör
hittari með þetta í henni. Jónas spratt á
fætur og greip þéttingsfast utan um þettað
á sér til að leggja áherslu á orð sín.
Eitthvað misreiknaði hann sig því snögglega lippaðist
hann niður, rak upp stutt gól og afgreiddi ekkert sérlega
snyrtilega sendingu yfir gólfið og skálmarnar á
buxunum hans Sigga. Honum varð svo mikið um að hann afgreiddi
sendingu úr öðrum enda yfir Jónas.
Djöfulsins rugl er þetta!, vældi Óli og skimaði
eftir gólftusku. Þá gall í Gumma: Varstu ekki
með videóið í gangi, Siggi? Þetta smellpassar
í viðbj-flokkinn!
---
Viðey hefur lítið skánað. Sá hvergi
þessi seglhjól sem eiga að vera þarna. Hinsvegar
mátti fá hjól ókeypis sem var ágætt.
Alltaf rok í þessu vindrassgati. Breyta þessu bara í
gólfvöll eða eitthvað.
---
Ég var nú bara að komst að því núna
að um Gissur Björn Eiríksson er fjallað á hinu
stórskemmtilega 365 projecti. Hér
er það. Og það sem meira er þá er 365
prójektið nú aftur farið í gang fyrir 2007.
11.07.07
Tilkynning:
Sjöttu Skemmtiþátturinn
Skemmtiþáttur Doktors Gunna er á dagskrá
Rásar 2 á laugardögum. Í næsta þætti
(14.07.07) verður magnað fjör, fastir liðir eins og klikkaðasta
lagið, topp 10 og óskalög, sem að þessu sinni
eru óskalög Ræbbbla. Í spurningakeppninni Sólópunkti
takast á þeir Sindri Már Sigfússon í
hljómsveitinni Seabear
og Ólafur Josephsson sem er hljómsveitin Stafrænn
Hákon. Hljómsveitin Seabear sendi frá sér
sína fyrstu plötu á dögunum, The Ghost that carried
us away, en fimmta platan með Stafrænum Hákoni var að
koma út og heitir Gummi. Skemmtiþátturinn hefst strax
á eftir fjögur fréttum og stendur til kl. 18.
---
Fólk þarf að vera sérlega miklir fávitar
til að ég taki eftir því. Ég hef t.d. margoft
farið í TGIF og ekki fundist ég vera umkringdur spikfeitum
heilaleysingjum sem hafa í mesta lagi lesið DaVinci lykilinn.
Ég sé að nágranni minn Ágúst
Borgþór lenti í að vera næstum kafnaður
í fávitahrúgu og blogg hans um það rataði
í Blaðið. Skemmtilegast í þessu öllu er
komment einhvers Leifs sem tekur upp hanska meintra fávita og skrifar
langa færslu þeim til varnar. Ah internetið, er það
ekki yndislegt?
---
Ef ég væri rasisti myndi ég benda á Naustið,
sem nú lítur út eins og kínverskt hof, og segja:
Sjáiði! Sjáiði! Fæðingastaður kokteilsósunnar
kominn í soyasósuna!
---
Dollarinn í sögulegu lágmarki og ef ég væri
sniðugur ætti ég núna að kaupa eitthvað
frá USA áður en tekið verður fram fyrir hendurnar
á Davíð Oddssyni og gengið lagfært. Dollar
á 60 kall er grín. Mér dettur náttúrlega
ekkert skárra í hug en að kaupa mér gítar
og er dáldið heillaður af eftirlíkingum Eastwood
á Mosrite og Airline gíturum. Þetta eru gítarar
sem eru eins og fiftís drossíur með strengi, sérstaklega
þotuhönnunin hjá Airline. Líklega ódýr
merki upphaflega en nú eru orginal gítarar rándýrir
og sjaldséðir. Johnny Ramone kom Mosrite á kortið
og Jack White hamrar jafnan á rauðan Airline. Þess má
geta að Danny Pollock átti svipaðan Airline gítar
og þótti mikill viðburður að sjá hann spila
á gítarinn með Utangarðsmönnum. Skömmu
síðar var gítarinn kominn í hendurnar á
Langa Sela með Oxzmá. Spurning hvar þessi eini Airline
Íslands sé í dag? Ekki er vitað til þess
að Mosrite gítar hafi komið til Íslands.
10.07.07
Dagbjartur í sumarfríi og ég í sumarfríi
og allir í sumarfríi. Pönkararnir í Ræbbblunum
voru ekkert nema almennilegheitin og skófu drulluna af hjólinu
mínu. Gerði óskalög Ræbbbla með þeim
í leiðinni. Vér feðgar settum loft í dekkin
á leiðinni heim. Skömmu síðar hvellsprakk á
framhjólinu og við í Örninn eftir nýju dekki
enda þetta orðið 10 ára og að niðurlotum komið.
Alltaf gaman að hjóla. Fórum líka í Löður
en þar getur maður verið Karíus og Baktus með
brjálaðan tannbursta fyrir utan bílinn. Hjóluðum
svo oní fjöru. Hvar er flottasta fjaran krakkalega séð
með mest djúsí stöffinu? Ægisíðan
er ágæt. Maður ætti kannski að fara að tékka
betur á fjörum í nágrenninu. Sá mann með
mótmælaskilti fyrir framan tryggingafélag í
Ármúla. Telur að á sér hafi verið brotið.
Þá eru komnir tveir með skilti í bænum, þessi
og Helgi Hós. Vantar bara einn í viðbót og þá
væri hægt að gera "óskalög manna með mótmælaskilti".
Keypti pólskar pylsur frá Kjarnafæði. Samt er ég
eiginlega á móti þessu Kjarnafæði kompaníi
vegna asnalegu auglýsinganna með tannskakka stráknum
sem klínir snyttu framan í sig í danskri snyttubúð.
Á það að vera lystaukandi? Keypti þrjá
fulla poka af mat og drasli og auðvitað í Bónus.
Það er geðveiki að versla annars staðar. Ég
hugsa þegar ég kem að kassanum með fullan vagn, jæja
þetta kostar 8000 kall. En svo kostar það alltaf minna,
kannski 5000 kall. Húrra fyrir Bónus. Mér er skítsama
þótt þeir steli sláttuvélum frá
sjálfum sér. Svo er Jóhannes alltaf að raða
í hillur þegar honum leiðist. Ætli Jóhannes
megi ganga inn í allar Bónus búðir á landinu
og byrja að raða í hillur? Það sást til
hans nýlega í Bónus á Akureyri þar sem
hann staflaði klósettpappírsrúllum í hillur.
Jón hlaupari stóð rétt hjá og glápti
á hann stóreygður. Þetta ætti Björgólfur
(hinn vinsæli millinn) að gera líka. Kannski leysa bankagjaldkerana
af annað slagið. Maður mætti og þá væri
bara Björgólfur í gjaldkerastúkunni í
teinóttu og búinn að setja upp lítið bankamannakaskeiti.
Krónan á ekki skít í Bónus, miklu minna
til og dýrara. En auðvitað fæst ekki allt í
Bónus, sérstaklega eitthvað gúmmilaði sem
maður þarf. Og maður þarf gúmmilaði því
lífið er of stutt og tilgangslaust til þess að sleppa
því að fá sér gúmmilaði. Það
mætti halda að ég sé einhver sökker fyrir
Bónusfeðgum, en Hagkaup er auðvitað þar sem er
skemmtilegast að versla. Ætli Hagkaup í Kringlunni sé
ekki uppáhaldsbúðin mín, eða í Smáralind.
Þetta á auðvitað ekki skít í stórverslanir
erlendis, stenst hvorki samanburð úrvals- né verðlega,
en á íslenskan mælikvarða eru þessar búðir
mest djúsí. Ég gef ekki mikið fyrir okrið
í Nóatúni. Þangað er ég hættur
að fara til annars en að kaupa Wrigleys
tyggjó og Nutella. Það
er ítalskt súkkulaðismjör en ekki franskt eins og
ég hélt (svona lærir maður alltaf eitthvað
nýtt með hjálp internetsins). Einhverra hluta vegna fæst
þetta ekki í Baugsbúðunum. Talandi um Ítalíu
þá hef ég bara aldrei komið þangað, hvað
þá til Grikklands, þaðan sem nú berast nú
fjölskyldulífslýsingar daglega í boði Egils
Helga. Maður þarf endilega að tékka á þessum
slóðum. Ítalskur kúltúr er nokkuð traustur,
Pasolini og Fellini náttúrlega, maturinn, kaffið, gellurnar
og vespurnar, en lítið kannski að gerast þarna í
músik, tja jú jú, Morricone og ítalskt diskó
er nú ekkert slor. En Grikkir, hvað hafa þeir greyin?
Feta ost og Lesbos? Maður þarf að skoða þetta allt,
það er ljóst. Hér er að lokum auglýsing
fyrir tónleika sem fara fram á morgun. Ungdeild Ásatrúara
(sem ég er í engum tengslum við) heldur þetta og
hin frábæra hljómsveit Pönkbandið Fjölnir
treður m.a. upp:
09.07.07
Í dag eru bestu giggin sem tónlistarmenn fá þau
sem fara fram fyrir ríkukallanna í veiðihúsunum
þeirra eða í veislum erlendis. Menn fá auðveldlega
200kall fyrir veiðihúsagigg og ég veit ekki hvað,
millu?, fyrir veislu. Það þarf að hjakka ansi lengi
á Players til komast í svona verð. Verst að þessir
ríkukallar eru náttúrulega svo yfirgengilega plebbalegir
að vilja bara fá Nínu aftur og aftur og aftur. Það
er eina lagið sem þeir þekkja og elska. Stebbi og Eyvi
eiga því eiginlega þennan markað aleinir eða
strákarnir í Dúndurfréttum sem geta hermt eftir
öllu, þar á meðal Stebba og Eyva. Ónefndur
tónlistamaður sagði mér að hann hefði oft
tekið svona gigg en hreinlega hætt að nenna því
þrátt fyrir fúlgurnar. Þarna væru alltaf
sömu karlarnir og sömu kerlingarnar þeirra drekkandi sömu
drykkina á sama fylliríinu biðjandi um Nínu aftur
og aftur og aftur. Yfirgengileg leiðindi. Ef ég væri ríkikall
fengi ég Insol í veiðihúsið mitt eða Gissur
Björn með skemmtarann. Eða bara Stefán G með bassann.
Hmmph, drengur minn.
---
Krípí þessi kross með ónýtu bílunum
upp á á leiðinni austur fyrir fjall. Þar var tilkynnt
um 2 látna þegar við fórum austur í grill
í bústað hjá tengdó en orðnir 3 látnir
þegar við fórum til baka. Ætli skiptarinn sé
alltaf á standbæ á bakvöktum?
---
Enn bætist í fríðan flokk documenta um tónlistarfólk
á brúninni því fyrir nokkru kom út You're
gonna miss me um Roky Erickson. Roky þessi er geðveikur sýruhaus
og sagður hafa fundið upp sækadelíuna með 13th
floor elevators. Í svipuðum dúr má benda áJandek
on Corwood um hinn dularfulla og skemmtilega hundleiðinlega Jandek,
The
devil and Daniel Johnston um geðveika öðlinginn Daniel;
Derailroaded,
um hinn geðveika og bitra Wild man Fischer. Ég á nú
bara þær tvær síðast nefndu en stefni á
hinar líka.
---
Um daginn vatt sér að mér maður í banka
og fór að ræða músik. Kom fram í máli
hans að nokkrir Íslendingar hefðu í Lundúnarferð
1965 séð bæði Bítlana og Rolling Stones troða
upp. Einn af þeim mun hafa verið Halldór Ásgrímsson.
08.07.07
Live earth fór alveg framhjá mér fyrir utan að
kl. sirka 09 í gærmorgun sá ég einhverja japanska
þungarokkara skaka sér við ruslatunnuendi. Ég var
líklega eina mannveran á skerinu sem sá það
atriði. Klukkan sirka 23.30 opnaði ég aftur og þá
voru FOB að taka ruslatunnuendi.
---
Vinur minn Steinn Skaptason hefur loksins opnað vefdagbók
hjá Mogga. Steinn er sérfræðingur í
íslenskri poppsögu eins og þeir vita sem sáu til
hans í Popppunkti um árið. Æfingahúsnæði
og hljómsveitarútur eru honum hugleikin fyrirbæri og
fyrsta færslan er einmitt um æfingahúsnæði
í Kópavogi á 8. áratugnum. Þetta verður
eflaust almögnuð vefdagbók fyrir rest.
---
Ég ætla að gifta mig í dag. Nei segi svona.
07.07.07
Skemmtiþáttur í dag kl. 16:08! Kolbrún úr
Myst mætir Kötu úr Mammút í Sólópunkti,
óskalög sóldýrkanda í Nauthólsvík,
Topp tíu - stystu íslensku plöturnar, og margt fleira!
---
En nú: Topp 5imm enn og aftur og nú erða bara glænýtt
og undursamlegt íslenskt efni:
Megas
- Freyjufar: Eins og ég segi þá er Megasarfár
í aðsigi. Hér er sýnishorn af Frágangi.
Ég hlakka til að kaupa mér eintak og liggja með textablaðið
(sem vonandi fylgir með) fyrir framan mig. Glæsilegt! Megas loksins
í tónrænu lúxusumhverfi. (úr fréttatilkynningu)
Frágangur,
ný plata Megasar og Senuþjófanna kemur í verslanir
23. júlí næstkomandi. Senuþjófarnir eru:
Guðmundur Pétursson, Guðmundur Kristinn Jónsson,
Sigurður Guðmundsson, Nisse Törnqvist og Mikael Svensson.
Upptökur fóru fram í Hljóðrita Hafnarfirði.
Fyrstu stórtónleikar Megasar og Senuþjófanna
verða í Bræðslunni Borgarfirði Eystri laugardagskvöldið
28. júlí. Þar munu Megas og Senuþjófarnir
leika lög af Frágangi ásamt úrvali af eldra efni
Megasar. Lögin á Frágangi eru:
Og umslagið lítur svona út:
Þetta er fyrri Megasarskammturinn í ár, platan
Hold er mold kemur í haust. Eins og áður hefur komið
fram fjallar eitt lagið á Frágangi um feril Bubba og
annað um mök við Silvíu Nótt. Í Megasarfréttum
má bæta við að Megas syngur lag á Íslandslögum
7, smekklegri safnplötu sem Björgvin Halldórsson sér
um. Megas er víst gríðarlega skýrmæltur
í þessu lagi og mun ástæðan vera sú
að hann var með glænýjar tennur þegar upptakan
fór fram.
Morðingjarnir
Eiturlyfjafíklar: Pönkræflar með glænýtt
og hressandi gott pönklag. Jafnvel áhrif frá Fræbbblunum.
Ekki er það verra. Spilirí framundan í hinu æsilega
þungapönkfestivali Eistnaflugi
um næstu helgi. Morðinginjaspeis.
The
Way Down - Bring me the sun: Nonni Dead
er kominn í útgáfu með Dead Records og fyrsta
afurðin er 3 tommu 9 laga epið See you in hell með The
Way Down, sem er tríó Ara Eldons, Riinu og Magga trommara
úr Bleiku böstunum. Eins og heyrist er ekkert verið að
sækja vatnið yfir lækinn heldur keyrt á grómteknum
eðalheitum. Útkoman (pott)þétt.
Stafrænn
Hákon - Svefn: Hinn svifgjarni og valíum bryðjandi
tónlistamaður Stafrænn Hákon færist meira
í fang með hverri plötu og nú er sú nýjasta
komin út og heitir Gummi. Fimmta platan hans, takk fyrir, og nú
er meira að segja sungið í flestum lögunum. Í
laginu hér, Svefni, leggur Birgir í Ampop sitt til málanna
og kemur öllum í háttinn á mettíma. Góða
nótt! (Heimasíða).
Curver
Föstudagur: Curver
með 10 ára gamalt unglingaástarlag af Sjö plötunni,
nú endurútgefin í tilefni dagsins. Curver fagnar útgáfunni
kl. 19 á Sirkus Í KVÖLD. Þess má geta að
sýnishornið hér er LP ripp sem ég gerði en
ekki af nýju endurútgáfunni. (úr fréttatilkynningu):
Goðsagnakennda
platan Sjö með Curver verður endurútgefinn laugardaginn
næsta þann 07.07.07. Sjö gengur öll út
á töluna 7 og kom út á vínill plötu
07.07. árið 1997 í 77 eintökum. Nú verður
hún endurútgefin út í sérstakri viðhafnarútgáfu
í 77 númeruðum eintökum á DVD-disk. Platan
er stafrænt endurhljóðjöfnuð (digitaly remastered)
en einnig verður nú hægt verður að hlusta á
plötuna í 7.1 mono. Um 50 mínútna langt útvarpsviðtal
sem Andrea Jónsdóttir tók við Curver um tilurð
plötunnar á sínum tíma fylgir sem aukaefni á
disknum. DVD-diskurinn kostar 777 kr. verður fáanlegur í
öllum betri hljómlötuverslunum.
Upprunalegur texti af plötunni: Talan 7 er án efa ein
merkilegasta talan í menningu okkar. Hún hefur skipað
stórann sess í trúarbrögðum manna sem og
í hjátrú ýmiskonar. Meðal annars var hún
heilög tala í kristni á miðöldum (komið
frá gyðingdómi), og í Bibblíunni segiur
að Guð hafi skapað heiminn á sex dögum og hvílt
sig á þeim sjöunda. Dagar vikunnar eru 7, heimsálfurnar
eru 7 og tölfræðingar segja 7 sé algengasta happatalan
hjá fólki. margar bækur hafa verið skrifaðar
um töluna 7 þar á meðal bókin 777 eftir Aleister
Crowley.
Hér á eftir fylgja upplýsingar um hvernig gerð
plötunnar var háttað og tengslum hennar við töluna
7.
Í 7 daga vaknaði ég klukkan 7:00 á morgnana
eftir 7 klukkutíma svefn. Til að vakna tók ég
7 armbeygjur og fór svo í 7 mínútna sturtu
eftir átökin. Frá klukkan 7:00 til 24:00 hafði ég
17 klukkutíma til að semja og taka upp grunn að lagi á
7 hljóðrásir. Ég mátti ekki hafa unnið
í laginu áður þannig að öll lögin
urðu til frá grunni á þeim vikudegi sem það
er kennt við. Næstu 7 daga vann ég frá 17:00 til
24:00 og laggði lokahönd á upptökurnar. Með því
vann ég upp þá 7 tíma sem ég svaf í
fyrri vikunni og því er hægt að segja að platan
sé unnin á akkúrat 7 heilum dögum þ.e.
7 x 24 tímar. Á hverjum degi tók ég eina Polaroid-mynd
og eiga myndirnar að lýsa vinnsluferlinu, allt frá því
að ég samdi lagið á gítar (Sunnudagur) til
hljóðblöndunarinnar (Laugardagur). Einnig tengjast, myndirnar
séreinkennum hvers lags fyrir sig. Þess má geta að
skemmtileg tilviljun olli því að það tók
mig og Sigurð Svein einmitt 7 klukkutíma að setja upp umslag
plötunnar en það var ekki fyrirfram ákveðinn
tími.
Á plötunni byrja lögin 7 á 7 mínútna
fresti þannig að ef t.d. lag er 4 mínútur 3 mínútna
bið að næsta lagi og vitanlega máttu lögin eki
vera lengri en 7 mínútur. Þetta gerir plötuna
49 mínútna langa þ.e. 7 x 7 = 49. Til að hafa plötuna
jafn langa báðum megin ákvað ég að skipta
miðvikudegi í tvennt en það er einmitt 7 mínútna
langt lag. Þannig er 3 og hálf mínúta af Miðvikudegi
á fyrri hlið plötunnar en 3 og hálf mínúta
á seinni hlið hennar, semsagt 24 og hálf mínúta
á hvorri hlið.
---
Sá
Dreamgirls. Ekki gott.
05.07.07
Steini Sleggja ætlaði að berja mig fyrir mjólkurgreinina
í dag. Sagði mig hafa vanvirt hið heilaga karlkyn og gengið
til liðs við uppreisnaröflin. Ég baðst vægðar
og sagði honum að þetta hefði verið eina aðferðin
til að koma "júllum, túttum og bobbingum" aftan á
mestlesna blað landsins án þess að komast í
klandur. Fv
talskona femínisma færir þær góðu
fréttir að karlar geti víst mjólkað ef maður
gúgglar bara nógu mikið. Ég fékk nú
bara eintóman viðbjóð þegar ég sló
inn "milking men". Kannski gestir hafi leiðbeiningar?
---
Dreymdi svaka mikinn skít í nótt. Var í
Central park sem var undirlagður í gulleitri drullu sem virtist
koma úr mér. Býst við milljörðum inn
á reikninginn minn nema þetta hafi bara verið fyrir því
að Elgurinn fékk sprengiskitu og rústaðu samfellunni.
04.07.07
Veður er góð síða.
Landakort
er góð síða.
---
Í næsta Skemmtiþætti
fá konur loksins að komast að. Kata úr Mammút
mætir Kolbrúnu úr Myst.
---
Fyndnast í blöðunum í dag er fréttin
(Fbl., bls. 30) af millanum Ólafi í Samskipum sem er búinn
að fá sér þyrlu og gerir nú nágranna
sína í sveitasælunni gráhærða með
þyrluhávaða. Dýr fælast og ekki heyrist mannsins
mál í fermingaveislum en Ólafi er auðvitað
drullusama -- "Á ég að hringja í þig og
spyrja hvort ég megi lenda á Reykjavíkurflugvelli?"
spyr hann blaðakonuna með þeirri auðmýkt sem nokkrir
þúsundkallar í veskinu geta einir fært manni.
Kannski getur Ólafur fengið Elton John til að koma með
í þyrlunni og látið hann síðan jarma
úr súperhljóðkerfi til að gera sveitafólkið
endanlega geðveikt? Eða kannski bara keypt allt Snæfellsnes
svo hann geti ærslast á þyrlunni í friði?
Ha ha, hvílíkt grín! |